Gullöld revíunnar
				<itunes:name>Una Margrét Jónsdóttir</itunes:name>
Gullöld revíunnar
			<description>1. þáttur. Revía í grænum sjó. 
Í þessum þætti verður fjallað um fyrstu íslensku revíurnar, allt frá revíunum „Getjón“ og „Brandmajórinn“ í kringum 1880. Árið 1895 var flutt revían „Hjá höfninni“ eftir Einar Benediktsson, en fyrsta íslenska revían sem sló í gegn var „Allt í grænum sjó“ 1913. Hún var hins vegar bönnuð eftir frumsýningu og urðu um hana miklar deilur. Einnig verða fluttar hljóðritanir af elstu revíulögunum eftir íslensk tónskáld: „Nýjum hátíðasöng“ eftir Árna Thorsteinson, og „Ólundarsöng með ólundarlagi“ eftir Plausor, sem var dulnefni Jónasar Jónssonar, en bæði þessi lög eru frá 1901.
			<itunes:summary>1. þáttur. Revía í grænum sjó. 
			<itunes:subtitle>1. þáttur. Revía í grænum sjó. </itunes:subtitle>
Gullöld revíunnar
			<description> Í þessum þætti verður fjallað um revíur á árunum 1922 til 1925: Boltinn með lausa naflanum, Spánskar nætur, Góður gestur og Haustrigningar, en í „Spönskum nóttum” þreytti revíuleikarinn Haraldur Á. Sigurðsson frumraun sína.  Þetta tímabil hefur stundum verið kallað fyrra blómaskeiðið í íslenskri revíusögu, en einkum urðu „Spánskar nætur” og „Haustrigningar” vinsælar, og í þættinum verða leikin og sungin atriði úr þeim.  Í þeim voru líka söngvar sem brátt urðu alþekktir: „Báruballið” og „Tóta litla tindilfætt”.  Þórarinn Guðmundsson samdi líka lag fyrir „Spánskar nætur” sem varðveist hefur fyrir hreina tilviljun, og Emil Thoroddsen samdi lag fyrir „Haustrigningar”.
Gullöld revíunnar
			<description>Hér verður einkum fjallað um revíur frá því um miðjan 3. áratuginn og fram undir 1938. Í Reykjavík voru á þessum tíma frumsýndar revíurnar Tíminn og Eilífðin, Eldvígslan, Lausar skrúfur og Títuprjónar, en á Seyðisfirði Glettingur 1926. Upp úr 1930 komu svo fram á sjónarsviðið tvær upprennandi revíustjörnur: Brynjólfur Jóhannesson og Alfreð Andrésson. Einnig verður fjallað um KR-revíurnar sem Erlendur Pétursson stóð fyrir í kringum 1930 og spjallað við gamlan KR-ing, Baldur Jónsson, sem man eftir þeim. Flutt verður ný hljóðritun af laginu „Næturlögreglan” sem Oddgeir Kristjánsson samdi 1936 við texta eftir Árna í Eyjum og ekki hefur verið hljóðritað áður.</description>
Gullöld revíunnar 4. þáttur
			<description>Þessi þáttur verður helgaður revíunni „Fornar dyggðir” sem var frumsýnd 1938 og aftur flutt ári síðar með breyttum söngvum. Með henni hefst síðara blómaskeið íslensku revíunnar og margir söngvar úr henni eru alþekktir: „Er Stebbi litli fæddist”, „Hann var einu sinni lítill”, „Það er nú flott, okkar lögreglulið” og „Út við himinbláu sundin”. Einnig samdi Bjarni Böðvarsson fyrir hana lagið „Nú blikar”.</description>
			<itunes:subtitle>Fornar dyggðir</itunes:subtitle>
Gullöld revíunnar
			<description>Á stríðsárunum blómstraði revían og mikið var gert grín að ástandinu svokallaða: sambandi íslenskra stúlkna við erlendu hermennina. Í þættinum verður fjallað um revíuna „Forðum í Flosaporti“ frá 1940, en fyrir hana samdi Emil Thoroddsen tvö lög: „Reykjavíkurstúlkuna“ og „Ekki tók þá betra við“ sem hafa verið hljóðrituð sérstaklega fyrir þessa þáttaröð. Einnig verður sagt frá Vestmannaeyjarevíunni „Brenndir hundar“ eftir Loft Guðmundsson og Akureyrarrevíunni „Ekki er hann iðjulaus“ sem Örn Snorrason og Kristján Eldjárn, síðar forseti, sömdu og frumsýnd var 1941. 
Gullöld revíunnar
			<description>Áfram líða stríðsárin og hafa m.a. í för með sér skömmtun á ýmsum nauðsynjavörum. Í þessum þætti verður fjallað um revíuna „Hver maður sinn skammt“ frá 1941, en í henni eru m.a. lögin „Snaps skaltu fá“, „Það er draumur að vera með dáta“, „Síldarstúlkan“ (lag Árna Björnssonar) og „Kalli á Hóli“. Sum lögin úr revíunni hafa varðveist í hljóðritun með upprunalegum flytjendum, svo sem Söngur Saumalínu með Lárusi Ingólfssyni. Einnig verður lítillega fjallað um Keflavíkurrevíuna „Draumalandið“ eftir Helga S. Jónsson, og sagt frá andláti hins vinsæla gamanvísnasöngvara Bjarna Björnssonar 1942. 
Gullöld revíunnar
			<description>Í þessum þætti verður fjallað um revíurnar „Nú er það svart, maður“ og „Halló, Ameríka“ sem báðar voru frumsýndar 1942, en í þeim má finna lög eins og „Maðurinn hennar Jónínu hans Jóns“, „Áður var Reykjavík annar bær“ og „Gunna var í sinni sveit“. Sumar hljóðritanir verða fluttar með upprunalegum flytjendum: Lárusi Ingólfssyni og Hermanni Guðmundssyni.
Gullöld revíunnar
			<description>Revían „Allt í lagi, lagsi“ sem frumsýnd var 1944, var ein vinsælasta revía seinna blómaskeiðsins, en í henni má m.a. finna söngvana „Jón og ég, við vorum eins og bræður“ og „Vísur Óla í Fitjakoti“. Einnig verður fjallað um Akranesrevíuna „Allt er fertugum fært“ eftir Theodór Einarsson, sem frumflutt var 1945 og talað við dóttur höfundarins Ragnhildi Theódórsdóttur, Sjöfn Jóhannesdóttur sem tók þátt í revíunni og Bjarnfríði Leósdóttur sem man eftir sýningunni. Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir
Gullöld revíunnar
			<description>Þessi þáttur verður helgaður revíunni „Upplyftingu“ sem frumsýnd var 1946, en flutt verða brot úr gamalli hljóðritun Ríkisútvarpsins af 2. þætti revíunnar með upprunalegum flytjendum: Alfreð Andréssyni, Haraldi Á. Sigurðssyni, Jóni Aðils, Auroru Halldórsdóttur og Nínu Sveinsdóttir, en hin síðastnefnda kom þarna fram í revíu í fyrsta skipti og sló undir eins í gegn með flutningi sínum á „Kerlingarvísum“. 
Gullöld revíunnar
			<description>Revían „Vertu bara kátur“ var frumsýnd 1947 og er hún öll til í hljóðriti hjá Ríkisútvarpinu með upprunalegum flytjendum, en slíkt er afar sjaldgæft. Hlustendur fá að heyra brot úr þessari hljórðitun, m.a. Jónsvísur, sem Nína Sveinsdóttir flytur með miklum tilþrifum, og rússneskan söng í hlutningi Haraldar Á. Sigurðssonar, en fáar hljóðritanir eru til af söng hans.
Gullönd reviunnar
			<description>Á síðustu árum 5. áratugarins var mikil vöruþurrð á Íslandi, nauðsynjavörur voru stranglega skammtaðar og húsmæður fóru á fætur á næturlagi til að bíða í biðröðum fyrir utan verslanir. Mikið var hent gaman að þessu í revíunum, og í þættinum verður fjallað um Akureyrarrevíuna „Taktu það rólega“ frá 1948 og „Gullnu leiðina“ eftir Loft Guðmundsson sem sýnd var í Hafnarfirði 1949, en í báðum þessum revíum kemur fram persóna sem heitir Hamstrína, og hugsar ekki um annað en að hamstra sem mest af vörum. Rætt verður við Richard Þórólfsson og Gísla Eyland, sem tóku þátt í „Taktu það rólega“ og Engilráð Óskarsdóttur sem lék í „Gullnu leiðinni“.
Gullöld revíunnar
			<description>Á árunum 1948 til 1952 stóðu Haraldur Á. Sigurðsson, Alfreð Andrésson, Tómas Guðmundsson og Indriði Waage að revíusýningum í Sjálfstæðishúsinu í Reykjavík undir merkjum „Bláu stjörnunnar“. Meðal vinsælla revíusöngvara í Bláu stjörnunni var Soffía Karlsdóttir, og fluttar verða hljóðritanir með henni og fleirum sem fram komu. Árni Tryggvason kemur í þáttinn og flytur skopstælingu Tómasar Guðmundssonar á atómljóði sem hann frumflutti í Bláu stjörnunni, og spjallað verður við Hjálmar Gíslason og Engilráð Óskarsdóttur sem tóku þátt í sýningunum.
Gullöld revíunnar
			<description>Í þessum þætti verður m.a. sagt frá revíunum „Beiskir sjússar“ eftir Loft Guðmundsson og „Útsynningi“ eftir Jósef St. Lúðvíksson, einnig fjallað um Akureyrarrevíuna „Nú krassar það“ frá 1953, revíuna „Svartur á leik“ eftir Guðmund Sigurðsson og Akranesrevíuna „Kátir voru karlar“ eftir Ragnar Jóhannesson, en báðar þessar revíur voru sýndar 1956. Spjallað verður við Bjarnfríði Leósdóttur sem tók þátt í „Kátir voru karlar“ og Hjámar Gíslason sem lék í „Svartur á leik“, en fyrir hana samdi Árni Ísleifsson lög.
Gullöld revíunnar
			<description>Hér verður fjallað um revíur frá árunum 1957 til 1960: „Gullöldin okkar“, „Tunglið, tunglið, taktu mig“, „Rokk og rómantík“, „Frjálsir fiskar“ og „Eitt lauf“. Árni Ísleifsson samdi lög fyrir sumar þessar revíur, einnig samdi Pálmar Ólason lag fyrir „Rokk og rómantík“ og Eyþór Þorláksson lag fyrir „Eitt lauf“. Fluttar verða nýjar hljóðritanir af lögum þeirra Pálmars og Eyþórs, og spjallað við Pálmar, einnig við Hjálmar Gíslason og Sigríði Hannesdóttur sem léku í Gullöldinni okkar, og Ómar Ragnarsson sem tók þátt í revíunni „Eitt lauf“. Það var síðasta revían sem Haraldur Á. Sigurðsson lék í, en hér er litið svo á að gullöld revíunnar endi um leið og leikferill hans.