Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 16.maí 2012
      <description>Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, þarf að greiða þrotabúi bankans tæplega hálfan milljarð króna vegna láns sem hann tók til að kaupa hlutabréf í Kaupþingi, samkvæmt dómi Héraðsdóms. Þá var jafnframt staðfest kyrrsetning á einbýlishúsi á Seltjarnarnesi og sumarhúsi í Kjós.
Seðlabankinn hækkaði vexti um hálft prósentustig í morgun. Stýrivextir eru fimm og hálft prósent. Ekki verður komist hjá frekari vaxtahækkunum dragi ekki úr verðbólgu á næstu mánuðum, segir Peningastefnunefnd bankans. 
Fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra telur að til greina komi að þjóðin kjósi um hvort halda eigi aðildarviðræðum við Evrópusambandið áfram. Innganga í sambandið sé grundvöllur þess að hægt verði að afnema gjaldeyrishöft á Íslandi.
Þorsteinn Már Baldvinsson, aðaleigandi Samherja, hefur fengið ríflega einn og hálfan milljarð króna í arðgreiðslu frá fyrirtækinu síðustu fimm árin. Samanlagðar arðgreiðslur á þeim tíma nema tæpum fjórum milljörðum króna.
Stjórnvöld í Noregi og Liechtenstein taka undir málsvörn Íslands í Icesave-málinu í athugasemdum sem þau hafa sent EFTA dómstólnum. Bresk og hollensk stjórnvöld eru á öndverðum meiði.
Ökumaður sem festi fólksbíl sinn á Dettifossleið í nótt var próflaus og reyndist auk þess hafa farið yfir keðju sem gaf til kynna að vegurinn væri lokaður.Tvær björgunarsveitir voru kallaðar út til að koma manninum til hjálpar. 
Veðurstofan spáir hægri norðlægri eða breytilegri átt, en átta til tíu metrum við austurströndina framan af degi. Skýjað verður norðaustanlands og stöku él, en annars yfirleitt léttskýjað. Eins til átta stiga hiti, svalast norðaustantil.</description>
Hádegisfréttir 15.maí 2012
      <description>Krafa stjórnvalda um að lífeyrissjóðirnir færi niður lán með lánsveðum er í mótsögn við þá umræðu um skyldur stjórnarmanna sem kom upp eftir hrun. Þetta segir forseti viðskiptafræðideildar Háskólans í Reykjavík.
Innanríkisráðherra segir mótsagnakennt að stofna íslenskt félag í eigu útlendinga um fyrirhugaða fjárfestingu Huangs Nubo á Grímsstöðum á Fjöllum. Huga þurfi að ýmsu, meðal annars of miklum ágangi ferðamanna.
Ríkissaksóknari hefur ákært Annþór Kristján Karlsson og Börk Birgisson fyrir sérstaklega hættulegar líkamsárásir. Ekki er útilokað að fleiri verði ákærðir.
Hefði sérstakt veiðigjald verið sett á fyrir áratug væru sjávarútvegsfyrirtæki í sömu stöðu og þau eru, segir hagfræðiprófessor. Þau skulduðu hins vegar minna, og það sem þau borga nú í vexti til fjármálafyrirtækja, rynni í staðinn í ríkissjóð.  
Kvartað hefur verið undan útfararstofum við Neytendasamtökin, fyrir ofrukkun.  Lögfræðingur samtakanna hvetur fólk til að fara vel yfir reikninga frá stofunum. 
Rebekah Brooks, einn nánasti aðstoðarmaður fjölmiðlakóngsins Ruperts Murdochs, verður ákærð fyrir að hindra framgang réttvísinnar. Hún vísar ákærunum á bug. 
Sá garðagróður sem ekki þolir kuldakast síðustu daga á lítið erindi hingað til lands segir garðyrkjustjóri Reykjavíkurborgar.
Stjarnan vann Keflavík í eina leik gærkvöldsins í úrvalsdeild karla í knattspyrnu.  Í netheimum er sagt að Kenny Dalgliesh, knattspyrnustjóri Liverpool, verði rekinn í dag.
Veðurhorfur: Norðan fimm til fimmtán metrar, hvassast austast. Dálítil él norðan og austanlands, annars víða bjartviðri. Lægir smám saman í dag og dregur úr éljum. Hæg norðlæg eða breytileg átt á morgun. Skýjað með köflum og úrkomulaust að kalla á norðanverðu landinu, en þurrt og bjart sunnan heiða. Hiti tvö til sjö stig, en kringum frostmark norðan og austanlands. Víða næturfrost.</description>
Hádegisfréttir 14.maí 2012
      <description>Forseti Íslands teygir synjunarvald yfir á nýjar slóðir með yfirlýsingu, um að kvótamálin henti vel í þjóðaratkvæðagreiðslu, segir prófessor í stjórnmálafræði. Forsetinn sé nú orðinn meiri gerandi í stjórnmálunum en áður. 
Björgunarsveitir eru enn að aðstoða ökumenn sem eru í vandræðum vegna vetrarfærðar á Norður- og Austurlandi. Grjót fauk um Hvalnes- og Þvottárskriður í óveðrinu í gær og skemmdust bílar sem áttu leið um. Rúður brotnuðu í einum bílnum en engan sakaði. 
Staða lánþega með lánsveð ætti að skýrast í dag þegar forsvarsmenn lífeyrissjóðanna eiga fund með efnahags- og viðskiptaráðherra. Um 2000 fjölskyldur með lánsveð búa nú í yfirveðsettu húsnæði. 
Sjávarútvegsmálastjóri Evrópusambandsins telur að hægt verði refsa Íslendingum og Færeyingum fyrir makrílveiðar þeirra í síðasta lagi í byrjun næsta árs. Evrópuþingið tekur reglur sem heimila refsiaðgerðir til umræðu í næsta mánuði.
Óhjákvæmilegt er að auka fjárframlög til Útlendingastofnunar, í ljósi fjölgunar hælisleitenda. Þetta segir innanríkisráðherra. Hann ætlar að taka málið upp í ríkisstjórn á morgun.
Ágreiningur  er í grænlensku landstjórninni um hvort leyfa eigi innflutning ódýrs vinnuafls frá Kína. Alcoa og kínverskt námufyrirtæki vilja flytja allt að 3000 lágt launaða kínverska verkamenn til Grænlands.
Samevrópsk rannsókn til að undirbúa Evrópubúa fyrir eldgos á hér á landi verður undir stjórn íslenskra jarðvísindamanna.
Veðurstofan spáir minnkandi norðanátt, yfirleitt tíu til átján metrum. Él verða, einkum á Norður- og Norðausturlandi, en þurrt sunnanlands. Lægir heldur síðdegis. Norðan og norðvestan fimm til þrettán metrar á morgun, en hvassara austast fram eftir degi. Eins til sex stiga hiti syðra, annars við frostmark.</description>
Hádegisfréttir 13.maí 2012
      <description>Langvarandi deilur um málefni Gerðarskóla í Garði er ein af ástæðum þess að einn bæjarfulltrúa Sjálfstæðismanna gekk úr meirihlutanum í gær og hefur myndað nýjan meirihluta með N og L lista.  Sá vill segja upp bæjarstjóranum, en það kostar nærri 30 milljónir króna. 
Enn gengur ekkert að mynda ríkisstjórn í Grikkalandi og leiðtogana greinir á um hvort evrópska myntsamstarfið eigi sér framtíð.  Flokksleiðtogarnir virtust ekki bjartsýnir að loknum fundi með forseta landsins í morgun. 
Áhrifamesti samningamaður afganskra stjórnvalda í friðarviðræðum við Talíbana var myrtur í Kabúl í morgun. Aðrir sem tekið hafa þátt í viðræðunum óttast um líf sitt og friðarferlið er í uppnámi.
Á síðustu fjórum árum hafa tveir einstaklingar komið að stjórnun 27 félaga sem lýst hafa verið gjaldþrota, á þriðja þúsund tengjast fleirri en einni gjaldþrota kennitölu. Þetta kemur fram í tölum frá Creditinfo. 
Oddviti Tjörneshrepps segir margt óljóst í áformum sveitarfélaga um að kaupa Grímsstaði. Að minnsta kosti tvö sveitarfélög á Norðausturlandi ætla ekki að koma að hlutafélagi um að kaupa Grímsstaði á Fjöllum.
Fyrsta æfing íslensku keppendanna fyrir Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, fór fram í Bakú í Aserbaídsjan í morgun. Gréta Salóme Stefánsdóttir söngkona segir að hópurinn ætli að gera sitt besta til að sigra í keppninni. 
Bændur hafa nýtt helgina til að búa sig undir óveður en sumir tóku fé á hús í morgun.</description>
Hádegisfréttir 12.maí 2012
      <description>Lífeyrissjóðirnir hafa endanlega afskrifað tillögur stjórnvalda um hvernig koma eigi til móts við fólk með lánsveð. Aðrar leiðir eru þó til skoðunar og er búist við að það liggi fyrir á mánudag hvort einhver þeirra sé fær fyrir sjóðina.
Flest bendir til þess að kjósa þurfi á ný í Grikklandi til að binda endi á stjórnarkreppuna sem myndaðist eftir þingkosningarnar um síðustu helgi. Leiðtogar allra þriggja stærstu flokkanna hafa nú reynt að mynda stjórn en án árangurs.
Mál ungu flóttamannanna sem dæmdir voru í fangelsi fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum er ekki einsdæmi hér á landi. Ungur Afgani sem segist vera 17 ára sat í fangelsi í tvær vikur nú í apríl fyrir sama brot.
Fyrrverandi starfsmaður Seltjarnarnesbæjar ætlar að höfða mál gegn bænum vegna meintrar ólögmætrar uppsagnar. Þetta er í annað sinn sem bænum er stefnt fyrir mál af þessu tagi á skömmum tíma.
Vinsælast er að nota lóu söng í auglýsingum hér á  landi.  Næst vinsælastur er spóinn og þúfutittlingur en tjaldurinn minnst notaður.  Þetta kemur fram í samantekt sem fuglafræðingur gerði um notkun fuglasöngs í auglýsingum. 
Valur og Fram leika í dag til úrslita um Íslandsmeistaratitil kvenna í handknattleik. Valur getur orðið meistari þriðja árið röð, en Fram getur bundið enda á 22 ára eyðimerkurgöngu sína.</description>
Hádegisfréttir 11.maí 2012
      <description>Tillaga forsætisráðherra um fækkun ráðuneyta var samþykkt á Alþingi nú rétt fyrir hádegi með 28 atkvæðum gegn 21. Árni Páll Árnason sat hjá, Jón Bjarnason greiddi atkvæði gegn tillögunni. Forsætisráðherra segist fullviss um að þessi breyting marki tímamót innan Stjórnarráðsins. 
Hreint tap Stapa lífeyrissjóðs, vegna dóms Hæstaréttar í gær, er metið á um tvo milljarða króna. Stjórnendur Stapa meta nú hvaða kosti sjóðurinn hefur í kjölfar dómsins.
Stjórnarmyndunarviðræður Venizelos, leiðtoga jafnaðarmannaflokksins PASOK, og Samaras leiðtoga Nýs lýðræðis stóðu í morgun. Verði þær árangurslausar eru líkur á að kosið verði aftur í Grikklandi í næsta mánuði.
Embætti sérstaks saksóknara krafðist þessi í morgun að Hæstiréttur vísaði Exeter-málinu svokallaða gegn þremur fyrrverandi stjórnendum BYRs og MP banka, aftur til héraðsdóms, vegna vanhæfis eins dómarans sem sýknaði mennina í héraði. 
Kona á þrítugsaldri er í haldi bresku lögreglunnar, grunuð um að hafa valdið því að fimm börn brunnu inni í nótt. 
Vararíkissaksóknari segir að athugasemdir Seðlabanka Íslands í máli Heiðars Más Guðjónssonar muni í engu breyta niðurstöðu embættisins um að fella niður rannsókn málsins. Hann hyggst þó funda með fulltrúum bankans í kurteisisskyni. 
Hríðin sem spáð er á Norðausturlandi um helgina stóreykur álag á bændur sem þurfa að taka fé á hús í miðjum sauðburði. Ráðunautur hvetur bændur til að biðja um aðstoð fyrr en seinna til að sagan frá því í fyrra endurtaki sig ekki. Fjöldi bænda ofgerði sér þá í sauðburði.
Veðurhorfur: Suðvestan og vestan þrír til tíu metrar. Dálítil rigning með köflum, en þurrt á Suðausturlandi og Austfjörðum. Suðlægari og rigning eða súld á morgun, einkum sunnan og vestanlands. Hiti fimm til tólf stig.</description>
Hédegisfréttir 10.maí 2012
      <description>Bankarnir hafa afskrifað 67 milljarða króna vegna gengistryggðra lána.  Upphæðin gæti meira en tvöfaldast ef dómar falla á þann veg. Fjármálaeftirlitið telur þetta þó ekki hafa áhrif á fjármálastöðugleika.
Mikið ber í milli ítrustu krafna lánþega gengislána annarsvegar og fjármálastofnana hinsvegar.  Lögmenn samráðshóps vonast til að hægt sé að skera úr um reikningsaðferð í einu dómsmáli í haust.
Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að stóru mál ríkisstjórnarinnar fái falleinkunn og þúsundir starfa muni tapast. Forsætisráðherra sakar Sjálfstæðismenn um að tefja framgöngu mikilvægra mála árum saman. 
Fimmtíu og fimm létu lífið og hátt í 400 særðust þegar tvær öflugar sprengjur sprungu á hraðbraut í Sýrlandi í dag. Sameinuðu þjóðirnar biðla til umheimsins um aðstoð við að stöðva blóðbaðið í landinu.
Innanríkisráðherra segir að enginn samningur um Grímsstaði á Fjöllum hafi verði kynntur í ríkisstjórn.  Hann hefur miklar efasemdir væntanlega leigu á jörðinni. 
Tuttugu og níu menn voru handteknir samtímis í Danmörku og Berlín í morgun.  Tveir þeirra eru taldir hafa skipulagt innbrot og rán þjófagengja frá Austur-Evrópu á Kaupmannahafnarsvæðinu.
Innan við eitt prósent af lánveitingum Íbúðalánasjóðs fer til þeirra sem kaupa eignir sem eru yfir fimmtíu milljónir að fasteignamati.
Tíðni skorpulifrar hefur margfaldast á síðustu tíu árum og útlit fyrir að lifrarígræðslum fjölgi umtalsvert.  Ástæðan er meðal annas aukin dagdrykkja á bjór og léttvíni segir Magnús Böðvarsson læknir. 
Veðurstofan spáir norðanhreti fyrir norðan og austan á sunnudag og mánudag með slyddu og snjókomu. 
En næsta sólarhringinn... 
Veðurstofan spáir vestlægri átt, víða þremur til átta metrum. Þurrt verður og bjart suðaustanlands, dálítil rigning norðvestantil en smáskúrir eða slydduél annars staðar. Tveggja til átta stiga hiti.</description>
En næsta sólarhringinn... 
Hádegisfréttir 09. maí 2012
      <description>Kvótafrumvörpin voru kölluð árás á sveitarfélagið á fjölsóttum hitafundi um sjávarútvegsmál í Fjarðabyggð í gærkvöldi. Samkvæmt úttekt KPMG myndu tekjur sveitarfélagsins minnka um allt að 80 milljónir og allt að 40 störf tapast. 
Sveitarstjórnarmenn virðast frekar gæta hagsmuna útgerðarinnar en almennings þegar kemur að kvótamálum. Þetta er niðurstaða þingmanns Hreyfingarinnar eftir fundi með sveitarstjórnarmönnum í gær.
Lögreglan telur að ungu flóttamennirnir frá Alsír sem dæmdir voru í mánaðarfangelsi í síðustu viku séu eldri en þeir segjast vera. 
Ekki verður hægt að fá lán hjá íbúðalánasjóði til að kaupa dýrar eignir og byggingaverktakar fá ekki lengur lán hjá sjóðnum ef frumvarp til laga um Íbúðalánasjóð verður samþykkt. 
Evrópuleiðtogar hafa vaxandi áhyggjur af stjórnmálaástandinu í Grikklandi. Foringi flokks róttækra vinstrimanna reynir í dag myndun ríkisstjórnar sem á að rifta björgunarsamningi við Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.
Hjólað í vinnuna, heilsuátak Íþrótta-og Ólympíusambands Íslands, hófst í morgun í tíunda sinn. Þátttakendum í átakinu hefur fjölgað um tvö þúsund prósent frá upphafi.
Nýta á helsingjastofninn eins og makrílinn segir bóndi í Víðidal í Austur-Húnavatnssýslu. Helsingjar í þúsundatali hvíla sig á túnum bænda nyrðra í árlegri millilendingu á leiðinni til varpstöðvanna á Grænlandi. 
Veðurstofan spáir hægri breytilegri átt og björtu veðri en skúrum sunnanlands og á Vestfjörðum síðdegis. Tveggja til átta stiga hiti.</description>
Hádegisfréttir 08. maí 2012
      <description>Tæplega 26.400 einstaklingar eru í alvarlegum vanskilum á Íslandi. Það eru 8,7 prósent landsmanna. Flestir í þessum hópi eru karlmenn. Langhæsta hlutfall skuldara er á Suðurnejsum. 
Fyrrverandi stjórnendur Kaupþings í Þýskalandi stýra nú útibúi rússnesks banka þar, sem býður sparifjáreigendum betri vexti en aðrar fjármálastofnanir. Minnir helst á Kaupþing, segja þýskir fjölmiðlar. 
Ríkisstjórnarfundur var haldinn á Austurlandi í morgun. Þar var tilkynnt um framlög fyrir á annan milljarð króna til framkvæmda og nýsköpunar í fjórðungnum.
Alexis Tsipras, leiðtogi róttæka vinstriflokksins Syriza í Grikklandi, reynir í dag að mynda vinstristjórn. Tsipras er andvígur niðurskurðarstefnu fráfarandi valdhafa. 
Ríkislögreglustjóri ætlar að kanna bakgrunn unglinga sem sóttu um vinnu á Keflavíkurflugvelli í sumar.
Vannæring leiðir meira en tvær og hálfa miljón barna til dauða á hverju ári. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Barnaheilla.
Ferðaþjónustufyrirtæki á hálendinu lét á dögunum ryðja snjó af Kjalvegi. Forráðamenn þess vilja með því tryggja að vegurinn verði orðinn fær um næstu mánaðamót. 
Hljómsveitin Sigur Rós spilar á Airwaveshátíðinni í haust. Þetta verða fyrstu tónleikar hljómsveitarinnar á Íslandi í fjögur ár. 
Valur sigraði Fram bæði í úrslitum um Íslandsmeistaratitil kvenna í handknattleik og í úrvalsdeild karla í knattspyrnu í gærkvöld.
Veðurhorfur: Norðaustlæg átt, víða þrír til átta metrar. Dálítil él norðaustan og austanlands, annars bjart á köflum, en skúrir á suður og suðvesturlandi. Hæg breytileg átt á morgun og bjartviðri, en líkur á skúrum sunnan og vestanlands síðdegis. Hiti að átta stigum að deginum, mildast suðvestanlands, en víða næturfrost.</description>
Hádegisfréttir 07. maí 2012
      <description>Francois Hollande, nýkjörinn forseti Frakklands, ítrekaði í sigurræðu sinni að sér væri full alvara um að knýja fram breytingar á efnahagsstefnu Evrópusambandsins í málefnum evruríkja. Of langt sé gengið í aðhaldi og niðurskurði.
Bakgrunnur allra starfsmanna á Keflavíkurflugvelli er kannaður ítarlega fimm ár aftur í tímann. Ríkislögreglustjóra er heimilt að hafa eftirlit með starfsmönnunum, eftir að þeir hefja störf. 
Þingflokksformenn stjórnarandstöðunnar fagna fyrirhugaðri fjárfestingu á Grímsstöðum á Fjöllum.
Evrópusambandið væntir þess að ný ríkisstjórn í Grikklandi virði efnhagssamninga um björgunarlán. Andstæðingar samninga við Evrópusambandið unnu  mikið á.
Slitastjórn Kaupþings krefur Sigurð Einarsson, fyrrverandi stjórnarformann bankans, um 550 milljónir króna. Riftunarmál gegn honum var dómtekið í morgun.
Stjórnendur Heilbrigðisstofnunar Austurlands viðurkenna að öryggi íbúa á Vopnafirði sé skert með læknislausum dögum. Til greina kemur að setja á bakvaktir, þannig að hjúkrunarfræðingur sé alltaf til taks þegar enginn læknir er á staðnum.
Styrkja á stöðu sparisjóðanna með nýju frumvarpi sem efnahags- og viðskiptaráðherra hefur lagt fram á Alþingi. 
Nýliðar Selfoss og ÍA voru einu liðin sem unnu sína leiki í gærkvöld þegar keppni hófst í úrvalsdeild karla í knattspyrnu.
Veðurhorfur: Norðlæg eða breytileg átt, þrír til átta metrar. Dálítil él á norðaustanverðu landinu, annars bjartviðri, en skúrir suðvestantil á morgun. Hiti að átta stigum að deginum, mildast suðvestanlands, en víða næturfrost.</description>
Hádegisfréttir 06.maí 2012
      <description>Íslensk stjórnvöld og kínverski fjárfestirinn Huang Nubo eru ósammála um hversu langt á veg samningar vegna Grímsstaða á Fjöllum séu komnir.  Huang Nubo segir samningana í höfn en fjármálaráðherra segir það of djúpt í árinni tekið. 
Það stefnir í spennandi kosningar í Frakklandi í dag. Hollande, frambjóðanda sósíalista, er spáð sigri en stjórnmálaskýrendur telja að Sarkozy forseti geti veitt honum verðuga samkeppni.
Þingsályktunartillaga að rammaáætlun hefur ekki fengið þá meðferð sem lög krefjast að mati Samtaka atvinnulífsins. Tillagan sjálf hefði átt að fá umfjöllun en ekki drögin að henni. Umsagnarferli lýkur á þriðjudag. 
Maður með skambyssu var afvopnaður á skemmtistaðnum Goldfinger í gærkvöldi. Lögreglan ræður almenningi frá því að reyna að afvopna menn.
Óverulegar skemmdir eru á skrokk flutningaskipsins sem strandaði í innsiglingunni í Sandgerði í gær.   Kafari skoðaði skrokk skipsins í gærkveldi. 
Persónuvernd sér ekki lengur fram á að geta sinnt lögbundnum verkefnum sínum með fullnægjandi hætti vegna þess hve mikið erindum til stofnunarinnar hefur fjölgað.</description>
Hádegisfréttir 05.maí 2012
      <description>Flutningaskip frá Dóminíska lýðveldinu strandaði við Sandgerðishöfn í morgun. Varðskip og þyrla Landhelgisgæslunnar eru á vettvangi auk björgunarsveitarmanna og lögreglu. Ellefu manna áhöfn skipsins er ekki talin í hættu og engin merki eru um olíumengun.
Slökkviliðið getur lítið aðhafst vegna ólöglegrar búsetu í atvinnuhúsnæði. Með því að krefjast úrbóta á brunavörnum sé það í raun að benda á leið til að gera húsnæðið löglegt, segir forvarnarfulltrúi slökkviliðsins.
Réttarhöld yfir manninum sem sakaður er um að hafa skipulagt hryðjuverkaárásirnar ellefta september tvö þúsund og eitt hefjast í dag.
Framkvæmdastjóri kirkjuráðs segir að forsvarsmaður Þorláksbúðarfélagins fari með rangt mál þegar hann fullyrði að Skálholtsstaður sjái um fjármálahlið framkvæmdanna. Skálholtsstaður og Biskupstofa viti ekki um fjárhagsstöðu verkefnisins enda séu fjármálin á ábyrgð Þorláksbúðarfélagsins.
Japanar slökkva í dag á síðasta virka kjarnaofninum í landinu. Það verður í fyrsta sinn í fjörutíu ár sem Japanar fá enga orku úr kjarnorkuverum, og varað hefur verið við orkuskorti. 
Forstjóri Borgunar telur ekki þörf á að endurskoða það fyrirkomulag að fólk fái greiðslukort sín send í almennum pósti. Tvö mál hafa verið rekin fyrir dómstólum frá áramótum þar sem fólk hefur stolið korti áður en það barst eigandanum.
Örtröð myndaðist við opnun byggingarvöruverslunarinnar Bauhaus snemma í morgun. Bílaröð lá upp að versluninni frá Vesturlandsvegi þegar nokkur þúsund manns lögðu leið sína þangað.
Valur jafnaði úrslitaeinvígið um Íslandsmeistaratitil kvenna í handknattleik eftir sigur á Fram í æsispennandi framlengdum leik í Safamýri í gærkvöld.</description>
Hádegisfréttir 04. maí 2012
      <description>Deilt var um fyrirhugaða leigu Huangs Nubo á Grímsstaðajörðinni á ríkisstjórnarfundi í morgun.  Iðnaðarráðherra líst ágætlega á verkefnið en innanríkisráðherra lýst ekki á. 
Velferðarráðherra segir að nýtt húsnæðisbótakerfi eigi að jafna stöðu leigjenda og húsnæðiseigenda. Það geti þýtt til lengri tíma að núverandi vaxtabætur lækki - það verði þó ekki gert á meðan tekist sé á við afleiðingar hrunsins. 
Breski Verkamannaflokkurinn vann stórsigur í sveitarstjórnarkosningum í gær. Flokkurinn bætti við sig yfir 700 fulltrúum.
Slökkviliðið hugðist fyrir tæpum þremur árum loka iðnaðarhúsi í Kópavogi sem kviknaði í í fyrrinótt. Forvarnarfulltrúi slökkviliðsins segir nöturlegt að vegna bágrar fjárhagsstöðu eigi sumt fólk ekki í önnur hús að venda.
Lagaprófessorar leggja til tvær sérlausnir sem hægt væri að semja um við Evrópusambandið svo  innleiða megi samevrópskt fjármálaeftirlit, án þess að það fari í bága við stjórnarskrána. Utanríkisráðherra segir að báðar hafi verið skoðaðar og er svartsýnn á árangur.
Tveir þekktir ofbeldismenn rufu skilorð þegar þeir réðust, í félagi við aðra, á nokkra menn og slösuðu þá alvarlega.   Einn hlaut opið beinbrot, en beitt var ma. meðal annars hafnarbolta- og golfkylfu.
Umboðsmaður Alþingis segir að Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hafi ekki uppfyllt hæfiskröfur til að staðfesta breytingar á svæðis- og aðalskipulagi höfuðborgarsvæðisins vegna fyrri aðkomu hennar að málinu sem borgarfulltrúi í Reykjavík. 
HK lagði FH í gær  í öðrum leik liðanna í úrslitum Íslandsmóts karla í handknattleik og er nú aðeins einum sigri frá fyrsta Íslandsmeistaratitli sínum.
Veðurstofan spáir fremur hægri norðlægri átt en norðaustan fimm til tíu í kvöld og á morgun. Eins til tólf stiga hiti, hlýjast suðvestantil.</description>
Hádegisfréttir 03. maí 2012
      <description>Huang Nubo greiðir 860 milljónir króna fyrir að leigja Grímsstaðajörðina í 40 ár ef ríkisstjórnin samþykkir fjárfestingasamning sem sveitarfélög á Norður- og Austurlandi vilja gera við kínverska fjárfestinn.
Ný kvótafrumvörp fá mjög harða útreið í skýrslu tveggja sérfræðinga sem Atvinnuveganefnd Alþingis fékk til að meta áhrif þeirra. Veiðigjald sé of hátt, úreikningar á því flóknir og markmið varðandi byggðaþróun náist vart.
Slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins segir að fjölskyldur leiti í síauknum mæli í ósamþykktar íbúðir í iðnaðarhúsnæði.  Ósamþykkt íbúð í Kópavogi skemmdist mikið í eldsvoða í nótt. Þar var engin reykskynjari.
Forsætisráðherra segir Sjálfstæðisflokk og Framsókn hafa eitt markmið og það sé að koma ríkisstjórninni frá. Þeir tefji þingstörf með málþófi. Ef þurfa þykir muni þingið starfa fram í júlí. 
Stórveldaviðræður Bandaríkjamanna og Kínverja um vígbúnað og viðskipti hófust í Peking í morgun. Mál blinds andófsmanns sem sætir harðræði í Kína skyggir á viðræðurnar.
Grindavík varð í gærkvöld Íslandsmeistari karla í körfuknattleik og Fram vann Val í fyrsta leik liðanna í úrslitum Íslandsmóts kvenna í handknattleik.
Veðurhorfur: Norðlæg átt þrír til tíu metrar og léttskýjað, en dálítil él í fyrstu austanlands. Hægari vindur síðdegis og skúrir syðst á landinu. Léttskýjað verður víðast hvar á morgun, en norðan átta til þrettán og él austast um kvöldið. Hiti tvö til tólf stig að deginum, hlýjast á Suðurlandi, en víða næturfrost.</description>
Hádegisfréttir 02. maí 2012
      <description>Hundruð báta héldu í nótt og í morgun til strandveiða sem hófust formlega á miðnætti. Nokkur óhöpp hafa þegar orðið. Bátur sökk við Látrabjarg í gærkvöldi og annar fékk í skrúfuna utan við Grundarfjörð í morgun. 
Ríkisstjórnin ætlar að klára öll stóru málin sem liggja fyrir þinginu, segir þingflokksformaður Vinstri grænna, um annað verði ekki samið. Það gengur ekki að óbreyttu, segir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks. 
Íslensk stjórnvöld segja að ekkert hafi breyst síðustu ár sem réttlæti að innflutningsbann á hráu kjöti verði afnumið. Eftirlitsstofnun EFTA kannar hvort bannið standist EES-samninginn.
ESA, eftirlitsstofnun EFTA, gerir athugasemdir við matvælaöryggi á Íslandi, og telur að annmarkar séu á eftirliti með kjöt- og mjólkurvörum. 
Bandaríkjastjórn samdi í morgun við kínversk stjórnvöld um að öryggi blinda andófsmannsins Chen Guangcheng verði tryggt. Hann hefur yfirgefið bandaríska sendiráðið í Peking.
Formaður BSRB segir að vísbendingar séu um að munur á launum karla og kvenna sé að aukast á ný. Kannanir sýni að hann sé allt að þrettán prósent hjá ríkisstarfsmönnum. 
AG Kaupmannahöfn mætir Atletico Madrid og Kiel mætir Berlín í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í handknattleik en dregið var í morgun.  Átta Íslendingar eru meðal þátttakenda í undanúrslitunum.
Veðurhorfur: Suðvestlæg eða breytileg átt þrír til átta metrar, skýjað og súld eða dálítil rigning um tíma í dag. Hiti yfirleitt fimm til tíu stig. Minnkandi norðanátt á morgun, hæg breytileg átt eða hafgola síðdegis. Skýjað í fyrstu norðaustantil, annars víða léttskýjað. Hiti tvö til tíu stig, mildast sunnanlands.</description>
Hádegisfréttir 01. maí 2012
      <description>Barna- og vaxtabætur þurfa að hækka svo bæta megi stöðu lág- og millitekjuhópa segir forseti Alþýðusambandsins. Næstum þriðjungs lækkun á ráðstöfunartekjum heimlanna komi ekki á óvart á sama tíma og yfirvinna minnki og atvinnleysi aukist. 
Kröfugöngur og hátíðahöld verða víða um land í dag, 1. maí, baráttudag verkalýðsins. Fjörutíu ár eru síðan dagurinn varð lögskipaður frídagur hér á landi. 
Rupert Murdoch er ekki hæfur til að stjórna stóru alþjóðlegu fyrirtæki. Þetta er niðurstaða skýrslu um símhleranahneykslið svokallaða sem bresk þingnefnd hefur skilað af sér.
Skuldir Reykjavíkurborgar jukust um fimm milljarða króna á milli ára. Lífeyrisskuldbindingar í kjölfar kjarasamninga vega þar þungt.
Þau fyrirtæki sem veita svokölluð smálán þurfa að veita ítarlegar upplýsingar um kostnað og vaxtakjör lánanna og meta hvort lántakandi sé hæfur til að borga af láninu, samkvæmt frumvarpi til breytinga á ögum um neytendalán. 
Flóðviðvaranir hafa verið gefnar út um allt England vegna mikilla rigninga undanfarið. Að minnsta kosti einn hefur látist og margir hafa þurft að yfirgefa heimili sín.
Meindýraeyðir Reykjavíkur veiðir hátt í sjötíu minnka á ári innan borgarmarka Reykjavíkur.  Vegfarendur gengu fram á mink í fjörunni í Skerjafirði um helgina. 
Einn besti sundmaður heims, Norðmaðurinn Alexander Dale Oen (Dal Óen) er látinn. Oen er eini norski sundmaðurinn sem unnið hefur til verðlauna á Ólympíuleikum. 
Veðurstofan spáir minnkandi vestanátt, víða fimm til tíu metrum síðdegis. Skýjað verður að mestu á vestanverðu landinu, en bjart á köflum annars staðar. Sex til fjórtán stiga hiti í dag, hlýjast fyrir austan.</description>
Hádegisfréttir 30. apríl 2012
      <description>Ráðstöfunartekjur heimilanna rýrnuðu um fjórðung í hruninu og hefur ekki áður orðið viðlíka kjaraskerðing hér á landi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu. 
Talsvert mikið er um að leigjendur skemmi leiguhúsnæði hér á landi. Þetta segir yfirmaður eignatjóna hjá Sjóvá. Ekki er hægt að kaupa tryggingu fyrir slíku tjóni.
Tugir hafa látist í öflugum bílsprengjum sem sprengdar hafa verið í borgum í Sýrlandi í morgun. Árásirnar hafa m.a. beinst að stöðvum sýrlenskra öryggissveita. 
Aðalmeðferð í Straumsvíkurmálinu svokallaða hélt áfram í morgun. Tveir menn eru ákærðir fyrir að smygla miklu magni eiturlyfja til landsins með gámi og eru fjórir aðrir ákærðir fyrir aðild að málinu. Sakborningar báru tíðum fyrir sig minnisleysi og breyttu framburði frá því í skýrslutökum lögreglunnar. 
Ný stálendurvinnsla tekur til starfa á Grundartanga innan tíðar. Tuttugu ný störf skapast með tilkomu verksmiðjunnar. 
Fyrirhugað er að ný stofnun, að fyrirmynd Þjóðhagsstofnunar, taki til starfa á árinu. Starfsemi fimm ráðuneyta verður einnig stokkuð upp í tilraun til að auka skilvirkni Stjórnarráðsins. Stjórnarandstaðan gagnrýnir breytingarnar. 
Kópavogsbúar reyna nú losa sig við máv sem setið hefur í hundraðatali á íþróttavöllum í bænum.  Kjötmjöl í kögglum sem borið var á vellina dró fuglana að.
Þór kom í veg fyrir að Grindavík fagnaði Íslandsmeistaratitli karla í körfuknattleik í gærkvöld með því að vinna þriðja leik liðanna í úrslitarimmunni í gærkvöld. Útlit er fyrir að Roy Hodgson verði næsti landsliðsþjálfari Englendinga í knattspyrnu.
Veðurstofan spáir suðvestan og sunnan átta til fimmtán metrum og rigningu á vestanverðu landinu. Hvassast verður norðvestantil. Hægari vindur og bjartviðri eystra, en sums staðar væta þar í kvöld. Sex til sextán stiga hiti, hlýjast norðaustantil.</description>
Hádegisfréttir 29. apríl 2012
      <itunes:author>Arnar Páll Hauksson</itunes:author>
      <description>Kannað verður hvort heimila eigi aukin vopnaburð lögreglumanna. Þeir vilja rafbyssur við almenn skyldustörf og skammbyssur í lögreglubíla. Innanríkisráðherra hvetur til varfærni, en er reiðubúinn til umræðu um málið.
Starfsmenn hafna gætu fengið á sig tug milljóna stjórnvaldssekir verði þeim á mistök samkvæmt ákvæðum í  frumvörpum um stjórn fiskveiða. Þetta fullyrðir stjórnarformaður Hafnarsambands Íslands. 
Verðbólgan frá áramótum hefur bætt meira en 600 þúsund krónum ofan á 20 milljóna verðtryggt lán. Dæmi eru um að ungt fólk, sem taldi öruggt að velja verðtryggð lán, hafi tapað aleigunni á fjórum árum.
Þurrkar og flóð vegna loftslagsbreytinga gætu orðið enn algengari í framtíðinni en hingað til hefur verið talið. Þetta sýnir ný rannsókn.
Ferðamönnum sem fara um Selfoss í sumar gefst kostur á að reka andlitið ofan í tunnu og þefa  af fjósalykt á sérstöku Beljutorgi, sem verður komið upp í tilefni af því að gera á Selfoss að Mjólkurbæ Íslands.
Danskir fjölmiðlar hrósa Ólafi Stefánssyni í hástert og þakka honum að A.G. Kaupmannahöfn komst í undanúrslit meistaradeildar Evrópu í handbolta, fyrst danskra liða.</description>
Hádegisfréttir 28. apríl 2012
      <itunes:author>Arnar Páll Hauksson</itunes:author>
      <description>Makríldeilan við Evrópusambandið og meðalganga þess í Icesave-málinu skýrir aukna andstöðu við inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Þetta segir utanríkisráðherra. Varaformaður Vinstri grænna telur að þjóðin muni hafna inngöngu í ESB í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Skuldir sjávarútvegsfyrirtækja hækkuðu um rúmlega sjötíu prósent í kjölfar hrunsins samkvæmt samantekt Arion banka. Mest hækkuðu skuldir lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
Rökhyggja og skynsemisstefna verður að taka við af ráðaleysi og öfgum í stjórnarfari landsins, sagði formaður Framsóknarflokksins á miðstjórnarfundi flokksins sem nú stendur yfir. Hann gagnrýndi stjórnarflokkanna og sagði Framsókn vita skynsemi í ólgusjó hugmyndafræðilegra öfga.
Þrír menn, sem handteknir voru í nágrenni Kaupmannahafnar í gær, voru í morgun úrskurðaðir í fjögurra vikna gæsluvarðhald.  Þeir eru grunaðir um að undirbúa hryðjuverk.
Samþykkt hefur verið að fækka erlendum leikmönnum í íslenskum körfubolta. Þetta er vilji mikils meirihluta formanna körfuknattleiksfélaganna í landinu.</description>
Hádegisfréttir 27. apríl 2012
      <description>Mikilvægt er að tillaga um rannsókn á einkavæðingu bankanna verði samþykkt fyrir þinglok, svo rannsóknin geti hafist í sumar. Þetta segir fulltrúi Samfylkingar í Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis. Nefndin hyggst skila tillögunni til Alþingis í næstu viku.
Þrír menn voru handteknir í Kaupmannahöfn í morgun, grunaðir um að hafa verið að undirbúa hermdarverk
Ari Trausti Guðmundsson tekur meira fylgi frá Þóru Arnórsdóttur en Ólafi Ragnari Grímssyni. Þetta kemur fram í könnun Félagsvísindastofnunar Háskólans á fylgi forsetaframbjóðenda.
Ársverðbólgan mælist nú sex komma fjögur prósent. Hún hefur verið nánast óbreytt frá því í janúar. 
Innanríkisráðherra segir að ný ályktun lögreglumanna sé "stílbragð" til að koma kröfum þeirra á framfæri.  Umbætur verði gerðar innan löggæslunnar samhliða því að efnahagsástandið batni. 
Hreiðri arnarpars á Breiðafirði hefur verið spillt. Málið hefur verið kært til lögreglu.
Formaður borgarráðs segir að ekki sé verið að einkavæða hluta Orkuveitunnar, með því að stofna fyrirtæki um byggingu Hverahlíðarvirkjunar.
Einum þekktasta andófsmanni í Kína, hefur tekist að sleppa úr stofufangelsi. Hann sendi Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, í morgun áskorun um að láta rannsaka spillta embættismenn kommúnistaflokksins.
Veðurhorfur: Suðvestlæg átt, víða þrír til átta metrar. Skýjað og smáskúrir. Sunnan fimm til tíu með rigningu vestanlands í nótt, en víða væta á morgun, síst þó norðaustantil. Vestlægari vestanlands seinnipartinn á morgun og dregur úr úrkomu. Hiti eitt til átta stig, en hlýnandi á morgun.</description>
Hádegisfréttir 26. apríl 2012
      <description>Endurheimtur í þrotabú gamla Landsbankans aukast við sölu Actavis til lyfjafyrirtækisins Watson. Slitastjórnin telur söluna hagstæða, en vill ekki gefa upp hversu mikið komi í hlut búsins. Björgólfur Thor Björgólfsson segir að tugir milljarða renni til íslenskra banka.  við söluna. 
Eitt mikilvægasta viðfangsefni samningaviðræðna við Evrópusambandið er að semja við sambandið um afnám gjaldeyrishafta. Þetta sagði utanríkisráðherra á Alþingi í dag. Hann sagði að ólögmætum refsiaðgerðum Evrópusambandsins vegna makrílveiða yrði harðlega mótmælt.
Alþjóða stríðsglæpadómstóllinn í Haag sakfelldi í morgun Charles Taylor, fyrrverandi forseta Líberíu, sekan um stríðsglæpi í morgun. Taylor var sakfelldur fyrir víðtæk mannréttindabrot og glæpi gegn mannkyni. 
Framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands vill auka refsiheimildir í fjölmiðlalögum til að stemma stigu við hatursáróðri. Þá þurfi að setja sérstök lög um slíkan áróður á bloggsíðum og samfélagssíðum.
Fjöldi fólks kom saman í miðborg Óslóar í morgun til fjöldasöngs gegn fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik á níunda degi réttarhaldanna yfir honum. 
Íslandsmeistarar FH komust í úrslit Íslandsmóts karla í handknattleik í gær með því að leggja Akureyri nyrðra og Bayern München tryggði sér í gær sæti í úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu.
Veðurstofan spáir austlægri eða breytilegri átt, yfirleitt þremur til átta metrum. Dálítil væta verður vestantil á landinu, smáél austast en þurrt annars staðar. Hægviðri í nótt og á morgun og úrkomulítið. Tveggja til átta stiga hiti, en við frostmark á norðaustanverðu landinu.</description>
Hádegisfréttir 25. apríl 2012
      <description>Bæði meirihluti samgöngunefndar Alþingis og innanríkisráðherra hafa verulegar efasemdir um að veggjöld standi undir framkvæmd við Vaðlaheiðargöng. Fjárlaganefnd ræðir nú hvort veita eigi níu milljarða ríkisábyrgð á framkvæmdunum.
Formaður atvinnuveganefndar Alþingis og stjórnarmaður í Vaðlaheiðargöngum ehf., segir að umræða um Vaðlaheiðargöng sé afbökuð á Alþingi. Rök andstæðinga framkvæmdarinnar séu full af rangfærslum.
Fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik hefur á ný fengið orðið í dómhúsinu í Osló, nú til að gagnrýna mat geðlækna á sakhæfi hans.
Sigur Mitt Romneys í fimm forkosningum Repúblikana í gær þýðir að hann getur snúið sér af fullum krafti að því að berjast við Barack Obama Bandaríkjaforseta.
Lífeyrissjóðir geta ekki byggt fjárfestingarstefnu sína á niðurstöðu skoðanakannana, segir stjórnarformaður Gildis. Fjörtíu og sjö prósent landsmanna eru andvíg því að sjóðirnir leggi fé í stóriðjuvirkjanir samkvæmt nýrri Gallupkönnun, þrjátíu og fjögur prósent eru hlynnt því. 
Talning í annarri umferð biskupskjörs stendur nú yfir og er gert ráð fyrir að niðurstaða liggi fyrir um þrjúleytið. 
Framkvæmdastjóri Kringlunnar segir að verslunareigendur ákveði sjálfir hvort þeir hafi verslanir sínar opnar á verkalýðsdaginn 1. maí.
Bandarískt fyrirtæki hyggur á námuvinnslu í geimnum, og ætlar að nota til þess her vélmenna.
Valur komst í gærkvöld í úrslit Íslandsmóts kvenna í handknattleik eftir stórsigur á Stjörnunni í þriðja leik liðanna og Chelsea komst í úrslit Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu þegar liðið sló Barcelona úr leik á ótrúlegan hátt.
Veðurstofan spáir austlægri eða breytilegri átt, yfirleitt þremur til átta metrum. Smáskúrir verða eða slydduél sunnanlands og él norðaustantil í fyrstu, annars skýjað með köflum. Hiti frá frostmarki að átta stigum, kaldast á Norðaustur- og Austurlandi.</description>
Hádegisfréttir 24.apríl 2012
      <description>Minnihluti Landsdóms telur að ekki sé hægt að dæma ráðherra fyrir brot á lögum um ráðherraábyrgð nema um sé að ræða alvarlegar ávirðingar í starfi. Það að halda ekki ríkisstjórnarfundi um mikilvæg mál falli ekki undir það og því vildi minnihlutinn sýkna Geir af öllum ákæruliðum. Meirihlutinn var þessu ósammála.
Ummæli Geirs Haarde um að pólitísk sjónarmið hafi haft áhrif á niðurstöðu landsdóms eru fráleit. Þetta segir fyrrverandi hæstaréttardómari. Hann telur að Geir hafi látið ummælin falla í geðshræringu.
Alþingi samþykkti fyrir tveimur árum að endurskoða bæði lög um ráðherraábyrgð og landsdóm. Þeirri endurskoðun á að vera lokið fyrir haustið.
EFTA-dómstóllinn hefur samþykkt að Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins fái aðild að Icesave málinu gegn Íslandi. 
Rannsókn lögreglu á máli Annþórs Kristjáns Karlssonar og Barkar Birgissonar er lokið. Hátt í tíu manns eru með réttarstöðu grunaðra í málinu sem snýr að skipulagðri brotastarfssemi.
Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, fordæmir loftárásir Súdans á Suður-Súdan. Ekkert lát er á bardögum ríkjanna um olíurík landamærasvæði.
Forstjóri Landspítalans segir að gera þurfi mjög róttækar breytingar á starfsemi spítalans verði fjárframlög til hans skorin meira niður en orðið er. Spítalinn hafi gengið í gengum hremmingar síðustu þrjú ár með tuttugu og þriggja prósenta niðurskurði.
Landssamband sjóstangaveiðifélaga segir að sjóstangaveiðimót leggist af verði nýtt kvótafrumvarp samþykkt óbreytt. 
Veðurhorfur: Austan- og norðaustanátt, yfirleitt þrír til tíu metrar. Skýjað með köflum og úrkomulítið. Hægari vindur og bjart veður á morgun, en lítilsháttar rigning eða slydda á Suðurlandi. Hiti tvö til tíu stig að deginum, hlýjast suðvestanlands, en heldur svalara á morgun. Víða næturfrost.</description>
Hádegisfréttir 23.apríl 2012
      <description>Dómur verður kveðinn upp í landsdómi í dag, í máli Alþingis gegn Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra. Þetta er í fyrsta skipti sem dómur er kveðinn upp í landsdómi. Bein útsending verður frá dómsuppsögunni í útvarpi, sjónvarpi og á vefnum.
Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins segir það vonbrigði hve makrílkvóti Íslendinga í ár sé mikill. Engin tengsl séu milli deilunnar um kvótann og aðildarviðræðna Íslands og ESB. Deilan hjálpi þó ekki til, og reglur um refsiaðgerðir séu í smíðum.
Ákvörðun dóttturfélags Samherja í Þýskalandi að hætta viðskiptum við Íslandi stendur óbreytt. Hundrað starfsmenn fiskvinnslu Samherja á Dalvík eru heima í dag sökum þessa
Það er kominn tími til að endurskoða lög og setja skýrari reglur um hverjir mega að skoða náttúruperlur Íslands segir markaðsstjóri Iceland Excursions. Bílar frá fyrirtækinu óku með kínverska forsætisráðherrann þegar honum var meinað að skoða Kerið um helgina.
Réttarhöldin yfir fjöldamorðingjanum Anders Behring Breivik halda áfram í Ósló. Hann hefur verið önugur vegna tíðra spurninga um undarlegt hátterni.
Ekki þarf að skera fleira fé í Merki á Jökuldal þar sem riðuafbrigði greindist í byrjun febrúar. Engin merki um afbrigðið fundust í heilasýnum þeirra 200 kinda sem lógað var nýverið.
Þröstur Þórhallsson og Bragi Þorfinnsson eru efstir og jafnir fyrir lokaumferðina á Íslandsmótinu í skák.  Hoffenheim vill fá tvo milljarða króna fyrir Gylfa Sigurðsson og úrslitarimman um Íslandsmeistaratitil karla í körfuknattleik hefst í kvöld.
Veðurhorfur: Austan- og norðaustan þrír til tíu metrar. Bjartviðri á suðvestur og vesturlandi, annars skýjað en úrkomulítið. Hiti eitt til tíu stig yfir daginn, hlýjast suðvestanlands en svalast norðaustantil.</description>
Hádegisfréttir 22.apríl 2012
      <description>Íslensk stjórnvöld ætla að grípa til fullra varna - eftir að ESA áminnti þau fyrir brot á samningnum um evrópska efnahagssvæðið.  Efnahags- og viðskiptaráðherra útilokar þó ekki að breyta þurfi lögum - til að bregðast við áminningunni.
Fyrirhugaður fríverslunarsamningur Íslands við Kína myndi falla úr gildi - ef Ísland gengur í Evrópusambandið.  Þetta segir dósent í stjórnmálafræði.  Þá tækju við viðskiptasamningar Kína við Evrópusambandið - sem ekki eru fríverslunarsamningar.
Kjörstaðir í Frakklandi voru opnaðir klukkan sex í morgun - vegna fyrri umferðar forsetakosninganna - en talið er að þáttaka verði dræm.  Kannanir benda til þess að frambjóðandi sósíalista felli sitjandi forseta.
Óeirðarlögreglan í Barein gerir nú allt sem hún getur - til að koma í veg fyrir að mótmælendur komist að brautinni þar sem Formúlu eitt kappakstur hófst fyrir tæpum hálftíma. Stjórnarandstæðingar segjast staðráðnir í að nota tækifærið - til að vekja athygli á mannréttindabrotum.
Sérfræðingur hjá Landgræðslunni biður fólk að hugsa sig tvisvar um áður en það setur niður alaska-lúpínu - því plantan muni alltaf dreifa sér yfir gróið land.
Íbúar á höfuðborgarsvæðinu eru hvattir til að tína rusl á götum úti í dag. Reykjavíkurborg sækir ruslið ef þess er óskað.
Real Madrid steig stórt skref í átt að spænska meistaratitlinum í knattspyrnu eftir sigur á Barcelona í gærkvöld.</description>
Hádegisfréttir 21.apríl 2012
      <description>Makríldeilan og aðildarviðræður við Evrópusambandið eru tvö aðskilin mál, að mati talsmanns stækkunarstjóra sambandsins. Framkvæmdastjórn sambandsins ætlar ekki að verða við ósk evrópuþingmanna um að beðið verði með að opna kaflann um sjávarútveg í aðildarviðræðunum.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra lýsti fyrir forsætisráðherra Kína hvernig hún vildi sjá mannréttindamálum háttað þar. Hún segist ekki hafa orðið fyrir vonbrigðum með hans svör.
Forstjóri Elkem á Íslandi segir áætlanir um sextíu þúsund tonna framleiðsluaukningu á kísiljárni á Grundartanga skammt á veg komnar. Viljayfirlýsingin sem var undirrituð í gær sýni aðallega áhuga eigenda fyrirtækisins á að halda áfram uppbyggingu.
Pakistönsk stjórnvöld heita ítarlegri rannsókn á flugslysinu í gær þegar hundrað tuttugu og sjö létust.
Að minnsta kosti einn lét lífið og fjöldi særðist í fjöldamótmælum gegn ríkisstjórn Persaflóaríkisins Barein í nótt og í morgun. Stjórnarandstæðingar hafa einsett sér að koma í veg fyrir að Formúlu eitt kappakstur fari fram í landinu á morgun.
HK tók í gærkvöldi 2-0 forystu í undanúrslitaeinvígi sínu við Hauka í úrvalsdeild karla í handknattleik.  Akureyri jafnaði metin gegn FH í hinni undanúrslitarimmunni.
Veðurstofan spáir austan- og norðaustan þremur til tíu metrum. Skýjað verður að mestu og úrkomulítið á norður og austurlandi, en léttskýjað eða bjartviðri á suður og vestur landi. Eins til níu stiga hiti, hlýjast á suður og vestur landi.</description>
Hádegisfréttir 20.apríl 2012
      <description>Flugvél Wens Jiabao, forsætisráðherra Kína, lenti á Keflavíkurflugvelli fyrir nokkrum mínútum. Wen hittir forseta Íslands og forsætisráðherra síðar í dag en heimsókninni lýkur á sunnudaginn.
Þingmenn Hreyfingarinnar furða sig á því að þingsályktunartillaga þeirra um framferði kínverskra yfirvalda gagnvart tíbesku þjóðinni hafi ekki fengist rædd á Alþingi í dag.
Íslandsstofa og Kínverski þróunarbankinn undirrita í dag viljayfirlýsingu sem forstjóri Íslandsstofu vonast til að auki möguleika íslenskra fyrirtækja á fjármagni frá Kína. Hann vonast jafnframt til að fjárfestingar Kínverja hér á landi aukist.
Varaformaður vinstri grænna segir að makríldeilan sýni að stjórnvöld gæti hagsmuna Íslands gagnvart ESB.  Fulltrúar í sjávarútvegsnefnd Evrópuþingsins hafa krafist þess að aðildarviðræðum verði slitið vegna málsins.  
Yfirheyrslur yfir Anders Behring Breivik hafa í dag snúist um tilfinningar fjöldamorðingjans gagnvart öðru fólki. Hann er kaldur sem fyrr.
Kvótafrumvarp ríkisstjórnarinnar er góður grunnur að sátt í sjávarútvegi og í því er tekinn af allur vafi um eignarhald á auðlindinni í hafinu, að mati Starfsgreinasambandsins.
Grindvíkingar komust í gærkvöld í úrslit úrvalsdeildar karla í körfuknattleik og 
Íslandsmeistarar Vals unnu Stjörnuna örugglega í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum kvenna í handknattleik.
Veðurhorfur: Norðaustan og austan þrír til tíu metrar og dálítil él við norður- og austurströndina, en annars yfirleitt léttskýjað. Bætir heldur í vind og þykknar upp suðaustanlands í kvöld, en úrkomulítið. Lægir og léttir til þar á morgun. Hiti eitt til tíu stig að deginum, hlýjast suðvestanlands.</description>
Hádegisfréttir 19.apríl 2012
      <description>Rekstur yfir 70 stórra sjávarútvegsfyrirtækja, með um fjögur þúsund starfsmönnum, kemst í uppnám verði nýtt kvótafrumvarp að lögum óbreytt. Þetta er mat Landsbankans sem segist þá þurfa að afskrifa 31 milljarð króna. 
Sjávarútvegsráðherra segir þá skoðun sína óbreytta að í nýju frumvarpi sé efniviður til að ná niðurstöðu í kvótamálunum. Ekki sé rétt að miða veiðigjald við skuldugustu fyrirtæki landsins. 
Anders Bering Breivík hefur í morgun lýst margháttuðum fyrirætlunum um hyðjuverk í Osló og nágrenni. Hann hefur fengið að tala athugasemdalítið.
Gatnamót nálægt Nesjavöllum, þar sem rútuslys varð í gærkvöld, eru stórhættuleg að mati lögregluvarðstjóra á Selfossi. Mikil þörf sé á úrbótum en þungir bílar hafa áður lent utanvegar á svipuðum slóðum. 
Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna vill að fjöldi eftirlitsmanna með vopnahléinu í Sýrlandi verði tífaldaður. Kínverjar íhuga að senda eigið gæslulið til landsins.
Indverjar skutu langdrægri eldflaug á loft í tilraunaskyni í morgun. Þeir eru þar komnir í hóp með sex öðrum kjarnorkuveldum sem búa yfir slíkum vopnum
Sumardeginum fyrsta er fagnað víða í dag með skrúðgöngum, skemmtunum og tónleikum um bæ allan.
Veðurhorfur : Norðaustan og austan fimm til tíu metrar á sekúndu en heldur hvassari úti við suðausturströndina. Skýjað og dálítil él norðaustan- og austan-lands en annars yfirleitt léttskýjað. Vægt frost í innsveitum norðaustan-lands en hiti eitt til átta stig ,hlýjast suðvestan-lands. Víða vægt frost í nótt.</description>
Hádegisfréttir 18. apríl 2012
      <description>Þátttaka Evrópusambandsins í Icesavemálinu fyrir EFTA dómstólnum er óeðlileg gagnvart ríki í aðildarviðræðum. Þetta eru skilaboð sem íslenskir embættismenn báru fulltrúum ESB.
Norski fjöldamorðinginn Anders Berhing Breivik er pirraður og önugur á þriðja degi réttarhaldanna yfir honum. Hann neitar að svara flestum spurningum.
Samningur um langtímaleigu á jörðinni Grímsstöðum á Fjöllum til kínverska fjárfestisins Huang Nubo, er á lokastigi. Beðið er afstöðu nefndar um ívilnanir vegna nýfjárfestinga á Íslandi, svo hægt verði að skrifa undir saminga.
Taka þarf aukið tillit til smærri útgerða í nýjum kvótafrumvörpum að mati Björns Vals Gíslasonar. Leiðrétta þurfi fyrirhuguð veiðigjöld svo fyrirtækin standi undir þeim.
Flókið og erfitt er að leggja rafsæstreng frá Íslandi til útlanda vegna þess hve djúpt strengurinn liggur. Þetta segir íslenskur verkfræðingur og sérfræðingur í strengjum. 
Ekki eru miklar líkur til þess að Orkuveitunni takist að selja Perluna í bráð. Allir sem hafa boðið í hana vilja byggja við húsið en formaður skipulagsráðs Reykjavíkurborgar segir að ekki verði tekin afstaða til slíkra óska fyrr en að lokinni hugmyndasamkeppni um Öskjuhlíðina sem haldin verði einhvern tímann á árinu. 
FH vann Akureyri í gærkvöld  með eins marks mun í framlengdum fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handknattleik.
Íslenska karlalandsliðið í íshokkí tapaði fyrir Spánverjum í næstsíðasta leik sínum í A-riðli heimsmeistaramótsins.</description>
Hádegisfréttir 17. apríl 2012
      <description>Anders Behring Breivik lagði áherslu á að hann væri ekki geðveikur, þegar hann las yfirlýsingu fyrir dómi í Ósló í morgun. Hann sagðist myndu endurtaka ódæðin frá í fyrra, ætti hann þess kost. 
Ísrael mun gera loftárásir á kjarnorkustöðvar í Íran ef kjarnorkuviðræður við Írana 23. maí verða árangurslausar. Tyrkneskir fjölmiðlar segja að árásin hafi verið skipulögð í þaula.
Fjórir menn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna innflutnings á umtalsverðu magni af fíkniefnum til landsins á sunnudag. Tollverðir á Keflavíkurflugvelli fundu efnin.
Hætta var á að fjarskiptasamband Íslands við umheiminn raskaðist verulega þegar Farice ehf. átti ekki fyrir afborgun lána fyrr í þessum mánuði. Íslenska ríkið hljóp undir bagga með fyrirtækinu.
Formaður úttektarnefndar um lífeyrissjóðina telur ekki þörf á að Alþingi skipi rannsóknarnefnd um starfsemi sjóðanna. Peningunum sé betur varið til endurbæta lífeyrissjóðakerfið.
Innanríkisráðherra segir að afskipti Evrópusambandsins af Icesave deilunni séu eins og blaut tuska framan í Íslendinga.  Ekki sé hægt að láta eins og ekkert sé, þótt ekki sé tilefni til að fara á taugum.
Bæjarstjóri Dalvíkurbyggðar vonar að Samherji endurskoði ákvörðun sína um að hætta löndun í sveitarfélaginu, þar sem Seðlabankinn hafi nú afhent fyrirtækinu gögn vegna rannsóknar bankans. Aflinn skipti sköpum fyrir fiskvinnslu á Dalvík.
Um 1200 palestínskir fangar í fangelsum Ísraela hafa hafið mótmælasvelti til að mótmæla illri og niðurlægjandi meðferð.
Stjarnan lagði Grindavík í gær í þriðja leik liðanna í undanúrslitum karla í körfuknattleik og  
ÍBV komst í undanúrslit úrvalsdeildar kvenna í handknattleik.
Veðurstofan spáir norðaustan átta til þrettán metrum norðvestantil og með suðausturströndinni í fyrstu annars hægari norðlægri eða breytilegri átt. Bjartviðri verður sunnan og vestantil í dag, en þykknar svo upp í kvöld með stöku éljum. Eins til tíu stiga hiti, hlýjast vestanlands.</description>
Hádegisfréttir 16. apríl 2012
      <description>Anders Berhing Breivik var í morgun lesin ákæra fyrir 77 morð, að hafa sært 42 borgara og valdið skelfingu meðal Norðmanna. Hann sagðist saklaus en viðurkenndi að lýsing á atvikum væri rétt.
Það á að slíta aðildarviðræðum við Evrópusambandið nú þegar, í ljósi afskipta þess af Icesave deilunni, segir þingflokksformaður Framsóknar. Um tvö óskyld mál er að ræða og fráleitt að tengja þau saman, segir þingflokksformaður Samfylkingar.
Ísraelar stöðvuðu nærri 80 manns, á flugvelli í Tel Aviv, sem ætluðu að taka þátt í átaki til stuðnings Palestínumönnum. Nokkur hundruð Evrópubúar ætluðu að taka þátt í aðgerðinni Velkomin til Palestínu.
Algengt er að rafbækur í nýrri vefverslun séu um þúsund krónum dýrari en sömu bækur í kilju. Bækurnar eru enn of dýrar að mati framkvæmdastjórans.
Fyrstu eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna með vopnahléi í Sýrlandi hófu störf í morgun. Að minnsta kosti fimm dóu þegar stjórnarherinn gerði stórskotaliðsárásir á íbúðahverfi þrátt fyrir vopnahléð.
Hvorki Kópavogur né Reykjanesbær uppfylla fjárhagsleg viðmið sveitarstjórnarlaga, samkvæmt ársreikningum þeirra í fyrra. Skuldir Kópavogs aukast lítillega milli ára.
Gylfi Sigurðsson er víða valinn í lið vikunnar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir frammistöðu sína um helgina.  Sextán Íslandsmet voru sett á Íslandsmótinu í sundi.</description>
Hádegisfréttir 15. apríl 2012
      <description>Ef núverandi kvótafrumvarp verður samþykkt er það endalok frjálsra fiskmarkaða og lítilla fiskvinnslufyrirtækja á Íslandi.  Þetta segir eigandi kvótalausrar fiskvinnslu.
Talið er að 32 hafi látið lífið í Sýrlandi frá því að vopnahlé stríðandi fylkinga gekk í gildi á fimmtudag. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna vill senda 250 eftirlitsmenn til landsins.
Jón Bjarnason vill fá fram á Alþingi tillögu um að aðildarviðræðum við Evrópusambandið verði hætt. Fylgishrun og óánægja innan þingflokks og hjá grasrót flokksins séu vísbendingar um að flokkurinn sé á rangri leið.
Tólf öflugar sprengjur sprungu í dag í Kabúl, höfuðborg Afganistans. Talibanar segjast hafa gert sjálfsvígsárásir á þinghúsið, höfuðstöðvar NATÓ og nokkur sendiráð í borginni.
Samtök lífrænna neytenda hvetja stjórnvöld til að móta stefnu um lífræna framleiðsu á Íslandi.  Lífræn framleiðsla hér á landi  sé mun styttra komin en víða erlendis
Kim Jong-un, leiðtogi Norður-Kóreu, ávarpaði þjóð sína í fyrsta sinn í dag þegar hann flutti ræðu í Pjongjang í tilefni þess að hundrað ár eru liðin frá fæðingu landsföðurins Kim Il-sungs.
Prófessor í íþróttafræðum á Laugarvatni furðar sig á því að einkaþjálfarar með litla menntun fái frekar vinnu á líkamsræktarstöðum en íþróttafræðingur með þriggja  ára menntun.
Eitt hundrað ár eru í dag liðin frá Titanic-slysinu Títanikk, einhverju mannskæðasta sjóslysi sögunnar á friðartímum. Fólksins sem lést hefur verið minnst víða um heim í dag.
Þjóðverjinn Nico Rosberg á Mercedes-bifreið vann í morgun Kínakappaksturinn í formúlu eitt í Shanghai. Þetta var fyrsti mótssigur Rosbergs á ferlinum.</description>
Hádegisfréttir 14.apríl 2012
      <description>Steingrímur J Sigfússon formaður vinstri grænna segir að ESB hafi sent pólitísk skilaboð með því að troða sér inn í Icesave málið.  Það muni þyngja andrúmsloftið í samskiptum Íslands og ESB. 
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna greiðir í dag atkvæði um hvort senda skuli eftirlitsmenn til Sýrlands til að fylgjast með því að vopnahlé í landinu sé virt. Sprengjum var varpað á borgina Homs í morgun.
Nýtt minnisblað Fjármálaeftirlitsins staðfestir það sem Fjármálaeftirlitið hefur áður sagt um áhrif gengislánadóms Hæstaréttar. Þetta segir framkvæmdastjóri Samtaka Fjármálafyritækja. Bankakerfið muni þola áætlað tap vegna dómsins.
Veiðigjaldið sem boðað er í nýju frumvarpi mun setja litlar útgerðir sem hafa þurft að kaupa aflaheimildir á hausinn segir einn af eigendum útgerðarfélagsins Blakkness ehf í Bolungarvík.  Rætt var um veiðigjaldið á fundi atvinnuveganefndar í gær  
Tvö flugfélög sem munu fljúga til Akureyrar frá útlöndum í sumar, horfa einnig á flug þangað yfir vetrartímann.
Tólf bandarískir leyniþjónustumenn hafa verið sendir heim af leiðtogafundi Ameríkuríkja í Kólumbíu vegna ósæmilegrar framkomu. Einhverjir munu hafa átt viðskipti við vændiskonur.
Íslenska karlalandsliðið í íshokkí vann sterkt lið Serba í A-riðli annarrar deildar karla á heimsmeistaramótinu í Laugardal í gærkvöld en Ísland hefur unnið báða leiki sína í mótinu hingað til.</description>
Hádegisfréttir 12.apríl 2012
      <description>Forsætisráðherra vissi ekki, frekar en utanríkismálanefnd Alþingis, af kröfu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um aðild að málsókn fyrir EFTA-dómstólnum, fyrr en sagt var frá henni í fréttum RÚV. Krafan hafi ekki áhrif á aðildarviðræðurnar við ESB. 
Utanríkisráðherra segist ekki hafa þurft að upplýsa um málssóknina sérstaklega og vísar á embættismenn ráðuneytanna. 
Eldflaugarskot Norður-Kóreumanna mistókst í gærkvöld, en flaugin sprakk skömmu eftir að henni var skotið á loft. Tilraun Norður-Kóreumanna hefur víða verið fordæmd. 
Ríkissjóður fær átján hundruð milljóna króna arðgreiðslu frá Landsvirkjun á þessu ári, þá fyrstu í fjögur ár. Fyrirtækið er sagt standa vel, þótt það skuldi enn of mikið. 
Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Þóra Arnórsdóttir hafa jafn mikið fylgi samkvæmt könnun Fréttablaðsins. 
Mólkursamsalan hefur ákveðið að verja allt að tveimur milljörðum króna á næstunni til að endurnýja og breyta stærstu afurðasölum sínum.
Stjórnarandstæðingar efndu til mótmæla í mörgum helstu borga í Sýrlandi í morgun til að mótmæla Assad forseta og ríkisstjórn hans
Ekki er hægt að anna erlendri eftirspurn eftir lýsi vegna þess að ekki fæst nóg af fiskilifur til framleiðslunnar. 
Íslenska karlalandsliðið í íshokkí vann í gær öruggan sigur á Nýja-Sjálandi í fyrsta leik sínum í A-riðli annarrar deildar heimsmeistaramótsins sem fram fer hér á landi og Þór vann KR með átján stiga mun í öðrum leik liðanna í undanúrslitum úrvalsdeildar karla í körfuknattleik.
Veðurhorfur: Austlæg átt, þrír til átta metrar á sekúndu og skýjað með köflum, en stöku él sunnan- og austan-lands. Hiti verður eitt til sex stig sunnan og vestan til að deginum, en frost annars núll til sjö stig, mest norðaustan-til.</description>
Hádegisfréttir 12.apríl 2012
      <description>Ekki hefur mælst meira af þorski á Íslandsmiðum síðan 1985. Forstjóri Hafrannsóknarstofnunar segir að þetta séu mjög ánægjulegar fréttir, og að aflamark verði hækkað á næsta ári.
Allir þeir sem slitastjórn Glitnis stefndi fyrir hæstarétt í New York árið 2010 eru að undirbúa skaðabótakröfu á hendur slitastjórninni. Endurskoðunarfyrirtækið Pricewaterhouse Coopers hefur lagt fram kröfu upp á rúmar áttatíu milljónir króna. 
Vopnahlé sem miðar að því að stöðva 13 mánaða blóðbað í Sýrlandi gekk í gildi í nótt.
Þingmaður Hreyfingarinnar segir að sendiherra Kínverja hafi reynt að fá sig ofan af því að sækja alþjóðlega ráðstefnu um málefni Tíbets. Formaður utanríkismálanefndar Alþingis segir fráleitt að reynt verði að koma í veg fyrir mótmæli Falun Gong vegna heimsóknar forsætisráðherra Kína.
Fyrsta plata íslensku hljómsveitarinnar Of Monsters and Men er mest selda rokkplatan í Bandaríkjunum þessa vikuna. Tæplega fjórar milljónir manna hafa hlýtt á lag sveitarinnar, Little Talks, á útvarpsstöðvum vestanhafs.
Haukar unnu Njarðvík í gær í þriðja leik liðanna í úrslitum úrvalsdeildar kvenna í körfuknattleik og  Manchester City minnkaði  forystu Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í fimm stig.  
Veðurstofan spáir austan og norðaustan fimm til tíu metrum. Slydda verður á suðvesturhorninu og lítilsháttar él á austanverðu landinu, en annars úrkomulaust. Frost núll til sjö stig, en frá frostmarki að sjö stiga hiti sunnan- og vestanlands.</description>
Hádegisfréttir 11.apríl 2012
      <description>Flóðbylgjuviðvaranir hafa verið gefnar út í fjölmörgum ríkjum við Indlandshaf eftir að öflugur jarðskjálfti varð undir hafsbotni nærri eynni Súmötru í Indónesíu í morgun. Harður eftirskjálfti varð á sömu slóðum nokkrum klukkustundum síðar.
Forsætisráðherra Kína er væntanlegur í opinbera heimsókn í þessum mánuði. Fjölmennt fylgdarlið verður í för með Wen Jiabao. 
Vandlega útfærð niðurfærsla á skuldum heimila fækkar gjaldþrotum og nauðungarsölum og dregur úr lækkun fasteignaverðs. Þetta er niðurstaða sérfræðinga Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem líta meðal annars til þeirra aðgerða sem íslensk stjórnvöld hafa gripið til fyrir heimili í skuldavanda.
Engin merki eru þess að Sýrlandsstjórn ætli að virða friðarsamkomulag og vopnahlé sem taka á gildi á morgun. Árásir voru í morgun gerðar á flóttamannabúðir í Tyrklandi annan daginn í röð.
Svört skýrsla um viðbrögð hollenskra stjórnvalda við fjármálakreppunni 2008 var birt í morgun. Í henni er þeim þó hrósað fyrir breytingar á innistæðutryggingakerfinu eftir að Icesave-deilan hófst.
Fjárheimildir til endurgreiðslu vegna kvikmyndagerðar hér á landi duga ekki fyrir þeim verkefnum sem þegar eru komin á dagskrá. Treysta þarf á fjáraukalög næsta vetur til að endurgreiða kostnað. 
Kolmunnaveiði íslenskra skipa fer vel af stað. Um tíu skip eru farin til veiða syðst í færeysku lögsögunni. 
Njarðvíkingar geta í kvöld unnið Íslandsmeistaratitil kvenna í körfuknattleik í fyrsta sinn og deildarmeistarar Grindavíkur unnu Stjörnuna í gærkvöld í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum karla.  
Veðurstofan spáir austlægri átt, átta til fimmtán metrum. Hvassast verður norðvestantil, og einnig með suðvesturströndinni. Dálítil rigning eða slydda suðvestanlands, en annars stöku skúrir eða él. Léttir heldur til þegar líður á daginn. Hiti frá frostmarki að sjö stigum.</description>
Hádegisfréttir 10.apríl 2012
      <description>Formaður borgarráðs segir stórfellda sameiningu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu blasa við ef þau ná ekki utan um skipulagsmálin. Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir fjölda tómra íbúða á höfuðborgarsvæðinu skýrast meðal annars af því að sveitarfélögin fóru ekki eftir svæðisskipulagi. 
Skipstjóri norska línuveiðiskipsins sem stöðvað var við meintar ólöglegar veiðar suður af landinu í gær, segist ekki hafa vitað að ekki mætti veiða á svæðinu.
Anders Berhing Breivik var með réttu ráði og meðvitaður um gerðir sínar 22. júlí í sumar. Hann er því sakhæfur að mati tveggja geðlækna, sem hafa endurmetið geðheilsu fjöldamorðingjns.
Árni Páll Árnason, fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra, skýtur föstum skotum á ríkisstjórn og þingheim sem hann segir að ættu að leggja höfuðáherslu á að leysa þann vanda sem fylgir gjaldeyrishöftunum en ekki eyða orku sinni í ómerkilegt þras.
Ekki er tryggt að þau mál sem eru í dómskerfinu og lúta að gengislánum nýtist við að leysa úr álitaefnum í kjölfar gengislánadóms hæstaréttar í febrúar. Höfða þarf fleiri dómsmál.
Ellefu féllu í árásum sýrlenskra stjórnarhermanna í morgun, en í dag rennur út frestur sem sýrlenski stjórnarherinn hefur til þess að flytja hersveitir sína frá íbúðarhverfum borga og bæja samkvæmt nýgerðu friðarsamkomulagi.
Veðurstofan spáir norðaustan þrettán til átján metrum norðvestantil, en annars víða átta til þrettán. Snjókoma eða slydda verður á norðanverðu landinu, rigning á Austfjörðum, en annars skýjað með köflum og þurrt. Dregur heldur úr vindi og úrkomu í dag. Hiti frá frostmarki að átta stigum, hlýjast suðaustanlands.</description>
Hádegisfréttir 09.apríl 2012
      <itunes:duration>19:55</itunes:duration>
      <description>Mörg hundruð manns eru veðurteppt á rokkhátíðinni Aldrei fór ég suður á Ísafirði. Allt flug liggur niðri og ekki er útlit fyrir að flogið verði í dag.
Vonir um vopnahlé í Sýrlandi hafa dvínað eftir að stjórnvöld lögðu fram nýjar kröfur sem uppreisnarmenn geta ekki fallist á. Barist er víða í landinu þessa stundina.
Formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna segir þriggja prósenta skerðingu á þeim aflaheimildum sem eru framseldar, hreina eignaupptöku, sem vafasamt sé að standist. Þá efast hann um að breytingin ýti undir nýliðun í greininni eins og stefnt er að.
Sex Danir létu lífið þegar sumarbústaður brann til kaldra kola í Vestur-Gautlandi í Svíþjóð í fyrrinótt. Ekki er enn vitað um eldsupptök en lögregla útilokar ekki íkveikju.
Bresk stjórnvöld heimiluðu flutning á líbískum stjórnarandstæðingi frá Asíu til Líbíu þar sem hann var pyntaður í fangelsi Moammars Gaddafis. Leyniskjöl sem fundust í Trípólí í fyrra sýna þetta.
Veðurstofan varar við stormi, meira en tuttu metrum á landinu. Spáin er annars þessi: Norðaustan fimmtán til tuttugu og þrír metrar norðvestantil, en víða átta til fimmtán annars staðar.  Norðaustan átta til átján á morgun, hvassast á Vestfjörðum. Hiti við frostmark, hlýrra sunnanlands yfir daginn.</description>
Hádegisfréttir 08.apríl 2012
      <description>Eftirlit með heilbrigðiskerfinu er mjög háð því að almenningur og fagfólk vekji athygli á misferlum segir landlæknir. Hann hafnar því að eftirlitið hafi brugðist í stórum stórum málum á síðustu mánuðum sem varði til dæmis læknadóp og gallaða brjóstapúða. 
Biskup Íslands sagði í páskapredikun sinni að þrátt fyrir skefjalausan áróður gegn kirkjunni, hinum kristna sið og trúarhefðum, þá væri trúin ómissandi þáttur í lífi þorra íslenskra fjölskyldna. 
Tugþúsundir pílagríma hlýddu á friðarboðskap Benedikts páfa á Péturstorgi í dag. Hann fordæmdi ofsóknir sem kristnir menn sættu víða um heim. 
Búist er við að Norðmanna slái öll met í verslunarferðum til Svíþjóðar um páskana.  Fjórði hver ibúi á  Oslósvæðinu hyggst nota hátíðina til að kaupa ódýran mat handan landamæranna.
Rokkhátíðinni, Aldrei fór ég suður, lauk í gærkvöld. Mikið fjölmenni fylgdist með lokatónleikum hátíðarinnar. 
Veðurstofan spáir norðvestan fimm til þrettán metrum sunnanlands og að það létti smám saman til. Hægari breytileg átt og vætusamt verður norðantil á landinu. Kólnandi veður.</description>
Hádegisfréttir 07.apríl 2012
      <description>Fjölmargir þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá en vinna hlutastörf eru enn með lægri tekjur en þeir sem ekkert vinna. Reglugerð um þetta hefur ekki verið breytt þó vitað hafi verið um vandann frá því um áramót. 
Samræma verður fyrstu viðbrögð og þjónustu við þá sem greinast með krabbamein.  Dæmi eru um að fólki sé tilkynnt um krabbamein símleiðis og að upplýsingagjöf sé mjög ábótavant. 
Minnst 27 hafa látið lífið í árásum sýrlenska stjórnarhersins  það sem af er degi. Átökin í Sýrlandi hafa aðeins harnað eftir að stjórnvöld samþykktu friðaráætlun sem Kofi Annan lagði fram en hún gerir ráð fyrir að vopnahléi verði komið á eftir helgi. 
Sala á munn- og neftóbaki hefur þrefaldast á síðustu tíu árum. Fjöldi fyrirtækja hefur á síðustu misserum óskað eftir því að hefja sölu á nýju neftóbakstegundum í verslunum ÁTVR. 
Úrkoma mældist á Stórhöfða í Vestmannaeyjum upp á hvern einasta dag í mars. Mánuðurinn var óvenju hlýr - einkum norðan og austanlands en stóra hitametið var þó sett í Öræfum
Veðurstofan spáir suðvestan þremur til tíu metrum og víða súld eða rigningu. Fjögurra til tíu stiga hiti verður. Norðvestan fimm til þrettán sunnanlands í fyrramálið og fer að létta til. Kólnandi veður.</description>
Hádegisfréttir 06.apríl 2012
      <itunes:author>Arnar Páll Hauksson</itunes:author>
      <description>Endurskoðunarfyrirtækið Deloitte stendur við útreikninga sína um aukna gjaldtöku í nýju sjávarútvegsfrumvarpi. Framkvæmdastjórinn segir undarlegt að ráðherra gagnrýni útreikningana án þess að koma fram með eigin tölur. 
Heimili í nýlegum hverfum eru frekar í greiðsluvanda en önnur samkvæmt rannsókn Seðlabankans. Heimili á Suðurlandi, Reykjanesi, Vesturlandi og í útjaðri höfuðborgarsvæðisins, eru þau sem helst glíma við fjárhagsvanda. 
Alþjóðastofnanir hafna einhliða sjálfstæðisyfirlýsingu túarega í Norður-Malí. Uppreisnarmennirnir segja nýja ríkið heita Azawad. 
Bresk stjórnvöld hafa beðið togarasjómenn sem misstu vinnuna eftir þorskastríðin við Ísland afsökunar á mistökum við bótagreiðslur til þeirra. Skoskur togarasjómaður segir viðbótargreiðslu til þeirra lága og meðferð málsins sé hrein móðgun.
Passíusálmarnir verða lesnir víða í kirkjum landsins í dag.  Á  Akureyrir verða þeir lesnir upp í hlöðu.</description>
Hádegisfréttir 05.apríl 2012
      <description>Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segir að ekki eigi að líta á veiðigjald sem skatt - eins og Deloitte virðist gera - heldur gjald fyrir afnot af auðlindinni.  Hagnaður útgerðarinnar sé að stórum hluta tilkominn vegna aðgerða stjórnvalda.
Sérlegur sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna og Arababandalagsins í málefnum Sýrlands - telur að allsherjar vopnahlé verði í gildi í landinu eftir viku.
Yfirveðsettum eignum fækkaði um tæpan helming á einu ári. Velferðarráðherra segir ástæðuna vera 110% leiðina og hækkun íbúðaverðs. Það séu kaldranaleg skilaboð frá stjórnarandstöðunni að segja að aðgerðin hafi verið gagnslaus.
Úrvalsvísitalan hefur hækkað um tæplega 14 prósent frá áramótum. Forstjóri Kauphallarinnar segir batnandi efnahagshorfur skýra þá hækkun.
Fimm stærstu olíufélög Þýskalands sæta nú rannsókn samkeppnisyfirvalda. Þau eru sökuð um að hafa misnotað markaðsráðandi stöðu - til að losa sig við smærri keppinauta.
Veðurstofan spáir vestlægri eða breytilegri átt. Víða þremur til tíu metrum og dálítilli vætu, en að þurrt verði að mestu suðaustanlands. Hiti eitt til tólf stig, mildast suðaustantil, en svalast norðaustanlands. Fer hlýnandi norðaustantil á morgun.</description>
Hádegisfréttir 04.apríl 2012
      <description>Aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur sérstaklega státað af, fá algjöra falleinkunn í nýrri skýrslu Seðlabanka um stöðu heimilanna. Þetta er mat þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Formaður Framsóknarflokksins segir að aðgerðirnar hafi skilað ótrúlega litlu miðað við mikinn tilkostnað. 
Söluskálinn Blái turninn við Háaleitisbraut er svo gott sem ónýtur eftir að mikill eldur blossaði þar upp rétt fyrir hádegi.
Ný framboð, Samstaða, Dögun og Björt framtíð, gætu fengið samtals ellefu menn á þing, ef kosið yrði í dag. Dögun og Björt framtíð þurfa að bæta litlu fylgi við sig til að fá þrjá menn hvor.
Bæjarstjóri Dalvíkurbyggðar segir að óeðlilegt ástand hafi skapast í sveitarfélaginu í kjölfar ákvörðunar dótturfélags Samherja um að hætta viðskiptum á Íslandi. Löndun erlendra skipa hafi skipt atvinnulífið þar miklu máli.
Mikill meirihluti starfsmanna í verksmiðju Becromal á Akureyri felldi nýjan kjarasamning í póstkosningu. "Vonbrigði" segir formaður Einingar-Iðju.   
Búist er við hlýindum um páskahelgina. Fjölmargir ætla á tónlistarhátíðina "Aldrei fór ég suður" á Ísafirði að sögn rokkstjóra hátíðarinna
Baráttan um landið - ný íslensk heimildamynd eftir Helenu Stefánsdóttur verður frumsýnd í Bíó Paradís í kvöld. 
Íslenska karlalandsliðið í handknattleik hélt í morgun af stað til Króatíu þar sem liðið tekur þátt í undankeppni fyrir Ólympíuleikana í Lundúnum í sumar. Ísland og Noregur skildu jöfn í æfingaleik í gærkvöld. 
Veðurstofan spáir vestlægri átt, fimm til tíu metrum og þokulofti eða súld á vestanverðu landinu og með norðurströndinni, en þurru annars staðar. Hægari á morgun og lítilsháttar væta verður í flestum landshlutum. Hiti eitt til tíu stig, hlýjast á Suðausturlandi.</description>
Hádegisfréttir 03.apríl 2012
      <description>Ríkissjóður hefði tekið til sín allan hagnað sjávarútvegsfyrirtækja og fimm prósentum betur á árunum 2001 til 2010 hefði fyrirhugað veiðigjald verið í gildi. Þetta sýna útreikningar endurskoðunarfyrirtækisins Deloitte.
Lítið fylgi við ríkisstjórn eru alvarleg tíðindi fyrir hana. Þetta segir stjórnmálafræðiprófessor. Þá hljóti nýju framboðin að hafa orðið fyrir vonbrigðum. 
Formenn stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi segja að ríkisstjórnin sé rúin trausti, hún eigi að fara frá og boða til kosninga strax.
Olíufélögin þrjú sem vilja leita að olíu á Drekasvæðinu munu verja milljörðum króna í verkið áður en það kemur að því að bora.  Ein borhola getur kostað allt að 24 milljarða króna.
15  erlendir farandverkamenn  brunnu inni þegar eldur kom upp í  lagerbyggingu í úthverfi Moskvu í morgun. Mjög illa er búið að farandverkafólki sem sætir víða afarkostum í Moskvuborg.
Vanskil hjá Íbúðalánasjóði voru rúmlega sextíu prósentum meiri í fyrra en árið áður og nema nú rúmlega átta milljörðum króna. Sjóðurinn á í dag rúmlega 1600 fasteignir, flestar á Suðurnesjum. 
Sjö létu lífið og þrír særðust þegar fyrrverandi nemandi hóf skothríð í skóla í Oakland í Kaliforníu í gærkvöld. 
Öllu fastráðnu starfsfólki Leikfélags Akureyrar hefur verið sagt upp störfum. 
Keflavík og Snæfell knúðu í gær fram oddaleiki í átta liða úrslitum úrvalsdeildar karla í körfuknattleik og íslenska karlalandsliðið í handknattleik mætir í kvöld Norðmönnum í vináttulandsleik í Laugardalshöll.
Veðurstofan spáir suðvestan og vestan fimm til tíu metrum. Skýjað verður og sums staðar dálítil súld á vestanverðu landinu og með norðurströndinni, en víða bjart annars staðar. Hlýnar í veðri, hiti frá frostmarki að sex stigum síðdegis og lítið eitt hlýrra á morgun.</description>
Hádegisfréttir 1.apríl 2012
      <description>Ríkissjóður skuldbindur sig til að lána 8,7 milljarða króna til gerðar Vaðlaheiðarganga samkvæmt nýju frumvarpi. Ólína Þorvarðardóttir þingmaður Samfylkingarinnar ætlar ekki að styðja það að óbreyttu og segir áhættuna alla liggja hjá ríkinu. 
Formaður þingmannanefndar sem fjallaði um rannsóknarskýrslu Alþingis segir þingheim þverbrjóta reglur um bætt vinnulag - sem þingið sjálft setti sér haustið 2010.  Fjölmörg þingmál voru lögð fram á Alþingi undir kvöld í gær, síðasta daginn sem hægt var að leggja fram mál til afgreiðslu fyrir frestun þingfunda í vor.  
Framkvæmdastýra Jafnréttisstofu segir launamun kynjanna óþolandi. Mjög illa hafi gengið að útrýma þeim mun.
Uppreisnarmenn í Malí hafa síðustu klukkustundir herjað á borgina Timbúktú, síðasta vígi stjórnarhersins. Hermenn eru sagðir flýja í ofboði og útlit er fyrir að borgin sé að falla.
Margfalt minni mengun er af áramótabrennum en áður var talið. Sautjánhundruð tonn voru brennd á gamlárskvöld samkvæmt nýrri mælingu Umhverfisstofnunar. 
Elliðavatnsurriði hefur undanfarna daga gengið upp í afrennsli Tjarnarinnar í Reykjavík.  Talið er að umhverfisáhrif og breyting á vatnskerfum borgarinnar valdi þessu. 
Kúluvarparinn Óðinn Björn Þorsteinsson úr FH, varð í gærkvöldi þriðji íslenski frjálsíþróttamaðurinn til að tryggja sér keppnisrétt á ólympíuleikunum í London í sumar.</description>
Hádegisfréttir 31.mars 2012
      <description>Forsætisráðherra bindur enn vonir við að þingmenn í efnahags- og viðskiptanefnd geti unnið þingmál sem miði að því að draga úr vægi verðtryggingar. Mikilvægt sé að ná áfanga í afnámi verðtryggingarinnar á þessu kjörtímabili. 
Flýta þarf endurskipulagningu fyrirtækja sem fóru illa út úr hruninu og mikilvægt er að stjórnvöld og eftirlitsaðilar taki þátt í því starfi. Samkeppniseftirlitið telur hagsmuni starfsfólks banka og fyrirtækja oft tefja fyrir endurskipulagningu.
Bústaðurinn sem brann við Rauðavatn í gærkvöld var þriðji bústaðurinn, í nágrenni Reykjavíkur, sem kviknað hefur í á nokkrum dögum.
Yfirvöld óttast að til átaka geti komið í Árósum í Danmörku í dag. Þar hefur verið boðað til mótmælafunda gegn múslimum í Evrópu og til stuðnings fjölmenningarsamfélaginu.
Að minnsta kosti einn lottóspilari hreppti hnossið þegar dregið var um áttatíu og einn milljarð króna í stærsta lottóútdrætti sögunnar í Bandaríkjunum í nótt.
Lið Menntaskólans í Reykjavík sigraði í spurningakepnninni Gettu betur í gærkvöld í æsispennandi viðureign við Kvennaskólann.
Aldrei fyrr í mars-mánuði hefur hiti mælst eins hár hér á landi og hann mældist á Kvískerjum í Öræfum í fyrradag. Hálfdán Björnsson á Kvískerjum segir gróðurinn fyrr að taka við sér en í fyrra og þá hefur hann séð til heiðlóu.</description>
Hádegisfréttir 30.mars 2012
      <description>Forsætisráðherra útilokar ekki að þjóðaratkvæðagreiðsla um breytingar á stjórnarskrá verði samhliða forsetakosningum í sumar. Mikil spenna var í þingsal þegar umræða um atkvæðagreiðsluna fór fram og flugu ásakanir á víxl. 
Hagstofan spáir nú heldur meiri hagvexti hér á landi en hún gerði í nóvember í fyrra. Spá hennar um verðbólgu er hinsvegar heldur dekkri.
Tuttugu til þrjátíu tonna bjarg féll á þjóðveginn um Fagradalshlíð á Skarðsströnd í nótt. Bjargið fylgdi grjótskriðu sem lokaði veginum um tíma í morgun. 
Ríkisstjórn Japans samþykkti í dag að eldflaug sem Norður-Kóreumenn hyggjast senda á loft í apríl verði skotin niður ef hún ógnar japönsku yfirráðasvæði. 
Spænska ríkisstjórnin kynnir í dag tillögur um niðurskurð ríkisútgjalda, þegar fjárlagafrumvarp ársins verður lagt fram. Niðurskurðurinn er sagður verða hinn mesti á síðari tímum.
Róttæklingurinn George Galloway var kjörinn á breska þingið í aukakosningum í gær. Úrslitin eru talin áfall fyrir Verkamannaflokkinn, sem hefur haldið sætinu frá 1974.
Veðurstofan spáir norðaustan fimm til þrettán metrum og dálitlum éljum á Norður- og Austurlandi fram eftir degi. Annars hægari breytileg átt og úrkomulítið, en þokusúld vestanlands. Hiti eitt til sjö stig, en við frostmark norðaustantil.</description>
Hádegisfréttir 29.mars 2012
      <description>Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið lagðist gegn því að Samkeppniseftirlitið tæki til rannsóknar kvörtun Samtaka fiskframleiðenda og útflytjenda um mismunun fiskvinnslna. Samtökin hafa engin svör fengið hjá Samkeppniseftirlitinu hvort málið sé þar til skoðunar.
Karlmaður var í gær dæmdur í  fjögurra ára fangelsi fyrir gróft kynferðisofbeldi gegn ellefu ára dóttur sinni. Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því 1. desember.
Hnútur flugu milli forsætisráðherra og Jóns Bjarnasonar fyrrverandi sjávarútvegsráðherra á Alþingi í morgun. Forsætisráðherra sakaði Jón um að hafa dregið lappirnar við vinnu við kvótafrumvarpið, Jón sagði ráðherra úti á túni og málflutninginn óboðlegan. 
Útlit er fyrir að Landsnet hafi rukkað viðskiptavini sína fimm milljarða króna, umfram heimildir, á árunum 2006 til 2010. Svo gæti farið að fyrirtækið hækki gjaldskrá sína til að geta endurgreitt upphæðina. 
Varnarmálaráðherra Svíþjóðar hefur sagt af sér. Mikið hefur mætt á honum síðustu vikur vegna uppljóstrana fréttastofu sænska útvarpsins um samstarf Svía og Sádi-Araba á hernaðarsviðinu.
Þriðjungur þeirra sem borga auðlegðarskatt er eldri en 65 ára. Margir þeirra hafa þurft að ganga á eignir sínar til geta borgað skattinn. 
Utanríkisráðuneytið sagði upp samningi við sjávarútvegsráðuneytið sem þýðir að Tómas Heiðar verður ekki áfram aðalsamningamaður Íslands í makríldeilunni. Þingmaður Sjálfstæðisflokks gagnrýnir að skipt sé um samningamann í viðkvæmri milliríkjadeilu. 
Elsta fénu frá bænum Merki í Jökuldal, rúmlega 200 kindum, var lógað í morgun en þar greindist riðu-afbrigðið NOR-98 fyrr á árinu. 
Veðurstofan spáir suðvestan- og vestan fimm til þrettán metrum. Dálítilli súld eða þokulofti vestantil, en að þurrt verði undir kvöld. Fimm til þrettán stiga hiti.</description>
Hádegisfréttir 28. mars 2012
      <description>Allur útflutningur Samherja á sjávarafurðum frá því að gjaldeyrishöftin voru sett, er til rannsóknar hjá Gjaldeyriseftirliti Seðlabankans. Útflutningsverðmæti fyrirtækisins á þeim tíma hlaupa á milljörðum króna.
Kona sem deyddi nýfædd barn sitt og skyldi eftir í sorpgámi í fyrrasumar var í morgun dæmd í tveggja ára fangelsi fyrir verknaðinn. 
Uppnám var á Alþingi í nótt og í morgun við afgreiðslu tillögu stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskrá. Sjálfstæðismenn segja málið vanbúið en stjórnarliðar saka þá um klækjabrögð.
Ástandið á tannheilsu barna er til vansa segir velferðarráðherra. Eitt brýnasta verkefnið í heilbrigðiskerfinu sé að ná samningum við tannlækna. 
Stjórnvöld í Sýrlandi ráðast viljandi og kerfisbundið á börn. Þetta segir yfirmaður mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum. 
Stjórnvöld hafa heimild samkvæmt stjórnarskrá til að banna starfsemi glæpagengja segir meistaranemi í lögfræði sem hefur rannsakað gengin. Þingmenn minnst þriggja flokka á Alþingi eru hlynntir slíku banni.
Þjófar stálu þremur nýjum tölvum að verðmæti yfir eina milljón króna frá Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur í nótt.  Óvíst er hvort tekst að úthluta fyrir páska. 
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum hefur ekki fengið umsókn frá þjóðhátíðarnefnd um leyfi fyrir gistingu í íþróttahúsi bæjarins sem byrjað er að selja í forsölu. Þjóðhátíðarnefnd hefur keypt níu af hverjum tíu miðum í Herjólf um hátíðina.
Skallagrímur tryggði sér í gærkvöld sæti í úrvalsdeild karla í körfuknattleik karla á næstu leiktíð og Njarðvík lagði Snæfell í þriðja leik liðanna í undanúrslitum úrvalsdeildar kvenna.
Veðurstofan spáir vestanátt, víða átta til fimmtán metrum og að hvassast verði norðvestanlands. Dálítil rigning eða súld á vestanverðu landinu og einnig smávæta eystra í kvöld og nótt. Þurrt að kalla seint á morgun. Fimm til þrettán stiga hiti, hlýjast suðaustantil.</description>
Hádegisfréttir 27. mars 2012
      <description>Útgerðarfyrirtækið Samherji er grunað um brot á lögum um gjaldeyrismál í umfangsmiklum viðskiptum við dótturfélög sín erlendis. Á þriðja tug starfsmanna Gjaldeyriseftirlits Seðlabankans, Sérstaks saksóknara og Tollstjóra gerðu húsleit á skrifstofum fyrirtækisins á Akureyri og í Reykjavík í morgun.
Nýja kvótafrumvarpið er mjög íþyngjandi fyrir rekstur sjávarútvegsfyrirtækja að mati sérfræðinga sem lagt hafa mat á frumvarpið. Byggðaaðgerðir eru, að þeirra mati, ólíklegar til að ná þeim markmiðum sem stefnt er að.
Ákvörðun formanns efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis um að hætta vinnu við sameiginlegt þingmál, sem átti að draga úr verðtryggingu, kemur fulltrúa Sjálfstæðisflokks í nefndinni á óvart. Ákvörðunin hafi verið ótímabær. 
Forstjóri hjúkrunarheimilis segir ólíðandi að vera settur í þá aðstöðu að þurfa að óska eftir gjaldþrotaskiptum yfir heimilismönnum. Ríkið eigi að sjá um slíkt.
Ríkisskattstjóri og Íbúðalánasjóður eru ósammála um hvort greiða eigi vaxtabætur vegna lána sem hafa verið fryst.  Töluverðu getur munað fyrir lánþega, hvor túlkunin verður ofan á.
Gengi krónunnar hefur ekki verið jafn lágt í tvö ár.  Það lækkaði um núll komma sex prósent í gær. 
Stjórnvöld í Sýrlandi hafa fallist á að fylgja friðaráætlun Kofis Annans, erindreka Sameinuðu þjóðanna og Arababandalagsins. Annan segir að þetta sé mikilvægt skref í átt til friðar, en framkvæmdin skipti lykilmáli.
Hælisleitendur í iðnvæddum ríkjum hafa ekki verið fleiri í tæpan áratug. Flestir hælisleitendur í iðnvæddum ríkjum í fyrra komu frá Afganistan. 
Súkkulaðigrísir eru grennri en þeir sem aldrei gæða sér á súkkulaðibita, samkvæmt rannsókn sem birt var í bandarísku vísindariti.
Veðurhorfur: Suðvestanátt, víða tíu til átján metrar en átján til tuttugu og þrír norðvestanlands. Heldur hægari síðdegis. Bjartviðri austantil á landinu, annars skúrir. Suðvestan átta til fimmtán á morgun, hvassast norðvestantil. Svipað veður, en rigning vestanlands síðdegis. Hiti fimm til tólf stig, hlýjast austast, en að sjö stigum í nótt.</description>
Hádegisfréttir 26. mars 2012
      <description>Hlutfall þeirra sem búa við fátækt eða eiga á hættu að einangrast félagslega, er hvergi lægra í Evrópu en á Íslandi, samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. Tuttugu og átta prósent einstæðra foreldra er hins vegar undir lágtekjumörkum.
Embætti Landlæknis ætlar að hefja rannsókn á svefnlyfjanotkun Íslendinga í kjölfar fréttar um notkunina frá í gær. Yfirlæknir hjá embættinu segir mesta ókost svefnlyfja vera hversu ávanabindandi þau séu.
Seðlabankastjóri segir að bankinn þurfi ný tæki og tól til að hamla ofvexti í fjármálakerfinu og koma í veg fyrir öfgakenndar sveiflur. Þau tæki þurfi að vera til áður en gjaldeyrishöftum verði aflétt og næsta "veisla" hefjist.  
Steingrímur j Sigfússon, sjávarútvegsráðherra, hefur í gær og í dag kynnt fyrirhugaðar breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu fyrir forsvarsmönnum fyrirtækja í sjávarútvegi. Hann og forsætisráðherra munu kynna frumvarpið síðar í dag. 
Kínaforseti lét í ljós miklar áhyggjur af fyrirhuguðu eldflaugaskoti Norður-Kóreumanna á fundi sínum með Bandaríkjaforseta í morgun. Leiðtogar fimmtíu og þriggja ríkja funda um kjarnorkumál í Suður-Kóreu í dag og á morgun.
Abdoulaye Wade hefur mörgum að óvörum viðurkennt sigur Macky Sall í forsetakosningnum í Senegal. Almenningur í landinu og ýmsar alþjóðastofnanir fagna niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar. 
20 þúsund myndir þar sem börn eru beitt kynferðisofbeldi eru settar á netið á viku hverri segir Alþjóða Rauði krossinn.
13.500 breskir hermenn verða á vakt í London meðan á Ólympíuleikunum stendur, flugskeytum verður komið fyrir umhverfis borgina og sumarfrí leyniþjónustumanna hafa verið afturkölluð. 20 þúsund öryggisverðir verða í Ólympíuþorpinu. 
Veðurhorfur: Vaxandi suðaustan- og síðar sunnanátt og rigning eða súld. Þrettán til átján metrar síðdegis og átján til tuttugu og þrír á Vestur- og Norðvesturlandi undir kvöld. Hægari framan af degi norðvestantil og hiti sjö til sautján stig, hlýjast á norðaustanverðu landinu, en kólnar vestantil í kvöld. Lægir smám saman í nótt og á morgun, fyrst sunnan- og vestanlands, en áfram hvasst fyrir norðan og austan.</description>
Hádegisfréttir 25. mars 2012
      <description>Ný könnun um forsetaframboð sýnir að Ólafur Ragnar Grímsson er langt frá því að vera öruggur með sigur. Þetta er mat Gunnars Helga Kristinssonar, prófessors í stjórnmálafræði. Ólafur Ragnar var efstur í þessari könnun, en þrjár konur fylgja í kjölfarið. Engin þeirra vill útiloka framboð.
Endurskoðunarfyrirtækið Ernst og Young hefur fallist á að greiða rúmlega 15 milljarða króna skaðabætur vegna banka sem svissnesk stjórnvöld urðu að bjarga frá gjaldþroti.  
Tvöfalt fleiri bankastarfsmenn eru á hvern íbúa hér á landi en annars staðar á Norðurlöndunum. Í skýrslu um framtíðarskipan fjármálakerfisins segir að hér eigi að vera hægt að ná meiri hagkvæmni.
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands og leiðtogi Íhaldsflokksins, hefur fyrirskipað rannsókn á framgöngu gjaldkera flokksins sem varð uppvís að því að reyna að að selja auðmönnum aðgang að áhrifamönnum innan hans.
Upplýsingafulltrúi Iceland Express segir fyrirtækið ekki geta uppfyllt kröfur Flugfreyjufélags Íslands um að allir flugliðar hjá fyrirtækinu séu íslenskir fyrr en um mitt þetta ár. Boðað verkfall flugfreyja hjá Iceland Express hefst á föstudag.
Umhverfisráðuneytið rannsakar nú hvernig nítján lundar enduðu í dýragarði í svissnesku borginni Bern. Þeir eru afkomendur fugla sem fluttir voru úr landi fyrir fimmtán árum - með því skilyrði að þeir, eða afkomendur þeirra yrðu aldrei seldir eða gefnir. 
Skautafélag Akureyrar varð í gærkvöldi Íslandsmeistari kvenna í íshokkí eftir öruggan 6-2 sigur á Birninum.  SA sigraði í einvígi liðanna 3-0.
Veðurstofan spáir sunnan fimm til þrettán metrum. Þurrt verður að mestu norðaustantil, annars súld eða rigning með köflum, en úrkomulítið í kvöld og nótt. Sjö til fimmtán stiga hiti, hlýjast á norðaustanverðu landinu.</description>
Hádegisfréttir 23.mars 2012
      <description>Framkvæmdastjóri Félagsbústaða segir stöðu margra leigjenda vera alvarlega - hækka þurfi húsaleigubætur í takt við hækkandi leiguverð. Félagið afskrifaði í fyrra tæpar hundrað milljónir króna vegna vangoldinnar leigu. 
Þingmaður Framsóknarflokksins segir flokkinn skoða nýtt kvótafrumvarp með jákvæðum huga. Ef marka megi orð forsætisráðherra og það sem komið hafi fram í fjölmiðlum um frumvarpið, hafi verið leitað í smiðju Framsóknarflokksins þegar það var samið.
Gripdeildir og glundroði ríkja í höfuðborg Malí eftir valdaránið sem var framið þar í vikunni. Leiðtogi valdaræningjanna hvetur landsmenn til að sýna stillingu. 
Alþingismenn gera óraunhæfar kröfur til sveitarfélaga eftir að þau tóku yfir málefni fatlaðra frá ríki. Þetta segir formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Fjármuni skorti til að standa undir öllum kröfum. 
Formaður Landssambands kúabænda segir vonbrigði að kúabændur geti ekki annað eftirspurn eftir nautakjöti. Flytja þurfti fjögurhundruð og þrjátíu tonn af nautakjöti til landsins í fyrra. 
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að verið sé að plata fólk með því að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögu stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Vinna þurfi tillöguna mun betur.
Efling barna- og fjölskyldustarfs og aukin áhersla á einingu og jafnræði eru helstu baráttumál biskupsefnanna tveggja sem prestar kjósa um í apríl. 
Haukar urðu í gærkvöldi deildarmeistarar í úrvalsdeild karla í handknattleik eftir sigur á Aftureldingu. Mikil spenna er í baráttu um sæti í úrslitakeppninni en þrjú lið berjast um tvö laus sæti þegar ein umferð er eftir.
Veðurstofan spáir austan og suðaustan þrettán til átján metrum suðvestanlands, annars mun hægari. Víða bjartviðri, en rigning á suður og suðvesturlandi seint í dag. Sex til fimmtán stiga hiti, einna hlýjast fyrir norðan.</description>
Hádegisfréttir 22.mars 2012
      <description>Lífverðir frá embætti ríkislögreglustjóra fylgja nú innanríkisráðherra og efnahags- og viðskiptaráðherra hvert fótmál og vakta heimili þeirra allan sólarhringinn. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur ráðherrunum tveimur verið hótað. Þá hefur öryggiseftirlit með forsætisráðherra einnig verið hert. 
Sjávarútvegsráðherra hefur áhyggjur af mögulegum refsiaðgerðum Evrópusambandsins vegna makríldeilunnar. Hann segir að allar aðgerðir umfram löndunarbann á íslensk makrílveiðiskip, séu kolólöglegar.
Eiginkonu Assads Sýrlandsforseta og fleiri ættingjum hans verður meinað að fara til Evrópusambandsríkja og eignir þeirra þar verða frystar. Utanríkisráðherrar ESB samþykktu þetta í morgun. 
Áætlanir ríkisstjórnarinnar um afnám gjaldeyrishafta eru illa ígrundaðar og skot út í loftið. Þetta segir fulltrúi Sjálfstæðisflokks í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis. Hann telur að núverandi ríkisstjórn muni aldrei takast að afnema höftin.
Vorþing Norðurlandaráðs var haldið í Alþingishúsinu í fyrsta skipti í morgun. 87 fulltrúar sátu í þingsölum og túlkað var á þrjú tungumál. 
Stokkað var upp í norsku ríkisstjórninni í morgun. Þrír nýir ráðherrar taka við embættum. Breytingunum er lýst sem kynslóðaskiptum við stjórnarborðið.
Forsætisráðherra Bretlands kynnti í morgun áform um lágmarksverð áfengis og bann við ýmsum tilboðum á áfengum drykkjum. Eiga reglurnar að draga úr auknum heilbrigðisvanda af völdum óhóflegrar drykkju. 
Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik vann sinn fyrsta sigur í undankeppni Evrópumótsins í gærkvöld þegar það lagði Svisslendinga á útivelli.
Veðurstofan spáir suðaustan fimm til þrettán metrum og að skýjað verði en úrkomulítið. Suðaustan tíu til átján á morgun, hvassast suðvestantil. Dálítil súld suðaustantil en annars víða léttskýjað, einkum norðantil. Sex til fjórtán stiga hiti.</description>
Hádegisfréttir 22.mars 2012
      <description>Héraðsdómur hefur fellt úr gildi úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála um ólögmætt samráð olíufélaganna. Ástæðan er annmarkar á athugun Samkeppniseftirlitsins.  Félögin fá endurgreiddan úr ríkissjóði, einn og hálfan milljarð króna. 
Maðurinn sem grunaður er um að hafa myrt sjö manns í suðurhluta Frakklands féll í aðgerðum sérsveitar frönsku lögreglunnar í morgun. Íslensk kona sem býr í Toulouse var á staðnum. Hún heyrði mikla skothríð meðan á aðgerðum lögreglu stóð.
Karlmaður var í morgun dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir skotárásina í Bryggjuhverfinu í nóvember. 
Fjármálastjórar fyrirtækja á Íslandi eru nokkuð svartsýnir þegar kemur að gjaldmiðlamálum þjóðarinnar. Þeir spá því að enn sé langt í afnám gjaldeyrishafta og að krónan haldi áfram að veikjast. 
Meirihluti stjórnenda fyrirtækja telur aðstæður í atvinnulífinu enn slæmar og býst hvorki við að fjölga starfsfólki né að fjárfestingar aukist á árinu. 
Einelti á Íslandi hefur minnkað um þriðjung á fimm árum í þeim skólum sem fylgja Olweusaráætluninni.  Framkvæmdastjórinn segir að þetta sé áfangasigur.  
Sjö skip eru nú á loðnuveiðum. Vertíðinni lýkur um helgina og hefur nær allur loðunukvótinn veiðst. Aflaverðmætið er um 30 milljarðar króna. 
Veðurhorfur: Hægt vaxandi suðaustanátt, átta til fimmtán metrar síðdegis, hvassast suðvestantil. Víða rigning, en úrkomulítið norðaustanlands. Hlýnandi, hiti þrjú til átta stig síðdegis. Suðaustan átta til þrettán á morgun, skýjað og rigning eða súld í fyrstu sunnan og vestantil. Hægari vindur og léttir til á norðaustanverðu landinu. Hiti fimm til tólf stig.</description>
Hádegisfréttir 21.mars 2012
      <description>Karlmaður, sem játað hefur að hafa myrt sjö manns, þar af þrjú börn í Frakklandi, neitar að gefa sig fram við lögreglu og hefur hætt öllum samningaviðræðum. Til skotbardaga kom í umsátri lögreglunnar um hús mannsins, sem hófst í nótt.  
Stýrivextir Seðlabanka Íslands voru hækkaðir í morgun. Seðlabankastjóri segir að búast megi við frekari hækkunum vaxta á næstunni. Samtök atvinnulífsins hafa áhyggjur af þeirri vegferð sem Seðlabankinn virðist vera á. 
Framsali aflaheimilda verða settar þröngar skorður samkvæmt nýju kvótafrumvarpi sem kynnt verður í þingflokkum stjórnarflokkanna í dag. Enn er tekist á um það milli flokkanna og innan þeirra hve stór hluti heildarafla eigi að vera í sérstökum byggða- og leigupottum. 
Þingmaður segir að til greina komi að banna lyfjafyrirtækjum að umbuna læknum. Slík umbun hafi áhrif á það hvaða lyfjum læknar ávísi.
Setja verður í forgang að leysa úr vanda þeirra tvö hundruð fjölskyldna sem sjá fram á að missa húsnæði sitt á næstunni segir velferðarráðherra. 
Þeir sem fá dæmdar skaðabætur vegna miska eða líkamstjóns munu eiga auðveldara með að sækja slíkar bætur, nái nýtt frumvarp innanríkisráðherra fram að ganga. Þá verður hámarksgreiðsla ríkisins á bótum hækkuð.
Minnihluti samgöngunefndar vill vísa frumvörpum innanríkisráðherra um sameiningu samgöngustofnana aftur til ríkisstjórnar. Fullkomlega óraunhæft sé að ráðherra hristi frekari sameiningaráform fram úr erminni á stuttum tíma. 
Veðurstofan spáir suðvestanátt, tíu til átján metrum norðvestantil, annars talsvert hægari. Lægir smám saman í dag. Dálítil él verða vestanlands fram eftir degi, en léttir til austanlands. Hiti eitt til sjö stig, frystir víða í nótt.</description>
Hádegisfréttir 20.mars 2012
      <description>Tveir menn sprengdu rúðu í úra- og skartgripaverslun í miðborginni í nótt. Sprengjan var með kveikiþræði og vöknuðu nágrannar upp við mikinn hvell.  Plastvörn rúðunnar hélt. 
Hagnaður stóru bankanna skerðist um 64 milljarða króna vegna gengislánadóms Hæstaréttar. Íslandsbanki, sem kynnti ársuppgjör í morgun, skilar langminnstum hagnaði. Yfirtakan á BYR ræður mestu þar um. 
Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis leggur til að tillaga stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá verði borin undir þjóðaratkvæði í sumar. Lagt er til að spurt verði sérstaklega um fimm efnisatriði.  
Evrópusambandið ætlar, að kröfu Breta og Íra, að flýta ákvörðun um refsiaðgerðir gegn Íslandi og Færeyjum vegna makríldeilunnar.
Fyrrverandi yfirdýralæknir gagnrýnir harðlega aðbúnað útigangshrossa í nágrenni Selfoss. Þau hími úti í öllum veðrum án skjóls, og sumum sé ekki einu sinni gefið. Eftirlitsstofnanir bregðist ekki við.  ástandinu.
Líklegt er talið að morðinginn sem drap þrjú börn og kennara þeirra í Frakklandi í gær hafi tekið árásina upp á myndband. 
Smálánafyrirtæki bjóða fyrsta lánið oft vaxtalaust, og nota þar með sölutækni fíkniefnasala, sem gefa gjarnan fyrsta skammtinn. Þetta segir fjármálasérfæðingur.
Og lóan syngur í fréttatímanum. 
Veðurstofan spáir sunnan fimm til þrettán og skýjuðu en bjartviðri norðaustantil. Austlægari og fer að rigna vestanlands eftir hádegi en norðaustanátt norðvestanlands með slyddu eða rigningu í kvöld. Hiti víða frá frostmarki að fimm stigum.</description>
Og lóan syngur í fréttatímanum. 
Hádegisfréttir 19.mars 2012
      <description>Fjórir létu lífið, þar af þrjú börn, í skotárás við gyðingaskóla í Toulouse í Frakklandi í morgun. Líkindi eru með árásinni og tveimur tilræðum á sömu slóðum í síðustu viku.
Globe Speciality Metals hugðist setja hátt í nítján milljarða króna í kísilverksmiðjuna í Helguvík, sem nú er í óvissu. Enn hafa engin formleg svör, borist frá Globe um hvort þeir ætli að standa við samninginn um reksturinn.
Einni bestu loðnuvertíð síðustu ára er að ljúka. Kvótinn er nánast allur kominn á land. Verðmæti afurðanna er metið á um þrjátíu milljarða króna. 
Launahækkanir í fjármálafyrirtækjum undanfarin þrjú ár eru minni en hækkanir á almennum vinnumarkaði þrátt fyrir tíu prósenta meðalhækkun í fyrra. Forseti ASÍ segir þó eðlilegt að almenningur sé ósáttu,r þar sem launakjör yfirmanna og stjórnenda bankanna séu enn úr öllum takti við almenn kjör. 
Fjölga þyrfti um sex heilsugæslulækna á ári í höfuðborginni til að halda óbreyttum læknafjölda. Á tæplega tveggja ára tímabili fækkaði hins vegar um sex lækna. 
Stjórnvöld í Sýrlandi juku vopnakaup um nærri 600% á nokkurra ára tímabili, samkvæmt úttekt sænskrar rannsóknarstofnunar. Átök næturinnar í Damaskus voru þau hörðustu frá upphafi uppreisnarinnar í landinu, að mati uppreisnarmanna. 
Flestir hópar erlendra ferðamanna sem reynt hafa að ganga yfir Vatnajökul í vetur, hafa kallað eftir hjálp björgunarsveita.
Tveimur Belgum sem bjargað var af jöklinum í fyrrakvöld, hafði verið ráðlagt að bíða með ferðina fram yfir mánaðamót.
Framlag Íslendinga til Evróvisjón verður sungið á ensku. Lagið heitir nú Never forget. Myndbandið við lagið var frumsýnt í dag.
Veðurstofan spáir suðvestan tíu til tuttugu metrum með skúrum eða slydduéljum kringum hádegi, hvassast verður vestantil. Styttir upp norðaustantil. Hæg suðlæg átt og úrkomulítið í fyrramálið en rigning sunnanlands síðdegis á morgun. Frá frostmarki að sex stigum.</description>
Hádegisfréttir 18.mars 2012
      <description>Tveimur Belgum var bjargað ofan af Vatnajökli í nótt.  Aðstæður voru mjög erfiðar að sögn björgunarsveitarmanns sem telur ólíklegt að mennirnir hefðu lifað af nóttina í frostinu.  
Eigandi og forstjóri Íslenska kísilfélagsins segir að enn sé stefnt að því að reisa kísilverksmiðju í Helguvík. Hann treystir því að bandarískt fyrirtæki standi við gerða samninga þar um. 
Breski athafnamaðurinn Kevin Stanford fullyrðir að Sérstakur saksóknari hafi hvorki hann né Karen Millen grunuð um saknæmt athæfi í rannsókn embættisins á meintu tugmilljarða króna umboðssvikamáli Kaupþings. Hann hafi veitt embættinu aðstoð við rannsóknina að eigin frumkvæði.
300 þúsund flóttamenn gætu verið í lífshættu á landamærum Súdans og Suður Súdans ef ekki tekst að flytja hjálpargögn þangað. Ekkert lát er á ofbeldi þar. 
Aðgerðir til lausnar efnahagsvandanum í Evrópu og Bandaríkjunum eru farnar að skila árangri. Þetta segir Christine Lagarde, yfirmaður Alþjóða gjaldeyrissjóðsins, en hún segir enn mikla óvissu ríkja um þróun mála.  
Formaður félags hjúkrunarfræðinga segir að frumvarp sem leyfir skólahjúkrunarfræðingum að ávísa getnaðarvarnarlyfjum hafi lítið með kynlíf barna að gera eins og ætla mætti af umræðu um frumvarpið.  
Enski knattspyrnumaðurinn Fabrice Muamba, sem fékk hjartaáfall í knattspyrnuleik í ensku bikarkeppninni í gær, liggur mjög þungt haldinn á gjörgæsludeild á sjúkrahúsi í Lundúnum.</description>
Hádegisfréttir 17.mars 2012
      <itunes:author>Arnar Páll Hauksson</itunes:author>
      <description>Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að kosið verði um atvinnumálin í næstu alþingiskosningum. Núverandi ríkisstjórn verði að fara frá enda standi hún fyrir glundroða og stjórnarkreppu. 
Formaður fjárlaganefndar segir sölu á eignahlut ríkisins í bönkunum ganga samkvæmt áætlun. Sala á sex milljarða hlut ríkisins í Íslandsbanka hefst síðar á árinu. 
Norskir og sænskir björgunarmenn leita nú áhafnar norsku herflutningaflugvélarinnar sem fórst á hæsta fjalli Svíþjóðar í fyrradag. Brak úr vélinni fannst í gær.
Lög, sem heimila læknisþjónustu fyrir börn án vitundar foreldra þurfa að, vera skýrari.  Þetta segir löfræðingur Barnaverndarstofu.  Hörð viðbrögð hafa orðið við frumvarpi sem leyfir skólahjúkrunarfræðingum að ávísa getnaðarvarnarpillum.
Einn færeyskur og tveir grænlenskir þingmenn á danska þinginu hóta að hætta stuðningi við ríkisstjórnina ef makrílkvóti Færeyinga verður ekki stóraukinn.
Húmor er tæki til að skilja og hafa áhrif í samfélaginu. Þetta segir skipuleggjandi Húmorsþingsins, sem haldið verður á Ströndum í dag, fjórða árið í röð.</description>
Hádegisfréttir 16.mars 2012
      <description>Verjandi Geirs H. Haarde í Landsdómi, gagnrýnir harðlega málatilbúnað saksóknara. Hann sé óljós og lagaákvæðin sem Geir á að hafa brotið séu matskennd. Hann krefst þess að Geir verði sýknaður af öllum ákæruliðum.
Ísland stendur öðrum þjóðum langt að baki varðandi rannsóknarheimildir lögreglu gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Þetta segir fastafulltrúi Íslands hjá Europol. Lögregla telur að nýtt frumvarp innanríkisráðherra breyti engu þar um.
Velferðarráðherra óttast ekki að frumvarp um að skólahjúkrunarfræðingar geti ávísað getnaðarvarnarpillunni feli í sér viðurkenningu á kynlífi barna. Nauðsynlegt sé að horfast í augu við raunveruleikann.
Norður-Kóreumenn hyggjast skjóta á loft eldflaug í næsta mánuði. Samningur um að Bandaríkjamenn veiti Norður-Kóreumönnum matvælaaðstoð gæti verið í hættu vegna málsins.
Aftakaveður er í Svíþjóð þar sem talið er að norsk herflutningavél hafi farist í gærkvöld. Leit að vélinni og fimm manna áhöfn hennar hefur ekki borið árangur.
Matvælaframleiðendur hafa, í krafti peninga, yfirburðastöðu gagnvart heilbrigðisyfirvöldum við að ota fram óhollri vöru, segir prófessor í næringarfræði við Háskóla Íslands. 
 Einar Már Guðmundsson rithöfundur hlýtur Norræn bókmenntaverðlaun Sænsku akademíunnar í ár fyrir framlag sitt til bókmennta.Hann er þriðji íslenski höfundurinn sem hlýtur þessa viðurkenningu. 
Sara Björk Gunnarsdóttir skoraði sigurmarkið þegar Malmö lagði Frankfurt í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum meistaradeildar kvenna. Evrópumeistarar Barcelona mæta AC Milan í risaslag átta liða úrslitanna í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu.
Veðurhorfur: Norðaustan fimm til tíu metrar við norður og norðvesturströndina, en annars hægari suðlæg eða breytileg átt. Él. Norðvestan þrír til tíu metrar á morgun og él fyrir norðan, en þurrt að kalla syðra. Hiti nálægt frostmarki, en á morgun fer kólnandi</description>
Hádegisfréttir 15.mars 2012
      <description>Forsætisráðherra segir stærsta mál íslensku þjóðarinnar að ákveða hver verði framtíðargjaldmiðill hennar. Þeir sem það vilji ekki séu í afneitun. Efnahagsráðherra telur krónuna ekki ónýta. 
Fjórir glæpagengjamenn sem handteknir voru í gær, hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Tveir til viðbótar eru enn í haldi lögreglu þar sem þeir eru yfirheyrðir. Mennirnir hafa allir komið við sögu lögreglu áður. 
Gengislánadómur hæstaréttar kostar Arion banka tæpa fjórtán milljarða króna ef áætlanir bankans standast. Í dag rennur út frestur lánastofnana til að skila Fjármálaeftirlitinu útreikningum um hvað dómurinn kostar þær.
Flóttamenn streyma frá Sýrlandi til Tyrklands. Ár er liðið síðan uppreisnin hófst og stjórnarherinn hefur hert aðgerðir sínar til muna. 
Eldvarnarveggur sem gaf sig í stórbrunanum á Selfossi í gær var settur upp samkvæmt ráðleggingum Brunavarna Árnessýslu. Slökkviliðsstjórinn þar segir að húsið sé gamalt og minnsta gat á veggnum geti orðið til þess að hann gefi sig.
Saksóknarinn í máli Alþingis gegn Geir Haarde flytur mál sitt fyrir landsdómi í dag. Verjandi Geirs flytur sitt mál á morgun.
Grásleppuveiðar hófust í morgun þegar grásleppukarlar víða um land lögðu fyrstu netin á vertíðinni. 
Íslenska landsliðið í handknattleik steinlá í gærkvöld fyrir Þjóðverjum í vináttuleik í Mannheim og Keflavík varð deildarmeistari kvenna í körfuknattleik án þess þó að leika.
Veðurstofan spáir norðlægri átt, þremur til tíu metrum og éljum, en bjart verður suðvestanlands. Hæg suðlæg átt og dálítil él suðvestanlands í kvöld og á morgun, en norðaustlæg átt norðan- og austantil og áfram dálítil él. Hiti verður frá frostmarki að fimm stigum að deginum, en vægt frost norðaustanlands, og heldur svalara á morgun.</description>
Hádegisfréttir 14.mars 2012
      <description>Í það minnsta þrír voru handteknir í morgun í viðamikilli aðgerð lögreglu gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Fólkið tengist allt undirheimum Reykjavíkur.
PricewaterhouseCoopers fékk greiddan um einn og hálfan milljarð króna fyrir að endurskoða reikninga Glitnis og Landsbankans á árunum tvö þúsund og sjö og tvö þúsund og átta. 
Harðvítug barátta í forsetakosningum gæti skyggt á umræðu um tillögur stjórnlagaráðs og því gæti verið óheppilegt að kjósa um hvort tveggja í einu. Þessar áhyggjur eins fulltrúa stjórnalagaráðs urðu tilefni fésbókarskrifa þingmanns í gær, segir annar fulltrúi í ráðinu.
Að minnsta kosti tuttugu og tvö börn og sex fullorðnir fórust í rútuslysi í Sviss í gærkvöld. Enginn farþeganna slapp ómeiddur. 
Alþjóða glæpadómstóllinn í Haag kvað í dag upp sinn fyrsta dóm.
Sérfræðingur í dýraverndarlöggjöfinni segir að hundabúið í Dalsmynni starfi óáreitt í trássi við lög, vegna vanþekkingar eftirlitsaðila á löggjöfinni. Fullyrðingar um að lög og reglugerðir nái ekki yfir starfsemina séu fráleitar.
Yfirdýralæknir hefur lagt til að aðeins hluta fjárins á bænum Merki á Jökuldal verði lógað vegna riðusmits. 
Skautafélagið Björninn varð í gærkvöld Íslandsmeistari karla í íshokkí í fyrsta sinn.
Veðurstofan spáir norðaustan þrettán til tuttugu metrum sunnan og austanlands með slyddu eða rigningu, annars fimm til þrettán. Lægir í kvöld og nótt og dregur úr úrkomu. Hiti frá frostmarki að sjö stigum, hlýjast suðaustanlands. Svalara á morgun.</description>
Hádegisfréttir 13.mars 2012
      <description>Stórt gat hefði komið á gjaldeyrishöftin hefðu lög um þau ekki verið hert í gær. Slíkt hefði alvarlegar afleiðingar fyrir krónuna segir aðalhagfræðingur Seðlabankans. Hagfræðiprófessor segir aðgerðina ekki góða, en að stjórnvöld hafi verið nauðbeygð.
Fulltrúar Sérstaks saksóknara yfirheyrðu í síðustu viku tug manna í Lundúnum vegnar rannsóknar embættisins á Kaupþingi.
Lífeyrissjóðirnir ættu að íhuga málssókn á hendur stjórnendum gömlu bankanna, fyrirtækja og endurskoðenda, fyrir að hafa gefið rangar upplýsingar, árin fyrir hrun. Þetta segir ráðgjafanefnd  VR. 
Bankarnir féllu vegna þess að þeir nutu ekki lengur trausts á alþjóðlegum lánamörkuðum, ekki vegna aðgerða eða aðgerðaleysis stjórnvalda. Þetta segir framkvæmdastjóri fjármálasviðs Seðlabankans, sem bar vitni fyrir Landsdómi í dag. 
Fjármálastjóri Háskóla Íslands hefur verið kærður fyrir fjárdrátt.  Talið er að hann hafi dregið sér 8-9 milljónir króna frá skólanum. 
Sýrlandsher hefur að undanförnu lagt jarðsprengjur í leiðir flóttamanna frá landinu. Mannréttindasamtökin Human Rights Watch fordæma athæfið.
Munur á verði í matvöruverslunum hefur minnkað og samkeppni aukist, segir verkefnastjóri hjá ASÍ. Ný könnun sýnir að síðustu ári hefur verð í lágvöruverðsverslunum hækkað meira en í stórmörkuðum.  
Hafnarfjarðarliðin tvö náðu í gærkvöld tveggja stiga forystu í úrvalsdeild karla í handknattleik og HK endurheimti þriðja sætið þegar átjándu umferðinni lauk með þremur leikjum.    
Veðurhorfur: Suðvestanátt, víða átta til þrettán metrar og skúrir eða él í dag, en léttir til á norðaustur og austurlandi. Hiti eitt til sjö stig. Hæg suðlæg átt í fyrramálið. Gengur síðan í austan og norðaustan tíu til fimmtán með rigningu eða slyddu, en snjókomu norðanlands síðdegis. Hiti að fimm stigum, mildast sunnan og austanlands.</description>
Hádegisfréttir 12.mars 2012
      <description>Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra, beindi spjótum sínum að Seðlabanka Íslands í vitnisburði sínum fyrir Landsdómi í morgun. Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings, segir samráð stjórnvalda við bankana hafa verið allt of lítið. Sigurður var látinn sverja drengskapareið að kröfu verjanda Geirs H. Haarde, eina vitnið sem hefur þurft að gera það.
Matarverð hefur að meðaltali hækkað um 41 prósent síðastliðin fjögur ár, samkvæmt könnunum Alþýðusambandsins. Mest hækkaði verð í Bónusi; um 55 prósent. 
Talibanar hóta grimmilegum hefndum vegna fjöldamorða bandarísks hermanns í Afganistan um helgina. Afganska þingið krefst opinna réttarhalda yfir ódæðismanninum.
Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis metur nú hvort setja eigi lög um flýtimeðferð mála fyrir dómstólum, vegna nýjasta gengislánadómsins. Ákvörðun á að liggja fyrir í dag eða morgun. 
Formaður Samtaka atvinnulífsins segir að skuldastaða íslenskra fyrirtækja sé grafalvarleg, en fimmtungur fyrirtækja landsins er í alvarlegum vanskilum við fjármálastofnanir. 
Hundruð fjölskyldna eru sagðar hafa flúið Homs í Sýrlandi eftir að hátt í fimmtíu lík fundust þar í morgun. Stjórnarherinn og stjórnarandstæðingar saka hvorir aðra um fjöldamorð á konum og börnum. 
Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til þess að algengt hjartalyf geti dregið úr kynþáttahatri. Rannsakendur telja skýringuna liggja í því að rætur kynþáttahaturs liggi í hræðslu, sem lyfið dragi úr.
Sigrún Brá Sverrisdóttir setti um helgina tvö Íslandsmet í sundi.
Ítalinn Fabiano Caruana er efstur eftir sex umferðir á Reykjavíkurskákmótinu 
Veðurhorfur: Hæglætisveður og úrkomulítið í dag. Gengur í suðaustan og austan átta til fimmtán metra í kvöld með rigningu eða slyddu sunnan og vestanlands, en snjókomu fyrir norðan. Suðvestan átta til þrettán og skúrir eða slydduél á morgun, en úrkomulítið á austanverðu landinu. Hiti nálægt frostmarki, en hlýnar í kvöld og nótt, hiti eitt til sex stig á morgun..</description>
Hádegisfréttir 11.mars 2012
      <description>Forsvarsmenn endurskoðunarfyrirtækisins Pricewaterhouse Coopers segjast ekki hafa brugðist starfsskyldum sínum í vinnu fyrir Glitni og Landsbankann. Slitastjórnir beggja banka hafa stefnt fyrirtækinu og krefjast bóta upp á hundruð milljarða. 
Stjórnlagaráð mun leggja til að kosningalög verði einfölduð frá þeim tillögum sem ráðið lagði fram síðastliðið sumar. Þá geti minnihluti þingmanna eða ákveðið hlutfall kjósenda haft málskotsrétt. Gert er ráð fyrir að tillögur ráðsins liggi fyrir í dag.
Bandarískur hermaður myrti minnst 17 almenna borgara í Afganistan í morgun, aðallega konur og börn. Bandaríski herinn hefur aukið viðbúnað sinn í landinu vegna mögulegra hefndaraðgerða og mótmæla.
Stjórnarflokkarnir gætu glutrað niður sögulegu tækifæri ef þeir ná ekki fram grundvallarbreytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Þetta segir forsætisráðherra sem á von á að kvótafrumvörp verði lögð fram í þessu mánuði. 
Verslunarmenn í Noregi áætla að hátt í tíu þúsund störf hafi tapast vega þess að landsmenn kaupi í auknum mæli vörur handan landamæranna í Svíþjóð. 
Sú staðalímynd að Grikkir vinni lítið, svindli á skatti og fari ungir á eftirlaun gefur ekki rétta mynd af landinu. Tölfræðin sýnir þvert á móti að Grikkir vinni til dæmis fjörutíu prósent meira en Þjóðverjar. 
Nýtt Íslenskt útvarpsleikrit verður frumflutt á Rás eitt í dag. Þar er ímyndaður vinur einnar sögupersónunnar í aðalhlutverki.</description>
Hádegisfréttir 10.mars 2012
      <description>Forsætisráðherra segist undrandi á að Ólafur Ragnar Grímsson forseti hyggist láta meira til sín taka í pólitíkinni. Mikilvægt sé að forsetinn skilji stjórnskipunina. 
Atvinnulausir geta tapað á því að ráða sig í hlutastarf. Skerðingar í kerfinu eru svo miklar að samanlagðar bætur og laun eru lægri en fullar atvinnuleysisbætur.
Hugsanlegt er að tveir til þrír virkjanakostir verði settir í biðflokk í tvö ár í þingsályktunartillögu um nýtingu náttúruauðlinda. Þetta segir forsætisráðherra. Þingflokkur Samfylkingarinnar sé ekki klofin vegna virkjana í Þjórsá. 
Stjórnarherinn í Sýrlandi geri í nótt og í morgun stórskotaliðsárás á stjórnarandstæðinga í norðvesturhluta landsins. Á sama tíma ræddi Kofi Anna, sérlegur sendifulltrúi alþjóðsamtaka, um mögulegt vopnahlé við Assad Sýrlandsforseta á fundi í Damaskus.
Þátttaka borgarinnar í uppbygginu og rekstri leiguíbúða á almennum markaði, er óraunhæf að mati borgarfulltrúa minnihlutans. Fjárfestingin sé of áhættusöm. 
Talið er að háttsettir hryðjuverkaleiðtogar séu meðal átján al Kaída manna sem féllu í loftárásum í Jemen í nótt. Yfirvöld í Jemen segja að þeir hafi verið að skipuleggja stórfellda hryðjuverkaárás.
Grænmetisheildsali á Írlandi hefur verið dæmdur í fangelsi fyrir að flytja hvítlauk inn undir því yfirskini að þar væru epli á ferð. Ofurtollar eru á lauknum en ekki eplunum.</description>
Hádegisfréttir 09. mars 2012
      <description>Tryggvi Þór Herbertsson, sem var efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar í hruninu, segir að Landsbankinn hafi komið í veg fyrir að hugmyndir stjórnvalda um að minnka efnahagsreikninga næðu fram að ganga. Þetta kom fram í skýrslutökum fyrir Landsdómi í morgun.
Matarverð hefur hækkað hjá öllum verslunarkeðjum frá því í nóvember. Brauð, mjólk ostar og egg hafa alls staðar hækkað. Mest hefur verðið hækkað hjá Nóatúni og minnst í Bónus. Þetta sýnir verðlagseftirlit Alþýðusambands Íslands. 
Lögmaður Seltjarnarnesbæjar vísar á bug úrskurði innanríkisráðuneytisins, um að bærinn hafi brotið lög við uppsögn starfsmanns. Bæjarfulltrúi í minnihluta bæjarstjórnar segir úrskurðinn áfellisdóm yfir stjórnsýslu bæjarins. 
Heimili landsins greiddu 29 milljarða króna fyrir heilbrigðisþjónustu í fyrra. Það samsvarar því að hver einasti Íslendingur hafi greitt rúmlega 90 þúsund krónur. 
Pólverjar sem seldu iðnaðarsalt til matvælaframleiðslu blekktu neytendur með því að umpakka því og selja sem hreint salt. Fimm menn verið ákærðir og 200 tonn af matvælum verið innkölluð. Ekkert var saknæmt við sölu iðnaðarsaltsins hér á landi.
Sorpbrennsla hér á landi gæti lagst af innan skamms tíma, segir framkvæmdastjóri Sorpsamlags Þingeyinga. Þá gæti þurft að flytja íslenskt sorp til annarra landa. 
Tilboði RÚV í sýningarrétt frá íslenskri knattspyrnu í sumar hefur verið hafnað og því ekki útlit fyrir að sýnt verði frá henni.
Veðurstofan varar við stormi á landinu, meira en tuttugu metrum. Spáin er annars þessi: Suðvestan þrettán til tuttugu metrar, hvassast við suðvesturströndina. Éljagangur sunnan og vestanlands, en annars yfirleitt bjartviðri. Hvessir eftir hádegi á morgun, suðvestan fimmtán til tuttugu og þrír um landið vestanvert. Sumsstaðar hvassari í vinstrengjum, einkum við fjöll. Víða frostlaust við ströndina, en frá frostmarki að fimm stigum inn til landsins.</description>
Hádegisfréttir 08. mars 2012
      <description>Greint var frá fjórðungi fleiri ofbeldismönnum hjá Stígamóta í fyrra en árið áður. Fleiri hafa ekki leitað til þangað síðan 1994. Hópnauðgunum sem rekja má til gengjamenningar fjölgar milli ára.
Viggó Þórir Þórisson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Verðbréfasjóðs sparisjóðanna (VSP) var í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir tilraun til fjársvika
Fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins segir að ef banna hefði átt Landsbankanum að safna innlánum í Hollandi, hefði þurft að banna það á Íslandi líka. Hann bar vitni fyrir landsdómi í morgun.  
Samdráttur landsframleiðslunnar frá hruni nemur nærri átta prósentum, þrátt fyrir að hagvöxtur hafi verið 3,1 prósent í fyrra samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofunni. Fjárfesting hér á landi er enn of lítil miðað við önnur lönd, segir lektor við Háskólann í Reykjavík. 
Þrjár milljónir Jemena þurfa nauðsynlega á aðstoð hjálparstofnana að halda og vannæring ógnar hálfri milljón barna. Þetta segir erindreki Sameinuðu þjóðanna í landinu. 
Lögregla telur að tveir Rúmenar, sem sitja í gæsluvarðhaldi vegna hraðbankasvindls hér á landi, hafi afritað allt að fimm hraðbanka í miðbæ Reykjavíkur. Korthafar munu ekki verða fyrir fjárhagslegu tjóni vegna málsins.
Gert er ráð fyrir að öflugur sólstormur skelli á jörðinni síðar í dag eða í kvöld. Búast má við fallegri norðurljósasýningu verði heiðskírt.
Búist er við yfir fimm þúsund manns komi í Laugardalshöll í dag, þar sem haldin er svokölluð atvinnumessa fyrir þá sem lengi hafa verið án vinnu. 
Tæplega 200 konur bjóða sig fram til stjórnarsetu í íslenskum fyrirtækjum í nýrri útgáfu Félags kvenna í atvinnurekstri. Stærri íslenskum fyrirtækjum verður gert skylt á næsta ári að jafna hlutföll kynjanna í stjórnum sínum. 
Keflavík mistókst í gærkvöld að tryggja sér deildarmeistatitil kvenna í körfuknattleik.  
Lionel Messi setti met í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu þegar hann skoraði fimm mörk þegar Barcelona lagði  Bayer Leverkusen.</description>
Hádegisfréttir 07. mars 2012
      <description>Grein í bresku dagblaði virðist hafa þrýst á breska fjármálaeftirlitið um að koma þyrfti Icesave reikningum Landsbankans í sérstakt dótturfélag. Þetta kom fram í máli Baldurs Guðlaugssonar fyrir landsdómi í dag. Ingimundur Friðriksson, fyrrverandi seðlabankastjóri, gaf líka skýrslu í dag.
Saksóknarar í Noregi krefjast þess að Anders Berhing Breivik verði vistaður á réttargeðdeild.  Ákæra á hendur Breivik vegna hryðjuverkanna í sumar var birt í Ósló í morgun.
Maður sem varð fyrir skotárás í Bryggjuhverfinu í nóvember, bar við minnisleysi fyrir dómi í morgun, en tveir félagar í vélhjólasamtökunum Outlaws eru ákærðir í málinu. Saksóknari krefst þess að höfuðpaurinn verði dæmdur í sex ára fangelsi.
Afbrotafræðingur segir það áhyggjuefni að aðstæður í þjóðfélaginu séu notaðar til að réttlæta voðaverk. Það bjóði hættunni heim að verja ofbeldisverk með reiði eða örvæntingu. 
Svo gæti farið að birgða- og þjónustustöð vegna olíurannsókna á Drekasvæðinu verði komið upp á Reyðarfirði. Hugmyndin var kynnt fyrir bæjarráði Fjarðabyggðar í upphafi vikunnar. Ræða á við fleiri sveitarfélög á Norður- og Austurlandi um verkefnið. 
Mitt Romney vann í sex ríkjum af tíu í forkosningum Repúblikana á stóra þriðjudeginum svokallaða en hefur þó ekki tekist að hrista keppinauta sína af sér.
Rúmlega fjörutíu kaupmenn og fasteignaeigendur við Laugaveg mótmæla frekari lokun götunnar fyrir bílaumferð. Borgarstjóra voru afhent mótmæli verslunareigendanna í morgun. 
Öngþveiti varð í netheimum í morgun þegar samskiptavefurinn Facebook varð sambandslaus í tvær klukkustundir. 
Veðurhorfur : Vestan og suðvestan tíu til átján metrar á sekúndu, en lægir smám saman um hádegi. Suðvestan átta til fimmtán síðdegis. Él vestan- og sunnantil á landinu, en annars verður úrkomulítið. Hægari og áfram él vestantil á morgun, en hæg breytileg átt og slydda eða rigning syðst. Annars þurrt. Frost núll til fimm stig.</description>
Hádegisfréttir 06.mars 2012
      <description>Björgvin G Sigurðsson, viðskiptaráðherra í ríkisstjórn Geirs Haarde, telur að ekki hafi verið hægt að minnka bankakerfið eða gera meira til að koma Icesave reikningum Landsbankans í sérstakt dótturfélag árið 2008. Björgvin hefur gefið skýrslu fyrir Landsdómi í morgun. 
Maðurinn sem veitti starfsmanni lögmannsstofu lífshættulega áverka var úrskurðaður í gæsluvarðhald fram á föstudag og gert að sæta geðrannsókn. Hann játaði verknaðinn í morgun.
Fresta þurfti aðalmeðferð í skotárásarmálinu í morgun. Aðalvitnið - maðurinn sem skotið var á - finnst ekki og hefur að auki fallið frá bótakröfu.  Lögregla leitar hans. 
Ríkisstjórn Írans hét því í morgun að hleypa eftirlitsmönnum Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar inn í vopnaverksmiðju þar sem grunur leikur á að unnið sé að þróun kjarnaodda og langdrægra eldflauga.
Ummæli Björns Bjarnasonar fyrrverandi dómsmálaráðherra um Jón Ásgeir Jóhannesson í bókinni Rosabaugur yfir Íslandi voru í dag í Héraðsdómi dæmd dauð og ómerk.  Björn hyggst áfrýja málinu til Hæstaréttar.
Árin 2009 til 2011 veittu dómstólar lögreglu heimildir til hlerana í 99 prósentum þeirra tilvika sem eftir því var óskað.  Lögmaður segir brýnt að tryggja betur réttarstöðu þeirra sem sæta hlerunum. 
Veðurhorfur: Suðlæg átt, fimm til þrettán og úrkoma sunnan og vestan til, annars úrkomulítið, en snýst í austlæga átt með rigningu eða slyddu norðan- og austan-lands síðdegis. Ört vaxandi suðvestan-átt suðaustan og austan-lands í kvöld, átján til tuttugu og fimm með éljum um miðnætti, en hvassara í vindstrengjum við fjöll. Suðvestan tíu til átján metrar á sekúndu og él vestan til á landinu í nótt og á morgun en hægari og úrkomulítið Norðaustan til með morgninum. Lægir smám saman Suðaustan til á morgun.,</description>
Hádegisfréttir 05.mars 2012
      <description>Málaferlin gegn Geir  H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hófust fyrir Landsdómi í morgun. Geir er gefið að sök að hafa brotið gegn lögum um ráðherraábyrgð í embættisfærslu sinni í aðdrganda hrunsins.  Hann neitar sök.
Starfsmaður á lögfræðiskrifstofu liggur þungt haldinn á Landspítalanum eftir að hafa verið stunginn mörgum stungum á skrifstofu sinni í Reykjavík í morgun. Lögfræðingur særðist í átökum, þegar árásarmaðurinnvar yfirbugaður.   
Ólafur Ragnar Grímsson virðist líta á sig sem fulltrúa þjóðarinnar gegn valdastéttinni, segir Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur. Slíkar röksemdir séu líklegar til að lita kosningabaráttuna komi fram alvöru mótframboð.
Láti forseti af embætti á miðju kjörtímabili skal nýr forseti kosinn til fjögurra ára. Þetta er alveg skýrt samkvæmt stjórnarskránni segir Sigurður Líndal.
Að minnsta kosti tveir læknar hafa sagt sig úr Læknafélaginu vegna brjóstapúðamálsins. Formaður félagsins segir nauðsynlegt að Persónuvernd úrskurði um hvort megi afhenda Landlækni gögn um konur sem fengið hafa brjóstapúða, því lögin séu óskýr.
Vladimir Pútín, forsætisráðherra, sigraði með yfirburðum í forsetakosningunum í Rússlandi í gær. Stjórnarandstæðingar og eftirlitsmenn gera ýmsar athugasemdir við kosningarnar.
Lið Keflavíkur steig í gærkvöld stórt skref í áttina að deildarmeistaratitli kvenna í körfuknattleik með sigri á nágrönnum sínum í Njarðvík í toppslag deildarinnar.  Norður-Írinn Rory McIlroy komst í gær í efsta sæti heimslistans í golfi.  
Veðurhorfur: Vaxandi sunnanátt, þrettán til átján metrar á sekúndu og slydda eða rigning sunnan- og vestan-lands síðdegis, en suðaustan fimmtán til tuttugu og þrír í kvöld. Hægari suðaustan átt og úrkomulítið norðaustan-til, en þrettán til átján þar í nótt. Sunnan og suðaustan fimm til þrettán á morgun og rigning eða skúrir en hvessir sunnan- og suðaustan-lands annað kvöld. Hiti eitt til sex stig, en kólnar aftur síðdegis á morgun.</description>
Hádegisfréttir 04.mars 2012
      <description>Stjórnarflokkarnir fá skýr skilaboð í nýjustu könnun Gallup sem þeir ættu að taka mjög alvarlega, segir prófessor við Háskólann á Akureyri. Lilja Mósesdóttir er afar ánægð með fylgi Samstöðu sem sýni að flokkurinn sé strax orðinn alvöru valkostur.
Allar líkur eru taldar á að Vladimír Pútín sigri örugglega í forsetakosningunum sem nú standa yfir í Rússlandi. Kosningarnar taka hátt í sólarhring enda teygir landið sig yfir níu tímabelti.
Tvöhundruð sextíu og tvö eignarhaldsfélög og fyrirtæki gera upp í erlendum gjaldmiðli til að verjast gengissveiflum krónunnar. Flest gera upp í bandaríkjadal.
Fimmtán eru látnir eftir að tvær járnbrautarlestir rákust á í Póllandi. Báðar voru þær á 100 kílómetra hraða þegar áreksturinn varð.
Forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar segir ótímabært að tala um íbúakosningu um innflutning á sorpi. Of mörgum spurningum sé enn ósvarað.
Á sjötta tug vitna hafa verið boðuð fyrir Landsdóm vegna málaferlanna gegn Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. Aðalmeðferð hefst í fyrramálið. Meðal vitna eru fyrrverandi ráðherrar og bankastjórar gömlu bankanna. 
Ólympíufarinn Kári Steinn Karlsson varð í morgun þriðji í Trevisio-maraþoninu á Ítalíu en um fjögur þúsund manns tóku þátt í hlaupinu. Þetta var annað maraþonhlaup Kára á ferlinum.</description>
Hádegisfréttir 03.mars 2012
      <description>Hvorki utanríkisráðuneytið, né sendiráð Íslands í Kanada gerðu athugasemdir við ummæli kanadíska sendiherrans hér á landi um upptöku kanadadollars. Þetta segir utanríkisráðherra. Sendiherranum var í gær bannað að flytja ávarp á fundi Framsóknarflokksins um gjaldmiðla. 
Sýrlandsstjórn neitar að hleypa hjálparstarfsmönnum inn í Baba Amr [Amar] hverfið í Homs. Það er illa farið eftir sprengjuárásir síðustu vikna.
Fréttastjóri DV er grunaður um brot gegn bankaleynd með því að taka við illa fengnum trúnaðarskjölum. Hann er einn þriggja sem lögregla yfirheyrði í gær vegna kæru stjórnar Fjármálaeftirlitsins á hendur Gunnari Andersen fráfarandi forstjóra. 
Skýstrókar urðu um þrjátíu manns að bana í mið- og suðurhluta Bandaríkjanna í gær. Margir eru slasaðir og eignatjón er gífurlegt.
Velferðarráðherra segir að bæði lýtalæknar og Læknafélagið hafi valdið miklum vonbrigðum með viðbrögðum sínum í brjóstapúðamálinu. 
Ekki kemur til greina að flytja inn sorp til að brenna á Suðurnesjum. Þetta segir oddviti Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ sem vill að íbúar fái að kjósa um málið. 
Grindvíkingar tryggðu sér í gærkvöld deildarmeistaratitil karla í körfuknattleik.
Sjötíu og eins árs Japani hefur tryggt sér keppnisrétt á Ólympíuleikunum í London í sumar.</description>
Hádegisfréttir 02.mars 2012
      <description>Tæplega fertugur karlmaður lést þegar eldur kom upp í einbýlishúsi í Ólafsvík í nótt.  Þá liggur karlmaður þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans, en honum var bjargað út úr brennandi íbúð í Reykjavík í nótt.
Skúli Bjarnason er hættur sem lögmaður Gunnars Andersens vegna trúnaðarbrests. Hann tilkynnti þetta í morgun og vísaði til nýrra upplýsinga sem komið hafi fram í uppsagnarbréfinu sem Gunnar fékk í gærmorgun. Starfsmaður Landsbankans sem sótti gögn um Guðlaug Þór Þórðarson alþingismann hefur verið sendur í tímabundið leyfi. Stjórn fjármálaeftirlitsins kærði í gær Gunnar Andersen, fráfarandi forstjóra þess, -fyrir að standa á bak við það að gögnin voru sótt með ólögmætum hætti.  
Hækka þarf stýrivexti og skoða hvort ekki eigi að halda gjaldeyrishöftunum lengur en til ársloka tvöþúsund og þrettán.  Þetta segir formaður sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.  Fulltrúar sjóðsins eru hér á landi til að fylgja eftir efnahagsstefnu sjóðsins og stjórnvalda. 
Nýr sáttmáli Evrópusambandsríkja var undirritaður í morgun. Hann á að tryggja jafnvægi í ríkisútgjöldum. Bretar og Tékkar eru ekki aðilar að sáttmálanum.
Hæstaréttarlögmaður segir að meðferð gengislánamála fyrir dómstólum gæti styst um tæpt ár setji Alþingi lög um flýtimeðferð þeirra. Brýnt sé að flýta því að leysa úr ágreiningi um lánin. 
Stjórnvöld í Kanada eru tilbúin til viðræðna um að Íslendingar taki upp Kanadadal, sé áhugi fyrir því hjá stjórnvöldum hér á landi. Þetta segir sendiherra Kanada hér á landi.
Til að endurnýja tækjakost Landspítalans sómasamlega þyrfti milljarð króna, tvisvar sinnum meira en hann hafði úr að spila í fyrra. Gjafafé er meira en helmingur þess fjár sem spítalinn hafði til tækjakaupa í fyrra. 
Hjartaknúsarinn Engelbert Humperdinck syngur framlag Breta í Söngvakeppni Evrópu í vor. Hann er 75 ára.  
Veðurhorfur: Sunnan þrettán til átján metrar og rigning, en þurrt að kalla á norðurlandi, átján til tuttugu og þrír sunnan og vestanlands um tíma í kvöld og fram yfir miðnætti. Snýst í suðvestan átta til þrettán á vestanverðu landinu í nótt með skúrum og síðar éljum. Lægir einnig austantil þegar kemur fram á morgundaginn og léttir til. Hiti þrjú til tíu stig, en kólnar í nótt.</description>
Hádegisfréttir 01.mars 2012
      <description>Alþingi samþykkti nú rétt fyrir hádegi að vísa frá tillögu um afturköllun ákæru á hendur Geir Haarde með 33 atkvæðum gegn 27. Forsætisráðherra studdi frávísun. Ákæra gegn Geir stendur og hefst aðalmeðferð fyrir landsdómi á mánudag
Stjórn Fjármálaeftirlitsins rak í morgun Gunnar Andersen forstjóra. Fortíð hans hjá Landsbankanum og viðbrögð hans við skoðun á henni geri hann vanhæfan. Stjórn eftirlitsins hefur að auki kært Gunnar til lögreglu vegna nýlegs trúnaðarbrots.
Jarðskjálftarnir við Helgafell sunnan Hafnarfjarðar í nótt fundust mjög víða. Þeir voru á óvenjulegum slóðum, segir jarðeðlisfræðiprófessor, en eru ekki fyrirboðar eldgoss. 
Fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra segir að misvísandi skilaboð stjórnvalda í gjaldmiðilsmálum séu stórskaðleg. Erlendir ráðamenn furði sig á stefnuleysi stjórnvalda.
Óttast er að meiriháttar árás sé yfirvofandi í borginni Homs í Sýrlandi. Nánast ekkert samband næst við þá íbúa sem enn hafast þar við.
Mugison var verðlaunaður í fimm flokkum á Íslensku tónlistarverðlaununum í gær. 
Valur vann topplið Keflavíkur með 35 stiga mun í úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik.  Alfreð Gíslason, þjálfari toppliðs Kiel, hefur verið valinn handknattleiksþjálfari ársins í Þýskalandi í þriðja sinn.
Veðurhorfur: Fyrst viðvörun: Búist er við stormi (meira en 20 m/s) á landinu. Veðurstofa spáir annars minnkandi suðvestanátt og éljum, fimm til tíu metrum upp úr hádegi og að úrkomulítið verði, en bjartviðri austanlands. Hvessir í kvöld, suðaustan fimmtán til tuttugu og þrír metrar í nótt. Áfram verður hvasst á morgun og vætusamt. Frost 0 til 5 stig, en hlýnar á morgun.</description>
Hádegisfréttir 29.febrúar 2012
      <description>Saksóknari krefst 16 ára fangelsis yfir konunni sem ákærð er fyrir að drepa barn sitt og koma fyrir í ruslagámi í fyrrasumar. Hann telur málið ekkert eiga skylt við dulsmál, konan hafi deytt barnið af ásetningi.
Níutíu þúsund milljörðum króna var í dag ráðstafað til bjargar bönkum í Evrópu. Deilt er um áhrif aðgerðanna.
Fasteignaverð hækkaði hvergi meira í Evrópu í fyrra en á Íslandi, samkvæmt skýrslu mannvirkjastofnunar Bretlands. Stofnunin bendir þó á að þetta sé aðeins lítið skref upp á við frá gríðarlegu verðfalli eftir hrunið.
Jón Bjarnason fyrrverandi ráðherra segir að Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra mali þýðlega við Evrópusambandið en belgi sig út í íslenskum fjölmiðlum til að breiða yfir hversu lítill kall hann er sé í höndunum ESB risans.
Mikið selst af notuðum bílum þessa dagana og sala á nýjum bílum er einnig að glæðast. Forstjóri Brimborgar segir að leit að sparneytnari bílum sé gegnumgangandi í þessum viðskiptum. 
Ofbeldisbrotum á höfuðborgarsvæðinu hefur fækkað á undanförnum árum, en þau eru orðin grófari. Þetta segja lögreglustjórinn í umdæminu og hjúkrunarfræðingur á Neyðarmóttöku Landspítala. 
Rúmlega 200 Íslendingar, sem ekki hafa átt afmæli undanfarin þrjú ár, eiga afmæli í dag - á hlaupársdegi. 
Veðurstofan spáir suðvestan átta til fimmtán metrum og víða éljum, en að léttskýjað verði norðaustantil. Suðvestan þrettán til átján með snjókomu sunnan- og vestantil undir kvöld, en él í nótt. Kólnandi veður, frost víða 0 til 5 stig með kvöldinu.</description>
Hádegisfréttir 28.febrúar 2012
      <description>Ákæran gegn Geir Haarde fyrir landsdómi stendur, verði tillaga meirihluta stjórnskipunarnefndar samþykkt á Alþingi. Meirihluti nefndarinnar leggur til að tillögu Bjarna Benediktssonar um afturköllun ákæru verði vísað frá. 
Grikkland er tæknilega gjaldþrota segir Standard og Poors; lánshæfismat þess er komið niður fyrir ruslflokk.  Seðlabanki Evrópu segir grísk ríkisskuldabréf einskis virði.
Kona sem ákærð er fyrir að hafa deytt nýfætt barn sitt og sett í ruslagám í Reykjavík í fyrrasumar, kannast ekki við að hafa fætt barn. Aðalmeðferð fer nú fram í máli hennar í Héraðsdómi Reykjavíkur. 
Ragnheiður Ríkharðsdóttir alþingismaður segir að það sé vart boðlegt að sitjandi forseti hafi ekki kveðið uppúr með hvort hann ætli að bjóða sig fram aftur. Hafi forseti - eftir sextán ár - ákveðið að fara ekki fram, þá sé það sérkennilegt að hann sé nú að endurskoða það. 
Bandarískt fyrirtæki hefur gert tilboð í sorpbrennslustöð á Suðurnesjum fyrir rúman milljarð króna. Fyrirtækið hyggst flytja úrgang hingað til lands.
Tveir menn sem ákærðir eru fyrir stórfellt fíkniefnasmygl í kryddgámi, segja hvor sína söguna.  Sex eru ákærðir í málinu fyrir ýmis brot, sem tengjast með einum eða öðrum hætti.
Veðurhorfur: Suðvestan tíu til fimmtán metrar og skúrir eða él, en þurrt að mestu norðaustantil. Hægari vindur og úrkomuminna í kvöld. Suðvestan átta til þrettán og skúrir eða él á morgun, en léttir til um austanvert landið seinni partinn. Hiti eitt til sjö stig að deginum, mildast austast.</description>
Hádegisfréttir 27.febrúar 2012
      <description>Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu segir að ekki sé verið að rannsaka þátt þingmanna í mótmælunum fyrir þremur árum. Álfheiður Ingadóttir þingmaður Vinstri grænna hefur óskað eftir upplýsingum frá embættinu vegna málsins.
Tæplega þrítugur karlmaður var handtekinn í nótt, með sprengju, efni til sprengjugerðar og skotvopn á heimili sínu í Reykjanesbæ. 
Utanríkisráðherra segir það ekki þjóna hagsmunum Íslands, að flýta aðildarviðræðum að Evrópusambandinu eins og tveir ráðherrar Vinstri grænna vilji. Ögmundararmurinn í Vinstri grænum hafi helst tafið fyrir þeim viðræðum.
Niðurstaða úr þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá Sýrlands verður kynnt síðar í dag. Árásir á stjórnarandstæðinga halda áfram.  
Helmingur þeirra kvenna sem leituðu skjóls í kvennathvarfinu í fyrra er af erlendum uppruna. 
Starfsmaður Símans braut lög með því að skoða símanotkun fyrrverandi eiginkonu sinnar. Póst- og fjarskiptastofnun segir að Síminn hafi veitt stofnuninni ófullnægjandi, misvísandi og rangar upplýsingar í málinu. 
Hópur loðnuskipa er nú útaf Hafnarbergi á Reykjanesi, þar sem beðið er eftir færi til að kasta í stóra göngu sem þar gengur norður eftir. Hrognataka er hafin á Vopnafirði og Akranesi. 
Listamaðurinn, The Artist var valin besta kvikmyndin á Óskarsverðlaunahátíðinni í nótt. Meryl Streep og Jean Dujardin fengu verðlaun fyrir leik í aðalhlutverki. 
Veðurhorfur: Vestlæg átt, víða fimm til þrettán metrar en þrettán til tuttugu um landið suðaustanvert í fyrstu. Snjókoma með köflum eða él norðanlands fram til kvölds, en annars úrkomulítið. Kólnandi, frost að sjö stigum í kvöld, kaldast í innsveitum. Gengur í suðvestan fimm til tíu með slyddu og síðar rigningu eða skúrum á morgun, en heldur hægari og úrkomulítið norðaustantil. Hlýnandi, hiti tvö til sjö stig síðdegis.</description>
Hádegisfréttir 26.febrúar 2012
      <description>Þingmenn stýrðu mótmælum á Austurvelli úr Alþingishúsinu þannig að harðar var veist að lögreglumönnum. Þetta segir yfirlögregluþjónn. Lögreglan hafi rætt við þingmennina í kjölfarið.
Tuttugu prósent þeirra kvenna sem eru með leka brjóstapúða fara í ómskoðun án þess að lekinn komi fram.  Þetta segir yfirlæknir leitarsviðs Krabbameinsfélagsins.   Hann segir að landlæknir verði að gefa skýrari fyrirmæli um eftirlit með konum með brjóstapúða.
Stúlka tilkynnti lögreglu í nótt um að sér hafi verið nauðgað af hópi manna í miðbæ Reykjavíkur. Þá varð liðlega fertugur karlmaður fyrir alvarlegri líkamsárás í nótt. Lögregla telur árásina tengjast uppgjöri í fíkniefnaheiminum
Efnahags- og viðskiptaráðherra segir að grannt sé fylgst með Fjármálaeftirlitinu en virða verði sjálfstæði þess. Hann treysti bæði stjórn og forstjóra.
Mokveiði er á loðnu. Aflinn er kominn yfir fjögur hundruð þúsund tonn.
Landsamband sauðfjárbænda hefur óskað eftir því að gerð verði stjórnsýsluúttekt á Matvælastofnun. Mikil óánægja hefur verið með stofnunina meðal bænda.  Búnaðarþing hefst í dag.</description>
Hádegisfréttir 25.febrúar 2012
      <description>Skipstjóri á Herjólfi segir að finna verði varanlega lausn á vandamálum Landeyjahafnar, annars verði hún aldrei annað en sumarhöfn. Herjólfur hefur ekki siglt til Landeyjahafnar í rúma tvo mánuði vegna dýpis og sjólags.   
Gengi krónunnar hefur ekki verið veikara í tæp tvö ár. Gengisvísitalan stendur nú í tæpum 227 stigum. Verðbólguhorfur eru slæmar segir lektor í hagfræði. 
Mótmælum og átökum í Afganistan linnir ekki. Mannfall var þar í morgun fimmta daginn í röð. Almenningur í landinu er ævareiður vegna þess að bandarískir hermenn brenndu eintök af Kóraninum. 
 Nelson Mandela, fyrrverandi forseti Suður-Afríku, var lagður inn á sjúkrahús í morgun til meðferðar vegna kviðverkja. Heilsu Mandela, sem er níutíu og þriggja ára, hefur hrakað nokkuð á síðustu árum.
Jafnaðarmenn, sem eru í ríkisstjórnarforystu í Danmörku tapa miklu fylgi samkvæmt nýrri könnun.  Vandræðagangur í kringum svokallaðan gjaldhring í Kaupmannahöfn er talin helsta ástæða fylgistapsins.
Starfsumhverfi hjúkrunarfræðinga hefur tekið verulegum breytingum samkvæmt nýrri kjarakönnun.   Ríflega helmingur þeirra er í dagvinnu og sjö prósent starfa erlendis.
Einn maður í hlutastarfi hjá Slökkviliði Sandgerðis tekur um mánaðamót að sér slökkvi- og eldvarnastarf á Keflavíkurflugvelli. Óskað hefur verið eftir samstarfi við Sandgerðisbæ.</description>
Hádegisfréttir 24.febrúar 2012
      <description>Landlæknir vill vita hvort PIP-púðar leki frekar en aðrar tegundir brjóstapúða í íslenskum konum. Komi í ljós að aðrar tegundir leki mikið, gæti þurft að kalla konum með þá púða inn til rannsókna.
Landlæknir vill vita hversu algengt er að aðrir brjóstapúðar en PIP-púðar leki. Hugsanlega þarf að kalla konur inn til rannsóknar.
Bílbelti björguðu því að ekki fór verr þegar rúta með átta farþega fauk út af veginum um Oddsskarð í gærkvöld. Farþegi í rútunni segir að óhappið dragi ekki úr hræðslunni við að ferðast nær daglega um þennan hættulega veg. 
Talið er að Sýrlandsstjórn kunni að verða settir úrslitakostir á alþjóðlegri ráðstefnu í Túnis í dag. Fulltrúar um sjötíu ríkja ræða þar aðgerðir til að stöðva blóðbaðið í Sýrlandi og koma alþjóðlegri aðstoð til almennra borgara.
Með einfaldri lagabreytingu mætti draga verulega úr svartri atvinnustarfsemi hér á landi að mati starfsmanns ríkisskattstjóra. Slík skattalagabrot kosti þjóðfélagið 50 milljónir króna á dag.
Skeljungur og N1 hækkuðu verð á bensíni verulega í morgun. Íslandsbanki boðar hærri verðbólguspá og segir að þróun á eldsneytisverði og gengi krónunnar auki enn líkur á vaxtahækkun Seðlabankans.
Ársverðbólgan er enn yfir sex prósent. Hún minnkar örlítið frá síðustu mælingu, en þá hafði hún ekki mælst eins mikil í átján mánuði.  
Búið er að boða sameiginlegan fund sveitarfélaga á Norðausturlandi í næstu viku til að ákveða hvernig þau geti í sameiningu eignast hluta Grímsstaða á Fjöllum.
Veðurstofan spáir austan þremur til tíu metrum og dálítilli snjókomu á norður- og austurlandi. Vestan fimm til þrettán og skúrum eða éljum á sunnanverðu landinu. Fremur hæg suðlæg átt verður á morgun og úrkomulítið. Frá frostmarki að fjórum stigum.</description>
Hádegisfréttir 23.febrúar 2012
      <description>Öll gögn í máli Geirs Haarde fyrir landsdómi verða varðveitt í Þjóðskjalasafni um ókomna tíð, verði tillaga um afturköllun ákæru á hendur Geir samþykkt. Engin heimild er til að eyða þeim. Tillagan verður afgreidd úr nefnd í næstu viku. 
Milljarðar voru millifærðir í Al-Thani sýndarviðskiptunum án þess að viðeigandi pappírar væru undirritaðir. Framkvæmdastjóri félags Al-Thanis, sem eignaðist rúmlega fimm prósent hlutafjár í Kaupþingi með fléttunni, hafði ekki hugmynd um hvaðan peningarnir komu.  
Salvör Nordal, formaður stjórnlagaráðs, tekur ekki sæti í ráðinu þegar það kemur saman, vegna annarra starfa. Fulltrúar í stjórnlagaráði gagnrýna meðferð Alþingis á tillögum stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá.
Kona, sem árið 2005 kærði Jón Baldvin Hannibalssyni, fyrrverandi utanríkisráðherra, er ósátt við þá meðferð sem málið fékk innan íslenska réttarkerfisins. Málið var látið niður falla þar sem það þótti ekki saknæmt samkvæmt Venesúelískum lögum.
Flugsamgöngur eru efnahagslega mikilvægari á Íslandi en í flestum öðrum löndum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu. Framlag flugsins til þjóðarframleiðslu er mun meira hér en annars staðar á Norðurlöndunum. 
Veðurhorfur: Austan þrettán til tuttugu metrar og slydda, en síðar rigning sunnantil, en heldur hægari og slydda eða snjókoma fyrir norðan. Lægir heldur sunnanlands síðdegis, en norðanlands í kvöld. Snýst í vestan átján til tuttugu og þrjá við suðurströndina í kvöld.</description>
Hádegisfréttir 22.febrúar 2012
      <description>Fjórir fyrrverandi yfirmenn og stjórnarmenn gamla Kaupþings hafa verið ákærðir fyrir umboðssvik og markaðsmisnotkun vegna kaupa Katarmannsins Al-Thani á fimm prósenta hlut í bankanum rétt fyrir hrun. Talið er að tugmilljarða kaup hafi verið sviðsett til að blekkja markaðinn. 
Mikil mótmæli standa annan daginn í röð í Afganistan, vegna þess að bandaríski herinn brenndi kóraninn, helgibók múslima.
Gengi krónunnar hefur veikst nokkuð undanfarna daga þrátt fyrir gjaldeyrishöft. Sérfræðingur hjá Íslandsbanka telur að tekjur af útflutningi standi ekki undir tímabundnu flæði gjaldeyris úr landi.
Að óbreyttu mun raforkufrekur iðnaður leggjast af í Evrópu á næstu 5 til 10 árum að mati framkvæmdastjóra Samtaka álframleiðenda. Rafmagn í Evrópu hafi nær tvöfaldast í verði á skömmum tíma vegna ákvæða um loftslagsheimildir. 
Börn um allt land halda upp á öskudaginn. Að syngja og fá sælgæti að launum er það sem flestum krökkum finnst skemmtilegast við daginn og sum þeirra sjá varla fram á að geta torgað öllum feng dagsins. 
Veðurstofan spáir suðvestan þremur til átta metrum og skúrum eða slydduéljum, en norðaustan og norðan fimm til tíu og slyddu eða snjókomu norðan og austantil fram á kvöld. Frá frostmarki að fimm stigum.</description>
Hádegisfréttir 21.febrúar 2012
      <description>Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis vill að fjármálafyrirtæki fresti aðgerðum gegn ábyrgðarmönnum á gengislánum vegna óvissu. Fyrirtækin eru þó ekki bundin af tilmælunum. Þingmaður segir sanngjarnt að bíða þar sem lántakendur eigi mögulega rétt á stórfelldum endurgreiðslum. 
Trúnaðarbrestur virðist vera kominn upp milli stjórnar Fjármálaeftirlitsins og Gunnars Andersen, forstjóra stofnunarinnar. Gunnar fékk í gær frest til fimmtudags, til að skila andmælum við áform stjórnar um að segja honum upp.
Gengi evrunnar hefur hækkað eftir að samkomulag um aðstoð við Grikki náðist á fundi fjármálaráðherra evruríkjanna í nótt.
Gengi krónunnar lækkar hins vegar enn og hefur ekki verið lægra síðan í maí 2010.
Fjórðungur leigjenda er undir lágtekjuviðmiði en aðeins tæp átta prósent þeirra sem búa í eigin húsnæði. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Velferðarvaktarinnar. 
Fulltrúar frá Hagsmunasamtökum heimilanna funduðu með forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, í gær og afhentu honum rúmlega þrjátíu og sjö þúsund undirskriftir til stuðnings kröfu um leiðréttingu lána og afnám verðtryggingar.
Rektor Háskóla Íslands segir að laun stundakennara við skólann séu of lág. Ekkert svigrúm sé hins vegar til að hækka þau.
Veðurstofan spáir suðaustan átta til fimmtán metrum með slyddu eða rigningu, en fimm til þrettán og snjókomu eða slyddu á norðanverðu landinu. Hægari suðvestanátt og úrkomuminna verður sunnantil seinnipartinn. Eins til sex stiga hiti síðdegis, en kringum frostmark fyrir norðan.</description>
Hádegisfréttir 20.febrúar 2012
      <description>Samtök fjármálafyrirtækja hafa óskað eftir lögfræðiáliti fyrir fjármálafyrirtækin í heild sinni, til að vinna úr gengislánadómi Hæstaréttar. Formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis telur að fleiri dóma vanti til að eyða óvissu um lánin. 
Gunnar Andersen, forstjóri fjármálaeftirlitsins, skilar andmælum í dag vegna boðaðrar uppsagnar hans. Mál hans er nú rætt í efnahags- og viðskiptanefnd.
Umönnunarkostnaður fjölskyldu sem leitar hér hælis getur numið hátt í einni milljón króna á mánuði, segir forstjóri Útlendingastofnunar. Mikla fjármuni megi spara fái stofnunin fjármagn til að ráða fleira starfsfólk og flýta þannig málsmeðferð hælisleitenda. 
Fyrstu skurðaðgerðirnar til að fjarlægja PIP-brjóstapúða voru gerðar á Landspítalanum í morgun. 58 prósent þeirra kvenna sem farið hafa í skoðun hafa reynst vera með leka púða. 
Skipt verður um aðra aðalvél varðskipsins Þórs. Skipið er glænýtt, einungis fjórir mánuðir eru síðan það kom til landsins. Framleiðandi vélarinnar, Rolls Royce, greiðir kostnaðinn við framkvæmdina sem nemur allt að einum milljarði íslenskra króna.
Fyrrverandi ráðherra í heimastjórn Skota hvetur skosk stjórnvöld til að beita Íslendinga refsiaðgerðum vegna makríldeilunnar. Evrópusambandið geti síðan gripið til samskonar aðgerða. Þá verði hugsanlega hægt að knýja fram samkomulag um makrílkvóta.
Fjármálaráðherrar evruríkjanna koma saman í Brussel í dag, til þess að ákveða hvort Grikkir fái langþráð björgunarlán.
Veðurstofan spáir norðan og norðvestan átta til þrettán metrum og snjókomu eða éljum á Norður- og Austurlandi. Það lægir í dag og léttir til, fyrst sunnan og vestanlands. Dálítil él á suðausturlandi síðdegis. Frost eitt til átta stig.</description>
Hádegisfréttir 19.febrúar 2012
      <description>Ekkert af því sem kemur fram í nýrri skýrslu um hæfi forstjóra Fjármálaeftirlitsins ónýtir einstök mál sem eru eða hafa verið til meðferðar hjá stofnuninni. Þetta er mat lektors við lagadeild Háskóla Íslands.
Íranar ætla að stórauka framleiðslu á auðguðu úrani, sem nota má til framleiðslu kjarnavopna. Vesturveldin líta það alvarlegum augum og Ísraelsmenn hóta loftárásum.
Lífeyrissjóðirnir eru tilbúnir að skoða allar hugmyndir er varða lausn á skuldavanda heimilanna, þar á meðal að þeir sem fái niðurgreiðslu lána nú, fari seinna á eftirlaun. Þetta segir framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóðanna.
Þegar hafa átta lýst yfir framboði til biskupsembættisins. Framboðsfrestur rennur út eftir tíu daga. Ef enginn fær meirihluta greiddra atkvæða þarf að kjósa aftur. 
Hækkun á gjaldskrá Rarik um áramótin kemur sér afar illa fyrir garðyrkjubændur á Flúðum sem borga margar milljónir á mánuði fyrir rafmagn. Oddviti sveitarfélagsins gagnrýnir að ríkisfyrirtæki eins og Rarik komist upp með verðhækkun, sem bitnar harðar á dreifbýlinu heldur en þéttbýlinu.
Jarðnæði eftir Oddnýju Eir Ævarsdóttur fékk nú í hádeginu Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna. 
Kvikmyndin Eldfjall fékk fimm verðlaun þegar Edduverðlaunin voru veitt í gærkvöld.
Veðurhorfur: Sunnan- og suðvestanátt, víða átta til þrettán metrar. Slydda eða rigning sunnan og vestanlands. Úrkomulítið norðaustantil, en snjókoma síðdegis. Hlýnandi, hiti að fimm stigum síðdegis, en kringum frostmark fyrir norðan. Hægari austlæg eða breytileg átt í kvöld. Gengur í norðan fimm til þrettán í fyrramálið með snjókomu norðanlands en bjartviðri sunnanlands og kólnar í veðri.</description>
Hádegisfréttir 18. febrúar 2012
      <description>Gunnar Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins fékk í gær bréf þar sem honum var tilkynnt um fyrirhugaða uppsögn. Stjórnarformaður FME segir að verið sé að fara yfir nýtt mat um hæfi forstjórans og engar ákvarðanir hafi verið teknar.
Það er villandi að bera saman svigrúm bankanna til afskrifta húsnæðislána og sterka stöðu þeirra til að mæta niðurstöðu gengislánadóms Hæstaréttar. Þetta er mat efnahags- og viðskiptaráðherra. Verið sé að bera saman gjörólíka hluti. 
Írönsk herskip sigldu í gegnum Súesskurðinn í morgun. Þetta er í annað sinn sem íranski sjóherinn siglir inn á Miðjarðarhaf frá því klerkastjórnin komst til valda.
Þrjátíu og þrír Íranar gætu átt yfir höfði sér dauðadóm fyrir þátttöku í stærsta bankasvindli í sögu Írans. Meintur höfuðpaur er sagður tengjast Íransforseta.
Bandarísk yfirvöld hafa kært ólöglegan innflytjanda frá Marokkó fyrir að hafa ætlað að sprengja þinghúsið í Washington í loft upp. Hann keypti sprengjuna frá lögreglumönnum sem höfðu fylgst með honum vikum saman.
Kannanir benda til að Lettar hafni í dag í þjóðaratkvæðagreiðslu tillögu um að rússneska verði opinbert tungumál í landinu til jafns við lettnesku. Meirihluta atkvæðabærra Letta þarf til að atkvæðagreiðslan verði bindandi.</description>
Hádegisfréttir 17. febrúar 2012
      <description>Umboðsmaður skuldara fagnar vaxtadómi Hæstaréttar. Hann hafi verið réttlátur, en mikil óvissa sé um fordæmisgildi hans. 
Miða skal við 22. desember árið 2010 þegar vextir af gengistryggðum lánum verða endurreiknaðir. Þetta er mat lektors við lagadeild Háskóla Íslands.
Bæjarstjóri Norðurþings telur að kínverski fjárfestirinn Huang Nubo verði búinn að leigja land á Grímsstöðum á Fjöllum innan tveggja mánaða. Sveitarfélög og fjárfestar á Norðurlandi ræða saman næstu daga um kaup á hluta jarðarinnar.
Hæstiréttur kveður í dag upp dóm í máli Baldurs Guðlaugssonar fyrrverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu. Hann var dæmdur í tveggja ára fangelsi í héraði fyrir innhverjasvik.
EA-fjárfestingafélag, áður MP banki, hefur verið dæmt í Hæstarétti til að greiða Íslandsbanka ríflega hálfan milljarð króna, fyrir að hafa þrjú hundruð milljónir króna af Byr-sparisjóði.
Christian Wulff, forseti Þýskalands, sagði af sér í morgun. Forsetinn hefur verið sakaður um spillingu, m.a. um að hafa notið óeðlilegrar fyrirgreiðslu og gjafa frá auðmönnum.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um tillögur stjórnlagaráðs, samhliða forsetakosningum í júní, er ómarkviss og veitir takmarkaða leiðsögn að mati þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Verið sé að drepa umræðunni á dreif með því að kalla stjórnlagaráð aftur saman í fjóra daga. 
Íslenska landsliðið í handknattleik er í fimmta sæti á styrkleikalista evrópska handknattleikssambandsins eftir Evrópumótið sem fór fram í Serbíu í síðasta mánuði. Evrópumeistarar Dana eru í efsta sætinu.  Lið Akureyrar komst í gærkvöld upp fyrir Fram í fjórða sæti úrvalsdeildar karla í handknattleik.  
Veðurhorfur: Gengur í norðaustan þrettán til tuttugu metrar norðantil á landinu með snjókomu, fyrst á Vestfjörðum. Mun hægari vindur sunnantil og stöku él, en hvessir einnig úr norðri þar seinnipartinn og styttir upp. Dregur úr vindi um allt land í nótt, og yfirleitt norðvestlæg átt fimm til tíu og úrkomulítið á morgun. Frost að átta stigum.</description>
Hádegisfréttir 16. febrúar 2012
      <description>Tugþúsundir Íslendinga eiga von á að gengistryggð lán þeirra sem tekin voru árin fyrir hrun verði endurreiknuð eftir dóm  Hæstaréttar í gær. Talið er að tugmilljarðar verði endurgreiddir. Ekki er þó víst að dómurinn eigi við um öll gengistryggð lán.
Bankastjóri Arion banka segir að sá kostnaður sem kann að hljótast af dómi Hæstaréttar muni falla á eigendur bankans, ekki viðskiptavini. 
Árni Páll Árnason fyrrverandi efnahagsráðherra segir dóminn fagnaðarefni því hann kveði á um rétt fólks. Steingrímur J Sigfússon segir erfitt að meta hve víðtækt fordæmisgildi dómsins yrði. 
Samið hefur verið um sölu á hlut gamla Landsbankans og Glitnis í Iceland Foods fyrir ríflega þrjú hundruð milljarða króna. Ríflega sextán prósent kaupverðsins eru fengin að láni hjá slitastjórnum bankanna.
Eldri borgarar, sem borga af húsnæðislánum, eru þriðjungi fleiri nú en fyrir sex árum. Á sama tíma hafa greiðslur úr lífeyrissjóðum verið skertar.
Stjórnlagaráð verður kallað saman á ný í fjóra daga í mars til að fjalla um tillögur ráðsins um breytingar á stjórnarskrá.  Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar alþingis leggur þetta til. 
Flutningaskipið Brúarfoss var hætt komið eftir að það missti vélarafl í vondu veðri vestur af Garðskaga í nótt. Skipið rak að landi en vélin komst í gang þegar það átti tvær sjómílur eftir að grynningum.
Bashar al-Assad, Sýrlandsforseti, boðaði í gærkvöldi þjóðaratkvæðagreiðslu um breytingar á stjórnarskrá Sýrlands. Stjórnarandstaðan hvetur fólk til að hundsa atkvæðagreiðsluna.
Forsætisráðherra segir atvinnulífið hafa vegið mjög ómaklega að ríkisstjórninni. Hann segist hrærður og djúpt snortinn yfir að hans hafi verið saknað á viðskiptaþingi. 
Snorri Steinn Guðjónsson, hefur framlengt samning sinn við danska liðið AG í Kaupmannahöfn.  Arsenal steinlá fyrir AC Milan, fjögur núll, í Meistaradeild Evrópu í gærkvöld og Zenit frá Sankti Pétursborg vann Benfica, þrjú tvö.
Veðurstofan spáir suðvestan átta til fimmtán metrum og éljagangi, en hægari og úrkomulausu á norðaustur- og austurlandi. Það gengur í norðan þrettán til tuttugu norðantil á landinu í fyrramálið með snjókomu, fyrst á Vestfjörðum. Hiti í kringum frostmark en frost 0 til 7 stig á morgun.</description>
Hádegisfréttir 15. febrúar 2012
      <description>Forstjóri HS Orku segir að fyrirtækið hafi ekki gert ráð fyrir falli krónunnar í miðjum gjaldeyrishöftum. Fyrirtækið tapaði rúmum 900 milljónum í fyrra, aðallega vegna gengissveiflna.
Gríska stjórnin mun á næstu klukkustundum ljúka við að útfæra nýjar sparnaðartillögur sínar. Grikkir sögðust í morgun ætla að verða við kröfum ráðherra evruríkja um frekari niðurskurð og tryggingar um að staðið verði við fyrirheit um aðhaldsaðgerðir.
Fangelsið á Bitru verður flutt að Sogni með vorinu. Við það sparast leigukostnaður á Bitru sem samsvarar einhverjum stöðugildum segir fangelsismálastjóri.
Ríkissaksóknari Bretlands hefur fyrirskipað rannsókn á starfsemi bresku efnahagsbrotadeildarinnar, vegna mistaka sem urðu við rannsókn á viðskiptum Tchenguiz-bræðra við Kaupþing skömmu fyrir fall bankans. 
Bílastæðagjald í miðborginni hækkar um tæp sjötíu prósent í vor, gangi tillaga umhverfis- og samgönguráðs borgarinnar eftir. 
Stjórnendur Rauða kross Íslands íhuga að hætta rekstri sjúkrabíla, náist ekki fram kröfur um það sem þeir telja nauðsynlega endurnýjun tækjabúnaðar. Sífellt minni kröfur eru gerðar til ástands sjúkrabíla. 
Óvissa um Vaðlaheiðargöng veldur erfiðleikum og auknum kostnaði fyrir verktaka. Búið er að framlengja tilboð í verkið meðan beðið er eftir ákvörðun stjórnvalda um gerð þeirra.
Sextán liða úrslit í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu hófust í gærkvöld með tveimur leikjum.  Evrópumeistarar Barcelona lögðu Bayer Leverkusen og Lyon vann Apoel frá Nikósíu.
Veðurstofan spáir suðvestan átta til fimmtán metrum og lítilli úrkomu. Vestan og suðvestan þrettán til tuttugu í kvöld og él, en úrkomulaust austantil á landinu. Suðvestan fimm til þrettán seinnipartinn á morgun og él sunnan og vestanlands. Kólnandi veður, hiti nærri frostmarki.</description>
Hádegisfréttir 14.febrúar 2012
      <description>Þingmenn eru eingöngu bundnir sannfæringu sinni í landsdómsmálinu gegn Geir Haarde. Enginn vafi er á því að þingmenn geta borið vitni fyrir landsdómi þrátt fyrir að fara með ákæruvaldið í málinu. Þetta segir aðallögfræðingur Alþingis. 
Olís lækkaði í morgun eldsneytisverð, sem það hækkaði í gær. Eldsneytisverð hefur hækkað um 14 af hundraði á einu ári og hefur neysluvísitalan hækkað vegna þess um 0,8 prósent. 
Formaður Vinstri grænna segir að öll stjórnmálin hér á landi séu í tilvistarkreppu og mikið umrót sé í pólitíkinni. Við þær aðstæður komi ekki á óvart dapurlegt gengi stjórnarflokkanna í skoðanakönnunum.
Kínverskir ráðamenn hétu í morgun forystumönnum Evrópusambandsins aðstoð í baráttunni við fjárhagskreppu Evrópulanda. Matsfyrirtækið Moody's hefur lækkað lánshæfismat sex Evrópulanda, og sett Frakkland og Bretland á lista ríkja með neikvæðar horfur.
Dósent við Háskólann á Akureyri, segir að þótt Snorri Óskarsson, kennari við Brekkuskóla, hafi ekki brotið lög með bloggskrifum sínum gegn samkynhneigð, hafi hann brotið faglegar siðareglur kennara.  
Tveir af hverjum þremur landsmönnum fóru til útlanda í fyrra og eykst fjöldinn með ári hverju, frá hruni samkvæmt könnun Ferðamálastofu.  
Gærkvöldið var gott fyrir Knattspyrnufélagið Fram. Framarar komust í gærkvöldi í bikarúrslit karla í handknattleik og urðu Reykjavíkurmeistarar karla í knattspyrnu.
Veðurhorfur: Suðvestan átta til fimmtán metrar. Dálítil súld og rigning en bjart með köflum suðaustan og austanlands. Rigning eða slydda vestantil í fyrramálið, en él seinnipartinn á morgun. Úrkomulítið eystra og rofar til síðdegis. Hiti þrjú til tíu stig, hlýjast austanlands í dag en yfirleitt eitt til sex stig á morgun, kólnar annað kvöld.</description>
Hádegisfréttir 13.febrúar 2012
      <description>Formaður Velferðarnefndar Alþingis telur að sameina eigi alla lífeyrissjóði landsins í einn sjóð. Með því væri hægt að jafna lífeyrisréttindi allra landsmanna. 
Framkvæmdastjóri FÍB segir að álögur ríkisins á bensín séu mun þyngri nú en árið 2005, þegar Jóhanna Sigurðardóttir núverandi forsætisráðherra lagði til að dregið yrði tímabundið úr álögum. Hann ræddi bensínverð við efnahags- og viðskiptanefnd þingsins í morgun. 
Hátt í fimmtíu hús í Aþenu stóðu í björtu báli eftir hörð mótmæli sem geisuðu þar í gær og nótt. Gríska þingið samþykkti umdeildan niðurskurð um miðnæturbil. 
Lögreglan leitar nú að manni eða konu sem stal bíl fyrir utan íbúðarhús í Kópvogi í nótt og ók honum út í Vífilstaðavatn í morgun. Bílþjófurinn braut staura með merkingum og tré við vatnið. 
Arababandalagið hefur slitið stjórnmálasamskiptum við Sýrlandsstjórn og ákveðið að taka upp samband við uppreisnarmenn í Sýrlandi og veita þeim pólitískan og fjárhagslegan stuðning.
Breska söngkonan Adele var ótvíræður sigurvegari á Grammy-tónlistarhátíðinni í nótt og hlaut sex verðlaun. 
Veðurhorfur: Suðvestan þrettán til tuttugu metrar, hvassast norðan og austanlands. Heldur hægari á morgun. Þokumóða eða súld á vestanverðu landinu, en annars bjart með köflum. Súld eða dálítil rigning norðan og vestanlands á morgun, en þurrt suðaustanlands. Hiti tvö til tíu stig, hlýjast fyrir austan.</description>
Hádegisfréttir 12.febrúar 2012
      <description>Óháð nefnd sem fjalla á um Orkuveitu Reykjavíkur vill fá upplýsingar frá fyrrverandi og núverandi stjórnarmönnum og viðskiptavinum fyrirtækisins sem útskýrt gætu slæma fjárhagstöðu þess.
Litlu munaði að flutningaskipið Arnarfell lenti í árekstri við færeyska ferju á mánudag. Skipið sigldi í veg fyrir ferjuna en rétt viðbrögð stjórnenda hennar komu í veg fyrir slys.
Bandaríska söngkonan Whitney Houston er látin, 48 ára að aldri. Hún var á sínum tíma einn vinsælasti tónlistarmaður í heimi en síðastliðin ár glímdi hún við eiturlyfjafíkn.
Almenningur verður að þekkja þær reglur sem gilda um flutning menningarverðmæta úr landi segir menningarmálaráðherra. Safnaráð fylgist með eins vel og það getur en hér reyni mest á samvisku og heiðarleika fólks.
Utanríkisráðherrar Arababandalagsins hittast í Kaíró í dag til að ræða hvernig binda megi enda á átökin í Sýrlandi. Umdeildur formaður eftirlitsnefndar bandalagsins hefur sagt af sér. 
Papademos forsætisráðherra Grikklands segir að lífsgæði í landinu muni hrynja samþykki þingið ekki aðhaldaðgerðir ríkisstjórnarinnar í atkvæðagreiðslu í kvöld.
Kúabóndi á Suðurlandi og stjórnarmaður í Mjólkursamsölunni og Auðhumlu, sem er samvinnufélag í eigu sjöhundruð mjólkurframleiðanda segir nauðsynlegt að flytja inn sem fyrst nýtt kúakyn til landsins.
Aðeins fjórðungur íbúa Evrópusambandslanda þekkir neyðarnúmerið einn-einn-tveir, sem er almennt neyðarnúmer í Evrópu. Framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar segir þetta hafa verið vandamál fyrir þá útlendinga sem þurft hafa neyðaraðstoð hér.</description>
Hádegisfréttir 11.febrúar 2012
      <description>Rúmlega sjötugur karlmaður liggur alvarlega slasaður á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir hrottafengna líkamsárás á heimili sínu á Þórshöfn í nótt. Árásarmaðurinn, sem  er á þrítugsaldri, var handtekinn á staðnum. Hann braust inn til mannsins til að gera upp gamlar sakir. 
Fjársvelti Útlendingastofnunar veldur því að meira en ár tekur að afgreiða umsóknir um hæli hér á landi. Þetta segir forstjóri stofnunarinnar. Hælisleitendur gefist upp á biðinni og reyni að lauma sér úr landi.
Í það minnsta fjórtán hafa látið lífið í árásum stjórnarhersins í Sýrlandi í dag. Sádi-Arabar beita sér nú fyrir lausn ófriðarins þar á vettvangi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna. 
Varaformaður vinstri grænna segir að nýju framboðin tvö muni hafa talsverð áhrif á vinstri væng stjórnmálanna. Hátt  hlutfall óákveðinna sýni að kjósendur eru enn leitandi eftir hrunið.
Gríska stjórnin náði í gærkvöldi samkomulagi um enn frekari aðhaldaðgerðir að kröfu Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Sex ráðherrar hafa sagt af sér í mótmælaskyni.
Deildarstjóri á Litla-Hrauni segir að fangar noti ekki aðeins ferðir á spítala til að smygla fíkniefnum inn í fangelsið heldur líka dómstóla og tannlæknastofur. Fíkniefni fundust á Landspítalanum í vikunni. 
Fiðrildi af tegund sem aldrei hefur sést hér á landi fannst á hálendinu norðan Vatnajökuls síðasta sumar. Það hefur sennilega fengið far hingað með erlendum ferðamönnum. 
KR vann í gærkvöld Stjörnuna í úrvalsdeild karla í körfuknattleik, en Keflavík tapaði óvænt fyrir Haukum.  Svisslendingurinn Beat Feuz fojts sigraði í morgun á fyrsta heimsbikarmótinu í bruni karla sem fram fer í Sochi sotsí í Rússlandi.</description>
Hádegisfréttir 10.febrúar 2012
      <description>Miklu fleiri reyna nú að laumast um borð í skip sem sigla til Bandaríkjanna en fyrir nokkrum árum, segir upplýsingafulltrúi Eimskips. Tveir hælisleitendur voru handteknir í nótt en þeir földu sig á hafnarbakkanum klukkustundum saman.
Ráðherrar evruríkjanna settu enn frekari skilyrði fyrir neyðaraðstoð við Grikki á fundi sínum í gærkvöldi. Þetta er gert þótt samkomulag hafi náðst í Grikklandi í gærdag um  viðbótarniðurskurð.
Safnaráð ákvað í morgun að meina breskum skartgripakaupmanni að fara úr landi með nokkur víravirkis-armbönd sem hann hafði keypt hér. Ráðið telur að gripirnir séu meira en hundrað ára. 
Stjórnvöld í Sýrlandi segja að hryðjuverkamenn beri ábyrgð á sprengjuárásum í annarri stærstu borg landsins í morgun sem kostuðu minnst tuttugu og fimm lífið. Uppreisnarmenn segja að yfirvöld sjálf hafi gert árásina.
Kópavogslistinn gerði þá kröfu í nýju meirihlutasamstarfi í bænum að Gunnar I. Birgisson bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins yrði ekki í framvarðasveit meirihlutans. 
Hverfandi líkur eru á að samningar náist við Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins um sjúkraflutninga miðað við óbreytta fjárveitingu. Þetta segir forstjóri Sjúkratrygginga Íslands.
Skíðasvæðið í Skálafelli verður hugsanlega opnað í næstu viku. Viðræður Reykjavíkurborgar og skíðadeildar KR um málið hefjast á mánudag.
Veðurstofan spáir suðvestanátt, víða átta til fimmtán metrum. Él vestantil í dag en úrkomulítið fram eftir morgundeginum. Léttskýjað á austanverðu landinu. Snýst í sunnanátt síðdegis á morgun með slyddu en síðar rigningu vestantil um kvöldið. Hiti kringum frostmark en hlýnar annað kvöld.</description>
Hádegisfréttir 09.febrúar 2012
      <description>Ríkissjóður ber beinan kostnað af skerðingum lífeyrissjóðanna á lífeyrisgreiðslum í kjölfar hrunsins. Í flestum tilfellum bætir Tryggingastofnun lífeyrisþegum tekjutapið að hluta eða jafnvel að fullu. 
Samkomulag hefur tekist um nýjan meirihluta í Kópavogi.  Aðeins á eftir að staðfesta það formlega með undirskrift.
Íbúar í nágrenni Evróvisjónhallarinnar í Bakú saka asersk stjórnvöld um að beita hótunum til að fá þá til að flytja burt. Þingmaður VG spyr menntamálaráðherra hvort hann telji koma til álita að sniðganga keppnina. 
Að minnsta kosti 24 voru drepnir í árásum sýrlenska stjórnarhersins á borgina Homs í morgun. Arababandalagið ætlar að nýju að senda eftirlitssveitir til þess að fylgjast með uppreisninni í Sýrlandi.
Forseti bæjarstjórnar Norðurþings er bjartsýnn á að iðnaðarráðuneytið muni heimila sveitarfélögum á Norðurlandi að kaupa Grímsstaði á Fjöllum og leigja hana kínverska fjárfestinum Huang Nubo.
Sjötíu prósent fleiri samningum um fasteignakaup á höfuðborgarsvæðinu  var þinglýst í síðasta mánuði en í janúar í fyrra. 
Þormóður Árni Jónsson, júdómaður meiddist á hné í æfingabúðum í Frakklandi. Meiðslin setja strik í reikninginn í undirbúningi hans fyrir Ólympíuleika, en Þormóður stendur vel að vígi að komast inn á Ólympíuleikana í London í sumar.
Veðurhorfur: Hæg suðvestlæg eða breytileg átt í fyrstu og skýjað með köflum. Hiti að sjö stigum, en í kringum frostmark fyrir norðan. Vaxandi suðaustanátt og rigning eða slydda síðdegis, fyrst suðvestanlands, snýst í hvassa vestanátt á sunnanverðu landinu í kvöld en stormur á Norður- og Austurlandi í nótt. Suðvestan átta til fimmtán og él á morgun, en bjartviðri á austanverðu landinu. Hiti nálægt frostmarki.</description>
Hádegisfréttir 08.febrúar 2012
      <description>Stjórnvöld hafa lagt 100 prósent skatt á marga elli- og örorkulífeyrisþega með gríðarlegum tekjutengingum í velferðarkerfinu segir forseti Alþýðusambandsins. Meðal lífeyrisþeginn nýtur þess í engu að hafa greitt áratugum saman í lífeyrissjóði. 
Seðlabankastjóri segir að þótt efnahagslífið hér sé enn í lægð, fari það batnandi. Gengi krónunnar er ennþá veikt og verðbólguhorfur hafa dökknað frá spá bankans í nóvember. 
Fulltrúi Framsóknarflokksins í meirihlutaviðræðum í Kópavogi á von á því að lögð verði lokahönd á samkomulag nýs meirihluta í dag. 
Um 70 óbreyttir borgarar hafa fallið í árásum sýrlenska hersins á borgina Homs í Suður-Sýrlandi í morgun. Árásirnar í morgun eru þær hörðustu frá því herinn hóf stórfelldan hernað gegn borgarbúum.
Einum af æðstu yfirmönnum danska hersins hefur verið stefnt fyrir rétt. Hann er sakaður um að hafa logið að danska varnarmálaráðherranum, um fjölda þeirra sem danski herinn tók til fanga í Írak. 
Nýtt loðnuskip Síldarvinnslunnar kom til hafnar í Neskaupstað í morgun.
Veðurstofan spáir suðvestanátt, fimm til þrettán metrum. Skúrir eða slydduél verða en bjart á norðaustur- og austurlandi. Vaxandi suðlæg átt í kvöld, tíu til átján og slydda eða rigning, en þurrt að mestu norðaustantil. Hiti frá frostmarki að sex stigum.</description>
Hádegisfréttir 07.febrúar 2012
      <description>Alþingi var of meðvirkt í breytingum á lögum um lífeyrissjóði árin fyrir hrun að mati fyrrverandi formanns Efnahags- og skattanefndar.
Ögmundur Jónasson kveðst aldrei hafa þegið boðsferð á vegum þeirra fyrirtækja sem Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins fjárfesti í í stjórnartíð hans. Hann kveðst axla ábyrgð á orðum sínum og verkum í sjóðnum.
Ögmundur sagði nokkrum dögum eftir að neyðarlögin voru sett að Bakkavararbræður væru menn með ábyrga afstöðu til meðeigenda sinna. Þar á meðal væru lífeyrissjóðir sem töpuðu um 170 milljörðum á viðskiptablokk bræðranna. 
Dæmi eru um að lífeyrir hafi skerst um hátt í þriðjung frá efnahagshruni. Landssamband eldri borgara gerir kröfu um að lífeyrisþegar komi meira að stjórn lífeyrissjóða en áður. 
Dómari samþykkti í morgun tveggja vikna gæsluvarðhald yfir manni sem grunaður er um að hafa banað konu í íbúð sinni í Hafnarfirði. 
Ekkert lát er á sprengjuárásum sýrlenska hersins á borgina Homs í Suður-Sýrlandi. 95 voru drepnir  þar í gær. Utanríksráðherra Rússlands kom til Sýrlands í morgun til viðræðna við Al-Assad Sýrlandsforseta. 
Ekkert verður af byggingu nýrrar raforkulínu Landsnets um Kjós, vegna andstöðu hreppsnefndar við að breyta aðalskipulagi. Nefndin leggst alfarið gegn frekari uppbyggingu iðnaðar á Grundartanga og telur að línan sé til þess gerð. 
Veðurstofan varar við stormi á landinu, meira en tuttugu metrum. En spáin er þessi: Gengur í sunnan- og suðvestan átján til tuttugu og fimm metra síðdegis, hvassast á vestanverðu landinu. Víða rigning og talsverð úrkoma sunnanlands. Lægir í nótt og fyrramálið. Þriggja til níu stiga hiti, en frá frostmarki að sex stigum í nótt og á morgun.</description>
Hádegisfréttir 06.febrúar 2012
      <description>Björgunarsveitarmenn eru á leið að Vegamótavatni austan Hofsjökuls til að sækja erlendan ferðamann sem slasaðist á göngu yfir hálendið. Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leiðinni en mjög hvasst er á þessum slóðum. 
Rannsóknarnefnd lífeyrissjóðanna gagnrýnir að Alþingi hafi árin fyrir hrun stöðugt aukið heimildir lífeyrissjóða til að kaupa hlutabréf. Slíkt samræmist ekki hugmyndum um að takmarka áhættu sjóðanna. 
Tugir manna létu lífið og yfir 50 særðust í stórskotaliðsárásum sýrlenska hersins í morgun á borgina Homs í Suður-Sýrlandi. Flugskeytum var m.a. skotið  á spítala í borginni.
Lyf og lækningatæki verða áfram tollafgreidd á nokkrum mínútum, þrátt fyrir breytingar á tollalögum. Þetta segir yfirtollvörður.
Anders Berhing Breivik birtist í beinni útsendingu alþjóðlegra fjölmiðla nú rétt fyrir fréttir. Hann var þá leiddur fyrir dómara vegna framlengingar á gæsluvarðhaldi. 
Mjólkursamsalan stefnir að því að tvöfalda sölu á skyri í Bandaríkjunum. Á áttunda hundrað þúsund skyrdósa voru seld á síðasta ári.
Emil Boc forsætisráðherra Rúmeníu hefur sagt af sér. Mikil ólga hefur verið í landinu að undanförnu vegna niðurskurðaraðgerða ríkisstjórnar hans.
Framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands segir að Íslendingar ættu að íhuga að hætta við þátttöku í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva vegna mannréttindabrota gestgjafanna í Aserbaídsjan.
Veðurstofan varar við stormi á landinu, meira en tuttugu metrum. Spáin er annars þessi: Sunnan tíu til tuttugu metrar, hvassast við vesturströndina. Úrkomulítið norðaustanlands, en annars rigning eða súld. Dregur úr vindi í kvöld og nótt og styttir upp að mestu. Gengur í suðaustan þrettán til tuttugu í fyrramálið, hvassast syðst. Fimm til þrettán stiga hiti, hlýjast fyrir norðan.</description>
Hádegisfréttir 05.febrúar 2012
      <itunes:author>Arnar Páll Hauksson</itunes:author>
      <description>Lífeyrissjóður verkfræðinga tapaði meira en helmingi af öllum eignum sínum í hruninu. Meira en þriðjungur tapaðist hjá fimm sjóðum.
Fjármálaráðherra Grikklands segir að aðeins sé frestur fram á kvöld til að ná samkomulagi um niðurskurð á opinberum útgjöldum til að tryggja frekari neyðarlán. Takist það ekki fara Grikkir í þrot.
Framkvæmdir við Vaðalheiðagöng geta hafist strax ef Alþingi samþykkir tveggja milljarða króna lán til framkvæmdarinnar segir fjármálaráðherra, sem ætlar að leggja fram frumvarp í vikunni um göngin.
Forseti Frakklands fordæmir þá ákvörðun Rússa og Kínverja að beita neitunarvaldi í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna gegn ályktun um ástandið Sýrlandi. Rússar segja að vesturveldin geti sjálfum sér um kennt.
Nýlegur dómur mannréttindadómstóls Evrópu skýrir réttarstöðu þeirra sem vilja upplýsa um brot vinnuveitenda sinna, hvort sem það eru fyrirtæki eða stofnanir að mati forseta Alþýðusambandsins.</description>
Hádegisfréttir 03.febrúar 2012
      <description>Stjórnarformaður Landssamtaka lífeyrissjóða segir það hafa komið á óvart að meira en helmingur af tapi sjóðanna í hruninu sé vegna tveggja viðskiptablokka. Hann segist hins vegar afar ánægður með skýrslu rannsóknarnefndar sem kynnt var í gær. 
Sýrlenski stjórnarherinn hefur murkað lífið úr hundruðum íbúa borgarinnar Homs síðan í gærkvöld. Fjölmenn mótmæli hafa verið við sýrlensk stjórnarráð í Evrópu og Mið-austurlöndum í morgun.
Það gæti kostað hátt í áttatíu milljónir króna  að fjarlægja PIP-brjóstapúða úr öllum konum sem eru með þá. Þrjá til fjóra mánuði mun taka að ómskoða allan hópinnn. 
Nautgriparæktarráðunautur hjá Búnaðarsambandi Suðurlands segir að nú sé rétta tækifærið í ljósi stöðu íslensku krónunnar að flytja út allt að tuttugu og fimm prósent af mjólkurframleiðslunni.
Misráðið er að selja Perluna sem hefur táknrænt gildi fyrir Reykjavík og tengist náttúru Íslands. Betra væri að koma Náttúruminjasafninu fyrir þar.  Þetta segir Hjörleifur Stefánsson arkitekt. 
Barnabókasetur verður stofnað við Háskólann á Akureyri í dag. Þar verða stundaðar rannsóknir á barnabókmenntum og lestri barna og ungmenna. 
Veðurhorfur: Minnkandi austanátt og víða rigning eða slydda með köflum. Hiti að fimm stigum. Gengur í vestan tíu til tuttugu metra sunnantil um upp úr hádegi, hvassast við ströndina. Annars mun hægari vindur, en vaxandi norðvestanátt í kvöld með éljum vestantil. 
Umsjónarmaður hádegisfrétta er Arnar Páll Hauksson.</description>
Hádegisfréttir 03.febrúar 2012
      <description>Ekki er marktækur munur á afstöðu landsmanna til þess hvort eigi að fella niður ákæru á hendur Geir Haarde. Stuðningsmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og þeir tekjuhærri vilja að ákæran verði felld niður. 
Utanríkisráðherra segir að ríkisstjórninni hafi tekist að koma einkaneyslunni af stað. Efnahagssamdrættinum sé lokið og kreppan frá. Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir slíkar fullyrðingar vera út í bláinn.
Af átján króna hækkun á bensínverði frá áramótum nemur skattahækkun ríkissjóðs sex og hálfri krónu - ekki þremur krónum eins og forsætisráðherra fullyrti í morgun. Þetta sýna útreikningar FÍB.
Mótmæli eru boðuð á götum Kaíró höfuðborgar Egyptalands í dag. Mótmælt er drápi 74 manna á fótboltavelli í Port Said. Stjórnvöld eru sökuð um að hafa skipulagt drápið.
Viðræður framsóknarmanna, sjálfstæðismanna og fulltrúa Y-lista Kópavogsbúa um myndun nýs meirihluta í Kópavogi halda áfram um helgina. Nýr meirihluti gæti litið dagsins ljós eftir helgi.
Sérstök rannsóknarnefnd um starfsemi lífeyrissjóðanna fyrir hrun tók skýrslu af tugum fyrrverandi stjórnenda og stjórnarmanna í sjóðunum. Átta hundruð blaðsíðna skýrsla nefndarinnar verður birt eftir hádegið. 
Sjúkrasviði Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað verður ekki lokað í sumar eins og áformað var. Dregið verður úr starfseminni. 
John Terry landsliðsmaður Englands í knattspyrnu, hefur verið sviptur fyrirliðabandinu hjá enska landsliðinu. Ástæðan er ásakanir um kynþáttaníð.
Veðurhorfur: Suðlæg átt, fimm til tíu metrar og stöku skúrir eða él, en léttir til norðan og austanlands. Hiti að fimm stigum, en kringum frostmark í innsveitum. Austan þrettán til tuttugu og þrír og slydda eða rigning sunnantil í kvöld, hvassast syðst. Mun hægari og úrkomulítið fyrir norðan. Snýst í vestlæga átt á morgun, víða tíu til átján, en hægari vindur norðaustanlands.</description>
Hádegisfréttir 02.febrúar 2012
      <description>Háskólanemar sem ljúka námi á tilsettum tíma, gætu fengið hluta framfærsluláns síns niðurfelldan, verði tillögur nefndar á vegum menntamálaráðherra samþykktar. Breytingunni er ætlað að auka skilvirkni í námi. 
Forsætisráðherra hefur ekkert á móti því að Icesave samningarnir, aðdragandi þeirra og endurreisn bankanna verði ransökuð. Ráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins fagna rannsókn á einkavæðingu Búnaðarbanka og Landsbanka. 
Tveir karlmenn voru í morgun dæmdir í fjögurra ára fangelsi fyrir hrottafengna nauðgun.
Það var afrek að Eiríkur Ingi Jóhannsson skyldi bjargast þegar togarinn Hallgrímur fórst, segir skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna.
Tilboð tveggja fjárfestingasjóða í bresku verslanakeðjuna Iceland Foods eru nálægt því verði sem slitastjórn Landsbankans hefur sett á fyrirtækið. Líklegur forsetaframbjóðandi repúblikana í Bandaríkjunum tengist öðrum sjóðnum. 
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Lista Kópavogsbúa hittast í dag og ræða hugsanlega myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Kópavogs. 
Fasteignagjöld af hesthúsum í Reykjavík fimmfölduðust um áramótin. Formaður Landssambands hestamannafélaga óttast að önnur sveitarfélög hækki í kjölfarið og skattleggi þar með hestamenn út úr þéttbýlinu. 
Mikil sykurneysla er mjög skaðleg heilsu manna. Sérstakan skatt ber að leggja á matvörur með íbættum sykri, til að draga úr sykurneyslu segja bandarískir sérfræðingar. 
Íþróttahreyfingin á að taka á áfengisneyslu félagsmanna, líkt og hún hefur gert við munntóbaksnotkun. Þetta segir fyrrum meistaraflokksleikmaður Grindavíkur í knattspyrnu. 
Veðurstofan spáir suðaustan þrettán til tuttugu metrum með slyddu og síðar rigningu, en hægari og þurrt á norðaustanverðu landinu. Tveggja til átta stiga hiti síðdegis. Suðlægari á morgun og léttir til norðan- og austanlands, en dálítil él vestalands.</description>
Hádegisfréttir 01.febrúar 2012
      <description>Stór aurskriða lokaði veginum um Þvottárskriður í nótt. Flutningabílstjóri slapp með skrekkinn þegar grjót fór í gegnum stýrishúsið. Búið er að ryðja veginn en fólk er hvatt til að fara varlega á þessum slóðum.
Sænska lögreglan hefur hafið víðtækar aðgerðir gegn skipulögðum glæpasamtökum í Malmö. Maður var skotinn til bana í nótt skömmu áður en sprengjuárás var gerð á lögreglustöð. Hundruð Íslendinga búa í borginni, en sumir þeirra hafa flutt þaðan vegna ástandsins. 
Fjarskiptamiðstöð gerði sér ekki grein fyrir alvöru málsins þegar sprengja sprakk við Hverfisgötu í gær. Því liðu rúmar tvær klukkustundir frá því að tilkynnt var um sprengjuna og þar til lögregla mætti á vettvang. Enginn hefur verið handtekinn.
Leyniþjónusta Pakistans veitir Talíbönum í Afganistan beinan stuðning og stýrir jafnvel aðgerðum þeirra. Þetta er fullyrt í leynilegri skýrslu Atlantshafsbandalagsins sem breska ríkisútvarpið hefur undir höndum.
Formaður Kjararáðs vísar því á bug að ráðið úrskurði að konur fái lægri laun en karlar fyrir sambærileg störf.
Íslensk stjórnvöld eiga eftir að fullgilda tvo alþjóðasáttmála sem beinast gegn mansali barna og kynferðisbrotum. 
Veðurstofan spáir suðvestlægri átt, átta til fimmtán metrum með éljum, en þrettán til átján austast á landinu með rigningu eða slyddu. Lægir og styttir upp í kvöld. Víða frost í nótt. Annars hlýnandi veður.</description>
Hádegisfréttir 31.janúar 2012
      <description>Sprengjusveitir lögreglunnar og landhelgisgæslunnar sprengdu kassa sem komið var fyrir í námunda við Stjórnarráðið í morgun. Lögreglan lokaði neðri hluta Hverfisgötu frá Lækjargötu að Ingólfsstræti og rýmdi hús númer sex. 
Kona sem var á ferð í Ingólfsstræti í morgun kveðst hafa heyrt tvær sprengingar í miðbæ Reykjavíkur í morgun. Þá varð hún vitni að því þegar meintur sprengjumaður flúði af vettvangi frá Hverfisgötu á hvítri sendibifreið.
Lagafrumvarp sem gerir ráð fyrir ríkisábyrgð á Vaðlaheiðargöngum er nú í vinnslu í fjármálaráðuneytinu.
Stýri og dælubúnaður í togaranum Hallgrími gáfu sig vegna sjógangs áður en togarinn sökk á fimmtudag. Þetta kom fram í viðræðum Rannsóknarnefndar sjóslysa við manninn sem komst af. Ekki er ljóst hvernig sjór komst í skipið.
Velferðarráðherra hefur ákveðið að stofna ráðgjafahóp til að fara í saumana á faglegum þáttum í starfsemi einkarekinna læknastofa í ljósi PIP-brjóstapúðamálsins.
Formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis segir umsagnir fræðimanna um afturköllun ákæru á hendur Geir Haarde vekja margar spurningar. Hún segir óvíst hvenær nefndin geti lokið umfjöllun sinni.
Kadímum-mengun ógnar nú drykkjarvatni á sjöttu milljónar íbúa í Guangxi sýslu í Kína. Sjö framkvæmdastjórar efnaverksmiðja hafa verið handteknir  vegna málsins.
Samtök um kvennaframboð voru stofnuð á fjölmennum fundi á Hótel Borg í Reykjavík fyrir réttum þrjátíu árum.
Veðurhorfur: Suðlæg átt, víða tíu til fimmtán metrar og rigning, en úrkomulítið á norðaustur og austurlandi. Talsverð rigning á sunnanverðu landinu síðdegis. Hægari vindur vestantil í kvöld. Sunnan og suðvestan fimm til þrettán á morgun og skúrir eða él en rigning suðaustanlands. Hiti eitt til átta stig.</description>
Hádegisfréttir 30.janúar 2012
      <description>Töluverð hætta skapaðist þegar ammoníak lak úr 500 kílóa kúti í Skútuvogi í morgun.
Bankaráð Landsbankans telur það skapa áhættu fyrir bankann, að Kjararáð ákveði laun bankastjórans. Það kunni að draga úr afköstum bankastjórans, eða verða til þess að hann segi upp störfum. Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis fjallar um málið í dag.
Ekki hefur verið farið fram á formleg sjópróf vegna skipsskaðans sem kostaði þrjá lífið undan ströndum Noregs í síðustu viku. 
Formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis segir það áhyggjuefni hversu miklu dýrara birgjar selja litlum verslunum vörur en stórum verslunarsamstæðum. Nefndin hyggst kalla hagsmunaaðila á sinn fund.
Pólverjar kefjast aukinna áhrifa á evrusvæðinu. Að öðrum kosti ætli þeir ekki að undirrita samkomulag um strangari reglur um  fjárlög evruríkjanna á leiðtogafundi  Evrópusambandsríkjanna í Brussel í dag.
Tæplega tugur fjárfesta hefur fengið gögn vegna sölunnar á bresku verslanakeðjunni Iceland. Tilboðsfrestur rennur út á miðnætti annað kvöld.
Náttúruverndarsamtök Suðvesturlands vilja láta afturkalla starfsleyfi Orf líftækni. Framkvæmdastjóri Orf segir að um endurtekinn hræðsluáróður sé að ræða. 
Ekki er líklegt að Íslendingar sem fluttu til Noregs flytji aftur til Íslands á næstu tíu árum. Þetta kemur fram í nýrri könnun.
Veðurhorfur: Sunnan þrír til átta metrar og úrkomulítið, en léttskýjað á norðaustanverðu landinu. Hvessir í kvöld, suðaustan og síðar sunnan tíu til átján metrar í nótt og morgun og rigning með köflum, en þurrt að kalla fyrir norðan. Hiti um eða rétt yfir frostmarki, en tvö til sjö stig á morgun.</description>
Hádegisfréttir 29.janúar 2012
      <description>Þúsundir hermanna og tugir skriðdreka herja nú á úthverfi í Damaskus, höfuðborg Sýrlands. Stjórnarandstæðingar lýsa miklu mannfalli og segja þetta blóðugustu átökin frá því að þeir hófu mótmæli gegn ríkisstjórninni fyrir tíu mánuðum.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Vinstri Grænna hittast í dag. Þar verður tekin afstaða til þess hvort hefja eigi meirihlutaviðræður. Bæjarfulltrúi VG segir mikilvægt að starfhæf stjórn komist á sem fyrst. 
Vatnsmagn í Gígjukvísl hefur aukist töluvert, en talið er að hlaupið hafi úr Grímsvötnum. Mikill jakaburður er í ánni, og fundu lögreglumenn á vettvangi brúnna yfir ána titra þegar jakarnir skullu á brúarstöplunum í gær. Óvissustigi vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum verið aflétt.
Forsætisráðherra segir mikilvægt að fyrsta vinstri stjórnin á Íslandi klári þau mál sem hún setti á dagskrá. Stjórnarskráin, fiskveiðistjórnunin og rammaáætlun séu mál sem aðeins vinstri- og jafnaðarmenn geti komið í höfn. 
Líkur eru á að mörg þjónustufyrirtæki þurfi að segja upp starfsmönnum á næstunni segir formaður Samtaka verslunar og þjónustu.  Ný framlengdir kjarasamningar séu þessum fyrirtækjum gríðarlega dýrir.  
Skógarsnípa, dvergsnípa og Keldusvín hafa glatt fuglaáhugamenn á Suðurlandi upp á síðkastið, allt sjaldgæfir fuglar, sem eru ekki vanir að vera á ferðinni á þessum árstíma.
Danmörk og Serbía mætast í úrslitum Evrópumótsins í handknattleik í dag. Íslendingar hagnast á sigri Dana þegar litið er til undankeppni ólympíuleikanna. Leikurinn er sýndur beint á RÚV klukkan 16.</description>
Hádegisfréttir 28.janúar 2012
      <description>Veðurstofan varar við því að ár á Suður- og Vesturlandi geti flætt yfir bakka sína vegna asahláku, sem nú gengur yfir landið. Hálka er víða um land, og hætta á að færð versni til muna. Óvissustig vegna snjóflóða er enn í gildi á norðanverðum Vestfjörðum
Jóhanna Sigurðardóttir formaður Samfylkingarinnar segir það ráðast á næstu 12 mánuðum hvort fyrstu vinstri stjórninni takist að klára þau verkefni sem hún byrjaði á. Hún segir landsdómsmálið tilraun íhaldsins til þess að reka fleyg í raðir jafnaðarmanna. 
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna situr nú á fundi í New York og undirbýr ályktun um fjöldamorðin í Sýrlandi. Rússar vilja milda orðalag harðorðar ályktunar sem vesturveldin lögðu fram með stuðningi Arababandalagsins. 
Efnahags- og viðskiptaráðherra segir fúlt að sjá verðbólguna svona háa, en hún hefur ekki mælst hærri í tuttugu mánuði. Góður horfur séu þó á að hún fari hjaðnandi næstu mánuði. 
Miklar launahækkanir á almennum vinnumarkaði eru helsta skýringin á því að verðbólga mælist nú eins há og raun ber vitni segir formaður Sambands sveitarfélaga. Gjaldskrárhækkanir séu að hluta til að bregðast við umsömdum launahækkunum. 
Þjóðverjar vilja að Evrópusambandið taki að sér yfirstjórn grísku fjárlaganna.
Veðurhorfur: Suðaustan átta til þrettán metrar og súld eða rigning, en úrkomulítið norðaustanlands. Suðaustan tíu til átján og talsverð rigning sunnan og vestanlands í kvöld og nótt. Hiti yfirleitt fimm til tíu stig. Dregur úr vindi og úrkomu vestantil á landinu á morgun og fer kólnandi. Áfram talsverð rigning á suðaustanverðu landinu.</description>
Hádegisfréttir 27.janúar 2012
      <description>Allar leiðir frá Reykjavík til austurs eru lokaðar.  Á Suðurlandsvegi sitja  tugir bíla fastir. Björgunarsveitir vinna nú að því að ferja fólk austur fyrir Hellisheiði. Mikil hálka og slæmt skyggni er á heiðinni.
Ársverðbólga hefur ekki mælst eins mikil síðan í maí 2010. Hún er nú sex og hálft prósent. Forseti ASÍ segir þetta meiri hækkun en nokkur hafi búist við. Hann væntir þess þó að verðbólga minnki á næstu mánuðum. 
Það væri ábyrgðarleysi að reyna að berjast áfram með eigin verðstefnu þegar ein verslanakeðja er ráðandi á markaðnum líkt og nú, segir framkvæmdastjóri Samkaupa. Yfir helmings markaðhlutdeild eins, þýði ofríki á markaði og gagnvart birgjum. 
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kemur saman í dag til að ræða ályktun um refsiaðgerðir gegn stjórnvöldum í Sýrlandi.
Fórnarlamba helfarar nasista er minnst víða um heim í dag. Sex milljónir gyðinga og fjöldi annarra sem nasistar töldu óæskilega - voru myrtir í síðari heimsstyrjöldinni.
Íslenska kvikmyndin Á annan veg er ein af átta myndum sem tilnefndar eru til Drekans, helstu kvikmyndaverðlauna Norðurlandanna. Hrönn Marinósdóttir, stjórnandi Riff situr í aðaldómnefnd á Gautarborgarhátíðinni, sem hefst í dag.
Undaúrlitaleikirnir á Evrópumótinu í handbolta verða spilaðir í dag. Danir mæta Spánverjum og Serbar leika við Króaata
Veðurhorfur: Vaxandi suðaustanátt sunnan og vestanlands þrettán til tuttugu metrar síðdegis. Slydda eða snjókoma, en rigning undir kvöld og hiti eitt til fimm stig. Hægari vindur og þykknar upp norðaustantil, allhvasst og dálítil snjókoma þar í kvöld. Minnkandi frost. Suðaustan átta til þrettán á morgun, skýjað og súld eða rigning á sunnan og vestanverðu landinu. Bætir í vind og úrkomu annað kvöld. Hiti þrjú til tíu stig</description>
Hádegisfréttir 26.janúar 2012
      <description>Sjómaðurinn sem komst af þegar togarinn Hallgrímur sökk Noreg í gær, velktist fjórar klukkustundir í köldum sjónum áður en honum var bjargað. Varðskip sem hugðist leita að þeim sem saknað er, komst ekki vegna veðurs. Rannsóknarnefnd sjóslysa hér á landi sér um rannsókn slyssins.
Gríðarlegt fannfergi er á Vestfjörðum en þar hefur dregið úr snjóflóðahættu.  Veður versnar í Skagafirði og Eyjafirði. Slæmt veður og ófærð var á Vesturlandi og Suðurnesjum í nótt og í morgun Röskun var á millilanda- og innanlandsflugi en það er komið í eðlilegt horf. Rafmagnslaust var víða um norðauastanvert landið fram á morgun. 
Veist var að björgunarsveitarmanni við störf í Reykjanesbæ í morgun. 
Bóndi í Reykhólasveit sat fastur í bíl sínum í sautján tíma í óveðrinu í gærkvöldi og nótt. Hann sagði það hafa bjargað miklu að hann var að koma frá því að kaupa í matinn. 
Alþingi fer með ákæruvaldið í landsdómsmáli gegn Geir Haarde en ekkert hefur efnislega breyst í málinu frá því ákært var. Afturköllun ákæru er ekki íhlutun í dómsmál. Þetta segir saksóknari Alþingis. 
Verð á dagvöru hækkaði um sextíu prósent á síðastliðnum sex árum. Samkeppniseftirlitið hyggst rannsaka hvers vegna stærstu verslanirnar fái vörur á miklu lægra verði frá birgjum en hinar smærri. 
Milljónamæringurinn Jean-Claude Mas stofnandi og eigandi fyrirtækisins Poly Implant Prothese sem framleiddi svikna brjóstapúða, hefur verið handtekinn í Suður Frakklandi.
Veðurhorfur: Norðan- og norðvestanátt, víða tíu til fimmtán metrar. Snjókoma eða él á norður og austurlandi, annars úrkomulítið. Lægir síðdegis og í kvöld og léttir til, fyrst
vestanlands. Frost eitt til tíu stig, en kaldara í innsveitum í kvöld. Gengur í allhvassa suðaustanátt með snjókomu sunnan og vestanlands, en slyddu eða rigningu undir kvöld. Hlýnandi veður.</description>
Hádegisfréttir 24.janúar 2012
      <description>Veginum milli Súðavíkur og Ísafjarðar hefur verið lokað vegna snjóflóðahættu. Einnig er varað við snjóflóðahættu víðar á vegum á Vestfjörðum, í Ólafsfjarðarmúla og á norðanverðum Tröllaskaga. Enn er ekki talin hætta á snjóflóðum í byggð.
Sigríður Friðjónsdóttir saksóknari krafðist þess fyrir Hæstarétti í morgun að refsing Baldurs Guðlaugssonar fyrrverandi ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu yrði þyngd. 
Norðmenn ætla að verja þremur og hálfum milljarði íslenskra króna til rannsókna á landgrunninu við Jan Mayen í sumar. Mælingarnar ráða úrslitnum um olíuleit á svæðinu.
Innanríkisráðherra segir að ný Vestmannaeyjaferja verði tekin í notkun árið 2015, í síðasta lagi. Siglingar til Eyja fram að því verða boðnar út á næstunni.
Barack Obama Bandaríkjaforseti vill draga úr ójöfnuði í Bandaríkjunum og gera skattkerfið réttlátara. Forsetinn sagði í stefnuræðu sinni í gærkvöldi að gera verði breytingar á skattkerfinu til að tryggja að auðkýfingar borgi ekki lægri skatt en þorri launafólks.
Norska flugfélagið Norwegian hefur gengið frá pöntunum á tvö hundruð tuttugu og tveimur farþegaþotum frá Airbus og Boeing-verksmiðjunum. Þetta eru umfangsmestu flugvélakaup í sögu Evrópu.
Sjálfstætt starfandi dýralæknar sem sinna vaktþjónustu fyrir Matvælastofnun á Suðurlandi segjast hafa unnið kauplaust frá fyrsta nóvember síðastliðnum. Þeir eru búnir að fá nóg og vilja að vaktsímanum verði vísað á dýralækna Matvælastofnunar frá fyrsta febrúar. 
Veðurhorfur: Norðaustan fimmtán til tuttugu og þrír metrar á Ströndum og Vestfjörðum, annars mun hægari vindur, en hvessir vestanlands í kvöld. Snjókoma fyrir norðan, einkum norðvestantil, en stöku él syðra. Frost að átta stigum, kaldast í innsveitum. Allhvöss eða hvöss norðlæg átt á morgun, lægir vestantil síðdegis. Snjókoma eða él fyrir norðan, annars úrkomulítið.</description>
Hádegisfréttir 23.janúar 2012
      <description>Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir forseti Alþingis verði að gera það upp við sjálfa við sig hvernig hún bregst við kröfu um vantraust. Hún hafi lagt til á sínum tíma að Ásta Ragnheiður yrði forseti þingsins, og hafi enn ekki boðað breytingar þar að lútandi. 
Þrír karlmenn sem ákærðir eru fyrir fólskulega líkamsárás í Reykjavík árið 2010 neita allir sök. Einn þeirra tengist vélhjólasamtökunum Outlaws. Fórnarlambið, grískur ferðamaður, lést á síðasta ári. Rannsókn á andláti hans stendur yfir.
Engar formlegar meirihlutaviðræður eru í Kópavogi.  Fundur verður í bæjarstjórn síðdegis.  Vika er síðan meirihlutinn sprakk og þreifingar halda áfram.  
Engum varð meint af þegar eldur kom upp í kjallara veitingastaðar á horni Skólavörðustígs og Óðinsgötu í nótt. Tveir íbúar á efri hæð hússins yfirgáfu íbúð sína. Slökkvistarf gekk greiðlega. 
Nýjar upplýsingar sýna að milljarðamæringurinn Mitt Romney, sem keppir að því að verða  forsetaefni Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum greiðir aðeins 13 komma 9 prósent í skatt. Það er langt undir því sem allur almenningur þarf að borga.
Lántakendur ættu að eiga þess kost að greiða upp húsnæðislán sín hvenær sem er, án uppgreiðslugjalds. Það er einn af kostum danska kerfisins, segir aðstoðarframkvæmdastjóri samtaka húsnæðislánveitenda í Danmörku.
Veðurstofan varar við norðan stormi á Vestfjörðum síðdegis á morgun en um allt Vestanvert landið annað kvöld.  Búast má við snjókomu eða éljum í flestum landshlutum í dag. Mikil snjókoma var á Suður- og Vesturlandi snemma í morgun og ófærð víða.
Veðurhorfur: Suðaustan og austan tíu til átján metrar norðan og austantil á landinu og snjókoma, en heldur hægari suðlæg átt annars staðar og éljagangur. Breytileg átt, fimm til þrettán í kvöld og víða snjókoma eða él. Vaxandi norðanátt um hádegi á morgun, átján til tuttugu og þrír á Vestfjörðum síðdegis og um allt vestanvert landið annað kvöld.</description>
Hádegisfréttir 23.janúar 2012
      <description>Mikil óánægja er innan beggja ríkisstjórnarflokkanna eftir atkvæðagreiðsluna um Landsdómsmálið á Alþingi fyrir helgi. Ungliðahreyfing Samfylkingarinnar lýsir vantrausti á hendur forseta Alþingis.
Utanríkisráðherrar aðildarríkja Evrópusambandsins samþykktu olíusölubann á Íran á fundi sínum í Brussel í morgun.
Ríkissaksóknari hefur ákært einn mann fyrir rán í úra- og skartgripaversluninni Michelsen. Sá situr í gæsluvarðhaldi en vitorðsmenn hans eru frjálsir ferða sinna í Póllandi. 
Ólíkt kostnaðarmat Krabbameinsfélagsins á aðstoð til kvenna sem bera PIP brjóstapúða og Velferðarráðuneytisins hefur tafið samningagerð. Konurnar 440 bíða enn upplýsinga um skoðun og aðstoð vegna púðanna.  
Veðurstofan varar við suðaustan stormi, snjókomu og skafrenningi Sunnanlands og vestan í kvöld og nótt. Viðbúið er að færð í landshlutunum spillist. 
Sýrlandsstjórn hafnar áætlun Arababandalagsins um hvernig friði verði komið á í Sýrlandi en þar er m.a. lagt til að Assad forseti segi af sér.
Tveimur af hverjum þremur fannst áramótaskaupið gott.  Konur voru heldur ánægðari með það en karlar og stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar mun ánægðari en andstæðingar hennar. 
Nýfædd börn þurfa ekki að tilheyra sama trúfélagi og móðir þeirra samkvæmt drögum að frumvarpi sem innanríkisráðherra hyggst leggja fram á Alþingi.
Verði krafa um 10 ára biðtíma moltu látin standa vegna ótta við riðusmit, getur farið svo að flokkun lífræns úrgangs og moltugerð verði hætt í mörgum sveitarfélögum. 
Veðurhorfur: Norðaustan fimm til tíu metrar og stöku slyddu- eða snjóél norðantil, en annars víða léttskýjað. Vaxandi suðaustanátt og þykknar upp seinni partinn, átján til tuttugu og þrír og fer að snjóa sunnan- og vestanlands í kvöld og nótt. Austan tíu til fimmtán og snókoma eða él norðan- og austantil á morgun en annars sunnan fimm til þrettán og él. Hlánar við suður og austurströndina í nótt og fyrramálið.</description>
Hádegisfréttir 22.janúar 2012
      <description>Það ætti ekki að taka langan tíma fyrir þingnefnd að fjalla um tillöguna um afturkalla ákæru á hendur Geir H. Haarde. Heilmikla vinnu sé hægt að vinna á viku til tíu dögum ef málið er sett í forgang. Þetta segir þingmaður Sjálfstæðisflokksins í nefndinni. 
Konur sem eru með PIP-sílíkonpúða í brjóstum hafa ekki enn fengið boð um að koma í ómskoðun. Velferðarráðuneytið hefur ekki náð samningum við Krabbameinsfélagið um skoðunina, og hefur það tafið málið.
Stórsigur Newt Gingrich í forkosningum Repúblikana í Suður-Karólínu þýðir að ný staða er komin upp í baráttunni um tilnefningu flokksins sem forsetaefni. Úrslitin eru áfall fyrir Mitt Romney.
Foreldri í Staðarhverfi í Grafarvogi gagnrýnir borgaryfirvöld fyrir að taka ekki mark á mótmælum foreldra vegna sameiningar Korpuskóla og Víkurskóla. Þetta geti skaðað skólastarf í hverfinu.
Sveitarfélagið Norðurþing skoðar nú möguleikann á jarðgöngum í gegnum Húsavíkurhöfða.
Skoðanakannanir í Finnlandi sýna að enginn fær hreinan meirihluta í forsetakosningunum í dag. Því þarf væntanlega að kjósa aftur á milli þeirra tveggja sem fá flest atkvæði í fyrri umferðinni.
Alþjóðleg skíðahátíð er haldin á skíðasvæðum um allt land og öllum börnum yngri en tólf boðið frítt í lyfturnar. 
Ísland leikur sinn fyrsta leik í milliriðli á Evrópumótinu í handbolta í Serbíu í dag og Grétar Rafn Steinsson skoraði í 3-1 sigri Bolton á Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld.</description>
Hádegisfréttir 21.janúar 2012
      <description>Forsætisráðherra segist ekki vita hvort niðurstaða Alþingis hafi áhrif á stjórnarsamstarfið. Meirihluti Alþingis hafnaði í gær að vísa frá tillögu um að afturkalla ákæru á hendur Geir H. Haarde. Stjórnarflokkarnir klofnuðu í afstöðu sinni og mikill titringur er innan þeirra með niðurstöðuna.
Formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis segist skilja að hraða þurfi meðferð tillögunnar hjá nefndinni. Engin tímamörk hafa verið ákveðin. Málflutningur fyrir landsdómi hefst 5. mars. 
Sólarhrings útgöngubann er í Kano í Nígeríu eftir að tugir létu lífið í sprengjutilræðum í borginni í gærkvöld. Samtök íslamskra öfgamanna segjast hafa verið að verki.
Oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi segir það athyglisvert að  Næstbesti Flokkurinn og Listi Kópavogsbúa séu í meirihlutaviðræðum við Sjálfstæðisflokkinn, sem þeir villu fella í síðustu kosningum.
Það býður hættunni heim að Umboðsmaður skuldara sendi öllum kröfuhöfum ítarlegar persónuupplýsingar um skuldir einstaklinga, segir þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Allt stefnir í æsispennandi baráttu á milli milli Newt Gingrich og Mitt Romney í forkosningum Repúblikana í Suður-Karólínu. 
Sigur Króatíu gegn Noregi tryggði Íslandi sæti í milliriðli á Evrópumótinu í handbolta, þrátt fyrir tveggja mark tap gegn Slóvenum. Aron Pálmarsson og Guðjón Valur Sigurðsson segja augljóst að Slóvenía hafi gefið Íslandi tvö mörk undir lok leiksins.</description>
Hádegisfréttir 20.janúar 2012
      <description>Mikill þungi og tilfinningar eru í umræðum á Alþingi um tillögu formanns Sjálfstæðisflokksins um afturköllun ákæru á hendur Geir Haarde. Þingmaður Samfylkingarinnar segir ekkert efnislega hafa breyst í málinu sem réttlæti tillöguna. Ákæran er ranglæti en ekki réttlæti segir formaður Sjálfstæðisflokksins. 
Aðeins eitt fyrirtæki af þeim 90 sem keyptu iðnaðarsalt af Ölgerðinni hefur upplýst talsmann neytenda,  um í hvaða vörur saltið var notað. Frestur til að skila þessum upplýsingum rennur út í dag.
Landlæknir segir að það veki upp áleitnar siðferðislegar spurningar að læknir flytji inn brjóstapúða sem hann noti í daglegu starfi sínu. Skattrannsóknarstjóri hefur fengið ábendingar frá velferðarráðuneyti um hugsanleg skattsvik lýtalækna.
Bæjarfulltrúi Vinstri grænna í Kópavogi útilokar ekki samstarf vinstri flokkanna við Sjálfstæðisflokkinn, -þótt það sé tæplega óskastaða fyrir neinn.  Formlegar viðræður ekki hafnar um myndun nýs meirihluta. 
Veður og færð versnar á Suður- og Vesturlandi, snjókoma, skafrenningur og hálka. 
Barnaníðsmálið í Vestmannaeyjum er þriðja kynferðisbrotamálið þar sem Hæstiréttur dæmir ofbelsimanninn í átta ára fangelsi. Saksóknarinn í málinu er sáttur við dóminn, og telur hann jafnvel þyngri en dómafordæmi Hæstaréttar segi til um.
Skodýraeitrið DDT hefur haft margþætt áhrif á lífríkið við Úlfljótsvatn þegar því var dreift þar í miklu magni fyrir rúmri hálfri öld að sögn umhverrisefnafræðings. Áhrifin hafi ekki einskorðast við mýflugur. 
Kristján Valur Ingólfsson, sem gefur kost á sér til embættis biskups, vonast eftir líflegum umræðum um Þjóðkirkjuna í aðdraganda biskupskjörsins í vor. Hann telur brýnt að endurskoða lagaumhverfi kirkjunnar, einkum ef hennar verður ekki getið í nýrri stjórnarskrá.
Veðurhorfur: Gengur í austan átta til þrettán metrar á sekúndu með snjókomu, en hægari og úrkomulítið á Norður- og Austur-landi fram eftir degi. Norðan átta til þrettán í nótt og á morgun og él, en léttir til Sunnan-lands. Sums staðar frostlaust við sjávarsíðuna, en frost annars núll til fimm stig.</description>
Hádegisfréttir 19.janúar 2012
      <description>Forsætisráðherra treystir þjóðinni til þess að meta samninga um aðild að Evrópusambandinu þegar þeir liggja fyrir. Þingmaður Framsóknar efast um að þjóðin treysti ríkisstjórninni fyrir samningaferlinu. Meirihluti þjóðarinnar er andvígur aðild í nýrri könnun.
Óttast er að mikið umhverfisslys sé í uppsiglingu, renni olía úr flaki skemmtiferðaskipsins "Concordia" sem strandaði við eyjuna Giglio undan strönd Toscana á Ítalíu.
Norski olíuráðherrann vill láta bjóða út leitarsvæði við Jan Mayen á næsta ári. Hann segir að áhugi á svæðinu hafi ekki minnkað við að miklar olíulindir hafi fundist mun norðar á norska landgrunninu.
Stjórnarformaður Lífeyrissjóðs Verslunarmanna segir að ríkið eigi helst ekki að eiga meira en þriðjungshlut í Landsbankanum, ella dragi það úr áhuga mögulegra fjárfesta. Sjóðurinn vill kaupa í bankanum.
Veðurhorfur: Norðvestan tíu til átján metrar norðaustan og austanlands, en þrír til tíu annars staðar. Lægir í kvöld og nótt. Víða él, en úrkomulaust að mestu sunnantil á landinu. Austan og norðaustan fimm til tíu á morgun, en vestan strekkingur allra syðst um og eftir hádegi. Dálítil él, en snjókoma með köflum sunnanlands. Frost að sjö stigum, mildast syðst.</description>
Hádegisfréttir 18.janúar 2012
      <description>Spenna ríkir innan þingflokka stjórnarflokkanna um að taka tillögu um að afturkalla ákæru á hendur Geir Haarde af dagskrá þingsins. Nái sú tillaga ekki fram mun saksóknarnefnd Alþingis að öllum líkindum fjalla um hana að lokinni fyrri umræðu. 
Þrjú stéttarfélög á landsbyggðinni hvetja til þess að kjarasamningum verði sagt upp á föstudaginn. Í ályktun eins þeirra er fullyrt að stéttarfélög geti ekki lengur treyst yfirlýsingum ríkisstjórnarinnar. 
Miklar þreifingar eru á milli bæjarfulltrúa í Kópavogi um myndun nýs meirihluta. Engar formlegar viðræður eru þó hafnar, enda staðan afar flókin. 
Versnandi færð er á Suðurlandi en stormi er spáð fram eftir degi.  Óveður og blindhríð er á Hellisheiði og hafa ökumenn lent í vandræðum. 
Rússar vöruðu í morgun við því að stríð gegn Íran myndi hafa mjög alvarlegar afleiðingar um öll Mið-Austurlönd.
Norska lögreglan segist vita hverjir standa á bak við morðhótanir íslamista gegn norsku konungsfjölskyldunni og norsku ríkisstjórninni sem hafa verið birtar á vefnum.
Fyrirhuguð sameining unglingastiga þriggja skóla í Grafarvogi leggst illa í hóp foreldra og vilja þeir opin fund með ráðamönnum. Formaður skóla- og frístundaráðs borgarinnar hefur hins vegar hafnað þeirri beiðni.
Veðurhorfur: Norðan og norðvestan þrettán til tuttugu og þrír metrar og slydda eða snjókoma, en vestan tuttugu og þrír til tuttugu og átta með suðurströndinni fram eftir degi. Mun hægari norðvestantil. Snjókoma eða slydda en síðar él. Dregur úr vindi sunnan og vestanlands með kvöldinu. Norðvestan þrettán til tuttugu norðaustantil á morgun, en annars víða átta til fimmtán. Hiti um og undir frostmarki.</description>
Hádegisfréttir 17.janúar 2012
      <description>Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra styður tillögu um að afturkalla ákæru á hendur Geir Haarde fyrir landsdómi. 
Lagt verður til á Alþingi á föstudag að tillaga um að ákæra gegn Geir Haarde verði dregin til baka nái ekki fram að ganga. Verið er að smíða rökstudda dagskrártillögu um að málið gangi ekki til nefndar að lokinni umræðu.
Talsmaður neytenda ætlar í dag að krefja þau fyrirtæki sem keyptu iðnaðarsalt af Ölgerðinni um upplýsingar um í hvaða vörur saltið var notað. Geri þau það ekki, gætu þau átt á hættu að verða dregin fyrir dómstóla.
Talið er að um 25 þúsund lítrar af bensíni hafi lekið út þegar olíuflutningabíll fór útaf veginum í Hestfirði í sunnanverðu Ísafjarðardjúpi í gærkvöldi. Mikil sprengihætta skapaðist og var vegurinn lokaður fram eftir morgni.
Utanríkisráðherra Noregs segir að ekki komi til greina að segja samningum um Evrópska efnahagssvæðið upp. Hörð gagnrýni er á samninginn í nýrri skýrslu sem norska ríkisstjórnin fær afhenta í dag.
Áttatíu prósent erlendra ferðamanna telja líklegt að þeir komi aftur til Íslands, samkvæmt stórri könnun sem gerð var fyrir Ferðamálastofu. Náttúran hefur mikið aðdráttarafl og það minnisstæðasta frá ferðunum tengist henni.
Uppsöfnuð þörf gæti verið ein af skýringum aukinnar einkaneyslu, segir hagfræðingur. Einhverjir hafi beðið eftir að endurnýja til dæmis þvottavélina. Athygli vekur að greiðslukort eru meira notuð í útlöndum en á undanförnum árum.
Veðurhorfur: Suðlæg átt, fimm til þrettán metrar og úrkomulítið. Vaxandi austanátt með slyddu eða rigningu sunnanlands í kvöld, en snjókomu á Austurlandi. Hiti yfirleitt að fimm stigum. Norðvestan og vestan þrettán til tuttugu á morgun, en tuttugu og þrír til tuttugu og átta við suður og suðausturströndina. Snjókoma eða él og kólnandi veður.</description>
Hádegisfréttir 16.janúar 2012
      <description>Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segir ljóst að margir hafi brugðist í salt-málinu, bæði fyrirtæki og stofnanir. Mjólkursamsalan hefur innkallað fimm vörutegundir sem í er iðnaðarsalt. 
Iðnaðarsaltið frá AkzoNobel er hættulaust til neyslu, að sögn sölustjóra fyrirtækisins. Helsti munurinn á því og matarsalti er sá, að það er í mörgum tilvikum geymt utandyra.
Steingrímur J Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segist ætla að hamast eins og hann getur næstu vikur til að koma í gegn breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Vinna er að hefjast í ráðuneytinu við nýtt frumvarp um breytingarnar.
Oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi segir uppsögn bæjarstjórans ekki snúast um pólitískt valdabrölt sitt og að samkomulag meirihlutans um ópólitískan bæjarstjóra standi enn. Ekki fæst uppgefið hvers vegna bæjarstjóranum var sagt upp.
Forsætisnefnd Alþingis hefur hafnað beiðni samgöngunefndar þingsins um að gerð verði ný úttekt á kostnaði við Vaðlaheiðargöng. Formaður samgöngunefndar segir mörgum spurningum ósvarað varðandi verkefnið. 
Sex hafa fundist látnir í risafarþegaskipinu sem steytti á skeri uppi við landssteina í Toskana á Ítalíu á föstudag. Enn er fjórtán saknað. Orsök strandsins er talin röð mistaka skipstjóra skipsins og áhafnar þess.
Auknar öryggisráðstafanir hafa verið gerðar í Bangkok höfuðborg Taílands. Taílenska lögreglan hefur ákært líbanskan mann sem skipulagði hryðjuverkaárásir í borginni.
Björgvin Páll Gústavsson markvörður íslenska landsliðsins í handbolta hefur náð sér af veikindum og verður í markinu gegn Króötum í kvöld.
Veðurhorfur: Sunnan- og suðaustanátt, víða átta til þrettán metrar en þrettán til átján við suðvesturströndina síðdegis. Úrkomulítið á norður og norðausturlandi, annars rigning eða slydda með köflum. Suðvestan tíu til átján og skúrir eða él í nótt, hvassast vestast. Hægari vindur á morgun, en vaxandi suðaustanátt með slyddu eða rigningu suðvestantil síðdegis.</description>
Hádegisfréttir 15.janúar 2012
      <description>Formaður Neytendasamtakanna segir að upplýsa verði hvaða fyrirtæki hafi notað iðnaðarsalt til matvælaframleiðslu. Hann segir hvert hneykslismálið reka annað og spyr hvort ætlunin sé að rústa ímynd íslensks matvælaiðnaðar. Eftirlitsstofnanir kanna hvort fleiri fyrirtæki selji iðnaðarsalt til matvælafyrirtækja.
Fjörutíu er enn saknað af ítalska skemmtiferðaskipinu Costa Concordia sem steytti á skeri undan vesturströnd landsins í fyrrakvöld. Fólk hefur fundist á lífi í skipinu undanfarnar klukkustundir.
 Assad Sýrlandsforseti hét í morgun að gefa öllum upp sakir sem tekið hafa þátt í mótmælum gegn honum undanfarin misseri. Þrýstingur á sýrlensk stjórnvöld fer stöðugt vaxandi. 
Rúmlega fimmhundruð þúsund manns fórum um Héðinsfjarðargöng í fyrra. Umferð um göngin er um tíu prósent meiri en bjartsýnustu spár Vegagerðarinnar gerðu ráð fyrir.
Þúsundir hylltu Margréti Þórhildi Danadrottningu við Amalíuborgarhöll í Kaupmannahöfn í morgun. Í dag eru fjörutíu ár liðin frá krýningu hennar.
Contraband, kvikmynd Baltasars Kormáks, er aðsóknarmesta kvikmyndin vestahafs þessa helgina. Leiksjórinn segir viðtökurnar framar björtustu vonum. 
Vesturport frumsýndi leikritið Hamskiptin eftir Franz Kafka í þjóðleikhúsinu  í Osló í gær. Þar fara íslensku leikararnir Gísli Örn Garðarsson og Ingvar E. Sigurðsson með tvö stærstu hlutverkin á norsku. 
Framkvæmdir við fyrsta uppblásna íþróttahús landsins eru að hefjast í Hveragerði. Undirstöðurnar verða reistar í vetur og húsið blásið upp í sumar.</description>
Hádegisfréttir 14.janúar 2012
      <description>Leiðtogar Evrópusambandsins gagnrýna harðlega ákvörðun matsfyrirtækisins Standard og Poor's um að lækka lánshæfi níu ríkja evrusvæðisins, þar á meðal Frakklands.
Útlit er fyrir að loðnukvótinn  verði að minnsta kosti tvöfaldaður í ljósi nýjustu mælinga. Útflutningsverðmætið gæti orðið á milli 20 og 30 milljarðar.
Engar umræður um bótaskerðingu öryrkja hafa farið fram á fundum samráðshóps um endurskoðun almannatryggingakerfisins. Þetta segir formaður hópsins. Hann furðar sig úrsögn öryrkja úr nefndinni
Að minnsta kosti þrír fórust og hátt í þrjátíu slösuðust þegar skemmtiferðaskip með fjögur þúsund manns innanborðs strandaði skammt undan vesturströnd Ítalíu í gærkvöld. 
Persónuvernd skoðar nú hvort fyrirtækið Vörslusvipting fari að lögum um meðferð persónuupplýsinga. Meðal annars er til skoðunar gagnagrunnur fyrirtækisins.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur verið kallað út sjö sinnum í morgun vegna vatnsleka í húsum. Asahláka er víða á landinu og hált á vegum.
Íslenska karlalandsliðið í handknattleik lagði í morgun af stað á Evrópumótið í Serbíu. Liðið vann Finnland með 18 marka mun í æfingaleik í Laugardalshöll í gærkvöld.</description>
Hádegisfréttir 13.janúar 2012
      <description>Kaupmáttur barnabóta hefur rýrnað um þrjátíu prósent síðastliðin fjögur ár, hjá hjónum sem eru á lágmarkslaunum og eiga tvö börn. Hagfræðingur BSRB furðar sig á áhugaleysi stjórnmálamanna á málaflokknum.
Velferðarráðuneytið ætlar að óska eftir því að fjármálaráðuneytið kanni skattamál einkarekinna skurðstofa, vegna gruns um skattsvik í tengslum við brjóstastækkanir.
Fjármálaeftirlitið er sakað um vanrækslu og að sinna ekki kvörtunum vegna eftirlitsskyldra aðila. Kvartað hefur verið til Umboðsmanns Alþingis.
Erfið færð er víða um land vegna hálku og asahláku. Hundruð vatnstjóna voru tilkynnt tryggingafélögunum síðast er hlánaði og eru húseigendur því hvattir til að gera viðeigandi ráðstafanir. Þeir bera oftast sjálfir skaðann.  
Efnahags- og viðskiptaráðherra segir að launamál sem seðlabankastjóri hefur höfðað gegn Seðlabankanum hafi ekki áhrif á stöðu hans hjá bankanum. Það sé einfaldlega réttur hans að láta leysa úr ágreiningi fyrir dómstólum.
Íransstjórn hefur samþykkt að leyfa eftirlitsmönnum Alþjóða kjarnorkustofnunarinnar að koma til Írans.
Stóraukin skattbyrði sligar reksturinn segir framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, sem sér fram á miklar verðhækkanir og færri ferðir.
Ein pylsa eða tvær ræmur af beikoni á dag auka hættuna á bris-krabbameini. Þetta sýna niðurstöður nýrrar rannsókna.
Veðurstofan spáir sunnanátt, víða tíu til átján metrum, en að hvassara verði í vindstrengjum við fjöll norðvestantil á landinu. Rigning eða súld, en úrkomulítið norðaustantil síðdegis. Lægir vestast í kvöld. Þriggja til tíu siga hiti.</description>
Hádegisfréttir 12.janúar 2012
      <description>Jón Ásgeir Jóhannesson kom að fimmtán milljarða króna kúluláni Glitnis til Baugs árið 2007.  Hann var þá forstjóri Baugs og stjórnarformaður FL-Group, ráðandi hluthafa Glitnis. Þetta er mat slitastjórnar bankans sem krefur Jón Ásgeir, Lárus Welding og alla fyrrverandi stjórn bankans um sex og hálfan milljarð króna í skaðabætur vegna málsins.
Ekki er ástæða til að láta fjarlægja alla PIP-sílíkonpúða úr íslenskum konum. Þetta segir velferðarráðherra.
Framkvæmdastjóri FÍB segir að skýrslur um Vaðlaheiðargöng leiði í ljós efasemdir um að göngin standi undir sér. Hann spyr hvort rétt sé að Húsvíkingar borgi fyrir að aka til Akureyrar um ein göng, en Siglfirðingar sem fari um þrenn, þurfi ekkert að borga.
Stjórnvöld í Íran fara fram á að  Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmi morðið á írönskum kjarnorkuvísindamanni í Teheran í gær.
Bandaríski herinn stendur frammi fyrir nýju hneykslismáli.  Birt hefur verið myndskeið, sem sýnir bandaríska hermenn svívirða lík Afgana sem þeir höfðu drepið.
Veðurhorfur: Yfirleitt hægir vindar og bjartviðri í dag. Gengur í suðaustan þrettán til tuttugu metra með snjókomu eða slyddu sunnan og vestanlands í kvöld en fimmtán til tuttugu og þrír þar og rigning í nótt. Sunnan og suðvestan þrettán til tuttugu og væta með köflum á morgun. Talsvert frost í dag, en hlánar í nótt, og hiti víða tvö til sjö stig á morgun.</description>
Hádegisfréttir 11.janúar 2012
      <description>Tugmilljóna tap varð hjá járnblendiverksmiðju Elkem og álveri Norðuráls á Grundartanga vegna rafmagnstruflana hjá Landsneti í gærkvöldi og nótt.
Talsvert tjón varð vegna elds, ísingar og seltu í spennistöð Landsnets á Brennimel í Hvalfirði í nótt. Rafmagn fór af nánast öllu Vesturlandi um skeið í gærkvöld. 
Íranskur kjarnorkuvísindamaður var myrtur og tveir aðrir særðir í sprengjuárás í Teheran í morgun. Þetta er fjórða morðið á írönskum kjarnorkuvísindamanni á innan við ári. Íranar saka ísraelsku leyniþjónustuna Mossad um morðin.
Vafningsmálið svokallaða, sem þingfest var fyrir Héraðsdómi í gær, varðar gríðarlegar fjárhæðir. Upphæð lánveitingarinnar sem ákært er fyrir, dygði til að byggja Landeyjahöfn - tvisvar. 
Innanríkisráðherra vonast til þess að samkomulag náist fyrir vorið um sameiningu Álftaness og Garðabæjar. Stærstu ágreiningsefnin hafi verið útkljáð.
Svefneyjar á Breiðafirði eru til sölu. Eyjarnar eru ein sögufrægasta og einangraðasta bújörð landsins. 
Reykjavíkurborg hefur ákveðið að bakka með ákvörðun sína um að innheimta fæðisgjald af þroskahömluðum starfsmönnum á Bjarkarási og Lækjarási. 
Snorri Steinn Guðjónsson verður með íslenska landsliðinu á Evrópumótinu í handbolta sem hefst í Serbíu um helgina. 
Veðurhorfur: Vestan og norðvestan þrír til átta metrar, en tíu til fimmtán á annesjum norðaustantil. Skýjað með köflum og dálítil él með norður og vesturströndinni. Víða hægur vindur og bjartviðri á morgun. Frost 0 til 10 stig, minnst syðst.</description>
Hádegisfréttir 10.janúar 2012
      <description>Allar helstu leiðir á Vesturlandi og Vestfjörðum eru ófærar vegna veðurs og ófærðar.  Hellisheiði er lokuð og er mikil ófærð víða á Suður- og Norðurlandi. Inanlandsflug liggur niðri.  Spáð er áframhaldandi vestanátt og leiðindum á vestanverðu landinu fram á kvöld. 
Mjög slæmt veður var á Hellisheiði í gærkvöldi þegar aðstoða þurfti fólk í meira en tuttugu bílum.
Forstjóri Landspítalans segir að staða Jens Kjartanssonar lýtalæknis, sem er yfirlæknir á Landspítalanum, verði metin þegar niðurstaða heilbrigðisyfirvalda liggur fyrir um gölluðu brjóstapúðana.
Frakkar og Bandaríkjamenn fordæma Írana, sem eru byrjaðir að auðga úran í nýrri leynilegri neðanjarðarkjarnorkustöð.
Aukin skattbyrði hefur eyðilagt afkomu Flugfélags Íslands segir fjármálastjóri Icelandair Group. Fjármálaráðherra ver skattahækkanir og segir þær nauðsynlegar til að tryggja velferð eftir hrun.
Alþingi hefur fullt vald til að afturkalla málshöfðun á hendur Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, að áliti prófessors í lagadeild Háskóla Íslands. 
Unnendur blóðslettuhryllings þurfa að beita ímyndunaraflinu á Axlar-Birni - nýrri leikgerð Vesturports sem frumsýnd verður á morgun. Gerviblóð er lítið notað í verkinu - þótt morðin séu átján. 
Enn varar Veðurstofan við stormi, vestan og suðvestan átján til tuttugu og fimm metrum og víða éljum eða skafrenningi. Hægari verður hann austanlands og þar yfirleitt úrkomulaust. Lægir í nótt. Á morgun verða norðvestan átta til fimmtán metrar á norðausturhorninu, annars fremur hæg vestanátt. Frost 0 til 8 stig.</description>
Hádegisfréttir 09.janúar 2012
      <description>Fjármálaráðherra verður að sannfæra fjárlaganefnd Alþingis um að gerð Vaðlaheiðarganga standi undir sér, segir formaður nefndarinnar. Svört skýrsla um framkvæmdina verður tekin fyrir í báðum nefndum þingsins sem fjalla um verkefnið. 
Um sjötíu manns leituðu á slysadeild Landspítalans, eftir að hafa dottið í hálku um helgina. Reykjavíkurborg segir að ástæða þess að götur og gangstéttar voru ekki saltaðar eða sandbornar í gær, hafi ekki verið til að spara fé heldur hafi skynsemin ráðið för. 
Stjórnsýslufræðingur segir það undarleg vinnubrögð hjá stjórn Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar að láta duga upplýsingar frá Þorvaldi Lúðvík Sigurjónssyni sjálfum um stöðu hans, í rannsókn sérstaks saksóknara. 
Flutningabíll með á sjöunda þúsund kjúklinga, fór á hliðina á sunnanverðri Holtarvörðuheiði í nótt. Þeir voru fluttir í aðra bíla, sem fóru með þá í sláturhús. 
Ríflega 15 þúsund manns nýttu sér átakið "Allir vinna" á árinu sem leið og fengu um tveggja milljarða króna virðisaukaskatt endurgreiddan af verklegum framkvæmdum.
Leiðtogar Frakklands og Þýskalands ætla að hittast á að minnsta kosti tíu daga fresti á næstunni vegna slæmrar stöðu evrunnar. Þeir eru ósammála um hvaða leiðir skuli fara til bjargar henni.
Loðnuveiðin glæddist mikið um helgina og verið er að bræða og frysta loðnu í landi. Flotinn eltir loðnuna nú suður með Austfjörðum.
Veðurstofan varar við stormi, meira en tuttugu metrum á landinu. Annars er spáð hvassri suðvestanátt og éljum, en að þurrt verði austanlands. Hægari um tíma síðdegis og slydda eða snjókoma suðvestantil, en rigning suðaustanlands. Vestan og suðvestan fimmtán til tuttugu og fimm og snjókoma eða él seint í kvöld. Hiti um frostmark.</description>
Hádegisfréttir 08.janúar 2012
      <description>Erfið færð er víða um land, hálka og óveður. Vegagerðin varar fólk við að vera á ferðinni þar sem saman fer hvass vindur og svell á vegum. Íbúar í Reykjavík kvarta yfir slæmri færð í húsagötum og á göngustígum, en hvorki salt né sandur verða borin á í dag. 
Eigandi NASA við Austurvöll segir að tónleikastaðnum verði lokað í sumar vegna ítrekaðra vanskila leigutaka. Hann segir engan grundvöll fyrir rekstri staðarins. Óvíst sé hins vegar hvort húsið verði rifið.
Eftirlitssveitir Arababandalagsins í Sýrlandi þykja lítið sem ekkert gagn hafa gert. Utanríkisráðherrar bandalagsins koma til neyðarfundar í dag til að ræða næstu skref
Formaður Tannlæknafélagsins segir af og frá að tannlæknar myndu nýta auknar endurgreiðslur til barna til að hækka gjaldskrár. Ótti ríkisins við að aukið fjármagn skili sér ekki til barna, sé óþarfur. 
Óttast er að enn meiri olía leki úr flutningaskipinu Rena sem setið hefur fast á skeri við Nýja Sjáland frá því í byrjun október. Skipið liðaðist í sundur í óveðri í nótt.
Leikritið Galdra Loftur eftir Jóhann Sigurjónsson verður flutt í Útvarpsleikhúsinu á Rás eitt í dag. Upptakan er meira en sextíu ára gömul
100 ár eru í dag frá fæðingardegi Sigurðar Þórarinssonar jarðfræðings, eins ástsælasta vísindamanns þjóðarinnar á síðustu öld.
Íslenska karlalandsliðið í handknattleik getur tryggt sér sigur á fjögurra landa móti í Danmörku með sigri gegn Dönum í úrslitaleik í dag.
Veðurhorfur: Hvöss suðaustanátt með rigningu eða slyddu. Lægir talsvert í dag, fyrst suðvestanlands. Suðvestan tíu til tuttugu metrar í kvöld, hvassast og skúrir eða slydduél vestantil og þurrt austanlands. Sunnan tíu til fimmtán eftir hádegi á morgun og samfelld rigning eða slydda suðaustantil. Hiti eitt til átta stig í dag en víða vægt frost inn til landsins á morgun.</description>
Hádegisfréttir 07.janúar 2012
      <description>Fjölmargir leituðu á slysadeild Landspítalans vegna hálkuslysa í nótt og morgun. Fólk beið á setustofum og göngum eftir aðhlynningu að sögn læknis á bæklunardeild. Hált eða flughált er um allt land. 
Ný svört skýrsla um Vaðlaheiðargöng staðfestir efasemdir um framkvæmdina. Þetta segir formaður Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis. Mikilvægt sé að þingmenn og ráðherrar komi heiðarlega fram í málinu.
Velferðarráðuneytið skoðar nú hver sé ábyrgð innflytjenda og læknis, sem notaði PIP brjóstafyllingar. Ráðherra segir að konum sem beri fyllingarnar verði boðið eftirlit á kostnað ríkisins. 
Liðsmenn íslamskra hryðjuverkasamtaka í Nígeríu háðu blóðuga bardaga við stjórnahermenn í alla nótt. Ekki er vitað hversu margir féllu. Minnst tuttugu kristnir menn létu lífið í hryðjuverkaárásum samtakanna í gærkvöld.
Ekki er unnt að láta fólk vita ef gallar koma upp í lækningatækjum sem grædd hafa verið í líkama þeirra.  Engin heldur utan um upplýsingar um fólk sem fengið hefur slík tæki.
Rafbókavæðing íslenskra grunnskóla hefst í næstu viku, þegar allir nemendur í níunda bekk Vogaskóla fá gefins Kindle rafbækur. Þær verða reyndar í íslenskukennslu næstu mánuði. 
Formaður Fuglaverndarfélags Íslands vill að allir sjófuglar landsins verði friðaðir, ekki bara fimm tegundir eins og starfshópur umhverfisráðherra hefur lagt til. Þá segir hann að Vestmanneyingar geti borðað reyktan kjúkling eða kjöt á Þjóðhátíð í stað lunda.
Leikmaður Skautafélags Akureyrar þurfti að fara á sjúkrahús og láta sauma níu spor í andliti í miðjum leik gegn Skautafélagi Reykjavíkur á Íslandsmótinu í íshokkí í gærkvöld. Hann kom aftur inn á svellið og skoraði sigurmark leiksins í framlengingu. 
Veðurhorfur: Verðustofan býst við stormi á höfuðborgarsvæðinu. Vestan átta til þrettán metrar syðst og en norðaustan fimm til tíu norðanlands. Suðaustan fimmtán til tuttugu og þrír og rigning eða slydda sunnan og vestanlands seint í kvöld og nótt en þrettán til tuttugu  og slydda norðaustantil um tíma í fyrramálið. Annars sunnan og suðvestan fimm til þrettán og skúrir eða slydduél á morgun. Hiti að fimm stigum, vægt frost í innsveitum.</description>
Hádegisfréttir 6.janúar 2012
      <description>Hundrað og tuttugu ára sögu Sparisjóðs Svarfdæla er að ljúka. Landsbankinn kaupir eignir hans og rekstur. Kaupin eru háð samþykki stofnfjárhafa.
Stjórn Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar sannreyndi ekki hjá sérstökum saksóknara hvort nýráðinn framkvæmdastjóri félagsins væri einungis til aðstoðar í rannsókn á bankahruninu, eins og hann hefur sjálfur haldið fram, eða væri grunaður um refsiverða háttsemi. Stjórnin var ekki einróma um ráðninguna.  
Tíu íslenskar konur vilja fara í mál vegna brjóstaígræðslna sem kunna að innihalda varhugaverð efni. Yfirlæknir lýtalækningadeildar Landspítalans gerði flestar aðgerðirnar.
Alvarleg mistök eru talin hafa verið gerð þegar ekki var tekið mark á hótunum manns sem talinn er hafa verið fjöldamorðinginn Anders Breivik. Maðurinn hafði samband við stjórnarskrifstofur í Ósló og hótaði að drepa ungliða í verkamannaflokkum fjórum mánuðum fyrir fjöldamorðin í Útey fyrra.
Það er óskiljanlegt að Matvælastofnun hafi mánuðum saman legið á upplýsingum um kadmíummengun í áburði sem seldur var hér í fyrra, segir formaður umhverfisnefndar Alþingis. Málið sé mjög alvarlegt. 
Tugir manna létu lífið eða særðust þegar sjálfsmorðssprengjuárás var gerð í miðborg Damaskus höfuðborgar Sýrlands í morgun
Fjöldi fólks á höfuðborgarsvæðinu og víðar lenti í vandræðum vegna ófærðar í nótt og í morgun.
Víða er flughált vestanlands og það sama verður upp á tengingnum austanlands í dag. 
Stórt tundurdufl fannst á Héraðssandi í fyrradag. Menn frá sprenjgusveita landhelgisgæslunnar héldu út  á sandinn í morgun til að sprenga duflið.
Heiðar Helguson, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Queens Park Rangers, var í gærkvöld útnefndur íþróttamaður ársins 2011</description>
Hádegisfréttir 05.janúar 2012
      <description>Niðurstaða fékkst ekki á formannafundi Alþýðusambands Íslands sem lauk fyrir stundu, um það hvort forsendur kjarasamninga væru brostnar.  Ákvörðun um uppsögn samninga verður að liggja fyrir í síðasta lagi 20.  janúar.
Þingmaður Framsóknarflokksins segir að viðbrögð Matvælastofnunar við miklu kadmíum í áburði séu ámælisverð. Hann hyggst fara fram á að fulltrúar stofnunarinnar komi fyrir atvinnuveganefnd vegna málsins.
Yfir 1000 erindi bárust leigjendaaðstoð Neytendastofu í fyrra.  Flestir kvörtuðu yfir ástandi eignar eða vegna ágreinings um uppsögn leigusamninga. 
Penninn er til sölu en endurskipulagningu fyrirtækisins, sem staðið hefur yfir frá því í mars 2009, er nú lokið. Arion banki veitir þó takmarkaðar upplýsingar um stöðu fyrirtækisins að svo stöddu. 
Bæjarstjóri Fjarðabyggðar telur að ekki gangi upp að loka sjúkradeild Fjórðungssjúkrahússins í Neskaupstað í allt að 8 vikur yfir sumarið eins og lagt hefur verið til.  Dýrara sé að flytja þjónustuna annað.
Bandaríkjastjórn boðar 450 milljarða dollara niðurskurð til hermála. Hermönnum verður fækkað um tugi þúsunda.
Rannsóknir íslenskra lækna á batahorfum sjúklinga með nýrnafrumukrabbamein hafa vakið mikla athygli. Grein eftir þá birtist í virtu vísindariti 
Manchester United tapaði gærkvöld öðrum leik sínum í röð í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Kjöri íþróttamanns ársins verður lýst í kvöld í 56. sinn.
Veðurstofan spáir norðvestan kalda fram eftir degi norðaustanlands og éljum, en annars lægir víða og léttir til í dag. Frost fer niður í átta stig.  Suðaustan fimmtán til tuttugu metrar með snjókomu eða slyddu fyrst suðvestanlands upp úr miðnætti. Hlýnar og talsverð slydda, síðan rigning sunnanlands í nótt. Hiti víða frá frostmarki að fimm stigum á morgun.</description>
Hádegisfréttir 4.janúar 2012
      <description>Landgræðslan kaupir áfram áburð frá Skeljungi, þótt fyrirtækið hafi selt stofnuninni áburð með allt of háu kadmíuminnihaldi. Áburðinum var dreift í sumar á uppgræðslusvæði víða um land. Matvælastofnun taldi ekki fært að stöðva söluna. 
Skuldsettur gjaldeyrisvarasjóður Seðlabanka Íslands er ekki alvöru varasjóður að mati doktors í hagfræði. Sjóðurinn en nú stærri en flest ríki heims hafa og vaxtagreiðslur af honum eru gríðarlega háar.
Lögregla í Portland í Oregon ætlar að rannsaka hvarf Rögnu Estherar Sigurðardóttur Gavin fyrir sex áratugum. Rannsóknarlögreglumanni hefur verið falið að skoða málið.
Ný skýrsla sem norsk fangelsisyfirvöld hafa látið gera staðfestir að fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik er fullfrískur og því sakhæfur fyrir morðin sem hann framdi í júlí í sumar. 
Rúmlega þrjú þúsund og fimm hundruð fyrirtæki hafa farið á hausinn hér á landi frá bankahruni. Nýtt met var slegið í fjölda gjaldþrota á síðasta ári. 
Hreyfingin, Borgarahreyfingin, Frjálslyndi flokkurinn og fleiri eiga í viðræðum um sameiginlegt nýtt framboð í næstu Alþingiskosningum. Formaður Borgarahreyfingarinnar segir nýja stjórnarskrá, uppstokkun fiskveiðikerfisins og alvöru skjaldborg um heimilin verða sett á oddinn.
Mitt Romney vann nauman sigur á Rick Santorum þegar Repúblikanar héldu kjörfundi í Iowa í gærkvöldi til að velja forsetaframbjóðanda flokksins.
Veðurstofan spáir austan- og norðaustanátt, víða átta til þrettán metrum en hægari vindi norðaustanlands. Snjókoma um tíma syðst á landinu, annars úrkomulítið. Lægir á morgun en vaxandi suðaustanátt vestast seinnipartinn. Frost núll til tíu stig, kaldast í innsveitum.</description>
Hádegisfréttir 3.janúar 2012
      <description>Sex manns voru í lífshættu þegar snjóflóð féll í Fossdal á Barðaströnd. Tvennt fór á kaf í flóðinu sem stöðvaðist rétt áður en sexmenningarnir hefðu steypst tugi metra niður snarbratta hengju. 
Rúmur helmingur heimila í landinu á erfitt með að ná endum saman samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Fjöldi þeirra hefur nánast tvöfaldast frá hruni. 
Gjaldeyrisvaraforði Seðlabanka Íslands hefur aldrei verið eins stór og nú. Hann er hins vegar skuldsettur að fullu. Seðlabankastjóri segir mikilvægt að geta sýnt digran sjóð í þeirri óvissu sem ríkir á alþjóðamörkuðum og þegar kemur að því að afnema gjaldeyrishöftin. Forðinn sé eins og vopnabúr sem hægt sé að sýna án þessa að nota.
Íranar hótuðu í morgun árás á bandarískt flugvélamóðurskip sem fylgst hefur með flotaæfingum Írana á Hormuzsundi.
Umhverfisráðherra leggur til að fimm tegundir sjófugla verði friðaðar í fimm ár þar á meðal er lundi. 
Fjöldi skipa heldur til loðnuleitar í dag. Skipstjórinn á Vilhelm Þorsteinssyni EA er bjartsýnn á að loðna finnist í nótt norður af landinu og að óvenju gjöful loðnuvertíð geti hafist fyrir alvöru.
Landspítalinn glímir við nóróveirusýkingu, sem kallar á aukaútgjöld. Hún kostaði eina deild spítalans 25 milljónir króna fyrir þremur árum. 
Arsenal er í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir tap gegn Fulham og Miami Heat tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu í NBA-körfuboltanum í Bandaríkjunum í gærkvöld.
Veðurhorfur: Norðan og norðvestan átta til fimmtán metrar, hvassast úti við austurströndina. Víða éljagangur eða snjókoma norðantil en bjart syðra. Austan átta til þrettán og snjókoma sunnantil á morgun, en annars hægari og úrkomulítið. Frost að tíu stigum, kaldast inn til landsins.</description>
Hádegisfréttir 2.janúar 2012
      <description>Ríflega hundrað skattahækkanir á fyrirtæki og einstaklinga hafa verið innleiddar síðustu þrjú ár samkvæmt útreikningum Viðskiptaráðs Íslands. Meðal annars hefur áfengis- og tóbaksgjald hækkað um tugi prósenta síðustu ár. 
Íranar skutu nýrri gerð langdrægra flugskeyta  við flotaæfingar við Hormuz sund í morgun.Tilgangurinn er að sýna að Íranar geti hæft Ísrael og bandarískar herstöðvar verði ráðist á Íran.
Það virðist óumflýjanlegt að alþjóðleg glæpastarfsemi nái að festa rætur hér á landi segir lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins. Lögreglan hafi þó náð að tefja fyrir uppgangi glæpahópanna. 
Aldrei hafa verið jafn margir alhvítir dagar í Reykjavík og í desember. Mánuðurinn var sá kaldasti í þrjátíu ár.
Sýslumanninum í Reykjavík hefur verið falin umsjón með veitingu leyfa til ættleiðinga. Sýslumaðurinn í Búðardal óskaði eftir því í sumar að verkefnið færi frá embættinu. Formaður Íslenskrar ættleiðingar segir að sýslumenn ættu ekki að hafa umsjón með þessum málaflokki.  
Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson hefur verið lánaður til Swansea í ensku úrvalsdeildinni og spilar með liðinu út leiktíðina. 
Veðurhorfur: Norðan fimm til tíu metrar og él á norðanverðu landinu, en léttskýjað syðra. Norðvestan átta til fimmtán á morgun, hvassast á Vestfjörðum. Víða éljagangur eða snjókoma, en bjart með köflum syðra. Frost eitt til tíu stig, kaldast inn til landsins.</description>
Hádegisfréttir 1.janúar 2012
      <itunes:duration>19:55</itunes:duration>
      <itunes:author>Aðalbjörn Sigurðsson</itunes:author>
      <description>Biskup Íslands segir að landsdómsákæran gegn einum manni sé þjóðarsmán og vottur blindgötu hefndar og haturs. Þetta sagði hann í síðustu nýjársprédikun sinni sem biskup í Dómkirkjunni nú fyrir hádegi. 
Framkvæmdastjóra LÍÚ líst illa á hugmyndir um að sjávarútvegsmál færist um of til umhverfis og auðlindaráðuneytisins. Glapræði væri að flytja rannsóknir og auðlindaráðgjöf frá sjávarútvegsráðuneytinu.
Nýársnóttin var með rólegra móti um allt land. Skemmtanahald fór að mestu vel fram; þó var ráðist á ungan mann í miðbæ Akureyrar snemma í morgun. Sjö ára drengur brenndist í andliti á Hvolsvelli í gærkvöld - en meiðsl hans virðast ekki alvarleg. 
Forsætisráðherra hefur falið hópi vísindamanna og sérfræðinga að kortlegga stöðu Íslands og meta hvar sóknarfæri landsins liggja. 
Framkvæmdastjóri Landsbjargar segir að meira hafi verið um það í ár en áður að fólk kæmi á flugelda-sölustaði björgunarsveitanna og gæfi fé án þess að vilja nokkuð í staðinn. 
Jarðarbúar hafa undanfarinn sólarhring fagnað áramótunum, hver með sínum hætti. Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna voru þó svartsýnir í áramótaávörpum sínum. 
Arsenal er eina toppliðið sem lauk gamla árinu með sigri í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, en bæði Manchester United og Chelsea töpuðu óvænt á heimavelli.</description>
Hádegisfréttir 31.desember 2011
      <description>Ný ríkisstjórn tók við á ríkisráðsfundi á Bessastöðum í morgun. Forsætisráðherra segir breytingar á ríkisstjórn styrkja hana. Fráfarandi efnahags- og viðskiptaráðherra segir þær setja efnahagslífið í uppnám og auka óvissu. Konur eru í meirihluta í ríkisstjórn Íslands í fyrsta sinn í sögunni.
Ríkisstjórnin er í raun minnihlutastjórn sem þarf að semja um öll mál, segir varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Þingmaður Hreyfingarinnar segir sinn flokk eingöngu styðja stjórnina ef ráðist verði í tiltekin mál.
Ágætisveður verður í kvöld um allt land. Allra best skoteldaveður verður á Norðausturlandi. Það borgar sig hins vegar að ganga hægt um gleðinnar dyr, því flughált er víða um landi.
Fuglaflensa greindist í manni í Kína í morgun. Sjúklingurinn lést skömmu eftir greiningu.
Talið er að gjafakort hafi verið seld fyrir hundruð milljóna króna fyrir jólin. Margir nýta sér kortin, til þess að kaupa jólamatinn og aðrir ætla að sæta lagi og gera góð kaup á útsölum. 
Verð hlutabréfa lækkaði víðast hvar á árinu sem er að líða. Hlutabréfavísitölur verst settu Evrópuríkjanna lækkuðu um tugi prósenta.
Talið er að um 2000 manns komi að flugeldasölu björgunarsveitanna, sem ná í hámarki um land allt í dag.</description>
Hádegisfréttir 30.desember 2011
      <description>Stefnt er að því að ráðuneytum verði fækkað úr tíu í átta. Þar með fækkar ráðherrum einnig. Þingflokkar stjórnarflokkanna funda í kvöld og ríkisráðsfundur er boðaður snemma í fyrramálið.
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna er sakaður um valdníðslu í ályktun flokkssystkina sinna í svæðisfélögum í Húnavatnssýslu og Skagafirði. 
Tvö trippi fundust í gær innikróuð í fjalllendinu austan Eyjafjarðar og illa haldnir af hungri. Björgunarsveitarmenn reyndu að koma hestunum til byggða en tókst ekki sökum fannfergis.
Áfram snjóar víða um land. Færðin kann að versna enn, þegar hlánar í kvöld.
Greiðslur Reykjavíkurborgar til dagforeldra hækka um tíu prósent um áramótin. Þrátt fyrir það eru dæmi um að dagforeldrar í borginni hækki gjaldskrá sína um allt að fjórtán prósent á komandi ári.
Grunur leikur á að roskin kona sem lést nýlega hafi verið berklaveik. Sóttvarnarlæknir segir að verið sé að rannsaka tilfellið.
Sýrlenska stjórnarandstaðan boðar fjöldamótmæli á götum og torgum helstu borga eftir föstudagsbænir í dag
Sterkar vísbendingar um tengsl mjólkurdrykkju á unglingsárum og blöðruhálskrabba síðar á ævinni er að finna í íslenskum rannsóknum.
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, staðfesti í morgun að franski framherjinn Thiery Henry muni leika með liðinu næstu tvo mánuðina.
Veðurstofan spáir austan og suðaustan tíu til átján með snjókomu sunnan- og vestanlands, en slyddu eða rigningu síðdegis. Talsvert hægari vindur fyrir norðan og austan, en hvessir og fer að snjóa seinni partinn. Snýst í suðvestan átta til fimmtán með skúrum eða slydduéljum sunnan og vestanlands í kvöld. Hlýnandi í kvöld, hiti víða frá frostmarki að fimm stigum en kólnar aftur annað kvöld.</description>
Hádegisfréttir 29.desember 2011
      <description>Björgunarsveitir hafa aðstoðað hundruð ökumanna á höfuðborgarsvæðinu í morgun eftir mikla fannkomu í nótt. Mokstur hefur gengið þokkalega og flestar aðal-götur orðnar færar.
Enn á eftir að moka fjölmargar íbúðagötur og botnlanga, sérstaklega í efri byggðum.  Ekki mun takst að ryðja allar húsagötur í Reykjavík og Hafnarfirði í dag. 
Færð er þokkaleg á þjóðvegum, en víða hálka og skafrenningur. Ófært er um Mosfellsheiði og þungfært í Ísafjarðardjúpi. 
Gámalæsingar voru sagaðar sundur þegar brotist var inn í flugeldagám á Akranesi í gær. gám fullan af flugeldum hjá Kiwanisklúbbnum Þyrli og Íþróttabandalagi Akraness í gær. Töluvert tjón segir framkvæmdastjóri félagsins. 
Nýr leiðogi , Kim Jong-un var  hylltur í Norður-Kóreu í morgun, sem æðsti leiðtogi kommúnistaflokksins, ríkisins og hersins.
Slysum við brennur hefur mjög fækkað á síðustu árum. Algengustu fórnarlömb flugeldaslysa eru ekki lengur unglingsstrákar -heldur feður þeirra.
Landsbjörg fullyrðir að flugeldar frá þeim innihaldi ekki eiturefnið HCB sem mældist í lofti í Reykjavík um síðustu áramót. 
Mannréttindasamtök gagnrýna að Mustafa al-Dabi hershöfðingi sé yfirmaður eftirlitssveita Arababandalagsins í Sýrlandi. Hann sé hægri hönd forseta Súdans  sem sé eftirlýstur fyrir stíðsglæpi og stofnandi dauðasveita sem beitt var gegn íbúum í Darfurhéraði.
Karlalið FH og kvennalið Vals urðu í gærkvöld deildarbikarmeistarar í handbolta og Kristinn Steindórsson, knattspyrnumaður úr Breiðabliki er búinn að semja við sænska b-deildarliðið Halmstad.</description>
Hádegisfréttir 28.desember 2011
      <description>Umhverfisstofnun ætlar að taka sýni úr flugeldum til að athuga hvort þeir innihaldi eiturefnið HCB.  Mælingar frá síðustu áramótum sýndu að efnið var í 900 sinnum meira en venjulega. 
Félag forstöðumanna hjá ríkisstofnunum undirbýr málshöfðun á hendur kjararáði. Telur félagið kjararáð hafa brotið gegn skyldum sínum þegar tímabundnar launalækkanir voru ekki dregnar til baka á tilsettum tíma. 
Skíðakonan Fanney Guðmundsdóttir sem var endurlífguð eftir alvarlegt skíðaslys í Noregi á aðfangadag gekkst undir aðgerð á mænu í gær sem heppnaðist afar vel. Faðir hennar er bjartsýnn á að hún fái aftur mátt í fæturna.
Stjórnvöld í Íran segjast  loka Hormuz-sundi, láti vestræn ríki verða af hótunum sínum um að  setja  hömlur  á olíuútflutning Írana.
Gantz yfirmaður ísraelska heraflans hótar að Ísraelar hefji að nýju stríð á Gaza.   Hershöfðinginn ber lof á árangur stríðsins um áramót fyrir þremur árum og  fullyrðir að nýtt stríð verði ekki umflúið.
Barnaleikritið Litla skrímslið og stóra skrímslið eftir Áslaugu Jónsdóttur verður frumsýnt í Kúlunni Þjóðleikhúsinu í dag. 
Veðurhorfur: Hæg breytileg átt og úrkomulítið. Vaxandi Suðaustan-átt suðvestan- og
vestanlands síðdegis, átta til fimmtán metrar á sekúndu undir kvöld með snjókomu eða slyddu og skafrenningi en hægari vindur norðan- og austan til og lengst af
léttskýjað. Snýst í vestan átta til fimmtán með éljagangi vestan til í fyrramálið, en
austlæg átt austantil á morgun. Él suðaustan-lands en úrkomulítið norðaustan-til. Frost núll til tíu stig, minnst við suðvestur-ströndina.</description>
Hádegisfréttir 27.desember 2011
      <description>Landsliðskona á skíðum slasaðist alvarlega við æfingar í Noregi á aðfangadag. Hún fór í aðgerð á sjúkrahúsi í Ósló í morgun.
Fjármálaráðherra svarar gagnrýni á innheimtu og eftirlit með gistináttagjaldi með því að vísa á Alþingi og þær breytingar sem þingmenn gerðu á upphaflega frumvarpinu. Samkvæmt frumvarpinu hefði gjaldið átt að skila mun hærri tekjum en nú er gert ráð fyrir.
Sendinefnd Arababandalagsins er komin til borgarinnar Homs í Sýrlandi til að fylgjast með aðgerðum stjórnarhersins gegn mótmælendum.
Á annað hundrað manns hafa komið á bráða- og göngudeild Landspítala á sólarhring yfir hátíðisdagana. Margir þeirra hafa veikst eftir neyslu á reyktum og söltuðum jólamat.  
Björgunarsveitir hafa þurft að losa tugi bíla sem sátu fastir á vegum landsins yfir hátíðirnar. Meðal annars þurfti að aðstoða einn bílstjórann þrisvar sinnum á sama sólarhringnum.
Svipaður fjöldi erlendra ferðamanna verður hér um áramótin og í fyrra, segir framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Áramótabrennur og flugeldar heilla útlendingana. 
Landsvirkjun hefur tekið fjölmynta veltilán upp á tuttugu og fjóra og hálfan milljarð íslenskra króna til þriggja ára. Þetta er fyrsti lánasamningurinn af þessu tagi sem opinbert fyrirtæki hefur gert hér á landi síðan 2008.</description>
Hádegisfréttir 26.desember 2011
      <itunes:duration>19:54</itunes:duration>
      <description>Versta óveður í manna minnum hefur í nótt gengið yfir Mið-Noreg og veldur núna usla í Norður-Svíþjóð. Nokkur hundruð þúsund manns eru án rafmagns og mikið eignatjón hefur orðið. 
Fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins segir að gagnagrunnur með hlutabréfaviðskipti hafi ekki verið kominn í notkun fyrir bankahrun og því ekki nýst til að sporna gegn markaðsmisnotkun. Forstjóri Kauphallarinnar eigi frekar að líta í eigin barm en gagnrýna eftirlitið.
Ekkert lát virðist á árásum Sýrlandsstjórnar á stjórnarandstæðinga þrátt fyrir komu eftirlitsnefndar Arabandalagsins þangað í dag. Hátt í tuttugu stjórnarandstæðingar voru skotnir til bana í morgun.
Um tuttugu konur og karlar héldu jól í neyðarskýlum fyrir heimilislausa í Reykjavík þessi jól. Starfsfólk hjálparstofnana segir að því miður sé stöðug endurnýjun í hópi vegalausra á Íslandi. 
Þungfært er víða um land og hálka og snjóþekja á vegum. Morguninn hefur þó gengið stórslysalaust fyrir sig í umferðinni.
Hlauparar í Trimmklúbbi Seltjarness reimuðu á sig hlaupaskóna í morgun en þá fór fram hið árlega kirkjuhlaup klúbbsins þar sem hlaupið er milli tólf kirkna á höfuðborgarsvæðinu. 
Veðurstofan spáir vestan tíu til fimmtán metrum á sekúndu og éljagangi eða skafrenningi, en úrkomulaust á Austan-verður landinu. Vestan þrettán til átján og snjókoma um tíma á Norðaustur-horninu í kvöld og í nótt. Dregur úr vindi og éljum á morgun, víða suðvestan þrír til átta síðdegis og dálítil él á vestur-helmingi landsins, en bjart eystra. Frost núll til tíu stig, minnst syðst.</description>
Hádegisfréttir 25.desember 2011
      <itunes:author>Arnar Páll Hauksson</itunes:author>
      <description>Kauphöllin sendi Fjármálaeftirlitinu tugi mála í aðdraganda bankahrunsins, vegna grunsemda um alvarlega markaðsmisnotkun. Forstjóri Kauphallarinnar vísar á bug gagnrýni eftirlitsins um sofandahátt, það hafi verið Fjármálaeftirlitið sem ekki hafi sinnt starfi sínu sem skyldi.
Óveður gekk yfir Austurland í gærkvöld. Stór skip losnuðu frá bryggju og ruslatunnur, vörubretti og fleira lauslegt fauk um í Neskaupsstað. Þrjátíu björgunarsveitarmenn stóðu í ströngu í bænum í nótt vegna veðursins. 
Í umbrotum og uppgjöri sem ekki sér fyrir endann á er það trúin sem tengir saman kynslóðirnar í þessu landi. Þetta sagði biskup Íslands í jólapredikun sinni í gærkvöld.
Jólin eru orðin hátíð kaupmennskunnar, sagði páfi í jólapredikun sinni í Róm. Kristnir menn ættu ekki að láta glepjast af yfirborðskenndu glysi.
Ábóti í grísku munkaklaustri er grunaður um fjárdrátt upp á um sextán milljarða króna. Hann var handtekinn í gær í umfangsmikilli lögregluaðgerð.
NBA-deildin í körfubolta vestan hafs byrjar með látum í dag þegar mörg af bestu liðum hennar mætast. Keppnistímabilið fer af stað tveimur mánuðum seinna en venjulega vegna kjaradeilna leikmanna og eigenda liðanna.</description>
Hádegisfréttir 24.desember 2011
      <description>Vonskuveðri er spá eftir hádegi á landinu öllu. Á höfuðborgarsvæðinu gæti stormur skollið á skömmu eftir hádegi.
Öllu innanlandsflugi hefur verið aflýst í dag vegna veðurs. Ekkert var flogið í morgun. 
Mótmæli eru víðsvegar í Rússlandi í dag og segja skipuleggjendur að 120 þúsund manns séu samankomin í Moskvu. meðal þáttakaenda þar er Alexei Kudrin, fyrrverandi fjármálaráðherra Rússlands.
Ekki virðist hafa kviknað á viðvörunarbjöllum Kauphallarinnar árið 2008 þegar íslensku bankarnir áttu í gríðarmiklum viðskiptum með eigin hlutabréf. Þetta er niðurstaða úr nýrri athugun Fjármálaeftirlitsins. 
Loðnuleit fer á fullan skrið eftir áramót í samvinnu Hafrannsóknarstofnunnar og sjómanna. Sjávarútvegsráðherra segist bjartsýnn á veiðarnar eftir áramót, þrátt fyrir að lítið hafi fundist í haust. 
Í Grímsey láta menn það ekki á sig fá þó að jólaskrautið fjúki af húsunum og hundslappadrífan er að sögn eyjaskeggja bara hressandi. Þar er að sögn allt tilbúið fyrir hefðbundið jólahald. 
Veðurhorfur: Gengur í norðvestan storm með snjókomu eða éljum, fyrst vestanlands. Talsvert hægari og úrkomulítið á norðaustur og austurlandi. Norðvestan tuttugu til tuttugu og átta og ofankoma þar seint í dag, en fer að lægja vestantil. Kólnandi veður. Mun hægari í nótt og léttir til á norður og austurlandi. Ákveðin vestanátt með éljum sunnan og vestantil á morgun. Frost að tíu stigum.</description>
Hádegisfréttir 23.desember 2011
      <description>Rannsókn bresku efnahagsbrotadeildarinnar á þætti Tchenguiz-bræðra í falli Kaupþings kemst líklega á skrið eftir áramót þegar gögn sem fengust við húsrannsóknir í mars verða loks aðgengileg. Lagaflækjur ytra hafa engin áhrif á Kaupþings-rannsókn Sérstaks saksóknara.
Tvær sjálfsmorðssprengjuárásir voru gerðar í höfuðborg Sýrlands í morgun. Að minnsta kosti fjörutíu létu lífið og meira en hundrað særðust. 
Formaður Bandalags háskólamanna segir ákvörðun Kjararáðs um að að taka aftur launalækkanir eðlilega leiðréttingu. Bandalagið væntir þess að leiðréttingarnar komi fram víðar í kjölfarið. 
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði segir ekki óeðlilegt að tengja saman að miklu leyti sölutekjur vegna lóða, og greiðslur á láni til Depfabankans. Lóðir Hafnarfjarðarbæjar er langstærsti hluti veðsins.
Skatan er ósköp venjulegur fiskur segir matvælafræðingur og ekki varasöm. Öðru máli gegni um hamsatólgina sem borðuð sé með skötunni.  
Tæplega þrjú þúsund jólakveðjur verða lesnar á Rás eitt í dag og er reiknað með að lesturinn standi fram yfir miðnætti. 
Spáð er vonskuveðri víða um land á morgun, aðfangadag. Búast má við að færð spillist víða.
Veðurstofan spáir vestlægri átt, víða átta til fimmtán metrum á sekúndu og éljum, en úrkomulítið á austan-verðu landinu. Frost núll til átta stig. Vaxandi sunnanátt og fer að snjóa í nótt, en síðar rigning Sunnan-til á landinu. Snýst í norðvestan fimmtán til tuttugu og þrír metrar á sekúndu með snjókomu eða éljum á morgun, fyrst á Vestan-verðu landinu. Norðvestan og vestan tuttugu til tuttugu og átta á austan-verðu landinu síðdegis, en dregur úr vindi Vestan-lands.</description>
Hádegisfréttir 22.desember 2011
      <description>Hætta er talin á að borgarastríð brjótist út að nýju í Írak eftir að sextíu og þrír  létu lífið og 185 særðust í sprengjuárásum í Baghdad í morgun.
Stjórnarformaður Orkuveitunnar segir að fljótlega verði upplýst hverjir gerðu tilboð í Perluna og fyrir hve mikið. Miklu hafi munað á hæsta tilboði og því næst hæsta.
Formaður Landssamtaka sláturleyfishafa segir að afurðarstöðvar hafi ekki hækkað verð umfram það sem bændur hafi fengið. Hækkun á dilkakjöti sé minni en á verðlagi almennt.
Líklegt er að tuttugu ár taki að koma skuldum ríkja heims í viðunandi horf, segir aðalhagfræðingur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. 
Sóttvarnarlækni berast um tvö til þrjúhundruð tilkynningar um nóró-veirutilfelli á viku. Veiran hefur valdið vandræðum á heilbirgðisstofnunum, vinnustöðum og skólum.
Landsamband smábátaeigenda gagnrýnir að gripið sé til algjörs lúðuveiðibanns þegar ekki liggur fyrir hver stærð hrygningarstofnsins er. Á annan tug báta stunda lúðuveiðar gagngert. 
Mörghundruð símtöl berast í hjálparsíma Rauða krossins yfir hátíðarnar. Sérþjálfaðir sjálfboðaliðar svara fólki sem af ýmsum ástæðum á erfitt á jólum. 
Stysti dagur ársins er í dag en vetrarsólhvörf voru í morgun og er sól farin að hækka á lofti.
Manchester-liðin, City og United unnu bæði leiki sína í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld. Allt stefnir í einvígi þessara liða um enska meistaratitilinn.
Veðurstofan spáir hægt vaxandi norðaustan átt upp úr hádegi, víða fimm til þrettán metrum síðdegis. Dálítil él verða fyrir norðan, en slydda eða rigning sunnantil. Norðan og norðvestan átta til fimmtán í kvöld og snjókoma norðan- og austan-til en él suðvestantil. Hiti frá frostmarki að fimm stigum, en frystir inn til landsins í dag.</description>
Hádegisfréttir 21.desember 2011
      <description>Norðmenn ætla að lána Alþjóðagjaldeyrissjóðnum meira en jafnvirði 1100 milljarða íslenskra króna til að styrkja Evruna.  Jens Stoltenberg forsætisráðherra bauð féð núna í morgun.
Verð á kjöti frá framleiðendum hefur hækkað um tugi prósenta á þessu ári segir framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu. Allt að fjörutíu prósenta hækkun á jólamatnum komi því ekki á óvart. 
Allir ríkjahópar innan Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna fordæma ólöglegar landtökubyggðir Ísraelsmanna á herteknu landi Palestínumanna.
Nefnd sem endurskoðar lög um Ríkisútvarpið vill breyta fjármögnun stofnunarinnar og koma í veg fyrir að ríkissjóður haldi eftir hluta útvarpsgjaldsins. Ekki verður lagt til að Ríkisútvarpið hverfi af auglýsingamarkaði.
Erfiðar fjárhagsaðstæður valda því að fleiri finna fyrir depurð og kvíða vikurnar fyrir jól. Þetta er mat geðlæknis hjá Landspítalanum.
Kínverjar brutust inn í tölvukerfi bandaríska viðskiptaráðsins og náðu upplýsingum um starfsemi ráðsins og þriggja milljóna fyrirtækja og einstaklinga.
Eggert Gunnþór Jónsson, leikmaður skoska knattspyrnuliðsins Hearts skrifaði í morgun undir þriggja og hálfs árs samning við enska úrvalsdeildarliðið Wolves.
Veðurhorfur: Fyrst viðvörun, búist er við stormi á Suður- og Vesturlandi í kvöld. Annars spáir Veðurstofan austan þrettán til átján metrum með slyddu eða snjókomu og síðar rigningu á sunnanverðu landinu. Hægari fyrir norðan og snjókomu eftir hádegi en slyddu eða rigningu um kvöldið. Hlýnandi veður.</description>
Hádegisfréttir 20.desember 2011
      <description>Ríkisstjórnin ákvað í morgun að fela utanríkisráðherra að fara með málsvörn Íslands í Icesave málinu fyrir EFTA dómstólnum. Utanríkisráðherra segir það fyrsta verk að finna erlenda lögfræðistofu með reynslu af málarekstri fyrir dómstólnum. 
Nýr meirihluti í utanríkismálanefnd vildi að efnahags- og viðskiptaráðherra yrði í forsvari í málinu.
Fyrrverandi bankastjóri Kaupþings í Lúxemborg var í morgun dæmdur til að borga þrotabúi bankans 717 milljónir króna með vöxtum. Skuldin er vegna láns til hlutafjárkaupa.
Engin heimild er til uppbyggingar af nokkru tagi á lóð Perlunnar í Öskjuhlíð. Skipulagsstjóri Reykjavíkurborgar hefur engar fyrirspurnir fengið varðandi hugmyndir þeirra sem vilja kaupa Perluna og reisa þar baðstað með fimm hæða hóteli.
Alþjóða kjarnorkustofnunin telur brýnt að kjarnorkueftirlitsmenn verði sendir til Norður-Kóreu til þess að aðstoða við að gera Kóreuskagann að kjarnorkuvopnalausu svæði.
Þeir sem klára fjögurra ára rétt sinn til atvinnuleysisbóta geta átt á hættu að missa allar bætur hafi maki þeirra of háar tekjur. Félagsráðgjafi segir að hugsa þurfi bótakerfið upp á nýtt. 
Fimm ær fundust klakabrynjaðar í Gönguskarði milli Eyjafjarðardala og Bleiksmýrardals á dögunum. Bændur úr sveitunum sakna fleiri kinda og hyggja á leitir þegar færi gefst um hátíðarnar.
Formaður Skíðasambands Íslands segir það þyngra en tárum taki að besta skíðafólk landsins skuli þurfa að hætta keppni vegna fjárhagsástæðna
Veðurhorfur: Suðvestanátt, víða tíu til fimmtán metrar og él, en heldur hægari austanlands og léttskýjað að mestu. Frost að átta stigum. Lægir í kvöld. Gengur í austan tíu til átján með slyddu eða snjókomu á morgun, fyrst sunnantil. Suðlægari og rigning um landið sunnanvert síðdegis. Hlýnandi veður.</description>
Hádegisfréttir 19.desember 2011
      <description>Á næsta ári munu um sexhundruð og sextíu manns hafa verið atvinnulausir í meira en fjögur ár og missa þá rétt sinn til atvinnuleysisbóta. Takist ekki að tryggja þeim vinnu fer stór hluti þeirra á framfærslu sveitarfélaga. 
Dauði Kim Jong-il, leiðtoga Norður-Kóreu um helgina, kann að draga úr vonum um að nýjar samningaviðræður geti hafist á næstunni um kjarnorkuafvopnum Norður-Kóreu.
Orkuveita Reykjavíkur hefur skrifað undir viljayfirlýsingu við hóp innlendra fjárfesta sem átti hæsta tilboðið í Perluna í Öskjuhlíð, upp á tæpa 1,7 milljarða.
Forseti Alþingis hafði samráð við forystumenn ríkisstjórnarinnar um þá ákvörðun að taka fyrir á þinginu tillögu um að afturkalla Landsdómsákæru á hendur Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra.
Ákærur sérstaks saksóknara á hendur Lárusi Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, verða birtar eftir hádegi í dag. 
Danska byggingavöruverslanakeðjan Bygma hefur keypt Húsasmiðjuna fyrir þrjá komma þrjá milljarða. Danirnir taka við rekstrinum um áramótin. 
Flughálka er víða á Norður- og Austurlandi. Bílstjórar lentu í vandræðum í hálku á Hólmahálsi á milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar í morgun. 
Svo virðist sem breyttur morgunverður leikskóla á Akureyri falli ekki undir skilgreiningar á morgunverði. Lýðheilsustöð hefur ekki gefið út ráðleggingar um að ávextir og grænmeti séu nægilegur morgunverður fyrir leikskólabörn.
Veðurhorfur á landinu: Suðvestan átta til fimmtán metrar. Éljagangur á vestanverðu landinu, skýjað og úrkomulítið austalands, en léttir til þar í kvöld. Heldur hvassara um landið vestanvert í nótt og í fyrramálið. Kólnandi veður, frost að sjö stigum undir kvöld, kaldast í innsveitum norðaustanlands.</description>
Hádegisfréttir 18.desember 2011
      <description>Formaður bæjarráðs Kópavogs segir afar dapurlegt ef rétt reynist að stjórn Lífeyrissjóðs Kópavogs hafi blekkt Fjármálaeftirlitið varðandi hundruð milljóna króna ólögmætar lánveitingar til bæjarins. Bæjarfulltrúar verði að eiga við sína samvisku hvort þeir sitji á meðan réttað er í máli þeirra. 
Óttast er að 53 hafi farist þegar rússneskum olíuborpalli hvolfdi og hann sökk í nótt. Verið var að draga pallinn á milli staða í aftakaveðri og talið er að öryggisreglur hafi verið brotnar.
Kristján Möller, þingmaður Samfylkingar og fyrrverandi samgögnuráðherra, styður ekki samgönguáætlun sem lögð var fyrir Alþingi. Hann gagnrýnir að stórframkvæmdir á höfuðborgarsvæðinu sem fjármagna átti með láni frá lífeyrisjóðum taki nú fé frá öðrum framkvæmdum. 
Talið er að sexhundruð og fimmtíu manns hafi látist í óveðrinu sem gekk yfir suðurhluta Filippseyja í gær.
Enn er ekki ljóst hvort jólin verði rauð eða hvít, líklega mestmegnis slydda og snjókoma segir veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands.
Greiðslukortasvindl er vaxandi vandamál í heiminum. Í Ástralíu er talið að kortaþjófar hafi vikið út um 27 milljarða króna á þessu ári. Mennirnir tveir sem voru handteknir á Laugaveginum á föstudag voru með kreditkort bæði frá Ísrael og Kanada.
Afköst starfsfólks í dönskum fyrirtækjum hafa stóraukist eftir bankahrunið.</description>
Hádegisfréttir 17.desember 2011
      <description>Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur fyrrverandi stjórnarmönnum og framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs Kópavogs. Alls eru sex manns ákærðir fyrir ólögmætar lánveitingar og að veita Fjármálaeftirliti rangar upplýsingar. 
Rúmlega tvö hundruð lík hafa fundist eftir að fellibylur reið yfir á Filippseyjum í nótt og í morgun. Minnst tuttugu þúsund fjölskyldur hafa þurft að flýja heimili sín.
Tillaga formanns Sjálfstæðisflokksins um afturköllun ákæru á hendur Geir Haarde verður rædd á Alþingi í janúar. Lokaafgreiðslu á frumvarpi efnahagsráðherra um hækkun kvóta Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur verið frestað framyfir áramót. 
Hæstiréttur hefur leitað álits EFTA-dómsstólsins á því hvort slitastjórn Kaupþings hafi ekki gert nóg til að leita eftir kröfum frá erlendum lánadrottnum. Reynist svo vera, gætu hundruð milljóna bæst við kröfur í þrotabú bankans.
Ekkert lát er á blóðugum átökum í höfuðborg Egyptalands sem hafa kostað minnst 8 mannslíf frá því í gær. Hermenn hafa tekið sér stöðu á húsþökum í miðborginni og kasta öllu lauslegu niður á mótmælendur.
Íslenskir jólasiðir koma erlendum ferðamönnum oft spánskt fyrir sjónir. Þjóðfræðingur segir að jólasveinarnir þrettán og móðir þeirra Grýla þyki mest spennandi.
Skautafélag Reykjavíkur sigraði í gær Björninn í framlengdum leik á Íslandsmóti karla í íshokkí og Norðmenn og Frakkar leika til úrslita á heimsmeistaramóti kvenna í handknattleik.
Veðurstofan spáir vestlægri átt þremur til tíu metrum og éljum á vestanverðu landinu en að bjart verði eystra. Hæg norðlæg eða breytileg átt verður undir kvöld og dálítil él norðantil, en úrkomulaust annars staðar. Frá frostmarki að fjórtán stigum, kaldast inn til landsins.</description>
Hádegisfréttir 16.desember 2011
      <description>Forsætisráðherra telur tillögu um að Alþingi falli frá málshöfðun á hendur Geir Haarde, fyrir Landsdómi, óeðlilegt inngrip í starf og hlutleysi dómstólanna. Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, segir hins vegar ekkert athugavert við tillöguna.
Formaður Sjálfstæðisflokksins segir ljóst að pólitík hafi ráðið för þegar Alþingi samþykkti málshöfðun gegn Geir Haarde fyrir landsdómi. Hann vill fá umræðu um tillögu sína á Alþingi. Þingflokksformaður Samfylkingar segir málið lögum samkvæmt úr höndum Alþingis. 
Rúmlega þúsund atvinnulausir treysta á fjárstuðning frá sveitarfélögum. Kostnaður sveitarfélaga vegna þessa nemur 1,6 milljörðum á ári. 
Gengi Haga hækkaði í fyrstu viðskiptum í Kauphöllinni í morgun en tæp fjögur ár eru síðan bréf voru síðast skráð á Aðalmarkaði. Forstjóri Kauphallarinnar sagði tímamótin marka upphaf endurreisnar hlutabréfamarkaðarins hér á landi.
Lögregla í 22 Evrópuríkjum hefur handtekið 112 menn fyrir aðild að hring barnaníðinga á Netinu. Þá upplýsti rannsóknarnefnd í Hollandi í morgun  að tugir þúsunda barna hafi orðið fórnalömb barnaníðinga í hópi kaþólskra presta á árunum 1945-2010.
Hver Íslendingur eyðir um fjögur þúsund og átta hundruð krónum daglega í ýmsar vörur og þjónustu. Dagleg neysla hefur tekið nokkurn kipp milli ára samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Capacent Gallup. 
Smalarnir fjórir sem björgunarsveitir á Austurlandi leituðu að á Lónsöræfum um síðustu helgi höfðu oft farið þangað áður og verið í nokkra daga án þess að leitað væri að þeim. Einn þeirra gagnrýnir að símasamband á Lónsöræfum hafi stórversnað eftir að NMT-kerfið var lagt niður.
Dregið var í 16 liða úrslit meistaradeildarinnar í knattspyrnu í morgun. Stórleikur umferðarinnar verður viðureign AC Milan og Arsenal.
Veðurhorfur: Norðvestan fimm til tíu metrar, en þrettán til átján við austurströndina fram á kvöld. Él norðan- og austanlands, en annars léttskýjað. Snýst í suðvestan og vestan fimm til þrettán með éljum vestanlands seint í kvöld. Frá frostmarki að tíu stigum, kaldast inn til landsins.</description>
Hádegisfréttir 15.desember 2011
      <description>Atvinnulausir munu fá greiddar atvinnuleysisbætur í fjögur ár samfellt samkvæmt áætlun sem stjórnvöld undirbúa. Með því verður komið í veg fyrir að á næsta ári missi rúmlega 2000 manns atvinnuleysisbætur tímabundið.
Bandaríski fáninn var dreginn niður við hátíðlega athöfn í Baghdad höfuðborg Íraks í morgun. Það markar með formlegum hætti lok Íraksstríðsins.
Forsætisráðherra gerir ráð fyrir að Icesave deilan hjá Efta dómstólnum verði á forræði utanríkisráðherra þótt endanleg ákvörðun liggi ekki fyrir. Forsætis-, fjármála- og efnahagsráðherrar munu þó einnig gegna veigamiklu hlutverki við málsmeðferðina. 
Fjármálaráðuneytið hefur óskað eftir því að utanríkisráðuneytið endurskoði reglur sínar varðandi tjórnabætur flutningsskyldra starfsmanna.  
Vinnubrögð bæjarstjórans og meirihluta bæjarstjórnar í Garði við starfslok skólastjóra Gerðaskóla eru til skammar og til marks um valdníðslu. Þetta segir oddviti minnihlutans.
Jacques Chirac, fyrrverandi forseti Frakklands, var í dag dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi fyrir fjármálaspillingu. 
Mehdi Kavyanpour, flóttamaðurinn sem hótaði að kveikja í sér í húsi Rauða kross Íslands, fær ríkisborgararétt samþykki Alþingi frumvarp sem allsherjar- og menntamálanefnd lagði fyrir í gærkvöld. 
Veðurhorfur: Norðlæg átt, tíu til átján, hvassast við austurströndina síðdegis. Éljagangur eða snjókoma með suðurströndinni framan af morgni og síðar einnig norðantil. Annars skýjað með köflum og úrkomulítið sunnantil. Norðvestan átta til þrettán og léttir til sunnanlands á morgun. Frost að tíu stigum, kaldast inn til landsins.</description>
Hádegisfréttir 14.desember 2011
      <description>ESA, eftirlitsstofnun EFTA, hefur ákveðið að kæra Icesave-málið til EFTA dómstólsins. Dómurinn yrði bindandi fyrir íslensk stjórnvöld. Ekki verða settar fram fjárkröfur af hálfu ESA, en falli dómurinn Íslandi í óhag, geta bresk og hollensk stjórnvöld nýtt hann til að rökstyðja skaðabótakröfur fyrir dómstólum.
Forsætis- og fjármálaráðherra segja ákvörðun ESA ekki koma á óvart, nú verði gripið til ítrustu varna. Forsætisráðherra segir að þannig verði haldið á málum að Ísland muni vinna.
Gjaldeyrishöftin brjóta ekki í bága við ESA samninginn. Þetta er niðurstaða EFTA dómstólsins frá því í morgun.
4.600 almennum kröfum í þrotabú Kaupþings hefur verið breytt í forgangskröfur. Samanlagt hljóða þær upp á meira en hálfan milljarð króna. 
Sjötíu og þrjú prósent fórnarlamba barnakláms á netinu eru undir tíu ára aldri. Efnið verður sífellt grófara og ofbeldisfyllra. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. 
Atvinnuleysi eykst á Bretlandseyjum  og er nú 8 komma 3 prósent. Þar af eru nú tvær milljónir og 640 þúsund  án vinnu.
Formaður siðanefndar Háskóla Íslands leggur til að stundakennari við guðfræðideild fái bætur vegna þess skaða sem hann hafi orðið fyrir í kjölfar kæru Vantrúar. Hann segir að umræða um málið hafi einkennst af hroka og mannfyrirlitningu sem sé ósamboðin háskólaborgurum. 
Veðurhorfur: Norðaustan tíu til átján metrar, hvassast norðvestantil, en allt að tuttugu metrar á Vestfjörðum og við Breiðafjörð síðdegis og fram á kvöld. Víða snjókoma eða él en skýjað með köflum og úrkomulítið um landið sunnanvert. Lengst af hægari sunnantil. Hiti yfirleitt um frostmark við ströndina en frost eitt til sex stig inn til landsins. Kólnar á morgun.</description>
Hádegisfréttir 13.desember 2011
      <description>Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir fólksflutninga nú árið 2011 ekki meiri en í venjulegu árferði. 
Skattasérfræðingur hjá Deloitte segir að hækkun skattþrepa samkvæmt tilögum nefndar Alþingis sé aðeins til að halda lág- og millitekjufólki í horfinu. Alþýðusambandið fagnar hins vegar tillögunni.
Að minnsta kosti tveir létust og tíu særðust í sprengjuárás í borginni Liege í Belgíu nú fyrir stundu. En litlar upplýsingar hafa borist.
Umræða um dýrar jólagjafir í anda góðærisins getur verið þeim erfið sem hafa úr litlu að spila. Félagsráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar segir umræðuna ekki endurspegla raunveruleikann. 
Óttast er að sakborningar hafi fengið upplýsingar um símhleranir frá starfsmönnum símafyrirtækja. Símhleranir gagnast ekki lengur í rannsóknum sérstaks saksóknara eftir að upplýst var um þær á Alþingi.
Í mars verður formlega gengið frá nýju samkomulagi 26 Evrópsambandsríkja um hertar reglur í efnahags- og fjármálum.
Kanadamenn sögðu sig í gærkvöldi frá Kyotobókuninni sem skuldbindur ríki til þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. 
Of algengt var og er, að óheppilegt fólk veljist til starfa á stofnunum sem annast þá sem minna mega sín. Þetta segir formaður vistheimilanefndar. Fólkið hafi síðan reynst úlfar í sauðagæru.
Veðurstofan spáir norðaustan tíu til tuttugu metrum, hvassast norðvestan- og suðaustantil. Slydda eða snjókoma norðan og austanlands en skýjað með köflum eða bjartviðri sunnantil. Hiti um frostmark við ströndina en frost að fimm stigum inn til landsins.</description>
Hádegisfréttir 12.desember 2011
      <description>Meirihluti efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis vill að dregið verði úr fyrirhugaðri skattlagningu á lífeyrissjóði, fallið verði frá kolefnisskatti á eldsneyti í föstu formi, skattþrep hækkuð og auðlegðarskattur aflagður í lok 2013.
Lélegt símasamband torveldaði björgunarstörf í gær þegar björgunarsveitir af öllu Austurlandi leituðu fjögurra manna sem fóru að leita að kindum við Kollumúla á Lónsöræfum. Björgunarsveitir unnu að því að setja upp færanlegan GSM-endurvarpa til að tryggja samband. 
Mesta landflóttaskeið Íslandssögunnar stendur nú yfir. Á hverjum degi flytja að jafnaði 7 Íslendingar til Noregs í von um betra líf. 
Baugsmálinu verður að öllum líkindum áfrýjað. Sækjandinn hefur miklar áhyggjur af því að lítið verði um refsingar í málum sérstaks saksóknara verði niðurstaða Baugsmálsins staðfest í Hæstarétti.
Hafi einhvern tíma verið vitlaus hugmynd að slíta aðildarviðræðum við Evrópusambandið, er það fráleitt núna þegar loksins hafa verið samþykktar aðgerðir sem leysa bæði skuldavanda evru-ríkjanna og gallana á evru-samstarfinu, segir utanríkisráðherra. 
Clegg leiðtogi Frjálslyndra demókrata og varaforsætisráðherra segir að Bretland  kunni að einangrast og kunni að tapa  forystu hlutverki  í umhverfismálum, utanríkismálum og landvörnum  vegna ákvörðunar Camerons forsætisráðherra  um að taka ekki þátt í samkomulagi leiðtoga Evrópusambandsins á föstudag.
Brunninn kapall í kyndistöð hitaveitu Vestmannaeyja olli því að rafmagn fór af bænum í morgun. Rafmagnslaust var í Eyjum í næstum eina og hálfa klukkustund.  
Kammerkórinn Carmina syngur mörghundruð ára gamla tónlist á jólatónleikum Ríkisútvarpsins í Kristskirkju í kvöld. Ókeypis er á tónleikana. 
Veðurstofan spáir austlægri átt, fimm til þrettán metrum. Hvassastst verður norðanlands. Skúrir eða él, en þurrt og bjart að mestu vestanlands. Vaxandi norðaustan átt í kvöld og nótt með slyddu eða snjókomu norðan- og austanlands, en léttskýjað að mestu um landið suðvestanvert. Hiti kringum frostmark, en kólnar heldur þegar líður á morgundaginn.</description>
Hádegisfréttir 11.desember 2011
      <description>Fjármálaráðherra segir að það komi öllum vel, þar á meðal lífeyrissjóðunum, að tryggja íbúðareigendum sérstakar vaxtaniðurgreiðslur. Sorglegt væri ef lífeyrissjóðirnir kæmu í veg fyrir þann milljarða stuðning sem í bótunum felist. 
Samkomulag náðist á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í nótt um nýjar viðræður allra ríkja heims um takmarkanir á losun gróðurhúsalofttegunda. Þá hefur gildistími Kyoto-bókunarinnar verið framlengdur. 
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur verið kallað út fjórum sinnum frá miðnætti vegna leka í atvinnuhúsnæði. Töluvert tjón hefur orðið og hvetur varðstjóri fólk til að huga að mannlausum húsum.
Mikill ágreiningur er innan bresku ríkisstjórnarinnar um þá ákvörðun forsætisráðherrans að leggjast gegn breytingum á sáttmálum Evrópusambandsins á leiðtogafundi þess fyrir helgi. 
Breska lögreglan telur að götublaðið News Of The World hafi látið hlera 800 farsíma í leit sinni að fréttum.  
Sagan Aðventa eftir Gunnar Gunnarsson verður í dag lesin fyrir gesti og gangandi, á fjórum stöðum í þremur löndum. 
Barcelona vann risaslaginn í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld þegar liðið lagði erkifjendur sína í Real Madrid. 
Veðurhorfur: Austlæg átt tíu til átján metrar, hvassast úti við norðausturströndina, en mun hægari sunnantil. Snjókoma eða slydda austanlands, en annars stöku él. Austan fimm til tíu á morgun, en hvassari á annesjum norðantil. Skúrir eða él, en þurrt að kalla vestanlands. Hiti kringum frostmark.</description>
Hádegisfréttir 10.desember 2011
      <description>Rafiðnaðarsambandið hyggst höfða mál gegn ríkinu láti stjórnvöld verða af þeirri hugmynd sinni að leggja skatt á lífeyrissjóðina. Félagið fullyrðir að slík skattlagning sé brot á stjórnarskrá.  
Tugþúsundir hafa safnast saman í miðborg Moskvu til að mótmæla meintum svikum í þingkosningunum um síðustu helgi. Mótmælafundur verður við sendiráð Rússlands í Reykjavík eftir hádegi.
Gjörbreyttar aðstæður í Evrópusambandinu kalla á að farið verði yfir stöðu mála með tilliti til hagsmuna Íslands. Þetta er skoðun meirihluta utanríkismálanefndar Alþingis, sem ætlar að kalla til sín ráðherra og sérfræðinga til að fara yfir breytt landslag í sambandinu.
Formaður LÍÚ óttast að langvarandi deilur Íslendinga við Norðmenn og Evrópusambandið um makrílveiðar muni leiða til ofveiðar á stofninum. Hann segir langt í land að deilan leysist.
Formaður samninganefndar Íslands á lofstlagsráðstefnunni í Suður-Afríku  segir alveg ljóst að ekki náist fullburða samkomulag á ráðstefnunni. Ringulreið hafi einkennt ráðstefnunna. 
Danskt tóbaksfyrirtæki hefur verið sýknað af kröfum manns sem hélt því fram að á sígarettupökkum fyrirtækisins kæmu fram villandi upplýsingar um skaðsemi tóbaks.  Maðurinn hafði reykt Prince sígarettur í hálfa öld.
Almyrkvi á tungli verður í dag. Austfirðingar eru þó líklega einu íbúar landsins sem geta séð myrkvann allan, aðrir verða að láta sér deildarmyrkva nægja.
Ísland mætir Rússum í 16-liða úrslitum heimsmeistaramóts kvenna í handknattleik í Brasilíu.
Veðurhorfur: Gengur í austan fimmtán til tuttugu og þrjá metra með snjókomu eða skafrenningi sunnanlands, hvassast syðst. Hægari og skýjað með köflum norðantil fram á kvöld, en síðan tíu til fimmtán og snjókoma með köflum. Austan tíu til átján norðan og austantil á morgun, hvassast á annesjum, en annars talsvert hægari. Él í flestum landshlutum, en snjókoma eða slydda fyrir austan. Dregur úr frosti í dag</description>
Hádegisfréttir 09.desember 2011
      <description>Eftirspurn eftir hlutabréfum í Högum var átta sinnum meiri en framboðið. Framkvæmdastjóri Arionbanka segir þetta sýna að fjárfestingarmöguleika skorti á Íslandi.
Leiðtogar evruríkjanna 17 ásamt leiðtogum sex annarra Evrópusambandsríkja hafa í meginatriðum náð samkomulagi um aðgerðir til bjargar evrunni. Cameron forsætisráðherra Breta kom í nótt í veg fyrir samkomulag allra Evrópusambandsríkjanna.
Vítisenglar á Íslandi hafa stefnt innanríkisráðherra, íslenska ríkinu og ríkislögreglustjóra fyrir meiðyrði. Krafist er fjögurra milljóna króna í bætur. Innanríkisráðherra segist standa við þau orð sín um að samtökin séu skipulagður glæpahópur.
Stærstu hjálparsamtökum landsins hafa borist á fjórða þúsund umsóknir um mataraðstoð fyrir jólin. Áætlað er að rúmlega tíu þúsund manns standi að baki umsóknunum. Búist er við að umsóknum eigi enn eftir að fjölga.
Dómur verður kveðinn upp í skattahluta Baugsmálsins í dag. Verjendur haf í fimmgang krafist frávísunar á þeim þremur árum sem liðin eru frá því að málið var höfðað.
Samkvæmt drögum að nýrri samgönguáætlun verður öll jarðgangagerð á vegum ríkisins sett á bið næstu þrjú árin. Þingmaður Samfylkingar segir ótækt að fé til gangagerðar skerði fé til annarra framkvæmda en það geti myndað togsteitu milli sveitarfélaga og svæða. 
Neyðarlögin 2011, geisladiskur til styrkar færeysku björgunarsveitunum, kemur út í dag en það eru íslensku björgunarsveitirnar sem standa fyrir fjáröflunarátakinu. 
Veðurhorfur: Norðvestan 13-18 m/s við NA-ströndina, en annars mun hægari norðanátt. Él á N- og A-landi, en annars léttskýjað. Lægir og léttir víða til í kvöld. Gengur í austan 13-20 með snjókomu SV-lands á morgun, hvassast við sjóinn, en mun hægari og bjartviðri N- og A-lands. Frost yfirleitt 7 til 12 stig, en dregur úr frost S-til á morgun.</description>
Hádegisfréttir 08.desember 2011
      <description>Beðið er niðurstöðu dómstóla um það hvort krafa Hannesar Smárasonar í bú gamla Landsbankans verði viðurkennd forgangskrafa eða ekki. Verði hún viðurkennd fær Hannes ríflega milljarð króna úr búinu.  þar af þrjúhundruð og fimmtíu milljónir sem greiddar voru út í gær.
Forsætisráðherra segir vaxandi launamun kynjanna vera mjög alvarlegt mál og ríkisstjórnin muni gera allt til að taka á honum. Ljóst sé að aðgerðir hingað til hafi ekki skilað árangri.
Sérfræðingar telja að framtíð evrunnar og jafnvel Evrópusambandsins kunni að ráðast af því hvort samkomulag náist um aðgerðir á leiðtogafundi  aðildarríkja Evrópusambandsins sem hefst í Brussel í dag.
Sóttvarnarlæknir leitar að börnum sem ekki hafa verið bólusett við mislingum til að vara foreldrana við faraldri  sem geisar í Evrópu.  Talið er að fimm til tíu prósent barna sem fæddust hér á landi síðastliðin fimm, ár séu ekki bólusettt.
Slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins segir aukafjárveitingu til sjúkraflutninga  ekki duga til að standa undir flutningunum. Helmingi meira þurfi til á höfuðborgarsvæðinu eingöngu.
Nýr samningur um endurfjármögnun láns Hafnarfjarðarbæjar hjá Depfabankanum gerir bænum kleift að takast á við framtíðina, segir bæjarstjórinn í Hafnarfirði. Gert er ráð fyrir að bærinn greiði niður skuldir um einn og hálfan milljarð á næsta ári.
Allt að sextíu og sex prósenta munur er á verði jólabóka samkvæmt könnun Alþýðusambands Íslands. 
Vonir íslenska kvennalandsliðsins í handbolta um að komast áfram í 16-liða úrslit eru á lífi eftir frábæran sex marka sigur á Þjóðverjum í gærkvöldi. 
Veðurstofan spáir norðaustlægri átt, átta til þrettán metrum. Él verða við suðvesturströndina og síðar einnig norðantil á landinu, en annars skýjað og þurrt að kalla. Eins til þrettán stiga frost, kaldast í innsveitum.</description>
Hádegisfréttir 07.desember 2011
      <description>Ríflega þrjátíu slökkviliðsmenn stóðu í ströngu í morgun vegna eiturefnaleka, gruns um eld í íbúðarhúsi og sjúkraflutninga. Nærri fjörutíu manns voru við störf í kæligeymslu fiskverkunarstöðvar þegar ammoníakleiðsla brast skyndilega. 
Cameron forsætisráðherra Bretlands, hótar að beita neitunarvaldi gegn breytingartillögum Frakka og Þjóðverja á sáttmála Evrópusambandsins ef þær eru ekki í samræmi við breska hagsmuni.
Efnahags- og viðskiptaráðherra segir fjármálaráðuneytið hafa tekið frumvarp um kostnaðarmat fjármálaeftirlitsins í gíslingu. Hann sakar fjármálaráðuneytið um að tefja málið. 
Nýjustu hagtölur staðfesta efnahagsbata hér þrátt fyrir samdrátt í heiminum segir seðlabankastjóri. Peningastefnunefnd hefur ákveðið að stýrivextir bankans breytist ekki. 
Íslandsbanki hefur hagnast um rúma ellefu milljarða það sem af er ári samkvæmt árshlutareikningi sem birtur er í dag. Hagnaður bankans minnkar milli ára. 
Persónuvernd skoðar nú hvort reglur hafi verið brotnar þegar netföng um hundrað og fimmtíu þátttakenda fylgdu óvart með þegar könnun var send út til þátttakenda í rannsókn á ofbeldi í nánum samböndum.    
Verð á vímuefnum hefur lækkað síðastliðin tvö ár. Hækkandi áfengisverð skýrir þá þróun að mati SÁÁ.
Kostnaður ríkisins vegna sérfræðilækna hefur aukist um sjö af hundraði frá hruni á sama tíma og heilbrigðisstofnanir hafa þurft að skera niður um og yfir fimmtung í rekstri. Þetta segir Siv Friðleifsdóttir alþingismaður. 
Veðurstofan spáir norðaustlægri eða breytilegri átt, víða þremur til átta metrum. Él verður á Vestfjörum og allra austast en annars yfirleitt bjartviðri. Eins til fimmtán stiga frost, minnst syðst en kaldast í innsveitum norðanlands.</description>
Hádegisfréttir 06.desember 2011
      <description>Sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd Alþingis krefjast þess að lokaumræðu um fjárlög verði frestað þar til nefndin hefur fundað með forystu Alþýðusambands Íslands og fjármálaráðherra. Vinnubrögð við lokaafgreiðslu fjárlaga voru harðlega gagnrýnd á Alþingi nú fyrir fréttir. 
Fimmtíu og átta eru látnir eftir sprengjutilræði í Afganistan í dag.
Rússneska lögreglan lét í morgun til skarar skríða í Moskvu, gegn þúsundum stjórnarandstæðinga, sem mótmæltu kosningasvindli stjórnvalda  á þriðja hundrað voru handteknir.
Starfshópur á vegum iðnaðarráðherra leggur til að nefnd um erlenda fjárfestingu verði lögð niður og lög um fjárfestingu erlendra fjárfesta í atvinnurekstri verði afnumin.
Beiðni Fjármálaeftirlitsins um rúmlega hálfs milljarðs króna aukningu á fjárheimildum hefur legið fyrir frá því í sumar og var þá þegar gagnrýnd. Fjárlaganefnd samþykkti beiðnina ekki fyrr en í fyrradag. 
Matsfyrirtækið Standard og Poors varar við því að lánhæfiseinkunn 15 aðildarríkja Efnahags-og myntbandalags Evrópu, evruríkjanna, verði lækkuð ef ríkin samþykki ekki í vikunni að grípa til róttækra efnhagslegra björgunaraðgerða.
Landhelgisgæslan hafði aðeins eina þyrlu til taks í sextíuogfimm daga á þessu ári. Í hálfan þriðja sólarhring til viðbótar var hvorug þyrlan flugfær.
Veðurhorfur: Austlæg átt, víða átta til þrettán metrar og snjókoma eða él, en þurrt norðantil fram eftir degi. Norðlægari í kvöld og þurrt á suðvestur og vesturlandi. Norðaustan tíu til fimmtán og snjókoma eða él austanlands. Frost eitt til tólf stig, mildast syðst, en kaldara í innsveitum norðanlands í dag.</description>
Hádegisfréttir 05.desember 2011
      <description>Meirihluti Fjárlaganefndar vill láta fara fram hlutlaust mat á starfsemi Fjármálaeftirlitsins. Nefndin hækkaði fjárheimildir eftirlitsins um tæpar 550 milljónir króna í gær. Fulltrúi framsóknarflokks í fjárlaganefnd segir að frekar ætti að setja peningana í heilbrigðiskerfið. 
Alþjóðlegir eftirlitsmenn segja að brögð hafi verið í tafli í kosningunum í Rússlandi í gær. Sameinað Rússland, flokkur Pútíns forsætisráðherra landsins og Medvedevs forseta, fékk nauman meirihluta. 
Aukin misskipting tekna í íslensku samfélagi á árunum 1994 til 2007 varð meðal annars fyrir áhrif frá fjármála- og skattkerfinu. Þetta kemur fram í samantekt um tekjuþróun og misskiptingu í íslensku samfélagi til ársins 2010.  
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, og Nicholas Sarkozy Frakklandsforseti ræða í París í dag um stofnun einskonar ríkisfjármála- eða fjárlagabandalags evruríkjanna.
Um fimm þúsund Íslendingar hafa keypt sér ferð til Boston fyrir jólin. Langflestir eru í innkaupleiðangri.
Starfsmaður Neytendasamtakanna segir það neytendum í óhag, fari svo að stórmarkaðir ýti bókabúðum af markaði. Þótt þeir geti boðið valda titla á lægra verði sé mikilvægt að horfa til þjónustunnar og fjölbreytninnar sem bókabúðir veita.
Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik tapaði í gærkvöld fyrir Afríkumeisturum Angóla með fjögurra marka mun, 28-24, í öðrum leik sínum á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Brasilíu.
Veðurhorfur: Norðan og norðaustan fimm til þrettán metrar, en hvassara austast. Léttskýjað á sunnanverðu landinu, annars él. Frost fjögur til átján stig. Él við suðurströndina með kvöldinu. Austan og norðaustan fimm til fimmtán á morgun, hvassast syðst. Él, einkum sunnantil. Áfram kalt í veðri.</description>
Hádegisfréttir 04.desember 2011
      <description>Íslensk stjórnvöld mega ekki leiðbeina mönnum framhjá íslenskum lögum eins og gerðist í Magma málinu. Þetta segir innanríkisráðherra. Hann segist ekki vera á móti fjárfestingum Huangs Nubos ef farið verður að lögum. 
Fyrstu ákærur frá embætti sérstaks saksóknara á hendur þeim sem áttu þátt í að íslenska bankakerfið féll  verða að fara að líta dagsins ljós. Þetta segir Eva Joly. 
Velferðarmálin verða sérstakalega til skoðunar við afgreiðslu fjárlagafrumvarpsins í fjárlaganefnd, að sögn varaformanns nefndarinnar. Afgreiða á frumvarpið úr nefndinni í kvöld. 
Tölvuárás var gerð í morgun á vefsíðu eftirlitsstofnunar sem fylgist með þingkosningunum sem fara fram í Rússlandi í dag. Búist er við að flokkur Pútíns forsætisráðherra tapi nokkru fylgi en verði þó áfram með góðan meirihluta á þingi.
Plássleysi í íslenskum fangelsum getur tafið flutning Íslendinga, sem afplána dóma í fangelsum í útlöndum, hingað heim. Þetta segir afbrotafræðingur hjá Fangelsismálastofnun. Yfirleitt séu beiðnir þeirra afgreiddar eins fjótt og auðið er.
Það stefnir í einvígi þeirra Mitt Romneys og Newt Gingrich um að verða frambjóðandi Repúblikanaflokksins í bandarísku forsetakosningum að ári. Keppinautur þeirra Herman Cain dró sig í hlé í gær.
Sigur Íslands á sterku liði Svartfjallalands á heimsmeistaramóti kvenna í handbolta í Brasilíu í gær var sá fyrsti sem íslenskt kvennalandslið vinnur á stórmóti í boltaíþrótt
Veðurhorfur: Norðaustan og austan fimm til þrettán metrar, hvassast norðvestantil. Él, einkum á norðanverðu landinu, en úrkomulítið inn til landsins sunnantil. Hægari norðlæg átt á morgun, áfram él norðantil en léttir til syðra. Þriggja til fimmtán stiga frost, en að tuttugu stigum á morgun, kaldast í innsveitum.</description>
Hádegisfréttir 03.desember 2011
      <description>Innanríkisráðherra mun leggja fram tillögu að stefnumótun í fangelsismálum fyrir fyrsta febrúar, samkvæmt tillögu sem lögð verður fyrir fjárlaganefnd í dag. Í henni kemur meðal annars fram hversu marga fanga verður hægt að vista í fangelsinu á Hólmsheiði.
 Evran var gölluð frá upphafi segir fyrrverandi forseti Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og einn af frumkvöðlum þess að koma upp sameiginlegum gjaldmiðli í sambandinu. 
Sendiherra Bretlands í Íran segir að enginn vafi leiki á því að þarlendir ráðamenn hafi lagt blessun sína yfir innrásina í sendiráð Bretlands í Teheran í vikunni.
Jarðskjálftahrina varð skammt austan Akureyrar í gærkvöld. Stærsti skjálftin var rúmir þrír að stærð og fannst í bænum. Jarðsjálftar er sjaldgæfir á þessu svæði
Vindmyllan í Belgsholti í Melasveit féll til jarðar á þriðjudag. Hvassviðri varð myllunni að falli.
Ragna Ingólfsdóttir komst í morgun í undanúrslit á alþjóðlegu badmintonmóti í Wales og það verða Grindavík og Keflavík sem spila til úrslita í fyrirtækjabikar karla í körfuknattleik.</description>
Hádegisfréttir 02.desember 2011
      <description>Tæma þurfti öryggisganginn á Litla-Hrauni til að koma Lárusi Welding og tveimur öðrum fyrrverandi starfsmönnum Glitnis í gæsluvarðhald. Verði fleiri úrskurðaðir í varðhald á næstu dögum, þarf að vista þá á lögreglustöðvum, segir fangelsismálastjóri.
Innanríkisráðherra væntir þess að fjárlaganefnd Alþingis samþykki fjárveitingu til fangelsis á Hólmsheiði eins og ríkisstjórnin ákvað í sumar. Fjármálaráðherra segir þingmenn blanda hagsmunum kjördæmisins í málið.
Íslenska ríkið þarf að greiða starfsmanni utanríkisþjónustunnar 75 milljónir króna í bætur, fyrir verðmæta búslóð sem skemmdist í flutningum mili Íslands og bandaríkjanna. 
Merkel kanslari Þýskalands hvetur til þess að Evrópusambandið stofni nýtt efnahagssamband til þess að leysa skuldakreppu evrusvæðisins.
 Sviðsstjóri Landlæknisembættisins segir að ekki sé brýn þörf fyrir hjúkrunarrými. Nauðsynlegt sé hins vegar að bæta þjónustuíbúðir og efla heimahjúkrun.
Tæplega fimm prósent viðskipta- og hagfræðinga eru á atvinnuleysisbótum. Áhyggjuefni, segir framkvæmdastjóri Félags viðskipta- og hagfræðinga.
Vísindamenn hafa uppgvötað efnabreytingar sem verða í berggrunninum vegna þrýstings á undan jarðskjálfta. Þetta skýrir hvers vegna dýr forða sér fyrir skjálfta og gæti gert mönnum kleift að segja yfir um jarðskjálfta.
Veðurhorfur: Austan og síðar norðaustan tíu til átján metrar og snjókoma eða slydda, einkum við suðurströndina. Hægari norðanátt og léttir til sunnanlands síðdegis og í kvöld en norðan átta til fimmtán austast og snjókoma norðaustantil. Norðan fimm til þrettán á morgun, snjókoma og síðan él norðaustanlands og við vesturströndina, en annars úrkomulítið. Frost að tólf stigum, kaldast inn til landsins, en frostlaust allra syðst í dag.</description>
Hádegisfréttir 01.desember 2011
      <description>Fjármögnunarfyrirtækið Lýsing var í morgun dæmt til að greiða fyrirtækinu Smákrönum eina milljón króna vegna ólögmæts samnings um kaup á vinnuvélum. Niðurstaðan er talin hafa fordæmisgildi fyrir 6500 aðra samninga. 
Þrír menn eru í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar sérstaks saksóknara á viðskiptum með hlutabréf í Glitni árin fyrir hrun. Tveir mannanna hafa kært úrskurðinn til Hæstaréttar.
Evrópusambandslöndin hafa tíu daga til þess að bjarga evrunni segir efnahagsmálastjóri Evrópusambandsins. Evrópski seðlabankinn varar við aukinni hættu á hruni á evrusvæðinu.
Tilraunir þingmanna í fjárlaganefnd til að hafa áhrif á uppbyggingu fangelsis á Hólmsheiði, þvert á stefnu stjórnvalda, valda embættismönnum og sérfræðingum áhyggjum. 
Nýju stjórnarfrumvarpi er ætlað að jafna flutningskostnað framleiðslufyrirtækja og bæta þannig samkeppnisstöðu framleiðenda úti á landi. Hæstu styrkirnir færu til Vestfjarða þar sem flutningskostnaður er mestur.
Bækurnar Blóðhófnir eftir Gerði Kristnýju og Svar við bréfi Helgu eftir Bergsvein Birgisson eru tilnefndar fyrir Íslands hönd til Norrænu bókmenntaverðlaunna á næsta ári. 
Alex Ferguson bað stuðningsmenn Manchester United afsökunar vegna frammistöðu liðsins gegn Crystal Palace í gærkvöld. Liðin mættust á Old Trafford og vann Crystal Palace óvænt, 2-1.
Veðurhorfur: Sunnan og síðan suðvestan átta til þrettán metrar og snjókoma, en síðar él. Austan tíu til fimmtán og snjókoma en slydda sunnanlands á morgun, en hægari og stöku él fyrir norðan. Frost að fimmtán stigum, kaldast inn til landsins, en frostlaust við suðurströndina á morgun.</description>
Hádegisfréttir 30.nóvember 2011
      <description>Mikil röskun er á almenningssamgöngum og  starfsemi skóla og spítala á Bretlandseyjum í dag  vegna verkfalls opinberra starfsmanna sem mótmæla fyrirætlun stjórnvalda um að skerða eftirlaunaréttindi. Um tvær milljónir taka þátt í verkfallinu.
Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður VG, segir að allt of hægt hafi gengið að endurskoða fiskveiðistjórnunarkerfið í ráðherratíð Jóns Bjarnasonar. Hún er ósátt við að ráðherrann vinni málið í samstarfi við stóra hagsmunaaðila en ekki samkvæmt stefnu stjórnarflokkanna. 
Brýnasta verkefni stjórnarliða nú er að klára fjárlög næsta árs segir formaður fjárlaganefndar. Á meðan verði að setja önnur mál eins og uppstokkun í ríkisstjórn til hliðar.  
Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir brýnt að bregðast við meiri vopnaburði skipulagðra glæpahópa hér á landi með öryggi borgara og lögreglu að leiðarljósi. Lögregla hafi varað stjórnvöld við þróuninni.
Búsetuskilyrði á Hellu munu versna ef heilsugæslustöðin þar verður sameinuð þeirri á Hvolsvelli. Sveitarstjórinn í Rangárþingi Ytra er ósáttur við að ekki skuli vera haft samráð við fólkið á svæðinu þegar slíkar sameiningarákvarðanir eru teknar. 
Flokkur múslimska bræðalagsins í Egyptalandi segist hafa unnið sigur í fyrstu umferð þingkosninga í landinu.
Liverpool, Cardiff og Manchester City tryggðu sér í gærkvöld sæti í undanúrslitum enska deildabikarsins í knattspyrnu
Veðurhorfur: Norðan átta til þrettán metrar og dálítil él norðanlands, en annars léttskýjað. Lægir smám saman í dag. Frost tvö til tólf, kaldast inn til landsins. Suðvestan og vestan átta til þrettán á morgun. Snjókoma og seinna él á vestanverðu landinu og síðar einnig austantil. Dregur úr frosti vestantil á morgun.</description>
Hádegisfréttir 29.nóvember 2011
      <description>Oddvitar ríkisstjórnarinnar hafa fullt umboð sinna þingflokka til þess að gera breytingar á ríkisstjórn og er þá allt talið vera undir. Ögmundur Jónasson segist standa með Jóni Bjarnasyni. 
Anders Behring Breivik, sem drap 69 í Ósló og Útey í Noregi í sumar, er ósakhæfur og verður því ekki dæmdur til fangelsisvistar heldur á réttargeðdeild. Réttarhöldin í málinu fara þó fram eins og til stóð. 
Ríkislögreglustjóra ber skylda samkvæmt lögum að afhenda Ríkisendurskoðun gögn sem embættið biður um. Embættið hefur hins vegar neitað því og vill að ríkisendurskoðandi víki sæti.
Forseti Alþýðusambandsins óttast að þeir sem nú eru að taka óverðtryggð húsnæðislán gætu lent í mjög miklum vanda þegar lánakjör verða endurskoðuð að þremur til fimm árum liðnum. 
Matsfyrirtæki hóta að lækka lánshæfismat Frakklands og  hátt í 90 evrópskra banka. Bandaríkjamenn segjast reiðubúnir að aðstoða Evrópusambandið við að leysa skuldavandann á evrusvæðinu. 
Forstjóri Landspítalans segir að svigrúmið, sem skapast við 140 milljóna króna minni niðurskurð á fjárlögum, verði nýtt til þess að opna öldrunardeild á Landakoti. 
Vonskuveður er á fjallvegum á Norðanverðu landinu. Víkurskarð er lokað en byrjað er að moka Steingrímsfjarðarheiði.
Knattspyrnumaðurinn Orri Freyr Hjaltalín er genginn aftur í raðir uppeldisfélags síns, Þórs á Akureyri, eftir átta ár í herbúðum Grindavíkur. 
Veðurhorfur: Norðan tíu til tuttugu metrar, hvassast með norðurströndinni í dag, en á norð-austanhorninu í kvöld. Snjókoma, en yfirleitt bjartviðri sunnantil á landinu. Dregur úr vindi í kvöld og nótt. Tveggja til átta stiga frost, en allt að fimmtán stigum í innsveitum í nótt.</description>
Hádegisfréttir 28.nóvember 2011
      <description>Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segir að pólitísk staða hans hafi aldrei verið jafn sterk og nú.  Harða gagnrýni á störf sín, megi rekja til andstöðu hans við Evrópusambandsumsókn. 
Þingflokkur Samfylkingarinnar ræðir vinnubrögð sjávarútvegsráðherra á fundi sínum sem hefst í hádeginu.
Samþykkt þingsályktunartillögu Guðfríðar Lilju Grétarsdóttur um kaup útlendinga hér á landi felur í sér  uppsögn á EES-samningnum. Þetta segir forstöðumaður Evrópufræðasetursins á Bifröst.
Efnahags- og framfarastofnunin OECD skorar á Evruríkin að grípa tafarlaust til aðgerða gegn skuldakreppu, annars sé hætta á heimskreppu.
Forseti Vítisengla á Íslandi segir fráleitt að norskur félagi samtakanna skuli hnepptur í  varðhald þegar kann kemur hingað til lands til að verja sig fyrir íslenskum dómstólum.
Forstjóri Matvælastofnunar segir afar bagalegt að rannsóknarstofnunin Matís hafi hætt við að sækja um þrjú hundruð milljóna króna Evrópusambands-styrk, sem nota átti til að uppfylla Evrópureglur um mælingar á eiturefnum í matvælum. 
Fyrrverandi starfsmaður í sundlauginni í Varmahlíð hefur verið kærður fyrir að taka myndir í kvennaklefanum. 
Kuldakast er í vændum um allt land, og fer frostið víðast hvar niður í tveggja stafa tölur. Hætta er á að vélar skemmist og ofnar og hitalagnir springi, bæti fólk ekki frostlegi á þau.
Snæfell tryggði sér í gærkvöldi sæti í undanúrslitum deildarbikars karla í körfuknattleik, annað liða. 
Veðurstofan varar við stormi, sem eru meira en tuttugu metrar á landinu. Annars er spáð norðaustan þrettán til átján metrum og snjókomu norðvestantil og norðan átján til tuttugu og fimm í kvöld og vægu frosti. Mun hægari vindur og úrkomuminna verður sunnan og austanlands og hiti verður frá frostmarki að fimm stigum.</description>
Hádegisfréttir 27.nóvember 2011
      <description>Forsætisráðherra segir að frumvarp Jóns Bjarnasonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu verði aldrei lagt fram sem stjórnarfrumvarp. Frumvarpið sé unnið án samráðs við ríkisstjórnina og stríði gegn stefnu hennar í fiskveiðistjórnunarmálum.
Kínverki kaupsýslumaðurinn Nuang Nubo er afar ósáttur yfir því að fá ekki að kaupa Grímsstaði á fjöllum og segir ósýnlega veggi hindra kínverska fjárfesta sem leiti tækifæra í útlöndum. 
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra vill að sömu hömlur verði á öllum fjárfestingum útlendinga, hvort sem þeir búi á Evrópska efnahagssvæðinu eða utan þess. Tryggja verði eignarhald þjóðarinnar á landi, auðlindum og víðernum.
Skilanefnd Landsbankans krefst jafnvirði 240 milljarða króna fyrir hlutafé í bresku Iceland-verslunarkeðjunni. Breskur kaupsýslumaður er sagður vera að undirbúa tilboð í félagið.
Hálfrar aldar reynsla sýnir að atvinnuleysisbætur draga ekki úr vilja fólks til að vinna, segir formaður ASÍ. Fólkið sem hefur skemmst verið atvinnulaust - og sé með hæstar bætur - sé fljótast að fá vinnu.
Gerviefni kunna að verða notuð til að búa til þvagblöðrur og önnur líffæri. Aðgerð þar sem plastbarki var græddur í mann, hefur verið endurtekin.
Einn af hverjum átta efnalitlum kvíða aðeins jólunum en hlakka ekki til þeirra. Þetta leiðir ný könnun í ljós. Kvíðinn minnkar eftir því sem tekjurnar aukast. 
Veðurhorfur: Suðvestlæg átt fimm til tíu metrar. Dálítil él, en bjartviðri norðan- og austanlands. Gengur í austan og norðaustan tíu til átján í kvöld og nótt með snjókomu, fyrst sunanntil. Hægari sunnan átt sunnantil í fyrramálið og dálítil rigning eða slydda, en norðan fimmtán til tuttugu og þrír norðantil seint á morgun. Frost að tíu stigum, kaldast í innsveitum norðaustanlands, en frostlaust sunnantil á morgun.</description>
Hádegisfréttir 26.nóvember 2011
      <description>Kínverski fjárfestirinn Huang Nubo hefur fallið frá öllum áformum um fjárfestingar á Íslandi. Í svari innanríkisráðherra felist að hann sé ekki velkominn sem fjárfestir á Íslandi.
Innanríkisráðherra hefði verið í lófa lagið að veita undanþágu fyrir kaupum Huangs Nubos á Grímsstöðum á fjöllum, segir sérfræðingur í eignarrétti. Lögin veiti ráðherra rúma heimild, og fordæmisrök haldi ekki vatni. 
Pakistanskir ráðamenn eru æfir vegna árásar Bandaríkjamanna á varðstöð pakistanska hersins skammt frá landamærunum að Afganistan í gærkvöld. Að minnsta kosti 23 pakistanskir hermenn létu lífið í árásinni. 
Formaður atvinnuveganefndar Alþingis segir ekki standa til að skattleggja stóriðjufyrirtæki hér á landi umfram það sem þekkist í Evrópu. Áform stjórnvalda um aukakolefnisgjald séu fullkomlega galin.
Mesta óveður í 33 ár gekk yfir norðanverðan Noreg í nótt og morgun. Tjón varð víða á húsum og samgöngur eru úr lagi gengnar.
Hundrað og sextíu börn fædd í janúar 2010 fá á næstu dögum boð um vistun á leikskólum Reykjavíkurborgar. Fulltrúi minnihlutans í borgarstjórn segir bagalegt að það þurfi mikla fjölmiðlaumfjöllun og þrýsting frá foreldrum til þess að börn séu tekin inn í laus pláss.
Munnlegt samkomulag milli eigenda og leikmanna liða í NBA deildinni í körfubolta náðist seint í gærkvöld um að hefja keppni í deildinni á jóladag. Þó á enn eftir að greiða atkvæði um samkomulagið.
Veðurhorfur: Fremur hæg suðlæg eða breytileg átt. Stöku él sunnan- og vestanlands og við austurströndina, en annars víða léttskýjað. Víða él í kvöld og nótt, en þurrt norðanlands. Þurrt að mestu síðdegis á morgun. Frost að tólf stigum, kaldast í innsveitum fyrir norðan.</description>
Hádegisfréttir 25.nóvember 2011
      <description>Æðsti klerkur súnníta í Egyptalandi hefur lýst yfir stuðningi við mótmælendur á Tahrir-torgi í Kaíró. Tugir þúsunda eru á torginu og krefjast þess að herforingjaráðið, sem heldur um valdataumana í landinu, fari frá þegar í stað.  
Ríkisstjórnin hefur ekkert gert fyrir þá sem reiða sig á framfærslu frá hinu opinbera segir forseti Alþýðusambandsins. Enginn fulltrúi Alþýðusambandsins mætti í gær á fund velferðarráðherra, þar sem farið var yfir málið.
Mikið tjón varð þegar ofsaveður gekk yfir Færeyjar í nótt og í morgun.  Kirkjuturn og íbúðarhús fuku í Skúfey og mikið tjón varð  skipum og á fiskeldisstöðvum. Vindstyrkurinn fór í sextíu og þrjá metra á sekúndu í mestu hviðunum.
Byggingarleyfi vegna byggingar Þorláksbúðar hvílir á hæpnum forsendum, að mati Skipulagsstofnunar. Forstjóri hennar telur að verið sé að flýta framkvæmdum til að þeim verði lokið, ef og þegar byggingarleyfið verður fellt úr gildi.
Ódýrast er að kaupa bökunarvörur í Bónus samkvæmt nýrri verðkönnun. Fulltrúar Alþýðusambandsins segjast ekki hafa fengið vinnufrið í versluninni Víði til að gera könnunina.
Hláturmáfur er nú á Djúpavogi. Hann er hláturmildastur fugla og kemur sunnan úr Karíbahafi. (ATH - MÁVAGARG)
Grindavík er með fjögurra stiga forystu á toppi úrvalsdeildarinnar í körfubolta karla eftir stórsigur á Íslandsmeisturum KR í gær, 85-59.
Veðurhorfur: Minnkandi norðvestanátt og snjókoma austanlands, en annars fremur hæg vestlæg eða breytileg átt og él. Hæg suðlæg eða breytileg átt á morgun og birtir víða til norðan og austanlands, en áfram él á suður og vesturlandi. Hiti um frostmark við ströndina, en annars frost að átta stigum, kaldast inn til landsins.</description>
Hádegisfréttir 24.nóvember 2011
      <description>Karlmaður á fertugsaldri var í morgun dæmdur í sextán ára fangelsi fyrir að verða manni að bana á veitingastaðnum Monte Carlo í sumar. 
Framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands telur að hlutabréfamarkaður hér á landi muni glæðast á næstu tveimur árum. Stefnt er að því að um níutíu prósent af eignum sjóðsins verði skráðar á markað á næstu þremur árum.
Herforingjar í Egyptalandi hafa beðist afsökunar á dauða hátt í fjörutíu mótmælenda sem drepnir hafa verið síðustu daga.
Samdrætti í íslenska hagkerfinu er lokið samkvæmt þjóðhagsspá sem Hagstofa Íslands sendi frá sér í dag. Á þessu ári mælist í fyrsta sinn frá hruni vöxtur í þeim þáttum sem hjálpa til við efnahagsbatann.
Tvísköttun á stóriðju í formi kolefnisgjalds veldur því að fyrirtæki flytja til landa sem ekki taka þátt í átaki gegn útblæstri. Þetta segir sérfræðingur í orkumálum.
Beiðni um að úraræningjarnir verði handsamaðir öðru sinni í Póllandi, og réttað verði yfir þeim þar, verður send á allra næstu dögum. Fyrst þarf íslenska lögreglan að ljúka rannsókn málsins og þýða öll gögn yfir á pólsku.
80 grindhvalir voru reknir á land skammt frá Þórshöfn í Færeyjum í gær. Þá var þar ein stærsta grindhvalvaða við eyjarnar í manna minnum, að minnsta kosti 1000 dýr, að talið er.
Arsenal, Bayer Leverkusen og Apoel frá Kýpur tryggðu sér í gærkvöld sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu.
Veðurhorfur: Fyrst viðvörun: Búist er við stormi, meira en tuttugu metrum, á landinu. Spáin er annars þessi: Fremur hæg suðvestlæg eða breytileg átt. Dálítil él, en víða léttskýjað norðanlands. Gengur í norðaustan átján til tuttugu og þrjá metra austanlands með kvöldinu með snjókomu eða slyddu. Hiti kringum frostmark.</description>
Hádegisfréttir 23.nóvember 2011
      <description>Eftirlitsstofnun EFTA ætlar að rannsaka hvort björgunaraðgerðir stjórnvalda vorið tvöþúsund og níu fyrir Saga fjárfestingabanka, Aska Capital og VBS fjárfestingabanka hafi verið ólögmæt ríkisaðstoð og brot á EES samningnum.
Sementsverksmiðjan á Akranesi hyggst hætta allri sementsframleiðslu vegna samdráttar í byggingariðnaði. Níu missa vinnuna. 
Stjórnarandstaðan í Egyptalandi hefur hafnað tilboði herforingjaráðsins sem stýrir landinu um að hraða lýðræðisumbótum. Hundruð þúsunda hafa safnast saman á Frelsistorginu í Kæró til mótmæla í morgun.
Niðurstöður jarðfræðirannsókna á Jan-Mayen hryggnum gefa ríkari ástæðu til bjartsýni um að olía eða gas finnist á Drekasvæðinu. Niðurstaðan gæti aukið áhuga olíufyrirtækja á svæðinu.
Fyrsta vetrarveðrið gekk yfir Hellisheiði og Þrengslin í morgun. Fjöldi bíla hafnaði utan vegar í verstu hviðunum, en enginn slasaðist í óhöppunum.
Ali Abdullah Saleh, forseti Jemens, flaug til Sádí Arabíu í morgun þar sem hann mun skrifa undir samkomulag um valdaafsal. Vonast er til að það komi í veg fyrir að borgarastyrjöld brjótist út í Jemen.
Varðskipið Þór fer í slipp á Akureyri í dag. Gera þarf við grindur í botni skipsins. Ekkert alvarlegt, segir framkvæmdastjóri aðgerðarsviðs hjá Landhelgisgæslunni. 
Manchesterliðin eru bæði í vandræðum í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu eftir leiki gærkvöldsins.
Veðurhorfur: Suðvestan og vestan þrettán til tuttugu metrar með slyddu eða éljum, hvassast með suður- og austurströndinni og sums staðar snarpar vindhviður við fjöll. Hægari vindur síðdegis og styttir upp norðaustan- og austantil þegar líður á kvöldið. Frá frostmarki að fimm stigum, en vægt frost inn til landsins.</description>
Hádegisfréttir 22.nóvember 2011
      <description>Um fimmtíu Íslendingar missa vinnunna við stöðvun flugfélagsins Astraeus.
Stjórnarandstaðan í Egyptalandi boðar til milljón manna mótmæla gegn herforingjaráðinu í dag. Mótmælaaðgerðir eru í höfuðborginni Kæró og að minnsta kosti átta öðrum borgum í Egyptalandi í dag.
Þriðji skotárásarmaðurinn var handtekinn í gærkvöldi. Hann er 17 ára og  fékk nýlega fangelsisdóm en hafði ekki enn hafið afplánun, þar sem áfrýjunarfrestur var ekki liðinn
Afar slæmt er að vélstjórar á Herjólfi geti lokað heilu byggðarlagi allar helgar fram að jólum segir framkvæmdastjóri ÍBV.
Komi til verkfalls þurfi að aflýsa sjö hundruð manna handboltamóti um helgina. 
Bandaríkjaforseti kennir Repúblikönum um að ekki náðist samstaða á Bandaríkjaþingi um tillögur til að minnka fjárlagahallann vestan hafs.
Spjaldtölva er jólagjöfin í ár að mati Rannsóknaseturs verslunarinnar. Reiknað er með að hvert mannsbarn verji 38.000 krónum til jólainnkaupanna.
Háteigsskóli vann Skrekk, hæfileikakeppni grunnskóla í Reykjavík, í gærkvöld. 
Keflavík og Njarðvík mætast í hreinum úrslitaleik um laust sæti í undanúrslitum fyrirtækjabikars karla í körfuknattleik eftir sigur Keflvíkinga á Val í gærkvöldi. 
Veðurhorfur: Suðaustan þrettán til tuttugu metrar og rigning sunnanlands, hvassast við ströndina, en hægari og þurrt norðaustantil framan af degi. Austan átta til þrettán og rigning eða slydda með köflum síðdegis, einkum austanlands. Hiti að sex stigum í dag. Snýst í suðvestan þrettán til tuttugu í fyrramálið. Skúrir eða él og hiti kringum frostmark.</description>
Hádegisfréttir 21.nóvember 2011
      <description>Ríkisendurskoðun ætlar ekki að gera arðsemismat á Vaðlaheiðargöngum. Ríkisendurskoðandi telur það ekki vera hlutverk sitt, auk þess sem hann sé vanhæfur til þess
Þrír laumufarþegar sem nýlega fundust í togara á leið frá Íslandi til Kanada, höfðu verið kærðir hér á landi, fyrir að framvísa fölsuðum pappírum. Fólkið er allt frá Eþíópíu.
Karlmaður, sem banaði sambýliskonu sinni í Heiðmörk fyrr á árinu var í Héraðsdómi Reykjaness í morgun dæmdur ósakhæfur. 
Stjórnvöld  í Egyptalandi hafa staðfest að 20 að minnsta kosti hafi látið lífið og á annað þúsund særst í átökum  mótmælenda og lögreglu á  Frelsistorginu í Kaíró um helgina.
Hægrimenn unnu yfirburðasigur í þingkosningum á Spáni í gær en stjórnarliðar sósíalista guldu afhroð
Kyrsetningu flutningaskipsins Ölmu hefur verið aflétt eftir að útgerð skipsins lagði fram tryggingu fyrir 400 milljóna króna björgunarlaunum.
Frystur fiskur getur rýrnað um allt að helming við matreiðslu. Þetta kemur fram í rannsókn Matís fyrir Neytendasamtökin.
David Beckham varð í gærkvöldi bandarískur meistari í knattspyrnu þegar lið hans, LA Galaxy, vann lið Houston í úrslitaleik deildarinnar. 
Veðurhorfur: Sunnan tíu til fimmtán metrar og skúrir eða él, en fimm til tíu og víða léttskýjað austanlands. Heldur hægari með kvöldinu. Gengur í austan þrettán til tuttugu með rigningu sunnanlands í fyrramálið, hvassast við ströndina. Austan átta til þrettán og rigning austanlands síðdegis, en annars skúrir eða él. Hiti að sex stigum.</description>
Hádegisfréttir 20.nóvember 2011
      <description>Landsfundur Sjálfstæðisflokksins virðist þverklofinn í afstöðu sinni til þess hvort draga eigi umsókn um aðild að Evrópusambandinu til baka eða ekki. Tillaga þess efnis var samþykkt í dag með fimm atkvæða mun. Krafist var skriflegrar atkvæðagreiðslu sem nú stendur yfir.
Skotið var úr tveimur sprengjuvörpum á höfuðstöðvar stjórnarflokksins í í Damaskus í morgun. Assad forseti segir að ekki komi til greina að hann láti undan þrýstingi og að áfram verði á blóðug átök í landinu.  
Einn mannana sem áttu þátt í skotárás við bílasölu í Bryggjuhverfinu í fyrrakvöld hefur verið úskurðaður í gæsluvarðhald. Hinna er enn leitað.
Tveir létu lífið og 600 særðust í átökum öryggissveita og mótmælenda á Frelsistorginu í Kaíró í gærkvöldi og í nótt.  Mótmælendur hafa náð yfirráðum yfir torginu á ný og mótmæla enn. 
 Fórnarlamba umferðarslysa var minnst við Landspítalann í morgun. Læknir á bráðamóttöku segir sérstaklega erfitt að meðhöndla ung fórnarlömb slíkra slysa.
Landsvirkjun skoðar nú möguleika á því að reisa tvær vindmyllur í tilraunaskyni við Búrfell í lok næsta árs. Fjallað var um þær væntingar sem bornar til vindorku hér á landi á haustfundi Landsvirkjunar.
Birgir Leifur Hafþórsson féll í gær úr leik á úrtökumóti fyrir bandarísku mótaröðina í golfi og Bandaríkjamenn unnu heimsliðið í baráttunni um forsetabikarinn.</description>
Hádegisfréttir 19.nóvember 2011
      <description>Víðtækt lið lögreglu og sérsveitarmanna leitar nú tveggja til þriggja manna sem skutu  með haglabyssu á annan mann í bifreið í Austurborginni í gærkvöld. Engan sakaði en bíllinn er skemmdur. 
Seif al-Islam, sonur Gaddafís, fyrrverandi einræðisherra Líbíu, hefur verið handtekinn. Hann var einn helsti talsamaður föðurs síns í uppreisninni gegn honum. Alþjóða stríðsglæpadómstóllinn hefur kært hann fyrir glæpi gegn mannkyninu.
Gunnar Andersen, forstjóri FME, var óumdeilt virkur stjórnarmaður í aflandsfélögum á vegum Landsbankans segir lögmaður sem mat hæfi hans. Gunnar hafi þó verið metinn hæfur þar sem hann hafi ekki átt þátt í viðskiptum sem voru til skoðunar. 
Lausn á skuldavanda heimilanna og lækkun skatta eru brýnustu viðfangsefni stjórnvalda. Lausnir núverandi ríkisstjórnar hafa ekki dugað til. Þetta kemur fram í drögum að stjórnmálaályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins.
Hægrimönnum er spáð yfirburðasigri í þingkosningum á Spáni á morgun.
Guðjón Arngrímsson, hugmyndamiðurinn á bak við miðaldakirkju í Skálholti, vísar gagnrýni á bygginguna á bug. Verði vel vandað til verka verði byggingin mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn. 
Kirkjuþing skorar á Alþingi að hafa ákvæði um íslenska þjóðkirkju í frumvarpi nýrrar stjórnarskrár. Slíkt ákvæði megi ekki fella brott án þess að leggja það fyrst í dóm þjóðarinnar.</description>
Hádegisfréttir 18.nóvember 2011
      <description>Gunnar Andersen, forstjóri fjármálaeftirlitsins, hafnar því alfarið að hann sé óhæfur til að gegna embætti forstjóra.
Tyrknesk stjórnvöld óttast að átökin í Sýrlandi snúist upp í borgarastyrjöld. Frakkar vilja hertar aðgerðir gegn Sýrlandsstjórn.  Bandaríkjamenn útiloka ekki hernaðaríhlutun í Sýrlandi.
Forysta Sjálfstæðisflokksins lýsti áhyggjum á landsfundi í morgun af því að lífeyrissjóðir væru orðnir mjög umsvifamiklir á íslenskum fyrirtækjamarkaði. Landsfundi var framhaldið í morgun.
Þeir sem þurfa á þjónustu sjúkraþjálfara að halda borga nú þriðjungi meira en áður. Til stendur að ná fram 150 milljóna króna sparnaði til viðbótar með því að færa kostnað frá ríki til sjúklinga á næsta ári segja sjúkraþjálfarar.
Nóbelsverðlaunahafinn Aung San Suu Kyi, sem sat í stofufangelsi í 15 ár í Búrma, ætlar að gefa kost á sér í næstu þingkosningum í landinu. Lýðræðishreyfing hennar verður skráð sem stjórnmálaflokkur og er það talinn mikilvægur liður í lýðræðisumbótum í landinu.
Þrettán þúsundum færri hraðakstursbrot hafa verið skráð það sem af er ári en á sama tímabili í fyrra. Fækkunina má að hluta til rekja til bilana í hraðamyndavélum lögreglunnar. 
Vésteinn Ólason, fyrrverandi prófessor og forstöðumaður Árnastofnunar segir að hugmyndir um að reisa eftirlíkingu af miðaldakirkju í Skálholti séu til marks um smekkleysi og rugl.
Veðurhorfur: Austlæg átt, yfirleitt 3-10 m/s og smávæta austantil á landinu. Víða rigning í kvöld og nótt, en úrkomuminna á morgun. Hiti 1 til 8 stig.</description>
Hádegisfréttir 17.nóvember 2011
      <description>Endurheimtur í þrotabú Landsbankans jukust um 12 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi þessa árs. Það er um 25 milljörðum króna meira en sem nemur forgangskröfum.
Nánast öll stjórnarandstaðan hundsaði atkvæðagreiðslu um fjáraukalög þessa árs á Alþingi í morgun. Tveir stjórnarliðar sátu hjá. Frumvarpið varð að lögum með 29 atkvæðum.
Allt svigrúm sem Sjúkratryggingar Íslands höfðu á þessu ári, til að semja um aukna endurgreiðslu vegna tannlækninga barna, var skorið niður þegar aukafjárlög voru samþykkt á Alþingi í morgun. 
Matur hefur hækkað umtalsvert í verði í verslunum Bónus, Krónunnar og Nettó á rúmu ári. Samkvæmt verðkönnun ASÍ hefur verð á lambalæri hækkað um 40 prósent. 
Engin innistæða virðist fyrir ásökunum á hendur fjármálaráðherra þess efnis að hann hafi staðið í viðskiptum við venslamenn sína þegar samþykkt var að ríkið keypti jarðir af Reykjanesbæ. Þingmaður Framsóknarflokksins hélt þessu fram á þingi.
Alvarlegt er að hafa augljóslega falsað málverk á uppboði, segir forvörður. Hann segir að sérfræðingar danska uppboðsfyrirtækisins Lauritz ættu að sjá að verkið sem merkt er Svavari Guðnasyni sé falsað. 
Hlutabréf lækkuðu í Evrópu og Asíu í morgun, og gengi evrunnar féll, vegna ótta fjárfesta um að skuldakreppa Evrópuríkja  sé að breiðast út til fleiri ríkja, jafnvel Frakklands. 
Sinfóníuhljómsveit Íslands kynnti í morgun gullmola klassískrar tónlistar fyrir yngri kynslóðinni. Börnin urðu mörg hver fyrir miklum hughrifum.
Rakel Dögg Bragadóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í handbolta meiddist í leik með Levanger í Noregi í gærkvöldi og óttast er að hún missi af Heimsmeistaramótinu í næsta mánuði af þeim sökum.  
Veðurhorfur: Austlæg átt fimm til til metrar, en heldur hvassara við suðurströndina í dag. Súld eða rigning með köflum, en úrkomulítið norðanlands. Hiti yfirleitt þrjú til átta stig.</description>
Hádegisfréttir 16.nóvember 2011
      <itunes:author>Arnar Páll Hauksson</itunes:author>
      <description>Stór hluti allra fjárfestinga og skuldbindinga Orkuveitu Reykjavíkur á árunum 2007 og 2008 flokkast nú sem tapað fé. Þetta kemur fram í skýrslu um Orkuveituna, þar sem fyrri stjórn og stjórnendur  eru gagnrýnd harðlega fyrir áhættusækni, fyrirhyggjuleysi í aðdraganda efnahagshrunsins, og lausung í áætlunargerð.
Íslenskur maður sem fór í krabbameinsmeðferð í Frakklandi segist ekki hafa þurft að borga fyrir meðferðina. Það sama átti ekki við um systur hans sem var í krabbameinsmeðferð á Íslandi.
Formaður velferðarnefndar Alþingis dregur í efa lögmæti þess að sjúkrahús innheimti komugjöld vegna rannsókna sem eru hluti af aðgerðum. Þessi breyting hafi orðið til þess að hækka verulega kostnað sjúklinga við krabbameinsmeðferð.
Búist er við að Mario Monti kynni nýja ríkisstjórn sína á Ítalíu á hverri stundu. Ávöxtunarkrafa á ítölskum skuldabréfum hefur lækkað í dag eftir inngrip evrópska seðlabankans.
Vígslubiskupi í Skálholti líst vel á hugmyndir um að endurreisa miðaldadómkirkju á staðnum. Þess þurfi þó að gæta að byggingin skyggi ekki á Skálholtskirkju eða spilli ásýnd staðarins.
Lögmaður konunnar, sem ákærð hefur verið fyrir að deyða barn sitt og skilja það eftir í ruslagámi, krafðist yfirmats á sakhæfi hennar við fyrirtöku málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Dómari samþykkti það. Lögmaðurinn fór einnig fram á að réttarhöldin verði lokuð.
Kveikt var í nýbyggingu við Bergstaðastræti í tíunda skipti í nótt. Íbúar eru margir uggandi og reyna að vakta húsið.
Írland, Króatía, Portúgal og Tékkland bættust í gær í hóp þeirra sextán þjóða sem leika á Evrópumótinu í knattspyrnu í Póllandi og Úkraínu næsta sumar. 
Veðurhorfur: Suðaustan átta til þrettán metrar með suðvesturströndinni í dag en þrír til tíu í öðrum landshlutum. Súld eða rigning sunnan og vestanlands fram eftir degi, annars úrkomulítið en þokuloft austantil. Vaxandi austanátt suðaustantil í fyrramálið og rigning sunanlands en hægviðri og þurrt að mest nyrðra. Hiti víða sex til tólf stig en þrjú til níu á morgun, mildast syðst.</description>
Hádegisfréttir 15.nóvember 2011
      <description>Afar brýnt er að setja þak á heilbrigðiskostnað fólks segir fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í velferðarnefnd alþingis. Koma þurfi í veg fyrir að fólk borgi hundruð þúsunda á ári eins og nú séu dæmi um. 
Óábyrg útlánastarfsemi kínverskra banka og afskipti stjórnvalda, valda því að fyrirtæki og sveitarfélög í landinu, standa vart undir skuldum. Þetta er niðurstaða nýrrar skýrslu alþjóðagjaldeyrissjóðsins um Kína.
Um sjötíu prósent af auknu virði eigna Landsbankans og Arion banka, eða um áttatíu milljarðar króna, hafa runnið í vasa erlendra kröfuhafa. Erlendir sjóðir, þar með taldir vogunarsjóðir með skammtíma gróðasjónarmið, eru þeirra á meðal.
Íslendingar nota tvöfalt meira vatn en aðrar þjóðir. Tekjur af vatnsauðlindinni nema 65 milljörðum króna á ári samkvæmt nýrri skýrslu.
Fjórir sjómenn hafa verið dæmdir í skilorðsbundið fangelsi fyrir að særa blygðunarsemi þrettán ára skipsfélaga síns.
Kirkjuþing hefur tekið fyrir tillögu þess efnis, að eingöngu konur geti hlotið biskupsvígslu fram til ársins 2017. Tillagan hlaut dræmar undirtektir, og var tekin út af dagskrá í gær.
Þingmaður segir óboðlegt að kergja í samskiptum sjúkratrygginga og tannlækna valdi því að börn víða á landsbyggðinni fái ekki ókeypis forvarnarskoðun hjá tannlækni.
Karlalið Gróttu, HK og Vals tryggðu sér í gærkvöld, sæti í átta liða úrslitum bikarkeppni HSÍ í handknattleik.
Veðurhorfur: Sunnan þrír til tíu metrar og vætusamt sunnanlands, annars þurrt að kalla. Suðaustan átta til þrettán með suðvesturströndinni á morgun, annars hægari vindur. Dálítil súld eða rigning sunnan og vestantil fram eftir degi, annars úrkomulítið. Sex til tólf stiga hiti.</description>
Hádegisfréttir 14.nóvember 2011
      <description>Allir helstu stjórnmálaflokkar á  Ítalíu nema einn heita því að styðja ríkisstjórn sem Mario Monti vinnur nú að að mynda. Gengi hlutabréfa hefur hækkað á Ítalíu í morgun
Gangi Ísland í Evrópusambandið þarf að auka stuðning til bænda um allt að sex milljarða á ári samkvæmt nýrri úttekt. Verð á sumum landbúnaðarafurðum myndi hins vegar lækka um tugi prósenta.
Velferðarnefnd Alþingis hyggst ræða aukið eftirlit með hættulegum barnaníðingum við velferðarráðherra á næstu dögum. Formaður nefndarinnar gagnrýnir að lögreglan sinni ekki alltaf skyldu sinni að tilkynna barnaverndaryfirvöldum þegar grunur leikur á um brot gegn börnum.
Fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik viðurkenndi við réttarhöld í morgun að hann hefði myrt 77 manns í sprengjutilræði Ósló og fjöldamorðunum í Útey 22. júlí. Hann neitar því hins vegar að hafa framið refsivert athæfi.
Augljós pólitísk fingraför eru á þingsályktunartillögu um vernd og nýtingu náttúrusvæða á Íslandi að mati Samtaka iðnaðarins. Pólitísk afskipti auki líkur á að ekki verði sátt um niðurstöðuna. 
Kemísk efni eru mun algengari í barnaherbergjum en annars staðar á heimilum fólks. Barnaherbergið er mengaðasta herbergi íbúðarinnar segja sérfræðingar.
13 Íslandsmet féllu á Íslandsmeistaramótinu í sundi í 25 metra laug um helgina. 16 ára stúlka, Eygló Ósk Gústafsdóttir setti fjögur þeirra.
Veðurhorfur: Suðaustan tíu til átján metrar, en átta til þrettán á norður- og austurlandi. Víða rigning eða súld, en þurrt að kalla norðaustanlands. Dregur smám saman ur vindi á morgun. Sjö til fjórtán stiga hiti, hlýjast fyrir norðan.</description>
Hádegisfréttir 13.nóvember 2011
      <itunes:author>Arnar Páll Hauksson</itunes:author>
      <description>Forseti Ítalíu er í kapphlaupi við tímann að tryggja að mynduð verði ný stjórn á Ítalíu áður en opnað verður fyrir viðskipti á mörkuðum í fyrramálið. Berlusconi, fráfarandi forsætisráðherra, baðst lausnar í gærkvöldi. Hann segist stoltur af því hvernig hann hafi staðið sig í skuldakreppunni.
Útskrift úr greiðslukorti sænska ferðamannsins sem lést á Sólheimajökli breytti stöðu leitarinnar að honum. Þá fyrst kom í ljós að hann hafði leigt bíl til að komast austur.
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, íhugar að áfrýja dómi alríkisdómstóls í Bandaríkjunum þess efnis að Twitter beri að afhenda bandaríska dómsmálaráðuneytinu tölvugögn hennar. Hún vonast jafnframt til að málið verði tekið upp á vettvangi Evrópuráðsins.
Uppfæra þarf félagslega stuðningskerfið miðað við raunveruleikann eins og hann er, segir framkvæmdastjóri Öryrkjabandalagsins. Í umsögn með nýju lagafrumvarpi sé vísað í reglugerð, sem í raun nýtist sárafáum.
Mitt Romney og Newt Gingrich sögðu í kappræðum Repúblikana í gærkvöldi að þeir væru tilbúnir að beita hervaldi gegn Íran - kæmust þeir í Hvíta húsið.
Forstöðumaður Fornleifaverndar ríkisins segir að stofnunin geti ekki sinnt sínu lögbundna hlutverki sökum fjárskorts. Lítill skilningur sé á málaflokknum.</description>
Hádegisfréttir 12.nóvember 2011
      <itunes:author>Arnar Páll Hauksson</itunes:author>
      <description>Sænski ferðamaðurinn sem leitað hefur verið að síðan á miðvikudag fannst meðvitundarlaus ofan í sprungu á Sólheimajökli nú um hádegisbilið. Læknir er nú að skoða manninn.
Nýr biskup verður kosinn snemma næsta árs og vígður í embætti í júní. Karl Sigurbjörnsson tilkynnti á kirkjuþingi í dag að hann hyggist láta af embætti næsta sumar.
Neðri deild ítalska þingsins fjallar nú í hádeginu um efnahagsfrumvarp, sem Evrópusambandið krefst að Ítalir samþykki. Gengið er að því vísu að Berlusconi forsætisráðherra láti af embætti þegar það hefur verið samþykkt og að bráðabirgðastjórn taki við völdum.
Búist er við að það verði fullt út úr dyrum í héraðsdómi í Ósló eftir helgi þegar fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik kemur þar fyrir dómara í fyrsta sinn í opnu þinghaldi. Fólk ætlar að tjalda fyrir utan dómshúsið til að tryggja sér sæti.
Kínverski fjárfestirinn Huang Nubo býst við niðurstöðu fljótlega vegna fyrirhugaðra kaupa sinna á Grímsstöðum á Fjöllum. Hann telur áttatíu prósent líkur á að kaupin gangi í gegn.
Kvikmyndin Amma Lo-Fi (Ló-Fæ) fékk verðlaun á kvikmyndahátíð í Kaupmannahöfn í gærkvöld. Myndin fjallar um tónlistarkonuna Sigríði Níelsdóttur sem byrjaði að semja lög á áttræðisaldri. 
Sundkonan Eygló Ósk Gústafsdóttir úr Ægi bætti í morgun eigið Íslandsmet í 100 metra baksundi á Íslandsmótinu í 25 metra laug sem nú stendur yfir í Laugardalslaug.</description>
Hádegisfréttir 11.nóvember 2011
      <description>Götuvirði fíkniefnanna sem smyglað var til landsins með gámi í október er áætlað 300 milljónir króna.  Í gáminum voru E-töflur, amfetamín, kókaín og sterar. 
Björgunarsveitarmenn hafa fundið spor á Sólheimajökli sem gætu verið eftir sænska ferðamanninn. Leitin hefur þó enn engan árangur borið. 
Ríkið kaupir jarðir og jarðhitaauðlindir af Reykjanesbæ fyrir einn komma tvo milljarða króna. Ríkið á með kaupunum allar auðlindir sem HS orka nýtir fyrir Reykjanesvirkjun
Knut Storberget dómsmálaráðherra Noregs sagði af sér í morgun.  Hann hefur sætt gagnrýni eftir hryðjuverkin í sumar.
Öldungadeild ítalska þingsins samþykkir í dag lagafrumvarp um efnahagslegar neyðaraðgerðir.  Gert er ráð fyrir að neðri deildin afgreiði fumvarpið á morgun,  Berlusconi segi þá af sér og bráðabirðastjórn verði mynduð.
Hagspár benda til þess að fjárfestingar árið tvö þúsund og fjórtán verði mun minni en stjórnvöld stefna að í yfirlýsingu vegna kjarasamninga. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Samtaka atvinnulífsins.
Ellefu, ellefu, ellefu eru upphafskennitölur barna sem fæðast í dag, 11. nóvember. Öfugt við það sem margir telja láta fá pör pússa sig saman í dag. 
Þrjú Íslandsmet féllu á fyrsta keppnisdegi Meistaramóts Íslands í 25 metra laug í sundi sem hófst í Laugardalslaug í gærkvöld.
Veðurhorfur: Suðaustan fimm til tíu metrar og stöku skúrir vestantil, en fer að rigna suðaustanlands. Austan átta til átján síðdegis, hvassast syðst. Minnkandi austanátt á morgun og væta af og til, einkum suðaustanlands. Hiti þrjú til tíu stig.</description>
Hádegisfréttir 10.nóvember 2011
      <description>Á þriðja hundrað björgunarsveitarmenn leita að 25 ára Svía sem er týndur á Fimmvörðuhálsi eða í grennd. Leit hefur staðið yfir frá því seint í gærkvöld. Spáð er versnandi veðri á leitarsvæðinu. 
Loðnuvinnslan á Fáskrúðsfirði og sveitarfélagið Hornafjörður krefjast þess að flutningaskipið Alma verði kyrrsett. Krafist er tryggingar vegna björgunarlauna. 
Svört hagspá Evrópusambandsins gerir ráð fyrir stöðnun og nánast engum hagvexti á næstunni. Ekki sé hægt að útiloka kreppu. Þjóðverjar og Frakkar eru sagðir ræða róttækar breytingar á evru-samstarfinu. 
Fjármálaráðherra segir engum sérstökum hrifningarbjöllum hringja hjá sér, ef selja á Grímsstaði á Fjöllum til utanaðkomandi aðila. Hann viðurkennir að málið hreyfi við tilfinningum sínum. 
Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis ætlar að krefja Fjármálaeftirlitið skýringa á undanþágum, sem stofnunin hefur veitt bönkunum frá lögum, sem bannar þeim að eiga fyrirtæki lengur en í eitt ár.
Breskir vísindamenn hafa uppgötvað hvernig lífshættulegt malaríusmit berst um líkamann. Líkurnar hafa aukist á að nothæft bóluefni finnist.
Rannsóknarnefnd kaþólsku kirkjunnar á Íslandi byrjar að taka viðtöl við fólk í lok mánaðarins vegna ásakana um að starfsmenn kirkjunnar hafi framið ofbeldisbrot.
Haukar skelltu toppliði KR í úrvalsdeild kvenna í körfubolta í gærkvöld. Þetta var fyrsta tap KR á tímabilinu.
Veðurhorfur: Austan- og suðaustan tíu til átján metrar og rigning eða súld, en hægari, skýjað og þurrt að mestu norðaustanlands. Talsverð rigning um tíma suðaustantil í dag. Fimm til tíu stiga hiti, svalast um landið norðanvert.</description>
Hádegisfréttir 09.nóvember 2011
      <description>Óskýr lagaákvæði eru ástæða þess að fimm hundruð milljóna króna kröfu á hendur Karli Wernerssyni var vísað frá Héraðsdómi í gær. 
Húsafriðunarnefnd hefur ákveðið að grípa til skyndifriðunar Skálholtsskóla, Skálholtskirkju og nánasta umhverfis. Framkvæmdir við endurbyggingu Þorláksbúðar  verða því stöðvaðar.
Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu segist ekki að bjóða sig fram í næstu þingkosningum, sem talið er að verði haldnar í byrjun næsta mánaðar. Forsætisráðherrann lofaði því í gær að láta af embætti innan tíðar. 
Forsendur Vaðlaheiðarganga verða endurmetnar af Ríkisendurskoðun. Þetta ákvað Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis í morgun. 
Ferðalangar geta keypt flugmiða frá keflavík til Lundúna og til baka fyrir tæpar 11 þúsund krónur.  Þetta fullyrðir  Breska flugfélagið EasyJet sem ætla að að hefja flug hingað til lands næsta vor.
Íranar ætla ekki að breyta um stefnu í kjarnorkumálum þrátt fyrir ásakanir um að þeir hafi að undanförnu unnið að þróun kjarnorkuvopna. Frakkar leggja til að gripið verði til áður óþekktra diplómatískra aðgerða sjái Íranar ekki að sér.
Minni heyfengur veldur því að sumir hrossabændur í Skagafirði neyðast til að fækka hrossum sínum fyrir veturinn. 
Oddviti vinstri grænna í Reykjavík gagnrýnir meirihlutann í borgarstjórn fyrir að hafa tekið gæluverkefni fram yfir börn á biðlista eftir leikskólaplássi.
Íslenskar orkurannsóknir og Jarðboranir eru að hefja rannsóknir á nýtingu jarðhita til rafmagnsframleiðslu í Dóminíku í Karíbahafi. Verkefninu má líkja við hitaveituvæðinguna hérlendis, segir jarðfræðingur hjá Íslenskum orkurannsóknum. 
Veðurhorfur: Austan- og suðaustanátt, fimm til þrettán metrar og rigning eða súld, en þurrt að mestu norðaustanlands. Hvessir sunnantil í kvöld. Fimm til tíu stiga hiti.</description>
Hádegisfréttir 08.nóvember 2011
      <description>Afar brýnt er að komið sé á virkum framsalssamningum milli Íslands og annarra landa að mati aðstoðarlögreglustjóra. Slíkur samningur sé forsenda þess að hægt sé að takast á við alþjóðlega glæpastarfsemi. 
Reykjavíkurborg metur nú hvort svigrúm sé til þess að taka börn, fædd snemma á árinu 2010 inn í leikskóla á fyrri hluta næsta árs. 
Jarðskjálfti upp á þrjá komma fimm varð í suðurjaðri Kötluöskju rétt fyrir klukkan tíu í morgun. Skjálftinn fannst greinilega í Vík og víðar í Mýrdal. Engan gosóróa er að sjá á mælum Veðurstofunnar. 
Vaðlaheiðargöng standa undir sér ef gjald í göngin verður um þúsund krónur fyrir fólksbíl, og níutíu prósent af þeirri umferð sem nú fer um Víkurskarð, fer um göngin. Þetta kemur fram í greinargerð stjórnar Vaðlaheiðarganga
Sjávarútvegsráðherra hefur miklar áhyggjur af því ef verkfall undirmanna á skipum Hafrannsóknarstofnunar dregst enn frekar. Hann er þó vongóður um að samningar takist.
Atkvæði verða greidd um björgunar- og niðurskurðaráætlun ítölsku stjórnarinnar á þingi í dag. Hugsanlegt er að Berlusconi missi meirihluta sinn.
Forstjóri Landsvirkjunar er ósammála því að Urriðafossvirkjun muni hafa mjög neikvæð áhrif á fiskistofna í Þjórsá. Landsvirkjun ætlar að kaupa upp veiðiréttindi í ánni.
Framtakssjóður Íslands hefur selt 10% hlut sinn í Icelandair Group fyrir 2,7 milljarða króna. Sjóðurinn keypti 30% hlut á 3,6 milljarða í fyrra, og hagnast því vel á sölunni.
Veðurhorfur: Sunnan- og suðaustan tíu til tuttugu metrar, hvassast vestast en suðaustan fimm til tíu undir kvöld. Rigning eða súld sunnan og vestanlands annars úrkomulítið. Hiti átta til fimmtán stig, hlýjast fyrir norðan, en fimm til tíu á morgun.</description>
Hádegisfréttir 07.nóvember 2011
      <description>Ungt barnafólk er sá hópur sem helst flytur af landi brott samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Allt bendir til þess að brottflutningur frá landinu verði áfram mikill á þessu ári, en í fyrra fluttu ríflega 2000 fleiri frá landinu en til þess.  
Tugmilljóna króna björgunarlaun gætu fallið í skaut útgerðar Hoffellsins og skipverja, og hafnsögumanna á Hornafirði, fyrir að bjarga flutningaskipinu Ölmu um helgina. Verðmæti skips og farms er metið hátt á annan milljarð króna. 
Innanríkisráðherra segir að Vaðlaheiðargöng verði að standa undir sér, eigi þau að verða að veruleika. Þau væru ekki framarlega í forgangsröðinni ef þau væru sett í samgönguáætlun.
Lucas Papademos fyrrverandi seðlabankastjóri í Grikklandi er nú talinn líklegastur til þess að verða forsætisráðherra nýrrar þjóðstjórnar allra flokka sem verið er að mynda í Grikklandi.
Peres forseti Ísraels segir að hervaldi kunni að verða beitt til að stöðva kjarnorkuáform Írana. Ný skýrsla alþjóða kjarnorkumálastofnunarinnar  sem verður birt í dag eða á morgun sýnir að  Íranar geta  smíðað kjarnorkusprengju innan nokkurra mánaða.
Björgunarsveitarmenn um land allt seldu  Neyðarkalla fyrir 90 milljónir króna um helgina. 
Guðjón Þórðarson hefur verið ráðinn þjálfari úrvalsdeildarliðs Grindavíkur í knattspyrnu til næstu þriggja ára.
Veðurhorfur: Fyrst viðvörun: Búist er við stormi, meira en tuttugu metrum, á landinu. Spáin er annars þessi: Vaxandi suðaustanátt með rigningu eða súld, fimmtán til tuttugu og fimm metrar seinnipartinn, hvassast og talsverð úrkoma á suð-vestur- og vesturlandi. Lægir mjög á morgun. Hlýnandi veður eða sex til þrettán stiga hiti í kvöld.</description>
Hádegisfréttir 06.nóvember 2011
      <itunes:author>Aðalbjörn Sigurðsson</itunes:author>
      <description>Flutningaskipið Alma lagðist að bryggju á Fáskrúðsfirði um klukkan fjögur í nótt, tæpum sólarhring eftir að það missti stýrið við Hornafjörð. Slæmt veðurútlit varð til þess að ekki var farið á Reyðarfjörð eins og til stóð í fyrstu. 
Sveitir Sýrlandsstjórnar hafa fellt hátt í þrjátíu mótmælendur um helgina. Fjöldi fólks hefur safnast saman í dag til að krefjast lýðræðis og afsagnar Sýrlandsforseta.
Bæjarstjóri Ölfuss gagnrýnir að sveitarfélög þurfi að greiða allan kostnað með börnum sem koma í varanlegt fóstur í sveitarfélag á meðan sveitarfélagið sem barnið kemur úr sleppur við allan kostnað.
Epli.is sýndi einbeittan vilja til að blekkja neytendur með fullyrðingum um víruslausar tölvur að mati Neytendastofu - sem hefur sektað fyrirtækið fyrir athæfið. 
Nemendur í 10. bekk í Dalabyggð komu lakast út úr samræmdum prófum í haust. Nemendur í Flóahreppi voru bestir í íslensku og stærðfræði en enskan var best í Ölfusi. 
Laun sumra sveitarstjórnarmanna endurspegla ekki þá miklu vinnu sem þeir leggja á sig. Bæjarfulltrúi á Fljótsdalshéraði segir að óbein krafa um sjálfboðavinnu geti útilokað ákveðna hópa frá þátttöku í sveitarstjórnum.
Útlit er fyrir að jólagjafirnar í Danmörku verði ódýrari en í fyrra. Veltan í smásöluverslun dregst stöðugt saman.
25 ár eru í dag síðan Sir Alex Ferguson tók við stjórnartaumunum hjá Manchester United. Í gær var tilkynnt að Norðurstúkan á Old Trafford, heimavelli United muni hér eftir bera nafn Fergusons.</description>
Hádegisfréttir 04.nóvember 2011
      <itunes:duration>25:00</itunes:duration>
      <description>Tæplega fjögur þúsund tonna flutningaskip var í bráðri hættu úti fyrir Hornafjarðarhöfn í nótt, þegar það missti stýrið. Árvekni hafnsögumanna varð til þess að skipið var strax dregið frá landi. Nú er aftur verið að reyna að koma taug um borð í skipið, eftir að hún slitnaði í morgun. 
Samningaviðræður um myndun nýrrar samsteypustjórnar í Grikklandi hefjast innan skamms. Georg Papandreou forsætisráðherra tókst í gærkvöldi að verja ríkisstjórn sína falli. Talið er að hann verði eigi að síður að segja af sér.
Borgarfulltrúi Vinstri grænna sakar meirihlutann í borginni um ólýðræðisleg vinnubrögð og furðar sig á því að ákvörðun um að innrita ekki í leikskóla börn fædd í fyrra - hafi hvorki verið tekin á vettvangi borgarráðs eða skóla- og frístundaráðs. 
Á annað hundrað fyrirtækji í óskyldri starfsemi eru í eigu bankanna, og eftirlitsstofnanir hafa ítrekað veitt bönkunum undanþágu frá lögum til að eiga fyrirtæki lengur en eitt ár. Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda segir stöðuna mikið áhyggjuefni.
Óvíst er um síðari umferð forsetakosninganna í Líberíu í næstu viku eftir að annar frambjóðandinn gefur ekki lengur kost á sér. Forseti landsins sakar hann um stjórnarskrárbrot.
Ungt fólk hefur hvorki áhuga á að starfa né mennta sig innan greina sem tengjast sjávarútvegi. Lektor við auðlindadeild Háskólans á Akureyri segir að skólakerfið verði bæta úr þessu.
Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann í gærkvöld, 9 marka sigur á pressuliðinu í Laugardalshöll.</description>
Hádegisfréttir 04.nóvember 2011
      <description>Nýleg stýrivaxtahækkun setur efnahagsbatann ekki á hliðina að mati seðlabankastjóra. Hann segir mikið þurfa að koma til svo stýrivöxtum verði breytt á næstunni. 
Gríska stjórnin hefur aðeins eins þingsætis meirihluta fyrir atkvæðagreiðslu um vantraust í gríska þinginu í dag. Margir spá stjórninni falli og að mynduð verði þjóðstjórn.
Sérstakur saksóknari hyggst fjölga starfsmönnum til að mæta auknum málafjölda, en yfir tvö hundruð mál eru nú til rannsóknar hjá embættinu. Stefnt er að því að rannsókn tíu mála ljúki fyrir áramót.
Eftir áramót verður ekki lengur hagstætt að nota steinolíu á dísilbíla því ef veggjöld leggjast á verð hennar verðu hún dýrari en díselolían.
Útvegsmenn staðhæfa að níu milljarða aflagjald af makrílveiðum myndi þurrka út allan hagnað af veiðunum. Þeir segja að sjávarútvegsfyrirtækin hafi átt frumvæði að makrílveiðum og þannig skapað veiðirétt Íslendinga.
Það er móðgun við landbúnað að láta einn dýralækni sinna bæði Austur og Vestur Húnavatnssýslu segir formaður Nautgriparæktarfélags á svæðinu. Velferð skepna sé stefnt í hættu.
Hitabylgjum mun fjölga og þær verða mun heitari að mati vísindamanna loftslagnefndar Sameinuðu þjóðanna. Spáð er fleiri flóðum og meiri þurrkum.
Grindvíkingar héldu áfram sigurgöngu sinni í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í gærkvöld en þá vann liðið Val með 10 stiga mun. Grindavík hefur unnið alla fimm leiki sína á Íslandsmótinu til þessa.
Veðurhorfur: Austlæg átt, átta til þrettán metrar og rigning eða súld með köflum, en hægari og úrkomulítið norðanlands. Snýst í suðvestan tíu til fimmtán með skúrum eða slydduéljum vestantil í fyrramálið, en birtir til fyrir austan. Hiti víða fimm til tíu stig í dag, en kólnar á morgun, einkum um landið vestan og norðanvert.</description>
Hádegisfréttir 03.nóvember 2011
      <description>Framleiðsla á stórhættulegu afbrigði af amfetamíni, metamfetamíni, færist í vöxt á Íslandi.
Talið er að Bretar, Bandaríkjamenn og Ísraelar ætli að gera loftárásir á kjarnorkuver í Íran í næstu viku. Aðeins sé beðið eftir skýrslu um kjarnorkuáætlun Írana, sem birt verður á þriðjudaginn.
Varaformaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis vill að fram fari opinber rannsókn á innkaupum ríkislögreglustjóra.
Leiðtogar 20 helstu efnahagsvelda heims funda í Cannes í dag og ræða m.a. skuldakreppuna í Evrópu og aðgerðir til að koma í veg fyrir heimskreppu.
Gríska ríkisstjórnin var nálægt því að missa meirihluta sinn í morgun þegar ráðherrar og þingmenn kröfðust þess að hætt yrði við þjóðaratkvæðagreiðslu um kreppuaðgerðir og að mynduð yrði þjóðstjórn.
Fjöldi fólks er reiðubúinn til að fara austur á land til að hreinsa upp ónýtar girðingar til að koma í veg fyrir að hreindýr festist í þeim, þetta segir formaður Náttúruverndarsamtaka Austurlands
Landssambandi veiðifélaga líst illa á áform um laxeldi með norsk-ættuðum laxi í Reyðarfirði. Óttast er að allt að sex þúsund laxar geti sloppið úr kvíunum árlega. 
Hæsta stöðuvatn landsins er Blávatn á Oki,  1114 metra yfir sjávarmáli. Það er jafnframt nýjasta stöðuvatnið, myndaðist vegna hlýnunar fyrir fimm árum.
Veðurhorfur: Norðaustan þrettán til tuttugu metrar í fyrstu á Vestfjörðum en síðan átta til fimmtán. Annars austan og suðaustan fimm til þrettán. Rigning með köflum en úrkomulítið á Norðurlandi. Hiti tvö til tíu stig.</description>
Hádegisfréttir 02.nóvember 2011
      <description>Seðlabankinn hækkaði vexti um fjórðung úr prósenti í morgun. Seðlabankastjóri segir að vextirnir séu nú hækkaðir vegna verðbólgunnar - ekki vegna efnahagsbatans.
Forseta Alþýðusambandsins er brugðið vegna ákvörðunar Peningastefnunefndar um hækkun stýrivaxta.  Hann segir að það sæti furðu að Seðlabankinn reyni að slá á þenslu, á meðan heimurinn glími við að koma hagkerfunum aftur í gang. 
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag einn af fyrrverandi stjórnendum Kaupþings til að endurgreiða lán upp á tvo komma sex milljarða króna, sem hann hafði fengið til hlutabréfakaupa. Dómurinn rifti niðurfellingu persónulegrar ábyrgðar á láninu.  
Gengi hlutabréfa á mörkuðum í Evrópu lækkaði enn í morgun eftir verðfall sem varð í gær vegna þeirrar ákvörðunar grísku stjórnarinnar að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðgerðir gegn kreppunni.
Verslunareigandi á Akureyri hefur kært Landsbankann fyrir þjófnað. Það sé eina ráðið til að fá bankann til að semja um uppgjör á erlendu láni. 
Endurreisn hlutabréfamarkaðar á Íslandi er gríðarlega mikilvæg til að efla atvinnulífið segir forstjóri Kauphallarinnar. Nokkur fyrirtæki stefna á skráningu í Kauphöllinni á næstunni. 
Áfrýjunardómstóll í Lundúnum úrskurðaði í morgun að ekkert væri því til fyrirstöðu að framselja Julian Assange, stofnanda vefsíðunnar Wikileaks, til Svíþjóðar. 
Bakkavör Group var stærsta fyrirtæki landsins í fyrra, eins og árið áður, samkvæmt úttekt Frjálsrar verslunar. Útgerðarfyrirtækin greiða hæstu launin og fjármálafyrirtækin hagnast mest.
Veðurhorfur: Norðaustan þrettán til tuttugu metrar, hvassast um landið norðvestanvert. Snjókoma norðvestantil, og slydduél eða él norðan og norðaustanlands en skýjað með köflum syðra. Snýst í suðaustan tíu til fimmtán í fyrramálið, fyrst suðaustantil. Hægt hlýnandi veður, hiti eitt til átta stig á morgun.</description>
isfréttir 01.nóvember 2011
      <description>Ríkissaksóknari hefur ákært karlmann fyrir að kaupa vændi af fjórtán ára dreng. Rannsóknin beindist að þremur mönnum.
Gengi hlutabréfa féll í Evrópu í morgun. Ákvörðun grísku ríkisstjórnarinnar að boða til bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu um björgunaraðgerðir Evrópusambandsins veldur uppnámi á mörkuðum.
Formaður Félags leigumiðlara segir þrjú til fimm hundruð leiguíbúðir vanti á höfuðborgarsvæðinu. Hann telur að það myndi bæta ástandið til muna ef bankarnir settu íbúðir sínar í leigu í stað þess að selja þær strax.
Forstjóri Alcoa segir ekki rétt hjá forstjóra Landsvirkjunar að viðræður fyrirtækjanna um álver á Bakka hafi einungis verið á frumstigi. Alcoa-stjórinn segir að mótaðar hugmyndir hafi legið fyrir um verð. 
Bið eftir leikskólaplássi reynist ungu fólki afar dýr. Ráðamenn verða að huga betur að aðstæðum foreldra, segir móðir á biðlista.
Framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands segir að vegna minnkandi tekna frá spilakössum gætu samtökin þurft að leggja niður Vin - athvarf fyrir geðfatlaða við Hverfisgötu í Reykjavík. Rauði krossinn eigi einnig erfitt með að reka sjúkrabíla landsins. 
Að minnsta kosti fimm hreindýr hafa drepist eftir að hafa flækst í ónýtri girðingu á Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu. Bæjarstjóri Hornafjarðar segir ágang hreindýra á þessu svæði svo mikinn að erfitt geti verið að halda við girðingum sem hreindýrin skemma. 
Fimleikakonan Íris Mist Magnúsdóttir úr Gerplu sem var í þriðja sæti í kjörinu á Íþróttamanni ársins 2010 sleit hásin um helgina og missir af Norðurlandamótinu í hópfimleikum.
Veðurhorfur: Norðaustan þrettán til tuttugu metrar, hvassast norðanlands. Snjókoma eða éljagangur norðvestantil, og slydduél eða él norðan- og norðaustanlands en lettskýjað syðra. Frá frostmarki að sex stigum, kaldast fyrir norðan.
Danir munu leggja höfuð-áherslu á að skapa ró um efnahagsmál í Erópusambandinu í formennskutíð sinni sem hefst um áramót. Forsætisráðherra Dana fagnar komu Íslands í sambandið.</description>
Hádegisfréttir 31.október 2011
      <description>Höfuðpaurinn í stærsta fíkniefnasmyglmáli, sem lögreglan hefur fengist við á árinu, verður yfirheyrður næstu daga. Hann og starfsmaður heildsölu sem flutti efnin inn eru í gæsluvarðhaldi. 
Formaður Hagsmunasamtaka heimilana segir að hugsanlega sé skynsamlegra að fara í gjaldþrot en að leita til Umboðsmanns skuldara. Umsóknum um greiðsluaðlögun hefur fækkað verulega frá því í fyrra.
UNESCO, menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, hyggst í dag taka ákvörðun um aðild Palestínu að stofnuninni. Bandarísk stjórnvöld hóta að hætta fjárveitingum til stofnunarinnar fái Palestína aðild. 
Gengi hlutabréfa lækkaði á mörkuðum í Evrópu í morgun. Atvinnuleysi fer vaxandi á evrusvæðinu og komst í 10 komma 2 prósent í september.
Kanna þarf sérstaklega hvers vegna tvöfalt fleiri konur eru öryrkjar en karlar. Þetta segir framkvæmdastýra Jafnréttisstofu sem hefur áhyggjur af kjörum þessa hóps. 
Sjö milljarðasti jarðarbúinn kom í heiminn seint í gærkvöld á sjúkrahúsi í Manila á Filippseyjum.
Miðborg Christchurch á Nýja Sjálandi er enn lokuð fyrir umferð að hluta, átta mánuðum eftir jarðskjálftann sem lagði miðbæinn í rúst. Íslensk kona sem býr í borginni segir að endurbyggingin gangi hægt.
Lundavarp misfórst í sumar en einungis fjórðungur stofnsins náði að koma upp ungum. Doktor í líffræði leggur til að lundaveiði verði bönnuð á landinu.
KR og Snæfell unnu í gærkvöldi leiki sína í fyrirtækjabikar karla í körfubolta en viðureignir beggja liða fóru í framlengingu. 
Veðurhorfur: Norðaustan fimmtán til tuttugu metrar og snjókoma norðvestantil, en annars mun hægari og úrkomulítið. Vaxandi norðanátt með rigningu austantil í kvöld.  Frá frostmarki að átta stigum, mildast syðst.</description>
Hádegisfréttir 30.október 2011
      <description>Milliríkjadeila vegna Icesave málsins er vonandi að leysast þar sem Hæstiréttur hefur staðfest neyðarlögin. Þetta er mat samningamanns Íslands í Icesavedeilunni sem segir dóminn gríðarstóran áfanga. 
Landsfundur Vinstri grænna greiðir atkvæði í dag gegn frekari niðurskurði í heilbrigðismálum og að málefni ellilífeyrisþega og öryrkja verði tekin til gagngerrar endurskoðunar. Grunnþjónusta eigi að vera í forgangi hjá ríkisstjórn félagshyggjuflokka.
Ærumeiðingar og mannorðsmorð í opinberri umræðu á Íslandi er alvarlegt samfélagsmein. Þetta segir biskup Íslands.
Pólitísk ákvörðun veldur því að borgaryfirvöld leyfa ekki innritun barna, sem fædd eru 2010, á leikskólum borgarinnar, jafnvel þótt þar séu laus pláss. Þetta segir leikskólastjóri. 
Grimmilegt er að láta foreldra standa undir sparnaði borgaryfirvalda, segir móðir drengs sem fær líklega ekki leikskólapláss fyrr en hann er tæplega þriggja ára gamall.
Frekar á að koma á auðlindargjaldi í sjávarútvegi en að skattleggja sérstaklega hagnað útfluttningsfyrirtækja af falli krónunnar. Þetta segir hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands. Sjávarútvegurinn þoli best frekari skattlagningu.
Útvarpsleikhúsið RÚV hreppti þriðja sætið fyrir besta leikna útvarpsverkið í Evrópu árið 2011 fyrir Djúpið eftir Jón Atla Jónasson. Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í Berlín í gærkvöld.
Veðurhorfur: Norðaustan fimmtán til tuttugu metrar og slydda norðvestantil, en síðar snjókoma. Annars mun hægari og víða rigning eða súld, en slydda í innsveitum norðanlands. Lægir og styttir víða upp sunnan og austanlands á morgun, en fer að rigna með kvöldinu. Hiti að tíu stigum, mildast syðst.</description>
Hádegisfréttir 29.október 2011
      <description>Maður á þrítugsaldri var stunginn í hálsinn með hnífi - í samkvæmi sem fór úr böndum í Mosfellsbæ í nótt. Þrjú ungmenni, 16 og 17 ára eru í haldi lögreglu.
Hollenski seðlabankinn og innstæðueigendur í föllnu bönkunum fagna niðurstöðu Hæstaréttar frá því í gær sem staðfestir gildi neyðarlaganna. Þeir segjast búast við fyrstu endurgreiðslum innan fárra vikna. 
Gríðarleg andstaða er við aðildarviðræður við Evrópusambandið á landsfundi Vinstri grænna á Akureyri. Nú fer fram kosning til formanns og hafa tveir boðið sig fram gegn Steingrími J.Sigfússyni. 
Hjörleifur Guttormsson segir að flokkurinn megi aldrei verða pólitískt ábyrgur fyrir því að gerður verði samningur um aðild að Evrópusambandinu.
Velferðarráðherra segir það mjög sársaukafullt að þurfa að skera niður á ákveðnum stöðum í heilbrigðiskerfinu, á meðan útgjöld aukast á öðrum. Forstjóri Landspítalans segir aukinn lyfjakostnað vega þyngst.
Alcoa á Íslandi á í viðræðum við Landsvirkjun um kaup á meiri raforku til að auka framleiðslugetu álversins á Reyðarfirði um fjörtíu þúsund tonn. Forstjóri Alcoa segir verkefnið ekki tengjast álveri á Bakka.
Allar farþegaþotur ástralska flugfélagsins Qantas hafa verið kyrrsettar vegna kjaradeilu. Stéttarfélög segja það fordæmislausa ákvörðun sem hafi gert þúsundir að strandaglópum um allan heim.
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson hefur tryggt sér sæti á öðru stigi úrtökumótanna fyrir bandarísku mótaröðina í golfi.  Grindavík er eitt í efsta sæti úrvalsdeildar karla í körfuknattleik eftir sigur á Tindastóli.</description>
Hádegisfréttir 28.október 2011
      <description>Rúmlega helmingur heimila á erfitt með að ná endum saman. Þetta sýna niðurstöður lífskjararannsóknar Hagstofu Íslands. Sláandi niðurstöður segir hagfræðingur ASÍ. 
Þrátt fyrir niðurskurð í heilbrigðismálum hafa heildarútgjöld til málaflokksins aukist, segir heilbrigðisráðherra. 
Niðurstaða Hæstaréttar síðar í dag getur ráðið því hvort Bretar og Hollendingar fá þrettán hundruð milljarða upp í Icesave kröfur sínar úr búi Landsbankans eða fjögurhundruð og fjörutíu milljarða. Hæstiréttur úrskurðar hvort neyðarlögin haldi gildi eða ekki.
Framkvæmdastjóri Deloitte segir fjárfestingu og nýsköpun minnka ef nýtt fiskveiðistjórnunarfrumvarp verður að lögum. Ástæðan er sú að fyrirtækin greiða þá frekar niður skuldir í stað þess að fjárfesta í öðrum atvinnugreinum.
Rjúpnaveiðitímabilið hófst í morgun. Áætlanir gera ráð fyrir að hver veiðimaður veiði um sex rjúpur.
Birgir Leifur Hafþórsson stendur vel að vígi fyrir fjórða og síðasta hringinn á úrtökumóti fyrir bandarísku mótaröðina í golfi.  Fram og Haukar eru efst og jöfn í úrvalsdeild karla í handknattleik.  
Veðurhorfur: Norðaustan fimm til tíu metrar og dálítil væta norðvestanlands, en hægviðri og þurrt að kalla. Vaxandi norðaustanátt í kvöld og fer að rigna suðaustanlands. Norðaustan tíu til átján á morgun, hvassast norðvestantil og víða rigning, en slydda í innsveitum fyrir norðan. Hiti eitt til átta stig, mildast syðst.</description>
Hádegisfréttir 27.október 2011
      <description>Leiðtogar Evrópuríkjanna náðu í nótt samkomulagi um aðgerðir gegn skuldakreppu á evrusvæðinu. Helmingur skulda Grikkja verður afskrifaður. Hlutabréfaverð hefur hækkað umtalsvert í heiminum í kjölfar frétta af niðurstöðunni. 
Foringi Black Pistons var í morgun dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi, og annar félagi í samtökunum hlaut þriggja ára fangelsisdóm fyrir hrottafengna líkamsárás. Sautján ára piltur var dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir aðild að málinu. 
Aðalhagfræðingur Citigroup segir að færa eigi húsnæðislánin niður í sjötíu prósent af markaðsvirði. Joseph Stiglitz hagfræðingur við Columbia-háskóla segir of mikinn niðurskurð hafa átt sér stað fyrst eftir hrunið.
Læknir á barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri tekur ekki undir hugmyndir um að loka deildinni um helgar. Þetta sé bráðadeild og skert starfsemi geti bitnað á sjúklingum.
 Ekki verður hægt að gefa út upphafskvóta á loðnu fyrir árið 2013 vegna verkfalls sjómanna á skipum Hafrannsóknarstofnunar. Rannsóknir á ungloðnu eru í uppnámi.
Verndun eða nýting Grændals er meðal þeirra atriða sem umsagnaraðila um rammaáætlun greinir á um. Tvær vikur eru eftir af skilafresti umsagna.
Eigandi fjölbýlishúss á Akranesi fær innan við sjö milljónir króna í bætur vegna fjölmagra galla á húsinu. Upphæðin er ekki hærri því samkvæmt mati Hæstaréttar Íslands var vanræksla byggingarstjórans eitt einstakt tjón.
Tveir af hverjum þremur stuðningsmönnum Vinstri grænna treysta Steingrími J Sigfússyni best til að leiða flokkinn.
Þð myndi kosta milljarða að útrýma mink á Íslandi að mati líffræðings. Ef fara ætti út í það af alvöru þyrfti að loka öllum minkabúum landsins. 
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson er í góðri stöðu á úrtökumóti fyrir PGA-mótaröðina í Bandaríkjunum og knattspyrnumaðurinn Björgólfur Takefusa gekk í morgun til liðs við Fylki frá Víkingum. 
Veðurhorfur: Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt og dálítil rigning eða súld norðan- og austanlands. Norðaustan fimm til tíu metrar á norðvestanverðu landinu á morgun og dálitlir skúrir eða slydduél, en hægari vindur og þurrt að mestu í öðrum landshlutum. Hiti tvö til átta stig.</description>
Hádegisfréttir 26.október 2011
      <description>Iceland Express sakar fyrrverandi forstjóra fyrirtækisins um að nýta sér trúnaðarupplýsingar til að fá viðskiptavini og starfsmenn þess til nýs flugfélags. Iceland Express hefur krafist lögbanns á vinnu forstjórans fyrrverandi.
Störfum við sjúkrahúsið á Akureyri fækkar um allt að 25 og dregið verður úr starfsemi á mörgum sviðum. Þetta kemur fram í víðtækum sparnaðaráformum sem kynnt hafa verið starfsfólki.  
Stjórn Bankasýslunnar gerði alvarleg mistök við ráðningu Páls Magnússonar segir lektor í stjórnsýslufræðum. Stjórnin hafi gerst sek um dómgreindarleysi, með því að meta ekki áhrif ráðningarinnar á trúverðugleika stofnunarinnar.
Forseti Alþýðusambandsins segir farsælast að tengja krónuna við evru. Skammtímavandi evrunnar megi ekki villa mönnum sýn. 
Líkur á samkomulagi um björgunaraðgerðir vegna skuldakreppu evruríkjanna eru taldar hverfandi á leiðtogafundi Evrópuríkja í Brussel í dag. Norska ríkisolíufélagið Statoil, hefur gert ráðstafanir vegna hugsanlegs hruns evrunnar.
Þjóðarráð Líbíu hefur óskað eftir því að NATO haldi áfram aðgerðum sínum í landinu fram að áramótum hið minnsta.
Tvær óþekktar fiðrildalifrur, nokkur fjöldi þúsundfætlna og ungviði garðaklaufhala var meðal þess sem skordýrafræðingur fann í jarðvegssýni úr innfluttum blómapotti. 
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson stendur vel eftir fyrsta hringinn á úrtökumóti fyrir PGA-mótaröðina í Bandaríkjunum. Birgir lauk leik á einu höggi yfir pari. 
Veðurhorfur: Suðaustan átta til fimmtán metrar, hvassast við suðvesturströndina, en lægir seint í dag.  Víða rigning með köflum, en úrkomulítið norðanlands. Hiti tvö til níu stig að deginum.</description>
Hádegisfréttir 25.október 2011
      <description>Formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis segir það hafa verið skyldu sína að tjá sig um ráðningu Páls Magnússonar, og segir stjórn Bankasýslunnar hafa gert alvarleg mistök með ráðningunni. 
Bráðbrigðastjórnin í Líbíu lét í morgun  jarðsetja lík Muammar Gaddafis, fyrrverandi leiðtoga Líbíu, og Mo'tassims, sonar hans á leyndum stað í eyðimörkinni.
Mikill skortur er á tjöldum á jarðskjálftasvæðunum  í Austur-Tyrklandi.  Stjórnvöld eru nú gagnrýnd fyrir að veita fórnarlömbunum ekki brýnustu neyðarhjálp.
Verslunareigendur á húsgagnamarkaði segja ómögulegt að keppa við Pennann meðan Arionbanki dæli peningum inn í fyrirtækið. Þeir krefjast þess að leikreglur á samkeppnismarkaði séu virtar og hyggjast kvarta til samkeppniseftirlitsins.
Sjúkir laxfiskar hafa fundist í sex vötnum á Íslandi.  Fisksjúkdómafræðingur telur að sýkillinn geti átt þátt í því að bleikja er á undanhaldi í sumum vötnum.
Í refastofninum hér á landi eru átta til tíu þúsund dýr. Hann hefur stækkað samfellt frá áttunda áratug síðustu aldar segir forstöðumaður Melrakkaseturs. 
Veðurhorfur: Norðaustan átta til þrettán metrar og rigning eða slydda, en hægari og úrkomuminna austanlands. Hlýnandi, hiti víða þrjú til átta stig síðdegis. Suðaustan fimm til þrettán á morgun, skýjað og væta með köflum á sunnan og austanverðu landinu.</description>
Hádegisfréttir 24.október 2011
      <description>Óttast er að allt að eitt þúsund manns hafi farist í jarðskjálftanum í suð-austur Tyrklandi í gær. Á þriðja hundrað manns hafa fundist látnir,  og á annað þúsund hafa slasast
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú hvort bílstjóri og yfirmenn hafi gerst sekir um refsivert athæfi vegna umferðarslyss við endurvinnslustöð Sorpu á Dalvegi í síðustu viku.
Eldriborgarar, fatlaðir og veikir sem hafa fengið heitan mat sendan til sín í hádeginu frá Reykjavíkurborg fá hann nú kaldan. Matreiðslumaður á velferðasviði segir breytingarnar til batnaðar. Kona á tíræðisaldri er óánægð og segir þjónustuna hafa versnað til muna.
Matvælaframleiðendum verður gert að merkja innihald matvæla betur á næstunni samkvæmt nýrri reglugerð Evrópusambandsins. Hvati hennar er ekki síst aukin offita en sex af hverjum tíu Íslendingum eru ýmist of þungir eða of feitir.
Mannréttindasamtök segja hersveitir þjóðarráðsins í Líbíu komast upp með stríðsglæpi. Lík 53 manna, sem voru bundnir á höndum og fótum áður en þeir voru skotnir, fundust á hóteli sem hersveitirnar notuðu sem bækistöðvar.
Stjórn knattspyrnudeildar Grindavíkur hefur ákveðið að hefja samningaviðræður við Guðjón Þórðarson um að hann verði næsti þjálfari liðsins. Þorsteinn Gunnarsson, formaður deildarinnar er mjög ósáttur við þá ákvörðun og hyggst segja af sér á aðalfundi félagsins í næstu viku.
Veðurhorfur: Norðan og norðaustan átta til fimmtán metrar, hvassast austast. Dálítil él fyrir norðan, en bjartviðri á suður og vesturlandi. Hiti að sjö stigum syðra, annars um eða undir frostmarki. Slydda eða snjókoma austanlands í kvöld. Víða rigning á morgun, en slydda eða snjókoma á norðurlandi og Vestfjörðum fram eftir degi. Hlýnandi veður.</description>
Hádegisfréttir 23.október 2011
      <description>Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn í Þorlákshöfn í nótt grunaður um að hafa skotið úr byssu. Sérsveitin var kölluð á vettvang og er maðurinn í haldi lögreglunnar.
Óttast er að mikið tjón hafi orðið í öflugum jarðskjálfta í austurhluta Tyrklands í morgun. Fyrstu mælingar benda til að hann hafi orðið af stærðinni sjö komma þrír.
Fyrstu kosningar arabíska vorsins standa nú yfir í Túnis þar sem landsmenn kjósa sér stjórnlagaþing, sem jafnframt mun skipa bráðabirgðastjórn. Flokki hófsamra íslamista er spáð góðu gengi í kosningunum.
Framkvæmdarstjóri Samtaka iðnaðarins segir að ef fjármögnunarfyriræki á borð við Lýsingu virði ekki niðurstöðu hæstaréttar um fjármögnunarleigusamninga taki mun lengri tíma að endurreikna þá. Forstjóri Lýsingar hafnar þessu. 
Tekist var á um aðskilnað ríkis og kirkju og tilfærslu framhaldaskólanna til sveitarfélaga á landsfundi Samfylkingarinnar í morgun. Fundinum lýkur í dag. 
Það er ólíðandi, að dýraníðingur sem ræðst með eggvopni á hryssur, gangi ennþá laus. Þetta segir formaður landssambands hestamanna.
Leiðtogar Evrópusambandsins reyna nú til þrautar að leysa úr skuldavanda evruríkjanna á fundi sem nú stendur yfir í Brussel. Hart er lagt að Ítölum að bæta stöðu efnahagsmála í landinu. 
Velgengni kvikmyndarinnar Eldfjalls á kvikmyndahátíðum vestanhafs eykur bjartsýni aðstandenda hennar í baráttunni um óskarstilnefningu. Myndin hlaut í gær Gullna úlfinn á kvikmyndahátíðinni í Montreal.
Íslenska briddslandsliðið fór illa af stað í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins gegn hollenska liðinu í morgun.</description>
Hádegisfréttir 22.oktober 2011
      <description>Jóhanna Sigurðardóttir er sjálfkjörin sem formaður Samfylkingarinnar til næstu tveggja ára. Hún telur fyllilega raunhæft að hrinda í framkvæmd á næstu átján til tuttugu mánuðum öllum þeim stóru umdeildu málum sem hún vill ljúka fyrir kosningar.
Fjármálaráðherra Bretlands segir hagkerfi Evrópu stefnt í mikla hættu vegna efnahagskreppunnar. Fjármálaráðherrar evruríkjanna gera í dag enn eina tilraunina til að ná niðurstöðu um skuldavandann.
Engin viðbrögð hafa borist úr efnahags- og viðskiptaráðuneytinu við beiðni sjávarútvegsráðherra um að upplýst verði hvernig eignarhaldi á HB Granda sé háttað eftir að Arion banki tók félagið yfir.
Forsætisráðherra Líbíu boðar kosningar innan átta mánaða. Hann hyggst láta af embætti í dag. 
Verkefnisstýra hjá Stígamótum sér ekki flöt á samstarfi við vefinn einkamál.is um að uppræta vændi á vefsvæði þeirra. Aðstandendur síðunnar hafi það í hendi sér. 
Umhverfisstofnun segir að kanna þurfi vel áhrif seguljárnvinnslu úr sandi af hafsbotni hér við land.  Vinnslan geti haft áhrif á hrygningarstöðvar nytjafiska. 
Fimmhundruð fleiri skurðaðgerðir voru gerðar á Landspítala Háskólasjúkrahúsi fyrstu níu mánuði ársins, miðað við í fyrra. Þrátt fyrir það hafa biðlistar spítalans lengst.  
Íþróttafólk verður að hætta að hrækja á gervigrasvöllum innandyra. Því fylgir sýkingarhætta og almennur sóðaskapur. Þetta segir framkvæmdastjóri KSÍ. 
Veðurhorfur: Austlæg átt þrír til tíu metrar og væta með köflum í flestum landshlutum. Norðaustan og norðan átta til fimmtán metrar á morgun og rigning eða slydda og sums staðar snjókoma seinnipartinn, en úrkomulítið sunnantil á landinu. Tveggja til átta stiga hiti en kólnar á morgun.</description>
Hádegisfréttir 21.oktober 2011
      <description>Búist er við að Muammar Gaddafi fyrrverandi Líbíuleiðtogi verði grafinn í dag á leyndum stað.  Atlantshafsbandalagið tilkynnir í dag að hernaði í Líbíu verði hætt.
Ráðning Páls Magnússonar sem forstjóra Bankasýslunar stendur að óbreyttu. Þetta segir stjórnarformaður Bankasýslunar. Páll hafi ekki tilkynnt stjórn um að hann taki ekki við stöðunni.
Fulltrúi í samninganefnd Sjómannafélags Reykjavíkur undrast það að stjórnvöld láti aflaverðmæti fara til spillis út af nokkrum krónum. Verkfall háseta á rannsóknarskipum Hafrannsóknarstofnunar hefur staðið yfir í næstum þrjár vikur.
Stjórnvöld hér á landi brjóta EES-samninginn með því að mismuna fyrirtækjum eftir því hvort þau eru innlend eða erlend. Erlend fyrirtæki þurfa að greiða skatta af brúttóvaxtatekjum en þau innlendu aðeins af nettó vaxtatekjum. 
Landsfundur Samfylkingarinnar hefst í dag. Baráttan gegn atvinnuleysi er stærsta verkefni stjórnvalda, samkvæmt drögum að ályktunum sem liggja fyrir fundinum. Enginn hefur gefið kost á sér gegn sitjandi formanni og varaformanni.
Yngstu börnin fá tækifæri til að skyggnast aftur í aldir í bókinni Dans vil ég heyra. Þar er að finna lausavísur og sagnadansa, elsta kvæðið frá 1665. 
Fram tapaði sínum fyrsta leik á tímabilinu í úrvalsdeild karla í handknattleik þegar liðið beið stóran ósigur gegn HK á heimavelli sínum í gærkvöld. 
Veðurhorfur: Suðlæg átt þrír til átta metrar og rigning eða skúrir, en þurrt og bjart að mestu á norðaustur og austurlandi. Gengur í norðaustan átta til fimmtán með slyddu norðvestantil á landinu í nótt. Austlæg átt fimm til tíu á morgun og víða væta. Hiti yfirleitt tvö til sjö stig.</description>
Hádegisfréttir 20.oktober 2011
      <description>Fullyrt er í Líbíu að Muammar Gaddafi, fyrrverandi einræðisherra, hafi látið lífið í morgun þegar liðsmenn líbíska þjóðarráðsins reyndu að handtaka hann í eða í grennd við borgina Sirte. Verið sé að flytja líkið til borgarinnar Misrata. Fréttin hefur ekki fengist staðfest að öðru leyti en því að talsmaður Atlantshafsbandalagsins segir að þotur á vegum  þess hafi gert loftárás á bílalest skammt frá Sirte í morgun. 
Forstjóri Landsvirkjunar segir Alcoa hafa viljað einhliða samningaviðræður og skapa miklar væntingar til Bakkaálvers áður en gengið yrði til samninga um raforkuverð. Viðræður fyrirtækjanna hafi verið á frumstigi ólíkt því sem haldið hafi verið fram.
Arðsemi vaðlaheiðarganga verður að vera tryggð segir formaður umhverfis og samgöngunefndar Alþingis, svo hægt sé að réttlæta framkvæmdina á tímum niðurskurðar.
Enginn ágreiningur er milli Orkuveitu Reykjavíkur og sveitarfélagsins Ölfuss, segir bæjarstjórinn þar, þrátt fyrir að enn standi upp á Orkuveituna að skila öllu því sem lofað var.
Búist er við að yfir 200 þúsund manns taki þátt í mótmælaaðgerðum fyrir framan þinghúsið í Aþenu  í dag  gegn neyðaráætlun grísku ríkisstjórnarinnar. Alsherjarverkfall lamar allt atvinnulíf í landinu annan daginn í röð.
Íslenska karlalandsliðið í bridge hélt sigurgöngu sinni áfram í morgun á Heimsmeistaramótinu í Eindhoven. Ísland sigraði Pakistan, 17-13 og er í fimmta sæti.
Veðurhorfur: Suðaustan átta til þrettán metrar og rigning í fyrstu, en snýst í suðvestan fimm til tíu með skúrum eða slydduéljum sunnan og vestantil. Mun hægari norðaustantil í kvöld og styttir upp. Fremur hæg suðlæg átt á morgun og skúrir eða slydduél, en bjart með köflum austanlands. Hiti þrjú til átta stig að deginum, en vægt frost norðan og austanlands í nótt.</description>
Hádegisfréttir 19.oktober 2011
      <description>Að minnsta kosti tvær breskar matvælakeðjur eru taldar líklegar til að bjóða í Iceland Foods, sem þrotabú gamla Landsbankans á meirihluta í. Frestur til að skila inn fyrstu tilboðum rennur út í kvöld. 
Biskup Íslands segist harmi sleginn yfir þeim mistökum sem gerð hafi verið í viðbrögðum við kynferðisofbeldi. Kirkjan vilji læra af mistökunum. 
Myndbirting af manni í gær sem talinn er tengjast vopnuðu ráni í verslun á Laugarvegi, hefur ekki leitt til handtöku. 
ESA, eftirlitsstofnun EFTA, hefur samþykkt kaup Íslandsbanka á Byr þrátt fyrir að bankarnir hafi notið ríkisaðstoðar. Þá hefur stofnunin framlengt heimild lánafyrirgreiðslu íslenska ríkisins til Byrs.
Formaður stjórnar Vaðlaheiðarganga telur að ákvörðun Alcoa um að hætta við byggingu álvers á Bakka muni ekki hafa úrslitaáhrif um gerð ganganna. Aðrar framkvæmdir á svæðinu muni beina umferð um Vaðlaheiðargöng.  
Gríska lögreglan hefur átt í stympingum við tugi þúsunda manna við þinghúsið í Aþenu, sem mótmæla aðhalds- og niðurskurðaráætlun ríkisstjórnarinnar. Allsherjarverkfall hófst í Grikklandi í morgun. 
Það stenst ekki skoðun að skýra eftirá og bæta upp fyrir brot á skattalögum löngu eftir að þau eru framin. Þetta kom fram í málflutningi saksóknara í skattahluta Baugsmálsins í héraðsdómi í morgun.
Manchesterliðin, United og City unnu bæði leiki sína í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu í gærkvöld. Wayne Rooney skoraði tvívegis fyrir United í gær og þar með orðinn markahæsti enski leikmaður keppninnar frá upphafi.
Veðurhorfur: Hæg breytileg átt og skýjað með köflum, en þurrt að mestu. Gengur í suðaustan átta til þrettán metra með rigningu sunnan- og vestanlands í kvöld og slyddu til fjalla. Hægt hlýnandi veður og hiti þrjú til átta stig á morgun.</description>
Hádegisfréttir 18.oktober 2011
      <description>Iðnaðarráðherra segir ákvörðun Alcoa að hætta við álver á Bakka ekki breyta áformum um stórfellda atvinnuuppbyggingu á norðausturlandi. Bæjarstjóri Norðurþings segir að ríkið verði að koma að uppbyggingu samfélagsins því sveitarfélagið hafi bundið mikið fjármagn í undirbúning álvers. 
Eigandi úra- og skargripaverslunarinnar sem rænd var í gær, býður fundarlaun hverjum þeim sem geta gefið upplýsingar um ránið. Mennirnir eru enn ófundnir. 
Ísraelska hermanninum Gilad Shalit, sem verið hefur í haldi Hamas-samtakanna í rúm fimm ár, var í morgun sleppt og hann fluttur af Gaza-svæðinu  til Ísraels. Á móti sleppa Ísraelar ríflega þúsund Palestínumönnum úr fangelsum í Ísrael.
Innanríkisráðherra telur ríkislögreglustjóra ekki hafa brotið lög við innkaup til lögregluembætta en að tilefni sé til að skerpa á reglum. 
Þjóðlífið lamast í Grikklandi næstu tvo sólarhringa þegar fjórar milljónir launþega leggja niður vinnu. Gríska þingið afgreiðir síðar í vikunni tillögur um hertar efnahagsaðgerðir vegna óviðunandi stöðu í ríkisbúskapnum.
Félagið Lífsval sem á fjölda jarða um allt land getur ekki greitt af láni frá Landsbankanum. Bankinn krefst þess að fjórar jarðir verði settar á nauðungarsölu. 
Íslenska spennumyndin Borgríki, sem var frumsýnd í liðinni viku, verður endurgerð fyrir Hollywood. 
Veðurhorfur: Fyrst viðvörun: Búist er við stormi, meira en tuttugu metrum á landinu. Spáin er annars þessi: Norðvestan fimmtán til tuttugu og þrír metrar austanlands og él. Fremur hæg vestlæg átt á morgun og bjartviðri, en hægt vaxandi suðaustanátt vestantil á landinu síðdegis á morgun og þykknar upp. Hiti um og undir frostmarki.</description>
Hádegisfréttir 17.oktober 2011
      <description>Þrír menn rændu skartgripaverslun á Laugavegi í morgun. Vitni segja að skotið hafi verið af byssu í upphafi ránsins. Mennirnir sópuðu verðmætum úr hillum og óku á brott á stolnum bíl. Lögreglan leitar ræningjanna. 
Allir sakborningar í skattahluta Baugsmálsins neituðu sök í aðalmeðferð fyrir Héraðsdómi í morgun. Þá var Jón Ásgeir Jóhannesson yfirheyrður um greiðslur og hlunnindi sem hann er sakaður um að hafa vantalið til skatts. 
Ríkissaksóknari hefur áfrýjað til Hæstaréttar dómi yfir kynferðisbrotamanni í Vestmannaeyjum. Maðurinn var dæmdur í sjö ára fangelsi í síðasta mánuði, fyrir að misnota þrjár litlar stúlkur.
Stjórnarformaður bankasýslu ríkisins vill ekki tjá sig um það hvort Páll Magnússon komi til starfa sem forstjóri stofnunarinnar. Formaður Framsóknarflokksins segir furðulegt að tengja ráðningu Páls við Framsóknarflokkinn. 
Harðir bardagar hafa staðið í Sanaa, höfuðborg Jemens í morgun milli stjórnarandstæðinga og liðsveita Ali Abdullah Saleh forseta.
Veikindaforföll í heimahjúkrun á Akureyri voru þrefalt fleiri í fyrra en árið áður. Forstöðumaður segir ástæðuna aukið álag. 
Fyrsta dægurlagið var hljóðritað hér á landi um þrjátíu árum fyrr en hingað til hefur verið talið. Það var tekið upp á Siglufirði fyrir rúmum hundrað árum. 
Veðurhorfur: Vaxandi norðanátt, víða hvassviðri eða stormur í dag en hægari austanlands fram eftir degi. Slydda eða snjókoma fyrir norðan og rigning eystra. Búast má við öskufoki sunnanlands. Frá frostmarki að átta stigum, en í kringum frostmark í kvöld. Lægir talsvert og léttir til á morgun. Kólnandi veður.</description>
Hádegisfréttir 16.oktober 2011
      <description>Mjög er þrýst á um það í þingflokkum beggja stjórnarflokkanna að komið verði í veg fyrir að Páll Magnússon verði forstjóri bankasýslu ríkisins. Talað er um að auglýsa starfið aftur. 
Ekkert virðist hafa verið fjallað um jarðskjálfta vegna niðurdælingar- í umhverfismati vegna Hellisheiðarvirkjunar. Dælingin er eitt af skilyrðum í starfsleyfi virkjunarinnar, vegna áhrifa á grunnvatn á svæðinu.
Endurskoða þarf áhættuþátt kólesteróls fyrir ótímabærum dauða. Niðurstöður nýrrar rannsóknar benda til að kólesteról sé ekki aðeins skaðlaust konum heldur jafnvel gott fyrir þær.
Skjótvirkari úrræði skortir til að sporna við skattsvikum og svartri atvinnustarfsemi að mati ríkisskattstjóra. Hann segir að svo virðist sem smærri undanskot séu að aukast og dæmi séu um fólk á atvinnuleysisbótum í svartri vinnu. 
Tugir voru handteknir í mótmælum New York í gærkvöld, en víða um heim voru mótmæli í gær gegn græðgi fjármálafyrirtækja og almennum niðurskurði. 
Hafrannsóknarstofnun leggur til að þúsund tonn af rækju verði veidd í Ísafjarðardjúpi. Ekki hefur verið gefið út aflamark í djúpinu frá 2003.
Eiður Smári Guðjohnsen knattspyrnumaður fótbrotnaði í gær í leik með liði sínu AEK Aþenu. Hann verður frá keppni í marga mánuði.
Veðurhorfur: Vaxandi norðaustanátt og slydda á norðvestanverðu landinu, fimmtán til tuttugu og þrír metrar síðdegis og slydda eða snjókoma. Hiti að átta stigum. Norðan fimmtán til tuttugu og þrír á morgun, en hægari austantil fram yfir hádegi. Snjókoma norðvestantil, slydda eða rigning á norðaustur og austurlandi, annars úrkomulítið. Búast má við öskufoki syðst á landinu á morgun. Kólnandi veður.</description>
Hádegisfréttir 14.oktober 2011
      <description>Tugir jarðskjálfta hafa orðið á Hengilssvæðinu í morgun, þeir stærstu upp á um fjóra. Skjálftarnir hafa fundist allt frá Akranesi og austur á Hellu. Skjálftavirknin er vegna niðurdælingar vatns frá Hellisheiðarvirkjun.
Mótmæli gegn valdi fjármálageirans hafa verið boðuð víðsvegar um heim í dag. Tveir mótmælafundir verða í Reykjavík.
Hvorki stjórnarmenn né forstjóri Bankasýslunnar þurfa að fara í gegnum nálarauga fjármálaeftirlitsins, líkt og þeir sem skipaðir eru í stjórnir banka eða sparisjóða fyrir hönd ríkisins. Fjármálaráðherra segist ekki hafa vald til að stöðva ráðningu Páls Magnússonar sem forstjóra Bankasýslunnar. 
Tekjur ríkissjóðs af olíugjaldi og kílómetragjaldi hafa rýrnað um fjórðung á fjórum árum. Álögur ríkissins hafa þó hækkað á sama tíma. 
Stjórnvöld skattleggja í burtu hagræðingu með nýjum bankaskatti. Þetta segir formaður Samtaka fjármálafyrirtækja. Efnahags- og viðskiptaráðherra segir bankanna vel geta greitt meira til samfélagsins.
Rafmagnið flökti í Fríkirkjunni á tónleikum Sinéd O´connor á Iceland Airwaves hátíðinni í gærkvöldi. Rigning og rok hefur hefur sett svip sinn á hátíðina í ár sem og auðvitað góð tónlist
Njarðvík, Snæfell og Stjarnan unnu leiki sína þegar fyrstu umferð úrvalsdeildar karla í körfuknattleik lauk í gærkvöld og Bretinn Lewis Hamilton verður á ráspól í Suður-Kóreukappakstrinum í Formúlu 1 á morgun.
Veðurhorfur: Suðlæg átt, víða átta til þrettán metrar og skúrir eða haglél, en úrkomulítið á norðaustanverðu landinu. Hiti tvö til átta stig. Norðaustan þrettán til tuttugu um landið norðvestanvert á morgun með slyddu eða snjókomu, en fimmtán til tuttugu og þrír annað kvöld. Kólnandi veður.</description>
Hádegisfréttir 14.oktober 2011
      <description>Stjórnarþingmaður í Suðurkjördæmi hafnar því að innihaldslaus byggðapólitík hafi ráðið för í gagnrýni á flutning réttargeðdeildarinnar að Sogni á Kleppsspítala. 
Starfsfólk Landspítalans segir spítalann kominn yfir þolmörk sín. Einnota tæki séu notuð aftur og aftur. Breytingarnar sem gera eigi séu þó ekki allar slæmar en sjúklingar hafi áhyggjur og finni fyrir niðurskurðinum.
Matsfyrirtæki hafa lækkað lánshæfismat Spánar og fjölmargra stórbanka í Evrópu. Viðvörun hefur verið gefin út vegna 12 fjármálastofnana í Bandaríkjunum og Evrópu
Utanríkisráðherra vísar á bug gagnrýni sænskra sérfræðinga um að varnar- og  öryggismál landsins séu í ólestri. Öryggi þjóðarinnar myndi aukast með aðild að Evrópusambandinu.
Svíinn Lars Lagerbäck var rétt í þessu kynntur sem næsti landsliðsþjálfari karla í knattspyrnu. Heimir Hallgrímsson, fyrrverandi þjálfari ÍBV, verður honum til aðstoðar.
Þjátíu prósent af veiðum íslenskra skipa fara fram utan landhelgi Íslands. Afli til vinnslu í fyrra var rúm milljón tonn og hefur ekki verið minni í nær þrjátíu ár. 
Sjávarútvegsráðherra segir að gæta verði að samspili sjávarútvegsins við samfélagið og byggðir landsins. Ekki sé hægt að láta markaðsöfl alfarið ráða för.
Hrekkjusvín, söngleikur byggður á gamalkunnri barnaplötu, verður frumsýndur í Gamla bíói í kvöld.
Veðurhorfur: Suðlæg átt - átta til fimmtán metrar. Skúrir og síðar rigning sunnan- og vestantil, en bjart með köflum um landið norð-austanvert og yfirleitt þurrt. Talsverð rigning um tíma á Suðurlandi í kvöld. Suðlæg átt - átta til þrettán á morgun og rigning með köflum, en þurrt að kalla norð-austantil. Hiti fimm til ellefu stig.</description>
Hádegisfréttir 13.oktober 2011
      <description>Störfum á Landspítalanum fækkar um 85 vegna 630 milljóna króna niðurskurðar. Forstjóri spítalans sagði á starfsmannafundi í morgun að lengri tíma myndi taka að útskrifa sjúklinga. 
Lokun líknardeildar á Landakoti hefur áhrif á krabbameinssjúklinga almennt, ekki aðeins þá sem eru langt leiddir. Þetta segir yfirlæknir. 
Samband íslenskra sveitarfélaga mótmælir 300 milljóna króna aukaframlagi til Álftaness úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga í ár. Önnur sveitarfélög í fjárhagserfiðleikum megi ekki við lækkun framlaga úr sjóðnum sem verði vegna þessa. 
Nýleg lagabreyting gerir það að verkum að Háskólinn á Akureyri hefur fengið 20 milljóna króna bakreikning vegna ógreiddra fasteignagjalda. 
Bandaríkjastjórn hvetur til aðgerða gegn Íran og hefur gefið út viðvörun til Bandaríkjamanna um heim allan næstu þrjá mánuðina vegna meints morðtilræðis við sendiherra Saudi-Arabíu í Bandaríkjunum.
Formaður Starfsgreinasambandsins telur glapræði að leggja starfsemi þess niður. Hann vonast til að deilur innan þess hafi ekki bitnað á kjarasamningum félagsmanna. Til standi að breyta ýmsu til batnaðar. 
Mannréttindasamtök saka bráðabirgðastjórnina í Líbíu um grófar pyntingar og önnur mannréttindabrot. Sérstaklega hafi þeldökkt fólk verið handtekið og pyntað með kerfisbundnum hætti.
Tónlistagagnrýnandi breska stórblaðsins Times gefur Norrænum músíkdögum fjórar stjörnur. Hátíðin fór fram í Hörpu í síðustu viku.  
Veðurhorfur: Suðlæg átt tíu til átján metrar. Heldur hægari og þurrt að kalla norðaustantil. Yfirleitt hægari suðlæg átt á morgun, og rigning eða súld sunnan og vestantil en bjartviðri norðaustantil. Fimm til fimmtán stiga hiti, en svalara á morgun.</description>
Hádegisfréttir 12. október 2011
      <description>Réttargæsludeildinni að Sogni verður lokað fyrsta mars og rúmlega þrjátíu störf þar lögð niður. Ný og stærri deild verður opnuð á Kleppsspítala.  
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði segir stjórnvöld hafa gefið fyrirheit um að starfsemi St. Jósefsspítala yrði ekki hætt. Hann er bæði sár og reiður vegna fyrirætlana um að loka spítalanum um áramótin.
Fjármálaráðherra segist ekki geta aukið halla ríkissjóðs með því að lofa minni niðurskurði hjá Landspítalanum. Spítalanum hafi verið hlíft í fyrra og aðgerðir nú eins mildar og hægt var.
Bandarískir ráðamenn segja að írönsk stjórnvöld verði látin sæta ábyrgð vegna samsæris um að myrða sendiherra Sádí-Arabíu í Washington. Málið verði tekið upp í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.
Skjalavörður biskupsstofu reyndi að fá leyfi til að skrá bréf Guðrúnar Ebbu til biskups nokkrum dögum eftir að það barst. Það leyfi fékkst ekki.
Hagvöxtur hér á landi mun dragast saman næstu árin að mati Íslandsbanka. Vaxandi langtímaatvinnuleysi sé einn neikvæðasti þátturinn í þróun efnahagsmála á Íslandi.
Atvinnuleysi og fátækt fer vaxandi í Bretlandi  tvær milljónir og 570 þúsund eru nú án vinnu í landinu.
Ríkisstjórnin undirbýr að aflétta íþyngjandi kröfum um að heimabakstur til fjáröflunar í góðgerðarskyni og hefðbundin matvælavinnsla fari fram í vottuðum eldhúsum.
Veðurhorfur: Fyrst viðvörun: Búist er við stormi á landinu, meira en tuttugu metrum.
Annars er spáð suðaustan, fimmtán til tuttugu og þremur metrum og rigningu sunnan- og vestanlands en mun hægari og úrkomulausu fram eftir degi norðaustantil. Úrkomuminna á að vera síðdegis. Sunnan fimmtán til tuttugu og fimm metrar verða í nótt, hvassast vestanlands og á Mið-hálendinu. Fjögurra til tíu stiga hiti.</description>
Hádegisfréttir 11. október 2011
      <description>Yfirtaka Arion banka á þriðjungshlut í Granda brýtur ekki gegn lögum um erlenda fjárfestingu, jafnvel þótt bankinn sé í raun í eigu útlendra kröfuhafa. Þetta er mat framkvæmdastjóra Landssambands íslenskra útvegsmanna. 
Það stefnir í málaferli í kjölfar úrskurðar óbyggðarnefndar í gær um þjóðlendur á Tröllaskaga. Tvö sveitarfélög hyggjast leita réttar síns fyrir dómstólum. 
Dómstóll í Kiev, höfuðborg Úkraínu, dæmdi í morgun Júlíu Týmósjenkó, fyrrverandi forsætisráðherra Úkraínu, í sjö ára fangelsi.
Afbrotafræðingur hjá Fangelsismálastofnun segir að þær aðgerðir sem búið sé að grípa til dugi til að svara gagnrýni á stöðu fangelsismála á Íslandi. Gagnrýnin koma fram á þingi Sameinuðu þjóðanna í gær.
Heildarafkoma Isavia var neikvæð um tæplega hálfan milljarð króna á fyrstu sex mánuðum ársins. 
Geðhjálp útbýr nú aðgerðaráætlun fyrir vinnustaði sem stuðla á að því að rétt sé brugðist við þegar andleg veikindi koma upp. Geðsjúkir missa oft vinnuna þegar þeir veikjast og eru þeir stærsti hópur öryrkja á landinu. 
Veðurstofan lætur nú smíða fyrir sig færanlega veðurratsjá sem hægt verður að draga upp á jökul til að mæla hæð á gosmekki. Þá verður veðursjá sem þjónaði varnarliðinu flutt á Miðfell ofan við Fljótsdal en þaðan sést vel til Grímsvatna og Bárðarbungu.
Metþátttaka er í spurningakeppnigrunnskólanna í ár.  Sextíu og þrír skólar allstaðar af landinu hafa skráð sig til þáttöku.
Nú er ljóst að fyrstu leikjunum í NBA-körfuboltadeildinni í Bandaríkjunum verður frestað. Enginn lausn er í sjónmáli í launadeilu leikmannasamtaka og eigenda liðanna í deildinni. 
Veðurhorfur, hér er fyrst viðvörun, búist er við stormi, meira en tuttugu metrum á sekúndu á landinu. Horfur eru á norðlægri átt, fimm til þrettán metrum á sekúndu og að hvassast verði við austurströndina. Minnkandi úrkoma norðantil, en bjartviðri syðra. Vaxandi suðaustanátt Suðvestantil í kvöld, átta til fimmtán og slydda eða rigning þar um nóttina.. Hiti að sex stigum í dag en fimm til tíu á morgun.</description>
Hádegisfréttir 10. október 2011
      <description>Deildarforseti guðfræði- og trúarbragðafræðideildar Háskóla Íslands sem fór með Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur á fund Karls Sigurbjörnssonar biskups og kirkjuráðs í fyrra segir að Karl Sigurbjörnsson biskup verði að eiga það við samvisku sína hvernig hann þjóni kirkjunni best.
Lögregla hefur lagt hald á um þrjú hundruð kíló af sprengiefni sem stolið var í síðustu viku. Efnið fannst við húsleit í gærkvöldi. Einn er í haldi lögreglu vegna málsins. 
Heimilin í landinu töpuðu nærri því tíundu hverri krónu af ráðstöfunartekjum á síðasta ári. 
Um helmingur jarðarinnar Atlastaða í Svarfaðardal hefur verið úrskurðaður þjóðlenda en landeigandinn keypti jörðina fyrir sex árum. Óbyggðanefnd úrskurðaði um þjóðlendur á Tröllaskaga í dag.
Stjórnvöld í Belgíu, Frakklandi og Lúxemborg komu Dexia-bankanum til bjargar í morgun. Bankinn er sá fyrsti sem fær sérstaka aðstoð vegna skuldavandans á evrusvæðinu.
Eigendur niðurníddra húsa í miðborg Reykjavíkur hafa flestir fengið frest til að gera endurbætur á þeim. . Flestir þeirra munu fá dagsektir í árslok hafi þeir ekki lagfært húsin.
Ríkisstjórn Donalds Túsks, forsætisráðherra Póllands, sigraði í þingkosningum í landinu í gær.  Stjórnvöld segja að kjósendur hafi með þessu lýst stuðningi við efnhagsumbótastefnu síðasta kjörtímabils.
Loðnufrysting er hafin á Vopnafirði en Víkingur AK kom með fyrstu loðnuna þangað í gær. 
Flutningskostnaður sligar margar listahátíðir á Austurlandi. Framkvæmdastjóri þungarokkshátíðarinnar Eistnaflugs í Neskaupstað segir að vilji  bæjarfélögin á annað borð hafa þessar hátíðir verði þau að leggja þeim lið. 
Mikilvægt er að draga úr fordómum gagnvart geðsjúkdómum hvort sem það eru fordómar annarra eða eigin fordómar þeirra sem eiga við geðsjúkdóma að stríða.   Þetta segir verkefnisstjóri Alþjóða geðheilbrigðisdagsins sem er í dag
Grindavík vann í gær Meistarakeppni Körfuknattleikssambands Íslands í karlaflokki eftir flautukörfu gegn KR. Í kvennaflokki bar KR sigur úr býtum en liðið lagði Keflavík að velli með 39 stiga mun. 
Veðurhorfur: Norðlæg átt átta til fimmtán metrar og él norðaustantil. Stöku él norðvestantil. Norðan átta til fimmtán í kvöld, hvassast við norður- og austurströndina. Snjókoma norðantil, en áfram léttskýjað syðra. Lægir smám saman á morgun og styttir að mestu upp, fyrst vestantil. Víða vægt frost norðantil en annars hiti að fimm stigum að deginum.</description>
Hádegisfréttir 09. október 2011
      <description>Þingmaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýnir hvernig staðið er að aukaframlagi ríkisins til Háskóla Íslands. Ekki sé minnst einu orði á framlagið í nýju fjárlagafrumvarpi sem þó sé aðeins nokkurra daga gamalt. 
Lögregla hefur fengið nokkrar ábendingar vegna þjófnaðar á 300 kílóum af dýnamíti, en veit þó enn ekki hver var að verki. Málið þykir hið undarlegasta. 
Ritstjóri Neytendablaðsins skorar á þingmenn að breyta verndar- og haftakerfi landbúnaðarins. Ekki gangi að skattgreiðendur niðurgreiði landbúnaðarvöru sem er flutt úr landi en sé meinað að kaupa ódýrar vörur frá útlöndum.
Bandarískt dagblað fullyrðir að íslensk fegurðadrottning hafi fengið um 230 milljónir fyrir ábendingu sem leiddi til þess að eftirlýstur glæpamaður sem leitað hafði verið að í 16 ár var handtekinn. 
Þingkosningar fara fram í Póllandi í dag. Búist er við að Borgaravettvangur, stjórnarflokkur Donalds Túsks forsætisráðherra, beri sigur úr bítum. 
Sameining Álftanes við annað sveitarfélag getur verið vísir að nýju landakorti fyrir höfuðborgarsvæðið að mati innanríkisráðherra sem vill sjá svæðið allt stokkað upp
Þjóðverjinn Sebastian Vettel tryggði sér í morgun heimsmeistaratitilinn í Formúlu eitt kappastrinum annað árið í röð.</description>
Hádegisfréttir 08.október 2011
      <description>Engar reglur eru til um hversu margir starfsmenn grunnskóla eiga að vera við gæslu í frímínútum. Ný rannsókn leiðir í ljós að einelti í skólum þrífst helst þar. Skólastjórnendur hafa sumir gripið til þess ráðs að minnka gæslu vegna niðurskurðar.
Efnahags- og viðskiptaráðherra segir þau rök, sem Lee Bucheit hafi viljað setja í svar íslenskra stjórnvalda við áliti ESA, margsinnis hafa komið fram. Ekki hafi verið tilefni til að endurtaka þau í nýju svari. 
Framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Frakklandsforseti sitja nú á fundi um skuldavanda Evruríkjanna. Stíf fundarhöld verða í París um helgina um leiðir út úr vandanum.
Aðalsamningamaður Íslands í makríldeilunni segir nýja rannsókn á dreifingu makríls styrkja samningsstöðu Íslands, og um leið auka líkur á samkomulagi og sjálfbærum veiðum.
Það myndi leiða til hruns hjá framleiðendum ef allt útflutt kjöt færi á innlendan markað, segir forstjóri SS. Hagfræðiprófessor segir útflutninginn notaðan til að halda uppi verði á innanlandsmarkaði.
Ellen Johnson Sirleaf, sem í gær hlaut friðarverðlaun Nóbels, er hin hagsýna húsmóðir holdi klædd að mati Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttir. Þær hittust fyrir nokkrum árum og segir Ingibjörg fundinn minnistæðan.</description>
Hádegisfréttir 07. október 2011
      <description>Innanríkisráðherra hefur skipað starfshóp til að fara yfir rannsókn Guðmundar- og Geirfinnsmála. Einn sakborninga segir þetta risaáfanga í málinu.
Breski seðlabankinn varar við að fjármálakreppan í Bretlandi gæti orðið dýpri en allar aðrar kreppur í sögunni.
Þrjár konur deila með sér friðarverðlaunum Nóbels í ár. Allar tengjast þær baráttu kvenna í Afríku og Arabaheiminum fyrir lýðræði og mannréttindum.
Íslandsbanki telur óvarlegt að afnema gjaldeyrishöftin til skemmri tíma litið. Þau séu nauðsynlegt skjól fyrir erfiðleikum á erlendum mörkuðum. 
Útséð virðist um innheimtu á þrjátíu og átta milljarða lán Svartháfs, sem er eitt félaga Wernersfjölskyldunnar. Tapið lendir á Gamla Glitni.
Ragmagnsbilun í Fljótsdalsstöð varð til þess að mengunarvarnarbúnaður álversins á Reyðarfirði virkaði ekki sem skyldi á tímabili í nótt. Engin hætta var þó á ferðum. 
Háskóli Íslands er í hópi þrjúhundruð bestu háskóla í heimi, samkvæmt nýjum lista sem gefinn hefur verið út. 
Veðurhorfur: Norðan þrír til átta metrar og skýjað með köflum. Austlægari síðdegis og þykknar upp suðvestanlands, en léttir til fyrir norðan. Vaxandi suðaustanátt og rigning á suður- og vesturlandi í kvöld, þrettán til tuttugu metrar og talsverð rigning þar í nótt.  Hægari á morgun. Hiti frá frostmarki að sjö stigum í dag en hlýnar á morgun.</description>
Hádegisfréttir 06. október 2011
      <description>Ný rannsókn sýnir að makrílstofninn í norðaustur Atlantshafi heldur sig að miklu leyti innan íslenskrar lögsögu. Fiskifræðingur segir þetta sanna að markíllinn éti mikið innan lögsögunnar og það geti styrkt samningsstöðu Íslendinga í makríldeilunni.
Ráðning Páls Magnússonar sem forstjóra Bankasýslu ríkisins er hneyksli, segir Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. Hann segir Bankasýsluna hafa svipt sig trausti og trúverðugleika sem hún verði að njóta.
Verð á evrópskum hlutabréfum hefur hækkað töluvert í morgun, annan daginn í röð. Evrópusambandið boðar samhæfðar aðgerðir í þágu banka á evrusvæðinu. 
Nefnd, sem fjallað hefur um eignarhald á fjölmiðlum, leggur til við menntamálaráðherra að spornað verði við samþjöppun á eignarhaldi fjölmiðla með lagasetningu. 
Sænski rithöfundurinn, skáldið og þýðandinn Tomas Tranströmer fær Nóbels-verðlaunin í bókmenntum 2011
Steve Jobs, stofnanda Apple-samsteypunnar hefur verið minnst um allan heim í dag. Hann andaðist úr krabbameini í gærkvöld, 56 ára að aldri.
Fram er með fullt hús stiga í úrvalsdeild karla í handknattleik eftir þrjár umferðir. Liðið vann Akureyri á heimavelli í gærkvöld. 
Veðurhorfur: Minnkandi norðanátt. Léttir til sunnan og vestanlands, úrkomulítið vorðvestanlands en lítilsháttar rigning eða slydda á Austurlandi. Breytileg átt, þrír til tíu metrar á morgun. Skúrir úti við sjóinn en annars bjartviðri. Vaxandi austanátt ogm þykknar upp suðvestantil síðdegis á morgun. Hiti að átta stigum, en víða næturfrost.</description>
Hádegisfréttir 05. október 2011
      <description>Skattgreiðendur í Bretlandi og Hollandi hafa hagnast af setningu íslensku neyðarlaganna fyrir þremur árum. Ríkissjóðir landanna tveggja hefðu fengið minna greitt vegna Icesave reikninga ef lögin hefðu ekki verið sett. Þetta kemur fram í svari íslenskra stjórnvalda til ESA vegna Icesave málsins
Allsherjarverkfall hefur lamað þjóðlífið í Grikklandi í dag. Samgöngur liggja að mestu niðri, skólar eru lokaðir og starfsemi sjúkrahúsa í lágmarki. Táragasi var beitt gegn mótmælendum í Aþenu í morgun.
Dregið hefur verið úr raforkuframleiðslu Orkuveitu Reyjavíkur þar sem ekki er hægt að afhenda orku sem Norðurál hefur skuldbundið sig til að kaupa. Norðurál getur ekki tekið við orkunni þar sem bygging álvers í Helguvík hefur dregist. 
Bændur í Landeyjum og Fljótshlíð anda léttar þessa dagana, eftir að lögregla lét í gær aflífa tvo hunda sem lagst hafa á fé undanfarnar vikur. Hundarnir náðust eftir langan eltingaleik í gærmorgun.
Hætta er á að kornakrar á Suðurlandi skemmist, stytti ekki upp á næstu dögum. Kúabóndi í Ölfusi sló nokkra hektara af korni í morgun, þrátt fyrir vætuna.
Knattspyrnumaðurinn Kolbeinn Sigþórsson, leikmaður Ajax í hollensku úrvalsdeildinni, verður frá keppni næstu mánuðina vegna meiðsla í ökkla. 
Veðurhorfur: Norðan fimm til þrettán metrar og slydda eða rigning á norðanverðu landinu, en þurrt að kalla syðra. Vaxandi norðaustanátt í dag, tíu til átján metrar seinnipartinn, hvassast á norðvestanverðu landinu í kvöld en austantil á morgun. Dregur smám saman úr vindi og úrkomu á morgun, fyrst vestantil. Hiti yfirleitt að átta stigum.</description>
Hádegisfréttir 04. október 2011
      <description>Hagfræðistofnun Háskóla Íslands á að meta áhrif aðgerða sem Hagsmunasamtök heimlanna segja nauðsynlegar fyrir heimilin. Forsætisráðherra segir þetta þó ekki endilega þýða að tillögurnar verði að veruleika.  
Forsætisráðherra segir að forseti Íslands verði að virða stefnu réttkjörinna stjórnvalda. Umhverfisráðherra segir að stjórnmálamaðurinn Ólafur Ragnar Grímsson hafa talað við þingsetningu en ekki forsetinn. 
Fjárhagsstaða einstæðra feðra er slæm og mun verri en einstæðra mæðra. Rúm átta prósent fjárráða Íslendinga eru í alvarlegum vanskilum.
Ríkislögreglustjóri á að stíga strax til hliðar á meðan rannsókn á innkaupum embættisins fer fram. Þetta segir varaformaður stjórnskipunar- og eftirlitnefndar Alþingis.  
Svæðisbundin áskrift að íþróttastöðvum ætti að vera fyrir bí, miðað við niðurstöðu dómstóls Evrópusambandsins í gær. Borgarar innan sambandsins mega kaupa sér áskrift hvar sem er. 
Afskriftir yfir 100 milljónum króna verða gerðar opinberar ef frumvarp sem lagt verður fyrir Alþingi í dag verður að lögum.
Alþingi á að fyrirskipa rannsókn á rannsókninni á Guðmundar- og Geirfinnsmálinu segir Ragnar Aðalsteinsson lögmaður. Til þess hafi Alþingi heimild samkvæmt nýjum lögum. 
Formaður KSÍ er vongóður um að samningar náist við Lars Lagerbeck um þjálfun karlalandsliðsins.
Veðurhorfur: Norðan átta til fimmtán metrar og slydda eða snjókoma á norðanverðu landinu, en þurrt að mestu syðra. Heldur hægari síðdegis. Vaxandi norðaustanátt síðdegis á morgun með slyddu og síðar rigningu, en þurrt sunnanlands. Hiti frá frostmarki að níu stigum, hlýjast syðst.</description>
Hádegisfréttir 03. október 2011
      <description>Stjórnarandstaðan segir að dulbúnir skattar séu í nýja fjárlagafumvarpinu. Þar sé ekkert gert til að stuðla að auknum hagvexti í landinu. Fjármálaráðherra segir ekki hægt að snúa stöðunni við án skattahækkana og niðurskurðar.
Athugað verður hvort tilhögun þingsetningar verður breytt í ljósi reynslunnar, segir forseti Alþingis. Sér þyki leitt að hæstaréttardómarar hafi ekki mætt á þingsetninguna í ár. 
Gengi hlutabréfa féll á mörkuðum í Evrópu í morgun eftir að gríska ríkisstjórnin tilkynnti að hún næði ekki settu markmiði um hámarkshalla á fjárlögum.
Aðeins ein kona situr í fjárlaganefnd Alþingis, þar sem níu þingmenn eiga sæti. Í efnahags og viðskiptanefnd sitja tvær konur og sömuleiðis í utanríkismálanefnd. 
Forseta bæjarstjórnar sveitarfélagsins Voga hefur verið hótað vegna ákvörðunar um lagningu Suðvesturlína í jörð. Málið hefur vakið harðar deilur á Suðurnesjum.
Útilokað er að leggja fram stóra kvótafrumvarpið í óbreyttri mynd að mati varaformanns sjávarútvegsnefndar, sem bendir á að þingmenn geti lagt fram nýtt fiskveiðistjórnunarfrumvarp, taki ráðherra ekki mið af gagnrýni. 
Innanríkisráðherra segist ákveða fyrir vikulok hvaða stefnu Guðmundar- og Geirfinnsmál taki. Krafa er uppi um nýja rannsókn. Ráðherra segist ekki ætla að láta málið kyrrt liggja.  
Kjartan Henry Finnbogason hefur verið kallaður inn í landsliðshóp Íslands í knattspyrnu sem mætir Portúgal í forkeppni Evrópumótsins á föstudag. 
Veðurhorfur: Vaxandi norðanátt síðdegis, átta til fimmtán metrar í kvöld og rigning eða slydda, en þurrt sunnanlands. Norðaustan þrettán til átján á Vestfjörðum og slydda eða snjókoma í kvöld. Hiti eitt til níu stig, hlýjast syðst.</description>
Hádegisfréttir 02. október 2011
      <description>Loka verður sjúkráhúsinu á Húsavík vegna þess niðurskurðar sem boðaður er í fjárlögum næsta árs, segir forstjóri heilbriðgisstofnunnar Þingeyjinga. Með þeirri viðbót verði búið að skera niður um þriðjung frá hruni. 
Stjórnvöld stefna að breytingum á tekjuskatti næsta árs þannig að launþegar færast fyrr í hærra skattþrep en annars hefði verið. 
Kostnaður við að leggja suðvesturlínur í jörð lendir að öllum líkindum beint á Suðurnesjamönnum í formi hækkandi raforkuverðs, segir forseti bæjarstjórnar í Reykjanesbæ. Atvinna fólksins sé undir. 
Rúmlega sjö hundruð mótmælendur voru handteknir í New York í gær þegar þeir lokuðu fyrir umferð um Brooklyn-brúna. Mótmælendurnir hafa einnig truflað starfsemi á Wall Street síðustu vikurnar til að mótmæla fjármálakreppunni og björgun bankakerfisins.
Dósent í stjórnmálafræði og fulltrúi í stjórnlagaráði er ósammála túlkun forseta Íslands á tillgögum ráðsins um forsetaembættið. Tillögurnar geri ekki ráð fyrir valdameiri forseta, ólíkt því sem forsetinn fullyrti við setningu alþingis í gær.
Mál íslenskra pípulagningarmanna sem eru á lágum launum við störf í Noregi er ekki einsdæmi á Norðurlöndunum, segir formaður Félags Iðnaðar- og tæknimanna. 
Niðurskurður í skólum hefur bitnað á eldhúsum og mötuneytum skólanna.  Færri starfa þar nú og meira keypt af tilbúnum mat.   
Formaður Bandalags Háskólamanna segir að meðlimir Sinfóníuhljómsveitar Íslands njóti fulls stuðnings í kjarabaráttu sinni. Viðsemjendur þeirra í kjaramálum hafi ekki verið málefnalegir.
Veðurhorfur: Suðaustan átta til þrettán metrar, en hægari síðdegis. Rigning eða skúrir. Gengur í norðan tíu til átján með rigningu eða slyddu á norðvestanverðu landinu á morgun, annars mun hægari og víða skúrir. Hiti sjö til tólf stig, en kólnar norðvestantil á morgun.</description>
Hádegisfréttir 01. október 2011
      <description>Eggjum rigndi yfir þingheim við setningu Alþingis í morgun. Þingmenn voru margir útataðir í eggjaslettum og Árni Þór Sigurðsson þingmaður vinstri grænna meiddist á höfði. Um tvö þúsund manns mótmæltu á Austurvelli en lögreglan stóð vörð um Alþingishúsið. Flugeldum var skotið á loft og kveikt á blysum. Dorrit Moussaieff forsetafrú fór til mannfjöldans í stað þess að ganga til Dómkirkju.
Forseti Íslands segir bresti í brúnni milli þings og þjóðar, þingið verði að leita lausnar á þeim vanda.
Fjárlagafrumvarp næsta árs gerir ráð fyrir átján milljarða króna halla á rekstri ríkissjóðs á næsta ári. Áfram verður skorið niður en ekki verður ráðist í almennar skattahækkanir þó gert sé ráð fyrir nýjum skatti á fjármálafyrirtæki. Fjármálaráðherra er nokkuð sáttur við frumvarpið.
Bandaríkjamenn óttast að öfgahópar reyni að hefja fyrir drápið á leiðtoga al-Kaída á Arabíuskaga.
Taugarnar titruðu í Laugardalshöll í morgun, þegar um tvöhundruð spenntir keppendur mættu til dansprufur fyrir þáttaröðina Dans Dans Dans.
Lokaumferð Íslandsmóts karla í knattspyrnu fer fram í dag klukkan 14. Keflavík, Þór, Fram og Grindavík geta öll fallið falla niður í 1. deild.
Veðurhorfur: Suðvestan átta til fimmtán metrar, en fimmtán til tuttugu og þrír norðvestanlands fram eftir degi. Úrkomulítið norðaustantil, annars skúrir. Hiti fimm til þrettán stig, hlýjast austast. Suðaustan átta til þrettán á morgun, en hvassara við suðvesturströndina í fyrstu. Rigning, einkum sunnan og vestanlands. Hiti átta til þrettán stig.</description>
Hádegisfréttir 30.september 2011
      <description>Fjárframlög til Landspítalans verða skorin niður um sex hundruð milljónir samkvæmt fjárlagafrumvarpinu sem kynnt verður á morgun. Löngu búið að skera inn að beini, segir forstjórinn.
Fjórir af æðstu stjórnendum Iceland Express og systurfélagsins Astreus hafa hætt á síðustu vikum, nú síðast Birgir Jónsson, nýr forstjóri Iceland Express, eftir aðeins tíu daga í starfi. 
Anwar al-Awlaki, einn af leiðtogum al-Kaída í arabaheiminum, lét lífið í loftárás í Jemen í morgun. Bandaríkjamenn töldu hann sérlega hættulegan og er Obama forseti sagður hafa heimilað að hann skyldi ráðinn af dögum.
Pattstaða er komin upp í deilu Landsnets og bæjarstjórnar Voga. Landsnet segist ekki ætla að leggja jarðstrengi í jörð.   Lagning Suðvesturlínu er í uppnámi. 
Hundruð íslenskra kvenna reykja á meðgöngu á ári hverju. Börn þeirra mælast léttari, styttri og með minna höfuðummál, segir í niðurstöðum sem eru til umfjöllunar á tóbaksvarnarþingi í dag.
Áströlskum vísindamönnum, sem rannsökuðu mökunartilraunir þarlendrar bjöllutegundar við bjórflöskur af tiltekinni gerð, voru í gær afhent Ig-nóbelsverðlaunin (igg-nóbelsverðlaunin) svonefndu.
Samkvæmt heimildum RÚV hættir Ólafur Þórðarson sem þjálfari Fylkis í úrvalsdeild karla í knattspyrnu eftir tímabilið. Hann tekur við liði Víkings sem er þegar fallið úr deildinni.
Veðurhorfur: Sunnan- og suðaustanátt, víða þrettán til átján metrar en fimmtán til tuttugu og þrír á suðvestur og vesturlandi síðdegis. Rigning eða skúrir. Styttir upp norðaustantil síðdegis. Hiti átta til sextán stig, hlýjast norðaustanlands. Snýst í suðvestan fimmtán til tuttugu og þrír í nótt, hvassast norðvestanlands. Dregur smám saman úr vindi á morgun.</description>
Hádegisfréttir 29.september 2010
      <description>Stóra fiskveiðistjórnunarfrumvarpið þarf að taka til gagngerrar endurskoðunar áður en það verður lagt fram á nýju þingi. Þetta er mat formanns- og varaformanns sjávarútvegsnefndar Alþingis, sem lýsa sig reiðubúna að endurskrifa frumvarpið. 
Um fjörutíu starfsmönnum Skipta og dótturfélags þeirra, Símanum, verður sagt upp störfum í dag. Uppsagnirnar eru liður í viðamikilli hagræðingu.  
Þýska þingið samþykki í morgun  með miklum meirihluta tillögur um að björgunarsjóður evrusvæðisins verði fjórfaldaður í 440 milljarða evra.
Lögreglumenn hvaðanæva af landinu ætla í kröfugöngu að fjármálaráðuneytinu síðdegis. Skipuleggjendur segjast langþreyttir á niðurskurði hjá lögreglunni auk þess séu launakjör þeirra óviðunandi.  
Forseti bæjarstjórnar Voga hafnar því að kostnaður við að leggja suðvesturlínu í jörð verði margfaldur á við loftlínu eins og forstjóri Landsnets heldur fram.
Skortur á íbúðarhúsnæði verður á höfuðborgarsvæðinu innan nokkurra ára, verði ekki ráðist í nýbyggingar, segi í mati greiningardeildar Arion banka. 
Reykvískir grunnskóladrengir standa stúlkum langt að baki í lesskilningi, segir í nýrri könnun. Tæplega fjórðungur 15 ára drengja getur ekki lesið sér til gagns.  
Barcelona burstaði í gærkvöld Bate Borisov, 5-0 í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Chelsea mátti sætta sig við jafntefli gegn Valencia.
Veðurhorfur: Suðaustan fimm til tíu metrar um landið. Vaxandi austlæg átt með rigningu síðdegis, en þurrt að mestu norðaustanlands. Hvöss suðaustanátt suðvestan- og vestanlands í kvöld og nótt en stormur við suðvesturströndina. Hiti fjögur til þrettán stig, svalast nyrst, en fremur milt á morgun.</description>
Hádegisfréttir 28.september 2011
      <description>Ríkislögreglustjóri hafnar því að hafa brotið lög. Ekki hafi gefist tími til að bjóða út kaup á óeirðarbúnaði lögreglu í miðri búsáhaldabyltingu. Ríkisendurskoðun gagnrýnir hinsvegar helst innkaup í desember 2009, þegar mótmæli voru að mestu um garð gengin. 
Verðbólga er nú fimm komma sjö prósent hefur ekki mælst hærri síðan í maí í fyrra. Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir þróunina gífurlegt áhyggjuefni. 
Ekki borgar sig að nýta húsnæði sem fyrir er í borginni heldur er betra að byggja nýjar leiguíbúðir. Þetta er niðurstaða vinnuhóps lífeyrissjóðanna sem skoðar hvernig þeir geta komið á húsnæðismarkað.
Hópur lögreglumanna hefur verið skikkaður til vinnu við setningu Alþingis á laugardag segir formaður Landssambands lögreglumanna. Erfitt sé að svara því hvaða áhrif úrsagnir lögreglumanna úr óeirðasveitum hafi.  
Evrópuþingið samþykkti í morgun strangari reglur til að koma í veg fyrir halla á fjárlögum aðildarríkjanna. Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins segir að Evrópusambandið standi nú frammi fyrir sinni mestu prófraun til þessa.
Bayern Munchen og Real Madrid eru með fullt hús stiga að loknum tveimur umferðum í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Manchester United var nálægt því að tapa fyrir Basel á heimavelli.
Veðurhorfur: Vaxandi austlæg átt og rigning. Norðaustan tíu til átján og talsverð rigning um landið norðvestanvert í kvöld, annars allhvöss suðvestanátt og skúrir, en stormur við norðurströndina í nótt.  Lægir talsvert á morgun. Hiti sjö til þrettán stig en heldur kólnandi á morgun.</description>
Hádegisfréttir 27.september 2011
      <description>Embætti Ríkislögreglustjóra keypti vörur af fyrirtæki í eigu eiginkonu lögreglumanns hjá embættinu fyrir rúmar 26 milljónir króna á þriggja ára tímabili. Ríkisendurskoðun telur að hluti innkaupa löggæslustofnana brjóti lög um opinber innkaup.
Forsætisráðherra segir að Samtök atvinnulífsins eigi að líta í eigin barm áður en þau gagnrýna ríkisstjórnina fyrir aðgerðarleysi. Ríkið hafi gert mun meira til að  byggja upp atvinnu en samtökin. 
Papandreou forsætisráðherra Grikklands hefur beðið forystumenn í viðskiptalífi Þýskalands að koma Grikkjum til hjálpar í fjármálakreppunni með því að fjárfesta í Grikklandi.
Ísland gæti orðið fyrst vestrænna þjóða til að viðurkenna Palestínuríki. Utanríkisráðherra hyggst leggja til við Alþingi í næstu viku að fullveldi Palestínu verði viðurkennt.
Forsætisráðherra segir ríkisstjórnina ekki geta hækkað laun lögreglumanna. Þó sé verið að skoða hvernig hægt sé að koma til móts við kröfur þeirra á annan hátt.
Skynsamlegast væri að markverðir í handbolta léku með hjálm eða hlíf, segir Snæbjörn Brandsson íþróttlæknir. Íþróttahreyfingin reyni að koma í veg fyrir höfuðáverka með strangari reglum og dómgæslu.
Bryndís Björgvinsdóttir hlaut í dag íslensku barnabókaverðlaunin, fyrir bókina "Flugan sem stöðvaði stríðið". Hún segir húsflugur geta komið ýmsu til leiðar með klókindum.
Veðurhorfur: Austan og suðaustan fimm til þrettán metrar, en þrettán til átján við suðurströndina. Rigning, fyrst á sunnanverðu landinu. Lægir sunnantil síðdegis og styttir að mestu upp, en norðantil í nótt. Gengur í austan og norðaustan fimm til þrettán á morgun með rigningu, fyrst suðaustanlands. Hiti fimm til þrettán stig.</description>
Hádegisfréttir 26.september 2011
      <description>Gengi hlutabréfa  snarhækkaði á flestum mörkuðum í Evrópu í morgun eftir að fréttist af nýrri  björgunaráætlun fyrir evrusvæðið,  þar sem meðal annars á að afskrifa helming ríkisskulda Grikkja. 
Sameinuðu þjóðirnar taka fyrir í dag umsókn Palestínumanna um að samtökin viðurkenni sjálfstætt ríki þeirra. 
Matargjöfum Fjölskylduhjálpar Íslands hefur fjölgað um þriðjung frá hruni. Um 2500 börn eiga foreldra sem þiggja matargjarfir.
Félagsráðgjafar óttast um öryggi sitt í vinnunni og fá hótanir frá skjólstæðingum sínum. Formaður Félagsráðgjafafélags Íslands segir að svo virðist sem fólk láti reiði sína bitna á öðrum í meira mæli en áður.  
Kínverski auðmaðurinn, Huang Nubo, segist ætla að nota verkefni sitt á Grímsstöðum á Fjöllum, ef af því verður, sem stökkpall yfir í samskonar verkefni annars staðar á Norðurlöndum. Hann hyggst byggja upp ferðaþónustu í Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð á næstu fimm árum.
Ákæra á hendur fyrrverandi framkvæmdastjóra Verðbréfaþjonustu sparisjóðanna var þingfest í héraðsdómi í dag, fjórum árum eftir að rannsókn málsins hófst. Maðurinn er ákærður fyrir tugmilljarða umboðssvik.
Fiskveiðar á Norðurlöndum gefa mest af sér á Íslandi, segir í nýrri norskri skýrslu. Þar segir að fiskveiðistjórnunarkerfið sé ein ástæða mikillar arðsemi í sjávarútvegi.
Veðurhorfur: Suðvestan fimm til tíu metrar og rigning eða skúrir, en skýjað með köflum og þurrt að kalla austanlands. Úrkomuminna í nótt. Gengur í suðaustan átta til fimmtán á morgun með rigningu, en lengst af hægari og þurrt á norðanverðu landinu. Hiti sjö til fjórtán stig.</description>
Hádegisfréttir 25.september 2011
      <description>Gríðarleg aukning er á útlánum til íbúðakaupa það sem af er ári, miðað við sama tímabil í fyrra. Yfirvofandi hækkun húsnæðisverðs gerir kaup álitlegri að mati greiningardeilda. 
Kári Steinn Karlsson bætti í morgun 26 ára gamalt Íslandsmet í maraþonhlaupi þegar hann hljóp Berlínar maraþonið á rúmum tveimur klukkustundum og sautján mínútum. 
Áhrifamikill ráðherra í rússnesku ríkisstjórninni ætlar ekki að starfa áfram, gangi eftir hrókering æðstu stjórnenda á embættum fyrir forsetakosningarnar á næsta ári. 
Lokatilraun verður gerð í dag til að leysa kjaradeilu félagsráðgjafa hjá Reykjavíkurborg til að koma í veg fyrir að boðað verkfall hefjist á morgun. Formaður kjaranefndar félagsráðgjafa hefur trú á að hægt verði að leysa deiluna í dag.
Sveitarstjórnarmenn í Bláskógabyggð hafa miklar áhyggjur af fjölgun refs í sveitarfélaginu eftir að ríkið hætti að niðurgreiða refaveiðar. Formaður byggðaráðs segir fuglalíf nánast að hverfa.
Garðabær er draumasveitarfélag landsins, samkvæmt úttekt vikuritsins Vísbendingar. Það sveitarfélag stendur best fjárhagslega. Álftanes stendur hins vegar verst að vígi.
Fólk er almennt hamingjusamara nú en fyrir hrun en þeir sem bera minna úr býtum og börn í tekjulægstu hópunum eru þó ekki eins hamingjusöm og hinir.</description>
Hádegisfréttir 24.september 2011
      <description>Lögreglumenn segja kjarabæturnar sem kynntar í gær, niðurlægjandi fyrir stéttina. Framundan séu aðgerðir að hálfu lögreglumanna. Rætt er um boðun félagsfundar á sama tíma og Alþingi verður sett eða boðun veikinda. 
Vladirmir Putin, forsætisráðherra Rússlands, stefnir að því að verða aftur forseti landsins. Hann leggur til að Dimitri Medvedev taki við embætti forsætisráðherra.
Björgólfur Thor Björgólfsson gagnrýnir Íslendinga harðlega vegna uppgjörsins eftir bankahrunið í viðtali við norskt blað í dag.  Hann segist að ósekju vera kallaður lygari og alltaf spyrtur saman við aðra útrásarvíkinga.
Lítið af skuldum bænda er afskrifað þar sem verð á bújörðum og kvóta er ofmetið, segir eftirlitsnefnd um sérstæka skuldaaðlögun. Fjármálastofnanir telja aðeins sex og hálft prósent bænda vera í fjárhagsvandræðum.
Mikill fjöldi skjálfta á Hengilssvæðinu í gær, gerði jarðeðlisfræðingum Veðurstofunnar erfitt fyrir að fylgjast með skjálftum annars staðar. Hundruð skjálfta mældust á Hellisheiði og enn er verið að fara yfir þá.
Danskt húsgagnafyrirtækið, sem einkum framleiðir húsgögn eftir þekkta arkitekta, býður nú kaupendum nýrra stóla sérstaka þjófavörn. 
Birgir Leifur Hafþórsson, lék í morgun á fjórum höggum undir pari á þriðja keppnisdegi opna austurríska mótsins í golfi. Birgir skaust upp um 32 sæti með frammistöðu sinni og er sem stendur í 26.sæti.</description>
Hádegisfréttir 23.september 2011
      <description>Ekki er verið að fegra bókhald ríkissjóðs með því að taka lán fyrir opinberum framkvæmdum. Þetta segir fjármálaráðherra. Hann kallar tilraunir manna til að halda öðru fram þvælu.
Fólk sem ekki þarf á því að halda fær skuldir felldar niður því bankar beita einföldum úrræðum í stað sértækrar skuldaaðlögunar. Þetta kemur fram í skýrslu Eftirlitsnefndar um sértæka skuldaaðlögun.
Abbas, forseti Palestínumanna, leggur í dag fram formlega umsókn um að sjálfsætt Palestínuríki fái fulla aðild að Sameinuðu þjóðunum. Talið er hugsanlegt að hann fallist á að atkvæðagreiðslu í Öryggisráðinu verði frestað.
Gæsluvarðhaldskrafa á hendur konu, sem stakk sambýlismann sinn nokkrum sinnum með hnífi í Kópavogi í gær, verður lögð fram í dag. 
Ali Abdullah Saleh, forseti Jemens, er kominn heim eftir þriggja mánaða dvöl í Sádi-Arabíu. Fréttaskýrendur telja það auka hættuna á borgarastríði í Jemen.
Meira en tveir þriðju hlutar af öllum útfluttum sjávarafurðum frá Íslandi fara til landa innan Evrópusambandsins. Rekstrarhorfur sjávarútvegsins eru góðar segir í nýrri skýrslu.
Fyrrverandi umboðsmaður atvinnuknattspyrnumanna á Englandi segir Eggert Magnússon, þáverandi stjórnarformann West Ham hafa, greitt sér 160 milljónir króna fyrir það eitt að sannfæra leikmann um að skrifa undir samning við félagið.
Veðurhorfur: Austlæg átt, þrír til tíu metrar og skýjað með köflum, en þokusúld við austurströndina. Vaxandi austanátt og þykknar upp í dag. Norðaustan og austan tíu til átján metrar og rigning á morgun. Átta til þrettán stiga hiti.</description>
Hádegisfréttir 21.september 2011
      <description>Eignir lífeyrissjóða hafa rýrnað um á þriðja tug milljarða vegna niðursveiflu á erlendum mörkuðum.
Helstu ástæður óvissunnar, sem Ísland stendur frammi fyrir í efnahagsmálum, eru ekki lengur atburðir innanlands. Þróun mála í Evrópu og Bandaríkjunum hefur meiri áhrif. Þetta segir fjármálaráðherra. Hann segist hafa miklar áhyggjur af stöðunni í Evrópu.
Gríska ríkisstjórnin kynnir áætlun um aðhald í efnahagsmálum í dag. Stjórnvöld vonast til í aðgerðirnar nægi til að forða landinu frá greiðsluþroti. 
Stýrivextir Seðlabankans verða óbreyttir, fjögur og hálft prósent. Seðlabankastjóri segir mikið þurfa að gerast til að vextir lækki aftur á næstunni.
Félagsráðgjafar eru svartsýnir um að ná samkomulagi við Reykjavíkurborg um launakjör sín, áður en boðað verkfall hefst á mánudaginn. Þeir sitja nú á fundi hjá sáttasemjara.
Obama Bandaríkjaforseti ræðir við Abbas, forseta Palestínumanna, í dag til að freista þess að fá Palestínumenn ofan af því að lýsa einhliða yfir sjálfstæðu ríki Palestínumanna og sækja um aðild að Sameinuðu þjóðunum á föstudag.
Nokkuð er um að lögreglan stöðvi foreldra sem aka undir áhrifum áfengis og fíkniefna með börn sín í bílnum. Ökumenn hafa verið teknir undir áhrifum fíkniefna við leikskóla, þar sem þeir hafa ætlað að sækja börn sín eða skila þeim af sér.
Veðurhorfur: Hæg norðanátt, víða léttskýjað á sunnanverðu landinu, annars skýjað með köflum og úrkomulítið. Norðvestan átta til þrettán og fer að rigna austanlands í kvöld. Norðan og norðvestan fimm til tíu á morgun. Súld eða dálítil rigning norðantil, en léttskýjað sunnanlands. Hiti fimm til þrettán stig að deginum, hlýjast sunnan heiða.</description>
Hádegisfréttir 20.september 2011
      <description>Standard og Poor's lækkaði í morgun lánshæfismat Ítalíu. Sérfræðingar segja að með því aukist enn fjármálavandi landsins. Ítölsk stjórnvöld hafa brugðist illa við tíðindunum. 
Hátt í sex hundruð manns eru á fundi með innanríkisráðherra sem nú stendur yfir á Patreksfirði vegna vegamála á sunnanverðum Vestfjörðum. 
Formaður Dýraverndarsambands Íslands segir að angi af skuggalegum heimi dýraofbeldis og -kláms hafi borist hingað til lands. Allt verður gert til þess að upplýsa hver misþyrmdi hryssum í Kjós segir lögreglan.
Samkeppniseftirlitið hefur ákveðið að sekta Símann um sextíu milljónir króna fyrir að misnota markaðsráðandi stöðu sumarið 2009. 
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði segir óábyrgt að tala um niðurfellingu skulda, þegar ljóst sé að bæjarfélagið geti staðið undir afborgunum. Bæjaryfirvöld semja þessa dagana um endurfjármögnun á fjórtán milljarða króna skuld. 
Ekkert gengur hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands að manna stöður lækna. Þar vantar nú fjóra til fimm lækna.
Epli, bananar, perur og blómkál bæta ekki bara heilsu manna, heldur sýna nýjar rannsóknir að þeir sem borða mikið af þessum ávöxtum og grænmeti geti stórminnkað hættu á að fá heilablóðfall.  
ÍBV og KR eru enn jöfn að stigum í tveimur efstu sætunum í úrvalsdeild karla í knattspyrnu eftir fjörugan jafnteflisleik liðanna í Vestmannaeyjum í gær. 
Veðurhorfur: Fremur hæg suðaustlæg átt og skúrir, en skýjað með köflum og yfirleitt þurrt um landið norðanvert. Norðan þrír til átta metrar á morgun, skýjað með köflum og stöku skúrir. Átta til fimmtán stiga hiti að deginum en svalara á morgun.</description>
Hádegisfréttir 19.september 2011
      <description>Breski fjárfestirinn Vincent Tchenguiz hefur fallið frá 317 milljarða króna skaðabótakröfum á hendur Kaupþingi. Hann kom bróður sínum Robert til hjálpar skömmu áður en bankinn féll, en taldi að stjórnendur hans hefðu beitt sig blekkingum.
Þrýst er á Grikki að grípa til róttækra aðgerða vegna hættu á greiðslufalli gríska ríkisins á allra næstu vikum. Grískir ráðamenn ræða málið við fulltrúa alþjóða gjaldeyrissjóðsins og Evrópusambandsins í dag.
Áhættusamara er að fjárfesta á Íslandi en í nokkru öðru ríki í Vestur-Evrópu. Lektor í viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík segir að erlendir fjárfestar óttist geðþóttaákvarðanir stjórnvalda hér á landi. 
Erfitt reyndist að finna sjúklinga til að koma á einkasjúkrahús á Keflavíkurflugvelli. Læknirinn sem tók að sér að undirbúa starfsemina segir að forsendurnar, sem lagt var upp með, séu brostnar. 
Efnahags- og viðskiptaráðherra telur rétt að láta reyna á bótakröfu á hendur Bretum vegna þess tjóns sem hlaust af beitingu hryðjuverkalaga gegn Landsbankanum. Hann muni tala fyrir því við ríkisstjórnarborðið.
Stjórnendur Hafnarfjarðarbæjar ættu að semja um niðurfellingu skulda við erlenda lánadrottna, segir bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Forsendur endurfjármögnunar séu brostnar. 
Tveir Íslendingar, Stefán Sölvi Pétursson og Hafþór Júlíus Björnsson,  tryggðu sér í gærkvöld sæti í úrslitum aflraunamótsins Sterkasti maður heims sem nú stendur yfir í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum.
Veðurhorfur: Suðaustan og síðar sunnan fimm til þrettán metrar en lægir heldur í dag. Rigning með köflum eða skúrir, en styttir upp um landið norðaustanvert undir kvöld. Fremur hæg suðaustlæg átt á morgun og skúrir. Átta til fimmtán stiga hiti að deginum.</description>
Hádegisfréttir 18.september 2011
      <description>Formaður Sjálfstæðisflokksins vill athuga hvort hægt sé að krefja Breta um bætur vegna þess tjóns sem varð vegna beitingu hryðjuverkalaganna.  Fjármálaráðherra segir ekki augljóst hversu áreiðanlega sé hægt að sundurgreina tjónið af hryðjuverkalögunum og almennum óstöðugleika haustið 2008. 
Yfirdýralæknir segir það skýlausa skyldu lögreglunnar að rannsaka eftir bestu getu tilkynningar um dýraníð.  Tilkynnt hefur verið um ofbeldi gegn 5 hryssum í sumar. 
Septemberþinginu lauk í gær. Nýtt þing kemur saman 1. október.
Þjóðarráð uppreisnarmanna í Líbíu hyggst tilkynna um nýja ríkisstjórn þar í landi í dag. Uppreisnarmenn hafa mætt mikilli mótspyrnu í bardögum undanfarna daga. 
Ríflega tuttugu prósent af ráðstöfunartekjum heimila á Íslandi fara í húsnæðiskostnað. Hlutfallslega dýrast er fyrir fjölskyldur í Danmörku að eiga eða leigja húsnæði, en hlutfallið er lægst í Finnlandi. 
Fangar geta lokið afplánun utan fangelsa en undir rafrænu eftirliti samkvæmt nýju frumvarpi sem samþykkt var á Alþingi.
Hljómsveitastjórinn, Gustavo Dudamel frá Venusuela, mun í kvöld stjórna sinfóníuhljómsveit Gautaborgar í Eldborgarsal Hörpu.
Veðurhorfur: Gengur í suðaustan þrettán til tuttugu metrar með rigningu sunnan og vestanland, hvassast við ströndina og sums staðar hvassir vindstrengir við fjöll. Fer að draga úr vindi suðvestantil seint í kvöld. Talsverð rigning suðaustanlands í nótt. Suðaustan átta til þrettán og rigning austanlands á morgun. Hiti tíu til fimmtán stig að deginum. 
Öllum ferðum ferjunnar Baldurs milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar í dag hefur verið aflýst vegna veðurs. Í tilkynningu segir að við þær aðstæður sem nú eru sé ekki hægt að nota Þorlákshöfn í stað Landeyjahafnar.</description>
Hádegisfréttir 17.september 2011
      <description>Þingmaður Sjálfstæðisflokks líkir gjaldeyrishöftum við ópíum og ætlar að greiða atkvæði gegn þeim. Skorað var á forseta Alþingis í morgun að taka tillögu um staðgöngumæðrun af dagskrá. Stefnt er að þinglokum í dag. 
Eigendur hryssu, sem fannst illa særð á kynfærum, hafa kært málið til lögreglu. Héraðsdýralæknir Kjósarumdæmis segir að allt bendi til þess að sárin séu af mannavöldum en hryssan er sú þriðja frá því í sumar sem finnst þannig særð í Kjós. 
Samningar hafa náðst milli flugfreyja og samtaka atvinnulífsins um nýjan kjarasamning. Flugfreyjur höfðu samþykkt að grípa til verkfalla tækjust samningar ekki.
Þrír létu lífið og 54 særðust á flugsýningu  í Nevada-ríki í Bandaríkjunum í gær, þegar gömul orrustuflugvél hrapaði niður í hóp áhorfenda. Óttast er að fleiri eigi eftir að láta lífið.
Velferðarráðherra ætlar að láta athuga sérstaklega hvort það sé rétt að föngum - sem eiga við alvarleg andleg veikindi að stríða - sé neitað um innlögn á geðdeildir. 
Evrópskir atvinnurekendur myndu fagna inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnurekenda í Evrópu.
Talskonu Femínistafélags Íslands líst illa á hvatningarátak VR gegn kynbundnu launamisrétti. Hún segir að fyrirtækjum, sem viðhalda misréttinu, gefist nú kostur á jafnréttisstimpili fyrir að veita konum 10% afslátt. 
Leiklist, dans og tónlist tvinnast saman í nýju leikverki sem verður frumsýnt í kvöld í Kassanum í Þjóðleikhúsinu. 
Yohan Blake frá Jamaíku hljóp í gær 200 metra á næst besta tíma sögunnar á lokamóti demantamótaraðarinnar í frjálsum íþróttum.
Veðurhorfur: Austlæg átt, þrír til átta metrar og skýjað með köflum, en átta til tíu og skúrir syðst. Vaxandi suðaustanátt í fyrramálið, þrettán til átján og rigning sunnan og vestanlands upp úr hádegi á morgun. Hiti víða ellefu til sextán stig að deginum.</description>
Hádegisfréttir 16.september 2011
      <description>Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segir hvorki lagalegan né vísindalegan grundvöll fyrir aðgerðum Bandaríkjanna vegna hvalveiða Íslendinga. Umhverfisráðherra hefur efasemdir um að áframhaldandi hvalveiðar séu verjandi. 
Forystumenn ríkisstjórnar og stjórnarandstöðu á Alþingi reyna nú til þrautar að ná samkomulagi um afgreiðslu stjórnarráðsfrumvarps og þinglok. Tveir ráðherrar vinstri grænna styðja frumvarpið ekki.
Björgunarmenn berjast enn við að halda strandferðaskipinu Norðurljósinu á floti í höfinni í Álasundi.  Stór rifa er á skrokki skipsins og engu má muna að því hvolfi.
Óviðunandi er að forseti Íslands stigi inn á verksvið lýðræðislegra réttkjörinna stjórnvalda. Þetta segir Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og vill að ríkisstjórnin bregðist við. 
Kynbundinn launamunur er í kringum 10% og hefur haldist óbreyttur í þrjú ár, að því er fram kemur í niðurstöðum úr launakönnun VR. Herferð gegn kynbundnum launamun hefst í dag.
Hækkandi sjávarhiti veldur því að þorskur, ýsa og aðrar hefðbundar nytjategundir eru á undanhaldi í hafinu umhverfis Bretlandseyjar.
Nútímavæða þarf efnahagskerfi Evrópuríkja til að bregðast við kreppunni, segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnurekenda í Evrópu. Nýsköpun skipti sköpum til að ná fram efnahagsbata.
Víkingur féll niður í 1. deild og KR-ingar endurheimtu toppsætið í gærkvöld en þá fór fram heil umferð í úrvalsdeild karla í knattspyrnu.
Veðurhorfur: Suðaustan átta til þrettán metrar og rigning eða súld, en hægari og úrkomulítið norðaustanlands. Austan átta til þrettán og dálítil væta með suðurströndinni á morgun, en annars mun hægari og þurrt. Hiti tíu til sautján stig, hlýjast á norðurlandi.</description>
Hádegisfréttir 15.september 2011
      <description>Tveir eru látnir og nokkurra er enn sakað eftir að eldur kom upp í strandferðaskipinu Norðurljósinu við Álasund í Noregi í morgun. 262 voru um borð, farþegar og áhöfn.
Fermetraverð fasteigna á höfuðborgarsvæðinu er enn of hátt samkvæmt nýrri skýrslu. Velta á fasteignamarkaði hefur dregist mest saman á Álftanesi síðustu fjögur ár.
Velferðarráðherra segir það ekki sæmandi að beita uppsögnum starfsfólks Heislustofnunarinnar í Hveragerði til að þrýsta á um samninga. 
Kjörsókn var um 27 prósent á hádegi í þingkosningunum í Danmörku. Vinstriflokkar fara með sigur af hólmi og ná meirihluta á þingi, ef marka má skoðanakannanir. 
Forstöðumaður fangelsanna á höfuðborgarsvæðinu segir að starfsfólk í fangelsum finni fyrir auknu óöryggi í vinnunni. Á sama tíma og erfiðum föngum fjölgi hafi starfsfólki í fangelsum fækkað.
Fjármálaráðherra segir ríkisstjórnina horfa til framtíðar með Stjórnarráðsfrumvarpinu og sakar stjórnarandstöðu um afdalamennsku og íhaldssemi. Þingmenn hafa síðustu daga og nætur varið þrjátíu og fimm klukkustundum í aðra umræðu um frumvarpið. 
Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í Fjallabyggð er fallinn. Annar fulltrúi Framsóknarflokks gagnrýnir fyrirhugaðar framkvæmdir við grunnskólabyggingar og segir þær of dýrar.
Knattspyrnumaðurinn Ármann Smári Björnsson hefur skrifað undir þriggja ára samning við ÍA og leikur með liðinu í efstu deild á næsta ári. 
Veðurhorfur: Sunnan fimm til tíu metrar með vætu, en bjart á norðaustur- og austurlandi framan af degi, síðan skýjað og þurrt að kalla. Suðaustan átta til þrettán á morgun og rigning, einkum suðaustanlands, en úrkomulítið norðanlands. Átta til fimmtán stiga hiti, hlýjast fyrir norðan.</description>
Hádegisfréttir 14.september 2011
      <description>Á annað hundrað starfsmenn Heilsustofnunarinnar í Hveragerði fá að óbreyttu uppsagnarbréf um mánaðamótin. Framkvæmdastjórinn sakar velferðarráðuneytið um að svíkja gefin loforð. 
Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins tilkynnti í morgun að unnið væri að tillögum um sameiginlega skuldabréfaútgáfu á evrusvæðinu. Hlutabréfaverð hefur í kjölfarið hækkað í álfunni. 
Umræða um stjórnarráðsfrumvarpið er eingöngu til að þóknast forsætisráðherra segir þingflokksformaður Framsóknar. Þingi og þjóð sé haldið í gíslingu. Enn er ósamið um þinglok og fjölmörg mál óafgreidd.
Formaður menntamálanefndar Alþingis vill að stjórnvöld geri bráðabirgðasamning við nemendur Kvikmyndaskólans út skólaárið.
Tryggingastofnun greiðir árlega tvo og hálfan milljarð króna í endurhæfingarlífeyri. Flestir sem fá slíkan lífeyri glíma við geðraskanir. Í hópnum eru mun fleiri konur en karlar. 
Svari ríkisstjórnin ekki ásökunum forseta Íslands um frammistöðu sína í deilum við Hollendinga og Breta, er niðurlæging hennar alger. Þetta segir formaður Sjálfstæðisflokksins. 
Fjármálakreppan hefur fyrst og fremst bitnað á ómenntuðu og ófaglærðu fólki, segir sérfræðingur OECD. Íslendingar verja langtum minna fé til háskóla en nágrannaþjóðirnar.
Veðurhorfur: Suðaustan þrír til átta metrar og léttskýjað framan af degi, en þykknar síðan upp.  Dálítil rigning á morgun. Sjö til tólf stiga hiti að deginum.</description>
Hádegisfréttir 13.september 2011
      <description>Þjóðin ber ekki stærð fjármálakerfisins og án hagræðingar mun það kollsigla atvinnulífið og heimilin. Þetta segir efnahags- og viðskiptaráðherra í kjölfar uppsagnar 57 starfsmanna Arionbanka í gær.
Íslandsbanki hagnaðist um rúma átta milljarða króna fyrstu sex mánuði ársins.
Talíbanar réðust í morgun á höfuðstöðvar fjölþjóðaherliðsins í Afganistan. Tveir íslenskir friðargæsluliðar starfa þar. Þá sakar ekki.
Jón Bjarnason, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, verður að lúta vilja Alþingis í ESB-málinu segir Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra. Hann hafi gert það hingað til, en fari sér hægt. 
Rekstrarstaða Landspítalans og Sjúkratrygginga Íslands er mjög alvarleg og á henni verður að taka í umfjöllun um fjárlög næsta árs segir formaður heilbrigðisnefndar Alþingis. 
Óvíst er um framtíð ríkisstjórnar Jens Stoltenberg eftir sveitarstjórnarkosningarnar í gær. Framfaraflokkurinn og vinstriflokkurinn guldu afhroð en hægriflokkurinn vann mikið á.
Ítalska ríkisstjórnin hefur beðið  Kínastjórn um að kaupa ítölsk ríkisskuldabréf í stórum stíl til þess að róa fjármálamarkaði. 
Serbinn Novak Djokovic (Djókovits) fagnaði í gærkvöld sigri á Opna bandaríska meistaramótinu í tennis í fyrsta sinn. Djokovic sigraði Rafael Nadal, frá Spáni í úrslitaleik í fjórum settum.
Veðurhorfur: Norðan og norðaustan fimm til tíu metrar, en tíu til fimmtán við austurströndina. Smáskúrir eða slydduél á norðaustanverðu landinu, annars víða léttskýjað. Hiti þrjú til þrettán stig, hlýjast suðvestantil. Lægir í nótt og vægt frost í innsveitum. Hæg suðlæg átt og bjart veður á morgun. Þykknar upp vestanlands síðdegis. Hiti yfirleitt átta til þrettán stig.</description>
Hádegisfréttir 12.september 2011
      <description>Einn lét lífið og þrír særðust þegar sprenging varð í kjarnorkuvinnslustöð í Suður-Frakklandi í morgun. Óttast var að geislavirk efni gætu lekið út í andrúmsloftið, en þeirri hættu virðist hafa verið afstýrt.
Skorað er á fyrrverandi hluthafa í Landsbankanum í dagblaðaauglýsingu í dag að taka þátt í hópmálsókn gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni. Forsvarsmaður áskorunarinnar segir að handhafar fjögurra til fimm prósenta hlutafjár í bankanum taki þátt í málshöfðuninni.
Frumvarp um Stjórnarráðið rekur ekki fleyg í raðir ríkisstjórnarinnar. Það er fyrirsláttur stjórnarandstöðunnar, segir forsætisráðherra. 
Gengi hlutbréfa hefur fallið á mörkuðum víða um heim. Gengi evru hefur veikst og hefur ekki verið lægra gagnvart jeni í tíu ár. 
Til greina kemur að banna rjúpnaveiðar í haust. Ýmislegt bendir til að þær séu ekki sjálfbærar.
Nærri tveir af hverjum þremur, sem afstöðu tóku í nýrri könnun, vilja leiða til lykta viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu. 
Liðsmenn Gaddafís, fyrrverandi Líbíuleiðtoga, felldu fimmtán í árás á olíuhreinsunarstöð í nótt. Framkvæmdastjóri NATO segir að hernaðaraðgerðum bandalagsins verði haldið áfram svo lengi sem þurfa þykir.
Magnús Gylfason tekur við af Heimi Hallgrímssyni, þjálfara karlaliðs ÍBV í fótbolta, eftir að leiktíðinni lýkur. KR tapaði í gær sínum fyrsta leik í sumar og ÍBV er komið á toppinn.
Veðurhorfur: Norðaustan átta til átján metrar, hvassast norðvestantil og suðaustanlands. Léttskýjað á suðvestanverðu landinu, en dálítil væta á norður og austurlandi. Búast má við öskumistri sunnanlands. Léttskýjað sunnan og vestanlands, annars skýjað en úrkomulítið. Hiti fimm til fimmtán stig að deginum, hlýjast suðvestanlands.</description>
Hádegisfréttir 11.september 2011
      <description>Flugfreyjur Icelandair undirbúa nú tveggja daga verkfall í lok þessa mánaðar og frekari verkfallsaðgerðir í framhaldi. Kjaraviðræður hafa staðið yfir í tíu mánuði án niðurstöðu. 
Mun fleiri treysta Hönnu Birnu Kristjánsdóttur til að leiða Sjálfstæðisflokkinn á landsvísu en núverandi formanni, Bjarna Benediktssyni. Innan við tíu prósent kjósenda í kjördæmi Bjarna treysta honum best til að leiða flokkinn áfram.
Gríðarleg öryggisgæsla er í New York og Washington þegar Bandaríkjamenn minnast þess í dag að tíu ár eru liðin frá hryðjuverkaárásunum ellefta september. Yfirvöld rannsaka enn vísbendingar um yfirvofandi hryðjuverk.
Hljóðupptökur úr flugvélum og flugturnum frá 11. september 2001 sem bandarísk yfirvöld birtu í vikunni sýna glöggt ringulreiðina sem ríkti um daginn. 
Sænska lögreglan handtók fjóra menn í nótt vegna gruns um að þeir ætluðu að fremja hryðjuverk í Gautaborg. 
Forsætisráðherra segir að það væri óskynsamlegt af sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að setja sig upp á móti stjórnarráðsfrumvarpinu. Það snúist ekki um hans persónu heldur um bætta stjórnarhætti í stjórnsýslunni.
Vegurinn á milli Bakkafjarðar og Þórshafnar er stórhættulegur að sögn sveitarstjóra Langanesbyggðar. Sveitarstjórnin krefst úrbóta á veginum.</description>
Hádegisfréttir 10.september 2011
      <description>Borgarfulltrúum í Reykjavík verður fjölgað um allt að sextán og sveitarfélögum verður bannað að fjárfesta í hagnaðarskyni samkvæmt frumvarpi til sveitarstjórnarlaga sem afgreiða á á Alþingi í næstu viku.
Viðbúnaðarstigi hefur verið lýst yfir í Egyptalandi eftir að mótmælendur réðust inn í sendiráð Ísraels í Kaíró í nótt. Sendiherrann flýði land í kjölfarið.
Málum sem eru til meðferðar hjá barnavernd Reykjavíkur verður ekki sinnt og hluti þeirra sem fá fjárhagsaðstoð fá hana ekki, fari félagsráðgjafar í verkfall. 
Sveitarstjóri Tálknafjarðar segir óásættanlegt að fólk á sunnanverðum Vestfjörðum þurfi áfram að aka yfir fjallvegi þegar aðrir kostir séu í stöðunni. 
Forsætisráðherra segir að aðildarviðræðum að Evrópusambandinu hafi seinkað vegna tregðu sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í málinu. Viðræðurnar séu þó ekki komnar í strand. 
Jarðhitavinnsla á vegum Orkuveitu Reykjavíkur hefur valdið jarðskjálftahrinu í nágrenni Hellisheiðarvirkjunar síðasta sólarhringinn. Um 100 skjálftar hafa mælst. 
Barack Obama segir að Bandaríkin séu sterkari í dag en fyrir tíu árum þegar hryðjuverkamenn gerðu árás á landið sem kostaði þrjú þúsund mannslíf. Árvekni væri þó áfram nauðsynleg til að sigra óvininn.</description>
Hádegisfréttir 09.september 2011
      <description>Mengunarslys í Ytri-Rangá er litið mjög alvarlegum augum af sveitarstjórn Rangárþings ytra. Sveitarfélagið hyggst gera ráðstafanir til að fyrirbyggja að slíkt komi fyrir aftur.
Bandarísk yfirvöld segjast hafa vísbendingar um að hryðjuverkamenn kunni að láta til skarar skríða um helgina, þegar tíu ár eru liðin frá árásunum á New York og Washington.
Tveir af hershöfðingjum Moammars Gaddafis flýðu ásamt fleiri líbískum embættismönnum yfir til Níger í morgun. Alþjóðalögreglan Interpol hefur lýst eftir Gaddafi og syni hans.
Norðmenn eru slegnir óhug vegna tíðra nauðgana í Ósló undanfarið.
Þriðji og síðasti áfangi Hellisheiðarvirkjunar verður tekinn í notkun á allra næstu dögum. Framleiðslan eykst þá um þriðjung og verður þá önnur stærsta rafmagnsvirkjun landsins, á eftir Kárahnjúkum.
Jafnaðarmenn verða sigurvegarar dönsku þingkosninganna í næstu viku ef marka má kannanir. Lögreglan rannsakar hvernig göng um skattamál formanns Jafnaðarmanna komust í hendur dagblaðsins B.T.
Þörf er á frekara fjármagni frá ríkinu til að stöðva útbreiðslu skógarkerfils, segir formaður umhverfisnefndar Eyjafjarðarsveitar. Verði það ekki gert nú aukist vandinn.  
Knattspyrnumaðurinn Veigar Páll Gunnarsson hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann segist sjá eftir að hafa neytt áfengis fyrir landsleik gegn Kýpur á dögunum. 
Veðurhorfur: Norðan fimm til þrettán metrar, hægast um landið norðvestanvert. Skýjað og smáskúrir norðaustantil, en bjartviðri sunnan- og vestanlands. Heldur hægari í kvöld og nótt en hvessir seinnipartinn á morgun. Búast má við öskufoki syðst á landinu.</description>
Hádegisfréttir 08.september 2011
      <description>Neyðarlögin ganga á rétt almennra kröfuhafa í þrotabú Landsbankans og hafa umturnað fyrirkomulagi gjaldþrotaskipta hér á landi. Þetta kom fram í málflutningi lögmanns kröfuhafa fyrir Hæstarétti í dag. Þar er þess krafist að neyðarlögunum verði hnekkt.  
Latibær er kominn í eigu bandaríska fjölmiðlarisans Turner. Heildarfjárfestinging nemur tveimur og hálfum milljarði króna. 
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra styður ekki frumvarp forsætisráðherra um Stjórnarráð Íslands.
Gaddafi, fyrrverandi Líbíuleiðtogi, seldi um fimmtung af gullforða landsins síðustu dagana sem hann var við völd. Uppreisnarmenn segjast hafa umkringt Gaddafí og lokað öllum undankomuleiðum.
Vaxandi óánægju gætir í garð Grikkja fyrir að standa ekki við skilyrði fyrir frekari aðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóða gjaldeyrissjóðnum. Ýmsir leggja til að Grikkjum verði vísað úr myntbandalagi Evrópu.
Fyrrverandi landsliðsþjálfari Svía, Lars Lagerbäck, segist tilbúinn að ræða við Knattspyrnusamband Íslands um að taka við landsliðinu. Geir Þorsteinsson, segir Lagerbäck áhugaverðan kost.
Veðurhorfur: Norðan tíu til fimmtán metrar, en allt að tuttugu metrar við austurströndina. Rigning eða slydda með köflum á norður og austurlandi og snjókoma til fjalla, en annars skýjað með köflum. Búast má við öskufoki syðst á landinu í dag. Norðan og norðaustan átta til þrettán og víða bjartviðri á morgun, en skúrir austanlands. Hiti fimm til tíu stig, víða næturfrost inn til landsins.</description>
Hádegisfréttir 07.september 2011
      <description>Þingmaður Samfylkingarinnar segir það afturhald að hafna tilboði kínverska fjárfestisins Huang Nubo í Grímsstaði á Fjöllum og það sé ekki í boði. Ísland þurfi á erlendri fjárfestingu að halda, undir það taka þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar.
Engar skýringar hafa fundist á óróa sem mældist undir Mýrdalsjökli í gær. Enn mælist virkni í Kötlu og allt bendir til þess að kvika sé að safnast saman undir henni. Jarðvísindamenn ætla að funda í dag til að fara yfir stöðuna.
Kínastjórn hugðist selja Gaddafi einræðisherra Líbíu vopn fyrir hundruð milljóna dollara í sumar þrátt fyrir  vopnasölubann Sameinuðu Þjóðanna.
Meirihluti heilbrigðisnefndar Alþingis vill að undirbúið verði frumvarp sem heimili staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni.
Fyrsta starfsár Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu hefst með tónleikum í kvöld þar sem Víkingur Heiðar Ólafsson leikur þriðja píanókonsert Rakhmaninoffs undir stjórn Vladimirs Ashkenazy.
Bókmenntahátíð í Reykjavík verður sett í dag.  Á hátíðinni gefst bókaunnendum tækifæri að kynnast í návígi úrvali innlendra og erlendra rithöfunda.
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu vann í gærkvöld langþráðan sigur í undankeppni Evrópumótsins þegar liðið lagði Kýpverja á Laugardalsvellinum, 1-0.
Veðurhorfur: Norðanátt, tíu til átján metrar, hvassast austast. Rigning á norðanverðu landinu og slydda til fjalla, en skýjað með köflum syðra. Dregur smám saman úr vindi og úrkomu á morgun og birtir til sunnan og vestanlands. Hiti fimm til tólf stig í dag, mildast syðst, en heldur svalara á morgun.</description>
Hádegisfréttir 06.september 2011
      <description>Jón Bjarnason, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, segir að persónuleg afstaða sín til Evrópusambandsins flækist ekki fyrir samþykkt Alþingis um aðildarviðræður. Ráðuneyti hans hefur enn ekki samið áætlun um aðlögun sem utanríkisráðherra hefði viljað láta gera í febrúar.
Staðhæfingar framsóknarmanna um að leynd hvíli yfir aðildarviðræðum við ESB eru ósannar, segir varaformaður utanríkismálanefndar. 
Huang Nubo, segir að Íslendingar muni byggja hótelið og aðra aðstöðu sem hann hyggst reisa á Grímstöðum á Fjöllum. Áætluð verklok séu eftir þrjú ár. Hann hyggst stofna íslensk fyrirtæki utan um reksturinn.
Bílar hlaðnir gulli og peningum eru í lest  50 líbískra herbíla úr liði Gaddafis einræðisherra Líbíu, sem  kom seint í gærkvöld  yfir landamærin til  Níger.
Árleg aðalskoðun á öryggi leiksvæða í Reykjavík hefur aðeins farið fram einu sinni á síðastliðnum níu árum. Sviðsstjóri hjá Reykjavíkurborg segir málið  í endurskoðun.
Kínverskur fréttamiðill fullyrðir að Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands hafi í forsetatíð sinni tekið á móti fleiri kínverskum sendifulltrúum en Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Þýskaland, Ítalía og Spánn samanlagt. 
Veðurhorfur: Fremur hæg norðaustlæg átt. Skýjað og skúrir. Þokubakkar á annesjum norðan- og austanlands. Sjö til fimmtán stiga hiti.</description>
Hádegisfréttir 05.september 2011
      <description>Landsdómur ákveður á næstu þremur til fjórum vikum ákveða hvort málarekstri gegn Geir H. Haarde verði vísað frá dómi eður ei. Málflutningur um frávísun fór fram hjá Landsdómi í morgun. 
Erlendir fjölmiðlar hafa fjallað töluvert um Landsdómsmálið í dag. Stórblaðið The New York Times segir málshöfðunina óvenjulega.
Fjármálaráðherra segist ekki ætla að munnhöggvast við forseta Íslands um Icesave. Ótímabært sé hjá forsetanum að krýna sig sigurvegara í máli sem ekki sé lokið. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir ekki boðlegt að ríkisstjórnin svari ekki. 
30 þúsund manna er  saknað í Líbíu frá því uppreisnin þar hófst fyrr á þessu ári. Nýjar upplýsingar hafa verið birtar sem sýna náið samstarf leyniþjónustu Breta og Bandaríkjamanna við öryggissveitir Gaddafis einræðisherra.
Enska dagblaðið Daily Mail segir Írann Roy Keane vera í viðræðum við Knattspyrnusamband Íslands um að taka við starfi landsliðsþjálfara karla. 
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir segir kaup kínverska fjárfestisins á Grímsstöðum á Fjöllum vera ólögleg og það sé óforsvaranlegt að veita undanþágu fyrir þeim.
Rúmlega fimmtíu prósent fleiri Íslendingar gistu á hótelum landsins í júlí en á sama tíma í fyrra. Gistinóttum á hótelum landsins fjölgaði um sextán prósent.
Big Mac hamborgarar McDonalds keðjunnar í danmörku eru að meðaltali átta prósent of rýrir samkæmt nýrri úttekt. Sé hún rétt sparar keðjan sé níu hundruð og þrjátíu tonn af hakki árlega. 
Veðurhorfur: Fremur hæg austlæg átt, en norðlægari á morgun. Skúrir, einkum síðdegis. Þokubakkar við norður og austurströndina í dag. Hiti 7 til 15 stig.</description>
Hádegisfréttir 04.september 2011
      <description>Forseti Íslands segir rannsóknarefni fyrir Evrópusambandið hvernig ríki sambandsins gátu stutt fáránlegar kröfur Breta og Hollendinga í Icesave málinu. Endurheimtur í þrotabú Landsbankans staðfesti að íslensk stjórnvöld hafi látið undan þrýstingi og beygt sig undir ofbeldi Breta og Hollendinga í málinu.
Mannlaus íbúð í fjölbýlishúsi í Arnarsmára í Kópavogi skemmdist mikið í eldi í morgun. Eldri hjón sem þar búa voru nýfarin út úr húsinu þegar eldurinn kviknaði.
Uppreisnarmenn í Líbíu vonast til að ná bænum Bani Walid á sitt vald í dag einu af höfuðvígjum hersveita Muammars Gaddafis. Þeir telja að Gaddafi og fylgdarlið hafi tekist að flýja þaðan í gær.
Skjálftar upp á rúmlega þrjá á Richer hafa orðið í Kötlu undanfarna daga. Jarðeðlisfræðingur segir að þetta geti tengst kvikuinnskotum. Vatnavextir í Múlakvísl stafa þó líklega af úrkomu fremur en hræingum undir jöklinum. 
Fráleitt er að breyta stofnbrautum við Landspítalann og setja þar mislæg gatnamót til að koma í veg fyrir umferðaöngþveiti við nýjan Landsspítala. Þetta segir Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn.</description>
Hádegisfréttir 03.september 2011
      <description>Forseti Íslands segir tengsl Huang Nubo við kínverska kommúnistaflokkinn engu máli skipta, og fagnar fyrirhuguðum landakaupum hans hér á landi. Hann segist hins vegar ekki hafa hvatt Nubo til fjárfestinga á Íslandi.
Leyniþjónustur Bandaríkjanna og Bretlands höfðu á undanförnum áratug náið samstarf við stjórn Muammars Gaddafis í Líbíu. Þetta kemur fram í gögnum sem fundust í Trípólí. 
Rúmlega helmingi fleiri fyrirtæki hafa farið í þrot það sem af er ári en á sama tímabili í fyrra. Framkvæmdastjóri samtaka atvinnulífsins segir þetta fyrirsjáanlega þróun í kjölfar hrunsins. Hann segir framhaldið velta á því hvort fjárfestingar komist af stað að nýju. 
Umboðsmaður barna furðar sig á því að tilmæli um lagfæringar á leikskólalóðum vegna slysahættu séu ítrekað hundsaðar. Skýr lagaleg skylda sé að fara að fyrirmælum um úrbætur. Börnin líði fyrir trassaskap.
Yfir 20 almennir borgarar voru drepnir í mótmælum í Sýrlandi í gær. Rússar fordæma nýsamþykktar refsiaðgerðir gegn Sýrlandi og segja þær engan árangur munu bera.
Hljóðfæraleikarar Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru afar ósáttir við háa gjaldtöku í bílastæðahúsi Hörpu. Þeir segja stæðin þau dýrustu á landinu. Margir þeirra eru með stór, þung og dýr hljóðfæri og verða að geta reitt sig á stæðin.
Yfirvöld í Louisiana og Mississippi í Bandaríkjunum hafa lýst yfir neyðarástandi vegna hitabeltislægðarinnar Lee sem nálgast ströndina. Búist er við að óveðrið færist í aukana áður en það kemur að landi.
Bændur í Hrútafirði segja fé koma vænt af fjalli þrátt fyrir að seint hafi sprottið í sumar á afréttum og í heimahögum. Réttað er í dag í Hrútatungurétt og fimm öðrum réttum á Norðurlandi. 
Perlan, eitt helsta kennileiti í Reykjavík, er auglýst til sölu í dagblöðunum í dag. Hugmyndir fulltrúa Orkuveitu Reykjavíkur um verð hússins verða ekki kynntar á meðan á söluferli stendur.</description>
Hádegisfréttir  02.september 2011
      <description>Kínverski auðkýfingurinn Huang Nubo segir að hann þurfi samþykki stjórnvalda í Peking til að kaupa Grímsstaði á Fjöllum. Hann segir óvíst hvort Kínastjórn veiti leyfið vegna þess uppnáms sem málið hafi vakið.
Forsætisráðherra segir framtíðina bjarta hér á landi og að framundan sé lífskjarasókn. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir ríkisstjórnina neita að horfast í augu við vandamálin og sé í engum takti við þjóðina.
Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur segir margvíslegar endurbætur hafa verið gerðar undanfarið ár á leikskólum borgarinnar.Orðalag í skýrslum um öryggismál beri ekki að oftúlka.
Samskipti Tyrklands og Ísraels eru í uppnámi vegna skýrslu Sameinuðu þjóðanna þar sem fram kemur að Ísraelsmenn hafi beitt allt of mikilli hörku þegar þeir stöðvuðu skipalest á leið til Gaza í fyrra. 
Stígamót opnuðu í dag nýtt kvennaathvarf í Reykjavík fyrir fórnarlömb vændis og mansals. Um þrjátíu konur leita árlega til Stígamóta vegna vændis eða kláms. 
Listamaðurinn Erró saknar þess að sjá ekki Esjuna úr miðbænum í Reykjavík. Þannig svarar hann spurningu um álit sitt á tónlistarhúsinu Hörpu. 
Usain Bolt tryggði sér nú rétt fyrir hádegi sæti í úrslitum 200 metra hlaups karla á HM í frjálsum íþróttum. 
Veðurhorfur: Norðaustan fimm til fimmtán metrar, hvassast norðvestantil. Rigning og súld, en talsverð rigning suðaustantil. Lægir í fyrramálið en áfram hvasst norðvestanlands. Rigning með köflum norðantil og stöku skúrir suðvestanlands, en dregur úr úrkomu suðaustan- og austantil síðdegis á morgun. Hiti átta til sautján stig, hlýjast suðvestanlands</description>
Hádegisfréttir  01.september2011
      <description>Starfsmaður Hvals hf er grunaður um að hafa dregið sér tugi milljóna. Brotin eru talin ná allt að fimm ár aftur í tímann.
Leiðtogar Þjóðarráðs uppreisnarmanna í Líbíu og sendinefndir 60 ríkja og alþjóðastofnana koma saman til fundar í París í dag þar sem  rædd verður aðstoð við uppbyggingu í Líbíu.
Verkefnisstjóri Eurorap á Íslandi segir auknar umferðartafir verða í nágrenni nýs Landspítala ef gatnakerfinu verður ekki breytt. Fjölga þurfi mislægum gatnamótum á Miklubraut til að auka afköst götunnar.
Matarkarfanvar ódýrust  í Krónunni í verðkönnun ASÍ á mánudag. Karfan í Bónus var þó aðeins tuttugu og sex krónum dýrari. Dýrust var karfan í Nóatúni.
Formaður Hagsmunasamtaka heimilanna segir bankana hafa talsvert svigrúm til frekari niðurfærslu lána til heimila. Bankarnir hafi fært niður lán heimilanna um tuttugu og fjóra milljarða, ekki hundrað fjörutíu og fjóra eins og þeir haldi sjálfir fram.
Íbúar á Ísafirði eru ósáttir við ítrekaðan rjóma- og mjólkurskort. Þeir segja þjónustu Mjóllkursamsölunnar hafa versnað til muna eftir að farið var að dreifa mjólkurvörum beint frá Reykjavík.
Ásdís Hjálmsdóttir og Kristinn Torfason féllu í nótt úr leik á heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum sem fram fer í Daegu í Suður-Kóreu.  Ásdís var einu sæti frá því að komast í úrslit í spjótkasti.
Suðaustlæg átt fimm til þrettán metrar en þrettán til átján við suðvestur- og síðar suðurströndina. Rigning eða súld, en úrkomulítið norðaustantil.  Rigning og súld, en sums staðar talsverð rigning suðaustantil. Tíu til sautján stiga hiti.</description>
Hádegisfréttir 31.ágúst 2011
      <description>Bráðabirgðastjórn þjóðarráðs uppreisnarmanna í Líbíu hefur hafnað  hugmyndum um að alþjóðlegt friðargæslulið Sameinuðu Þjóðanna verði sent til Líbíu.
Karlmaður á þrítugsaldri reyndi að lokka níu ára stúlku upp í bíl til sín í gær. Málið er ekki talið tengjast sambærilegu máli sem upp kom í Hafnarfirði á dögunum.
Lögregla hefur mikinn viðbúnað í austurbæ Reykjavíkur þar sem verið er að bjóða upp íbúðarhús. Íbúi þess læsti sig inni í morgun og fjöldi fólks reyndi að stöða uppboðið. 
Til skoðunar er á Alþingi að taka upp samtöl á ríkisstjórnarfundum og varðveita á þjóðskjalasafni. Sömuleiðis að fundargerðir ríkisráðs og ríkisstjórnarfunda verði gerðar opinberar ári eftir að fundur er haldinn.
Magnús Skúlason formaður íbúasamtaka miðborgar telur að íbúar Þingholtanna eigi eftir að fá vægt áfall þegar nýi spítalinn rís. Byggingarnar séu alltof stórar og miklar innan um þá fíngerðu byggð sem fyrir er. 
Áformað er að reisa manngert fjall í Hollandi. Vonast er til að verkefnið verði lyftistöng fyrir byggingaiðnaðinn í kreppunni og skapi auk þess umtalsverðar tekjur af ferðamennsku.
Fimm ára einokun Vals á Íslandsmeistaratitli kvenna í knattspyrnu lauk í gær þegar Stjarnan úr Garðabæ tryggði sér titilinn í fyrsta sinn.
Veðurhorfur næsta sólarhringinn: Sunnan og suðaustan fimm til tíu metrar. Rigning eða súld með köflum. Vaxandi suðaustan átt suðvestantil seint í kvöld, átta til fimmtán metrar um landið suðvestanvert í nótt og á morgun. Hiti tólf til tuttugu stig, hlýjast austanlands, heldur svalara á morgun.
Umsjónarmaður hádegisfrétta var Aðalbjörn Sigurðsson. Tæknimaður var Óskar Heimir Ingvarsson. Fréttalestri er lokið.</description>
Hádegisfréttir 30.ágúst 2011
      <description>Forsætisráðherra segir ályktun Vinstri grænna varðandi málefni Líbíu og afgreiðslu þess máls á Alþingi óskiljanlega. Samstarfsflokkarnir eigi að láta það vera að skiptast á skoðunum í gegnum ályktanir.
Tveir menn sem sögðust vera  í vélhjólasamtökum Outlaws hugðust gera fjölskyldu fórnarlambs í hrottafengnu líkamsárásarmáli tilboð sem hún gæti ekki hafnað, til að fá foringja Black Pistons lausan úr varðhaldi. Þeir bönkuðu uppá hjá nágrönnum til að reyna að hafa upp á fjölskyldunni.
Ástæðulaust er að óttast jarðakaup erlendra fjárfesta segir iðnaðarráðherra. Íslenskt lagaumhverfi tryggi að þeir geti ekki umgengist landið eins og þeir vilja. 
Breska dagblaðið Financial Times veltir því upp í grein um hugsanleg kaup kínverja á Grímsstöðum á Fjöllum, hvort Kínverjar vilji auka ítök sín í norður Atlantshafi.
Uppreisnarmenn í Líbíu hafa hert leitina að Gaddafi fyrrverandi einræðisherra landsins eftir að eiginkonu hans og tveimur sonum tókst að flýja land í gær.
Lögreglan rannsakarn nú þriðja tilfellið sem komið hefur upp á fáeinum dögum, þar sem reynt er að lokka börn upp í bifreið. Drengur komst undan manni í Keflavík í gær.
Ungur maður var skotinn til bana utan við mosku við Ameríkuveg á Vesturbrú í Kaupmannahöfn í morgun. Morðingjans er leitað. 
Reykjavíkurborg innheimtir eftir eigin gjaldskrá vegna leikskólabarna sem flytjast tímabundið með foreldrum sínum til Reykjavíkur. Fræðslustjóri Akureyrar segir framgöngu borgarinnar vera nýja tegund af politík.
Eigandi eigna er óheimilt að taka hana frá þeim sem er með hana til umráða, nema dómsúrskuður eða önnur heimild liggi fyrir. Vörslusviptingar hvíla oft á umdeildu samningsákvæði.
KR er áfram með tveggja stiga forystu á toppi úrvalsdeildar karla í knattspyrnu karla eftir nauman sigur á Fram í gærkvöld. ÍBV hélt lífi í titilvonum sínum með öruggum sigri á Víkingi.
Veðurhorfur: Sunnan og suðaustan fimm til tíu metrar og rigning eða súld með köflum. Þokuloft norðaustantil, en léttir víða til síðdegis. Væta í flestum landshlutum á morgun. Hiti tólf til tuttugu stig, hlýjast norðaustanlands.</description>
Hádegisfréttir 29.ágúst 2011
      <description>Herflugvélar Atlantshafsbandalagsins hafa í morgun varpað sprengjum á Sirte, heimabæ Gaddafis, fyrrverandi einræðisherra.  Uppreisnarmenn undirbúa lokasókn að bænum. 
EÐA: Uppreisnarmenn í Lýbíu undirbúa nú lokasókn á Sirte heimabæ Gaddafis fyrrverandi einræðisherra.  Herflugvélar Nato hafa í morgun varpað sprengjum á bæinn. 
Foreldrar fórnarlambs í líkamsárásarmáli sem tengist vélhjólasamtökunum Black Pistons hafa íhugað að flýja land af ótta við hefndaraðgerðir. Fórnarlambið óttaðist um líf sitt og missti saur í miðjum barsmíðunum vegna hræðslu.
Hagsmunir bankanna, þjóðarinnar og útgerða verða allir fléttaðir saman í nýjum fiskveiðistjórnunarlögum, segir formaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar. Hún segir mikilvægast að koma auðlindarákvæði og banni við veðsetningu í stjórnarskrá. 
Bílar sem leigðir eru út í kaupleigu, eru þinglýst eign kaupleigufyrirtækisins, segir framkvæmdastjóri SP fjármögnunar. Fyrirtækið hafi fulla heimild til að taka bíla af fólki sem ekki standi við gerða samninga.
Tjónið af völdum fellibylsins Írenu í Bandaríkjunum kann að nema allt að sjö milljörðum dala eða jafnvirði um 800 milljarða króna.
Samstaða hefur náðst í iðnaðarnefnd um ný vatnalög. Verið er að setja á fót sérfræðihóp til að snúa við þróun í átt að einkarétti á auðlindanýtingu.
Tyrkir gagnrýna stjórnvöld í Sýrlandi og segja að örlög þeirra kunni að verða hin sömu og valdhafa í Egyptalandi og Líbíu hætti þau ekki hernaði gegn eigin þegnum.
Veðurhorfur: Fremur hæg suðlæg eða breytileg átt, en norðvestan fimm til átta metrar norðaustantil í dag. Víða dálítil væta, en bjartviðri austanlands á morgun. Hiti tíu til átjan stig, hlýjast fyrir austan.</description>
Hádegisfréttir 28.ágúst 2011
      <description>Að minnsta kosti níu, þar af tvö börn,  hafa látist á austurströnd Bandaríkjanna af völdum fellibylsins Írenu. Tvær milljónir eru án rafmagns. Bylurinn er nú yfir New York borg og er hætta á flóðum í fjármálahverfinu á Manhattan. 
Innanríkisráðherra segir að grandskoða verði alla löggjöf og stjórnarskrá með það fyrir augum að tryggja almannaeign á náttúrunni og auðlindunum. Ræða þurfi kaup Kínverjans Huang Nubo á Grímsstöðum á fjöllum með heildarhagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi. Of oft kyngi menn ómeltu því sem borið er á borð.
Gaddafi segist reiðubúinn að hefja viðræður um myndun bráðabirgðastjórnar í Líbíu. Uppreisnarmenn vilja hinsvegar ekkert við hann tala enda hafa þeir náð nánast öllu landinu á sitt vald. 
Samtök fyrirtækja sem veita internetþjónustu hafa kært Samkeppniseftirlitið fyrir seingang en samtökin hafa beðið í rúm sjö ár eftir því að eftirlitið úrskurði í kvörtunarmáli þeirra. Formaður samtakanna segir Samkeppniseftirlitið ekki standa undir nafni.
Tekjur borgarinnar af sorphirðu aukast um fjörutíu milljónir króna á ári. Viðbótar sorphirðugjald er nú rukkað fyrir tunnur sem geymdar eru í meira en fimmtán metra fjarlægð frá götu. 
Sala áskriftarkorta hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur aukist um 57 prósent frá því í fyrra. Um tuttugu og sex þúsund sæti hafa selst í áskrift og nærri fjögur þúsund og fjögur hundruð eiga miða á Töfraflautu Íslensku óperunnar.
Heimsmeistarinn í 100 metra hlaupi, Usain Bolt, þjófstartaði nú áðan í úrslitum á HM í frjálsum íþróttum og datt þar með úr leik. 
Veðurhorfur: Suðvestan fimm til þrettán metrar og dálítil súld eða rigning vestantil á landinu en þurrt að mestu austantil. Sunnan þrír til átta vestanlands á morgun en hæg vestlæg átt austanlands. Úrkomulítið. Hiti sjö til fimmtán stig, hlýjast austanlands.</description>
Hádegisfréttir 27.ágúst 2011
      <description>Unglingar með þroskafrávik eru stöðugt meira áberandi á meðferðarheimilinu Stuðlum. Þetta kemur fram í greinargerð sálfræðings sem segir</description>
Hádegisfréttir 26.ágúst 2011
      <description>Sjö ríki Bandaríkjanna hafa lýst yfir neyðarástandi vegna fellibylsins Írenu sem talið er að gangi yfir ríki á austurströnd Bandaríkjanna í dag og á morgun. Íslendingur í Virginíu segir að viðbúnaður þar sé mikill. 
Umhverfisráðherra segir spurningar vakna um áform kínverska auðjöfursins Huang Nobu, um stórfellda uppbyggingu á Grímsstöðum á Fjöllum. 
Talið er að unglingspiltur sem kom til landsins með mikið magn fíkniefna hafi verið burðardýr.
Sjötta og síðasta endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands verður tekin fyrir í stjórn Alþjóða gjaldeyrissjóðsins í dag. Verði hún afgreidd, lýkur formlegu samstarfi Íslands við sjóðinn., sem hófst skömmu eftir hrun.
Hilmar Oddsson hefur látið af störfum sem rektor Kvikmyndaskóla Íslands. Hann segist þó snúa aftur til starfa, ef málefni skólans verða leyst.
Stóru viðskiptabankarnir þrír hafa allir birt neikvæðar umsagnir um kvótafrumvarp stjórnvalda.  Ellefu til tuttugu prósent af útlánum þeirra árið 2010 voru til sjávarútvegsfyrirtækja.  Bankarnir óttast að breytingarnar verði til þess að fyrirtækin geti ekki staðið við skuldbindingar sínar.
Nákvæmlega tuttugu ár eru síðan Íslendingar viðurkenndu sjálfstæði Litháens. Að því tilefni er forseti landsins, Dalia Grybauskaite (GríboskÆte), komin í opinbera heimsókn til Íslands.  
Kvennalið Stjörnunnar í handbolta verður með í úrvalsdeildinni á komandi leiktíð en búið var að draga liðið úr keppni vegna fjárhagsvanda. 
Veðurhorfur: Norðaustan fimm til þrettán metrar. Skýjað en úrkomulítið, en víða bjart veður sunnan og vestanlands. Lægir smám saman og birtir til fyrir norðan og austan í dag. Hæg vestlæg átt á morgun, skýjað vestanlands, en bjart austantil. Hiti sex til  fimmtán stig að deginum, hlýjast suðvestan og sunnanlands.</description>
Hádegisfréttir 25.ágúst 2011
      <description>Kvótafrumvarp ríkisstjórnarinnar mun fækka varanlegum störfum og skerða verulega afkomu í sjávarútvegi. Það mun veikja gengi krónunnar og auka verðbólgu. Þetta segir í  umsögn ASÍ um frumvarpið. ASÍ leggst gegn frumvarpinu. 
Alþýðusamband Íslands leggst gegn frumvarpi ríkisstjórnarinnar um breytingar á kvótakerfinu. Þetta kemur fram í umsögn ASÍ um frumvarpið til sjávarútvegsnefndar. 
Formaður Sambands fiskvinnslustöðva furðar sig á stefnu stjórnvalda í sjávarútvegsmálum. Hann segir sjávarútveginn ganga vel og ekki megi eyðileggja þá atvinnugrein í þessu annars efnahagsástandi.
Kínverskur auðjöfur hefur eignast sjötíu prósenta hlut í jörðinni Grímsstöðum á Fjöllum. Hann hyggst verja tugum milljarða í að byggja upp ferðaþjónustu á svæðinu.
Enn er barist í Trípolí höfuðborg Líbíu. Jón Björgvinsson, sem staddur er í borginni segir að nú standi lokaorrustan milli uppreisnarmanna og liðsmanna Gaddafís, sem verjast í austurhluta hennar. Mikil leit er nú gerð að leiðtoganum fyrrverandi m.a. er beitt hátækniratsjám NATO hersins.
Svört vinna er algengust í veitingahúsarekstri, bílaviðgerðum og byggingariðnaði segir ríkisskattstjóri. Könnun embættisins bendir til þess að verulegar líkur séu á því að svört vinna hafi aukist hér á landi. 
Hæsta hlutfall faglærðra kennara er í grunnskólum Akureyrarbæjar. Jafnframt er rekstrarkostnaður þeirra lægstur (miðað við stærstu sveitarfélög landsins. 
Sauðfjárrækt hér á landi kostar skattgreiðendur 4 milljarða króna á ári. Þetta er mat Þórólfs Matthíassonar, prófessors. Hann segir það sanna rökþrot bænda, best að þeir klagi í rektor Háskóla Íslands, en tali ekki við sig.
Seðlabankinn tapaði um 11 milljörðum króna á gjaldeyrisútboði í síðustu viku. Útboðið misheppnaðist að mati greiningardeildar Arion Banka.  
Nýtt útvarpsleikrit, gert eftir Egils sögu, verður frumflutt í útvarpleikhúsinu í vetur. 
Handknattleiksdeild Stjörnunnar ætlar ekki að senda lið til keppni á Íslandsmóti kvenna á næsta keppnistímabili. 
Veðurhorfur: Norðaustan átta til þrettán metrar við norður- og austurströndina, en annars hægari vindur. Skýjað að mestu og úrkomulítið norðvestantil, en annars léttskýjað með köflum, en stöku skúrir allra syðst. Hiti sjö til fimmtán stig, hlýjast suðvestantil á landinu en heldur svalara á morgun. Sums staðar næturfrost í nótt, einkum inn til landsins.</description>
Hádegisfréttir 24.ágúst 2011
      <description>Þingflokkur vinstri grænna gagnrýnir Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra harðlega fyrir að skipta um stjórn Byggðastofnunar á einu bretti þvert á vilja þeirra og óska ekki eftir tilnefningum frá þeim.  Ráðherra segir skipunina skerpa ráðherraábyrgð.  
Leiðtogar þjóðarráðs uppreisnarmanna flytja höfuðstöðvar sínar til Trípóli, höfuðborgar Líbíu, í dag.  Fréttaritari RÚV í Líbíu segir að harðir bardagar geisi enn  þar sem liðsmenn Gaddafis einræðisherra verjist í borginni. Gaddafi hét því í þjóðarávarpi í nótt að berjast til síðasta manns.
Útgerðarmenn, Samtök atvinnulífsins og Samtök fiskvinnslustöðva segja að sjávarútvegsfrumvarpið standist ekki ákvæði stjórnarskrárinnar um vernd eignaréttarins.
Ekki þarf sérstaka viðurkenningu frá menntamálaráðuneytinu til að útskrifa nemendur úr menntaskóla. Þetta segir skólastjóri menntaskólans Hraðbrautar.  50 nýnemar hófu nám við skólann í haust þó svo ekki sé þjónustusamningur í gildi fyrir nýnema. 
Brotthvarf Guðmundar Steingrímssonar úr Framsóknarflokknum mun styrkja stöðu ríkisstjórnarinnar að mati prófessors í stjórnmálafræði. 
Grænlendingar vilja fá undanþágu á reglugerð um innflutning matvæla til Íslands til að fólk geti flutt með sér hval og selspik til landsins til eigin nota. 
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu hefur fallið um fjörutíu og fimm sæti á styrkleikalista FIFA á síðustu þrettán mánuðum. Samkvæmt nýjum lista vermir íslenska landsliðið hundrað tuttugasta og fjórða sæti.
Veðurhorfur: Norðaustan fimm til þrettán metrar, hvassast með suðaustur og austurströndinni. Rigning með köflum norðaustan- og austanlands, skýjað með köflum og þurrt að mestu norðvestantil. Hiti sjö til fimmtán stig, hlýjast suðvestantil á landinu.</description>
Hádegisfréttir 23.ágúst 2011
      <description>Harðir bardagar hafa geisað í Trípólí höfuðborg Líbíu í morgun þar sem uppreisnarmenn  sækja að víggirtu aðsetri Gaddafis einræðisherra.  Fréttaritari útvarps Jón Björvinsson er með uppreisnarmönnum sem undirbúa nýja sókn inn í  Trípolí.
Guðmundur Steingrímsson segir að fleiri eigi eftir að segja sig úr Framsóknarflokknum á næstu dögum. Hann styður aðildarviðræður við Evrópusambandið, þótt ríkisstjórnin virðist ósamstíga í því máli.
Þjónustu- og leigusamningar sem ekki er hægt að segja upp, eru til vandræða og mjög bindandi að mati velferðarráðherra.
Kvikmyndaskóli Íslands verður settur á föstudag, en formlegri kennslu frestað fram í nóvember. Eigandi skólans gerði stjórnvöldum tilboð í gær um að fjárframlag þeirra yrði metið sem hlutafé, en því var ekki tekið.
Nýtt fangelsi mun rísa á Hólmsheiði. Það verður í einkaframkvæmd. Þetta var ákveðið á ríkisstjórnarfundi í morgun.
Forstjóri HS orku segir óskiljanlegt að Trölladyngja sé sett í biðflokk í tillögu að þingsályktun um vernd og nýtingingu virkjanakosta. HS orka hefur varið um 800 milljónum í rannsóknir á svæðinu.
Formaður Lyfjatæknafélags Íslands segir of mörg apótek vera í landinu. Ekki sé hægt að manna þau með faglærðu starfsfólki og það bjóði hættunni heim.
Stjarnan stöðvaði sigurgöngu KR í knattspyrnu karla í gærkvöld en liðin skildu jöfn, 1-1. Fram vann sinn annan sigur í deildinni í sumar þegar liðið skellti Val, 3-1.
Veðurhorfur: Austlæg átt, fimm til tíu metrar, en heldur hvassari syðst á landinu. Lítilsháttar væta af og til í flestum landshlutum. Norðaustan fimm til þrettán á morgun, hvassast með suðausturströndinni. Dálítil rigning norðan og austanlands. Hiti sjö til fimmtán stig, hlýjast suðvestantil á landinu.</description>
Hádegisfréttir 22.ágúst 2011
      <description>Uppreisnarmenn í Líbíu fagna falli stjórnar Gaddafis. Uppreisnarmenn eru sagðir ráða 95 prósentum höfuðborginnar og mikill fögnuður ríkti þar á götum í nótt og í morgun. 
Mörg dæmi eru um að ríkið hafi gert leigusamninga til margra ára sem ekki er hægt að segja upp. Mikill kostnaður fylgir ónotuðu húsnæði Landlæknis á Seltjarnarnesi. Fulltrúar fjármála- og heilbrigðisráðuneytis staðfestu leigusamninginn á sínum tíma.
Enn ríkir óvissa um fjármögnun á rekstri Kvikmyndaskóla Íslands. Setja átti skólann í dag en því hefur verið frestað um óákveðinn tíma.
Landbúnaðarráðherra fór gegn ráðleggingum ráðgjafanefndar þegar  álagningu innflutningstolla var breytt árið 2009.
Byggðastofnun segir hátt flækjustig hafa tafið fyrir sölu á eignum Eyrarodda á Flateyri. Stofnunin á nú í samningaviðræðum við áhugasaman kaupanda.
Aflaverðmæti íslenskra skipa var rúmum milljarði minna á fyrri helmingi ársins en í fyrra. 
75 kettir eru skráðir hjá Akureyrarbæ eins og reglur um kattahald kveða á um. Dýralæknar telja hinsvegar að um tvö þúsund kettir séu í bænum.  
Sænskir fornleifafræðingar hafa fundið  sænska herskipið Mars sem sökk við Öland árið 1564. Þetta er talinn  einn merkasti skipsflaksfundur í Norður-Evrópu.
Patrekur Jóhannsson hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Austurríkis í handbolta.
Veðurhorfur: Austlæg átt, fimm til tíu metrar, en heldur hvassari syðst á morgun. Rigning með köflum sunnan og vestanlands, en annars stöku skúrir. Hiti sjö til fimmtán stig, hlýjast suðvestantil.</description>
Hádegisfréttir 21.ágúst 2011
      <description>Ekki liggur fyrir hve mikið launahækkanir leikskólakennara kosta sveitarfélögin á ári. Þó er ljóst að sum sveitarfélög þurfa að skera niður þjónustu, hækka skatta eða þjónustugjöld vegna þeirra, segir formaður sambands sveitarfélaga.
Uppreisnarmenn í Líbíu segja að sókninni í átt að Trípólí, höfuðborgar landsins, muni ekki ljúka fyrr en Gaddafi fer frá völdum. Hart hefur verið barist á götum borgarinnar.
Bæjarstjóri Norðurþings furðar sig á því að friðlýsa eigi Gjástykki.  Sveitarfélagið muni gera athugasemdir við drög að rammaáætlun og leita skýringa á viðsnúningi hvað varðar skipulag svæðisins.
Bæði forseti og forstæisráðherra Íslands eru viðstödd minningarathöfn um fórnarlömb hryðjuverkanna í Osló og  Útey í dag. Mánuður er liðinn frá þessum atburðum.
Stórauka mætti útflutning á þorskalýsi ef sjómenn teldu það svara kostnaði að flytja hráefnið að landi.
Reykjavík er eftirbátur margra annarra sveitafélaga á Íslandi þegar kemur að flokkun sorps. Í deiglunni er hinsvegar að setja flokkunarílát við heimili í borginni
Íslenskir listamenn setja svip sinn á Tallinn, höfuðborg Eistlands í dag.  Þar er nú haldinn sérstakur Íslandsdagur í tilefni af endurheimtu sjálfstæði.</description>
Hádegisfréttir 20.ágúst 2011
      <description>Fulltrúi í verkefnisstjórn um Rammaáætlun geri alvarlegar athugasemdir við hve fá svæði fari í biðflokk. Hann segir að rannsóknir skorti um áhrif virkjana í Þjórsá. Þingmaður Vinstri grænna tekur undir það.
Þyrla landhelgisgæslunnar var kölluð út tæpri klukkustund eftir að hún kom úr viðgerð í gærkvöldi.
Óttast er að deila Ísraela og Egypta geti enn versnað eftir að Egyptar kölluðu sendiherra sinn í Ísrael heim. Átök á Gaza-svæðinu hafa haldið áfram í morgun.
Brunavarnir Austur-Húnavatnssýslu hafa kært fyrrverandi slökkviliðsstjóra svæðisins vegna meintra brota í starfi.
Búast má við gríðarlegum mannfjölda í miðborg Reykjavíkur í dag og kvöld þegar höfuðborgarbúar og gestir fagna menningarnótt.
Ólafur Elíasson myndlistarmaður sagði það sérlega ánægjulegt að fá að vera hluti af Menningarnótt. Í dag verður glerhjúpurinn utan um tónlistarhúsið Hörpu vígður við hátíðlega athöfn og lýsingin inni í honum tendruð síðar í kvöld.
Eistar minnast þess í dag að tuttugu ár eru liðin frá því að þjóðin endurheimti sjálfstæði sitt. Íslendingar sitja í heiðurssæti í hátíðahöldunum, en sérstakur Íslandsdagur verður haldinn hátíðlegur í Tallinn á morgun.
Íbúar í flestum hverfum Kaupmannahafnar verða að sjóða allt neysluvatn eftir að e kóli baktería fannst í einum af vatnsgeymum borgarinnar í gær.  Flöskuvatn seldist víðast hvar upp í verslunum.
Allt að hundrað þúsund gæsir eru skotnar á Íslandi á ári hverju. Allt að fjögur þúsund veiðimenn taka fram skotvopnin í dag á fyrsta degi gæsaveiðitímabilisins.</description>
Hádegisfréttir 19.ágúst 2011
      <description>Búlandsvirkjun í Skaftá verður sett í bið, samkvæmt þingsályktun um vernd og nýtingu náttúruauðlinda sem kynnt var í morgun. Leyft verður að virkja í neðri hluta Þjórsár. Gjástykki verður friðað, samþykki Alþingi tillöguna.
Yfir níutíu prósent landsmanna styðja launakröfur leikskólakennara, samkvæmt nýrri könnun. Sáttafundur í deilu leikskólakennara við sveitarfélögin hófst í morgun og stendur enn.
Forsætisráðherra segir að framlög til Kvikmyndaskóla Íslands verði aukin umfram það sem aðrir framhaldsskólar fá.Ekki verður þó gengið að kröfum stjórnenda skólans um rekstrarfé. Mennamálaráðuneytið sagði í gær að skólinn væri ekki rekstrahæfur og undir það tók ríkisendurskoðun. 
Ekkert lát er á verðfalli hlutabréfa í heiminum. Verð á evrópskum hlutabréfum hefur ekki verið lægra í tvö ár, en verð á gulli er hærra en nokkru sinni fyrr. 
Sameining Sparisjóðs Norðfjarðar við aðra sparisjóði kemur ekki til greina, segir stjórnarformaður sjóðsins. Ákveðið var í gær að auglýsa stofnfé sparisjóðsins til sölu. 
Að minnsta kosti 10 féllu og jafnmargir særðust í sjálfsmorðssprengjuárás Talibana á skrifstofur breskrar menningarstofnunar í Kabúl í morgun.
Sveitarfélagið Vesturbyggð vill fá aðstoð eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga til að koma þungum rekstri í jafnvægi. 
KR náði í gærkvöldi fjögurra stiga forystu á ný í úrvalsdeild karla í knattspyrnu. KR-ingar sigruðu Þór á Akurey
Veðurhorfur: Norðaustlæg átt, þrír til átta metrar, skýjað að mestu og stöku skúrir, einkum síðdegis. Norðaustan átta til fimmtán og dálítil rigning syðst seint í dag. Svipað veður á morgun. Hiti sjö til sextán stig hlýjast sunnan og suðvestanlands.ri, 2-1.</description>
Hádegisfréttir 18.ágúst 2011
      <description>Sex mánaða stúlkubarn fannst eitt og yfirgefið í barnabílstól úti á gangstétt á Seltjarnarnesi laust eftir klukkan 5 í morgun. Foreldrarnir höfðu gleymt að taka það með sér þegar þau fóru að bera út blöð. 
Fjármálaráðherra hefði kosið að ekki hefði verið hreyft við stýrivöxtum í gær. Lágir vextir styðji við efnahagsbatann. Fulltrúi sjálfstæðisflokksins í efnahags- og skattanefnd segir að full ástæða hefði verið að bíða með vaxtahækkun.    
Tilkynnt var um fjörtíu alvarleg mistök við afgreiðslu lyfja í lyfjabúðum í fyrra. Í þeim þurfti viðkomandi að leita læknis eða á sjúkrahús eftir inntöku lyfjanna.
Vígamenn réðust á tvær rútur og fólksbíl í sunnanverðu Ísrael í morgun og skutu á þær með hríðskotarifflum og sprengjuvörpum. Nokkrir féllu og á annan tug særðist.
Neyðarfundur er boðaður í Mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna vegna ofbeldis sem Sýrlandsstjórn beitir almenna borgara. Sýrlandsforseti segir að hernaðaraðgerðum gegn mótmælendum hafi verið hætt.
Nær þrjátíu nashyrningshornum hefur að undanförnu verið stolið víðsvegar í Evrópu.  Kíló af dufti úr hornunum kostar á svartamarkaði álíka og tvö kíló af gulli. 
Kylfingurinn Ólafur Björn Loftsson hefur leik á Wyndham mótinu í Norður Karólínu eftir hálftíma. Hann er fyrsti íslenski kylfingurinn sem spilar á bandarísku PGA mótaröðinni.</description>
Hádegisfréttir 17.ágúst 2011
      <description>Stýrivextir voru í dag hækkaðir um 0,25 prósentustig til að bregðast við versnandi verðbólguhorfum. Forsvarsmenn Viðskiptaráðs gagnrýna ákvörðunina harðlega, og forseti ASÍ segir að nefndin sé að vinna gegn eigin markmiðum. 
Hlutabréf lækkuðu í verði  í  Evrópu í morgun eftir að leiðtogum Frakklands og Þýskalands mistókst að  slá á ótta fjárfesta um að skuldakreppan á evrusvæðinu breiddist út.
Odd Nerdrum, kunnasti núlifandi listmálari Norðmanna, var í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi fyri skattsvik.  Hann hafði selt myndir fyrir 300 milljónir án þess að telja tekjurnar fram.
Leikskólakennarar boða aðgerðir til að loka deildum þar sem deildarstjórinn er í verkfalli. Engin lausn á deilunni er í sjónmáli.
Væri verðtrygging íbúðarlána bundin afborgunum og legðist ekki á höfuðstól lánanna munaði eitt hundrað prósentum á endanlegri upphæð lánanna frá því sem nú er.
Stjórnarskrárbinding hallalausra fjárlaga í Evrópu er ólíkleg lausn á skulda- og efnahagsvanda Evrópu segir dósent við Háskóla Íslands. 
Breskir dómstólar eru gagnrýndir fyrir of mikla dómhörku í kjölfar óeirðanna að undanförnu. Tveir ungir menn voru dæmdir í fjögurra ára fangelsi fyrir að hvetja til óeirða þó ekkert yrði úr þeim.
Mikill viðbúnaður var af hálfu lögreglu á sjötta tímanum í morgun þegar tveimur þjófum var veitt eftirför frá Úthlíð í Biskupstungum til Reykjavíkur um Nesjavallaleið. Grunur leikur á að þeir hafi um tíma ekið á 160 kílómetra hraða. 
Valur minnkaði forskot Stjörnunnar í efsta sæti úrvalsdeildar kvenna í knattspyrnu í 7 stig í gærkvöldi en fjórar umferðir eru eftir af mótinu.
Veðurhorfur: Norðlæg eða breytileg átt, þrír til tíu metrar, en hægviðri á morgun. Skúrir, en úrkomulítið vestan og norðvestanlands. Dregur heldur úr úrkomu á morgun. Hiti sjö til sextán stig, hlýjast sunnan og suðvestanlands.</description>
Hádegisfréttir 16.ágúst 2011
      <description>Leikskólakennara og Samband íslenskra sveitafélaga greinir á um hvernig hátta skuli starfsemi leikskólanna ef til verkfalls kemur. Leikskólakennarar segja að leggja þurfi niður störf á deild ef deildarstjórinn fari í verkfall en sambandið hafnar því.
Annaðhvort hefur Fjármálaeftirlitið brugðist eftirlitsskyldu sinni í málefnum SPKEF eða að kröfur Landsbankans um framlag ríkisins vegna samruna eru ósanngjarnar. Þetta segir þingmaður Sjálfstæðisflokks. 20 milljarða ber í milli í verðmati eigna. 
Fjölda fólks hefur verið naumlega bjargað eftir miklar rigningar og flóð í Noregi í morgun.  Allar leiðir milli Suður- og Mið-Noregs eru lokaðar vegna ofankomunnar.
Öskufok var um helgina suður og vestur af eldstöðinni í grímsvötnum. Bóndi segir öskuna ekki hafa spillt heiskap og hafa haft góð áhrif á sprettuna. 
Tyrklandsstjórn hótaði sérstökum aðgerðum í morgun hætti Sýrlandsstjórn ekki að beita hernum gegn almenningi. 
Sýrlenski stjórnarherinn réðist gegn borgurum í  hafnarborginni Latakia í morgun . Skotið er á íbúðarhverfi með skriðdrekum og  af herskipum , fjórða daginn í röð.  
Auðmaðurinn Warren Buffett mælir með því að skattar verði hækkaðir á þá allra ríkustu. Hann segir bandaríska þingmenn hafa hlíft auðmönnum allt of lengi.
Alvarlegar líkamsárásir hér á landi eru þriðjungi færi á þessu ári en árið 2009. 
Laxveiði er heldur minni í ár en í fyrra. Enn má þó eiga von á góðum heildartölum fyrir sumarið, því veiðitímabilið er langt frá því að vera búið.
Formaður SÁÁ segir að ef fjárframlög frá Íslandsspilum til stofnunarinnar yrðu felld niður eins og innanríkisráðherra hefur stungið uppá, yrði nær ómögulegt að bjóða þá þjónustu sem SÁÁ býður nú. 
Veðurhorfur: Norðan fimm til þrettán metrar vestanlands, en hægari í kvöld. Annars fremur hæg breytileg átt. Vætusamt á norðanverðu landinu einkum norðvestantil, en stöku skúrir í öðrum landshlutum. Hiti sjö til sautján stig, svalast norðvestantil, en hlýjast sunnanlands.</description>
Hádegisfréttir 15.ágúst 2011
      <description>Allt stefnir í verkfall leikskólakennara eftir viku. Samningafundur sveitarfélaga og leikskólakennara í morgun var árangurslaus og hefur nýr fundur ekki verið boðaður. 
Mun fleiri olíuleitarfyrirtæki sýna útboði á leitarleyfum á Drekasvæðinu áhuga nú, en þegar leitin var fyrst boðin út. Fyrirtækin treysta á að skattalögum verði breytt áður en opnað verður fyrir annað útboð í október.
Vilji er fyrir því í starfshópi stjórnarflokkanna um fjárlögin að endurskoða húsnæðisbótakerfið og styðja betur við leigjendur. Kostnaður vegna þess liggur þó ekki fyrir. 
Unnið er að því að lífeyrissjóðirnir endurfjármagni erlendar skuldir Hafnarfjarðarbæjar. Fjögurra og hálfs milljarðs skuld hefur verið í vanskilum frá því í apríl en vonast er til að leysist úr málunum innan þriggja vikna.
Ísraelsstjórn spáir uppreisn á herteknu svæðunum þegar aðildarumsókn ríkis Palestínumanna verður lögð fram í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna og Allsherjarþinginu í næsta mánuði.
Framkvæmdastjóri hótelkeðju á höfuðborgarsvæðinu segir yfirvöld ekki gera neitt til að sporna gegn ólöglegum gistirýmum. Þetta stofni öryggi fólks í hættu og geri þeim sem reka lögleg gistirými erfitt fyrir.
Lítið virðist ætla verða um bláber þetta sumarið enda var kalt víða um land langt fram eftir vori.
Á þriðja þúsund þátttakenda í Reykjavíkurmaraþoni á laugardaginn styður gott málefni með hlaupinu. Þegar hafa tólf milljónir króna safnast í áheitum.</description>
Hádegisfréttir 14.ágúst 2011
      <description>Um þrjú hundruð gestir Hótel Plaza í miðborg Reykjavíkur þurftu að rýma herbergi sín um sex leytið í morgun, þegar eldur kom upp í rafmótor í loftræstikerfi hótelsins. Engin meiðsl urðu á fólki. 
Þingmaður Sjálfstæðisflokks hyggst leggja fram þingsályktunartillögu á haustþingi um að Alþingi ítreki afstöðu sína frá árinu 1999 um hvalveiðar. Senda þurfi skýr skilaboð um málið í ljósi ágreinings í stjórnarliðinu. 
Anders Behring Breivik var í gær leiddur í bandi í átta klukkutíma um Úteyju og lýsti ódæðisverkum sínum.  150 lögreglumenn vinna nú að rannsókn hryðjuverkanna. Gagnrýnt er að rannsóknin sé alltof ítarleg.
Uppreisnin í Líbíu gegn Gaddafi höfuðsmanni og stjórn hans ber þess merki núna að geta leyst upp í ættbálkaerjur. Erjurnar virðast grafa undan getu uppreisnarmanna til að ná undirtökunum í stríðinu gegn stjórnarhernum.
Reykjavíkurborg hefur gengið frá samkomulagi um byggingu og rekstur eitthundrað þjónustu- og öryggisíbúða í Fossvogi, auk þjónustumiðstöðvar fyrir eldri borgara.
Yfir tvö þúsund gestir verða á evrópskri ráðstefnu stjórnmálafræðinga í Háskóla Íslands í lok ágúst. Þetta er ein fjölmennasta ráðstefna sem haldin hefur verið hérlendis.
Fornbókasalar í miðborg Kaupmannahafnar hafa orðið illa úti eftir flóðin í borginni í byrjun síðasta mánaðar. Talið er að þúsundir gamalla og fágætra bóka séu ónýtar eða stórskemmdar eftir flóðin.</description>
Hádegisfréttir 13.ágúst 2011
      <description>Formaður fjárlaganefndar útilokar ekki frekari niðurskurð á fjárlögum til Landspítala Háskólasjúkrahúss. Forstjóri Landspítalans segir ógerlegt að hagræða meir. 
Kosningabaráttan í Noregi er hafin - fulltrúar allra stjórnmálaflokka í landinu voru viðstaddir samkomu í Osló í morgun til að sýna samstöðu með fórnarlömbum hryðjuverkanna í síðasta mánuði. 
Ótækt er að veita landbúnaðarráðherra ótakmarkaðar heimildir til að leggja á tolla, segir þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hann segir að íslendingar séu skuldbundnir til að flytja inn landbúnaðarvörur. 
Fáeinir stjórnmálaleiðtogar í arabaheiminum hafa fordæmt viðbrögð Sýrlandsstjórnar við aðgerðum mótmælenda og stjórnarandstæðinga í landinu. Forsætisráðherra Íraks, lýsir hins vegar yfir stuðningi við Assad forseta Sýrlands og aðgerðir hans.
Lundúnalögreglan hefur fengið fyrrverandi lögreglustjóra í New York og Los Angeles til að aðstoða við lögregluaðgerðir gegn óeirðaseggjum. Hann var þekktur fyrir hörku og snör viðbrögð í viðureignum við glæpagengi.
Safnað verður fyrir viðgerð á Geimstöðinni svokölluðu í Landmannalaugum í dag. Geimstöðin er Vibon-jeppi frá 1953 og.þykir ómissandi við smalamennskuna í Landmannaafrétti. 
það verða kammerdagar á klaustri í dag, berjadagar í ólaffirði og ísdagur í hveragerði - og i landmannalaugum verður boðið upp á kaffi og klatta.</description>
Hádegisfréttir 12. ágúst 2011
      <description>Samkomulag hefur náðs um skiptingu á eignum þrotabús Eyrarodda á Flateyri. Fiskvinnslufyrirtækið Lotna kaupir tvær eignir og Byggðastofnun leysir aðrar til sín. Enn ríkir óvissa um framtíð fiskvinnslu á Flateyri. 
Sveitarfélög taka yfir rekstur og viðhald fasteigna sem áður voru í umsjá fasteignarfélagsins Fasteignar. Álftanesbær og Háskólinn í Reykjavík draga sig út úr félaginu.
Selja á hlut ríkisins í Sparisjóði Svarfdæla, samkvæmt tillögu stjórnar sparisjóðsins. Áfram á að reka sparisjóð á Dalvík, segir stjórnarformaður félagsins. 
Svo virðist sem auðvelt sé fyrir fíkla að verða sér úti um sterk og ávanabindandi verkjalyf. Lítið sem ekkert eftirlit virðist vera með notkun slíkra lyfja. 
Hlutabréf hækkuðu í verði á mörkuðum í Evrópu í morgun, eftir sameiginlegar aðgerðir Evrópuríkja til að róa markaðina.
Fjármálaráðherra gerir ráð fyrir að um tuttugu milljarðar króna fáist út úr sölu á eignum ríkisins á næstu þremur til fjórum árum. Ekki verði þó stórum hluta fjárlagagatsins lokað með þessum tekjum.
Ákvörðun íslensku sendinefndarinnar um að ganga af ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í sumar, skaðar ímynd þjóðarinnar sem þátttakanda í alþjóðasamstarfi, segir stjórnarþingmaður. 
Ferðamálastjóri segir að slysum á hálendinu verði fyrst og fremst fækkað með betra aðgengi að upplýsingum.</description>
Hádegisfréttir 11.ágúst 2011
      <description>David Cameron forsætisráðherra Bretlands  segir að til greina komi að kalla út herinn komi til frekari uppþota í borgum landsins.
Æskilegt er að stjórnvöld tryggi sér aðgang að láni til þrautavara hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum vegna þeirrar óvissu sem ríki á erlendum mörkuðum, segir viðskiptaráðherra. Engar nýjar skuldbindingar felist í síðustu viljayfirlýsingu stjórnvalda til sjóðsins, en sjötta endurskoðun hans fer fram um mánaðamótin.
N1 tapaði tæpum tólf milljörðum króna í fyrra. Fjárhagsleg endurskipulagning er sögð skýra tapið að miklum hluta.
Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra hefur óskað eftir því að íhaldshópur Norðurlandaráðs annist allan undirbúning fyrir rannsókn á máli manns sem grunaður er um stórfelldan fjárdrátt úr sjóðum ráðsins. Þetta segir framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins. Maðurinn hefur játað sök. Efnahagsbrotadeildin segir að kæra sjálfstæðisflokksins uppfylli ekki skilyrði um opinbera rannsókn.
Erlendir ferðaskipuleggjendur sem bjóða upp á ferðir á Íslandi skulu leggja fram öryggis- og viðbragðsáætlun. Kveðið er á um það í lagafrumvarpi sem iðnaðarráðuneytið hefur látið gera og lagt verður fyrir Alþingi í haust.
Kílóverð á þorski og ýsu væri þrjú-, fjögur þúsund krónur í fiskbúðum ef strandveiðar hefðu ekki komið til segir fisksali í Reykjavík. Hann kannast ekki við að erfitt sé að fá íslenskan fisk til sölu. 
Nýleg rannsókn á vegum Landbúnaðarháskóla Íslands sýnir að mögulega séu til leynd afbrigði landnámshænunnar íslensku. Slíka undirhópa beri að varðveita því þeir gætu geymt einstaka eiginleika.</description>
Hádegisfréttir 08. ágúst 2011
      <description>Á áttunda hundrað hafa nú verið handteknir í Lundúnum vegna skemmdarverka á götum úti.
Þrír létust í Birmingham í óeirðum í nótt.
Nær helmingur þess fjár sem stjórnvöld hyggjast afla til að fylla fjárlagagatið, á að koma frá sölu ríkishluta í bönkum. Engin stefna hefur þó verið mótuð um hlutverk ríkisins á bankamarkaði.
Innflutningsfyrirtækið INNNES fór í dag fram á við tollstjóra að hann endurskoði tollar á innfluttar kjötvörur. Þeir byggi á forsendum sem séu í andstöðu við stjórnarskrána. 
Ekkert vatn er í vatnslindum Flóahrepps vegna þurrka í sumar. Íbúarnir fá nú sitt neysluvatn úr Ingólfsfjalli, og greiðir Landsvirkjun kostnaðinn.
Íslenskir kokkar þurfa oft að kaupa útfluttan íslenskan fisk eða sjávarfang til baka frá útlöndum vegna þess að hann er ekki til sölu hérlendis nema í í gámavís. 
Norður-Kórea hefur sent sveit launmorðingja til Suður-Kóreu í því skyni að ráða varnarmálaráðherra landsins af dögum. Suðurkóreskir fjölmiðlar fullyrða þetta og segja hóp lífvarða fylgja ráðherranum hvert fótmál.
Herferð stendur nú yfir á Bretlandi til þess að fá neytendur til þess að draga úr neyslu á vinsælustu  fiskitegundunum m.a.  þorski, ýsu, laxi, rækju .
Veðurhorfur: Hæg breytileg átt eða hafgola og yfirleitt léttskýjað, en sums staðar þokuloft við ströndina. Heldur skýjaðra við vestur- og austurströndina á morgun. Hiti níu til nítján stig, hlýjast suðvestanlands í dag.:</description>
Þrír létust í Birmingham í óeirðum í nótt.
Hádegisfréttir 08. ágúst 2011
      <description>Breska þingið  hefur verið kallað saman til að ræða aðgerðir til að stöðva uppþot í Lundúnum og öðrum borgum Bretlands. Einn er látinn af völdum skotsára. Lögreglunni í Lundúnum hefur nú borist 10 þúsund manna liðslauki til þess að koma á lögum og reglu.
Loka á tæplega 30 milljarða fjárlagagati með niðurskurði, og auknum sköttum, á til dæmis stóriðju, útgerðarfyrirtæki og banka. Skattar á almenn fyrirtæki og almenning eiga ekki að hækka segir forsætisráðherra.
Hlutabréf héldu áfram að lækka í verði á mörkuðum í Evrópu í morgun. 
Verið er að ná fjallatrukknum, sem sökk í Blautalón á land. Belgir, sem dælt var í loft, lyftu bílnum af botni vatnsins. 
Íslenskar eftirlitsstofnanir veita ekki leyfi, eða fylgjast sérstaklega með erlendum ferðaþjónustufyrirtækjum sem starfa hér á landi. Starfsleyfi sem gefin eru út erlendis, gilda hér.
Rúmt ár er liðið frá því efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra hafði síðast samband við einn sakborninga í máli Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogs. 
Fjörutíu prósentum fleiri, hefur verið synjað um atvinnuleysisbætur það sem af er ári en á sama tíma í fyrra. Fleiri virðast því vera í svartri vinnu og reyna samhliða að sækja bætur.
Óeirðirnar í Lundúnum hafa áhrif á knattspyrnuna. Leik Englands og Hollands sem átti að fara fram á Wembley-leikvanginum annað kvöld, hefur verið aflýst. 
Veðurhorfur: Fremur hæg norðlæg átt eða hafgola og víða léttskýjað, en skýjað með köflum á Noður- og Norðausturlandi framan af degi. Sums staðar þokuloft við norðurströndina. Hiti tíu til átján stig, hlýjast suðvestanlands, en nokkru svalara við norður- og norðausturströndina</description>
Hádegisfréttir 08. ágúst 2011
      <description>Hlutabréfaverð á Ítalíu og á Spáni hækkaði um meira en tvö prósent  um tíma í morgun eftir að Seðlabanki Evrópu ákvað að kaupa ríkisskuldabréf landanna.
Tilraunir til að taka á skuldavanda evrusvæðisins, minna um margt tilraunir til að bjarga íslenska bankakerfinu 2008, segir forstöðumaður greiningar hjá Íslandsbanka.
Saksóknari efnahagsbrota hjá Ríkislögreglustjóra segir að málastaðan hjá efnahagsbrotadeildinni hafi aldrei verið betri en nú og vísar á bug gagnrýni Lögmannafélagsins um seinagang. Það sé hinsvegar til bóta að sameina embættið sérstökum saksóknara.
Yfir hundrað manns hafa verið handteknir í óeirðum í Lundúnum. Fjölmargir lögreglumenn hafa slasast
Markmiði stjórnvalda um að reka ríkissjóð án halla, að vaxtagjöldum og vaxtatekjum undanskildum, verður frestað um eitt ár. Stjórnarflokkarnir reyna nú að koma sér saman um fjárlög næsta árs.
Örvaroddur af lásboga fannst við fornleifauppgröft á Skriðuklaustri. Þetta er fyrsta vopnið sem finnst á þessum slóðum en ekki er þó talið að hinir friðsælu reglubræður klaustursins hafi átt það.  
Gamlar fráveitulagnir og bilanir í hreinsibúnaði valda saurgerlamengun í Laugarvatni.
KR-ingar styrktu í gær stöðu sína á toppi úrvalsdeildar karla í knattspyrnu eftir 3-2 sigur á Víkingum á heimavelli. Kjartan Henry Finnbogason skoraði sigurmarkið með síðustu spyrnu leiksins. 
Veðurhorfur: Fremur hæg norðlæg átt eða hafgola og víða léttskýjað, einkum til landsins. Skýjað að mestu og sums staðar þokuloft við norður- og austurströndina, en léttir nokkuð til yfir daginn. Hiti tíu til átján stig að deginum, hlýjast suðvestanlands, en nokkru svalara við norðausturströndina.</description>
Hádegisfréttir 07. ágúst 2011
      <description>Aðeins fimmtíu og ein sekúnda leið þar til að rútan fór út af kanti og þar til að hún sökk í Blautulóni í gær. Ótrúleg lukka að allir hafi bjargast, segir björgunarsveitarmaður. 
Allt logaði bókstaflega í óeirðum í Tottenham hverfinu í Lundúnum í nótt. Mikil skemmdarverk voru unnin á byggingum og kveikt var í fjölda bíla fyrir utan lögreglustöð.
Afar ólíklegt er að tekjuskattur á almenning verði hækkaður. Þetta segir formaður fjárlaganefndar.
Meira en tuttugu létu lífið í þungum árásum skriðdrekasveita á borgina Deir al-Zour í Sýrlandi í morgun. Þá létust 8 fyrirburar eftir að hermenn tóku rafmagnið af spítala þar sem börnin voru í hitakössum.
Skemmtanahald í kjölfar hinsegin daga í gærkvöldi og nótt gekk stóráfallalaust fyrir sig. Ummæli Páls Óskars Hjálmtýssonar í fréttum sjónvarps í gær hafa vakið mikla athygli.
Bóndi á bæ í Meðallandi, sem velti dráttarvél út í skurð í gærkvöld, lá þar fastur í sex tíma. Bróðir hans fann hann undir morgun.
Alls staðar á landinu hefur íbúum fjölgað síðan um miðbik síðustu aldar nema á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra. Þetta kemur fram í riti sem Hagstofan gaf út í vikunni.
Landslið Íslands skipuð drengjum 17 ára og yngri keppa í dag um gull og brons á Norðurlandamótinu í knattspyrnu. v
Veðurhorfur: Norðaustan fimm til tíu metrar á sekúndu og skýjað Norðaustan-til, en annars yfirleitt bjartviðri. Sums staðar þokuloft úti við ströndina framan af degi og stöku skúrir suðaustanlands. Hiti tólf til tuttugu stig að deginum, hlýjast Suðvestan-lands, en mun svalara úti við Norður- og Austur-ströndina. Kólnar lítið eitt á morgun.</description>
Hádegisfréttir 06. ágúst 2011
      <description>Tæplega fjörutíu hermenn létu lífið þegar bandarísk herþyrla fórst í Afganistan í gærkvöld. Talíbanar segjast hafa skotið þyrluna niður.
Matsfyrirtækið Standard og Poor's hefur lækkað lánshæfismat Bandaríkjanna í fyrsta sinn í sögunni. 
Sjö flóttamenn létu lífið í Sómalíu í gær eftir að þeir reyndu í örvæntingu sinni að brjóta sér leið í gegnum biðraðir eftir mat. 
Fjármálaráðherra segir að stofnanir á borð við Bankasýslu ríkisins verði að sætta sig við það að meira fé sé ekki að sækja í ríkissjóð. Hann tekur ekki undir gagnrýni fyrrverandi forstjóra sem hætti vegna of lítils fjárframlags.
Maður sem grunaður er um nauðgun í Vestmanneyjum um verslunarmannahelgina, hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. 
Hertar rannsóknaraðferðir sýslumanns leiða til þess að fólki er synjað um leyfi til ættleiðinga. Þetta segir formaður félagsins Íslensk ættleiðing.
Mun færri eru á fiskideginum mikla á Dalvík nú en í fyrra.
Hinsegin dagar ná hápunkti í dag með hinni árlegu gleðigöngu sem í fyrsta sinn verður ekki gengin Laugaveginn. 
Konur í Dalabyggð taka í taumana í dag og fara hundrað og ellefu konur í óvissuferð á hestbaki á meðan karlarnir undirbúa miklu veislu fyrir þær.
Veðurhorfur: Norðaustan átta til þrettán metrar, en hægari síðdegis. Skýjað að mestu og dálítil rigning allra syðst í fyrstu, en léttir síðan smám saman til. Víða léttskýjað á morgun, en skýjað norðaustantil og þokuloft úti við ströndina. Hiti tólf til tuttugu stig, hlýjast suðvestanlands, en mun svalara úti við norður og austurströndina.</description>
Hádegisfréttir 05.ágúst 2011
      <description>Verð hlutabréfa lækkaði um þrjú og hálft prósent í Lundúnum í morgun og gengi á öðrum hlutabréfamörkuðum í Evrópu hélt áfram að lækka, eftir mikla lækkun í Asíu.
Krafist er áframhaldandi, fjögurra vikna gæsluvarðhalds yfir manni sem grunaður er um nauðgun á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.  Krafan er  byggð á grundvelli almannahagsmuna.
Stjórnarformaður bankasýslu ríkisins segir fé vanta til reksturs stofnunarinnar. Hinsvegar sé stjórn hennar þolinmóð vegna þröngrar stöðu ríkissjóðs.
Lögreglan á Suðurnesjum hefur látið lóga Rottweiler-hundi eftir að hann réðist á 12 ára stúlku og særði hana á handlegg.
Litlar líkur eru nú taldar á hlaupi úr eystri Skaftárkatli. Aukin leiðni og grugg í Skaftá gætu stafað af snöggsuðu í jarðhitakerfum segir sérfræðingur á Veðurstofu Íslands.
Íslandsmeistaratitill kvenna í knattspyrnu gæti verið á leið í Garðabæinn því Stjarnan hefur nú fimm stiga forskot á Val sem hefur unnið titillinn síðustu fimm ár. 
Veðurhorfur: Norðaustan átta til þrettán metrar, en tíu til fimmtán með suðaustur og norðvesturströndinni. Víða rigning eða súld, einkum suðaustantil. Norðaustan fimm til tíu og skýjað að mestu á morgun, en þurrt að kalla. Hiti yfirleitt tólf til tuttugu stig, hlýjast vestanlands.</description>
Hádegisfréttir 04.ágúst 2011
      <description>Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmir alvarleg og víðtæk mannréttindabrot stjórnvalda í Sýrlandi og beitingu vopnavalds gegn almennum borgurum. Þess er krafist að ofbeldið verði stöðvað tafarlaust.
Tíu nauðgunarmál hafa komið upp eftir Verslunarmannahelgina. Sex þeirra í Vestmannaeyjum. 
Fulltrúi slitastjórnar Kaupþings telur að einungis takist að innheimta hluta persónulegra ábyrgða vegna lána fyrrverandi starfsmanna til hlutabréfakaupa. Meirihluti þeirra hefur samið um greiðslu en ósamið er við æðstu stjórnendur sem fengu hæstu lánin.
Bandaríkjaforseti hefur fyrirskipað hertar varnir gegn umfangsmiklum innbrotum í tölvukerfi Bandaríkjastjórnar, sem upplýst var um í gær.
Lífeyrissjóðirnir sem keyptu hlut í HS Orku, segja sér óviðkomandi hvernig Alterra hagi endurgreiðslum sínum af lánum. Alltaf hafi legið fyrir, að fé sem þeir reiddu fram, færi ekki inn í rekstur fyrirtækisins.
Aðsókn að tjaldsvæðum á Norður- og Austurlandi hefur verið mjög dræm í sumar. Veðrið hefur mikil áhrif á ferðalög Íslendinga um landið segja tjaldverðir.
Umferð um verslunarmannahelgina var miklu minni í ár en sömu helgi í fyrra. Helgarumferð hefur dregist töluvert saman í sumar.
Handboltamaðurinn Logi Geirsson ætlar að leggja skóna á hilluna. Hann á að baki glæstan feril en nú setja  þrálát meiðsli strik í reikninginn.</description>
Kvöldfréttir 03.ágúst 2011
      <description>Fjárhagur Ítalíu er traustur. Bankarnir eru greiðsluhæfir og grundvöllur stjórnkerfisins er traustur. Þetta sagði Silvio Berlusconi í ræðu í ítalska þinginu í dag. Fjárfestar bera hins vegar lítið traust til ítalskra ríkisskuldabréfa.
Kjararáð hækkar laun alþingismanna og ráðherra um tæp fimm prósent. Hækkanirnar eru gerðar til samræmis við launaþróun í landinu að undanförnu.
Ýtarleg úttekt á Oddsskarðsgöngum verður gerð fljótlega og kannað hvort styrkja þurfi göngin til að koma í veg fyrir grjóthrun. Að svo stöddu telur Vegagerðin vegfarendum um göngin ekki hætta búin af grjóthruni.
Menntamálaráðuneytið varaði stjórnendur Kvikmyndaskóla Íslands við því að stækka skólann árið 2007. 
Nýtt eignarhald á Sjóvá breytir því ekki að Eftirlitsstofnun EFTA heldur áfram að rannsaka hvort íslenska ríkið hafi veitt ólögmætan ríkisstyrk til að bjarga félaginu.
Berjahorfur eru góðar fyrir vestan í sumar. Í Tálknafirði eru brekkur bláar af aðalbláberjum alveg niður í þorp.</description>
Hádegisfréttir 03.ágúst 2011
      <description>Búast má við nýju hlaupi í Skaftá á morgun, sem muni ná hámarki í byggð á föstudag. Ferðamenn í nágrenni við Hólaskjól og Skaftárdal ættu að hafa varann á. Ekki er búist við stóru hlaupi.
Innanríkisráðherra segir óhagkvæmt að breyta gömlum húsum í ríkiseign í fangelsi.  Engin þeirra bygginga sem metnar hafa verið nái sömu rekstrarhagkvæmni og nýtt fangelsi.
25 ára karlmaður sem varð unnustu sinni að bana í Heiðmörk í vor er talinn ósakhæfur samkvæmt mati geðlækna. 
Auka þarf eftirlit á útihátíðum til að sporna gegn nauðgunum að mati forstöðumanns Neyðarmóttöku vegna nauðgana. 
Réttarhöld hófust yfir Mubarak fyrrverandi forseta Egyptalands í Kairó í morgun. Forsetinn fyrrverandi neitaði ákæruatriðum um spillingu og samsæri um að láta myrða fólk sem tók þátt í mótmælum fyrr á þessu ári.
Svalbarðsstrandarhreppur og Þingeyjarsveit hafa samþykkt framkvæmdaleyfi fyrir Vaðlaheiðargöngum. Jarðspildur sem liggja munu að göngunum verða teknar eignarnámi. 
Sextíu nemendur hefja nám við Menntaskólann Hraðbraut í haust þó svo menntamálaráðuneytið hafi ekki endurnýjað þjónustusamning við skólann.  Skólastjórinn ætlar að greiða rekstrarkostnað úr eigin vasa.
Íbúar í Fjarðabyggð hafa áhyggjur af ástandinu í Oddsskarðsgöngum eftir nýlegar fréttir um grjóthrun og umferðaröngþveiti. Boðað hefur verið til mótmæla klukkan sjö í kvöld til að vekja athygli á ástandinu.</description>
Hádegisfréttir 2.ágúst 2011
      <description>Öldungadeild Bandaríkjaþings greiðir í dag atkvæði um lagafrumvarp, um að auka lántökuheimildir ríkissjóðs. Með því er Bandaríkjunum forðað frá greiðslufalli.
Karlmaður hefur verið úrskurðaður í þriggja daga gæsluvarðhald vegna gruns um að hafa nauðgað stúlku á Þjóðhátíð í Eyjum.
Fjárhagsstaða Kvikmyndaskóla Íslands er afar slæm. Eigið fé skólans var neikvætt um þrjátíu og fimm milljónir króna árið 2009.  Svo kann að fara að skólinn fái ekki rekstrarleyfi í haust.
Niðurstaða gerðardóms í deilu HS Orku og Norðuráls um orkukaup vegna álvers í Helguvík mun liggja fyrir innan tveggja mánaða. Þetta segir forstjóri HS Orku.
Talið er nú að tugir þúsunda Sómalíubúa hafi dáið úr hungri á undanförnum mánuðum. Hundruð þúsunda eru komin í flóttamannabúðir.
Umferðarteppa myndaðist í Oddsskarðsgöngum um verslunarmannahelgina. Þurfti fólk að bíða í tæpan klukkutíma áður en tókst að leysa úr flækjunni. 
Silkitoppa kom upp fjórum ungum í Mývatnssveit í sumar.  Ekki er vitað til þess að silkitoppa hafi áður verpt hér á landi. 
Veiðar og fiskigengd í ám landsins er um tveimur vikum á eftir því sem var í fyrra segir sérfræðingur á Veiðimálastofnun, en árið gæti samt orðið í meðallagi. Sjóbleikjuveiði hefur þó hrunið.</description>
Hádegisfréttir 01. ágúst 2011
      <description>Flokksleiðtogar vestan hafs hafa náð samkomulagi um hækkun á skuldaþaki Bandaríkjanna og niðurskurð ríkisútgjalda. Þingmenn eiga þó eftir að staðfesta samkomulagið sem líklega verður borið undir atkvæði í dag.
Varðskipið Ægir bjargaði á laugardaginn 58 flóttamönnum á Krít.
Krafist hefur verið fundar í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna vegna blóðbaðsins í Hama í Sýrlandi í gær. Stjórnarandstæðingar segja að 130 almennir borgarar hafi látið lífið.
Ekkert varð af stormi sem hafði verið spáð í Vestmannaeyjum í nótt. Þrátt fyrir að hvesst hafi um tíma í Eyjum leituðu fáir húsaskjóls í íþróttahúsi sem opnað var fyrir þjóðhátíðargesti.
Sjómenn í fiskveiðiflota Evrópusambandsins hentu afla fyrir ríflega 500 milljarða króna á 45 ára tímabili. Þeir hafa gengið stórlega á þorskstofninn með ofveiði.
Aldrei hafa fleiri leitað til Foreldrahúss um sumarmánuðina og nú. Það er vísbending um að vímuefnaneysla ungmenna sé að aukast, segir vímuefnaráðgjafi hússins. 
Annie Mist Þórisdóttir sigraði í nótt á heimsleikunum í Crossfit í Los Angeles.  Hún bætti þar með heimsmeistaratitlinum við Evrópumeistaratitilinn sem hún vann í fyrra.</description>
Hádegisfréttir 31. júlí 2011
      <description>Stjórnarherinn í Sýrlandi réðst inn í borgina Hama í morgun og skaut á mótmælendur. Að minnsta kosti 45 liggja í valnum. 
Forseti bæjarstjórnar Árborgar gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir kjarkleysi í ákvörðun í fangelsismálum en hann segir ríkið geta sparað allt  að einn og hálfan milljarð króna með því að byggja nýtt fangelsi á  Litla Hrauni í stað Hólmsheiðar.
Repúblikanar og demókratar á Bandaríkjaþingi keppast við að ná sátt í deilunni um skuldavanda Bandaríkjanna.  Atkvæðagreiðsla um niðurskurðarfrumvarp demókrata fer fram síðdegis í dag. 
Sveitarfélögin gætu þurft að segja upp starfsmönnum til að uppfylla nýgerða kjarasamninga. Þetta segir formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Gunnari Sigurðssyni fyrrum forstjóra Baugs Group í Bretlandi hefur verið vikið úr stjórn verslunarkeðjunnar Iceland og hefur Lárentsínus Kristjánsson formaður skilanefndar Landsbankans tekið sæti hans. 
Engin útköll voru hjá lögreglunni á Akureyri í nótt en það hefur aldrei áður gerst á laugardagskvöldi um verslunarmannahelgi. Lögreglan í Vestmannaeyjum man vart eftir rólegri hátíðarhöldum.
Einn hefur verið handtekinn og yfirheyrður vegna þjófnaðar á Voyage - bronsstyttu Steinunnar Þórarinsdóttur, í Húll á Englandi. Styttan er enn ófundin.
Íslensk hjálparsamtök hafa styrkt hjálparstarfið í Sómalíu um á fimmta tug milljóna króna. Söfnuninni er hvergi nærri lokið
Ísland drógst í riðil með Noregi, Slóveníu, Sviss, Albaníu og Kýpur þegar dregið var í undankeppni heimsmeistaramóts karla í knattspyrnu í gærkvöldi.  Dregið var í Ríó de Janeiro en mótið fer fram í Brasilíu sumarið 2014.</description>
Hádegisfréttir 30. júlí 2011
      <description>Einn var fluttur með sjúkraflugi frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur í nótt með brot í andliti eftir hópslagsmál. Lögreglan telur að um ellefu þúsund manns séu á Þjóðhátíð í Eyjum.  
Hátíðahöld um verslunarmannahelgina hafa víðast hvar farið vel fram.
Alger pattstaða virðist vera á Bandaríkjaþingi um hvernig hækka megi lántökuheimildir ríkisins. Demókratar í öldungadeildinni felldu í gærkvöld frumvarp repúblikana um málið. 
Rennslið í Skaftá hefur minnkað síðan í nótt. Vatnsmælingamaður telur þó að hlaupið hafi ekki náð hámarki sínu heldur séu dægursveiflur í ánni. Hlaupið, sem er úr vestari sigkatlinum, er þó lítið miðað við fyrri hlaup.
Íslamistar úr röðum líbískra uppreisnarmanna eru sakaðir um að standa á bak við morðið á yfirmanni uppreisnarhersins.
Viðvarandi vatnsskortur hefur plagað íbúa og gesti í Reykholti í sumar. Sóknarprestur í Reykholtskirkju segir  bagalegt að ekki sé hægt að tryggja nægt vatn til slökkvistarfs á þeim stað þar sem varasafn Þjóðarbókhlöðunnar er geymt.
Þrjátíu-og-níu þúsund skátar frá hundrað-og-fimmtíu löndum hafa byggt þorp í suðurhluta Svíþjóðar þar sem umburðarlyndi ræður ríkjum. 
Íslenska sundliðið lauk keppni á heimsmeistaramótinu í Sjanghæ í nótt.  Tvö Íslandsmet voru sett á mótinu en enginn íslenskur sundmaður komst áfram úr undanriðlum.</description>
Hádegisfréttir 29. júlí 2011
      <description>Fórnarlömb Anders Breivik eru nú borin til grafar hvert af öðru. Fjöldi gesta var við minningarathöfn norska Verkamannaflokksins, þar á meðal Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra. Anders Breivik hlaut þjálfun í leyniherbúðum í Hvíta-Rússlandi, fullyrðir stjórnarandstöðuleiðtogi þar. 
Stjórnlagaráð afhenti í morgun forseta Alþingis drög að frumvarpi nýrrar stjórnarskrár fyrir Ísland.
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir mörgum spurningum ósvarað um söluna á Sjóvá og hefur farið fram á að viðskiptanefnd Alþingis ræði málið. Hann telur að verklagsreglum hafi ekki verið fylgt.
Formaður þjóðhátíðarnefndar býst við færri gestum til Vestmannaeyja um verslunarmannahelgina en í fyrra. Fjögur fíkniefnamál komu upp í Eyjum í nótt. Ferðamannastraumurinn virðist liggja norður. 
Að minnsta kosti tveimur þjálfurum hefur verið vísað úr starfi hjá íþróttafélögum í Hafnarfirði undanfarin ár, vegna kynferðisbrota gagnvart ungmennum. 
Karl og kona voru dæmd í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa tekið ljósmyndir af stúlkum í búningsklefa.
Enn hefur ekki hlaupið í Skaftá. Í gær benti hins vegar allt til þess að hlaup gæti verið að hefjast. Sjónarvottur fullyrðir hins vegar að hlaup sé hafið í ánni.
Möguleikar KR á að komast áfram í Evrópudeildinni í knattspyrnu eru hverfandi eftir 4-1 tap gegn Dynamo TÍBLÍSÍ frá Georgíu á heimavelli í gærkvöld</description>
Hádegisfréttir 28. júlí 2011
      <description>Hlaup er að hefjast í Skaftá. Mælingar Veðurstofunnar sýna aukna leiðni í ánni og búist er við að hlaupið hefjist í kvöld eða nótt. Fólk er varað við að vera nærri ánni næstu daga.
Karlmaður, sem stunginn var með hnífi í hálsinn á veitingastað í Reykjavík fyrir tveimur vikum, er látinn.
Landeyjahöfn er ekki tilbúin. Þetta er samdóma mat þriggja skipstjóra Herjólfs. Einn þeirra segir að loka þurfi höfninni frá janúar til apríl verði ekkert að gert.
Norska lögreglan segir nokkrar sprengjuhótanir hafi borist í kjölfar hryðjuverkanna í Osló og Útey.Enn er leitað fórnarlamba í vatninu kringum Útey. Enn er leitað að fórnarlömbum í vatninu við Útey.
Stofnun SpKef var algert klúður frá upphafi segir formaður Sjálfstæðisflokksins. Hann vill að fjármálaráðherra birti nýtt mat á virði eigna sparisjóðsins. 
Hátt í sjötíu manns hafa látist eftir skriðuföll og flóð í höfuðborg Suður-Kóreu. Skriðurnar hafa hrifið með sér jarðsprengjur sem grafnar voru í Kóreustríðinu um miðja síðustu öld. 
Ákvæði í stjórnarskrárfrumvarpi stjórnlagaráðs  er varða náttúru og verndun hennar yrðu stórt skref fram á við yrðu þau fest í sessi í stjórnarskrá, segir prófessor í umhverfisrétti.</description>
Hádegisfréttir 27.júlí 2011
      <description>Fjármálaráðherra segir stefnt að því að fjárlagahallinn verði um 40 milljarðar á þessu ári. Hann útilokar ekki frekari niðurskurð og skattahækkanir til að mæta miklum halla á ríkissjóði.
Norska lögreglan hefur sprengt sprengiefni sem fannst á bóndabæ fjöldamorðingjans Anders Berhring Breivik. Sprengjuleit var gerð á aðaljárnbrautarstöðinni í Osló í morgun.
Palestínumenn ætla að lýsa yfir sjálfstæði og óska eftir viðurkenningu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna á næsta fundi ráðsins í september.
Ekkert verður af boðuðu verkfalli hafnsögumanna sem átti að hefjast fjórða ágúst. Kjarasamningur þeirra við Samband íslenskra sveitarfélaga var undirritaður fyrir hádegi í dag. 
Jarðskjálfti upp á þrjá komma tvo mældist í Mýrdalsjökli í nótt. Fjöldi skjálfta hefur mælst á svæðinu. Ekkert bendir þó til að gos sé að hefjast í Kötlu.
Dæmi eru um að farmiðar með Herjólfi til og frá Vestmannaeyjum næstu daga séu seldir fyrir tuttugu þúsund krónur á svörtum markaði, sem er tífalt verðmæti þeirra. Eimskip hefur gert sérstakar ráðstafanir vegna möguleika á því að falsaðir miðar séu í umferð.
Göngustígur upp að íshellinum í Kverkfjöllum er afar hættulegur, segir landvörðurinn á svæðinu. Stórir íshnullungar - sumir á stærð við bifreiðar - hrynja úr jöklinum á stíginn.</description>
Hádegisfréttir 26.júlí 2011
      <description>Fátt bendir til þess að norski hryðjuverkamaðurinn Anders Breivik eigi sér vitorðsmenn. Tengsl hans við evrópskar hægriöfgahreyfingar eru þó til rannsóknar. Lögmaður hans segir hann geðveikan. 
Norskir fjölmiðlar birtu í morgun nöfn og andlitsmyndir af fjölda fórnarlamba hryðjuverkanna í Noregi. Yngsta fórnarlambið var ellefu ára. 
Ákvörðun um byggingu nýs fangelsis verður tekin fyrir lok ágústmánaðar segir innanríkisráðherra. Enn eigi þó eftir að ákveða hvort framkvæmd við byggingu þess verði opinber eða í höndum einkaaðila.
Efnahags- og viðskiptaráðherra telur að ógætilega hafi verið farið í kjarasamningum og að verðbólguna nú megi að stórum hluta rekja til þeirra. Forseti ASÍ telur hinsvegar veikingu krónunnar vega þyngra.
Alþjóðasamfélagið hefur ekki brugðist nógu hratt við hungursneyðinni í austanverðri Afríku segir utanríkisráðherra. Ríkisstjórnin muni mögulega verja meira fé til aðstoðar en þegar hefur verið gert.
Skuldir landsmanna lækkuðu í fyrra  í fyrsta sinn frá því um aldamót samkvæmt framtölum. Litlar breytingar hafa orðið í efri þrepum tekjustigans, hvorki hjá hinu opinbera né hjá einkageiranum.</description>
Kvöldfréttir 25.júlí 2011
      <description>Óvissan um hvort norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik átti sér samstarfs- eða vitorðsmenn veldur spennu og óöryggi í Noregi. Vísbendingum fjölgar um að hann hafi ekki verið einn að verki.
Fjöldi fólks tók þátt í svokallaðri Rósargöngu sem haldnar hafa verið víða í Noregi í dag til að minnast fórnarlamba árásanna.
Leiðrétting á útreikningi bóta löngu eftir að þær hafa verið greiddar út, eru óásættanleg vinnubrögð af hálfu Tryggingastofnunar, segir formaður Landssambands eldri borgara. 
Landbúnaðarráðherra Frakklands segir alþjóðasamfélagið hafa brugðist íbúum Austur-Afríku þar sem hungursneyð ríkir og að mesta hneyksli aldarinnar sé í uppsiglingu.
Verðbólga er miklu meiri en gert var ráð fyrir í forsendum kjarasamninga, segir formaður Starfsgreinasambandsins. Verði ekki breyting á blasi við að virkja þurfi endurskoðunarákvæði samninganna eftir áramót.</description>
Hádegisfréttir 25.júlí 2011
      <description>Anders Behring Breivik var fyrir stundu leiddur fyrir dómara sem mun ákveða hvort gæsluvarðhald hans verði framlengt. Hvorki fjölmiðlar né almenningur fær að vera viðstaddur. Óstaðfestar fregnir herma að maður hafi verið handtekinn í Póllandi vegna tengsla við voðaverk Breiviks en því neitar pólska lögreglan.
Breska lögreglan rannsakar nú hvort Breivik hafi haft tengsl við hægri öfgamenn á Bretlandseyjum, sem undirbúi viðlíka hryðjuverk.
Þorsteinn Hjaltested, fjárfestir í Kópavogi, greiðir hæstu skatta allra landsmanna að þessu sinni. Álagning almenns tekjuskatts í ár nemur rúmum tvö hundruð milljörðum króna og hækkar um eitt komma fjögur prósent frá í fyrra. 
Tæplega tíu þúsund lífeyrisþegar þurfa að endurgreiða Tryggingastofnun samtals einn-komma-tvo milljarða króna vegna ofgreiddra bóta.
Reynt er með öllum ráðum að koma matarsendingum til Sómalíu í von um að sveltandi íbúar fari ekki til nágrannalanda í fæðuleit. Þar bíður þeirra einungis dvöld í yfirfullum flóttamannabúðum
Verðbólgan er orðin fimm prósent eða helmingi hærri en verðbólgumarkmið Seðlabankans. Mestu munar um hækkun húsnæðisverðs sem hækkaði um 1,2 prósent síðan í júní.</description>
Hádegisfréttir 24. júlí 2011
      <description>Níutíu og þrír eru nú látnir eftir hryðjuverkin í Osló í fyrradag. Ellefu til tólf er saknað.
Mikil lögregluaðgerð fór fram í Osló í morgun. Talið er að lögreglan leiti mögulegra samverka eða vitorðsmanna mannsins sem játað hefur á sig hryðjuverkin. 
Biskup Íslands minntist þeirra sem létu lífið í Noregi í guðsþjónustu í Dómkirkjunni í morgun. Hann sagði að kynþáttahatur og fordómar gagnvart trúarbrögðum ættu ekki að líðast.
Sjái hið opinbera um byggingu nýs fangelsis þarf að skera niður, hækka skatta eða auka halla ríkissjóðs. Þetta segir fjármálaráðherra. Hann telur skynsamlegra að láta einkaaðila um framkvæmdina.
Evrópska lyfjastofnunin varar við Pandemrix, bóluefni gegn svínaflensu, vegna tengsla þess við drómasýki. Engin slík tengsl hafa komið í ljós hér á landi, segir yfirlæknir sóttvarnasviðs.</description>
Hádegisfréttir 23. júlí 2011
      <description>Staðfest er að níutíu og einn hafi fundist látinn eftir sprengjutilræðið í Osló í gær og í fjöldamorðum á ungu fólki á Útey í grennd við Osló. Ekki er talið útilokað að fleiri hafi látist.
Þrjátíu og tveggja ára gamall Norðmaður er í haldi lögreglu. Hann er talinn hafa staðið bæði að sprengingunni í Osló og skotárásunum á Útey. Lögreglan kannar nú vísbendingar um að árásarmennirnir á Útey hafi verið tveir.
Maðurinn, sem er í haldi notaði sprengju sem hafði verið samansett að mestu úr tilbúnum áburði. Talið er að hann hafi ætlað að þurrka út kynslóð mögulegra framtíðarleiðtoga Verkamannaflokksins.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir að hugur Íslendinga sé hjá Norðmönnum og sjálf segist hún finna sárt til með norsku þjóðinni. Flaggað er í hálfa stöng á byggingum stjórnarráðsins í dag.
Sprengjutilræðið í Ósló þykir minna á hryðjuverkið í Oklahoma-borg fyrir sextán árum þar sem tæplega hundrað og sjötíu manns létust</description>
Hádegisfréttir 20.júlí 2011
      <description>Starfsmenn á meðferðarheimilum verða framvegis aldrei einir á vakt segir forstjóri Barnaverndarstofu. Ráðist var á starfsmann á unglingaheimili í Skagafirði um helgina.
Breiðafjarðarferjan Baldur mun sigla milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja í fimm vikur í haust í fjarveru Herjólfs, sem þarf að fara í slipp erlendis. Siglingastofnun hefur óskað eftir undanþágu fyrir Baldur.
Nýr kjarasamningur flugmanna Icelandair felur ekki í sér neinar launahækkanir umfram þann samning sem var nýlega felldur, en atvinnuöryggi flugmanna eykst að sögn formanns FÍA. 
David Cameron forsætisráðherra Bretlands sætir harðri gagnrýni á neyðarfundi á breska þinginu, sem nú stendur yfir vegna hleranahneykslisins, sem skekið hefur breskt samfélag að undanförnu. 
Umhverfisráðherra segir æpandi mun á aðstöðu náttúruverndarsamtaka og orkufyrirtækja til að fjalla um nýjan áfanga rammaáætlunar um nýtingu náttúruauðlinda. 
Atvinnuleysi hér á landi var átta komma fimm prósent á öðrum ársfjórðungi. Þeim fjölgar, sem verið hafa atvinnulausir lengi.
Mismunandi meiningar um hæð Mount Everest hafa breyst í milliríkjadeilu á milli Nepals og Kína. Yfirvöld í Nepal ætla að mæla fjallið upp á nýtt til að leiða deiluna til lykta.</description>
Hádegisfréttir 19.júlí 2011
      <description>Nýr sigketill og hringlaga sprungur uppgötvuðust í eftirlitsflugi jarðvísindamanna yfir Mýrdalsjökul í gær. Töluvert sig hefur orðið á jöklinum síðustu daga. 
Flóttamaður frá Máritaníu fer nú huldu höfði á Íslandi. Útlendingastofnun reyndi að vísa manninum úr landi en hann nýtur aðstoðar aðgerðasinna sem krefjast þess að innanríkisráðherra beiti sér í málinu.
Bresk þingnefnd yfirheyrir í dag fjölmiðlakónginn Rubert Murdoch um hleranir æsifréttablaðs hans News of the World og mútugreiðslur til lögreglu og stjórnmálamanna. Blaðamaður sem fyrstur greindi frá hlerunum blaðsins fannst látinn á heimili sínu í morgun.
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, hefur lofað rúmum 18 milljónum króna í neyðaraðstoð vegna mikillar hungursneyðar í Sómalíu. Ástandið fer hríðversnandi vegna langvarandi þurrka í Austur-Afríku.
ESA, eftirlitsstofnun EFTA, hefur gefið íslenskum stjórnvöldum frest út árið til að laga starfsemi Íbúðalánasjóðs að reglum EES-samningsins um ríkisaðstoð . Starfandi velferðarráðherra segir að unnið sé að endurmati á starfsemi sjóðsins. 
Auknar álögur á banka á evrusvæðinu verða að líkindum meðal úrræðanna sem beitt verður til að bjarga Grikklandi. Hagfræðingurinn sem fyrstu spáði fyrir um heimskreppuna mælir með stórfelldri lengingu lána til Grikkja og segir nauðsynlegt að lækka vaxtakröfuna um leið. 
Hærra heimsmarkaðsverð á gulli hefur aukið verðgildi gullforða landsmanna um hátt í sjö hundruð og fimmtíu milljónir króna frá mánaðamótum.</description>
Hádegisfréttir 18.júlí 1011
      <description>Breska þingið hefur verið kallað saman til neyðarfundar til þess að ræða símhlerunarhneyksli fjölmiðlaveldis Ruperts Murdoch
5 flöskur af vatni var kosturinn sem 220 farþegar Iceland Express máttu skipta með sér í fyrrinótt á heimleiðinni frá París þar sem þeir höfðu setið fastir síðan á föstudag. Forsvarsmenn fyrirtækisins hyggjast ræða við farþega í dag vegna málsins. 
Samningafundur verður haldinn hjá ríkissáttasemjara í dag vegna kjaradeilu flugmanna Icelandair. Yfirvinnubann tekur gildi hjá flugmönnum á morgun, náist ekki samningar.
Skortur er á lambakjöti á innanlandsmarkaði, á sama tíma og tæpur helmingur af íslensku lambakjöti er fluttur út og seldur á erlendum markaði. Fyrirtæki í kjötiðnaði hefur sótt um leyfi til að flytja inn lambakjöt. 
Skjálftahrinan í Kötluöskjunni í nótt tengist árstíðabundnum hrinum í Mýrdalsjökli, segir jarðeðlisfræðingur á Veðurstofunni. Hrinan í nótt hafi þó verið í öflugra lagi. Engin merki eru um eldgos. 
Aðgangur að Dettifossi verður takmarkaður á fimmtudag og föstudag vegna vinnu við bandaríska stórmynd. Ljósmyndatökur ferðamanna af fossinum eru illa séðar á meðan, þar sem mikil leynd hvílir yfir gerð myndarinnar.
Kreppan á Evrusvæðinu gæti haft svipaðar afleiðingar og fall Lehman-bræðra. Þetta er mat seðlabankastjóra Evrópu. Varaforsætisráðherra Bretlands óttast að við blasi önnur fjármálakreppa.</description>
Hádegisfréttir 17. júlí 2011
      <description>Bráðabirgðabrú yfir Múlakvísl kostar í kringum þrjátíu milljónir króna eða einn tíunda af því sem ný brú mun kosta. Ástæðan er að efni úr gömlum brúm var notað og aðeins fjórir dagar fóru í smíðina. 
Það kostar lögregluna á höfuðborgarsvæðinu minnst fimmtán milljónir króna árlega að flytja fanga til og frá Litla Hrauni. Árið 1997 var lögreglunni lofað að nýtt fangelsi yrði tekið í notkun árið 2000.
Lögreglan í Stokkhólmi leitar enn manns sem réðist á tólf ára stúlku í miðborginni á föstudagskvöld og nauðgaði henni.
Argentínumenn deila nú um hvort ráðmenn vilji frekar bæta efnahagstengsl við Íran en að komast að því hverjir stóðu fyrir hryðjuverkaárás í landinu árið 1994.
Um fimmtíu kindur urðu innlyksa við bæinn Stóru Mörk undir Eyjafjöllum á föstudag þegar farvegi Markarfljóts var breytt. Féð gæti endað röngu megin við sauðfjárveikilínu og þá þarf að lóga því. 
Veitingamenn í Vestmannaeyjum eru ósáttir við hugmyndir þjóðhátíðarnefndar um að leyfa veitingastað í Reykjavík að selja hamborgara í Herjólfsdal. Heimamenn gagnrýna að þeim hafi ekki verið gefinn kostur á því að bjóða í verkið.
Hinir árlegu herramannaleikar fóru fram í Lundúnum í gær. Það er íþróttakeppni fyrir þá sem hafa ekki gaman að íþróttum.
Fullyrt er í grískum fjölmiðlum að knattspyrnumaðurinn Eiður Smári Guðjohnsen sé orðinn leikmaður gríska liðsins AEK frá Aþenu.
Veðurhorfur: Hæg norðaustlæg eða breytileg átt, en átta til tíu metrar með austurströndinni. Léttskýjað sunnan og vestanlands, en annars skýjað og þokuloft eða súld úti við sjávarsíðuna. Áfram víða léttskýjað á morgun, en sums staðar þokuloft norðaustantil. Hiti víða tólf til tuttugu stig, hlýjast í uppsveitum suðvestanlands.</description>
Hádegisfréttir 16. júlí 2011
      <itunes:author>Aðalbjörn Sigurðsson</itunes:author>
      <description>Ný brú yfir Múlakvísl verður opnuð nú í hádeginu. Um 70 manna hópur þeirra sem unnið hefur að brúarsmíðinni og tilheyrandi framkvæmdum vígði brúna með því að ganga yfir hana.
Forseti Alþýðusambandsins hvetur almenning til að kaupa ekki lambakjöt í mótmælaskyni við hækkun á viðmiðunarverðskrá. Hann segir rök bænda fyrir hækkunin engan vegin ganga upp. 
Það gæti valdið ríkinu og þar með þjóðinni tjóni að upplýsa strax um söluverð Byrs. Þetta segir þingmaður Vinstri Grænna sem á sæti í fjárlaganefnd.
Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, gagnrýndi í morgun tyrknesk stjórnvöld fyrir tilraunir þeirra til að þagga niður í blaðamönnum.
Farþegar Iceland Express sem áttu að fara frá París í gærdag voru látnir sofa í nótt fjórir í herbergi. Gilti einu þótt þeir þekktust ekki neitt. Vélin bilaði en farþegar fengu engar skýringar fyrr en á hádegi í dag.  
Sex spænsk tryggingafélög verða að greiða fjölskyldu manns andvirði 180 milljóna króna vegna læknamistaka. Maðurinn hefur verið í dái í 22 ár eftir mislukkaða lýtaaðgerð.
Frjálsíþróttakonan Helga Margrét Þorsteinsdóttir er aðeins í sextánda sæti eftir tvær greinar í sjöþraut á EM 23 ára og yngri í frjálsíþróttum og Skagamenn hafa nú ellefu stiga forystu á næsta lið í 1. deild karla í knattspyrnu eftir leiki gærkvöldsins.
Veðurhorfur: Norðlæg átt, þrír til tíu metrar. Víða léttskýjað sunnan og vestanlands, skúrir á stöku stað sunnanlands síðdegis. Annars skýjað, súld eða dálítil rigning með köflum norðaustanlands og þokuloft við norðurströndina. Hæg austlæg eða breytileg átt á morgun og svipað veður. Hiti tíu til tuttugu stig að deginum, hlýjast suðvestanlands.</description>
Hádegisfréttir 15.júlí 2011
      <description>Vonast er til að hægt verði að opna fyrir umferð um nýja brú yfir Múlakvísl á morgun. Vatni verður veitt undir brúna seinna í dag og lokast þá fyrir fólksflutninga í þrjá klukkutíma. 
Yfirvinnubann flugmanna Icelandair hefst að nýju á þriðjudaginn, hafi ekki náðst samningar við fyrirtækið fyrir þann tíma. Þúsundir flugfarþega urðu fyrir óþægindum vegna yfirvinnubanns í júní.
Landssamtök sauðfjárbænda hafa hækkað viðmiðunarverð á lamba- og kindakjöti til bænda um fjórðung. Útlit er fyrir að vöruverð hækki í kjölfarið. 
Gildi lífeyrissjóður braut lög að mati Neytendastofu þegar lántakandi var ekki upplýstur um að ef hann tæki lán nokkrum dögum seinna myndu ekki falla á lánið 700 þúsund króna  verðbætur strax við fyrstu útborgun.
Rebekah Brooks, framkvæmdastjóri fjölmiðlasamsteypunnar News International, hefur sagt af sér vegna ásakana um að hún hafi staðið fyrir símahlerunum. Rupert Murdoch, eigandi fyrirtækisins, verður kallaður fyrir þingnefnd eftir helgi.
Ekki er rétt að lækka álögur hins opinbera á eldsneytisverð - að mati starfshóps sem fjármálaráðuneytið skipaði til að fjalla um viðbrögð vegna hækkandi verðs á olíu. 
Niðurstöður leiðangurs Hafrannsóknastofnunar gefa til kynna að sandsílastofninn sé enn í mikilli lægð og að hann haldi áfram að minnka.
Ummæli Evu Joly um að hætta að vera með hersýningu á þjóðhátíðardegi Frakka hafa vakið hörð viðbrögð. Andstæðingar hennar segja að hún skilji ekki hvað það er að vera Frakki.
Veðurhorfur: Norðaustlæg eða breytileg átt, þrír til átta metrar. Víða léttskýjað sunnan og vestanlands, en skúrir á stöku stað síðdegis. Annars skýjað að mestu og súld með köflum á Norðaustur- og Austurlandi. Hiti tíu til tuttugu stig, hlýjast suðvestanlands.</description>
Hádegisfréttir 14.júlí 2011
      <description>Fjármálaráðherra segir ríkið tapa óverulegum fjárhæðum á sölu Byrs til Íslandsbanka. Hann fagnar niðurstöðunni og segir hana mjög farsæla. 
Hlaupið úr Köldukvíslarjökli kom úr áður óþekktu háhitasvæði í vesturhluta Vatnajökuls. Þetta kom í ljós við flug vísindamanna yfir jökulinn í gærkvöld. Jarðeðlisfræðingur segir hugsanlegt að kvikuinnskot undir jöklinum hafi valdið hlaupinu.
Belgískur fjallgöngumaður sem tugir björgunarsveitarmanna leituðu að í gær fannst á áttunda tímanum í gærkvöldi, heill á húfi. Hann segist hafa verið í töluverðri hættu.
Matsfyrirtækið Moody's varaði í gærkvöld við því að fyrirtækið kynni að lækka lánshæfismat Bandaríkjanna. Þá hafði ekkert gengið í viðræðum þarlendra ráðamanna  um að leysa bráðasta skuldavandann.
Tillaga sem stjórnlagaráð hefur samþykkt gerir ráð fyrir að í mikilvægum og stefnumarkandi málum beri ráðherrar ríkisstjórnar sameiginlega ábyrgð. Reglan nú er sú að hver ráðherra ber einn ábyrgð á sínum málaflokkum.
Líbanskir mannræningjar slepptu sjö gíslum í morgun. Það voru eistneskir ferðamenn sem var rænt í mars og hafði verið haldið í gíslingu síðan.
Veðurhorfur: Austlæg átt, víða þrír til átta metrar. Dálítil væta sunnan og síðar austanlands, annars skýjað með köflum og úrkomulítið. Norðlægari á morgun og lítilsháttar rigning á Norðaustur- og Austurlandi. Bjartviðri sunnan og vestanlands, en stöku skúrir síðdegis. Hiti átta til átján stig, hlýjast norðvestantil í dag, en suðvestantil á morgun.</description>
Hádegisfréttir 13.júlí 2011
      <description>Flytja þyrfti hundruð eldri borgara af hjúkrunarheimilum ef rýma þyrfti byggð í Laugarnesinu vegna reykmengunar. Framkvæmdastjóri Hringrásar segir koma til greina að læsa gúmmíúrgang inni til að koma í veg fyrir íkveikju.
Jökulhlaup kom úr Köldukvíslarjökli í nótt, niður í Hágöngulón. Engin merki eru um eldsumbrot undir jöklinum. Vatn streymir nú úr Hágöngulóni niður í Þórisvatn.
Fólksflutningar yfir Múlakvísl töfðust um tvo klukkutíma í morgun á meðan Vegagerðin samdi við eigendur fjallabíla um greiðslur.
Björgunarsveitir leita Norðmanns sem er villtur á Fimmvörðuhálsi. Þar er nú lélegt skyggni til leitar, þoka og rigning. 
Miklar breytingar verða gerðar á sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins samkvæmt tillögum sem kynntar voru í Brussel í morgun. Skip fá úthlutað kvóta til fimmtán ára og skera á upp herör gegn brottkasti. 
Fjármálaráðherra segir að íslenska ríkið eigi fyrir öllum afborgunum og rúmlega það til ársins 2016. Fá dæmi séu þess að ríki standi jafn vel að vígi í kjölfar efnahagshruns og Ísland gerir nú. 
Kjarasamningar flugmanna voru ekki felldir vegna launaákvæða, fullyrðir framkvæmdastjóri FÍA. Kjaraviðræður flugmanna og fulltrúa Icelandair hefjast á ný hjá ríkissáttasemjara á morgun. 
Danska matvælastofnunin vill að stórmarkaðir og matvöruverslanir fái heimild til að selja mat sem kominn er fram yfir síðasta söludag. Þannig megi koma í veg fyrir sóun matvæla.</description>
Hádegisfréttir 12. júlí 2011
      <description>Allt bendir til þess að kveikt hafi verið í dekkjastæðum við endurvinnslufyrirtækið Hringrás við Sundahöfn í nótt. Vegna hagstæðrar vindáttar þurfti ekki að rýma íbúðahverfi í grenndinni. Slökkviliðsstjóri segir að íhuga þurfi framtíð fyrirtækisins á svæðinu.
Framkvæmdastjóri Hringrásar segir öryggismál fyrirtækisins til fyrirmyndar. Ekki sé stefnt á að flytja fyrirtækið. 
Fjárfestar óttast að greiðsluvandinn á evrusvæðinu breiðist út. Gengi hlutabréfa féll hratt í evrópskum kauphöllum í morgun. 
Brúarsmíðin yfir Múlakvísl gengur vel, segir verkstjóri á svæðinu. Áin sé þó erfið og miklar varnir þurfi til að verja brúarstæðið á meðan það er í byggingu.
Rúmlega tuttugu tonn af fiski dreifðust um og yfir þjóðveg eitt þegar flutningabíll fór út af í Vestur-Húnavatnssýslu í morgun. Búast má við töfum á umferð fram eftir degi. 
Flugmenn Icelandair hafa lagalegan rétt til að hefja verkfallsaðgerðir nú er samningunum hefur verið hafnað. Ekki er þó ljóst hvert næsta skref verður í kjaradeilu þeirra.</description>
Hádegisfréttir 11. júlí 2011
      <description>Þrír trukkar eru komnir að Múlakvísl til að flytja fólk og farartæki yfir ána. Selflutningar eiga ekki að tefja fyrir brúarsmíð, segir vegamálastjóri.
Árni Johnsen segir reynda brúarsmiði vel geta brúað Múlakvísl á tveimur dögum með gámabrú úr 40 feta gámum. Þá segir hann að þegar ætti að vera kominn tækjafloti inn á Fjallabaksleið til þess að styrkja veginn. 
Fólk í ferðaþjónustu og sveitarfélög á suður- og suðausturlandi reyna nú að setja eins mikinn þrýsting og hægt er á stjórnvöld að opna þjóðveg eitt hið fyrsta. Menn óttast mikið tjón, vari ástandið vikum saman. 
Þjóðverjar og Íslendingar stefna að auknu samstarfi varðandi málefni Norðurheimsskautsins og á sviði endurnýjanlegra orkugjafa. Þetta var meðal þess sem rætt var á fundi Jóhönnu Sigurðardóttur og Angelu Merkel Þýskalandskanslara í Berlín í dag.
Rússnesk stjórnvöld hafa fyrirskipað lögreglurannsókn vegna harmleiksins á Volgu þar sem yfir hundrað manns eru taldir hafa drukknað. Yfirvöld telja að vanræksla eigenda skipsins sem sökk hafi leitt til slyssins.
Engir hraðbankar eru á  Þingeyri og Bíldudal og bankaútibúin þar geta ekki tekið við útlenskum greiðslukortum. Útlendingar eiga því fárra kosta völ við að taka út peninga.
Sextán ár eru í dag liðin frá fjöldamorðunum í Srebenica í Bosníu. Þúsundir hafa minnst rúmlega átta þúsund fórnarlamba á minningarathöfn í dag.
Flugfélag Íslands vill tvöfalda aðstöðu sína við Reykjavíkurflugvöll og sendi Skipulagsráði erindi í mars með teikningum að stækkun. Því hefur ekki verið svarað. 
KR er aftur komið í efsta sæti úrvalsdeildar karla í knattspyrnu. Liðið sigraði Fylki í Árbænum í gærkvöldi.</description>
Hádegisfréttir 10.júlí 2011
      <description>Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir að neyðarástand skapist í greininni, verði hringvegurinn lokaður í nokkrar vikur. Hún skorar á stjórnvöld að flýta framkvæmdum.
Búið er að ákveða hvar bráðabirgðabrú yfir Múlakvísl verður byggð. Aðdrættir  hefjast í dag og framkvæmdir á morgun. Vegagerðarmenn hafa síðan í gær kannað aðstæður við ána. 
Um tíu þúsund gestir sóttu útihátíð á Gaddstaðaflötum við Hellu um helgina. Hátíð fór vel fram að sögn lögreglu. Hápunktur hátíðarinnar var að mati skipuleggjenda þegar hljómsveitin Quarashi steig á svið eftir sex ára hlé. 
Nýr dómur yfir blaðamanni DV er fráleitur segir formaður Blaðamannafélags Íslands. Hann segir blaðamenn ekki geta sinnt hlutverki sínu ef þeir hafi ekki heimild til að hafa rétt eftir viðmælendum sínum. 
Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir ótækt að meirihlutinn noti flutning á málefnum fatlaðra, frá ríki til sveitarfélaga, sem afsökun fyrir því að hafa ekki skilað þriggja ára fjárhagsáætlun á tilsettum tíma.  
Sundkappinn Árni Þór Árnason er nú á sundi yfir Ermasundið. Hann hóf sundið klukkan fjögur í morgun og er um það bil hálfnaður. Þjálfari hans er bjartsýnn á að markmiðinu verði náð.
Anton Sveinn McKee setti í morgun sitt annað Íslandsmet á Evrópumeistaramóti unglinga í sundi í Belgrad. Áður hafði Eygló Ósk Gústafsdóttir unnið til þrennra silfurverðlauna á mótinu.</description>
Hádegisfréttir 9.júlí 2011
      <description>Hlaupið í Múlakvísl virðist í rénun og órói í Mýrdalsjökli fer minnkandi. Almannavarnir lýstu yfir hættustigi í morgun. Hringvegurinn er lokaður yfir Mýrdalssand. Ekki er hægt að útiloka að lítið eldgos hafi orðið undir Mýrdalsjökli í gærkvöldi. Sprungur eru í tveimur sigkötlum syðst í jöklinum. 
 Bryndís Brandsdóttir jarðskjálftafræðingur segir að jarðskjálftavirknin sem Veðurstofan fylgdist með í nótt sé ekki óvenjuleg á neinn hátt. Hún segir að hlaupinu nú svipi til atburða í júní 1955. Þá hafi komið hlaup úr tveimur kötlum á gossvæðinu frá 1918 og staðið í tíu klukkutíma.
Íbúar í Álftaveri og Meðallandi þurftu að rýma heimili sín í morgun. Fjöldahjálparstöðvar Rauða krossins voru opnaðar í Vík og á Klaustri - fjöldi fólks hefur skráð sig þar og fengið aðstoð. 
Brúin yfir Múlakvísl er mikið skemmd. Nokkrar vikur geta liðið þar til hægt verður að hleypa umferð yfir Mýrdalssand aftur. Fjallabaksleið nyrðri er opin fyrir fjórhjóladrifnar bifreiðar. 
Um átta þúsund manns eru á Bestu útihátíðinni sem nú fer fram á Gaddstaðaflötum við Hellu. Tvær líkamsárásir hafa komið til kasta lögreglu.</description>
Hádegisfréttir 8.júlí 2011
      <description>Ólíklegt er að öll skilyrði nýgerðra kjarasamninga haldi samkvæmt nýrri Þjóðhagsspá. Viðbúið sé að þeir verði endurskoðaðir á samningstímanum. Þó er gert ráð fyrir að kaupmáttur launa aukist.  
Karlmaður var í dag dæmdur í sex og hálfs árs fangelsi fyrir að smygla tugþúsundum e-taflna og fimm þúsund skömmtum af LSD til landsins. 
Vörukarfa ASÍ hefur hækkað í verði í flestum verslunarkeðjum frá því í febrúar. Nettó og Samkaup Úrval eru einu verslanirnar þar sem verð lækkar. Drykkjarvörur og hreinlætis- og snyrtivörur eru meðal þess sem hefur hækkað nánast allsstaðar
Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir að starfsmenn þurfi í framtíðinni að hugsa sig tvisvar um áður en þeir komi vinnufélögum sínum til aðstoðar eftir vinnuslys. Nýfallinn dómur geri þetta að verkum.
Dómþingum verður fækkað um sex samkvæmt nýrri reglugerð frá innanríkisráðuneytinu. Sveitarstjórnarmaður á Blönduósi segir þetta íþyngjandi fyrir íbúa á landsbyggðinni. 
Stjórnandi Konunglega danska ballettsins er í nýrri skýrslu, ásamt hópi dansara, sakaður um kókaínneyslu. Skýrslan var unnin var vegna kvartana frá mörgum dönsurum í ballettflokknum.
Flugfélögin bæta stundvísi sína, samkvæmt tölum um komur og brottfarir frá Keflavíkurflugvelli. Tvöfalt fleiri flug Iceland Express fóru í loftið á réttum tíma í þessari viku en í þeirri síðustu.
KR er komið áfram í undankeppni Evrópudeildarinnar í knattspyrnu. Liðið lagði Fuglafjörð í gærkvöldi, fimm eitt. Eyjamenn eru hinsvegar úr leik eftir tap í gær.</description>
Hádegisfréttir 07.júlí 2011
      <description>Landsvirkjun hefur lokið frumhönnun á tveimur þeirra virkjunarkosta sem hafa einna mest verndunargildi samkvæmt nýrri rammaáætlun. Upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar segir fyrirtækið halda áfram rannsóknum og bíða lokaniðurstöðu rammaáætlunar um verndun og nýtingu. 
Starfstúlka Samkaupa í Búðardal fór úr kjálkalið og fékk áverka á andliti eftir líkamsáraás í fyrrakvöld. Þrátt fyrir að hafa hringt í Neyðarlínuna liðu 45 mínútur áður en hún fékk aðstoð sjúkraliðs. Íbúar í Búðardal eru uggandi vegna þess að enginn starfandi lögreglumaður er í þorpinu. 
Seðlabanki Íslands vill ekki afhenda gögn um útlán bankanna og ætlar að fara með deilumál við Samkeppniseftirlitið fyrir dómstóla. Áfallnar dagsektir vegna málsins nema nú þegar yfir 10 milljónum króna. 
Ekki hefur verið ákveðið hvað verður um núverandi húsnæði Landlæknis þegar embættið flytur í gömlu heilsuverndarstöðina við Barónsstíg um næstu mánaðamót. Leigusamningur ríkisins á gamla staðnum er óuppsegjanlegur. 
Gagnrýni á ofurvald greiningarfyrirækja hefur vaxið fiskur um hrygg í  Evrópu eftir að Standard og Poor's settu Portúgal í ruslflokk. Tillögur hafa komið fram nýtt evrópskt greiningarfyrirtæki.
Fjöldi íslenskra heilbrigðisstarfsmanna í Noregi hefur sjöfaldast frá hruni. Í Noregi er atgervisflótta frá Íslandi líkt við atgervisflótta frá þróunarríkjum til iðnríkja.
Karlalið Vals í knattspyrnu komst í gærkvöld í efsta sæti úrvalsdeildarinnar með því að vinna Þór, 3-0. 
Veðurhorfur: Hæg norðlæg eða breytileg átt. Léttskýjað víðast hvar Sunnan- og Vestan-lands en þokubakkar við Faxaflóa. Skýjað að mestu og súldar eða þokuloft með Norður- og Austur- ströndinni en líkur á stöku síðdegisskúrum Sunnan-lands. Hiti átta til tuttugu stig, svalast í þokulofti, en hlýjast í uppsveitum Suðvestan-lands. Svipað veður á morgun, en heldur svalara Suðvestan-lands.</description>
Hádegisfréttir  06.júlí 2011
      <description>Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi vinstri grænna, segir Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, tala þvert gegn stefnu flokksins í borgarstjórn þegar hann segist vilja halda flugvellinum í Reykjavík um ókomna tíð.
Þrennskonar mælingar sýna að Hekla er tilbúin í gos, segir prófessor í jarðeðlisfræði. Óvenjulegar hreyfingar hafa mælst í jarðskorpunni í kringum Heklu undanfarna daga.
Díoxin í jarðvegi hér á landi er alls staðar undir þeim mörkum sem skapar hættu fyrir almenning og lífríki. Þetta er niðurstaða mælinga Umhverfisstofnunar í kjölfar Funamálsins svokallaða. 
Lögfræðingi Sigurjóns Árnasonar, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans, var birt stefna í gær samkvæmt upplýsingum frá slitastjórn bankans. Stefnan tengist atvikum sem áttu sér stað í aðdraganda falls gamla bankans. 
Drög að nýrri stjórnarskrá fyrir Færeyjar stríðir gegn stjórnarskrá danska ríksins, segir forsætisráðherra Danmerkur. Hann segir að annað hvort verði Færeyingar að draga drögin til baka eða segja sig úr ríkjasambandi við Danmörku.
Formaður Landssambands smábátaeigenda segir sjómenn alltaf rengda þegar kemur að mati á stærð þorskstofnsins. Hann er afar ósáttur við ákvörðun ráðherra um þorskkvóta næsta árs.
Veðurhorfur : Austan og norðaustan þrír til átta metrar á sekúnu. Dálítil væta í fyrstu Sunnan-lands. Léttir víða til í dag, en þokubakkar við Norður- og Austur-ströndina. Norðaustlæg átt á morgun, og víða léttskýjað en síðdegisskúrir Sunnan-til. Hiti tíu til tuttugu stig, hlýjast í uppsveitum Suðvestan-lands.</description>
Hádegisfréttir 05.júlí 2011
      <description>Dæmi eru um að einn sjúklingur hafi leyst út vanabindandi lyf hjá þrjátíuogeinum lækni á nokkrum mánuðum. 700 læknar sem ávísað hafa mikið af vanabindandi lyfjum á tilteknu tímabili fengu bréf frá landlæknisembættinu fyrir hálfum mánuði. 
Danir hafa hert tolleftirlit við landamæri sín. Málið hefur valdið deilum í samskiptum við nágrannaþjóðirnar. 
Gamli Landsbankinn þarf að greiða fjörutíu milljónir í stjórnvaldssekt vegna brota á samkeppnislögum. Bankinn tilkynnti Samkeppniseftirlitinu ekki um samruna sex félaga.
Fjármálaeftirlitið hefur samþykkt reglur um kaupaukakerfi fjármálafyrirtækja. Bónusar til starfsmanna mega ekki vera meiri en sem nemur tuttugu og fimm prósentum af árslaunum.
Rúmlega fertugur Pólverji, sem er búsettur hér á landi og olli alvarlegu umferðarslysi í heimalandi sínu fyrir sex árum, verður framseldur til Póllands.
Hraðamæling úr þyrlu Landhelgisgæslunnar nægði ekki til að sakfella mótorhjólamann sem var ákærður fyrir að hafa ekið á yfir tvö hundruð kílómetra hraða í Svínahrauni í fyrra.
Illa gengur að manna lausar stöður í Langanesbyggð, segir sveitarstjórinn. Þar vantar fólk í fjölmörg störf, þar á meðal í hjúkrun og leikskólakennslu. 
Veðurhorfur: austan og norðaustan þrír til átta metrar, en tíu til fimmtán við suðaustur ströndina í dag. Dálítil væta með köflum á suður og suðausturlandi, þokubakkar við norður og austurströndina, annars víða bjartviðri. Úrkomulítið seint á morgun. Hiti yfirleitt tíu til átján stig, en svalara austast.</description>
Hádegisfréttir 04.júlí 2011
      <description>Kona, sem talin er eiga þátt í dauða nýfædds barns síns, verður útskrifuð af sjúkrahúsi í dag og flutt í fangageymslu. Nítján ár eru frá því sambærilegt mál kom upp hér á landi. 
Rannsóknarnefnd sjóslysa skoðar atvik sem varð við Landeyjahöfn fyrir rúmri viku þegar Herjólfur snerist og stefndi að öðrum varnargarði hafnarinnar. Heimildamenn telja að legið hafi við stórslysi en um þrjú hundruð farþegar voru um borð, flestir ungir fótboltastrákar.
Þúsundir tilkynninga um tjón hafa borist dönskum tryggingafélögum, eftir að gríðarlegt vatnsveður gekk yfir Danmörku í fyrrakvöld. 
Starfsmenn Klafa á Grundartanga hafa frestað um viku verkfalli sem hefjast átti á morgun. Ástæðan er sú að Elkem Ísland hefur keypt Klafa að fullu.
Iðnaðarnefnd kemur ekki saman til að ræða frumvarp um Drekasvæðið fyrr en eftir 10. ágúst. 
Formaður nefndarinnar segir klúður að ekki hafi tekist að afgreiða Drekasvæðisfrumvarpið fyrir þingfrestun. 
 Gull og gersemar að andvirði tvö þúsund milljarða króna haf fundist í fjárhirslum í hofi hindúa í höfuðborg Kerala-ríkis á Indlandi 
Veðurhorfur: Austan og suðaustanátt fimm til tíu metrar. Rigning eða súld sunnanlands og með austurströndinni, en annars úrkomulítið. Norðaustan þrír til tíu á morgun með vætu á suðausturlandi og á austfjörðum, annars skýjað. Bjart veður suðvestanlands, en líkur á síðdegisskúrum. Hiti sjö til nítján stig, svalast úti með austurströndinni en hlýjast á norðurlandi, en suðvestanlands á morgun.</description>
Hádegisfréttir 3.júlí 2011
      <description>Nýfætt barn fannst látið í ruslageymslu við hótel í Reykjavík síðdegis í gær.  Móðir barnsins og unnusti hennar eru í haldi lögreglu vegna málsins.  
Sjö ára stúlka var sótt með sjúkraflugi til Grænlands í gær, með skotsár á kvið. Hún var í lífshættu í gær, en er nú á batavegi.
Tilkynnt var um nauðgun á mótssvæði landsmóts hestamanna í Skagafirði í morgun. 
Gríðarlegt úrhelli gerði í Kaupmannahöfn í gærkvöld. Á tveimur klukkustundum rigndi álíka og á tveimur mánuðum að meðaltali. Samgöngur fóru úr skorðum.
Reykjavíkurborg hyggst nota fjármagn sitt til þess að koma fólki af fjárhagsaðstoð og í vinnu fremur en að hækka þessa neyðaraðstoð til fátækra borgarbúa. 
Útgönguspár í Taílandi sýna að stjórnarandstaðan hafi unnið stórsigur í þingkosningum í dag. Stjórnarliðar ætla ekki að játa sig sigraða fyrr en opinber úrslit liggja fyrir.
Hafið er mat á umhverfisáhrifum vegna Búlandsvirkjunar í Skaftárhreppi sem fyrirtækið Suðurorka stefnir á að reisa. Hin fyrirhugaða vatnsaflsvirkjun mun framleiða allt að 1300 gígawattsstundir á ári.
Formaður Framsóknarflokksins fagnar góðri útkomu í þjóðarpúlsi Gallup þar sem flokkurinn mælist nú með átján prósenta fylgi. Formaður Vinstri grænna hefur engar áhyggjur þótt að framsókn mælist nú stærri en VG.  
Karlalið Þórs í knattspyrnu varð í gær fyrsta liðið til að komast í undanúrslit í bikarkeppni karla. Liðið vann Grindavík í framlengdum leik, 2-1</description>
Hádegisfréttir 2.júlí 2011
      <description>Guðmundur í  Brimi segir að skuldir félaga hans við Landsbankann vegna hlutabréfakaupa hafi verið felldar niður, þar sem bankinn hafi stofnað til þeirra til kaupa á falsverðmætum. Hlutabréfaverð hafi verið of hátt skráð. 
Maður var handtekinn á goslokahátíð í Vestmannaeyjum í nótt fyrir að slá annan með hafnaboltakylfu. Þá var einn handtekinn fyrir að hóta fólki með hnífi. Bæjarhátíðir um landið fóru þó víðast hvar vel fram. 
Gaddafi, einvaldur í Líbíu, hótar því að ráðast á Evrópu, láti Atlantshafsbandalagið ekki af árásum á landið. -  Samtök Afríkuríkja ætla ekki að eiga þátt í að taka Gaddafi höndum.
Mikil nýliðun hjá fyrirtækinu Birk, sem þjónustar vélar Iceland Express, hefur valdið töfum á áætlun flugfélagsins að undanförnu. Um sjötíu manns hafa verið ráðnir til Birk undanfarnar vikur.
Fjárhagsaðstoð borgarinnar til fátækra verður ekki hækkuð til samræmis við aðrar bætur þrátt fyrir tilmæli velferðarráðherra. Tillögu vinstri grænna þar um hefur verið hafnað. 
Mikill fögnuður ríkir í Mónakó, þar sem þjóðhöfðinginn, Albert prins annar, gekk í gær að eiga heitkonu sína, Charlene Wittstock. Hjónabandið hlýtur blessun kirkjunnar í dag. RÚV verður með beina útsendingu frá athöfninni.
Fylkir, KR og Valur komust í gærkvöld í undanúrslit bikarkeppni kvenna í knattspyrnu.</description>
Hádegisfréttir 01.júlí 2011
      <description>Málarekstur gegn Dominique Strauss-Kahn er að líkindum í uppnámi. Bandarískir fjölmiðlar segja saksóknara efast um trúverðugleika herbergisþernu sem sakar hann um kynferðisbrot gegn sér.
Verð á kjöti hefur hækkað og verðmunur milli verslana hefur aukist eftir að óheimilt varð að forverðmerkja vörurnar hjá framleiðendum. Þetta leiðir ný verðkönnun Alþýðusambandsins í ljós. 
Laugavegurinn í Reykjavík verður lokaður fyrir bílaumferð frá og með deginum í dag. Margir verslunareigendur eru ósáttir við lokunina, og telja hana standa verslun við götuna fyrir þrifum.
Formaður íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur segir að pólitískur vilji sé fyrir því hjá borgaryfirvöldum að binda fjárstyrki til íþróttafélaga því skilyrði að jafnréttismál séu í lagi.
Framkvæmdastjóri KSÍ hefur kært Guðjón Þórðarson, þjálfara BÍ/Bolungarvíkur til aganefndar sambandsins fyrir ummæli sem hann lét falla á dögunum. Guðjón velti þar fyrir sér hvort dómurum landsins líki ekki litarhaft framherja liðsins og fái þar af leiðandi slæma meðferð hjá þeim.
Lundaveiði hefst í Grímsey í dag. Margar pantanir hafa borist frá Vestmannaeyjum, en þar er bannað að veiða lundann í ár. 
Veðurhorfur: Suðaustan- og austanátt, fimm til þrettán metrar á sekúndu sunnantil og víða rigning, en heldur hvassari við ströndina. Annars hægari og bjartviðri fram eftir degi. Sums staðar dálítil rigning norðantil í kvöld. Austlæg átt, fimm til tíu á morgun og rigning með köflum, en úrkomuminna norðan- og norðvestanlands. Hiti tíu til sautján stig, hlýjast norðanlands.</description>
Hádegisfréttir 30.júní 2011
      <description>Samningar tókust á milli flugmanna og Icelandair í morgun eftir langa samningalotu. Yfirvinnubanni hefur verið frestað.
Innanríkisráðherra vill efla kynferðisbrotadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu svo hún geti verið ráðgefandi í málum sem koma upp utan höfuðborgarsvæðisins. 
Það fyrirkomulag sem nú er hjá ráðuneytunum við kaup á sérfræðiþjónustu er ekki nógu gagnstætt að mati Ríkisendurskoðunar, sem vill að fjármálaráðherra setji reglur um hvenær megi nota launakerfi ríkisins til að greiða fyrir slíka þjónustu.  
Eftirlitsstofnun EFTA segir að Ísland og Noregur brjóti á rétti farandlaunafólks til atvinnuleysisbóta. 
Yfirmaður Eftirlitsstofnunar EFTA segir að umfjöllun um mál tengd íslenska bankahruninu hafi tekið mikinn tíma í stofnuninni. Hann segir að æskilegt hefði verið að meira samráð hefði verið viðhaft við stofnunina frá byrjun af Íslands hálfu.
Tveir Litháar sem eiga eftir að afplána sex mánaða fangelsisdóm fyrir þjófnað, reyndu að komast úr landi með ferjunni Norrænu í morgun.  Annar átti að hefja afplánun fyrir tæpu ári en gat það ekki vegna plássleysis í íslenskum fangelsum.
Opinberir starfsmenn í Bretlandi mótmæla í dag fyrirhuguðum breytingum á eftirlaunalögum. 750 þúsund hafa lagt niður störf og fjölmennt er í mótmælagöngum.  
Framkvæmdastjóri Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga segir mikilvægt  að  stofnaður verði hundrað og tuttugu milljarða króna sjóður um stórframkvæmdir í samgöngumálum. Ekkert miði áfram nema auknu fé verði varið í málaflokkinn.
Atvinnurekendur í Svíþjóð vilja lækka styrki til hugvísinda og listnáms. Slíkt nám skapi litlar tekjur og sé ávísun á láglaunastörf í framtíðinni.
Formaður samninganefndar Reykjavíkurborgar vísar á bug fullyrðingum sjúkraliða um að borgin komi í veg fyrir kjarasamninga. Formaður sjúkraliðafélagsins segir að leiðrétta þurfi launamun milli ríkis og borgar áður en hægt sé að hefja eiginlegar kjaraviðræður.</description>
Hádegisfréttir 29.júní 2011
      <description>Sakborningar í Exeter Holding-málinu svokallaða voru sýknaðir í fjölskipuðum Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Einn dómaranna vildi sakfella  þá. 
Forstjóri Barnaverndarstofu segir óviðunandi að barnaníðingur hafi gengið laus í heilt ár á meðan mál hans var rannsakað. Hann vill að mál sem þessi verði öll á hendi kynferðisbrotadeildar lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.
Þúsundir Grikkja mótmæla nú niðurskurðaráformum grísku ríkisstjórnarinnar sem kosið verður um í dag. Íslensk kona í Aþenu segir að táragasi sé beitt miskunnarlaust gegn mótmælendum.
Fyrrverandi samgönguráðherra og þingmaður Samfylkingarinnar, Kristján Möller, segir dapurlegt að ríkisstjórnin skuli ekki setja meiri kraft í samgöngumálin. Málflutningur innanríkisráðherra sé gamaldags og honum sé nær að reyna að leysa úr flækjum en að auka þær. 
Framtíðarsýn Landsvirkjunar sem gefin var út í skýrslu í gær kemur á versta tíma, segir formaður Landverndar.  Hún sé eins og olía á eld þegar umræða um vernd eða nýtingu samkvæmt rammaáætlun sé að fara á flug. 
Hrina verðhækkana er framundan segir hagfræðingur Alþýðusambandsins. Hækkandi matar- og eldsneytisverð á alþjóðamarkaði ýti undir verðbólguna hér á landi.</description>
Hádegisfréttir 28.júní 2011
      <description>Karlmaður í Vestmannaeyjum hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald fyrir að nauðga 8 ára stjúpdóttur sinni og misnota tvær aðrar stúlkur. Hann gekk laus í 9 mánuði áður en ríkissaksóknari krafðist gæsluvarðhalds. 
Landsvirkjun gerir ráð fyrir að orkuframleiðsla fyrirtækisins, verði nær tvöfalt meiri árið 2021 en hún er í dag.  Þar með aukist verulega, getan til að greiða arð í ríkissjóð. 
Óháð rannsóknarnefnd á að rannsaka áskakanir um kynferðislegt ofbeldi innan kaþólsku kirkjunnar hér á landi. Biskup kaþólskra biður þá afsökunar sem kunna að hafa orðið fyrir kynferðisbrotum af hálfu presta eða starfsmanna kirkjunnar. 
Á fjórða tug ferðamanna hefur látist við útivist og afþreyingu hér á landi frá árinu 2000. Spænskur karlmaður lést við íshellinn í Kverkfjöllum síðdegis í gær, eftir að ís hrundi á hann.
Þúsundir mótmælenda hafa safnast saman við þinghúsið í Aþenu og sífellt bætist í hópinn. Tveggja sólarhringa allsherjarverkfall hófst þar í morgun. 
Kjarr- og skógareldar brenna í grennd við Los Alamos kjarnorkurannsóknarstöðina í Nýju-Mexíkó. Vandlega er fylgst með því hvort óeðlilega mikið af geislavirkum efnum berist út í loftið.
Þriðjungur þingmanna og fimmtán prósent almennra kjósenda geta krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um nýsamþykkt lög, samkvæmt hugmyndum sem stjórnlagaráð hefur til umfjöllunar.
Veðurhorfur: Norðan- og norðaustan fimm til fimmtán metrar á sekúndu. Rigning með köflum um norðan- og austanvert landið, annars skýjað með köflum eða bjartviðri. Dregur smám saman úr vindi í dag. Heldur hægari norðan- og norðvestanátt á morgun, og úrkomuminna norðaustantil, annars skýjað með köflum en bjartviðri á Suðurlandi. Hiti fjögur til sextán stig, hlýjast suðvestantil.</description>
Hádegisfréttir 27.júní 2011
      <description>Aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið hófust í morgun. Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, vill hraða viðræðunum og taka fyrir alla kaflana þrjátíu og fimm sem ræða þarf - á næstu tólf mánuðum. 
Evrópusambandið undirbýr nýjar reglur sem gera ráð fyrir eftirlitsmyndavélum í öllum fiskiskipum ESB-ríkjanna. Tilgangurinn er að draga úr brottkasti sem nemur hundruðum þúsunda tonna á hverju ári.
Alþjóða glæpadómstóllinn gaf í morgun út handtökuskipan á hendur Gaddafí einræðisherra Líbíu, syni hans og yfirmanni leyniþjónustunnar.
Samningafundur í kjaradeilu flugmanna og Icelandair hefur verið boðaður í dag hjá ríkissáttasemjara. Iðnaðarráðherra segir ótímabært að ræða lög á aðgerðir flugmanna.
Verðbólga mælist nú 4,2% en verðlagsþróun undanfarinna mánaða jafngildir ríflega 9% ársverðbólgu. Forseti Alþýðusambandsins segir þessa þróun geta stefnt nýgerðum kjarasamningum í uppnám.
Forystumenn kaþólsku kirkjunnar hér á landi ræða nú möguleikann á því að setja á laggirnar rannsóknarnefnd til að fjalla um meint kynferðisofbeldi starfsmanna kirkjunnar, meðal annars í Landakotsskóla, á síðustu öld. 
Fjórir af nánustu samstarfsmönnum Pol Pots fyrrverandi einræðisherra Kambódíu voru leiddir fyrir stríðsglæpadómstól í morgun. Málinu gegn þeim hefur verið jafnað saman við Nürnberg réttarhöldin.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar gerir ráð fyrir því að gengið verði frá lóðakaupum vegna fyrirhugaðrar kísilverksmiðju í Helguvík í lok mánaðarins eins og áætlanir gerðu ráð fyrir, þótt töf hafi orðið á fjármögnun verkefnisins.</description>
Hádegisfréttir 26. júní 2011
      <description>Algert hrun virðist í kríuvarpi á Snæfellsnesi. Ekki finnst eitt einasta hreiður á stórum svæðum þar sem áður verptu þúsundir fuglar. Annar staðar á landinu er varp líka lélegt.
Fimmti hver Pólverji búsettur hér á landi var atvinnulaus í fyrra, en  fyrir hrun var nánast ekkert atvinnuleysi meðal Pólverja. 
Icelandair hefur aflýst fleiri flugferðum en fyrirhugað var vegna yfirvinnubanns flugmanna.
Eigendum jarðarinnar Melaleitis í Hvalfjarðarsveita hafa verið dæmdar sex og hálfrar milljóna króna bætur vegna þess að veitt var leyfi fyrir stóru svínabúi á næstu jörð.
Mikið tjón varð í stórbruna í byggingu í Osló í gærkvöldi. Íslendingur sem átti fyrirtæki í byggingunni segir allt vera ónýtt.
Stjórnvöld í Venesúela neita því að Hugo Chavez, forseti landsins, liggi alvarlega veikur á sjúkrahúsi á Kúbu. Lítið hefur spurst til Chavez síðan hann veiktist skyndilega fyrr í þessum mánuði og þurfti að gangast undir skurðaðgerð.
Veðurhorfur: norðaustan fimm til tíu metrar, en tíu til fimmtán við suðaustur ströndina í dag og norðvestanlands og við vesturströndina á morgun. Skýjað og þurrt að mestu, en rigning með köflum sunnan, suðaustanlands og norðaustan lands í kvöld. Þokubakkar á annesjum norðantil. Rigning austantil á landinu á morgun, en annars úrkomulítið og bjartviðri suðvsestan lands. Hiti átta til sautján stig, hlýjast í uppsveitum suðvestan lands , en kaldara við ströndina norðan- og austantil. Kólnar norðantil á morgun.</description>
Hádegisfréttir 25. júní 2011
      <description>Yfirlýsing iðnaðarráðherra um möguleg lög á aðgerðir flugmanna hefur hleypt illu blóði í samningaviðræðurnar. Þetta segir framkvæmdastjóri Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Hann segir yfirlýsinguna hafa valdið því að viðsemjendur þeirra bökkuðu frá samningaborðinu.
Tugir fórust og allt að hundrað særðust í sjálfsmorðsárás á sjúkrahús í Afganistan í morgun.
Fjármálaráðherra segir hækkandi olíuverð taka í fyrir landsbyggðina sem finni fyrir því í hærri flutningskostnaði. Til skoðunnar sé að grípa til sérstakra aðgerða.
Búast má við hrinu gjaldþrota hjá dönskum bönkum á næstunni, segir prófessor við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn. Efnahagskreppan muni ná nýjum hæðum.
Strandveiðar hefjast á ný eftir helgina á svæði A, Vesturlandi og Vestfjörðum, en þær voru stöðvaðar fyrr í mánuðinum. Kvóti sumarsins var aukinn um fjörtíu prósent í gær. 
Veðurhorfur: norðlæg eða breytileg átt, þrír til átta metrar. Skýjað með köflum sunnan og vestanlands og
skúrir einkum síðdegis. Annars skýjað en úrkomulítið, en birtir víða til í innsveitum norðvestanlands seinnipartinn. Ákveðin norðaustanátt á morgun, með rigningu suðaustanlands, en annars þurrt að mestu. Hiti fjögur til sex stig.</description>
Hádegisfréttir 24.júní 2011
      <description>Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra var í fyrrahaust greint frá kynferðisbrotum innan kaþólsku kirkjunnar. Hann lagði þá til að leitað yrði til lögreglunnar og óskaði eftir fundi með kaþólska biskupnum. 
Kaþólska kirkjan hér á landi fékk árið 1963 ábendingu um kynferðisbrot skólastjóra Landakotsskóla, en ekkert var gert í málinu.Rúðubrot í bústað kaþólska biskupsins í nótt tengjast umfjöllun fjölmiðla um málið. 
Hljóðið er þungt í flugmönnum Icelandair. Þeir telja ólíklegt að samningar náist í dag og því stefnir í yfirvinnubann sem að öllum líkindum mun hafa áhrif á millilandaflug um helgina.
Sprengingar hefjast aftur á þriðjudaginn við snjóflóðavarnagarðinn í Bolungarvík, með breyttu verklagi. 
Stjórnarandstæðingar í Sýrlandi búast við miklum mannfjölda á útifundum eftir föstudagsbænir í dag. Evrópusambandið fordæmir voðaverk Sýrlandsstjórnar og hefur hert refsiaðgerðir gegn ráðamönnum.
Gildistöku nýrra reglna Reykjavíkurborgar um gjaldtöku vegna sorptunna sem standa meira en fimmtán metra frá götu hefur verið frestað í þriðja sinn. Varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks segir málið hafa verið vanhugsað frá byrjun.
Einum af hönnuðum fuglshreiðursins í Peking, Ólympíuleikvangsins, var sleppt úr fangelsi á miðvikudaginn gegn tryggingu. Sakargiftir á hendur listamanninum hafa ekki verið tilgreindar.
Veðurhorfur: Norðlæg eða breytileg átt, þrír til átta metrar. Skýjað og dálítil væta norðaustanlands, en annars skýjað með köflum og skúrir suðvestanlands, einkum síðdegis. Svipað veður á morgun, en birtir þó víða til í innsveitum norðurlands seinnipartinn. Hiti fimm til fimmtán stig, hlýjast suðvestanlands.</description>
Hádegisfréttir 23.júní 2011
      <description>Grjóti rigndi yfir stóran hluta Bolungarvíkur um hádegið, en fyrir ofan bæinn er verið að sprengja fyrir snjóflóðavarnargarði. Íbúðarhús skemmdust, en ekki er vitað til þess að fólk hafi meiðst. 
Fasteignamat á íbúðarhúsnæði hækkar að meðaltali um níu prósent á næsta ári en það gæti lækkað í nýjum hverfum á höfuðborgarsvæðinu, samkvæmt nýjum útreikningum Þjóðskrár Íslands. Fasteignamat hækkar mest á Norðurlandi vestra. 
Flokkun virkjunarkosta hefur verið færð frá verkefnisstjórn rammaáætlunar til nefndar þar sem náttúruverndarsamtök eiga engan fulltrúa, segir fulltrúi í verkefnisstjórninni
Talsmaður Icelandair segir að komi til yfirvinnubanns flugmanna á hádegi á morgun muni það raska flugi og hafa áhrif mjög fljótt. Lítið hefur þokast í kjaraviðræðunum.
Mótmæli gegn stjórn Assads í Sýrlandi hafa breiðst út. Skothríð heyrðist frá landamærum Sýrlands og Tyrklands í morgun. Hundruð Sýrlendinga komust yfir til Tyrklands.
Bændur á Jökuldal og víðar á Héraði gætu þurft að leita á náðir Bjargráðasjóðs í haust vegna kals í túnum. Á sumum bæjum er næstum helmingur túna ónýtur.
Bandaríkjaforseti gekk gegn vilja hershöfðingja sinna þegar hann ákvað hvernig standa ætti að fækkun hermanna í Afganistan - bandarískur almenningur er hinsvegar langþreyttur á stríðinu.</description>
Hádegisfréttir 22.júní 2011
      <itunes:duration>25:00</itunes:duration>
      <description>Fjórðungur fyrirtækja hyggst fækka starfsfólki á næstu sex mánuðum samkvæmt nýrri könnun.  Átta af hverjum tíu stjórnendum stærstu fyrirtækja landsins telja aðstæður í atvinnulífinu slæmar. 
Fjármálaráðherra segir að tillögur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um eitt virðisaukaskattþrep verði skoðaðar. Fulltrúar OECD taka undir mat sjóðsins um að hækka eigi skatt á nauðsynjavörur.
Gríska þingið hefur samþykkt stuðning við nýja ríkisstjórn Papandreous, forsætisráðherra. Þingið þarf að samþykkja áform um niðurskurð svo fjárhagsaðstoð fáist frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. 
Yfirvinnubann flugmanna Icelandair brestur á eftir tvo daga náist samningar ekki fyrir þann tíma. Flugmenn leggja áherslu á að draga verði úr árstíðabundnum sveiflum í ráðningum hjá flugfélaginu.
Korthafar þurfa í framtíðinni að skrifa undir lánasamning ef þeir hyggjast fara með kreditkortareikninga sína í greiðsludreifingu. Þetta segir Neytendastofa. Kredikort hf. ætlar að kæra niðurstöðuna. 
Olíuflekk rak á land við Garðskaga í gærkvöldi og litaði steina í fjörunni. Lífríkinu er ekki ógnað, segir deildarstjóri hjá Umhverfisstofnun.</description>
Hádegisfréttir 21.júní 2011
      <description>Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, varar stjórnvöld við því að breyta kvótakerfinu en leggur til að auðlindagjald verði hækkað. 
Meirihluti sjávarútvegsnefndar Alþingis vill láta gera viðamikla úttekt á samfélagslegum áhrifum kvótakerfisins. Niðurstöður skulu liggja fyrir í lok september. 
Fái gríska stjórnin ekki stuðning í atkvæðagreiðslu í þinginu í kvöld, fá Grikkir ekki hluta nauðsynlegs láns frá evrulöndunum og Alþjóða gjaldeyrissjóðnum.  Í framhaldinu gæti orðið greiðslufall víða í bankaheiminum.
Ríkislögmaður hafnar bótakröfu Önnu Kristínar Ólafsdóttur vegna skrifstofustjórastarfs í forsætisráðuneytinu. Anna Kristín segir, að taki forsætisráðuneytið ekki mark á kærunefnd jafnréttismála, sé réttast að leggja nefndina niður. Hún undirbýr málssókn.
Miklu fleiri störf skapast með stórátaki í viðgerðum og viðhaldi á vegum en fáeinum stórframkvæmdum. Þetta er niðurstaða Félags íslenskra bifreiðaeigenda, sem farið hefur yfir málið með evrópskum systursamtökum.
Sýrlandsforseti hefur veitt stjórnarandstæðingum almenna sakaruppgjöf fyrir alla glæpi sem framdir hafa verið fram til dagsins í dag. Héðan í frá verði hins vegar tekið á andófsmönnum af fullri hörku.
Almenningur getur komið með hugmyndir um þróun þjóðgarðsins á Þingvöllum í keppni sem Þingvallanefnd efnir til. Leitað er eftir bæði stórum og smáum hugmyndum.
Seyðfirðingar vilja hefja á ný viðræður við Framtakssjóð Íslands um að hann kaupi hlut í væntanlegri álkaplaverksmiðju á Seyðisfirði. Forsendur hafi breyst frá því að sjóðurinn hafnaði þátttöku í verkefninu.</description>
Hádegisfrétti 20. júní 2011
      <description>Efnahags- og viðskiptaráðherra segir að breytingar á fyrirkomulagi sjávarútvegs verði að byggjast á hagkvæmni en ekki byggðasjónarmiðum. Hann vill frekar að veiðileyfagjald verði hækkað, en að dregið verði úr arðsemi.  
Fjármálaráðherrar evruríkja ákváðu í gærkvöld að fresta útborgun láns til Grikkja. Ráðherrarnir vilja bíða átekta og fylgjast með pólitískri þróun í landinu.
Útlit er fyrir, að mati formanns Samtaka atvinnulífsins, að kjarasamningurinn við Alþýðusambandið gildi aðeins fram yfir næstu áramót, en ekki til þriggja ára eins og stefnt var að. Ákvörðun þarf að liggja fyrir annað kvöld. 
Ferðaþjónustan segist standa frammi fyrir stórskaða vegna þess að flugmenn Icelandair hóta að trufla flug til og frá landinu.
Forstjóri Útlendingastofnunar segir það enga lausn á vanda hælisleitenda að flytja aðstöðu þeirra frá Reykjnesbæ til Reykjavíkur eins og borgarstjóri, Rauði krossinn og Mannréttindaskrifstofa Íslands vilja. Vandinn sé langur málsmeðferðartími. 
Fyrsti laxinn sem veiddur er í Elliðaánum í sumar fékkst á maðk.  Hann kom á land á áttunda tímanum í morgun og reyndist vera fimm pund. Það var Reykvíkingur ársins, Gunnlaugur Sigurðsson, sem veiddi laxinn. 
Veðurhorfur: Norðaustan þrír til tíu metrar en hægari breytileg átt eða hafgola Sunnanlands. Víða bjart veður á norðvestur og vesturlandi, annars skýjað með köflum og horfur á skúrum sunnantil, einkum síðdegis. Hiti fjögur til sextán stig, hlýjast vestanlands en kaldast við norður og austur ströndina. Hætt við vægu næturfrosti í innsveitum norðaustanlands.</description>
Hádegisfréttir 19. júní 2011
      <itunes:author>Aðalbjörn Sigurðsson</itunes:author>
      <description>Innanríkisráðherra segir aðila vinnumarkaðarins ekki hafa tilefni til að segja sig frá kjarasamningum og hefur boðað fulltrúa þeirra til fundar síðar í dag.
Juncker, forsætisráðherra Lúxemborgar óttast að skuldavandi Grikkja geti teflt efnahagi fimm evruríkja í verulega tvísýnu. Umræður eru hafnar í gríska þinginu um vantraust á ríkisstjórnina.
Formaður sjávarútvegs og landbúnaðarnefndar Alþingis  segir hagfræði ekki ráða lagagerð um sjávarútvegsmál. Taka þurfi byggðasjónarmið inn í myndina. 
Tölvuþrjótar hafa komist yfir persónuupplýsingar meira en einnar milljónar viðskiptavina japanska leikjaframleiðandans Sega. Ítrekað hefur verið ráðist gegn leikjafyrirtækjum að undanförnu.
Fjárhagslegir hagsmunir eru tekinir fram yfir öryggi flugfarþega, segir fulltrúi atvinnuflugmanna hér á landi um í fyrirhugaðar reglur Evrópusambandsins um hvíldartíma flugmanna.
Borgaryfirvöld standa sig ekki í að veita fátækum íbúum Reykjavíkur aðstoð, segir varaborgarfulltrúi Vinstri Grænna. Hann bendir á að minnihluti skjólstæðinga borgarinnar fái fullt framlag. 
Kvennréttindadagurinn er haldinn hátíðlegur í dag, 19. júni. Fjölþætt hátíðardagskrá verður í boði í tilefnidagsins.</description>
Hádegisfréttir 18. júní 2011
      <itunes:author>Aðalbjörn Sigurðsson</itunes:author>
      <description>Vinnubrögðum ríkisstjórnarinnar er gefin falleinkunn í nýrri hagfræðilegra úttekt á stóra kvótafrumvarpinu, að mati þingmanns Framsóknarflokksins. Hann vill að frumvarpinu verði hent.
Flugmenn hjá Icelandair hafa samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða að fara í yfirvinnubann frá og með næsta föstudegi til að knýja á um kjarabætur. 
Enn er deilt um lokun Umhverfisstofnunar fyrir umferð um hluta Dyrhólaeyjar. Síðan á fimmtudag hefur hlið á veginum út í Lágey tvisvar verið rifið niður og sett jafnharðan upp aftur. 
Obama Bandaríkjaforseti gekk gegn ráðleggingum embættismanna þegar hann ákvað að halda áfram þátttöku í hernaðinum í Líbíu án þess að sækjast eftir samþykki þingsins. 
Biskup kaþólsku kirkjunnar á Íslandi hafnar ásökunum um að hann hafi þegið yfir kynferðisbrotamálum innan kirkjunnar. Hann staðfestir að slík mál hafi komið upp, og fullyrðir að brugðist hafi verið við með viðeigandi hætti. 
Djúpið eftir Jón Atla Jónasson hlaut í gær Norrænu útvarpsleikhúsverðlaunin, en verkið var í fyrradag einnig valið útvarpsleikrit ársins á Grímunni. 
Íslenska undir 21 árs landsliðið í knattspyrnu á enn veika von um að komast áfram í undanúrslitum á Evrópumótinu í Danmörku en liðið mætir Dönum í kvöld.</description>
Hádegisfréttir 17. júní 2011
      <itunes:duration>19:55</itunes:duration>
      <description>Mælt er eindregið gegn takmörkunum á framsali veiðiheimilda í nýrri greinagerð sem sérfræðihópur vann fyrir sjávarútvegsráðherra  um frumvarp um breytingar á fiskveiðistjórnun. Þeir telja lögin skaða stöðu sjávarútvegsfyrirtækja. 
Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, hefur skipað nýjan fjármálaráðherra. Hann vonast til að það auðveldi honum að koma í gegn afar óvinsælum niðurskurðaráformum grísku stjórnarinnar. 
Minningu Jóns Sigurðssonar verður vart meiri sómi sýndur en með því að láta draum hans um íslenska stjórnarskrá rætast. Þetta segir forsætisráðherra.
Öll yfirstjórn kirkjunnar verður að stíga til hliðar vegna máttlausra viðbragða við skýrslu rannsóknarnefndar kirkjuþings. Þetta segir Örn Bárður Jónsson sóknarprestur. 
Rúm hálf milljón Kínverja hefur flúið heimili sín í mið- og suðurhluta landsins eftir mestu flóð sem geisað hafa á svæðinu í rúma hálfa öld.
Hólmar Örn Eyjólfsson, leikmaður undir tuttugu og eins árs landsliðsins í knattspyrnu, hefur komist að samkomulagi við þýska félagið Bochum um að leika með því. 
Veðurhorfur: Norðaustanátt, þrír til átta metrar, en átta til þrettán norðvestanlands og við suðausturströndina. Dálítil rigning eða súld með köflum. Líkur á þokulofti við norðurströndina. Norðaustlæg átt, þrír til tíu á morgun, hvassast norðvestantil. Skúrir syðst, en annars víða skýjað með köflum. Hiti fjögur til sextán stig að deginum, hlýjast á suðvestanverðu landinu.</description>
Hádegisfrétti 16. júní 2011
Hádegisfréttir 15. júní 2011
      <description>Slaki í ríkisfjármálum og aukin verðbólga hafa aukið líkur á því að Seðlabankinn hækki stýrivexti sína á næstunni. Þetta kom fram í morgun þegar bankinn tilkynnti að stýrivextir yrðu óbreyttir enn um sinn.
Umtalsvert fleiri sögðu sig úr þjóðkirkjunni í gær en gengur og gerist. Þetta segir forstjóri Þjóðskrár. Formaður fagráðs um kynferðisbrot, sem starfar á vegum innanríkisráðuneytisins, segir mikilvægt að þjóðkirkjan vandi sig og niðurstöður rannsóknarskýrslu falli ekki í gleymsku. 
Formaður menntamálanefndar Alþingis segir óeðlilegt að stjórnendur framhaldsskóla leyfi fulltrúum erlendra herskóla að kynna starfsemi sína fyrir nemendum. Slíkt sé komið út fyrir eðlileg mörk. þau mörk sem eðlileg geti talist. 
Tugþúsundir mótmæla nú niðurskurðaráformum grísku stjórnarinnar fyrir framan þinghúsið í Aþenu. Til átaka  hefur komið við lögreglu sem hefur beitt táragasi gegn mótmælendum. 
Póst- og fjarskiptastofnun vinnur að því að setja viðbragðshóp á laggirnar til að bregðast við hugsanlegum tölvuárásum. Í gær slökkti tölvufyrirtækið CCP á tölvuneti sínu í sex klukkustundir í kjölfar árása aðgerðarsinna í netheimum. Viðbragðshópurinn myndi veita aðstoð og ráðgjöf  í slíkum tilvikum.
Alþingi hefur samþykkt tillögu um prófessorsstöðu við Háskóla Íslands tengda nafni Jóns Sigurðssonar forseta í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli Jóns þann 17. júní næstkomandi. Þá hefur aldarafmælissjóður Háskóla Íslands verið stofnaður með 150 milljóna króna framlagi úr ríkissjóði. 
Ný heimildarmynd sem sýnd var í Bretlandi í gær sýnir meinta stríðsglæpi í stríðinu á Sri Lanka. Bretar krefjast rannsóknar á málinu, en Sri-Lankamenn segja myndbrotin fölsuð.
Stjórnlagaráð ræðir nú tillögu um að ný kjördæmamörk miðist við starfssvæði landshlutasamtaka sveitarfélaga. Varaformaður stjórnlagaráðs telur að það geri kjördæmin að betri heild og auki samvinnu þingmanna og sveitastjórnarmanna.</description>
Hádegisfréttir 14. júní 2011
      <description>Karl Sigurbjörnsson biskup, ætlar ekki að segja af sér embætti en harmar þau mistök sem hann gerði í kjölfar þess að Ólafur Skúlason var sakaður um kynferðisbrot.  Rætt er á vettvangi kirkjunnar að kjörtímabil biskups verði ekki lengra en 12 ár.  Karl Sigurbjörnsson hefur verið biskup í 13 ár. 
Sigríður Guðmarsdóttir, sóknarprestur í Grafarholtsprestakalli segir biskup óheppilegan til að aga presta sem gert hafi mistök. Hann eigi því að segja af sér.  
Norskir herinn er sakaður um að fylla í raðir hermanna með íslenskum málaliðum og senda þá til Afganistans. Vitað er um tíu Íslendingar í norska hernum. 
 Tvö til þrjú prósent unglinga á Íslandi eiga við verulegan vanda að stríða vegna þátttöku í peningaspilum segir dósent sem hefur rannsakað spilafíkn á Íslandi. Peningaspil á netinu hafi margfaldast á síðustu árum. 
Stjórnarmaður í samtökum stofnfjárhafa í Byr vill að héraðsdómur víki slitastjórn frá störfum vegna sölu á bankanum.
Leikskólakennarar hafa samþykkt að boða til verkfalls í haust náist ekki samningar fyrir 22 ágúst. 
Farþegar Herjólfs þurftu að bíða í tæplega þrjá tíma í morgun eftir því að ferjan sigldi til til Landeyjahafnar. Gert var við vél skipsins í nótt.
Tónverk eftir Daníel Bjarnason var valið í úrvalsflokk Alþjóðlega tónskáldaþingsins í Vínarborg.  Verkið verður í kjölfarið leikið í dagskrá um þrjátíu útvarpsstöðva vítt og breitt um heiminn.
Veðurhorfur: Norðaustanátt, átta til þrettán metrar norðvestantil, en hægari annars staðar. Skýjað og súld með köflum, en hvessir heldur á morgun og skýjað með köflum suðvestan og vestanlands. Hiti fimm til fimmtán stig, hlýjast suðvestanlands.</description>
Hádegisfréttir 13. júní 2011
      <description>Séra Baldur Kristjánsson sem var biskupsritari í tíð Ólafs Skúlasonar hyggst ekki taka sæti á kirkjuþingi á morgun. Hann viðurkennir að hafa gert mistök og segir ekki rétt að sitja þingið. 
Stjórnarflokkurinn í Tyrklandi var hársbreidd frá því að fá hreinan meirihluta í þingkosningunum sem fram fóru í gær. Erdogan Erdúan forsætisráðherra þarf því að reiða sig á aðra flokka til að gera boðaðar breytingar á stjórnarskrá.
Þingmaður VG segir Sjálfstæðisflokkinn berjast gegn öllum breytingum á kvótakerfinu því þær ógni fjárhagslegri stöðu flokksins. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir slíkan málflutning fáránlega þvælu. 
Hótel og aðrir gististaðir þurfa að greiða 100 krónur af hverri seldri gistinótt samkvæmt nýjum lögum. Samtök ferðaþjónustunnar hafa áhyggjur af því að peningarnir skili sér ekki allir til ferðaþjónustunnar.
Baráttufólk fyrir mannréttindum í Sýrlandi hefur brugðist illa við fréttum af því að samkynhneigð kona sem hélt úti vinsælli bloggsíðu um ástandið í landinu var í raun karlkyns nemandi við Edinborgarháskóla. 
Dallas Mavericks varð í gærkvöld NBA meistari í körfubolta í fyrsta sinn þegar liðið vann Miami Heat í sjötta úrslitaleik liðanna.</description>
Hádegisfréttir 12. júní 2011
      <description>Strandveiðikvóti eykst verulega strax í sumar en breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfinu er frestað samkvæmt minna kvótafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem samþykkt var í gærkvöldi. Formaður LÍÚ segir að þar með gefist svigrúm til samvinnu allra hagsmunaaðila.
Sýrlenskir ríkisfjölmiðlar segja harða bardaga geisa í bænum Jisr al-Shughour í norðurhluta landsins. Hersveitir héldu inn í bæinn í morgun eftir nokkurra daga umsátur.
Framkvæmdastjóri Keilis segir að frumgreinanám á Íslandi muni leggjast af komi ekkert í stað skólagjaldalána LÍN til nemenda frumgreinadeilda háskólanna. Slíkt sé ekki til að efla menntunarstig í landinu líkt og stjórnmálamenn hafi boðað. 
Umhverfisstofnun hefur kært þjófnað og skemmdarverk á skiltum og hliðum við Dyrhólaey til lögreglu. Fyrrverandi lögreglumaður í Vík viðurkennir brotið.
Styrkja á eftirlitshlutverk Alþingis með framkvæmdarvaldinu til muna með nýjum þingsköpum sem Alþingi samþykkti í gær.  Miklar breytingar verða á skipun nefnda og staða stjórnarandstöðu er styrkt.
Í fyrsta sinn í sögunni geta tvö íslensk landslið tryggt sér sæti á stórmóti sama daginn, því íslenska karlalandsliðið í handknattleik mætir í dag Austurríkismönnum í úrslitaleik um sæti á Evrópumótinu næsta vetur og kvennalandsliðið leikur síðari leik sinn gegn Úkraínu ytra um sæti á heimsmeistaramóti.
Veðurhorfur: Norðaustan fimm til tíu metrar norðvestantil, en annars fremur hæg norðlæg átt eða hafgola. Bjartviðri sunnan- og suðvestanlands, en annars skýjað og væta með köflum. Lítið eitt hvassara í fyrramálið og víða rigning eða súld, en skúrir sunnantil. Hiti yfirleitt á bilinu sjö til sextán stig, hlýjast sunnantil.</description>
Hádegisfréttir 11. júní 2011
      <description>Landsdómur hefur hafnað kröfu Geirs H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, um að þingkjörnir dómarar víki sæti sínu í dómnum. 
Mikill ágreiningur er enn innan stjórnarflokkanna um afgreiðslu minna kvótafrumvarps ríkisstjórnarinnar. Aðeins formaður sjávarútvegsnefndar studdi málið án fyrirvara þegar nefndin afgreiddi það til annarar umræðu á Alþingi.
Lögreglan í Lúxemborg hefur fryst eigur nokkura Íslendinga og félaga í þeirra eigu að beiðni sérstaks saksóknara. Upphæðin er yfir milljarði króna. 
Formaður fagráðs um kynferðisbrot segir að koma þurfi upp fagráðum í öllu tómstundastarfi, en ekki aðeins innan trúfélaga. Tvö mál eru á borði ráðsins og fleiri á leiðinni.
Tugir létu lífið í aðgerðum öryggissveita gegn mótmælendum í Sýrlandi í gær. Þúsundir manna hafa flúið yfir landamærin til Tyrklands undanfarna daga. 
Landsvirkjun og Þeistareykir ehf. hafa auglýst útboð á ráðgjafarþjónustu sem er fyrsta skref að fyrirhuguðum virkjunum í Bjarnarflagi og á Þeistareykjum.
Lögreglustjóri hefur heimild til að fjarlægja ofbeldismenn af heimilum sínum samkvæmt lögum sem samþykkt voru á Alþingi í gærkvöld. 
Viðlagatrygging Íslands hefur sett upp tímabundna starfsstöð á Kirkjubæjarklaustri til að meta tjón af völdum gossins. Markmiðið er að hjálpa fólki á gossvæðinu að komast fyrr út úr því að vera með óleyst mál, segir framkvæmdastjórinn. 
Íslendingar mæta Hvít-Rússum í opnunarleik Evrópumóts 21 árs landsliða klukkan fjögur í dag. 
Veðurhorfur: Austan og norðaustan fimm til tíu metrar. Dálitlar skúrir sunnantil, annars bjartviðri, en sums staðar þokuloft við norður- og austurströndina. Hægari norðlæg eða breytileg átt á morgun og bjart með köflum, en áfram þokubakkar við norðurströndina. Hiti fimm til fjórtán stig að deginum, svalast í þokulofti norðan- og austantil</description>
Hádegisfréttir 10.júní 2011
      <description>Eftirlitsstofnun Efta hunsar rök íslenskra stjórnvalda í Icesavemálinu og krefur Íslendinga um 650 milljarða innan þriggja mánaða.  
Þjóðkirkjan og núverandi biskup gerðu mistök í kjölfar þess að Ólafur Skúlason biskup var sakaður um kynferðisbrot á árinu 1996 sem og þegar dóttur biskups óskaði eftir fundi með kirkjuráði fyrir nokkrum árum. Þetta er niðurstaða rannsóknarnefndar kirkjuþings.
Ein kvennanna sem sökuðu Ólaf um kynferðisbrot kveðst ánægð með niðurstöðu skýrslunnar og vinnubrögð nefndarinnar. Henni þykir það orka tvímælis að Karl Sigurbjörnsson sitji áfram á biskupsstóli.
Samkomulag náðist seint í gærkvöld um að fresta frumvarpi um framlengingu gjaldeyrishafta og breytingar verða gerðar á bandormi og kvótafrumvarpi.  Fundum alþingis verður frestað á morgun. 
Ríkisendurskoðun gagnrýnir Lánasjóð íslenskra námsmanna í nýrri skýrslu fyrir að veita lán til náms sem ekki er lánshæft samkvæmt lögum. Í skýrslunni segir einnig að einkareknir skólar hafi hækkað skólagjöld um tugi prósenta án nokkurra röksemda. Þannig hafi útgjöld sjóðsins, og skuldir námsmanna aukist.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins mun mæla með því að aðildarviðræðum við Króata verði lokið. Sögulegur dagur segir forseti framkvæmdastjórnarinnar.
Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga óttast að sveitarfélögin hafi ekki efni á að hækka framfærslustyrki í samræmi við hækkun lægstu launa. 
Bændur í Eiðaþinghá settu fé á hús í gærkvöld þegar enn einn hríðarbylurinn skall á. Þetta er í annað sinn á þessu vori sem bændur á Fljótsdalshéráði þurfa að hýsa fé</description>
Hádegisfréttir 09.júní 2011
      <description>Bankarnir eiga of mikið í fyrirtækjum í samkeppnisrekstri og fjárhagsleg endurskipulagning fyrirtækja hefur tekið of langan tíma segir forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Helmingur stærri fyrirtækja glími enn við alvarlegan fjárhagsvanda.
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að fjármálaráðuneytið sé leppur fyrir eignarhlut í BYR. Samningur Byrs og ríkisins sé ólöglegur. Upplýsingafulltrúi fjármálaráðuneytisins segir að ásökunin sé alvarleg og kolröng. 
Ríkissáttasemjari ætlar að boða samninganefndir flugvirkja og Icelandair á fund síðar í dag. 
Enn er óljóst hvort takist að fresta þingfundum í vikulok. Meirihluti sjávarútvegsnefndar Alþingis segir gagnrýni umsagnaraðila á minna kvótafrumvarpið hafa gengið allt of langt.
Þúsundir hafa flúið heimili sín í Arizona-ríki í Bandaríkjunum undan skógareldum sem þar geisa. 
Erlendir ríkisborgarar greiða meira í skatta og gjöld á Íslandi, en vera þeirra á landinu kostar. Þetta kemur fram í skýrslu Byggðastofnunar. 
C-nefnd stjórnlagaráðs leggur til að Alþingi beri nýsamþykkt lög undir þjóðaratkvæði ef 15% kosningabærra manna krefjast þess.
Veðurhorfur: Vaxandi norðaustanátt, tíu til átján metrar síðdegis og rigning eða slydda norðaustanlands og snjókoma til fjalla, en bjartviðri suðvestanlands fram á kvöld, en þá þykknar upp með rigningu eða slyddu. Hiti eitt til þrettán stig í dag, hlýjast sunnanlands, en fimm til fjórtán stig á morgun.</description>
Hádegisfréttir 08. júní 2011
      <description>Hafrannsóknastofnun leggur til að þorskvótinn fyrir komandi fiskveiðiár verði aukinn úr hundrað og sextíu þúsund tonnum í hundrað sjötíu og sjö þúsund tonn. Þá telur stofnunin að verði 20 prósenta aflareglu áfram fylgt verði þorskkvótinn kominn í 250 þúsund tonn árið 2016. 
Engin sátt blasir við um þingfrestun. Minna kvótafrumvarp ríkisstjórnarinnar var afgreitt úr nefnd í morgun í ágreiningi, tveir stjórnarliðar gerðu fyrirvara. Offors ríkisstjórnarinnar og stríðshanski gagnvart Alþingi, segir stjórnarandstaðan. 
Nokkurra klukkustunda töf varð á öllu flugi Icelandair í morgun vegna verkfalls flugvirkja. Samtök ferðaþjónustunnar segja óþolandi að ferðaþjónustan sé enn og aftur sett í uppnám.
Umboðsmaður skuldara segir það vissulega vonbrigði að aðeins 22 hafi náð samningi um greiðsluaðlögun. Allra bragða sé beitt til að flýta málum en embættið hafi þó lyft grettistaki að mati umboðsmanns. 
Ályktun verður líklega lögð fyrir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna í dag, þar sem framferði sýrlenskra stjórnvalda gagnvart mótmælendum er fordæmt. Flóttamenn streyma nú þaðan til Tyrklands. 
Á næstu mánuðum munu verslunarmenn krefjast pinnúmera í stað undirskriftar þegar greitt er með debet- eða kreditkorti. Breytingar þess efnis voru kynntar í morgun. 
Lítil telpa, sem drukknaði nálægt æskuheimili Williams Shakespear, gæti hafa orðið honum innblástur við ritun leikritsins Hamlets. Rannsókn ensks sagnfræðings hefur leitt þetta í ljós.
Veðurhorfur: Norðaustan fimm til tíu metrar á sekúndu. Skýjað með köflum og stöku skúrir eða él, einkum norðaustantil. Bætir smám saman í vind, átta til fimmtán í fyrramálið, en tíu til átján síðdegis á morgun með rigningu eða slyddu norðaustan-lands, en yfirleitt bjartviðri suðvestan-lands. Hiti tvö til tólf stig, hlýjast sunnan-lands.</description>
Hádegisfréttir 07. júní 2011
      <description>Forsætisráðherra segir landsdómsmálið hafa tekið of langan tíma en vill ekkert segja um fullyrðingar Geirs Haarde um að málið sé pólítísk atlaga. Landsdómsmálið verður þingfest í Þjóðmenningarhúsinu klukkan hálf tvö í dag. 
Framkvæmdavaldið beitir ofbeldi með því að keyra minna kvótafrumvarpið í gegn um Alþingi. Allar umsagnir eru neikvæðar og ríkisstjórnin gerir sér ekki grein fyrir því að málið er dautt. Þetta fullyrða þingmenn stjórnarandstöðunnar.
Fyrirtæki í eigu núverandi efnahags- og viðskiptaráðherra fékk tæpar fjörtíu milljónir króna frá Íbúðalánasjóði á árunum 2004 til 2008 fyrir lögfræðiþjónustu. 
CCP hyggst gefa út nýjan tölvuleik fyrir Playstation 3 leikjatölvuna næsta sumar. Stórfyrirtækið Sony dreifir leiknum og markaðssetur hann. 
Landbúnaðarráðherrar ESB sitja nú neyðarfund um kólígerilsmit í Þýskalandi. Hugsanlegar bætur til bænda eru á meðal fundarefna.
Þeim sem greinast skorpulifur hér á landi, hefur fjölgað úr tíu til fimmtán á ári í fjörtíu. Þróunina má meðal annars rekja til aukinnar offitu og áfengisneyslu landsmanna.
Veðurhorfur: Norðlæg átt þrír til átta metrar og léttskýjað. Þykknar heldur upp þegar líður á daginn með skúrum á stöku stað, en stöku éljum norðan- og austantil. Norðaustan fimm til tíu á morgun. Skýjað með köflum og yfirleitt þurrt. Hiti tvö til átta stig norðan- og austanlands, en hiti fimm til tólf stig syðra. Allvíða líkur á næturfrosti.</description>
Hádegisfréttir 06. júní 2011
      <description>Ekkert samkomulag hefur náðst milli forseta Alþingis og formanna þingflokka um störf Alþingis í vikunni. Fyrstu umræðu um stóra kvótafrumvarp ríkisstjórnarinnar hélt áfram í morgun. Frumvarpið er hvorki hrátt, né soðið og fullkomlega óunnið segir fyrrverandi sjávarútvegsráðherra.  
Samskiptamistök urðu til þess að tveir björgunarsveitarmenn úr Björgunarsveitinni Húna á Hvammstanga urðu eftir í sjónum í gær.
Íslenskir skattgreiðendur eru orðnir stærstu birgjar sprautufíkla hér á landi, segir formaður SÁÁ. Hann segir skrýtið að læknirinn, sem ávísar fjórðugi af því rítalíni sem fer til fullorðinna, skuli ekki vilja kannast við vandamálin sem fylgja því. 
Uppreisnarmenn í Jemen eru sagðir líklegir til að samþykkja að Hadi varaforseti landsins taki við völdum af forsetanum Saleh sem særðist í árás þeirra á föstudag.
Hlé var gert á samningafundi flugvirkja og Icelandair yfir hjá ríkissáttasemara rétt fyrir hádegi. Boðað hefur verið til verkfallsaðgerða á miðvikudagsmorgun takist ekki að semja fyrir þann tíma. 
Boðuð niðurfelling skulda hjá viðskiptavinum Landsbankans ætti ekki að hafa bein áhrif á ríkisfjármálin. Stjórnendur bankans telja arð ríkissins af bankanum verða óbreyttan þrátt fyrir aðgerðirnar. 
Enn er ekki ljóst hvar kólígerlasmitið í Þýskalandi á uppruna sinn. Sterkur grunur leikur þó á að það megi rekja til lífrænna baunaspíra.
Kaupstríð um eignarhlut skilanefndar Landsbankans í Iceland Foods er í uppsiglingu. Fjölmiðlar ytra fullyrða að fjórar breskar verslunarkeðjur hafi nú áhuga á hlutnum, sem og stofnandi og forstjóri fyrirtækisins.
Baldur Þórhallsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir allt stefna í að háskólarektorar verði fleiri en leikskólastjórar. Hann hvetur til sameiningar háskóla.
Veðurhorfur: Norðan og norðaustan átta til þrettán metrar. Víða léttskýjað, en skýjað með köflum norðaustantil. Hægari norðlæg átt á morgun. Hiti tvö til sjö stig norðantil á landinu en fimm til tólf stig syðra. Allvíða líkur á næturfrosti.</description>
Hádegisfréttir 05. júní 2011
      <description>Samtök fjármálafyrirtækja óttast að eftirlitsstofnun EFTA muni gera athugasemdir við skattlagningu sem á að fjármagna sérstaka vaxtaniðurgreiðslu. Fyrirtæki sem skrifuðu undir samkomulag séu undanþegin en önnur sem ekki komu að því séu skattlögð.
Talið er að Ali Abdullah Saleh, forseti Jemen,  snúi ekki aftur til landsins þótt yfirvöld haldi því fram að hann sé væntanlegur á næstu dögum.
Kaldar kveðjur og nístandi óvissa er sendingin úr Stjórnarráðinu í tilefni sjómannadagsins að mati  Útvegsmannafélags Vestfjarða.
Ráðuneytin og undirstofnanir þeirra greiða tæpar sex hundruð milljónir króna í húsaleigu á mánuði. Dýrustu leiguna greiðir Tækniskólinn eða sextán milljónir. 
Þingkosningar eru í Portúgal í dag.  Búist er við að sósíalistar hrökklist frá völdum og jafnaðarmenn verði stærsta aflið í landinu. 
Seinka þarf opnun hálendisvega sunnanlands og norðan vegna snjóalaga og bleytu, að mati starfsmanna Vegagerðarinnar. Þykkur nýfallinn snjór er við Öskju. 
Veiðisumarið hófst með formlegum hætti í morgun. Ásmundur Helgason krækti í fyrsta laxinn í Norðurá.
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu er áfram í neðsta sæti í sínum riðli eftir 0-2 tap gegn Dönum á Laugardalsvelli í gærkvöld.</description>
Hádegisfréttir 04. júní 2011
      <description>Jemen rambar á barmi borgarastyrjaldar eftir að forseti landsins hótaði hefndum í gær þegar ráðist var á forsetahöllina.  Yfirvöld neita því að forsetinn sé farinn úr landi. 
Nýlegur þriggja ára kjarasamningur ASÍ og Samtaka atvinnulífsins kann að vera í uppnámi vegna aðgerðaleysis ríkisstjórnarinnar. Mikil óánægja er í herbúðum beggja samtaka með það hvernig stjórnvöld hyggjast uppfylla gefin loforð.
Atlantshafsbandalagið notaði herþyrlur til árása í Líbíu í nótt, í fyrsta skipti síðan loftárásir bandalagsins hófust.   
Þak verður sett á lyfjakostnað sjúklinga í október verði frumvarp um það að lögum. Gert er ráð fyrir að sjúklingar greiði ríflega tuttugu þúsund krónur við fyrstu lyfjakaup á tólf mánaða tímabili. 
Þriggja ára kjarasamningur hjúkrunarfræðinga hjá ríkinu var undirritaður í nótt, eftir þrettán tíma samningalotu. Fjölmörg stéttarfélög eiga eftir að semja, og sumstaðar stefnir í verkfallsaðgerðir. 
Sjóræningaferðir, fljúgjandi karamellur og koddaslagur er meðal þess sem í boði verður á fjölbreyttum sjómannadagshátíðum víðs vegar um landið um helgina.
Kvennahlaup ÍSÍ fer fram í dag. Hlaupið verður á 85 stöðum á landinu og 14 stöðum erlendis.</description>
Hádegisfréttir 03.júní 2011
      <description>Sjávarútvegsráðherra segir frumvarp ríkisstjórnarinnar um grundvallarbreytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu taka af öll tvímæli um að auðlindin sé í þjóðareign. Engin sátt sé um núgildandi kerfi. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir frumvarpið kippa fótunum undan atvinnugreininni. 
Ratko Mladic fyrrverandi hershöfðingi Bosníu-Serba segir að stríðsglæpaákæra á hendur honum sé andstyggileg. Hann neitaði að taka afstöðu til einstakra ákæruliða þegar hann var leiddur fyrir Alþjóðastríðsglæpadómstólinn í morgun.
Formaður allsherjarnefndar Alþingis vill að viðurlög við brotum lækna, sem ávísi lyfseðilsskyldum lyfjum til fíkla, verði hert.
Skiptastjórar gjaldþrota hrunfyrirtækja senda nú í auknum mæli gögn og ábendingar til embættis sérstaks saksóknara til frekari rannsókna. Fjöldi manna hefur verið yfirheyrður í tengslum við rannsókn embættisins á VÍS og Exista.
Efnahagsáætlun Íslands verður endurskoðuð í stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í dag. 
Leyfið sem Orkustofnun veitti Sunnlenskri orku ehf til rannsókna á jarðhita í Grændal felur ekki í sér heimild til framkvæmda. Þetta er í raun leyfi til að afla frekari leyfa, segir iðnaðarráðherra.
Lagt er til í stjórnlagaráði að forseti Íslands sitji að hámarki þrjú kjörtímabil í embætti, og að þjóðin greiði atkvæði um það hvort evangelíska lúterska kirkjan verði áfram þjóðkirkja Íslendinga. Tillögurnar eru ræddar á fundi ráðsins í dag.
Sveitarstjóri Skaftárhrepps segir að það gangi vonum framar að hreinsa mannvirki eftir öskufallið úr Grímsvatnagosinu. Hópar sjálfboðaliða eru enn að.
Veðurhorfur: Vestan- og suðvestan átta til þrettán metrar. Víða skúrir en él til fjalla. Hiti fimm til þrettán stig, mildast austantil. Skýjað suðvestan- og vestanlands á morgun, annars bjartviðri. Heldur hlýnandi, einkum austanlands.</description>
Hádegisfréttir 02.júní 2011
      <description>Stuðningur við ríkisstjórnina hefur aukist frá því í fyrra mánuði samkvæmt þjóðarpúlsi Gallup. Samfylkingin eykur fylgi sitt um tvö prósent.
Fjármálaeftirlitið hefur meinað slitastjórn Sparisjóðsins í Keflavík að ræða eða afhenda kröfuhöfum nýlega rannsóknarskýrslu um sjóðinn sökum bankaleyndar. Stofnfjárhafar eru æfir yfir þessu, skýrslan sé forsenda mögulegra dómsmála á hendur fyrrverandi stjórnenda sjóðsins. 
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin segir að kólígerillinn, sem dregið hefur átján til bana í Þýskalandi og Svíþjóð, sé af nýrri tegund sem aldrei hafi greinst áður. Rússar settu í morgun innflutningsbann á ferst grænmeti frá ríkjum Evrópusambandsins.
Það er forgangsverkefni að koma eignum Íbúðalánasjóðs í húsnæðisfélög til framtíðar. Þetta segir formaður samráðshóps um húsnæðisstefnu. Hún segir Íbúðalánasjóð í töluverðum vanda.
Orkustofnun hefur veitt fyrirtækinu Sunnlensk orka ehf. rannsóknarleyfi í Grændal, sem fékk hæstu einkunn fyrir náttúruverðmæti í rammaáætlun. Formaður Landverndar segir að þetta stefni samstarfi um rammaáætlun í mikla hættu.
Matsfyrirtækið Moody´s telur helmingslíkur á greiðslufalli hjá Grikkjum. Lánshæfismat þeirra var lækkað enn frekar í morgun. Grísk stjórnvöld segjast ætla að kynna ný sparnaðaráform á morgun.
Starfsmanni sem átti að vakta innilaugina á Selfossi þar sem ungur drengur drukknaði í síðasta mánuði var gert að sinna afgreiðslustörfum samhliða vöktun. Slíkt er bannað samkvæmt reglugerð sem tók gildi um áramótin. Fjölmörg dæmi eru um að vaktmenn í sundlaugum þurfi að sinna öðrum störfum samhliða. 
Verði kvótafrumvörpin samþykkt þurfa eigendur kvóta að afskrifa hann á þeim tíma sem nýtingarréttur er í gildi. Endurskoðandi segir sjávarútvegsfyritæki standa misvel að vígi, sum meti kvótann á fullu marðasverði í bókum sínum, önnur ekki.
Veðurhorfur: Hæg vestlæg átt og smáskúrir, einkum síðdegis, en bjart að mestu austanlands. Hægt vaxandi vindur í dag, fimm til þrettán í kvöld og dálítil rigning norðaustantil. Vestan átta til þrettán og víða skúrir á morgun. Hiti fimm til fimmtán stig, hlýjast á austurlandi.</description>
Hádegisfréttir 01. júní 2011
      <description>Saksóknari í Exetermálinu fór í morgun fram á að sakborningarnir þrír verði dæmdir í fimm ára fangelsi fyrir umboðssvik og peningaþvætti. 
Starfsmenn embættis sérstaks saksóknara gerðu húsleit í höfuðstöðvum Exista í gær, auk húsleitar hjá VÍS. Fleiri verða kallaðir til yfirheyrslu  í dag.
Íbúðalánasjóður leysti til sín nærri ellefu hundruð íbúðir í fyrra. Sjóðurinn átti í árslok þrefalt fleiri íbúðir en árið á undan.
Hernaði NATO í Líbíu verður haldið áfram næstu þrjá mánuðina hið minnsta. Þarlend stjórnvöld segja að mörg hundruð óbreyttir borgarar hafi týnt lífi í loftárásum bandalagsins. 
Fulltrúar Vinstri grænna í utanríkismálanefnd mótmæltu á fundi nefndarinnar í gærkvöld áformum Nató um að framlengja hernaðaraðgerðir í Líbíu.
Fjármálaráðherra segir að þrekvirki hafi verið unnið við endurreisn viðskiptabankanna þriggja. Hún standist alla skoðun. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir kröfuhafana soga til sín hagvöxtinn.
Rannsókn á falli Sparisjóðanna ætti að geta hafist eftir rúma viku. Sérstök rannsóknarnefnd fær rúmt ár í að rannsaka orsakir fallsins og hverjir beri ábyrgð. 
Um eitt hundrað sjúklingar liggja á milli heims og helju á þýskum sjúkrahúsum af völdum kólígerlasýkingar. Vísindamenn hafa enga hugmynd um hvaðan gerillinn kemur. 
Veðurhorfur : Norðaustlæg átt fimm til tíu metrar á sekúndu og víða dálítil rigning, einkum austanlands. Dregur úr vindi og úrkomu í dag, þurrt að kalla sunnan- og vestanlands síðdegis. Fremur hæg vestlæg átt á morgun og smáskúrir, en bjartviðri A-lands. Hiti fimm til fimmtán stig, hlýjast vestanlands í dag, en austanlands á morgun.</description>
Hádegisfréttir 31.maí 2011
      <description>Ekkert verður af boðuðum vinnustöðvunum flugumferðarstjóra eftir að fimm ára samningur náðist snemma í morgun. Gengið hefur verið frá tíu kjarasamningum síðustu tvo sólarhringa og tuttugu fundir eru fyrirhugaðir hjá Ríkissáttasemjara í dag. 
Tillaga Vinstri grænna um úrsögn Íslands úr Nató er átakanlegt yfirklór og fullkomlega fáránleg segir þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks. Tímabært að endurskoða eldgömul kaldastríðshugtök segir fyrsti flutningsmaður tillögunnar.
Sextán hafa látist vegna kólígerils frá Þýskalandi, fyrsta dauðsfallið utan Þýskalands varð í dag þegar kona um fimmtugt lést í Svíþjóð.
Allsherjarnefnd samþykkti í morgun frumvarp sem felur í sér að ofbeldismenn verða fjarlægðir af heimilum sínum og meinað að snúa þangað aftur í tiltekinn tíma.
Vímuefnaneysla íslenskra ungmenna er með því minnsta sem gerist í Evrópu samkvæmt nýrri könnun.
Frumvarp til laga um innstæðutryggingar verður ekki afgreitt frá Alþingi fyrr en í haust. Fjármálastofnanir greiða eftir sem áður gjald í innstæðutryggingasjóðinn á morgun samkvæmt því frumvarpi.
Grindvíkingar unnu sinn fyrsta heimaleik í sumar í úrvalsdeild karla í knattspyrnu þegar liðið fékk Þór í heimsókn. 
Veðurhorfur: Austan fimm til þrettán metrar og rigning sunnanlands, en þurrt að mest norðantil. Norðaustan fimm til þrettán á morgun og rigning, en lægir og styttir upp sunnan og vestanlands. Hiti þrjú til tólf stig að deginum, hlýjast sunnanlands. Heldur hlýnandi á morgun.</description>
Hádegisfréttir 30.Maí 2011
      <description>Mikil spenna hefur verið á Alþingi í morgun. Uppúr sauð milli þingmanns Framsóknarflokks og forseta Alþingis. Hart var deilt um að kvótafrumvarp sjávarútvegsráðherra væri sett á dagskrá. 
Gosinu í Grímsvötnum er lokið segir Magnús Tumi Guðmundsson prófessor. Hópur jarðvísindamanna er nýkominn að gosstöðvunum og verður þar við rannsóknir næstu daga.
Öllum kjarnorkuverum í Þýskalandi verður lokað fyrir árið 2022. Stjórnarflokkarnir urðu sammála um þetta í nótt.
Skrifað var undir sex kjarasamninga opinberra starfsmanna í gær og nótt. Stærstur er samningur SFR og ríkisins. Enn er þó ósamið við marga hópa. 
Ellefu hafa látist í Þýskalandi af völdum kólígerils. Yfir tólf hundruð hafa sýkst.
Palestínskur hælisleitandi sem hefur nýlokið fimm daga hungurverkfalli, gagnrýnir Útlendingastofnun harðlega fyrir að ætla að senda sig úr landi til Noregs, þar sem líf hans sé  í hættu. 
Þrjátíu og þrír særðust í mótmælum í höfuðborg Serbíu í gærkvöld. Þúsundir manna söfnuðust saman til þess að mótmæla handtöku Ratko Mladic.
Hálendisvegir verða opnaðir seinna en venjulega vegna frosts í jörðu. 
KR-ingar eru efstir í úrvalsdeild karla í knattspyrnu eftir 2-1 sigur á Fram í gærkvöld. Fram er á botninum með aðeins eitt stig eftir sex leiki. 
Veðurhorfur: Norðan og norðaustan víða fimm til tíu metrar. Léttskýjað suðvestanlands, annars skýjað og stöku skúrir éða él, en rigning vestantil á Suðausturlandi. Austan og suðaustan fimm til þrettán á morgun hvassast og rigning sunnanlands en annars úrkomulítið. Hiti tvö til fjórtán stig, hlýjast á suðurlandi.</description>
Hádegisfréttir 29.maí 2011
      <description>Forsætisráðherra segir kaflaskil hafa orðið í endurreisnarstarfinu, björgunarstarfinu sé að mestu farsællega lokið og framundan sé raunveruleg lífskjarasókn. Þetta sagði ráðherra í ræðu á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar fyrir stundu
Tillaga um rannsókn á falli sparisjóðanna verður afgreidd úr allsherjarnefnd  Alþingis á morgun. Þingið afgreiðir einnig á næstum dögum ramma um hvernig eigi að haga rannsóknum á efnahagsbrotum fyrir hrun.
Tíu eru nú látnir í Þýskalandi og mörghundruð hafa veikst víða í Evrópu vegna E. coli bakteríunnar. Sóttvarnalæknir segir engin tilvik hafa greinst hér á landi
Möltubúar hafa samþykkt að leyfa lögskilnað í landinu. Niðurstaðan er ekki bindandi en forsætisráðherra landsins segir að fara verið að vilja meirihluta þjóðarinnar.
Búast má við áfallastreitueinkennum hjá íbúum Skaftárhrepps á næstu vikum vegna eldgossins í Grímstvötnum. Því þarf að fjölga heilbrigðisstarfsmönnum á svæðinu að mati Almannavarna.
Öfgaþjóðernissinnar hafa boðað til mótmæla í Serbíu í dag vegna handtöku Mladic fyrrverandi hershöfðingja Bosníu-Serba. Lögregla er með mikinn viðbúnað.
Veðurhorfur: norðan og norðaustan átta til fimmtán metrar, hvassast norðan- og austantil, en hægari suðvestanlands. Rigning eða súld austanlands og við norðaustur ströndina, bjart að mestu suðvestanlands, en annars skúrir. Él norðaustantil á landinu í kvöld. Hægari norðlæg átt á morgun, skýjað og stöku él, en bjartviðri vestanlands. Hiti þrjú til þrettán stig.</description>
Hádegisfréttir 28.maí 2011
      <description>Formaður stjórnar Hagsmunastaka heimilanna segir það ámælisvert að umboðsmaður skuldara beiti sér ekki fyrir endurskoðun laga um endurútreiking gengislána. Hann segir endurútreikninginn byggja á gallaðri löggjöf.
 Innanríkisráðherra segir stutt í að bygging nýs fangelsis á Hólmsheiði verði boðin út. Hann segir vissulega þörf á úrbótum í fangelsismálum en að það heyri sögunni til að fangelsa þurfi alla brotamenn.
Forstjóri Hrafnistu í Kópavogi hefur kært starfsmann fyrir lyfjastuld. Starfsmaðurinn neitar öllum ásökunum.
Mörg hundruð Gazabúar söfnuðust í morgun saman við landamærastöðina til Egyptalands. Hún var opnuð í morgun og verður það til frambúðar.
Óvíst er um slátt í Fljótshverfi í sumar vegna öskufalls úr Grímsvötnum. Enn er mikil aska á heiðalöndum fyrir ofan bæi og því vita bændur ekki hvenær þeir geta bylt túnum sínum og sáð í þau á ný.
Hæstaréttalögmaður segir sjaldgæft að hælisleitendur fái gjafsókn, óboðlegt sé að meina fólki að leita réttar síns með þessum hætti.
Bílaleigur bjóða margar hverjar nú upp á sérstaka ösku- og sandfokstryggingu. Framkvæmdastjóri Bílaleigu Akureyrar segir að þeir sem leigi bíl sem skemmist vegna öskufoks geti þurft að greiða hálfa milljón króna í viðgerðir séu þeir ekki tryggðir. 
Veðurhorfur: Norðaustan átta til þrettán metrar á sekúndu með rigningu eða súld Austan til á landinu og við Norðvestur- ströndina. Hægari vindur á Suður- og Suðvestur-landi, skýjað með köflum og líkur á síðdegisskúrum. Hiti fimm til fjórtán stig, hlýjast Suðvestan til. Norðan og norðaustan átta til fimmtán á morgun, hvassast við Austur- ströndina. Léttir til á suðvestur-landi og úrkomulítið Norðan- og Austan-lands síðdegis. Kólnar heldur á Norðan-verðu landinu.</description>
Hádegisfréttir 27.maí 2011
      <description>Viðlagatrygging bætir tjón hjá eigendum brunatryggðra fasteigna sem skemmdust í öskufallinu eystra. Helst lítur út fyrir að þök og gluggar hafi orðið fyrir skemmdum.
Dregið hefur verið úr viðbúnaði almannavarna á öskufallssvæðunum. Þjónustumiðstöð var í morgun opnuð á Kirkjubæjarklaustri þar sem íbúar í Skaftárhreppi geta fengið bæði upplýsingar og aðstoð.
Skæð E.coli baktería sem valdið hefur að minnsta kosti fjórum dauðsföllum í Þýskalandi síðustu vikur hefur nú greinst í fólki í Danmörku og Svíþjóð. Matvælastofnun varar við spænskum agúrkum en engar vísbendingar eru um að þær séu seldar hér. 
Palestínskur flóttamaður var fluttur á sjúkrahús í gær eftir sjálfvígstilraun á gistiheimilinu Fitjum í Reykjanesbæ. Hann hafði verið í hungurverkfalli í þrjá daga til að mótmæla því að vera sendur úr landi. 
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur fellt úr gildi úrskurð um að synja karlmanni frá Írak hælis og dvalarleyfis af mannúðarástæðum. Dómurinn telur að útlendingastofnun og íslenska ríkið hafi ekki aflað viðhlítandi gagna þegar fjallað var um umsóknina.
Læknar hafa metið Ratko Mladic nógu hraustan til að mæta fyrir dóm í Serbíu í dag.  Hætta þurfti yfirheyrslum í gær vegna  heilsu hans. Farið er fram á að hann verði framseldur til stríðsglæpadómstólsins í Haag.  
Veðurhorfur: Suðaustan og austan átta til þrettán metrar og rigning á Norðaustur- og Austurlandi, annars hægari vindur og víða skúrir. Norðaustan átta til fimmtán á morgun, en hægari suðvestanlands. Rigning austantil og skúrir suðvestanlands síðdegis, annars úrkomulítið. Hiti yfirleitt fimm til tólf stig, heldur svalara á norðaustanverðu landinu á morgun.</description>
Hádegisfréttir 26.Maí 2011
      <description>Serbneska lögreglan hefur handtekið Ratko Mladic, fyrrverandi herforingja Bosníu-Serba. Tadic, forseti Serbíu, staðfesti þetta í morgun. Mladic hefur verið á flótta síðan stríðinu lauk á Balkanskaga, ákærður fyrir þjóðarmorð í Bosníu.
Engin merki eru um að hraunkvika komi upp úr eldstöðinni í Grímsvötnum og dregur hratt úr gosvirkninni. Þetta segir jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Enn eru þó gufusprengingar í gígnum og óráðlegt að fara nærri honum. 
Forstjóri Vátryggingafélags Íslands er hættur í kjölfar úttektar Fjármálaeftirlitsins á lánveitingum félagsins eftir hrun. Féð fór til útrásarvíkinga sem áður höfðu tögl og haldir í félaginu.
Óttast er að borgarastyrjöld sé að brjótast út í Jemen.  Meira en sjötíu hafa látið lífið í átökum sem staðið hafa yfir í höfuðborg landsins undanfarna þrjá daga.  
Fyrrverandi heilbrigðisráðherra gagnrýnir þá ákvörðun landlæknis að birta ekki lista yfir gæði hjúkrunarheimila. Fulltrúar landlæknis hafa verið boðaðir á fund heilbrigðisnefndar í dag vegna málefna hjúkrunarheimila.
Þrítugur karlmaður var í morgun dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir hrottalega nauðgun. 
Ábúendur eignajarða Dyrhólaeyjar gagnrýna Umhverfisstofnun og Mýrdalshrepp harðlega fyrir að hafa án nokkurs samráðs við þá gert samning um umsjá friðlandsins á Dyrhólaey og landvörslu. 
Veðurhorfur: Hæg breytileg átt, víða skýjað og dálítil væta við suðurströndina. Gengur í suðaustan tíu til átján metra og fer að rigna síðdegis, fyrst suðvestantil, en
hægari og þurrt norðaustantil fram á nótt. Suðaustan átta til þrettán með norðausturströndinni á morgun en mun hægari annars staðar og víða rigning, einkum suðaustantil. Hiti tvö til tíu stig, svalast við norðausturströndina í dag.</description>
Hádegisfréttir 25.maí 2011
      <description>Mjög hefur dregið úr gosvirkninni í eldstöðinni í Grímsvötnum. Fólk er þó varað við að fara nærri vegna sprengihættu. Jarðeðlisfræðingur segir að gosinu sé ekki lokið og að grjóthnullungar, allt að tonn að þyngd, geti þeyst hundruð metra upp í loftið í sprengingum. 
Bjartara er yfir á Kirkjubæjarklaustri í dag en undanfarna daga. Verið er að meta áhrif gossins og skipuleggja hreinsunarstarfið framundan. 
Millilandaflug er að komast í eðlilegt horf og veðurfræðingur býst ekki við frekari röskun. Evrópska loftferðaeftirlitið segir að aflýsa hafi þurft sjö hundruð flugferðum í Þýskalandi í morgun vegna öskunnar frá Grímsvötnum.
Landlæknisembættið telur að þjónusta á þriðjungi íslenskra hjúkrunarheimila sé undir meðallagi í gæðum, en vill ekki gefa upp hvaða heimili það eru.
Fjármálaráðherra Frakklands sækist eftir stöðu framkvæmdastjóra hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.  Ráðherrann tilkynnti þetta á blaðamannafundi í morgun. 
Íslenska landsliðið í badminton tapaði í morgun fyrir Filippseyjum með minnsta mun, 3-2, á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Kína. Nýliðar ÍBV eru í efsta sæti úrvalsdeildar kvenna í knattspyrnu eftir aðra umferðina sem lauk í gærkvöld með fjórum leikjum.
Veðurhorfur: Fremur hæg norðlæg eða breytileg átt og víða bjartviðri, en dálítil væta við suðvesturströndina. Snýst í suðaustan átta til þrettán metra á sekúndu og fer að rigna suðvestanlands seint á morgun. Hiti yfirleitt þrjú til tíu stig, svalast við norðausturströndina.</description>
Hádegisfréttir 24.maí 2011
      <description>Enn dregur úr gosvirkninni í Grímsvötnum; strókurinn nær nú þriggja til fimm kílómetra hæð. 
Þjóðvegurinn eystra er enn lokaður fyrir umferð. Endurmeta á stöðuna um tvöleytið. Búist er við að vind lægi og skyggni batni. 
Töluvert hefur fundist af dauðu búfé eftir að rofaði til í sveitunum við Kirkjubæjarklaustur. Tugir björgunarsveitarmanna aðstoða bænur við að koma skepnum í skjól.
Ekkert búfé verður flutt af gossvæðinu, segir landbúnaðarráðherra, en þar eru um tuttugu þúsund  fjár, og tuttugu og fimm kúabú.
Öskufallið úr Grímsvötnum veldur því að jöklar í grennd bráðna miklu meira en í venjulegu árferði.
Tæplega 600 farþegar sem komu með Norrænu til í Seyðisfjarðar í morgun eru veðurtepptir. Fjarðarheiði er ófær og hægt gengur að moka því snjóblásari bilaði. Farþegum stendur til boða að halda kyrru fyrir um borð í ferjunni.
Flug hefur raskast í Noregi í morgun vegna öskunnar úr Grímsvötnum. Óánægja er með að flugfélögin felldu niður flug að þarflausu.
Vél á vegum flugfélagsins Ryanair var flogið um skoska lofthelgi í morgun til að sýna fram á að það væri hættulaust.   Yfir tvö hundruð og fimmtíu flugferðum hefur verið aflýst á Bretlandseyjum í dag vegna öskuskýsins.   
Veðurhorfur: Norðvestan þrír til tíu metrar en hvassara austast. Skýjað með köflum vestantil, stöku él norðaustantil fram eftir degi en skýjað suðaustantil. Norðvestan þrír til tíu á morgun, skýjað sunnan og vestanlands en bjartviðri norðaustantil. Hiti tvö til tíu stig, hlýjast sunnanlands.</description>
Hádegisfréttir 23.Maí 2011
      <description>Svartamyrkur er á Kirkjubæjarklaustri.  Gríðarlegt öskufjúk og hættir fólk sér ekki milli húsa.  Einungis um fimmtíu metra skyggni er nú austan Skeiðarársands. Sérfræðingar gera ráð fyrir að kröftugt gos standi enn í nokkra daga með miklu gjóskufalli. 
Styrkur gossins nú jafnast á við gosið í Eyjafjallajökli þegar það stóð sem hæst. Eldgosið nú hefur þó minnkað mikið frá því í fyrrinótt. Vegurinn frá Vík austur að Skeiðarársandi er lokaður. 
Millilanda- og innanlandsflug hefst að nýju síðdegis að óbreyttu. Algjört flugbann er í gildi í tuttugu sjómílna radíus við eldstöðina í Grímsvötnum.
Búist er við að askan frá Grímsvötnum falli í Skotlandi í kvöld. Ólíklegt þykir að veruleg röskun verði á millilandaflugi í Evrópu vegna gossins. 
Óttast er að allur eldisfiskur Klausturbleikju drepist ef öskufallið heldur áfram. Tvö ker hafa þegar stíflast vegna öskunnar, og drápust nokkur hundruð kíló af fiski. Alls eru 40 - 50 tonn af bleikju í stöðinni. 
Vetrarveður er nú víða á Austurlandi, og á Egilsstöðum hefur kafsnjóað í morgun. Hríðin veldur bændum og ferðamönnum miklum vandræðum. Ferðamenn halda sumir að rekja megi snjókomuna til eldgossins í Grímsvötnum.</description>
Hádegisfréttir 22.Maí 2011
      <description>Gosið í Grímsvötnum, sem hófst í gærkvöld, var í morgun talið vera tíu sinnum öflugra en gosið í Eyjafjallajökli.   Þéttan gosmökkk leggur til suðurs og vesturs frá eldstöðinni, og er öll jörð grásvört.  Öskuafll er allt vestur að Þjórsá.  Líkindi eru til að nú dragi heldur úr gosvirkninni, segir jarðeðlisfræðingur sem flaug yfiir Vatnajökul íi morgun.  Lokað er fyrir bílaumferð frá Kirkjubæjarklaustri í vestri og austur fyrir Skeiðarársand. 
Verið er að koma grímum og hlífðargleraugum til fólks eystra en það gengur mjög erfiðlega vegna myrkurs, en öðru hverju birtir þó  til.  Fólk er varað vi því að vera á ferð utandyra eystra. 
Allar björgunarsveitir á Suðurlandi hafa verið kallaðar út.  Sveitir annars staðar eru í viðbragðsstöðu. 
Allt áætlunarflug liggur niðri, bæði innanlands og milli landa.  Um sjö þúsund flugfarþegar eru strandaglópar vegna gossins.
Ljósmyndari sem var aðeins kílómetra norður af gosstöðvunum snemma í morgun sagði gosbólstrana þá vera margfalt stærri en í öðrum gosum sem hann hefur séð. 
Landvörður sem er einn á ferð skammt suður af Lakagígum, kemst hvergi, vegna svartamyrkurs og öskufjúks. 
Ekki er talin hætta á miklu vatnsflóði á Skeiðarársandi.  Prófessor í jarðeðlisfræði útilokar ekki hlaup í Skaftá vegna gossins í Grímsvötnum. Skjálftavirkni mælist nú í Eystri Skaftárkatlinum. 
Leik Þórs og FH í úrvalsdeild karla í knattspyrnu hefur verið frestað vegna snjóþekju fyrir norðan.  Cristiano Ronaldo bætti í gær markametið í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta og Lille varð franskur meistari.
Veðurhorfur : Norðaustan átta til þrettán metrar. Víða él norðan og austanlands, en annars bjart að mestu, þó stöku skúrir syðst undir kvöld. Gengur í norðan tíu til átján  á morgun, hvassast með austurströndinni. Hiti tvö til átta stig sunnanlands, en nálægt frostmarki fyrir norðan. Búast má við vægu næturfrosti í flestum landshlutum.</description>
Hádegisfréttir 21.Maí 2011
      <description>Konan sem varð fyrir alvarlegri árás eiginmanns síns í síðustu viku lést á gjörgæsludeild Landspítalans í gær. Málið verður nú rannsakað sem manndráp. 
Flokksráðsfundur Vinstri grænna samþykkti einarðan stuðning við ríkisstjórn Vinstri flokkanna. Tillaga sem harmar brotthvarf þremenninganna úr þingflokknum var dregin til baka. Evrópusambandið var ekki rætt á fundinum.
Tugþúsundir Spánverja taka þátt í mótmælafundum í Madríd og fjölda annarra borga, þrátt fyrir fundarbann stjórnvalda vegna sveitar- og héraðsstjórnarkosninga á morgun. Mótmælendur í Madríd vilja taka sér íslensku búsáhaldabyltinguna til fyrirmyndar.
Næringarfræðingur gagnrýnir heilsufullyrðingar metsölubóka þar sem sykur og mjólkurvörur eru kallaðar eitur og fíkniefni. Hann segir kollega sína alltof máttlausir í að koma sínum boðskap á framfæri.  
Félag háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins er ekki tilbúið í kjaraviðræður fyrr en ósamræmi í launalækkun ríkisstarfsmanna hefur verið leiðrétt. Þetta segir formaður félagsins.
Varaformaður Landssambands smábátaeigenda segir það afturför að auka yfirráð sveitarfélaga yfir byggðakvóta eins og frumvarp sjávarútvegsráðherra um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða gerir ráð fyrir. 
Umhverfisstofnun fær auknar heimildir til að beita þá sektum sem menga meira en starfsleyfi þeirra heimila. Unnið er að málinu í umhverfisráðuneytinu.  
Veðurhorfur á landinu: Norðlæg átt, yfirleitt á bilinu átta til fimmtán metrar á sekúndu. Bjart að mestu á sunnanverðu landinu og hiti tvö til átta stig, en annars víða él og hiti nálægt frostmarki. Búast má við vægu næturfrosti í flestum landshlutum.</description>
Hádegisfréttir 20.Maí 2011
      <description>Slitastjórn Landsbankans höfðar á næstu vikum tvö skaðabótamál gegn fyrrverandi stjórnendum bankans vegna ákvarðana sem sagðar eru hafa kostað bankann tugi milljarða króna. Aðgerðir gegn fyrrverandi endurskoðendum bankans eru einnig í undirbúningi. 
Óvíst er hvort nýtt kvótafrumvarp sjávarútvegsráðherra stenst stjórnarskrá, að mati embættismanna fjármálaráðuneytisins. Frumvarpið er harðlega gagnrýnt í umsögn þess. 
Stjórnarandstaðan ber fulla ábyrgð á því að kvótafrumvörpin eru ekki komin á dagskrá Alþingis fullyrðir þingmaður Vinstri grænna. Ástæðan er óstjórn og vandræðagangur á stjórnarheimilinu segir stjórnarandstaðan. 
Viðbúið er að stirt verði milli Netanyahu forsætisráðherra Ísraels  og Obama Bandaríkjaforseta á fundi þeirra síðar í dag.  Obama leggur til að landamæri Ísraels og framtíðarríkis Palestínumanna verði miðuð við landamæri Ísraels og grannríkja þess fyrir sex daga stríðið 1967.
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur sýknað ríkið af skaðabótakröfum foreldra, sem telja að sonur þeirra hafi hlotið heilalömun vegna læknamistaka þegar hann var í móðurkviði.
Bandaríkjaforseti segir að engar lýðræðisumbætur verði í Líbíu nema Gaddafi fari frá völdum. Flugsveitir NATO réðust á þrjár flotastöðvar einræðisherrans í nótt og sökktu átta herskipum. 
Fuglafræðingur telur of snemmt að segja til um hvort vorhretið á Austur- og Norðurlandi spillir varpi fugla. Sloti hríðinni á næstu dögum ættu stærri fuglar þó að standa hretið af sér. Smærri fuglar sem missa hreiður á kaf í snjó gætu gert aðra tilraun til varps. 
Veðurhorfur: Norðaustlæg átt, tíu til átján metrar, hvassast við austurströndina. Él eða snjókoma norðan- og austanlands, en annars víða léttskýjað. Norðaustan átta til fimmtán á morgun og léttir til suðaustantil, en annars svipað veður. Hiti eitt til átta stig sunnan heiða, en annars nálægt frostmarki. Búast má við næturfrosti um land allt.</description>
Hádegisfréttir 19.maí 2011
      <description>Áætlaðar endurheimtur úr þrotabúi Landsbankans eru 99 prósent af forgangskröfum, sem eru Icesave-innlán og heidldsöluinnlán. Niðurstaðan er kynnt á kröfuhafafundi í dag.
Fjörtíu og sjö milljarða vantar upp á að Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins nái endum saman. Fjármálaeftirlitið krefst þess að iðgjaldahluti launagreiðanda verði hækkaður. 
Fjármálaráðherra Frakklands  er helst nefndur sem mögulegur eftirmaður Strauss-Kahn á forstjórastól Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Forsætisráðherra vonast til að frumvarp um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu verði afgreitt á haustþingi, en frumvarp um strandveiðar og byggðakvóta verði afgreitt á þessu þingi.   Frumvörpin voru lögð fram á alþingi í morgun.
Bæjarstjórinn á Seyðisfirði hefur sagt af sér vegna lélegrar afkomu sveitarfélagsins, auk samstarfsörðugleika við flokksbræður sína í Sjálfstæðisflokknum.
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segist hafa rætt af hreinskilni við Hillary Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna um samskipti Palestínumanna og Ísraelsmanna Að mati Össurar hefur friðarferlið fyrir botni Miðjarðarhafs í reynd algjörlega stöðvast.
Danski kvikmyndaleikstjórinn Lars von Trier var rekinn af kvikmyndahátíðinni í Cannes í morgun. Hann lýsti því yfir á blaðamannafundi í gær að hann væri nasisti og skildi Adolf Hitler.
Veðurhorfur: Norðaustanátt, víða tíu til átján metrar og rigning, en slydda eða snjókoma fyrir norðan. Kólnandi veður. Él fyrir norðan á morgun, slydda eða snjókoma á Austurlandi en úrkomulítið annars staðar. Hiti eitt til átta stig sunnan og suðvestanlands, annars nálægt frostmarki.</description>
Hádegisfréttir 18.maí 2011
      <description>Fjórir erlendir karlmenn hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald grunaðir um innflutning á tæplega sextíu kílóum af fíkniefninu Khat. Talið er að þeir hafi ætlað að koma efninu á markað í Bandaríkjunum og Kanada.
Standard & Poors hefur lækkað lánshæfismat Landsvirkjunar. Forstjóri fyrirtækisins segir áhrifin ekki verða mikil strax, en hugsanlegt sé að dýrara verði að fjármagna nýjar framkvæmdir aðrar en Búðarhálsvirkjun.
Karlmaður sem grunaður er um að hafa orðið barnsmóður sinni að bana í síðustu viku, ber við minnisleysi og hefur ekki játað verknaðinn, líkt og greint var frá í fjölmiðlum.
AFL starfsgreinafélag, ASÍ og Sjómannasambandið boða aðgerðir gegn útgerðarfélagi ferjunnar Norrænu. Hugsanlega verður farið fram á afgreiðsluban á skipið.
Fjármálaráðherra Bandaríkjanna, vill að framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins skipi þegar í stað nýjan forstjóra til bráðabirgða, í stað Strauss-Kahn sem situr i gæsluvarðhaldi.
Karfakvótinn hefur verið aukinn um fjórðung - úr fjörtíu í fimmtíu þúsund tonn.
Nýr leiðtogi al-Kaída samtakanna er egypskur skæruliði sem hefur gagnrýnt foringjaræði innan al-Kaída. Hann fordæmdi á sínum tíma árásirnar sem kenndar eru við ellefta september. 
Veðurhorfur: Norðaustan átta til þrettán metrar og rigning eða slydda á Norður- og Austurlandi, en stöku skúrir suðvestantil. Hiti eitt til tíu stig. Norðaustan tíu til átján á morgun. Slydda eða snjókoma fyrir norðan, rigning á Austfjörðum og skúrir sunnanlands. Heldur kólnandi.</description>
Hádegisfréttir 17.maí 2011
      <description>Félag forstöðumanna ríkisstofnana íhugar málsókn vegna þess sem þeir kalla sinnuleysi kjararáðs. Laun þeirra hafi ekki verið leiðrétt eftir að lagaákvæði um frystingu launa var aflétt. 
Ekkert bendir til að lögregluyfirvöld hafi vitað að Mark Kennedy var hér á landi sem flugumaður bresku lögreglunnar undir því yfirskyni að mótmæla Kárahnjúkavirkjun árið 2005. Þetta kemur fram í skýrslu ríkislögreglustjóra til innanríkisráðherra. 
Lausir hundar ógna eða ráðast á bréfbera á hverjum degi. Þetta segir talsmaður Íslandspósts. Bréfberi slasaðist illa í Mosfellsbæ í gær, þegar hundur réðst á hann.
Aðildarfyrirtæki Samtaka atvinnulífsins hafa samþykkt nýja kjarasamninga.  Forseti ASÍ býst ekki við að SA hætti við þriggja ára kjarasamninga vegna kvótafrumvarps ríkisstjórnarinnar.
Sjávarútvegsráðherra gerir ráð fyrir að frumvarp um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu verði afgreitt síðar á þessu ári. Hann segir eðlilegt að skoðanir séu skiptar, enda um eitt mesta átakamál síðustu ára að ræða.
Dominque Strauss-Kahn, forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, eyddi þriðju nóttinni eftir handtökuna í hinu alræmda fangelsi á Rikers-eyju í New York. 
Veðurspáin næstu daga veldur fuglavinum áhyggjum.  Gert er ráð fyrir frosti og fannkomu, sérstaklega fyrir norðan.
KR-ingar eru með tveggja stiga forskot á toppi deildarinnar á Íslandsmóti karla í knattspyrnu, en fjórðu umferð mótsins lauk í gærkvöld. 
Veðurhorfur: Austanátt, víða átta til þrettán metrar á sekúndu í dag en hvassara syðst. Rigning við suðurströndina, annars stöku skúrir. Norðaustan átta til þrettán í kvöld og á morgun með rigningu á Norður- og Austurlandi, en skýjað með köflum suðvestan og vestanlands. Hiti tvö til tíu stig, hlýjast vestantil.</description>
Hádegisfréttir 16.maí 2011
      <description>Handtaka forstjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins varð til þess að gengi evrunnar lækkaði á mörkuðum í morgun. Strauss-Kahn verður leiddur fyrir dómara í New York í dag. 
Maðurinn, sem situr í gæsluvarðhaldi grunaður um manndrápstilraun, hringdi sjálfur á lögreglu.  Kona hans liggur enn þungt haldin á gjörgæsludeild.
Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja skrifuðu í morgun undir kjarasamning við Samtök atvinnulífsins. 
Hagfæðiprófessor telur fyrirhugaða gjaldtöku í sjávarútvegi til þess fallna að halda aftur af verðbólgu.
Alþjóðaglæpadómstóllinn fer fram á það að Gaddafí leiðtogi Líbíu, sonur hans og yfirmaður leyniþjónustu landsins verði handteknir fyrir glæpi gegn mannkyni.   
Dómur Hæstaréttar um að Reykjavíkurborg þurfi ekki að taka við atvinnulóðum gengur í berhögg við ráðuneytisúrskurði um lóðaskil. Samkvæmt þeim er borgin skyldug til að taka við lóðum sem hún hefur úthlutað.
Skrapatungurétt í Húnavatnssýslu liggur undir skemmdum vegna ágangs Norðurár sem rennur þar hjá. Fulltrúi landbúnaðarnefndar líkir ástandinu við tímasprengju. 
Veðurhorfur: Norðan fimm til tíu metrar og skúrir eða slydduél með vesturströndinni til kvölds, en annars yfirleitt hægviðri og úrkomulítið. Snýst í austlæga átt í fyrramálið, víða átta til þrettán, en tíu til fimmtán og rigning með suðurströndinni síðdegis á morgun. Hiti tvö til tólf stig að deginum, hlýjast suðaustanlands í dag, en vestanlands á morgun.</description>
Hádegisfréttir 15.maí 2011
      <description>Forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Dominique-Strauss-Kahn, kemur fyrir dómara í New York í dag - sakaður um að hafa reynt að nauðga herbergisþernu á hóteli í borginni í gær. Lögfræðingur Strauss-Kahns segir að hann neiti sök.
Flugumferðarstjórar hafa samið um kaup sín og kjör til næstu sex ára, en tekist er á um efnahagslega fyrirvara í samningum. Næsti sáttafundur í deilunni er á morgun. Yfirvinnubann hefur þegar haft áhrif á flugumferð, og nemar í faginu sitja heima, þar sem þjálfunarbann er einnig í gildi. 
Frumvarp stjórnarflokkanna um breytta stjórn fiskveiða er kjaftshögg fyrir þær útgerðir sem tekið hafa á sig kvótaskerðingu síðustu ár, segir Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra.
Til blóðugra átaka hefur komið milli Palestínumanna og Ísraelshers á Gaza og Gólanhæðum í morgun. Palestínumenn hafa farið í mótmælagöngur í tilefni þess að sextíu og þrjú ár eru liðin í dag frá stofnun Ísraelsríkis.
Lagið Coming Home með Vinum Sjonna hafnaði í tuttugasta sæti Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöða í gærkvöldi. Íslenski hópurinn er sáttur við frammistöðuna, og segir markmiðið hafa verið að koma boðskap Sjonna til skila. Lagið varð í fjórða sæti í undankeppninni.
Tuttugu og fimm þúsund íbúum á flóðasvæðunum við Mississippi ánna hefur verið gert að yfirgefa heimili sín. Landsvæðið fer undir vatn eftir að Bandaríkjaher opnaði flóðgáttir í gærkvöldi til að koma í veg fyrir flóð í New Orleans og Batong Rouge.
Veðurhorfur: Vestan þrír til átta metrar og smáskúrir á vestanverðu landinu, en annars bjart með köflum. Norðlægari vestamtil á morgun og skúrir í flestum landshlutum, einkum suðvestantil. Hiti þrjú til þrettán stig, hlýjast suðaustantil.</description>
Hádegisfréttir 14.maí 2011
      <description>Allt að tveggja tíma töf varð á brottför áætlunarvéla frá Keflavíkurflugvelli í morgun. Völlurinn var lokaður í nótt vegna yfirvinnubanns flugumferðarstjóra. 
Það er aðeins tímaspursmál hvenær einhver verður drepinn í tengslum við starfsemi vélhjólagengja hér á landi. Þetta segir formaður Landssambands lögreglumanna, sem er sérfróður um vélhjólasamtök. 
Pakistanska þingið fordæmdi í morgun aðgerðir Bandaríkjahers í tengslum við drápið á Osama bin Laden. Með aðgerðunum hafi verið brotið á fullveldi Pakistans. Þingið vill að samband Pakistans og Bandaríkjanna verði endurskoðað. 
Þýska lögreglan gerði í fyrrinótt húsleit á um 1000 vændishúsum. Grunur leikur á að 170 konum hafi verið haldið þar í kynlífsþrælkun.
Móðir barns með mjólkurofnæmi segir allt of algengt að innihaldslýsingar á matvörum séu rangar eða villandi. Það skerði lífsgæði fólks og geti jafnvel verið lífshættulegt. 
Söngvarinn Michel Martelly sver í dag embættiseið sem forseti Haítí. Hans bíða ærin verkefni en hundruð þúsunda hafast enn við í tjaldborgum meira en ári eftir að öflugur jarðskjálfti reið yfir Haítí. 
Vinir Sjonna eru hæstánægðir eftir síðustu æfinguna fyrir lokakvöldið. Íslenska lagið er númer 21 á svið í kvöld.
Veðurhorfur: Norðvestan fimm til tíu metrar og rigning á Norðurlandi framan af degi, en annars vestan þrír til átta og væta seinnipartinn. Vestan þrír til átta á morgun og skúrir, en bjart með köflum á suðaustanlands. Hiti þrjú til ellefu stig, mildast suðaustantil.</description>
Hádegisfréttir 13.Maí 2011
      <description>Karlmaður á þrítugsaldri hefur játað að hafa ráðið barnsmóður sinni og sambýliskonu bana í gær. Búist er við að farið verði fram á gæsluvarðhald yfir manninum síðar í dag.
Tveir félagar í vélhjólasamtökunum Black Pistons hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald og sá þriðji handtekinn vegna frelsissviptingar og hrottafenginnar líkamsárásar á annan félaga í samtökunum. Þolandinn nýtur verndar lögreglu. 
Sveitarfélögum verður heimilt að ráðstafa öllum byggðakvóta til fiskiskipa óski þau eftir því, verði nýju kvótafrumvörpin að lögum. Þá mun nær helmingur kvótaaukningar í þorski og öðrum tegundum renna í leigupotta.
Herskáir íslamistar segjast hafa verið að hefna fyrir Osama bin Laden með sjálfsmorðssprengjuárás við herskóla í Pakistan í morgun þar sem yfir 80 létu lífið og 120 særðust. Bandaríkjastjórn óttast nú hefndaraðgerðir gegn bandarískum hermönnum.
Keflavíkurflugvelli verður lokað frá átta í kvöld til sjö í fyrramálið. Lokunin, sem mun hafa áhrif á hundruð farþega, stafar af yfirvinnubanni flugumferðarstjóra sem nú eru í kjaraviðræðum.
Hagsmunir almennings réðu ekki för í stjórnsýslu og eftirliti Umhverfisráðuneytis og Umhverfisstofnunar í málum sorpbrennslustöðva segir umhverfsráðherra. 
Grísk stjórnvöld verða að ráðast í frekari umbætur til að uppfylla skilyrði neyðarláns Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Fái gríska ríkið ekki næsta hluta lánsins útgreiddan gæti ríkið séð fram á greiðsluþrot.  
Veðurhorfur: norðvestlæg átt, þrír til átta metrar og skýjað að mestu, en úkomulítið, en fimm til tíu og dálítil rigning norðaustanlands með kvöldinu. Snýst í vestan þrjá til átta á morgun með vætu, en léttir heldur til austanlands. Hiti víða fimm til tíu stig.</description>
Hádegisfréttir 12.Maí 2011
      <description>Þingflokkar stjórnarflokkanna fjalla enn um nýtt kvótafrumvarp ríkisstjórnarinnar og er töluverð vinna eftir. Fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, segir ljóst að frumvarpið muni leiða til lægra kvótaverðs. 
Líki Samtökum atvinnulífsins ekki kvótafrumvarpið, eru kjarasamningar í uppnámi. Þetta segir formaður SA. Samtökin geta sagt sig frá samningnum til 22. júní.
Að minnsta kosti átta létust og hátt í 180 slösuðust í tveimur jarðskjálftum í borginni Lorca á Suðaustur-Spáni í gær. Miklar skemmdir urðu. 
Verðtrygginganefnd er hlynnt afnámi verðtryggingar að undanskildum fulltrúa Sjálfstæðisflokks, Pétri H. Blöndal sem telur að ekki sé hægt að styðja afnám verðtryggingar á þessari stundu.
Líklegt er að leikskólakennarar samþykki verkfallsboðun á aðalfundi í næstu viku. Þetta segir varaformaður Félags leikskólakennara. Náist ekki samningar hefst verkfall 22. ágúst.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra fordæmir mannréttindabrot á samkynhneigðum í Úganda. 
Forseti Alþingis þarf aukinn meirihluta þingmanna, ef tillögur B-nefndar stjórnlagaráðs verða að veruleika. Ráðherrum verður gert að víkja af þingi.
Ákvörðun Dana um landamæraeftirlit vekur undrun sænskra og þýskra þingmanna.  Evrópusambandið vill skýringar frá Dönum. 
Veðurhorfur: Norðlæg átt, þrír til átta metrar, en átta til þrettán við austurströndina á morgun. Skýjað norðan- og austanlands og sums staðar lítilsháttar væta. Annars yfirleitt léttskýjað, en líkur á skúrum sunnanlands á morgun. Hiti þrjú til átta stig fyrir norðan, en átta til þrettan syðra.</description>
Hádegisfréttir 11.Maí 2011
      <description>Veiðigjaldið rennur óskipt í ríkissjóð næstu fimm ár, samkvæmt kvótafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Eftir það verður hluta þess skipt milli sveitarfélaga eftir mikilvægi sjávarútvegs á hverjum stað. Frumvarpið hefur hvorki verið kynnt þingmönnum né hagsmunaaðilum.
Formaður LÍÚ segir fyrirliggjandi tillögur um breytingar á kvótakerfinu hryllilegar. Með breytingunni verði kerfið stórskemmt. 
Sýrlenski herinn gerði í morgun skriðdrekaárás á íbúahverfi í Homs, þriðju stærstu borg landsins.
Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, segir það jaðra við hneyksli að það hafi tekið tvo embættismenn sjö mánuði að koma saman ákæruskjali gegn sér. 
Karl og kona sem komu með Norrænu í gær voru handtekin við komuna til landsins, grunuð um að vera með fölsuð vegabréf. Búið er að staðfesta að vegabréf konunnar er falsað og verður hún að öllum líkindum ákærð í dag.
Lögregla beitti í morgun táragasi til að dreifa mótmælendum í Aþenu. Mikil röskun er almenningssamgöngum og flugi í Grikklandi í dag vegna verkfalls stærstu verklýðsfélaga landsins sem mótmæla aðhaldsaðgerðum ríkisstjórnarinnar. 
Mehdi Kavyan Pour er ekki fyrsti hælisleitandinn hér á landi sem reynir að fremja sjálfsvíg. Um fimmtungur hælisleitenda þarf að leita sér sálfræðiaðstoðar, og þrír hafa verið lagðir inn á geðdeild undanfarið ár.
Vinir Sjonna voru himinlifandi með að komast áfram í úrslitakeppni Evróvisjón í gærkvöldi enda orðnir vondaufir þegar tíunda landið var tilkynnt. 
Veðurhorfur:Norðlæg átt, þrír til átta metrar og smásúld norðan- og austanlands, skúrir auðaustantil en bjartviðri suðvestanlands. Skúrir á Vestfjörðum á morgun og smásúld á Austurlandi en annars bjartviðri. Hiti fimm til fimmtán stig, hlýjast suðvestanlands.</description>
Hádegisfréttir 10.Maí 2011
      <description>Veiðigjald verður hækkað um ríflega fimmtíu prósent næsta haust samkvæmt frumvarpi sjávarútvegsráðherra sem búist er við að afgreitt verði úr ríkisstjórn í dag. Gjaldinu verður að mestu varið í landshlutabundin verkefni.
Lögreglan í Düsseldorf hefur handtekið þrjá róttæka íslamista, sem lögðu á ráðin um hryðjuverk. Fyrri undanúrslit í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva verða í borginni í kvöld.
Ekkert verður af því að hvalveiðar verði stundaðar frá hvalstöðinni í Hvalfirði framan af sumri. Stjórnendur Hvals hafa frestað veiðum vegna bágs ástands í Japan eftir hamfarirnar þar og jafnvel gæti farið svo að ekkert verði af veiðum í sumar.
Flóð í Mississippifljóti, hafa valdið miklum usla í Memphis-borg og víðar í suður og miðhluta Bandaríkjanna. - Yfirborð árinnar er það hæsta í sjötíu ár.
Rýnihópur sem forsætisráðuneytið skipaði í kjölfar brots ráðuneytisins á jafnréttislögum vill að sett verði ný reglugerð um starfsemi kærunefndar jafnréttismála. Sá sem kærði ráðuneytið til kærunefndar ætlar með málið fyrir dóm. 
Nærri fimmtán hundruð lið eru skráð til leiks í átakinu Hjólað í vinnuna. Þáttakan hefur aldrei verið meiri. 
Veðurhorfur: Austan- og norðaustan þrír til tíu metrar, skýjað og dálítil rigning eða skúrir. Hiti sjö til fimmtán stig, hlýjast suðvestantil. Norðlægari á morgun og kólnar heldur fyrir norðan. Þurrt og bjart vestanlands, smávæta á norðaustanverðu landinu og skúrir suðaustantil.</description>
Hádegisfréttir 09.Maí 2011
      <description>Um 1500 íbúar í Skálafirði í Færeyjum þurftu að rýma hús sín í nótt vegna reyks frá togaranum Athenu.  Eldur kom upp í togaranum í gærkvöld og skipið brennur nú stafnanna á milli. 
Niðurstöður heilbrigðisrannsóknar á íranska hælisleitandanum Mehdi Kavyan Pour munu hafa mikil áhrif á það hvort hann fær hér dvalarleyfi af mannúðarástæðum. Forstjóri Útlendingastofnunar segir skýr ákvæði um það í lögum að taka eigi tillit til andlegrar og líkamlegrar heilsu umsækjenda um dvalarleyfi.
Forseti Íslands virðist hafa litið á bréfaskrif forsetaembættisins um setningu siðareglna sem rakalausa tilraun til íhlutunar í samskipti forsetaembættis og Alþingis.  Engin gögn finnast hins vegar um slík samskipti hjá Alþingi. 
Öryggissveitir í Sýrlandi réðust til inngöngu í hús í borgunum Homs, Banias og úthverfum Damaskus í morgun og handtóku hundruð manna.
Þingvallanefnd er óstarfhæf, segir Þráinn Bertelssong þingmaður Vinstri grænna. Hann segir að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilji reka nefndina sem sumarbústaðaleigu fyrir forréttindafólk. 
Líkur hafa aukist á að ríkisstjórnin afgreiði frumvarp um stjórn fiskveiða á morgun. Ráðherrar funduðu um málið um helgina og þingmenn stjórnarflokkanna ræða málið í dag.
Foreldrar barna með þroskahömlun sem berjast fyrir því að hafa val um almennan grunnskóla eða sérskóla fyrir börn sín, vilja afnema inntökuskilyrði í Öskjuhlíðarskóla. Þeir segja aðeins pláss fyrir eina skoðun í málinu innan menntasviðs borgarinnar. 
Fjármálaráðuneytið hefur óskað eftir því að fá aukafrest til þess að svara bréfi Umboðsmanns Alþingis varðandi mögulegt brot á jafnræðisreglu þegar laun ríkissstarfsmanna voru lækkuð árið 2009. Þetta er í annað sinn sem ráðuneytið fer fram á frest.
Strandveiðar í maí, á svæði A - frá Snæfellsnesi og norður til Súaðvíkurhrepps - verða bannaðar frá og með morgundeginum. 82 prósent leyfilegs afla voru komin á land í gær. 
Valur er í efsta sæti úrvalsdeildar karla í knattspyrnu með fullt hús stiga eftir tvær umferðir, en Íslandsmeistarar Breiðabliks eru neðstir án stiga.</description>
Hádegisfréttir 08.Maí 2011
      <description>Ráðist var á heimili innanríkisráðherra aðfaranótt laugardags. Málið er litið alvarlegum augum og hefur eftirlit með ráðherranum verið aukið.
Verið er að meta hvort hælisleitandinn sem reyndi að kveikja í sér á föstudaginn sé sakhæfur. Sé hann ekki sakhæfur gæti umsókn hans um dvalarleyfi af mannúðarástæðum verði sterkari en ella.
Að minnsta kosti tíu létu lífið í átökum kristinna og múslíma í Egyptalandi í nótt. Næstum tvö hundruð manns sem eru í haldi lögreglu verða leiddir fyrir herrétt.
Iðnaðarráðherra telur að auka eigi sjálfstæði Landsvirkjunar. Þannig geti fyrirtækið einbeitt sér að því að auka tekjur þjóðarbússins. 
Alþingi hefur falið Vísindavef Háskóla Íslands að veita óhlutdrægar upplýsingar um Evrópumál og möguleg áhrif aðildar Íslands. Sérstakur Evrópuvefur verður opnaður í sumar en tólf milljónum króna verður varið í verkefnið.
Það eru líkur á góðu laxveiðisumri að mati Veiðimálastofnunar.
Villtum páfagaukum hefur fjölgað mjög í Lundúnum og öðrum borgum í Bretlandi. Umhverfisyfirvöld hafa nú gefið út skotleyfi á villta páfagauka í höfuðborginni.
Veðurhorfur: Norðaustan átta til fimmtán metrar síðdegis og sums staðar hvassara í vindstrengjum sunnan- og vestanlands í kvöld og fram á nótt. Lítilsháttar væta norðantil, en léttskýjað sunnan heiða. Rigning víða um land í kvöld og nótt. Austan fimm til þrettán metrar á sekúndu um hádegi á morgun með dálítilli vætu, einkum austantil en birtir smám saman til á Norður og Vesturlandi. Hiti fimm til sextán stig, hlýjast suðvestanlands.</description>
Hádegisfréttir 07.Maí 2011
      <description>Vinnuveitandi íranska  hælisleitandans sem reyndi að kveikja í sér í höfuðstöðvum Rauða kross Íslands í gær sendi stjórnvöldum bréf fyrir þremur vikum og varaði við ástandi mannsins.
Forystumenn atvinnurekenda gera ráð fyrir að bókun ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegsmálum standi þrátt fyrir orð sjávarútvegsráðherra og að hagsmunaaðilum í sjávarútvegi verði kynntar fyrirhugaðar breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu áður en frumvörp þar að lútandi fara fyrir þingið.
Íslenskir starfsmenn um borð í Norrænu segja brotið á réttindum sínum í yfirlýsingu sem þeir sendu fjölmiðlum í dag. Laun þeirra séu um þrjátíu prósent lægri en laun samstarfsmenn af öðru þjóðerni. 
Ákæra á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra verður gefin út í næstu viku. Málsskjölin nema tug þúsundum blaðsíðna. 40 vitni verða leidd fyrir dóminn.
Ráðamenn í Evrópusambandinu þverneita fréttum um að Grikkir íhugi úrsögn úr myntbandalagi Evrópu. Evran lækkaði nokkuð í gær í kjölfar fréttanna. 
Óvíst er hvort ríkisstjórninni tekst að afgreiða frumvörp um breytingar á stjórn fiskveiða á næstunni. Sjávarútvegsráðherra telur álitlegast að beðið verði eftir niðurstöðum á hagfræðilegri greiningu á áhrifum frumvarpsins.
Skortur á læknum hér á landi hefur ekki verið jafnalvarlegur í áratugi. Þeim hefur fækkað um 100 á síðustu tveimur árum. Ungir læknar skila sér ekki heim úr sérnámi.
Öskjuhlíðin á ekki að vera staður fyrir sprautunálar heldur staður fyrir hlátur og hindber, sagði borgarstjóri Reykjavíkur á fyrsta Öskjuhlíðardeginum sem haldinn var í dag.
Nokkrir þýskir óþekktarormar verða á næstunni sendir í sveit í Húnavatnssýslum. Þar taka þau þátt í vinsælum þýskum raunveruleikaþætti.
Veðurhorfur: Austanátt, yfirleitt á bilinu þrír til tíu metrar á sekúndu. Rigning með köflum sunnan- og austanlands, en annars yfirleitt þurrt. Norðuaustan átta til fimmtán á morgun með lítilsháttar vætu, en bjartviðri sunnan heiða. Hiti fimm til fjórtán stig að deginum.</description>
Hádegisfréttir 06.Maí 2011
      <description>Mikil sprengihætta skapaðist þegar hælisleitandi réðst inn í höfuðstöðvar Rauða Kross Íslands í morgun, hellti yfir sig bensíni og hugðist kveikja í. Lögregla kom í veg fyrir það með því að dæla úr duftslökkvitækjum yfir manninn, svo hann gat ekki tendrað á tveimur kveikjurum sem hann hélt á. Enginn meiddist í átökunum. 
Sveitarfélögin hafa ekki efni á viðlíka launahækkunum og samið var um á almennum markaði í gær. Þetta segir formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Fé til framkvæmda á vegum ríkisins  á þessu ári og því næsta, verður aukið um 13 milljarða króna, samkvæmt yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. 
Ráðist verður í framkvæmdir sem fela í sér aukningu útgjalda um ríflega þrettán milljarða króna til ársloka 2012. Þetta kemur fram í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar  sem lögð var fram í tengslum við kjarasamninga í gær.
Bin Laden foringi Al-Kaída var með í undirbúningi nýjar hryðjuverkaárásir á Bandaríkin.  Tölvugögn, sem náðust þegar hann  var felldur, sýna þetta.
Verð á hráolíu hefur lækkað töluvert á heimsmarkaði í dag, annan daginn í röð. Flest íslensku olíufélaganna hafa lækkað eldsneytisverð.  útsöluverð sitt á bensíni og dísil.
Til stendur að auglýsa stöðu framkvæmdastjóra hjá hjúkrunarheimilunum Eir og Skjóli, segir stjórnarformaðurinn Magnús L. Sveinsson. Ekkert sé óeðlilegt við að ráða gamlan flokksbróður, Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, tímabundið í stöðuna. 
Frjálslyndir demókratar töpuðu miklu fylgi í sveitarstjórnarkosningunum í Englandi í gær.  Skoski þjóðernisflokkurinn vann hreinan meirihluta á heimastjórnarþingi Skotlands.
Flugfélagið Ernir fór aukaferðir í gærkvöldi með hóp á vegum Grunnskóla Vestmannaeyja sem átti pantað ferð til Kaupmannahafnar í dag.  Landeyjahöfn var þá ófær.
Veðurhorfur: Austan tíu til fimmtán metrar við suðausturströndina og syðst, annars víða fimm til tíu. Rigning með köflum, einkum á suðaustanverðu landinu, en yfirleitt þurrt norða og norðvestanlands. Hiti fimm til fjórtán stig að deginum, hlýjast vestanlands.</description>
Hádegisfréttir 05.Maí 2011
      <description>Nýir kjarasamningar munu reynast atvinnulífinu dýrir og verða sérstaklega erfiðir fyrir fyrirtæki í verslun og þjónustu, segir formaður Samtaka atvinnulífsins. Verði samningarnir samþykktir hækka laun um 4,25 prósent um næstu mánaðamót auk þess sem launafólk fær fimmtíu þúsund króna eingreiðslu. 
Forsætisráðherra segir væntanlega kjarasamninga hafa þau áhrif að verðbólga verði 0,5 prósentum meiri en spár gerðu ráð fyrir.
Allt útlit er fyrir að matarverð hækki í kjölfar launahækkana á vinnumarkaði. Þetta segir forstjóri Haga. 
Á annan tug manna lét lífið í hryðjuverkaárás í Írak í morgun en hún er talin hafa verið gerð til að hefna fyrir drápið á Osama bin Laden.
Bann við að lögleiða herskyldu er meðal þess sem kveðið verður á um í stjórnarskránni, samkvæmt tillögum sem kynntar verða í stjórnlagaráðinu í dag. Þá verður einnig afgreidd tillaga sem felur í sér að ráðherra skipi ekki lengur dómara, heldur forsetinn.
FH varð í gær Íslandsmeistari karla í handknattleik í sextánda sinn, en eftir nítján ára bið.
Veðurhorfur: Hæg austlæg eða breytileg átt, en átta til þrettán metrar allra syðst. Skýjað með köflum og sums staðar þokumóða úti við norður og austurströndina. Heldur hvassari sunnantil og dálítil rigning seint í nótt og á morgun. Hiti fimm til þrettán stig að deginum, svalast úti við sjóinn.</description>
Hádegisfréttir 04.Maí 2011
      <description>Lægstu laun í landinu hækka um rúmlega tuttugu prósent og fara yfir tvöhundruð þúsund krónur á mánuði árið 2013 samkvæmt tillögum sem nú eru til umfjöllunar í kjaraviðræðum. Heildarhækkun launakostnaðar verður um þrettán prósent á þremur árum. Vonast er til að skrifað verði undir kjarasamninga í dag eða í kvöld.
Forsætisráðherra segir vangaveltur um að frumvarp um Stjórnarráðið tengist því að búa til nýtt atvinnuvegaráðuneyti séu úr lausu lofti gripnar. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segir meginmarkmið frumvarpsins að auka völd forsætisráðherra.
Samkomulag  Fatah og Hamas, helstu fylkinga Palestínumanna um stjórnarsamstarf var undirritað í Kaíró, höfuðborg Egyptalands, í morgun
Fjögurra tíma töf varð á dýpkun Landeyjahafnar í nótt eftir að dælurör brotnaði. Dýpkað er við erfiðar aðstæður í mynni hafnarinnar en hún verður opnuð í dag eftir fjögurra mánaða lokun.
Maður sem hefur verið kærður fyrir nauðgun á föstudaginn langa er einnig grunaður um aðra nauðgun tæpum mánuði áður. Maðurinn verður í gæsluvarðhaldi í rúmar þrjár vikur í viðbót.
Íslensk yfirvöld ætla aftur að fara fram á það við Grænlendinga að hvitabirnir sem hér eru felldir, verði taldir sem hluti af veiðikvóta sem árlega er gefinn út á Grænlandi. Beiðnum um þetta hefur hingað til verið hafnað. 
Fjöldi þátttakenda í átakinu Hjólað í vinnuna hefur sextánfaldast frá því það var fyrst sett á laggirnar fyrir níu árum. 
Veðurhorfur: Hæg austlæg eða breytileg átt, en átta til tíu metrar syðst. Skýjað að mestu og víða þokumóða eða súld úti við sjóinn. Léttir heldur til N- og V-lands á morgun. Hiti víða átta til þrettán stig að deginum, en mun svalara við sjávarsíðuna norðan og austantil.</description>
Hádegisfréttir 03.Maí 2011
Hádegisfréttir 02.Maí 2011
      <description>Osama Bin-Laden, leiðtogi Al Kaída hryðjuverkasamtakanna, var veginn í Pakistan í nótt. Dauða hans hefur verið fagnað víða um heim. Margir ráðamenn leggja þó áherslu á að baráttunni gegn hryðjuverkum sé ekki lokið.
Hvítabjörn gengur laus í Hælavík á Hornströndum. Skipverjar um borð í Sædísi komu auga á hann í morgun og voru um 30 metra frá birninum. Ekki er vitað til þess að fólk sé í Hælavík. Þyrla Landhelgisgæslunnar kemur á Hornstrandir í hádeginu.
Viðræður um kaup Samherja á eignum Brims á Akureyri hafa staðið yfir í nokkrar vikur, en gengið var frá kaupunum um helgina. Þau komu starfsmönnum Brims í opna skjöldu. 
Guðlaugur Þór Þórðarson ætlar að stefna Birni Val Gíslasyni, þingmanni Vinstri-grænna, fyrir meiðyrði. Guðlaugur segir annað ekki hægt eftir að hafa verið sakaður um mútuþægni.
Allir erlendir starfsmenn Sameinuðu þjóðanna í Trípólí, höfuðborg Líbíu, eru farnir úr landi eftir að æstur múgur réðst á höfuðstöðvar þeirra í borginni í gær.
Það getur tekið allt að þrjár vikur að fá endanlega úr því skorið hvað varð ungri konu að bana í Reykjavík um helgina. Lögreglan rannsakar en hvaðan efnin komu sem talið er að konan hafi tekið.
Veðurhorfur: Austlæg átt, þrír til tíu metrar. Léttir til vestanlands, víða bjart veður síðdegis, en sums staðar þokubakkar við ströndina. Hiti sjö til satuján stig í dag, hlýjast inn til landsins. Hiti fjögur til sextán stig á morgun, svalast við norðausturströndina, en hlýjast suðvestanlands.</description>
Hádegisfréttir 30.Apríl 2011
      <description>Ríkisstjórnin er vísvitandi að búa til ágreining um sjávarútvegsmál til að þétta eigin raðir, segir fyrrverandi sjávarútvegsráðherra. Henni hefði verið í lófa lagið að klára málið fyrir löngu í anda þess sem sáttanefndin svokallaða lagði til.
Forsætisráðherra segir það mikil vonbrigði ef ekki tekst að ganga frá kjarasamningum. Fjármálaráðherra segir afar mikilvægt að tryggja frið á vinnumarkaði til að ná viðspyrnu í efnahagsmálum.
Bardagar geisa í  Dera í Sýrlandi. Skriðdrekasveit hélt inn í borgina í morgun og stórskotaliði hefur verið beitt.
Fulltrúi í stjórnlagaráði vill tryggja valddreifingu með almennum kosningum í ýmis embætti hjá hinu opinbera og með stjórnarskrárákvæði um dreift eignarhald á fjölmiðlum. Fyrstu hugmyndir stjórnlagaráðs hafa litið dagsins ljós.
Gaddafi Líbíuleiðtogi kveðst reiðubúinn til að fallast á vopnahlé og friðarviðræður hætti Atlantshafsbnadalagið árásum á landið. Hann segist ekki ætla að fara frá völdum og hverfa úr landi.
Íslenskt útflutningsfyrirtæki varð að leita til Seðlabankans til að fá að taka út gjaldeyri fyrir starfsmenn á leið til útlanda.
Samtök ferðaþjónustunnar óttast að hátt eldsneytisverð og rýr kaupmáttur þjóðarinnar komi illa niður á ferðaþjónustunni úti á landi. Samtökin skora á stjórnvöld að lækka opinberar álögur á eldsneyti. 
Veðurhorfur: Hæg breytileg átt um vestanvert landið og slydda, rigning eða súld og hiti eitt til sjö stig þar. Suðaustan þrír til átta metrar um austanvert landið og skýjað með köflum, en dálítil súld suðaustanlands í nótt og á morgun. Hiti sjö til sautján stig austantil yfir daginn, hlýjast norðaustanlands síðdegis.</description>
Hádegisfréttir 28.Apríl 2011
      <description>Fárviðri hefur orðið meira en hundrað og sjötíu manns að bana í suðurhluta Bandaríkjanna undanfarin sólarhring. Flestir hafa látið lífið í Alabama þar sem hluti háskólaborgarinnar Tuscaloosa jafnaðist við jörðu.
Formaður Eflingar segir að krafist verði skammtímasamninga á sáttafundi með atvinnurekendum á morgun. 
Slæmt veður er á Suðurnesjum. Spýtnabrak fýkur um í Höfnum og skemmt hús og bíl. Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út til aðstoðar. 
208 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta í mars, fleiri en nokkru sinni áður í einum mánuði
Heimavitjanir lækna á næturnar, sem hafa verið í boði síðustu áttatíu árin á höfuðborgarsvæðinu, leggjast af um mánaðamótin. Heimilislæknir sem sinnt hefur næturútköllum telur lítið sem ekkert sparast með þessu. 
Fulltrúi Sýrlands hefur verið strikaður út af gestalista í brúðkaupi Williams Bretaprins og Kate Middleton vegna ofbeldis Sýrlandsstjórnar gegn friðsömum mótmælendum.°
Veðurstofan varar við stormi á landinu. Suðaustan fimmtán til tuttugu og þrír metrar með rigningu sunnan- og vestanlands, en heldur hægari og yfirleitt þurrt á Norður- og Austurlandi. Dregur úr vindi og úrkomu með kvöldinu. Sunnan fimm til þrettán á morgun, hvassast vestast. Væta framan af degi vestantil en suðaustantil seint á morgun. Annars úrkomulaust að mestu. Hiti sex til þrettán stig yfir daginn, hlýjast norðaustanlands.</description>
Hádegisfréttir 27.apríl 2011
      <description>Algjör óvissa gæti orðið um uppgjör þrotabús Landsbankans og sá hlutur sem hugsanlega lendir á ríkissjóði í Icesave-málinu gæti margfaldast komist Héraðsdómur Reykjavíkur að því að neyðarlögin haldi ekki. Dómur verður kveðinn upp í dag.
Aðgerðahópur Starfsgreinasambandsins ræðir nú möguleika á verkfallsaðgerðum til að mæta því sem hópurinn kallar óbilgirni atvinnurekenda. Formaður Framsýnar segir lítið mál að lama þjóðfélagið með lokun ákveðinna hafna og Keflavíkurflugvallar. 
Samkomulag hefur náðst á færeyska lögþinginu um skiptingu á 150 þúsund tonna makrílkvóta, sem  verður deilt út, hann leigður og hluti hans seldur á uppboði.
Ekkert verður af því að Landhelgisgæslan verði flutt á Miðnesheiði á næstunni segir innanríkisráðherra. Kostnaðurinn  við flutninginn er um 700 milljónir króna. 
Sýrlenskar öryggissveitir hafa nú drepið á fimmta hundrað óbreyttra borgara frá því að mótmæli gegn stjórn landsins hófust. Skriðdrekar voru í morgun fluttir til borganna  Damaskus og Deraa þar sem herinn hefur látið til skarar skríða gegn mótmælendum.
Ferðamenn ættu að greiða aðgang að vinsælustu og viðkvæmustu ferðamannastöðum landsins segir stjórnarmaður í Ferðafélagi Íslands. Búist er við að 600 þúsund erlendir ferðamenn komi til Íslands í ár. 
Aldrei hafa fleiri bílar farið í gegnum Héðinsfjarðargöngin en á föstudaginn langa. Tífalt fleiri gestir sóttu Síldarminjasafnið á Siglufirði heim þessa páska en undanfarin ár. 
Veðurhorfur: Sunnan fimm til tíu metrar og smáskúrir, en lægir og léttir smám saman til á norðaustur og austurlandi síðdegis. Gengur í hvassa suðaustanátt á morgun með rigningu sunnan og vestan lands. Hiti fimm til þrettán stig.</description>
Hádegisfréttir 26.apríl 2011
      <description>Eina leiðin til að rjúfa kyrrstöðu í kjaraviðræðum er að boða til verkfalls. Þetta segir forseti ASÍ.
Sýrlenskar öryggissveitir skutu á  þriðja tug óbreyttra borgara  til bana eða særðu alvarlega í borginni Daraa morgun. Verið er að undirbúa alþjóðlegar refsiaðgerðir gegn Sýrlandi.
Hópur fólks hefur kvartað til Eftirlitsstofnunar EFTA vegna viðbragða stjórnvalda við ólögmætum gengislánum. Alþingi, dómstólar og stjórnsýslan eru sökuð um brot á grundvallarréttindum borgaranna.
Ný rannsókn á gjóskunni úr Eyjafjallajökli sýnir að rétt var að stöðva flugumferð á meðan gjóskan var sem mest. Örsmá gjóskukornin hefðu getað sandblásið flugvélarnar og drepið á hreyflum.  
Skilanefnd Landsbankans velur nú fjármálaráðgjafa til að annast söluna á Iceland verslunarkeðjunni sem er ein stærsta eign þrotabúsins. Ef gott verð fæst fyrir keðjuna gæti Icesave-málið heyrt sögunni til.
Í dag eru 25 ár frá Tsjernobyl-slysinu í Úkraínu. Dimitri Medvedev, forseti Rússlands, hefur sent þjóðarleiðtogum nýjar tillögur til úrbóta varðandi öryggi í kjarnorkumálum sem ræddar verða á leiðtogafundi G8 í næsta mánuði.
Veðurhorfur: Sunnan átta til fimmtán metrar, hvassast vestast. Dálítil rigning eða súld vestanlands. Suðaustan þrettán til tuttugu og rigning vestan og sunnanlands í kvöld, en hægari og úrkomulítið norðaustanlands. Suðvestan þrír til tíu og úrkomulítið á morgun, en stíf suðaustanátt og rigning austast fram eftir morgni. Hiti fimm til þrettán stig.</description>
Hádegisfréttir 25.apríl 2011
      <description>Landamærum Sýrlands og Jórdaníu var lokað í morgun. Lokunin er talin tengjast stórsókn Sýrlandsforseta gegn stjórnarandstæðingum.
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins útilokar að gengið verði að kröfum Starfsgreinasambandsins um eins árs kjarasamning og að lágmarkslaun verði hækkuð í tvö hundruð þúsund. Samningafundur er boðaður á morgun.
Bandaríkjamenn héldu um 150 saklausum Afgönum og Pakistönum föngnum árum saman í Guantanamo-fangabúðunum.  Meðal fanganna voru börn, gamalmenni og geðsjúklingar. Þetta kemur frá í skjölum frá Wikileaks.
Herlið Gaddafis, einræðisherra í Líbíu, lét fallbyssukúlum rigna yfir borgina Misrata í morgun. Borgin er á valdi uppreisnarmanna. Að minnsta kosti þrjátíu eru látnir.
Íslendingaliðið Sundsvall í sænska körfuboltanum jafnaði metin gegn Norrköping í gærkvöld í úrslitaeinvíginu um meistaratitilinn í Svíþjóð. Staðan í einvígi liðanna er 1:1, en vinna þarf fjóra leiki til að verða Svíþjóðarmeistari.
Veðurhorfur: Suðvestan þrettán til átján metrar og slydda eða snjókoma á sunnanverðu landinu, en mun hægara og úrkomulítið fyrir norðan. Dregur úr vindi og ofankomu í kvöld og nótt. Sunnan og suðvestan átta til fimmtán á morgun. Rigning eða súld vestantil á landinu. Hiti að átta stigum, en fimm til þrettán á morgun, hlýjast austantil.</description>
Hádegisfréttir 24.Apríl 2011
      <itunes:duration>19:55</itunes:duration>
      <description>Búast má við mjög slæmu ferðaveðri um vestanvert landið fram á kvöld. Stormi er spáð á vesturhelmingi landsins og Miðhálendinu í dag. 
Svæðisfélög Vinstri grænna í Grundarfirði og Stykkishólmi krefjast þess að Ásmundur Einar Daðason segi af sér þingmennsku. Ákvörðun um afsögn úr þingflokki Vinstri grænna hafi verið tekin án samráðs við félagsmanna í kjördæminu.
Ali Abdullah Saleh, forseti Jemens, hefur samþykkt að láta af embætti eftir þrjátíu og tvö ár við völd. Stjórnarandstaðan sættir sig hinsvegar ekki við að honum verði veitt friðhelgi. 
Tillögur um sameiningu sparisjóða í landinu verða lagðar fram í næsta mánuð. Sameina þarf sparisjóði svo þeir geti veitt stærri fjármálafyrirtækjum samkeppni, segir forstjóri Bankasýslu ríkisins. 
Vanskil á skólagjöldum barna á Akureyri hafa aukist. Skuldir foreldra nema nú 16 milljónum króna. 
Annað hvert hross sem er flutt  úr landi fær sumarexem. Tilraunabólusetning gegn exeminu er nú að hefjast í fyrsta skipti.
Íslenskt samfélag má ekki öllu lengur við því að sitja fast í vantrausti og tortryggni. Þetta sagði biskup Íslands í páskamessu í morgun.
Veðurhorfur: Suðvestan átt, fimmtán til tuttugu metrar um landið suðvestanvert, en fimmtán til tuttugu og þrír norðvestantil fram á kvöld. Slydduél eða él. Heldur hægari og úrkomulítið norð-austantil. Suðvestan og vestan þrettán til tuttugu í kvöld og á morgun með éljagnagi, en mun hægari breytileg eða vestlæg átt norðan og austantil. Hiti eitt til átta stig.</description>
Hádegisfréttir 23Apríl 2011
      <description>Oddviti Djúpavogshrepps sakar sveitarfélagið Fjarðabyggð að grafa undan áætlunum um veg um Öxi. Sveitarfélagið hafi sent inn fjölda neikvæðra athugasemda, sem Skipulagsstofnun hafi byggt nýlegt álit sitt á. 
Að minnsta kosti fimm létust og tugir særðust í Sýrlandi í morgun þegar öryggissveitir hófu skothríð á líkfylgd mótmælenda sem öryggissveitirnar myrtu í gær. 
Framkvæmdastjóri Bandalags Háskólamanna segir að ríkið ætti að taka forystu í kjaramálum og semja strax við opinbera starfsmenn. Samningsdrög á almennum vinnumarkaði geti orðið útgagnspunktur í viðræðunum. 
Verktakafyrirtækið ÍAV hefur samið um átta og hálfs milljarðs króna jarðgangagerð fyrir norsku járnbrautirnar. Vinna við verkefnið hefst í næsta mánuði. 
Forstjóri Bankasýslu ríkisins segir ákveðna tregðu innan bankanna að draga saman í kostnaði. Hann er ekki sammála Samkeppniseftirlitinu um að samruni fjármálastofnana sé ekki æskilegur. 
Gestalistinn í brúðkaup Vilhjálms prins og Kate Middleton var loks gerður opinber í dag.  Mörgum kemur á óvart að bandarísku forsetahjónunum er ekki boðið. 
Veðurhorfur: Vaxandi suðaustan- og síðar austanátt, 13-20 metrar undir kvöld en hægari norðaustantil. Rigning síðdegis en þurrt að kalla norðaustanlands. Snýst í suðvestan 15-23 í fyrramálið með rigningu eða slyddu og snjókomu til fjalla, fyrst suðvestantil. Suðvestan 10-15 metrar og úrkomulítið norðaustanlands. Fer að draga úr vindi sunnantil undir kvöld. Hiti 2 til 8 stig, en víða 1 til 5 á morgun.</description>
Hádegisfréttir 22.apríl 2011
      <itunes:duration>20:17</itunes:duration>
      <description>Matsfyrirtækið Moody's spáir tveggja prósenta hagvexti á þessu ári sem er aðeins minni vöxtur en spár Seðlabankans gera ráð fyrir.  Óviðunandi segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins sem telur hagvöxt verða að vera mun hærri
Bretar hyggjast veita ríflega hálfum milljarði króna til að rannsaka gjósku frá Eyjafjallajökli í því skyni að þróa betri mæliaðferðir á gosmekki og auka flugöryggi.
Íbúafjöldinn á Ísafirði nærri þrefaldast yfir páskahátíðina. Skíðavikan hófst á miðvikudag og rokkhátíð alþýðunnar -Aldrei fór ég suður hefst þar í kvöld.
Stjórnarandstæðingar í Sýrlandi krefjast þess að einræði Baath-flokksins verði afnumið og að komið verði á lýðræðislegu stjórnarfari í landinu. Mótmæli hófust í Sýrlandi að loknum föstudagsbænum í morgun.
Skilti hafa verið sett upp í Bolungarvík og Súðavík þar sem ferðamenn geta stillt sér upp ef þeir vilja fá bílfar áleiðis til Ísafjarðar. Þau eiga að koma í stað hinna hefðbundnu puttaferðalanga.
Veðurhorfur: Sunnan átta til fimmtán metrar og rigning með köflum. Hiti fimm til fimmtán stig, hlýjast norðaustanlands. Suðvestan fimm til tíu síðdegis og stöku skúrir eða él vestantil, en rigning suðaustanlands. Vaxandi suðaustanátt á morgun, þrettán til átján metrar undir kvöld en hægari norðaustantil.</description>
Hádegisfréttir 21.apríl 2011
      <description>Gleðilegt sumar!
Lánshæfismat Moddys fyrir Ísland helst óbreytt, þvert á spár matsfyrirtækisins fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um Icesave. Fjármálaráðherra segir niðurstöðu Moodys varnarsigur.
Skipverjarnir þrír sem urðu fyrir súrefnisskorti um borð í fiskiskipi í Vestmannaeyjum í gær verða útskrifaðir af sjúkrahúsi í dag. Koltvísýringur í lögnum skipsins olli því að mennirnir misstu allir meðvitund um tíma.
Kalkþörungaverksmiðjan á Bíldudal mun sæta dagsektum upp á 500 þúsund krónur verði mengunarvarnir ekki bættar fyrir miðjan júni.  Verksmiðjan megnar sjöfalt meira en leyfilegt er. Umhverfisstofnun hefur áminnt fyrirtækið.
Ólíklegt er að bændur undir Eyjafjöllunum geti rekið fé sitt á afrétt í sumar þar sem aðeins tíu prósent af öskunni af heiðunum í kringum jökulinn hafa skilað sér af svæðinu.
Vetur og sumar frusu saman á nokkrum stöðum á landinu í nótt. Samkvæmt þjóðtrú er því von á góðu sumri. Og þó að veðurfræðingar taki lítið mark á slíkum spám segja þeir landsmenn engu að síður mega fara draga grillin úr geymslum, því von sé á betri tíð.
Veðurhorfur: Sunnan og suðaustan fimm til fimmtán metrar í dag, en tíu til átján með kvöldinu, hvassast suðvestan og vestanlands. Rigning og súld með köflum á sunnan og vestanverðu landinu. Dregur úr vindi á morgun, talsverð rigning suðaustanlands og skúrir eða slydduél vestantil síðdegis.</description>
      <itunes:summary>Gleðilegt sumar!
Hádegisfréttir 20.apríl 2011
      <description>Hanna Birna Kristjánsdóttir oddviti Sjálfstæðismanna hefur ákveðið að hætta sem forseti borgarstjórnar, og Sóley Tómasdóttir, oddviti Vinstri Grænna, ætlar að hætta sem fyrsti varaforseti borgarstjórar. Þær segja í yfirlýsingu að atkvæðagreiðslan í gærkvöld um sameiningar leikskóla hafi ráðið úrslitum. 
Seðlabankinn spáir því að atvinnuleysi aukist enn og hjaðni hægar en hingað til hefur verið spáð. Atvinnuleysi var átta komma sex prósent fyrstu þrjá mánuði ársins. Aðstoðarframkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands segir horfurnar ógnvænlegar.
Stærsti hluthafi MP-banka, Skúli Mogensen, fékk afskrifaðar 400 milljónir króna hjá Landsbankanum árið 2003.
Rúmlega tvítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir eitt umfangsmesta e-töflusmygl sem upp hefur komið hér á landi. Lögreglan leitar enn vitorðsmanna mannsins.
Að minnsta kosti 846 voru drepnir í uppreisninni í Egyptalandi. Þetta kemur fram í nýrri rannsóknarskýrslu og er helmingi meira mannfall en áður var talið.
Frumvarp til upplýsingalaga gerir ráð fyrir að meiri leynd hvíli yfir gögnum íslenskra ráðuneyta og stofnana en sænsku leyniþjónustunnar og hersins.
Veðurhorfur: Sunnan fimm til þrettán metrar og dálítil væta, en vestlægari síðdegis og dálítil slydduél vestanlands. Vaxandi suðaustanátt á morgun, átta til fimmtán upp úr hádegi með rigningu um landið sunnan og vestanvert, annars yfirleitt þurrt. Hiti eitt til tíu stig yfir daginn</description>
Hádegisfréttir 19.apríl 2011
      <description>Starfsmenn Elkem á Grundartanga fá tæplega tíu prósenta launahækkun á þessu ári, samkvæmt kjarasamningi sem undirritaður var morgun. Þeir fá ennfremur allt að fimm hundruð þúsund króna eingreiðslu við undirritun. 
Alþýðusambandið segir að Samtök Atvinnulífsins hafi sýnt ótrúlega ósvífni með fullyrðingu um að ASÍ hafi hafnað kjarabótum til launþega. 
Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að verja sjö milljörðum króna á næstu þremur árum í að efla framhaldsskólana og búa til eitt þúsund ný námstækifæri fyrir atvinnulausa.
Sjálfstæðisflokkurinn ber ekki ábyrgð á fjárdrætti úr sjóðum Norðurlandaráðs. Þetta segir framkvæmdastjóri flokksins.
Sýrlenskar öryggissveitir beittu skotvopnum gegn þúsundum mótmælenda í borginni Homs, þriðju stærstu borg Sýrlands, í nótt og í gær.
Bankastjóri Arion banka segir að rekstrarkostnaður bankans muni lækka næstu misseri en Samkeppniseftirlitið gagnrýnir háan rekstrarkostnað bankanna. 
Kvikmyndin Eldfjall, eftir Rúnar Rúnarsson, hefur verið valin til keppni á kvikmyndahátíðinni í Cannes.  
Veðurhorfur: Suðvestan þrír til tíu metrar og stöku él, en skýjað með köflum eða léttskýjað austanlands. Sunnan átta til þrettán í kvöld og rigning eða slydda sunnan og vestantil. Vestlæg átt, víða þrír til átta á morgun og skúrir eða slydduél. Hiti að fimm stigum síðdegis en hlýrra norðaustanlands á morgun.</description>
Hádegisfréttir 18.apríl 2011
      <description>Borgarráð samþykkti í morgun tillögur um sameiningar í leik- og grunnskólum og frístundaheimilum. Fulltrúi Vinstri grænna í borgarráði segir meirihlutann skorta pólitískt hugrekki til að draga þær til baka.
Talið er fjárdrátturinn hjá íhaldshópi Norðurlandaráðs á Íslandi nemi fimmtán til tuttugu milljónum. Maðurinn hafði aðgang að reikningum ráðsins og notaði fjármunina í eigin þágu.  
Lífeyrissjóðirnir íhuga kaup á allt að þriðjungshlut í HS Orku og ætla að gera áreiðanleikakönnun á fyrirtækinu. 
Stjórnarskipti verða í Finnlandi. Óánægjuflokkurinn Sannir Finnar, andstæðingar Evrópusambandsins eru sigurvegarar þingkosninganna í gær. 
Teiknari Morgunblaðsins hefur beðið Siv Friðleifsdóttur þingkonu persónulega afsökunar á skopmynd í blaðinu um helgina, þar sem Siv er teiknuð sem vændiskona. Landssamband Framsóknarkvenna vill að blaðið biðji þingkonuna formlega afsökunar á myndinni.
Yfir sjötíu tilkynningar hafa borist tryggingafélögum og nokkrir hafa þegar gert kröfu á tryggingafélag Orkuveitu Reykjavíkur vegna vatnlekans í Árbæ. Tjónið nemur nokkrum tugum milljóna króna, hið minnsta. 
Veðurhorfur: Sunnan átta til fimmtán metrar og rigning suðaustanlands, en hægari og slydda eða snjókoma vestantil. Snýst í vestan átta til fimmtán með éljum í kvöld, en fer að létta til eystra. Suðvestan fimm til þrettán á morgun og dálítil él sunnan og vestanlands. Hiti að tólf stigum í dag, hlýjast austanlands, en kólnar heldur á morgun.</description>
Hádegisfréttir 17.apríl 2011
      <description>Efnahags- og viðskiptaráðherra segir fulltrúa og stjórnarmenn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafa sýnt sjónarmiðum Íslands í Icesave-málinu mikinn skilning.  Í dag fundar hann ásamt fjármálaráðherra með ráðuneytisstjóra Hollenska fjármálaráðuneytisins þar sem þeir munu reyna að koma sjónarmiðum Íslendinga á framfæri.
Framkvæmdastjóri LÍÚ telur að leysa mætti deiluna um fiskveiðistjórnunarkerfið á hálftíma ef menn settust niður saman. Hann segir að forsætisráðherra vilji fremur herða hnútana og neiti að tala við útvegsmenn.
Fulltrúaráð Sólheima átelur sveitarfélagið Árborg fyrir að ekki sé búið að ganga frá nýjum þjónustusamningi. Viðræður hafa staðið yfir í þrjá mánuði en án árangurs. Fulltrúaráðið skorar á velferðarráðherra að hafa forgöngu um lausn málsins.
Kaupfélag Skagfirðinga skilaði mesta hagnaði frá upphafi á árinu 2010, tæpum tveimur og hálfum milljarði króna eftir skatta.
Finnar ganga til þingkosninga í dag. Búist er við miklum breytingum á fylgi flokkanna síðan í síðustu þingkosningum. 
Foreldrar eiga samkvæmt lögum að hafa val um sérúrræði fyrir börnin sín fái þau ekki kennslu við sitt hæfi í almennum skóla. Lektor á menntavísindasviði Háskóla Íslands segir að hverfa þurfi frá gamla skólaskipulaginu svo betur megi þjóna öllum.
Formaður Neytendasamtakanna segir að algjör sprenging hafi orðið í húsaleigumálum hjá neytendasamtökunum frá hruni. 
Matthías Ingiberg Sigurðsson, klarinettuleikari, sigraði í úrslitakeppni í alþjóðlegri klarinettkeppni sem fram fór á Kýpur í GÆR. 
Veðurhorfur:
Sunnan fimm til þrettán og él Vestan-til. Þurrt og bjart veður á austanverðu landinu, en slydda eða rigning SuðAustan-lands í kvöld. Gengur í Sunnan tíu til fimmtán Austan-til á morgun, annars hægari vestlæg eða breytileg átt. Rigning víða um land og slydda vestast. Hiti eitt til tíu stig, mildast eystra.</description>
Veðurhorfur:
Hádegisfréttir 16.apríl 2011
      <description>Kjaraviðræður Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands virðast komnar í hnút. Forkólfar ASÍ segja atvinnurekendur hafa reynt að stilla sér upp við vegg. Því hafnar formaður SA.
Samtök atvinnulífsins vilja fresta viðræðum fram yfir páska. Þau telja mikið vanta uppá frá stjórnvöldum svo hægt sé að halda kjaraviðræðum áfram - ekki steyti aðeins á sjávarútvegsmálum.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segir niðurstöðuna í gærkvöld vonbrigði. Hún segir að stefna stjórnvalda í sjávarútvegsmálum sé ekki til sölu fyrir það sem hún kallar óbilgjarnar kröfur útvegsmanna. 
Nígeríumenn ganga til forsetakosninga í dag. Núverandi forseti er talinn sigurstranglegur.
Reykjanesbær þarf að ráðast í stórfellda eignasölu ef bærinn á að geta staðið undir skuldbindingum. Þetta blasir við þótt milljarðar, sem varið var til að bjarga SpKef, hafi fengist endurgreiddir úr Landsbankanum.
Fjögur sjávarútvegsfyrirtæki sæta nú rannsókn Fiskistofu vegna gruns um framhjálöndun. Málin eru öll afar umfangsmikil.
Ábúendur á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum hafa opnað gestastofu, þar sem hægt er að kynna sér gosið í Eyjafjallajökli og atburðina í kjölfar þess. Búist er við þúsundum gesta í sumar. 
Þýski ökuþórinn Sebastian Vettel vann í morgun ráspól þriðju keppnina í röð í Formúlu eitt kappakstrinum og verður því fremstur á ráslínunni þegar ræst verður í Shanghai í fyrramálið.
Veðurhorfur: Suðvestan átta til þrettán metrar og skúrir eða él, en léttskýjað austanlands. Hiti eitt til tólf stig, hlýjast á austurlandi. Víða frost til landsins í nótt. Sunnan átta til þrettán og slydda vestantil á morgun, annars hægari og þurrt. Hiti að átta stigum, mildast á austanverðu landinu.</description>
Hádegisfréttir 15.Apríl 2011
      <description>Forsætisráðherra hefur lagt fram sáttatillögu í sjávarútvegsmálum og segir að atvinnurekendur og launþegahreyfingin eigi að geta gert langtímakjarasamning. 
Fulltrúar Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambandsins fullyrða að skrifað verði undir nýjan aðalkjarasamning í dag. Enn sé stefnt að því að semja til þriggja ára en það ráðist af innleggi stjórnvalda. 
Hersveitir Gaddafís í Líbíu skutu hundruðum flugskeyta á borgina Misrata í morgun. Bretar undirbúa hertar loftárásir.
Drómi hf. eignarhaldsféag SPRON, hefur neitað að endurreikna fasteignalán nokkurra einstaklinga á þeim forsendum að þau séu ekki gengislán, heldur lán í erlendri mynt.
Matarpakkar heyra sögunni til hjá Hjálparstarfi kirkjunnar. Inneignarkort í matvörubúðir taka við um mánaðamótin. 
Ný fjölmiðlalög voru samþykkt á Alþingi fyrir stundu. Nærri tvö þúsund hafa skrifað undir áskorun til forsetans um að vísa lögunum til þjóðarinnar.
Stríðsglæpadómstóllinn í Haag dæmdi í morgun tvo króatíska hershöfðingja fyrir stríðsglæpi árið 1995. þeir voru dæmdir í átjá og tuttugu og fjögurra ára fangelsi. 
Hvasst og blint er á Holtavörðuheiði og færð varasöm. Samkvæmt lögum eiga nagladekk að fara í geymslu í dag og sumardekk undir bíla. Bíleigendur geta frestað hjólbarðaskiptum við aðstæður sem þessar.
Stjarnan jafnaði í gærkvöld metin í einvígi sínu við KR um Íslandsmeistaratitil karla í körfuknattleik.  með sigri í öðrum leik liðanna í Garðabæ í gærkvöldi.
Veðurhorfur: Suðvestan átta til fimmtán metrar. Þurrt austanlands, annars víða él. Hiti að fimm stigum. Hægari vindur og rigning eða slydda á sunnanverðu landinu í kvöld og snjókoma norðvestantil í nótt. Suðvestan átta til þrettán og skúrir eða él á morgun, en léttir til A-lands. Hiti eitt til tíu stig, mildast á austurlandi.</description>
Hádegisfréttir 14.Apríl 2011
      <description>Forsætisráðherra útilokar ekkert þegar kemur að því að efla stjórnarmeirihlutann. Hún segir ákvörðun Ásmundar Einars Daðasonar um að styðja ekki ríkisstjórnina og ganga úr þingflokki VG ekki hafa komið á óvart.
Ásmundur Einar sagði sig úr þingflokki vinstri grænna í morgun í tölvupósti. Almenn óánægja virðist með ákvörðun hans meðal flokksmanna Vinstri Grænna í norðvesturkjördæmi. Líkur eru á átakalandsfundi vinstri grænna í haust.
Framsóknarflokkurinn á að ganga til liðs við ríkisstjórnina, segir Guðmundur Steingrímsson alþingisþingmaður. Hann segir að atkvæðagreiðsla um vantrauststillögu á ríkisstjórnina hafi verið keppni í óbilgirni. 
Ekkert myndefni sem sýnir kynferðislegt ofbeldi gegn börnum hefur fundist á tölvum tveggja manna sem handteknir voru í Kópavogi fyrir hálfum mánuði.  Báðir hafa setið í gæsluvarðhaldi vegna gruns um að þeir hafi níðst á sjö ára dreng, en var sleppt í gær.
Uppreisnarmenn vara við fjöldamorðum í borginni Misrata í Vestur-Líbíu, komi NATO þeim ekki til aðstoðar með afgerandi hætti og herði árásir á stjórnarherinn.
Ár er liðið síðan eldgos hófst í Eyjafjallajökli. Gosið hafði mikil tímabundin áhrif á búskap undir Eyjafjöllum og olli mörgum flugfélögum miklu tjóni.
Veðurhorfur: Suðvestan átta til fimmtán metrar og skúrir, þó síst norðaustantil á landinu. Hiti eitt til tólf stig, hlýjast austanlands. Slydduél eða él um landið vestanvert undir undir kvöld. Dregur heldur úr vindi síðdegis á morgun. Hiti að fjórum stigum í nótt og á morgun, hlýjast syðst.</description>
Hádegisfréttir 13.Apríl 2011
      <description>Tugir heimila og fyrirtækja í Árbæ urðu fyrir vatnstjóni í gærkvöld og í morgun þegar heitavatnslagnir brustu. Óvíst er hvort Orkuveitunni verði gert að bæta tjónið. 
Fjölmargir þingmenn gefa ekki upp afstöðu sína til vantrauststillögu á ríkisstjórnina fyrr en umræður um hana hefjast klukkan sextán. 
Umhverfisstofnun hefur áminnt fyrirtækið Becromal þar sem ekki hafa borist fullnægjandi tillögur um úrbætur á mengunarvörnum. 
Þúsundir kvenna teppa nú alla umferð á aðalþjóðveginum á Miðjarðarhafsströnd Sýrlands. Þær krefjast þess að eiginmenn ástvinir sem handteknir hafa verið í mótmælum verði látnir lausir.
Innanríkisráðherra segir að verktaki við dýpkun Landeyjahafnar hafi ekki næga reynslu. Meta þurfi hvort segja eigi upp samningi við hann.
Hosni Mubarak fyrrverandi forseti Egyptalands og synir hans tveir hafa verið handteknir. Þeir eru sakaðir um spillingu og að hafa látið öryggissveitir skjóta mótmælendur .
Ríkisjóður mun leggja milljarð á ári í almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu, nái tillögur samgönguráðs fram að ganga. Í staðinn þyrftu sveitarfélög á svæðinu að fresta stórum vegaframkvæmdum. 
Hluti bústofnsins á sauðfjárbúinu Stórhóli í Álftafirði verður tekinn úr vörslu ábúendanna. Lögregla hefur boðað til vörslusviptingar á bænum á morgun.   
Manchester United og Barcelona komust bæði áfram í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í gærkvöld. 
Veðurhorfur: Sunnan átta til þrettán metrar og rigning í dag, þó síst norðaustantil á landinu. Hvessir í kvöld. Hiti tvö til tíu stig. Suðvestan tíu til fimmtán og skúrir eða slydduél á morgun, en þurrt norðaustantil á landinu. Heldur kólnandi.</description>
Hádegisfréttir 12.Apríl 2011
      <description>Íslenskur efnahagur er á batavegi og forsendur eru fyrir talsverðri styrkingu krónunnar, segir Lars Christensen, aðalgreinandi Danske Bank. Hann segir að atvinnuleysi verði áfram um tíu prósent næstu árin. Christensen gagnrýnir orð forseta Íslands í garð erlendra matsfyrirtækja. 
Gyrðir Elíasson fær Bókmenntaverðlaun Norðurlandsráðs í ár fyrir smásagnasafnið Milli trjánna.  
Bretar og Frakkar vilja efla sóknina í Líbíu. Aðgerðir Atlantshafsbandalagsins séu ekki nógu kröftugar til að vernda íbúa landsins fyrir árásum stjórnarhersins.
Kjarnorkuslysið í Fukushima-kjarnorkuverinu í Japan er nú metið jafn alvarlegt og Tsjérnóbíl-slysið í Úkraínu árið 1986.
Metafli hefur verið í netaralli Hafrannsóknunarstofnunarinnar í Faxaflóa, og í Breiðafirði hefur metið frá því árið 2009 verið jafnað. Enn eru nokkrir dagar eftir af rallinu sem gæti orðið það besta hingað til.
Mikil eftirspurn er eftir íslensku vinnuafli í Noregi, segir ráðgjafi hjá norsku Vinnumálastofnuninni. Norðmenn binda vonir við að starfakynning í Reykjavík um helgina verði til þess að fleiri Íslendingar leiti hófanna í Noregi.
Veðurhorfur: Suðvestan átta til þrettán metrar og skúrir eða él, en skýjað með köflum og yfirleitt þurrt á norðaustanverðu landinu. Suðlægari og rigning á morgun, einkum um landið sunnan- og vestanvert. Hiti eitt til átta stig í dag, en heldur hlýrra á morgun, hlýjast norðaustan- og austantil.</description>
Hádegisfréttir 11.Apríl 2011
      <description>Stjórnvöld leggja nú allt kapp á að erlend matsfyrirtæki lækki ekki lánshæfismat Íslands. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa setið á fundum í morgun vegna niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardaginn.
Björgunarsveitir á sunnan- og vestanverðu landinu stóðu í ströngu í gær og í nótt og sinntu á fjórða hundrað útköllum. Tjón er talið mikið.
Landgangar í Leifsstöð þola ekki meiri vind en tuttugu og fimm metra á sekúndu. Því var ekki hægt að flytja farþega sem sátu fastir í tíu flugvélum á Keflavíkurflugvelli í gær inn í flugstöðina, segir upplýsingafulltrúi Isavia.
Skipverji fótbrotnaði og annar féll fyrir borð þegar hvalaskoðunarbátur var að hjálpa skútu í mynni Húsavíkurhafnar í nótt. 
Muammar Gaddafi einræðisherra í Líbíu hefur samþykkt  friðartillögur Sambands Afríkuríkja sem m.a. kveða á um að vopnahléi verði tafarlaust komið á.
Tvær konur með andlitsblæjur voru í morgun handteknar í París. Lög sem banna konum í Frakklandi að hylja andlit sitt á almannafæri með búrkum og blæjum gengu í gildi á miðnætti. 
Eigi neytendasamtökin að sinna húsaleigumálum áfram þurfa þau aukið fjármagn. Þetta segir formaður samtakanna en algjör sprenging hefur orðið í málaflokknum frá hruni.
Veðurhorfur: Suðvestanátt, yfirleitt á bilinu átta til fimmtán metrar. Heldur hægari á morgun. Éljagangur, en bjart með köflum og yfirleitt úrkomulaust á norðaustanverðu landinu. Hiti að fimm stigum en vægt frost inn til landsins.</description>
Hádegisfréttir 10.Apríl 2011
      <description>Sextíu prósent sögðu Nei við Icesave-samningunum í þjóðaratkvæðagreiðslunni í gær. Nei-ið varð ofan á í öllum kjördæmum.
Forsætisráðherra segir mikilvægast af öllu að færa málið úr átakafarveg yfir í sáttafarveg.  Verja þurfi hagsmuni Íslendinga þar sem þess er þörf segja forystumenn flokkanna
Breskir og hollenskir ráðamenn lýsa yfir vonbrigðum með úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar og segja að málið fari fyrir dómstóla.
Efnahags- og viðskiptaráðherra vonar að það taki ekki meira en ár að fá niðurstöður frá EFTA-dómstólnum um hvort Íslendingum beri að greiða fyrir Icesave.
Nú ríður á að halda málstað Íslendinga fram í útlöndum en ekki þarf að óttast niðurstöður málaferla vegna Icesave segir talsmaður ADVICE hreyfingarinnar. Formaður Samtaka Verslunar og þjónustu  óttast hins vegar áframhaldandi stöðnun í atvinnulífinu eftir kosninguna. 
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir nýja stöðu komna upp í kjaraviðræðum. Forseti ASÍ óttast að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar verði ekki til þess að auka hagvöxt og tekjur og fjölga störfum. 
Veðurhorfur: Vaxandi sunnanátt, fimmtán til tuttugu og þrír metrar síðdegis, hvassast vestantil á landinu. Rigning, en þurrt norðaustantil. Suðvestlægari, heldur hægari og skúrir eða slydduél um landið sunnanvert seint í kvöld. Suðvestan átta til fimmtán á morgun og skúrir eða slydduél, en þurrt austanlands. Hiti þrjú til átta stig, en að fimm stigum í kvöld og á morgun.</description>
Hádegisfréttir 09.Apríl 2011
      <description>Kosningaþátttaka það sem af er degi er töluvert meiri en í síðustu þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave-samningana. Fyrstu tölur benda hins vegar til þess að hún nái ekki því sem var í síðustu alþingiskosningum. 
Forseti Íslands kaus í Álftanesskóla í morgun. Hann segir ánægjulegt hve kjörsókn virðist vera mikil. 
Framsóknarflokkurinn leggur til að uppboðs- og fyrningarleiðinni sem fiskveiðistjórnunartæki verði hafnað. Greidd verða atkvæði um það á flokksþinginu eftir hádegi hvort stöðva beri viðræðuferli við Evrópusambandið nú þegar.
Tveir menn eru grunaðir um að hafa greitt fyrir kynlíf með ólögráða dreng. Annar mannanna er kennari við Fjölbrautarskóla Vesturlands.
Tveir féllu þegar egypski herinn lét til skarar skríða gegn mótmælendum á Tahrir-torgí í Kaíró í nótt. Mótmælendur krefjast þess að Mubarak fyrrverandi forseti verði sóttur til saka og að komið verði á borgarlegri stjórn í landinu.
Erlendir sérfræðingar munu fara yfir störf Seðlabankans í aðdraganda hrunsins og koma með tillögur til úrbóta. Seðlabankastjóri segist að nokkru leyti sammála efnahags- og viðskiptaráðherra um að bankinn hafi ekki gefið fullnægjandi skýringar. 
Keflavík varð í gærkvöldi Íslandsmeistari í körfuknattleik kvenna eftir sigur á grönnum sínum í Njarðvík.  Keflavík sigraði í öllum þremur leikjum einvígisins.
Veðuhorfur: Sunnan- og suðaustanátt, víða 10-15 metrar. Rigning eða súld með köflum á sunnan og vestanverðu landinu, annars skýjað að mestu. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast á Norður og austurlandi. Vaxandi sunnanátt á morgun, víða fimmtán til tuttugu og þrír metrar eftir hádegi og rigning, en þurrt norðaustantil. Kólnandi þegar líður á daginn, slydda eða snjókoma til fjalla seinnipartinn.</description>
Hádegisfréttir 08.Apríl 2011
      <description>Fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Noregi segist hafa orðið þess áskynja í janúar árið 2008 að bankinn riðaði til falls.  Hann flutti þá í annan banka, jafnvirði 15 milljarða íslenskra króna og var rekinn skömmu síðar.
Um tuttugu þúsund hafa kosið utan kjörfundar í Icesave-þjóðaratkvæðagreiðslunni. Sjálfur kjördagurinn er á morgun og flestir kjörstaðir verða opnaðir klukkan níu í fyrramálið. 
Skotvopnasalar um allt land hafa verið varaðir við því að glæpamenn gætu reynt að komast yfir byssur og skotfæri. Lögreglan heimsótti fjölmarga sölustaði í gær og fór yfir öryggismál. 
Það stefnir í hörð átök um Evrópusambandsumsókn á flokksþingi Framsóknarflokksins. Þá verða atvinnumálin í  brennidepli en yfir átta hundruð manns sitja þingið.
Hafnarfjarðarbær gat ekki greitt af fjögurra komma tveggja milljarða láni sem var á gjalddaga í gær.
Nýtt leikverk eftir Ólaf Hauk Símonarson verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu í kvöld. Höfundurinn umritaði verkið níutíu og sex sinnum, áður en lokaútgáfan varð til. 
Eygló Ósk Gústafsdóttir setti í morgun Íslandsmet í 200 metra baksundi og stórbætti eldra met sitt.
Veðurhorfur: Sunnan og suðvestan fimm til þrettán metrar, hvassast norðvestantil. Rigning eða súld með köflum sunnan og vestantil. Sunnan- og suðaustanátt á morgun, yfirleitt átta til fimmtán og heldur úrkomumeira, en skýjað með köflum norðan og austanlands. Hiti fimm til þrettán stig, en sjö til sextán á morgun, hlýjast á Norður- og Austurlandi.</description>
Hádegisfréttir 07.Apríl 2011
      <description>Baldur Guðlaugsson var í morgun dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir innherjasvik. Hann þarf auk þess að endurgreiða tæpar 200 milljónir  sem hann fékk fyrir hlutabréf sín í Landsbankanum rétt fyrir hrun.
Þorvarður Davíð Ólafsson var í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps. Hann misþyrmdi föður sínum Ólafi Þórðarsyni á heimili hans um miðjan nóvember.  
Hlutur gamla Landsbankans í Iceland Foods verslanakeðjunni gæti reynst mun verðmætari en gert hefur verið ráð fyrir. Skilanefnd bankans undirbýr nú sölu á þessari eign. 
Kostnaður við Icesave samningagerð nemur rúmlega þrjú hundruð milljónum króna vegna kaupa á erlendri sérfræðiþjónustu. Kostnaður innanlands nemur nokkrum tugum milljóna. Þetta upplýsti fjármálaráðherra á Alþingi í morgun.
Ríkisstjórn Portúgals hefur beðið Evrópusambandið um neyðarlán vegna efnahagsástandsins í landinu. Talið er að Portúgalar þurfi allt að 80 milljarða evra aðstoð, jafnvirði um 13 þúsund milljarða króna.
Krafist verður áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir mönnunum tveimur, sem sakaðir eru um að hafa níðst á sjö ára dreng. Mennirnir neita báðir sök. 
Þinglýstir kaupsamningar fasteigna eru nú helmingi fleiri en á sama tíma í fyrra. Forstöðumaður hagfræðistofnunar segir fasteignaverð hafa lækkað mikið frá hruni með tilliti til verðbólgu.
Aðeins nokkur hundruð menn eru nú eftir í herliði Laurents Gbagbos, sitjandi forseta Fílabeinsstrandarinnar. Ofsafengnir bardagar brutust út þegar andstæðingar hans reyndu að skjóta sér leið inn í forsetahöllina.
Veðurhorfur: Vaxandi suðvestanátt með rigningu og síðar skúrum, víða þrettán til tuttugu metrar síðdegis. Hægari og úrkomulítið á Austurlandi, en hvessir þar í kvöld. Hiti þrjú til tíu stig. Lægir í nótt, fyrst vestantil. Sunnan- og suðvestan fimm til þrettán og lítilsháttar væta á morgun, en þurrt á austanverðu landinu. Heldur hlýnandi.</description>
Hádegisfréttir 06.Apríl 2011
      <description>Ríkið tekur að öllum líkindum við umsjón framhaldskennslu í tónlist. Þetta þýðir að Reykjavíkurborg þarf ekki að skera eins mikið niður í tónlistarkennslu og upphaflega var gert ráð fyrir.
Sjötíu og þremur uppsögnum skólastjórnenda í Reykavík hefur verið frestað. Meirihlutinn hafnaði á borgarstjórnarfundi í gær tillögum VG og Sjálfstæðismanna um að draga sameiningaráform til baka. 
Landsstjórnin í Færeyjum hefur ekki lengur meirihluta á lögþinginu eftir að Fólkaflokkurinn dró sig út úr stjórnarsamstarfinu í morgun. Reynt verður að koma lykilmálum í gegnum þingið áður en boðað verður til kosninga.
Framkvæmdastjóri aflþynnuverksmiðju Becromal við Akureyri hefur sagt upp störfum.
Einar K. Guðfinnsson, þingmaður, segir merkilegt að ríkisstjórnin þurfi að funda sérstaklega á Ísafirði til að ákveða að svíkja ekki gömul loforð til Vestfirðinga.
Hermenn  Ouattara (Wattara) réttkjörins forseta Fílabeinsstrandarinnar hertóku bústað, Laurents Gbabgos (Bagbós)  fráfarandi forseta  í morgun. Gbabgo er sagður hafast við í byrgi undir bústaðnum.
Umboðsmaður alþingis hefur krafið fjármálaráðherra svara við því hvers vegna fyrirspurnum fjölmiðla um kostnað vegna Icesave hefur ekki verið svarað. Ráðuneytið vill ekki tjá sig um málið fyrr en bréf umboðsmanns hefur borist ráðuneytinu í pósti.
Forsvarsmenn Hróarskelduhátíðarinnar hafa tilkynnt hvaða íslensku hljómsveitir spila á hátíðinni í ár. 
Veðurhorfur: Suðvestan fimm til þrettán metrar og skúrir eða slydduél, en þurrt á Austurlandi. Hvessir við suðurströndina síðdegis. Hiti eitt til átta stig, en vægt næturfrost norðaustanlands. Gengur í suðvestan tíu til átján metra á morgun. Rigning og síðar skúrir, þó síst norðaustan og austanlands. Heldur hlýnandi.</description>
Hádegisfréttir 05.Apríl 2011
      <description>Arion-banki og Íslandsbanki verða stærstu eigendur Enn-Eins samkvæmt samkomulagi sem er í burðarliðnum. Ekki er enn ljóst hvort nokkuð verður afskrifað.  
Kjaraviðræður halda áfram, og eru fundir áætlaðir í allan dag. Verslunareigendur eru uggandi vegna hækkunar lægstu launa.
Ríkisstjórnin fundar á Ísafirði í dag. Þar verða kynnt áform um að efla atvinnu, menntun og velferð á Vestfjörðum. Forsætisráðherra segir að í þeim felist þó engin stór verkefni. 
Tveir karlmenn eru í haldi lögreglu vegna gruns um að þeir hafi níðst kynferðislega á syni annars þeirra. Drengurinn er sjö ára.  
Talsmaður Líbíustjórnar segir að semja megi um nýja stjórnarskrá í landinu og að kosningar verði haldnar; en Gaddafi verði áfram í forystu. 
Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum vill að  sérleyfi Herjólfs til siglinga í Landeyjahöfn verði fellt úr gildi; smærri skip geti annast farþegaflutninga.
Enn eru dæmi um að ungir afbrotamenn séu vistaðir í fangelsum með fullorðnum. Vegna þess, er ekki hægt að binda Barnasáttmála sameinuðu þjóðanna í lög. 
Borgarstjóri telur að laða megi erlenda ferðamenn til landsins í desember, með því að sýna feitasta kött landsins sem jólakött í Húsdýragarðinum.</description>
Hádegisfréttir 04.Apríl 2011
      <description>Samdrætti í íslenska hagkerfinu er lokið samkvæmt þjóðhagsspá. Gert er ráð fyrir tveggja komma þriggja prósenta hagvexti á þessu ári og að fjárfestingar stóraukist.  
Staðan í kjaraviðræðunum er mjög brothætt  segir formaður Rafiðnaðarsambandsins. Það flæki málið meðal annars að ríki og sveitarfélög tregðist við að hækka lægstu laun. 
Barrack Obama forseti Bandaríkjanna hefur ákveðið að bjóða sig fram til endurkjörs á næsta ári. 
Fái bandarísk stjórnvöld upplýsingar um Birgittu Jónsdóttur af samskiptasíðum á Netinu mun það hafa skaðleg áhrif á störf þingmanna um allan heim. Þetta segir framkvæmdastjóri Alþjóðaþingmannasambandsins. 
Að minnsta kosti 5 féllu og mörg hundruð særðust þegar lögreglan í Jemen  skaut á stjórnarandstæðinga sem efndu til mótmæla í morgun og  í nótt .
Háttsettur sendimaður Gaddafis einræðisherra er á ferð um Grikkland og Tyrkland og reynir að koma á samningaviðræðum um  að endi verði bundinn á bardaga í Líbíu.
Ríkisskattstjóri gekk alltof langt í tilraunum til skattlagningar þegar hann skattlagði fyrrverandi starfsmann Kaupþings vegna hagnaðar sem aldrei varð. Þetta segir sérfræðingur í skattarétti.
Veðurhorfur: Austlæg átt, þrír til átta metrar og bjartviðri, en stöku él austantil í fyrstu. Vaxandi austanátt þegar líður á daginn, tíu til átján sunnantil síðdegis, hvassast við ströndina og rigning, en þykknar upp fyrir norðan. Hægari vindur í nótt og víða rigning. Fremur hæg suðvestlæg eða breytileg átt á morgun og rigning með köflum. Hiti tvö til átta stig yfir daginn.</description>
Hádegisfréttir 03. Apríl 2011
Hádegisfréttir 02.Apríl 2011
      <description>Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir tillögur útvegsmanna sem kynntar voru ráðherra í gær fela í sér tilslakanir frá fyrri hugmyndum.  Kjaraviðræður SA og ASÍ halda áfram í dag. 
Þeir sem hafa fengið undanþágu frá reglum sem gilda um ríkisborgararétt hafa fengið hana af mannúðarástæðum. Þetta segir fjármálaráðherra. Réttindi sem þessi eigi ekki að ganga kaupum og sölum.
Starfsmenn Rauða krossins segja að mikil fjöldamorð hafi verið framin í borginni Duekoue á Fílabeinsströndinni í vikunni. Minnst átta hundruð liggi í valnum eftir blóðug átök ættbálka.
Sextíu og fimm starfsmenn hjúkrunarheimilisins Sólvangs í Hafnarfirði fengu uppsagnarbréf í gær. Samtals verður fækkað um nítján stöðugildi. Fimmtíu starfsmönnum er boðið lægra starfshlutfall.
Velferðarráðherra segir nauðsynlegt að samræma betur reglur um ráðningar á grundvelli jafnréttislaga. Erfitt sé að vinna í umhverfi þar sem niðurstöður eru mismunandi eftir nefndum og dómsstigum.
Veðurhorfur:
Hæg suðvestlæg átt og dálitlar skúrir eða slydduél, en slydda norðvestantil fram yfir hádegi. Fremur hæg norðaustlæg átt á morgun og skúrir eða slydduél austanlands, en annars úrkomulíltið. Hiti að sjö stigum, hlýjast á Austfjörðum, en víða næturfrost í innsveitum.</description>
Veðurhorfur:
Hádegisfréttir 01.Apríl 2011
      <itunes:duration>25:00</itunes:duration>
Hádegisfréttir 31. Mars 2011
      <description>Náist ekki kjarasamningar í þessari viku á Alþýðusambandið að efna til mótmæla og stöðva vinnu um allt land. Þetta segir formaður Framsýnar stéttarfélags. Ríkisstjórnin kynnir í dag aðilum vinnumarkaðarins innlegg sitt í kjarasamninga.
Forsætisráðherra segir umsókn tíu auðugra Kanada- og Bandaríkjamanna um íslenskan ríkisborgararétt vekja áhyggjur og grunsemdir um tilganginn. Innanríkisráðherra segir að ríkisborgararéttur sé ekki til sölu.
Lögfræðingur auðmannanna, sérhæfir sig í að hjálpa fólki til að greiða sem minnstan skatt af tekjum sínum. 
Ný námstækifæri fyrir allt að þúsund nemendur verða til ef tillögur samráðshóps um vinnumarkaðsmál ná fram að ganga. Þá á að gera atvinnuátak sem gæti sparað ríkinu rúmar fjögur hundruð milljónir króna, að mati hópsins.
Uppreisnarmenn á Fílabeinsströndinni sækja fram gegn stjórnarhernum. Öryggisráðið samþykkti í gærkvöld refsiaðgerðir gegn Gbagbo (Gúbagbó) sitjandi forseta.
Eina lausnin fyrir foreldra barna sem verða fyrir einelti er oft að flytja barnið í annað hverfi.  Mikið álag hefur verið undanfarið á Regnbogabörnum, fjöldasamtökum gegn einelti. 
Um fjörutíu og tvö þúsund grunnaskólabörn lögðu við hlustir,  þegar ný íslensk smásaga var flutt á Rás 1 í morgun.
Veðurhorfur: Suðaustan þrír til tíu metrar, en átta til þrettán á suðvesturhorninu seinnipartinn og fram eftir kvöldi. Rigning með köflum í flestum landshlutum og hiti yfirleitt á bilinu þrjú til átta stig. Naustlægari norðvestantil seint á morgun.</description>
Hádegisfréttir 30.mars 2011
      <description>Samkeppniseftirlitið hefur sektað Vífilfell um tvö hundruð og sextíu milljónir króna fyrir að gera samninga sem skuldbundu viðskiptavini til að kaupa eingöngnu gosdrykki frá fyrirtækinu. Vífilfell gerði hundruð slíkra samninga.
Forsætisráðherra segir að stjórnvöld kynni á morgun hvað þau leggi til kjarasamninga. Aðgerðirnar verði dýrar en gætu lagt grunninn að þriggja ára kjarasamningi. 
Kjarnaofnunum fjórum í Fukushima-kjarnorkuverinu í Japan sem ekki hefur tekist að ná stjórn á verður endanlega lokað. Ekkert lát er á geislamengun í hafinu við  kjarnorkuverið.
Tæplega fjórtán milljarða króna hagnaður Orkuveitunnar í fyrra eru bara tölur á blaði, segir forstjóri fyrirtækisins. Næstu fimm árin þarf Orkuveitan að borga yfir hundrað milljarða króna í afborganir af lánum. 
Uppreisnarmenn hafa hörfað  undan  hersveitum  Gaddafs einræðisherra í Líbíu  í  olíubænum Ras Lanuf í morgun. Vesturveldin íhuga að senda uppreisnarmönnum vopn.
Tjón af völdum hestapestarinnar sem lagðist á íslenska hrossastofninn í fyrra nemur mörg hundruð milljónum króna. Beint tap af fækkun útfluttra hesta er 260 milljónir.
Fyrsti fundur stjórnlagaráðs er áætlaður sjötta apríl. Allir nema einn, sem kosnir voru í ógiltum kosningum til Stjórnlagaþings, hafa þegið sæti.
Njarðvík komst  í gærkvöld í fyrsta sinn í úrslit Íslandsmóts kvenna í körfubolta þegar liðið lagði Hamar að velli í oddaleik sem fór fram í Hveragerði.
Veðurhorfur: Austan átta til fimmtán metrar og rigning víða um land í dag, einkum þó sunnanlands. Hægari og úrkomuminna í kvöld og nótt, en aftur rigning á morgun. Hiti þrjú til átta stig, en svalara norðan og austantil fram eftir degi.</description>
Hádegisfréttir 29.mars 2011
      <description>Lögreglan í Lúxembourg gerði í dag húsleit á fimm stöðum vegna rannsóknar sérstaks saksóknara og bresku efnahagsbrotalögreglunnar á falli Kaupþings.
Saminganefnd Alþýðusambands Íslands fundar nú um þá ákvörðun Samtaka atvinnulífsins að hætta við að ljúka kjarasamningum vegna ráðaleysis ríkisstjórnarinnar. Fulltrúar í nefndinni segja afstöðu SA hafa komið sér í opna skjöldu og óvíst sé um framhaldið.
Rétt rúmar sex milljónir króna sparast á þessu ári verði hrint í framkvæmd öllum sameiningartillögunum meirihlutans í Reykjavík fyrir leik- og grunnskóla. 
Menntamálaráðherra varar Reykjavíkurborg við því að sameina leik- og grunnskóla og hvetur borgaryfirvöld til að taka mið afstöðu foreldra og starfsfólks  skólanna. Ráðuneytið muni nýta heimildir sínar til að fylgjast með áætlunum borgarinnar.
Borgaráð fjallar nú um viðamiklar aðgerðir til bjargar efnahag Orkuveitunnar. Til greina kemur að leggja fyrirtækinu til hátt í tíu milljarða króna, til að tryggja fjármögnun og afborganir lána. Gjaldskrárhækkanir eru ekki útilokaðar
Yfir 40 ríki og alþjóðlegar stofnanir taka í dag þátt í ráðstefnu í Lundúnum um neyðaraðstoð við Líbíu og um lýðræðisumbætur í landinu þegar Gaddafi einræðisherra hefur verið hrakinn frá völdum.
Tómas Ingi Tómasson, aðstoðarlandsliðsþjálfari undir tuttugu og eins árs liðsins í knattspyrnu segir erfitt að velja í hópinn fyrir Evrópumótið eftir sigurinn á Englendingum í gær.  Akureyri varð í gær deildarmeistari karla í handknattleik og KR vann Keflavík í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum úrvalsdeildar karla í körfuknattleik.
Veðurhorfur: Suðaustan átta til þrettán metrar og slydda eða snjókoma austast fram eftir degi. Annars hæg austlæg átt og víða dálítil súld, en þurrt norðanlands. Hiti að átta stigum. Austan og suðaustan átta til þrettán og rigning á morgun, þó síst norðaustanlands. Hiti þrjú til tíu stig.</description>
Hádegisfréttir 28.mars 2011
      <description>Orkuveita Reykjavíkur kemur ekki til álita sem lántaki, að mati Norræna fjárfestingabankans; lánshæfi fyrirtækisins sé óviðunandi. Þetta kemur fram í minnisblaði forstjóra Orkuveitunnar um leit fyrirtækisins að erlendu lánsfé.
Hafnarfjarðarbær mun greiða ríflega hálfan milljarð króna í vexti á þessu ári, ef samið verður um sjö prósenta vexti á endurfjármagnað lán, líkt og Reykjanesbær gerði fyrr í mánuðinum. Bæjarstjórinn í Hafnarfirði segir að samið verði um endurfjármögnun fljótlega.
Að minnsta kosti sjötíu létust í sprengingu í skotfæraverksmiðju í Jemen í morgun. Fjöldi almennra borgara hafði brotist þar inn til að verða sér úti um vopn.
Gistirými á vinsælum ferðamannastöðum hér á landi eru víða uppbókuð í sumar. Nýting gistirýmanna er hins vegar mjög sveiflukennd yfir árið segir framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar.
Um átta þúsund manns hafa skrifað undir yfirlýsingu þar sem skorað er á stjórnvöld að veita börnum sem verða vitni að heimilisofbeldi tilhlýðilegan stuðning. Talið er að um 2000 börn verði vitni að heimilisofbeldi hér á landi.
Stjarnan sigraði Snæfell í gærkvöldi í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik.  Þetta var fyrsta tap Snæfells á heimavelli í vetur.
Veðurhorfur: Austan fimm til tíu metrar við norður- og austurströndina. Slydda eða snjókoma norðaustantil og einnig suðaustanlands í kvöld, en úrkomulítið í öðrum landshlutum. Hiti að sjö stigum, en um eða undir frostmarki á norðaustur og austurlandi. Austan og suðaustan fimm til tíu á morgun, skýjað með köflum og rigning eða slydda suðaustanlands. Heldur hlýnandi</description>
Hádegisfréttir 26. Mars 2011
      <description>Tollverðir á Keflavíkurflugvelli handsömuðu karl og konu á þrítugsaldri í vikunni með 36 þúsund e-töflur og 4400 skammta af LSD í farangrinum. Aldrei áður hefur lagt hald á jafnmarga LSD-skammta í einu hér á landi.
Geislavirkni í sjónum úti fyrir Fukushima-kjarnorkuverinu í Japan er nú rúmlega þúsundfalt yfir heilsuverndarmörkum. 
Líklegt er að nýskipað stjórnlagaráð geri kröfu um að frumvarp þess um stjórnskipun verði lagt í þjóðaratkvæðagreiðslu, áður en Alþingi fær það til meðferðar. Meirihluti ráðsins kom saman á óformlegum fundi í morgun. 
Uppreisnarmenn í Líbíu hafa náð borginni Ajda-biya á sitt vald. Loftárásir alþjóðaherliðsins héldu áfram í nótt, þá sjöundu í röð.
Óásættanlegt er að gjaldeyrishöftin verði fyrst afnumin eftir tæp fimm ár. Þetta segir aðstoðar framkvæmdarstjóri Viðskiptaráðs Íslands.
Komið hefur í ljós að gerð Héðinsfjarðarganga var ríflega tveimur milljörðum króna dýrari en áður var talið.
Vegagerðin undirbýr að koma á farsímasambandi í Fáskrúðsfjarðargöngum, en alls óvíst er hvenær fjármagn fæst til verksins.
Keflavík tók forystuna í einvíginu gegn KR í undanúrslitum úrslitakeppni kvenna í körfubolta, þegar Keflavík vann þriðja leik liðanna í gærkvöld.
Veðurhorfur: Vestan 5-10 metrar á sec. Víða súld eða þokuloft vestan-lands, stöku slydduél norðantil, en skýjað með köflum suð-austanlands. Hiti 0 til 7 stig yfir hádaginn, hlýjast sunnanlands. Hægari vindur og svalara í nótt. Vestan 3-8 á morgun, sums staðar þokuloft vestantil, en annars þurrt að kalla.</description>
Hádegisfréttir 25.mars 2011
      <description>Umhverfisstofnun telur verksmiðju Becromal á Krossanesi við Eyjafjörð hafa brotið gegn þremur greinum starfsleyfis síns. Fyrirtækinu er gefinn frestur til fjórða apríl til að skila áætlun um umbætur. Mengað vatn frá verksmiðjunni getur haft alvarleg skammtímaáhrif á sjávarlífverur í Eyjafirði, segir fiskifræðingur.
Eyþór Arnalds, stjórnarmaður í Becromal, segir að fyrirtækið muni þegar í stað einhenda sér í að leysa málið og taka það föstum tökum. Hann gat þó ekki fullyrt að það heyri sögunni til að menguðu vatni verði dælt út í Eyjafjörð.
Fimm menn voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun dæmdir í fangelsi fyrir skotárás á heimili  í Reykjavík á aðfangadag. Einn þeirra var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi. 
Fólk sem býr í tuttugu til þrjátíu kílómetra fjarlægð frá kjarnorkuverinu í Fukushima í Japan hefur verið beðið að forða sér. Rannsókn er hafin á ástæðu þess að vatn í nokkrum kjarnakljúfum í verinu er mun geislavirkara en talið hafði verið. 
Karlmaður hefur verið kærður fyrir að greiða 12 ára dreng í Hafnarfirði þungt höfuðhögg. Vitni voru að árásinni. 
Á fjórða tug manna hefur verið yfirheyrður vegna rannsóknar lögreglu og Samkeppnisstofnunar, á meintu samráði Húsasmiðjunnar og Bykó. Rannsóknin er sú umfangsmesta sem samkeppnisyfirvöld hafa hrundið af stað. 
Sjötíu og fimm hafa fundist látnir eftir harðan jarðskjálfta í Búrma. Ráðamenn óttast að manntjón sé mun meira.
Akureyri verður enn að bíða eftir að tryggja sér deildarmeistaratitilinn í handknattleik karla en liðið gerði jafntefli við Hauka í gærkvöldi. FH minnkaði forskot Akureyrar í 4 stig með því að leggja Val.
Veðurhorfur: Hæg vestlæg eða breytileg átt. Yfirleitt skýjað á landinu og víða þokusúld á Suður- og Vesturlandi. Vestan 5-10 á morgun, bjartviðri austanlands, en annars súld eða þokuloft. Frost 0 til 5 stig um landið norðaustanvert, en annars hiti 0 til 6 stig.</description>
Hádegisfréttir 24.mars 2011
      <description>Tillaga um skipun stjórnlagaráðs var samþykkt á Alþingi nú rétt fyrir hádegi með 30 atkvæðum gegn 21,  Sex stjórnarliðar sátu hjá, þar af tveir ráðherrar, Ögmundur Jónasson og Jón Bjarnason.
Botni efnahagskreppunnar er náð og hægur vöxtur er framundan, samkvæmt endurskoðaðri hagspá Alþýðusambands Íslands fyrir þetta ár og næstu tvö. Heimilin búa áfram við þröngan kost þótt hagur þeirra vænkist nokkuð.
Loftárásir Vesturveldanna hafa ekki stöðvað sókn sveita Gaddafis Líbíuleiðtoga í borginni Misratah. Þær hafa nú náð hafnarsvæði borgarinnar á sitt vald.
Óvíst er um framhald viðræðna Sjúkratrygginga við sjálfstætt starfandi sérfræðilækna. Samningur við þá rennur út um næstu mánaðamót. 
Talið er að tugir mótmælenda kunni að hafa verið skotnir til bana í mótmælum í Sýrlandi undanfarna daga. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna vill óháða rannsókn á atburðunum.
Starfsmenn í verksmiðju Becromal í Eyjafirði greiða nú atkvæði um verkfallsboðun. Stjórnarmaður í Becromal segir stækkunaráform verksmiðjunnar í uppnámi, komi til verfkalls. 
Veðurhorfur: Austlæg átt, víða fimm til tíu metrar og dálítil snjókoma með köflum, rigning eða súld suðvestanlands, en lengst af þurrt norðaustantil. Hægviðri og skýjað á morgun, en áfram dálítil væta suðaustantil. Hægt hlýnandi veður og hiti að sex stigum á morgun, mildast syðst.</description>
Hádegisfréttir 23.mars 2011
      <description>Geislun hefur mælst í vatni í vatnshreinsistöðvum í Tókýó og er varað við því að gefa það kornabörnum. Bandaríkjamenn hafa bannað innflutning á matvælum frá hamfarasvæðunum í Japan og er búist við að fleiri ríki geri slíkt hið sama.
Forsætisráðherra braut jafnréttislög, samkvæmt úrskurði kærunefndar jafnréttismála, þegar hann skipaði karl í embætti skrifstofustjóra. Anna Kristín Ólafsdóttir, sem kærði ráðherra, segir úrskurðinn áfellisdóm yfir stjórnsýslu forsætisráðuneytisins. 
Orrustuþotur hafa gert árásir á sveitir Gaddafis við borgina Misrata og stöðvað sókn þeirra. Gaddafi segist ekki ætla að gefast upp þrátt fyrir árásir Vesturveldanna.
Samningaviðræður um kaup á MP-banka eru á lokastigi. Stjórnarformaður bankans segir dóm héraðsdóms í máli gegn Byr engin áhrif hafa á samningaviðræðurnar.
DV á nú í hádeginu að afhenda gögn sem blaðið hefur undir höndum frá fjárfestingafélaginu Horni, dótturfélags Landsbankans. Reynir Traustason ritstjóri kveðst  ekki munu gera það, þrátt fyrir fyrirmæli þess efnis í lögbannsúrskurði frá í gær. 
KR-konur jöfnuðu metin í undanúrslitaeinvígi sínu við Keflavík í körfubolta, með sigri á heimavelli í gærkvöld
Veðurhorfur: Norðvestan átta til þrettán metrar og stöku él norðaustanlands, en annars hægari vestlæg átt og úrkomulítið. Hægviðri í kvöld og nótt. Austan fimm til tíu og víða dálítil væta á morgun, en snjómugga fyrir norðan og austan. Frost að fimm stigum, en frostlaust syðst. Hlýnar heldur á morgun.</description>
Hádegisfréttir 22.mars 2011
      <description>Úrsögn Atla Gíslasonar og Lílju Mósesdóttur úr þingflokki VG styrkir stjórnarsamstarfið að mati Össurar Skarphéðinssonar. Jón Bjarnason harmar brotthvarf þeirra en telur það ekki veikja samstarfið.
Kjördæmaráð Vestmannaeyja auk stjórnar Vinstri grænna á Suðurnesjum hvetja Atla Gíslason til að víkja af þingi. Atli  segir þéttan meirihluta grasrótarinnar standa á bak við ákvörðun sína um úrsögn úr þingflokknum. 
Hersveitir Gaddafis, einræðisherra Líbíu, hafa í dag reynt að ná tveimur borgum í landinu á sitt vald. Hersveitir vesturveldanna vörpuðu sprengjum á skotmörk í Trípólí og víðar í gærkvöld og nótt.
Geislavirkni úr Fukushima-kjarnorkuverinu í Japan hefur mælst á Íslandi. Hún er í afar litlum mæli og langt undir hættumörkum
Fyrrverandi forseti Ísraels hefur verið dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir nauðgun og að hafa reynt að hindra framgang réttvísinnar.
Sex þúsund litlum og meðalstórum fyrirtækjum stendur nú til boða sérstök skuldaaðlögun sem getur falið í sér afskriftir skulda.   
Til greina kemur að víkka refsirammann fyrir brot sem varða vörslu og dreifingu efnis sem sýnir barnaníð, til samræmis við lög annars staðar á Norðurlöndum. Hámarksrefsing hér er tveggja ára fangelsi en sex ára fangelsi í Danmörku.
Veðurhorfur: Suðvestan átta til fimmtán metrar og víða él, en úrkomulaust austanlands. Lægir smám saman þegar líður á daginn og fer að draga úr ofankomu. Hæg norðvestanátt víðast hvar á morgun. Lítilsháttar él norðanlands og með vesturströndinni, en annars yfirleitt bjart veður. Frost víða að sex stigum.</description>
Hádegisfréttir 21.mars 2011
      <description>Atli Gíslason og Lilja Mósesdóttir hafa sagt sig úr þingflokki VG. Þau segjast ætla að taka afstöðu frá máli til máls um það hvort þau styðji ríkistjórnina. Foringjaræði ríki í íslenskum stjórnmálum. Þau segjast ekki geta samþykkt stuðning við ríkisstjórnina skilyrðislaust eins og farið hafi verið fram á. Ríkisstjórnin hefur eftir þetta stuðning 33 þingmanna. 
Þingflokkar bæði Vinstri grænna og Samfylkingarinnar hafa setið á fundum í allan morgun. Engin viðbrögð hafa borist frá formönnum eða þingmönnum við úrsögn þingmannanna. 
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra telur að mikill árangur hafi þegar náðst af hernaðaraðgerðum gegn Gaddafi einræðisherra í Líbíu. Hluti af höfuðstöðvum hans var gereyðilagður í loftárás í nótt. 
Aukin geislavirkni hefur mælst í matvælum sem framleidd eru nærri Fukushima-kjarnorkuverinu í Japan. Verkamenn lögðu sig í stórhættu í morgun þegar þeir tengdu rafmagn þar á ný. 
Neyðarlögin stóðust hvorki íslensk lög, stjórnarskrána né mannréttindasáttmála Evrópu að mati lögmanns Bayerische Landesbank. Aðalmeðferð í máli bankans, gegn ríkinu og Landsbankanum hófst í morgun. 
Fulltrúi Bankasýslu ríkisins í stjórn Arion banka, segist harma niðurstöðu stjórnar Bankasýslunnar um að endurnýja ekki umboð hans til áframhaldandi stjórnarsetu í bankanum. Stjórn Bankasýslunnar styður enn fulltrúa sinn í stjórn Íslandsbanka.
Veðurhorfur: Vestlæg eða breytileg átt, víða átta til þrettán metrar og él, þó síst austanlands. Hvessir við suðurströndina í kvöld, fimmtán til tuttugu í nótt. Vestlæg átt átta til þrettán á morgun og áfram él um landið vestanvert. Hiti að fjórum stigum á Suðurlandi, annars að sex stiga frosti.</description>
Hádegisfréttir 20.mars 2011
      <description>Loft- og flugskeytaárásir hafa verið gerðar á Líbíu síðan í gær til að lama loftvarnir Líbíumanna. Yfirmaður bandaríska herráðsins segir að flugbann yfir Líbíu hafi verið tryggt. Ekki sé vitað um neinar líbískar flugvélar lofti.
Bandaríkjaforseti ítrekaði að landher ráðist ekki inn í Líbýu þegar forsetinn heimilaði hernaðaraðgerðir gegn einræðisherranum.
Sjötíu og fimm milljarðar eru nú í vanskilum hjá Íbúðalaánsjóði. Megnið eru lán til einstaklinga en vanskil leigufélaga hafa aukist mjög hratt að undanförnu segir forstjórinn.
Forsætisráðherra segist vonast til að svartsýnisspá framkvæmdarstjóra Samtaka atvinnulífsins rætist ekki. Það sé meðal annars háð því að það takist að gera fjárfestingaáætlun í tengslum við kjarasamninga.
Starfsmaður á bílaverkstæði fékk töluverða reykeitrun þegar eldur kom upp á verkstæðinu við Smiðjuveg í Kópvogi, snemma í morgun. 
Yfirvöld í Japan telja að yfir 20 þúsund hafi farist í hamförunum þar á dögunu. Tveir fundust á lífi í húsarústum í Japan í morgun níu dögum eftir hamfarirnar.
Ekki verður hægt að anna eftirspurn eftir rafmagni með því að loka kjarnorkuverum í stórum stíl, að mati kjarnorkuverkfræðings. Um fjórtán prósent rafmagns í heiminum er framleitt úr kjarnorku.
Grásleppukarlar á Norðausturlandi eru að fá allt að tvö tonn af þorski í grásleppunetin á dag. Þeir sem ekki eiga þorskkvóta þurfa jafnvel að henda þorskinum.
Veðurhorfur: Austlæg átt, víða fimm til tíu metrar. Víða snjókoma eða él síðar í dag og rigning syðst. Úrkomulítið Vestan-lands í kvöld. Frost að tíu stigum en hiti að fimm stigum við suðurströndina síðdegis. Suðvestan fimm til þrettán á morgun, þurrt á austanverðu landinu, annars él. Hiti um eða undir frostmarki.</description>
Hádegisfréttir 19.mars 2011
      <description>Ríkissjóður gæti þurft að leggja Íbúðalánasjóði til um sextíu milljarða eigið fé en ekki þrjátíu og þrjá milljarða, eins og nýverið var samþykkt. Afskrifa þarf 48 milljarða hjá sjóðnum á næstu misserum samkvæmt nýjustu áætlunum. Þetta er þrjátíu milljörðum meira en talið var í haust. 
Íslendingar horfa fram á meira atvinnuleysi en búist var við og aukinn niðurskurð hjá hinu opinbera eða skattahækkanir, ef ekki tekst að koma hjólum atvinnulífsins í gang. Þetta segir framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. 
Leiðtogi uppreisnarmanna í Líbíu hvetur alþjóðasamfélagið til að bregðast skjótt við til verndar almennum borgurum í landinu. Hann segir hersveitir Gaddafis einræðisherra hafi ráðist á Benghazi og búast megi við hörmungum ef ekki verði tekið í taumana. 
Vatnsveita Hafnarfjarðar þarf að endurgreiða Alcan um 67 milljónir króna vegna endurútreiknings á vatnsgjaldi samkvæmt úrskurði innanríkisráðuneytisins. Í honum segir að gjaldtakan hafi verið ólögmæt.
Fyrrverandi vistmaður á Breiðavík segir að til þess að ná einhverri sátt í máli vistheimilabarna hefði ríkið átt að greiða öllum sem voru vistaðir á Breiðavík hámarks sanngirnisbætur, sex milljónir á einu bretti. Hann segir menn ósátta við að þrautir þeirra séu lítilsvirtar og að þeir þurfi sjálfir að standa í stappi til að fá sanngjarnar bætur. 
Japanskir sérfræðingar keppast nú við að koma kælikerfi Fukushima-kjarnorkuversins í gang. Stjórnarandstaðan í Japan hafnaði í morgun boði um þátttöku í ríkisstjórn til að sjá um uppbygginguna eftir hamfarirnar.
Það ætti ekki að koma neinum á óvart að uppsagnir hjá ríkinu vegna niðurskurðar bitni helst á konum segir velferðarráðherra. Þær eru mikill meirihluti starfsmanna heilbrigðis- og menntakerfisins. 
Rauða spjaldið fór sjö sinnum á loft í leik Vals og Fram í deildarbikarkeppni karla í knattspyrnu í gærkvöld.
Veðurhorfur: Norðan átta til þrettán, en suðvestan tíu til fimmtán suðaustanlands fram eftir degi. Snjókoma eða él, en slydda eða rigning og hiti að fimm stigum syðst. Styttir upp á Suður- og Vesturlandi eftir hádegi.</description>
Hádegisfréttir 18.mars 2011
      <description>Hernaðaraðgerðir Breta, Frakka, Bandaríkjamanna og fleiri þjóða gegn Líbíu, gætu hafist á hverri stundu í Líbíu. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gærkvöld ályktun um flugbann á Líbíu, sem heimilar loftárásir á landið. 
Landskjörstjórn tekur við úrskurðarvaldi Hæstaréttar um gildi kosninga, samkvæmt breyttum lögum um framkvæmd kosninga. 
Samtök atvinnulífsins standa enn fast á þeirri afstöðu að ganga ekki frá kjarasamningum á almennum vinnumarkaði, fyrr en lausn sem þeir sætta sig við hafi fengist í sjávarútvegsmálum. Á meðan hækki laun ekki. 
Japönsk stjórnvöld telja að kjarnorkuslysið í Fukushima kjarnorkuverinu sé orðið jafn alvarlegt og kjarnorkuslysið í Three Mile Island í Bandaríkjunum 1979.
Hugsanlegt er að menn sem hafa reynt að lokka börn upp í bíl til sín að undanförnu séu að gera að gamni sínu. Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hafa borist sjö ábendingar um slíkt á síðustu tveimur vikum.
Ensku liðin Chelsea og Manchester United mætast í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu, en dregið var í 8-liða og undanúrslitin fyrir hádegi í dag. 
KR-ingar unnu Njarðvík og Grindavík lagði Stjörnuna þegar úrslitakeppni karla í körfuknattleik hófst í gærkvöld.  Í úrvalsdeild karla í handknattleik tapaði Fram fimmta leik sínum í röð.
Veðurhorfur: Vestan og suðvestan átta til fimmtán metrar og éljagangur, en víða bjart veður austanlands. Lægir og úrkomuminna í kvöld. Suðvestan tíu til átján með slyddu og síðar rigningu sunnan og austanlands á morgun, en hægari norðaustanátt með snjókomu annars staðar. Frost að átta stigum, en hlánar sunnan og austanlands á morgun.</description>
Hádegisfréttir 17.mars 2011
      <description>Bandarískir sérfræðingar segja að mikil hætta sé á alvarlegri kjarnorkugeislun frá Fukushima kjarnorkuverinu. Hætta er á bráðnun í kjarnaofni. Íslendingum er ráðið frá því að ferðast til Japans.
Norræni fjárfestingarbankinn ætlar að fjármagna einn þriðja af Búðarhálsvirkjun. Það eru um sjötíu milljónir bandaríkjadala. Lánasamningurinn er háður því að Landsvirkjun takist að fá lán fyrir því sem eftir er. 
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ræðir í dag drög að ályktun um flugbann yfir Líbíu. Óttast er að hersveitir Gaddafis láti í dag til skarar skríða gegn uppreisnarmönnum, í borginni Bengasi höfuðvígi uppreisnarinnar.
Forsætisráðherra segir að koma þurfi fjárfestingum í 18 til 20 prósent af landsframleiðslu á næstu tveimur til þremur árum. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að ríkisstjórninni hafi mistekist að laða fjárfesta hingað til lands.
Búið er framlengja gæsluvarðhaldi yfir tveimur mönnum sem handteknir voru með amfetamínbasa í síðasta mánuði. Talið er að ætlunin hafi verið að framleiða metamfetamín úr basanum.
Um 250 starfsmenn taka þátt í þróun nýrra viðskiptahugmynda hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Mikil sóknarfæri eru í heilbrigðisþjónustu og tæknigreinum að mati forsvarsmanna. 
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, knattspyrnumaður, er genginn í raðir sænska liðsins Nörrköping.  Hann samdi við ÍBV í síðasta mánuði en nýtti sér ákvæði í samningi sínum um að yfirgefa félagið kæmi tilboð að utan.
Veðurhorfur: Suðvestan átta til fimmtán metrar og éljagangur, en bjart austanlands. Dregur úr vindi seinnipartinn og í kvöld, en aftur strekkingur á morgun með éljum,
einkum vestanlands. Frost eitt til tíu stig.</description>
einkum vestanlands. Frost eitt til tíu stig.</itunes:summary>
Hádegisfréttir 16.mars 2011
      <description>Eldur kom upp að nýju í morgun í byggingunni sem hýsir kjarnakljúf fjögur í Fukushima-kjarnorkuverinu í Japan. Allir starfsmenn voru fluttir á brott um tíma vegna geislamengunar.
Starfsstöð Icelandic Group í Tókýó er vart starfhæf eftir hamfarirnar í Japan. Sölumaður hjá Icelandic segir að aðeins tveir starfsmenn verksmiðju sem keypti mikið af Íslendingum, hafi lifað af. 
Seðlabankastjóri telur sérstakt tilefni til að sýna aðgæslu í peningastefnunni um þessar mundir vegna óvissu um losun gjaldeyrishafta og þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ræðir í dag ályktunartillögu um flugbann yfir Líbíu. Herlið Gaddafis einræðisherra sækir nú fram í átt að borginni Bangashi sem er höfuðvígi uppreisnarmanna.
Félagi í Lífeyrissjóði verslunarmanna hyggst stefna stjórn sjóðsins vegna mögulegra brota í starfi. Hann vill að sjóðurinn borgi málareksturinn, enda geti hann höfðað skaðabótamál hafi ekki verið farið að lögum.
Rannsókn lögreglu á hvað kom fyrir konu sem fannst meðvitundarlaus í bíl við Einholt í Reykjavík í síðasta mánuði hefur lítinn árangur borið. 
Héraðsdómur Reykjavíkur ógilti í morgun úrskurð Útlendingastofnunar og Innanríkisráðuneytis um að neita erlendri konu um dvalarleyfi á Íslandi, á þeirri forsendu að hún væri í málamyndahjónabandi. 
Veðurhorfur: Búist er við mikilli úrkomu á landinu. Vestlæg eða breytileg átt, þrír til tíu metrar og víða dálítil snjókoma eða él, en slydda eða rigning suðaustantil. Gengur í norðvestan tíu til átján um landið austanvert í kvöld með mikilli ofankomu um tíma á Austfjörðum. Dregur úr vindi og úrkomu seint í nótt. Suðvestan fimm til tíu á morgun og él, en þurrt austanlands. Frost að sjö stigum, en um frostmark við suðausturströndina.</description>
Hádegisfréttir 15.mars 2011
      <description>Mikið af geislavirkum efnum barst út í andrúmsloftið þegar kviknaði í eldsneytistanki við kjarnaofn í Fukushima kjarnorkuverinu um 200 kílómetra norðan við Tokýó morgun.  Skelfing greip um sig í höfuðborginni.
Allir sem handteknir voru í gær vegna rannsóknar á meintu ólöglegu samráði Byko og Húsasmiðjunnar eru nú frjálsir ferða sinna. 17 voru yfirheyrðir en ekki var farið fram á gæsluvarðhald yfir neinum þeirra. 
Bæjarfulltrúar á Seltjarnarnesi fá ekki afhenta eineltisskýrslu um fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá bænum, nema gegn greiðslu einnar komma sex milljóna króna. Þeim býðst að skoða hana á skrifstofu lögmanns hans. 
Borgarfulltrúi Vinstri grænna furðar sig á því að borgarstjóri, sem sé í vikufríi erlendis til að kynna kvikmynd, verði ekki á borgarstjórnarfundi í dag þar sem ræddar verði tillögur um sameiningu leik- og grunnskóla. 
Innflytjendum hér á landi fækkaði um fimm hundruð í fyrra. Pólverjar eru sem fyrr langfjölmennasti innflytjendahópurinn.
Í fréttatímanum verður sagt frá arfgengi sönglistar meðal músa og frískur músastrákur tekur lagið. 
Búist er við að Vopnfirðingar fái undanþágu frá reglum um byggðakvóta. Aðeins á eftir að afgreiða málið formlega innan sjávarútvegsráðuneytisins. Smábátasjómenn á Vopnafirði hafa samþykkt að greiða sveitarfélaginu 6 sex til sjö krónur fyrir hvert kíló sem þeir draga á land.
Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi hefur tryggt sér kvikmyndaréttinni að draugasögunni Ég man þig, nýjustu bók Yrsu Sigurðardóttur.
Veðurhorfur: Sunnan og suðvestan þrettán til tuttugu og þrír metrar, hvassast um landið norðvestanvert. Víða él, en léttir til norðaustan- og austanlands. Fer að draga úr vindi síðdegis fyrst sunnantil. Vestlæg átt fimm til tíu á morgun. Dálítil él vestantil en snjókoma eða slydda um landið austanvert. Frost yfirleitt að sjö stigum, en frostlaust við austurströndina.</description>
Hádegisfréttir 14.mars 2011
      <description>Lík yfir þrjú þúsund fórnarlamba jarðskjálftans og flóðbylgjunnar í Japan hafa nú fundist. Á annan tug þúsunda er enn saknað.
Vatnsforði Fukushima kjarnorkuversins í Japan er á þrotum og erfiðlega gengur að kæla kjarnakljúfana. Sprenging varð í einu kjarnakljúfshúsi versins  í morgun.
Ferja þurfti tugi manna niður af Holtavörðuheiði í aftakaveðri í nótt. Átján bílar voru skildir eftir. Fjörutíu ferðalangar gistu í Reykjaskóla. Þakplötur losnuðu af húsum í Eyjafirði í morgun.
Ríkissaksóknari fer fram á að Baldur Guðlaugsson verði dæmdur í tveggja ára fangelsi og að allur hagnaður Baldurs af sölu hlutabréfa í Landsbankanum verði gerður upptækur. Hann er sakaður um innherjasvik í aðdraganda bankahrunsins.
Rannsókn bresku efnahagsrannsóknalögreglunnar á lánum Kaupþings til Tchenguiz-bræðra teygir anga sína til fleiri landa en Íslands og Bretlands. Breskir fjölmiðlar segja frekari aðgerðir í undirbúningi. 
Formaður VR segir að unnið hafi verið gegn sér, frá því að hann tók við formennsku fyrir tveimur árum. Ásakanir um þrúgandi andrúmsloft meðal starfsmanna sé birtingarmynd þeirrar baráttu sem nú eigi sér stað um formennsku í félaginu.
Íslenska karlalandsliðið í handknattleik þarf að vinna Letta og Austurríkismenn í lokaleikjum sínum í undankeppni Evrópumótsins í júní til að eiga möguleika á að komast í lokakeppni EM í janúar.
Veðurhorfur næsta sólarhringinn: Sunnan eða suðvestan fimmtán til tuttugu og þrír metrar á sekúndu, hvassast vestanlands en austantil síðdegis. Rigning vestantil og talsverð rigning sunnantil á landinu, annars úrkomuminna. Hiti tvö til níu stig, en kólnar í kvöld með éljum. Suðvestanátt í nótt og á morgun, víða þrettán til tuttugu og él, en úrkomulítið austan og norðaustanlands. Frost að fimm stigum en frostlaust við suður og austur ströndina.</description>
Hádegisfréttir 13.mars 2011
      <description>Óttast er alvarlegt kjarnorkuslys í Japan og hættu á annari sprengingu í kjarnorkuveri í Fukushima. Yfirvöld telja að yfir 10 þúsund manns kunni að hafa farist í hamförunum þar í fyrradag. Forsætisráðherra Japans segir þetta alvarlegasta ástand sem upp hafi komið í landinu frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar.
Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar undirbýr frekari húsleitir vegna rannsóknar embættisins á falli Kaupþings. Breska dagblaðið Telegraph greinir frá þessu í dag. 
Varaformanni stjórnar VR hefur verið falið að kanna sérstaklega ásakanir um einelti og rotið vinnuumhverfi á skrifstofum félagsins. Málið var tekið sérstaklega fyrir á stjórnarfundi fyrir helgi.
Uppreisnarmenn í Líbíu flýja nú olíuborgina Brega eftir að sveitir Gaddafis lögðu hana undir sig í morgun. Her Gaddafis sækir nú einnig að borginni Misrata.
Áætlanir gera ráð fyrir að launakostnaður Fjármálaeftirlitsins aukist um 42 prósent í ár.  Forstjóri eftirlitsins segir hækkunina til komna vegna fjölgunar starfsmanna. 
Engin viðbragðsáætlun er til fyrir búfé og gróður í náttúruhamförum. Búnaðarsamband Suðurlands ætlar að beita sér úrbótum.
Áræðni og góð byrjun er lykill að sigri, segir Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari karla í handknattleik, en Ísland leikur gegn Þýskalandi ytra í dag. 
Veðurhorfur: Vaxandi suðvestanátt, víða tíu til átján metrar síðdegis en 15-23 vestanlands í kvöld. Él eða slydduél, en bjartviðri um landið austanvert. Slydda eða rigning um landið vestanvert seint í kvöld. Frost 0 til 12 stig en hlýnar smám saman í dag, einkum vestantil. Talsverð rigning um landið sunnan- og vestanvert í nótt og á morgun, en annars úrkomuminna. Hiti víða 2 til 7stig.</description>
Hádegisfréttir 12.mars 2011
      <description>Mikil sprenging varð í kjarnorkuveri í Japan í morgun og hefur neyðarástandi verið lýst yfir vegna mikillar geislavirkni. Ljóst er að minnst þrettán hundruð hafa týnt lífi í kjölfar jarðskjálftans sem varð í gær.
Viðbúnaðarstjóri Geislavarna ríkisins segir viðbrögð sarfsfólks í kjarnorkuverinu í Fukushima ráði því hvort tekst að ná tökum á ástandinu. Ekki sé hægt að útiloka alvarlegt slys.
Ragnar Önundarson hefur sagt sig úr stjórn Framtakssjóðs Íslands. Hann vísar öllum ásökunum í sinn garð á bug.
Hart hefur verið barist við olíubæinn Ras Lanuf í Líbíu í morgun og neyddust sveitir uppreisnarmanna til að hörfa eftir loftárás hersveita Gaddafis.  
Lögmaður Birgittu Jónsdóttur alþingismanns segir að niðurstöðu alríkisdómara í Virginíu verði áfrýjað. Dómarinn hafnaði því að fella úr gildi ákvörðun sem skyldar Twitter-samskiptasíðuna til að afhenda bandarískum yfirvöldum upplýsingar um netsamskipti Birgittu.
Um þrjú hundruð manns mættu á fund með borgarstjóra Reykjavíkur í Rimaskóla í morgun þar sem fyrirhuguð sameining leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila var kynnt.  
Bifreiðar, hjólhýsi, húsgögn og fatnaður voru á meðal varnings sem boðinn var upp á vöruhóteli Eimskips í morgun.
Veðurhorfur:  Víða breytileg átt 3-8 metrar og stöku él norðaustantil annars víða léttskýjað en hvassari suðvestlæg átt á Vestfjörðum og éljagangur þar í dag. Snjómugga vestanlands undir kvöld. Vaxandi suðvestanátt á morgun, víða 10-18 metrar síðdegis en 15-23 vestanlands annað kvöld. Él eða slydduél, en bjartviðri um landið austanvert. Frost 3 til 12 stig, kaldast til landsins. Hlýnar smám saman á morgun.</description>
Hádegisfréttir 11. Mars 2011
      <description>Óttast er að fjöldi fólks hafi farist, þegar hamfaraflóð skall á austurströnd Japans við borgina Sendai.  Allt að 10 metra há flóðbylgja myndaðist við feikna- harðan jarðskjálfta, undan ströndinni um miðjan dag að staðartíma. Skjálftinn var 8 komma 9 á Richter. Bílar, bátar og hús sópuðust burt, og  eldar kviknuðu, m.a. í kjarnorkuveri. 
Vitað er um rúmlega fimmtíu Íslendinga í landinu. Tekist hefur að ná í helming þeirra. 
Viðvörun um hamfaraflóð hefur verið gefin út, um gjörvallt Kyrrahaf allt til vesturstrandar Norður-, Mið- og Suður-Ameríku.
Búast má við þúsundum eftirskjálfta í Japan næstu vikur og mánuði, segir Freysteinn Sigmundsson jarðeðlisfræðingur. Jarðhræringarnar muni ekki hafa áhrif hér á landi.
Ragnar Önundarson varaformaður stjórnar Lífeyrissjóðs verslunarmanna hefur sagt sig úr stjórninni í kjölfar umfjöllunar um ólögmætt samráð kortafyrirtækja í Kastjósi í gær.
Íslensk stjórnvöld eru tilbúin til að slaka á kröfum sínum um 16 prósenta hlutdeild í makrílkvótanum gegn því að fá að veiða makríl í lögsögu ESB og Noregs. Þetta segir Tómas H. Heiðar, aðalsamningamaður Íslendinga í deilunni.
 Hersveitum Gaddafis í Líbíu vex ásmegin og talið er að þær reyni ætla að hertaka höfuðvígi uppreisnarmanna í dag.
Jóel Pálsson og Skúli Sverrisson eru tilnefndir til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2011 fyrir Íslands hönd.
Nýliðar Hauka urðu í gærkvöld síðasta liðið til að tryggja sér sæti í úrslitakeppni Íslandsmóts karla í körfuknattleik.
Veðurhorfur: Norðan átta til fimmtán metrar, en hvassara við norður og austurströndina. Þurrt sunnanlands, annars snjókoma eða él, einkum norðaustantil. Úrkomuminna síðdegis og
dregur úr vindi í kvöld. Víða breytileg átt fimm til tíu á morgun, en hvassari suðlæg átt á Vestfjörðum og éljagangur annars úrkomulítið en snjómugga vestanlands síðdegis. Frost þrjú til tólf stig, kaldast til landsins.</description>
Hádegisfréttir 10. Mars 2011
      <description>Breska efnahagsbrotalögreglan krafðist í gærkvöld tryggingar, áður en hún sleppti Tchenguiz-bræðrum, Sigurði Einarssyni og fjórum öðrum, sem handteknir voru ytra í gærmorgun. Yfirheyrslum vegna rannsóknarinnar verður haldið áfram í dag hjá Sérstökum saksóknara.
Vesturveldin ræða flugbann á Líbíu. Rússar leggjast gegn hernaðaríhlutun. Ekkert lát er á árásum hersveita Gaddafis einræðisherra á uppreisnarmenn.
Draga ætti úr áhættusækni bankastarfsmanna, með nýjum reglum sem Fjármálaeftirlitið hyggst setja fyrir mánaðamót. Samkvæmt þeim má kaupauki ekki vera meiri en fjórðungur af grunnlaunum. 
Fáir virðast hafa kynnt sér  Icesave-samningana að nokkru marki. Þrjátíu og sjö prósent landsmanna segjast hafa kynnt sér þá illa, en tuttugu og átta prósent  vel. Karlar hafa kynnt sér samninginn betur en konur.
Búnaðarþing krefst þess að stjórnvöld tryggi hagsmuni íslenskra bænda og að fæðuöryggi þjóðarinnar verði tryggt áður en lengra verður landið í aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Ályktun þessa efnis verður kynnt landbúnaðarráðherra.
Allt að áttatíu og fimm prósenta munur er á verði lausasölulyfja í apótekum, samkvæmt nýrri verðkönnun Alþýðusambandsins. Verðið var oftast lægst í Garðsapóteki við Sogaveg.
Veðurhorfur: Norðlæg átt, víða átta til þrettán metrar en heldur hvassara við norðausturströndina. Bjartviðri syðra, annars él. Frost fimm til þrettán stig, kaldast í innsveitum.</description>
Hádegisfréttir 09. Mars 2011
      <description>Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, kaupsýslumaðurinn Róbert Tchenguiz og sjö aðrir voru handteknir í morgun í viðamiklum aðgerðum bresku efnahagsbrotalögreglunnar. Húsleit var gerð á tólf stöðum í Lundúnum og Reykjavík.
Skriðdrekasveitir Gaddafis einræðisherra í Líbíu sækja nú inn í borgina Zawiyah. Margir eru sagðir hafa fallið. Bandaríkjastjórn segir að það sé Sameinuðu þjóðanna að ákveða hvort rétt sé að grípa til hernaðaríhlutunar í Líbíu.
Unnið er að því að stofna Landssamtök stofnfjárhafa sparisjóðanna. Samtökin ætla að berjast fyrir því að ráðist verði í opinbera rannsókn á sparisjóðakerfinu og undirbúa málshöfðun gegn fyrrverandi stjórnendum sjóðanna.
Framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Íslands segist ekki hafa haft minnsta grun um að nokkuð misjafnt kynni að vera í starfsemi Húsamiðjunnar en sjóðurinn eignaðist fyrirtækið um miðjan janúar. 
Sólóplata Jónsa í Sigurrós, Go, var valin besta rokkplatan þegar íslensku tónlistarverðlaunin voru afhent í gær. Hljómsveitin Dikta er flytjandi ársins og heiðursverðlaun hlaut Þórir Baldursson. 
Í fréttatímanum heyrum við meðal annars í álfum og húsdýrum sem fara um syngjandi á Akureyri í tilefni öskudagsins.
Andri Marteinsson var í morgun ráðinn þjálfari úrvaldeildarliðs Víkings í knattspyrnu karla.  Andri lét af störfum hjá Haukum í gærkvöldi og tekur við starfinu af Leifi Garðarssyni sem var sagt upp á dögunum.
Veðurhorfur: Norðlæg átt, átta til fimmtán metrar, hvassast norðaustantil. Él á norðanverðu landinu, en bjartviðri sunnan- og vestanlands. Kalt í veðri, frost yfirleit fimm til fjórtán stig.</description>
Hádegisfréttir 08. Mars 2011
      <description>Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra og Samkeppniseftirlitið gerðu í morgun húsleit í húsnæði Byko, Húsasmiðjunnar og Úlfsins byggingavara.
Bankastjórar Arion banka og Íslandsbanka sinntu ekki boði um að mæta á fund viðskiptanefndar í morgun. Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir milljarða hagnað bankanna ekki ganga upp, meðan fyrirtækjum og heimilum blæði út.
Ríkisstjórnin ræddi ofurlaun bankastjóra í morgun og ætlar á næstu dögum að athuga hvort gripið verður til sérstakra aðgerða. 
Landsdómur kemur í fyrsta skipti saman fyrir opnum tjöldum í Þjóðmenningarhúsinu klukkan eitt í dag. Dómurinn mun úrskurða í tveimur kærumálum. 
Bretar og Frakkar ætla leggja fram í Öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna  ályktun um flugbann yfir Líbíu. Gaddafi einræðisherra hefur boðist til að segja af sér, fái hann og fjölskylda hans að fara úr landi
Samtök Vítisengla eru bendluð við morð í Evrópu og segir tengifulltrúi Íslands hjá Europol, að mikilvægt sé að taka samtökin föstum tökum strax. Mjög alvarlegt sé að samtökin séu komin hingað til lands.
Flóttamannaráðherra Danmerkur var í morgun vikið úr ríkisstjórninni vegna brota danskra stjórnvalda á réttindum flóttafólks.
Meðalsnjódýpt í Reykjavík í morgun var átján sentimetrar sem mun vera það mesta í borginni í vetur. Engin teljandi óhöpp urðu í umferðinni. 
Veðurhorfur: Vaxandi norðanátt, fyrst norðantil, víða átta til fimmtán metrar síðdegis. Snjókoma á norðanverðu landinu, og él suðvestantil, en styttir upp þar seinnipartinn. Norðvestan fimm til fimmtán á morgun, hvassast við norðausturströndina. Él norðantil en bjartviðri syðra. Frost yfirleitt tvö til tíu stig</description>
Hádegisfréttir 07. Mars 2011
      <description>Fjögur útibú SpKef - á Ísafirði, í Ólafsvík, Grindavík og Reykjanesbæ - verða lögð niður og sameinuð útibúum Landsbankans. Önnur fjórtán útibú sjóðsins á landsvísu verða starfrækt áfram undir merki Landsbankans. 
Laun bankastjóra Arionbanka hafa hækkað um tvær og hálfa milljón króna, eftir að þau voru lækkuð verulega eftir hrun.  Forsætisráðherra segir enga siðlega rættlætingu á slíkum ofurlaunum. 
Herlið Gaddafis í Líbíu, hefur náð bænum Bin Jawal á sitt vald og sækir nú til olíuvinnslubæjarins Ras Lanuf. Uppreisnarmenn hafna viðræðum við stjórn Gaddafis.
Þriðjungur þeirra ábendinga sem borist hafa á heimasíðu Barnaheilla, um óæskilegt efni á netinu, eru vegna kynferðisofbeldis gegn börnum.  Fjórtán hundruð slíkar ábendingar bárust síðast liðinn áratug.
Formaður Björgunarfélags Hornafjarðar segir að menn verði að kynna sér veðurspá áður en þeir fari á fjöll. Þremur skíðamönnum var bjargað af Öræfajökli í nótt. Landsbjörg segir að öflug fjarskiptakerfi landsins hafi sannað gildi sitt um helgina. 
Flugfélag Íslands er tryggt fyrir tjóni sem varð á vél félagsins sem brotlenti á Grænlandi á föstudaginn. Félagið er hins vegar ekki tryggt fyrir tekjumissi sem hlýst af því að missa vélina úr rekstri leiðarkerfisins.
Tæplega þrjátíu prósent fullorðinna segja ósatt um hvað þeir gerðu um helgina samkvæmt nýrri breskri rannsókn. Helmingi fólks finnst helgarnar ekki nógu skemmtilegar.
Veðurhorfur: Suðvestan þrettán til tuttugu metrar og éljagangur, en bjart með köflum austanlands. Dregur heldur úr vindi í kvöld. Snýst í norðan átta til fimmtán og fer að snjóa norðan og austanlands á morgun. Hiti um og undir frostmarki, en kólnar í nótt og á morgun.</description>
Hádegisfréttir 06.Mars 2011
      <description>Sparisjóðakerfið  minnkar um helming við það að SpKef sparisjóður renni inn í Landsbankann. Forstjóri Bankasýslunnar vill skoða frekari sameiningu sparisjóða, jafnvel að sameina þá alla í einn. 
Vélsleðamanni var bjargað eftir nærri átta klukkustunda dvöl í snjófönn í gær. Félagi hans týndist á öðrum stað en tókst að moka sig upp úr gili á fjórum klukkutímum. Um áttatíu manna hópur björgunarsveitarmanna tók þátt  leitinni.
Misvísandi fregnir hafa borist í morgun frá Líbíu um hvort uppreisnarmenn eða herlið hliðholt Gaddafí  ráði lögum og lofum í helstu borgum landsins. Blóðugir bardagar geysa og talið að þeir hafi breiðst til höfuðborginnar Trípólí í morgun.
Brotthvarf stoðtækjaframleiðandans Össurar úr íslensku kauphöllinni mun hafa slæm áhrif, segir ritstjóri Frjálsrar Verslunnar. Nú hverfi eitt af aðeins þremur meiri háttar fyrirtækjum og fyrir vikið hafi fjárfestar úr færri kostum að velja.
Vindur við flugvöllinn í Nuuk var innan þolmarka farþegavélar Flugfélags Íslands sem hlekktist á í lendingu í fyrradag, segir forstöðumaður rannsóknarnefndar flugslysa. Fulltrúar danskra flugmálayfirvalda koma hingað til lands í dag og halda áfram til Grænlands um leið og færi gefst. 
Sómalskar sérsveitir búa sig undir að umkringja búðir sjóræningja sem rændu sjö Dönum fyrir tíu dögum. Ættingjar þeirra vilja ekki að gert verði áhlaup til að frelsa fólkið og vilja heldur semja við sjóræningjanna.
Ný stjórn hægriflokksins Fine Gael (Fíne Geil) og Verkamannaflokksins samdi í nótt um að mynda samsteypustjórn á Írlandi. Flokkarnir vilja báðir semja aftur neyðarlánið sem Írar fengu frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum fyrir áramót.
Veðurhorfur:
Suðvestanátt, víða þrettán til tuttugu og éljagangur, en þurrt Austan-lands. Hiti yfirleitt að fimm stigum í dag. Heldur kólnandi á morgun og dregur úr vindi síðdegis.</description>
Veðurhorfur:
Hádegisfréttir 05.Mars 2011
      <description>Flestir átta liðsmanna íslensku Vítisenglanna hafa kært norsk yfirvöld fyrir að þeim hafi verið vísað frá Noregi. Mennirnir eru margir  með langan brotaferil og hafa verið dæmdir fyrir fíkniefnabrot, ofbeldisbrot og fjársvik. 
Harðir bardgara hafa verið í helstu borgum Líbíu í morgun þar sem sveitir hliðhollar Gaddafí einræðisherra reyna að hrekja uppreisnarmenn á flótta. Bretar segja hersveit á þeirra vegum tilbúna að fara til landsins að veita mannúðaraðstoð. Hún taki þó ekki þátt í bardögum.
Verið er að reisa sambærilegt bankakerfi hér á landi og það sem var fyrir hrun. Vaðið sé áfram í blindni og hætta á að búnir verði til bankar sem ríkið þurfi síðað að bjarga. Þetta segir þingmaður framsóknarflokksins
Reykjavíkurborg neitar að taka aftur við úthlutuðum lóðum og endurgreiða lóðagjöld þrátt fyrir að hafa staðfest við marga lóðarhafa við úthlutun að hægt væri að skila lóðunum.
Einn farþeganna í flugvélinni sem brotlenti á Grænlandi í gær var fluttur á spítala með kviðverki. Flugvöllurinn í Nuuk er enn lokaður þar sem vélin er enn á flugbrautinni. 
Endurgera á Danslilju Harðar Ágústssonar, abstraktverk sem hann málaði  á vegg í bankaútibúi á Laugavegi árið 1954. Lefiar af gamla verkinu fundust á dögunum. 
Veðurhorfur næsta sólarhringinn:
Suðaustan fimmtán til tuttuguogþrír metrar og slydda eða rigning Sunnan- og Vestan-lands, heldur hægari og fer að snjóa fyrir norðan og austan. Hlýnandi veður. Allhvöss sunnanátt í kvöld, en stormur austast. Víða rigning eða slydda. Suðvestan þrettán til tuttugu og éljagangur á morgun, en þurrt Austan-lands. Hiti yfirleitt að fimm stigum.</description>
Veðurhorfur næsta sólarhringinn:
Hádegisfréttir 04.Mars 2011
Hádegisfréttir 03.Mars 2011
      <description>Áætlaður sparnaður Reykjavíkurborgar við sameiningu grunn- og leikskóla á næsta ári er innan við eitt prósent af heildarrekstrarkostnaði þeirra. 
Þingflokksformaður Framsóknarflokks segir ríkisstjórnina komna með nýja auglýsinganefnd til að kynna kosti Icesavae-samninganna. Efnahagsráðherra telur ekkert óeðlilegt við að Icesave-samninganefndin kynni útreikninga sína. 
Lögregluyfirvöld hafa miklar áhyggjur af skipulögðum glæpasamtökum hér á landi. Landssamband lögreglumanna segir boðaðar aðgerðir stjórnvalda gegn þeim löngu tímabærar.
Helstu eigendur og stjórnendur gamla Kaupþings börðust gegn því með kjafti og klóm að Sérstakur saksóknari fengi afhent gögn frá Lúxemborg. Þau bárust nú nýlega, eftir árs átök fyrir dómstólum ytra.
Forsætisráðherra segir að ef menn ætli að lækka opinbera skatta á eldsneyti þá verði að finna aðrar tekjur á móti.
Liðsveitir Gaddafis í Líbíu gerðu í morgun loftárásir á stöðvar uppreisnarmanna í tveimur bæjum í austurhluta landsins.
Úrskurður héraðsdóms um að Miyoko Watai hafi verið lögleg eiginkona Bobbys Fishers og því erfingi eigna hans, verður kærður til Hæstaréttar. 
Hamar úr Hveragerði varð í gærkvöld deildarmeistari kvenna í körfuknattleik í fyrsta sinn.
Veðurhorfur: Suðvestan tíu til átján metrar og rigning sunnan og vestantil í fyrstu, en síðan skúrir. Mun hægari austantil og þurrt að kalla. Suðvestan tíu til átján og él seinnipartinn, en hægari vestanátt í kvöld. Vestan tíu til átján á morgun, hvassast á annesjum fyrir norðan og stöku él, en þurrt suðaustan og austanlands. Hiti víða um eða undir frostmarki.</description>
Hádegisfréttir 02.mars 2011
      <description>Tveir fyrrverandi ráðuneytisstjórar og fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins bera vitni í dag í máli Baldurs Guðlaugssonar, sem sakaður er um innherjasvik í aðdraganda efnahagshrunsins. 
Sveitir Gaddafis hafa hafið gagnsókn gegn uppreisnarmönnum í austur-Líbíu. Bandarísk herskip eru á leið til landsins um Súes-skurðinn. 
Síminn hefur rekið níu manns fyrir brot í starfi. Upplýsingafulltrúi Símans segir þá hafa breytt þjónustuleiðum hjá nokkur hundruð viðskiptavinum án þess að fá samþykki þeirra fyrir því.
Samtök lánþega ætla að höfða mál gegn Lýsingu vegna rukkunar á vangreiddum vöxtum eftir endurútreikning á gengistryggðu bílaláni. Það er ólöglegt að innheimta vangreidda vexti af lánunum, segir talsmaður samtaka lánþega.
Sextíu og átta fengu uppsagnarbréf í hópuppsögnum fyrir mánaðamót. Bílaumboðið Hekla sagði upp tuttugu starfsmönnum og Heilsustofnunin í Hveragerði sagði upp 38. Búist er við að þeir verði endurráðnir til stofnunarinnar. 
Tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins segja brýnt að ríkið lækki skatta á eldsneyti til að sporna gegn verðhækkunum á því. Þeir hafa óskað eftir fundi í efnahags- og skattanefnd um málið.
Aðeins um fjórðungur frambjóðenda til stjórnlagaþings hefur skilað upplýsingum til Ríkisendurskoðunar um kostnað við kosningabaráttuna. Frestur rann út í fyrradag. 
Veðurhorfur: Vestlæg átt, fimm til þrettán metrar en hvassari í fyrstu austast. Él, en léttir til á norðaustur- og austurlandi síðdegis. Sunnan þrettán til átján með slyddu eða rigning vestantil í kvöld. Stíf suðvestanátt og skúrir eða él á morgun, en þurrt norðaustantil. Hiti yfirleitt að fimm stigum.</description>
Hádegisfréttir 01.mars 2011
      <description>Tillögur um hvaða grunn- og leikskólar í Reykjavík verða sameinaðir liggja fyrir og verða kynntar í borgarrráði á fimmtudag. Þrjátíu leiksskólar í borginni verða sameinaðir í fjórtán, verði tillögur samþykktar.
Hersveitir Gaddafis einræðisherra Líbíu fylkja liði í vesturhluta landsins og undirbúa sókn gegn stjórnarandstæðingum. Bandaríska flotanum er nú stefnt nær ströndum Líbíu.
Forseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík segir of mikið gert úr gengisáhættu í nýju Icesave samingunum. Aðrir áhættuþættir vegi mun þyngra. 
Skilanefnd Landsbankans hefur leyst til sín aðra lúxusíbúð Jóns Ásgeir Jóhannessonar í New York. 
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir það undir ríkisstjórninni komið hvort tekst að gera kjarasamninga til þriggja ára eins og stefnt sé að.
Tveir Barðastrandaræningjanna svokölluðu hlutu í morgun tveggja ára og tveggja og hálfs árs fangelsisdóma fyrir hrottalega árás á fjölskyldu í Reykjanesbæ í fyrra. Mennirnir eiga nú báðir eftir að afplána tæplega fimm ár í fangelsi.  
Ástráður Haraldsson telur sig njóta trausts til að sitja áfram í Landskjörstjórn þó að kjörstjórnin, sem hann var í forsvari fyrir, hafi sagt af sér eftir ógildingu stjórnlagaþingskosninga.
Gunnar Rúnar Sigurþórsson sem réði Hannesi Þór Helgasyni bana í Hafnarfirði í sumar, var í Héraðsdómi Reykjaness í morgun, talinn ósakhæfur og dæmdur til að sæta öryggisgæslu á viðeigandi stofnun.
Megas sendir frá sér nýja hljómplötu í næsta mánuði.  
Veðurhorfur: Stíf suðvestanátt og él, en þurrt norðaustan og austanlands. Hiti nálægt frostmarki. Suðlægari og rigning eða slydda síðdegis og í kvöld, einkum sunnan og vestanlands. Hlýnandi í bili.</description>
Hádegisfréttir 28.febrúar 2011
      <description>Afskriftir af lánum til sparisjóða á landsbyggðinni, vega þyngst í slæmri fjárhagsstöðu Byggðastofnunar.  Framkvæmdastjórinn segir að stofnunin sé enn að súpa seyðið af hruni fjármálakerfisins. Eiginfjárhlutfall er langt undir lögbundnu lágmarki
Utanríkisráðherrar  Bandaríkjanna, Evrópuríkja og Norður-Afríkuríkja koma saman  í Genf í dag - til að ræða  neyðaraðstoð við Líbíumenn og flóttafólk þaðan.
Ríkissaksóknari í Egyptalandi hefur sett Hosni Mubarak og fjölskyldu í ferðabann og fryst eignir þeirra. 
Jarðhitasvæðið á Reykjanesi hefur stækkað að mati jarðeðlisfræðings og jarðsprungum þar fjölgað eftir skjálftahrinu helgarinnar. Meira vatn kemst nú í snertingu við heitt berg.
Loðnusjómenn keppast við að ná sem mestu af verðmætustu loðnunni áður en það skellur á með brælu. Flest skipa flotans eiga eftir einn eða tvo túra til að klára kvótann.
Mynd um fjármálakreppuna, þar á meðal hrunið á Íslandi, fékk verðlaun sem besta heimildamyndin á Óskarsverðlaunahátíðinni í Bandaríkjunum í nótt. Konungsræðan var valin besta kvikmynd síðasta árs.
Veðurhorfur: Suðvestan tíu til átján metrar með skúrum og síðar éljum sunnan og vestanlands. Sunnan hvassviðri austast á landinu í fyrstu, en síðan hægari, skýjað með köflum og úrkomulítið. Kólnandi veður, fyrst vestantil. Heldur hægari og úrkomuminna í fyrramálið, en heldur vaxandi sunnan átt með rigningu um landið sunnanvert síðdegis og hlýnar aftur í veðri</description>
Hádegisfréttir 27. febrúar 2011
      <description>Snarpur skjálfti uppá fjóra á Richter, varð nálægt Krísuvík í morgun. Skjálftinn fannst víða á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi. Jarðskjálftahrina hefur verið á þessu svæði undanfarna sólarhringa og búist er við áframhaldandi virkni. 
Glæpasdómstól Sameinuðu þjóðanna verður falið að rannsaka ásakanir um að öryggissveitir Gaddafis einræðisherra Líbíu hafi drepið yfir þúsund mótmælendur síðustu daga. Öryggisráðið samþykkti í nótt víðtækar refsiaðgerðir gegn einræðisherranum. 
Fall sparisjóðanna má rekja til óheiðarlegra manna sem komust til valda og rændu sjóðina innan frá. Þetta segir fyrrverandi sparisjóðsstjóri, sem vill opinbera rannsókn á falli þeirra sem fyrst.
Foreldrar barna í Öskjuhlíðarskóla segja erfitt til þess að hugsa að nýjum sérkennsluskóla verði ekki útbúið viðunandi húsnæði. Þau segja hrópandi mun á aðstöðu skólans og annarra á vegum borgarinnar. 
Alþingi kýs nýja Landskjörstjórn á morgun í stað þeirrar sem sagði af sér eftir að Hæstiréttur ógilti kosninguna til stjórnlagaþings. Fulltrúar stjórnarliða verða í meirihluta.
Leifar af skordýraeitrinu DDT eru meðal þeirrar mengunar sem finnst í íslenska arnarstofninum. Mengun stofnsins kann að vera ein ástæða þess hversu illa arnarpörum gengur að koma upp ungum. 
Veðurhorfur: Suðvestanátt, víða 5-13 metrar og él, en bjart austanlands. Gengur í suðaustan 15-23 með rigning suðvestan og vestanlands í kvöld, en hægari og úrkomulítið norðaustanlands. Snýst í suðvestan átt með éljum á morgun, en sunnan hvassviðri og rigning austast á landinu fram eftir morgni. Hiti 0 til 5 stig, en hlýnar um tíma í kvöld og nótt.</description>
Hádegisfréttir 26. febrúar 2011
      <description>Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hefur verið kallað saman í dag til að ræða refsiaðgerðir gegn Líbíu. Fullyrt er að hersveitir Gaddafis einræðisherra hafi orðið yfir eitt þúsund manns að bana síðustu daga og tugþúsundir hafi flúið land.
Talsmaður Lotnu ehf segir fyrirtækið ekki á förum frá Flateyri. Enginn fyrirvari hafi verið um kaupin á þrotabúa Eyrarodda um samþykki stjórnar Byggðastofnunnar. Því komi það til kasta dómsstóla að skera úr um hvort kaupsamningurinn standi.
Útgönguspá eftir þingkosningarnar á Írlandi í gær bendir til þess að stærstu stjórnarandstöðuflokkar landsins hafi unnið yfirburðasigur. Úrslit kosninganna munu liggja fyrir síðdegis.
Frumvarp um staðgöngumæðrun er ótímabært að mati nær allra sem skilað hafa inn umsögn um málið til heilbrigðisnefndar Alþingis. Fyrsti flutningsmaður tillögunnar segir nauðsynlegt að setja lög um þessi úrræði sem margir séu nú þegar að nýta sér. 
Sameiningu efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra og embættis sérstaks saksóknara verður lokið í haust. Innanríkisráðherra segir brýnt að efla rannsóknir efnahagsbrota og fleiri skref verði stigin í þá átt á næstu misserum. 
Ætla má að meirihluti sé fyrir tillögu um skipan stjórnlagaráðs á Alþingi þótt einhverjir stjórnarliðar verði á móti. Þrír þingmenn Hreyfingarinnar eru hlynntir tillögunni. Þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir að meirihluti þingflokksins hafi verið hlynntur því að kosið yrði upp á nýtt. 
Gerpla varð í gærkvöld tvöfaldur bikarmeistari í frjálsum æfingum í áhaldafimleikum, bæði í karla- og kvennaflokki, og ÍR-ingar unnu mikilvægan sigur á Stjörnunni í úrvalsdeild karla í körfubolta.
Veðurhorfur: Suðvestan 10-18 metrar og él, hvassast sunnan og vestanlands. Bjart veður lengst af norðaustanlands. Minnkandi vindur og éljagangur á morgun, en vaxandi sunnanátt suðvestantil undir kvöld. Hiti um frostmark víðast hvar.</description>
Hádegisfréttir 25. febrúar 2011
      <description>Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, leggst gegn þeirri hugmynd að þeir 25 sem efstir urðu í stjórnlagaþingskosningum verði skipaðir í stjórnlagaráð. Tveir lagaprófessorar segja þá lausn óheppilega.
Barack Obama Bandaríkjaforseti útilokar ekki hernaðaríhlutun til að stöðva blóðbaðið í Líbíu. Landvarnarráðherrar  NATO koma saman til neyðarfundar í Brussel  til að ræða ástandið í landinu.
Endurskipuleggja þarf örorkubótakerfið og hækka bætur að mati þeirra sem rannsakað hafa aðstæður öryrkja á Íslandi. 
Slitnað hefur upp úr samningaviðræðum Verkalýðsfélags Akraness og ELKEM.  Verkfall vofir yfir. 
Þingkosningar eru á Írlandi í dag. Talið er að stjónarflokkur landsins bíði mikinn ósigur.
Sveitarfélög hafa enga burði til að koma að rekstri hjúkrunarrýma sem standa auð eftir niðurskurð ríkisins. Þetta  er mat formanns bæjarráðs Vestmannaeyja. Minnihlutinn í Eyjum sat hjá við samþykkt ályktunar um málið vegna  tengingar hennar við ESB aðildarviðræður.
Í fjóra mánuði hafa forsvarsmenn Dvalarheimilisins Hlíðar á Akureyri óskað eftir svörum frá velferðarráðuneytinu um hversu mikið verður skorið niður á í rekstrinum.  Svör hafa ekki borist. 
Kostnaður við Þjóðfundinn í haust nam rúmum 63 milljónum króna, sem er mun minna en áætlanir gerðu ráð fyrir.
Lóa er komin. Að öllum líkindum sást fyrsta lóa ársins í Heimaey í gær.
Veðurhorfur: Suðlæg átt, fimm til tíu metrar og víða skúrir eða dálítil rigning í fyrstu, en síðan suðvestan tíu til átján og slydduél, hvassast við suður og vesturströndina. Heldur hægari á morgun, en áfram él sunnan og vestantil. Hiti að fimm stigum síðdegis, en víða vægt frost inn til landsins á morgun.</description>
Hádegisfréttir 24. febrúar 2011
      <description>Dómstóll í New York hefur ákveðið að taka fyrir að nýju 230 milljarða króna skaðabótamál skilanefndar Glitnis á hendur sjö fyrrverandi stjórnendum og eigendum bankans.
Talið er, að allt að tvö þúsund manns hafi látið lífið í uppreisninni í Líbíu. Uppreisnarmenn sem ráða austurhluta landsins sækja á í vesturhlutanum, þar sem bardagar stóðu í morgun.
Forsætisráðherra þvertekur fyrir að hafa hótað forseta Íslands afsögn sinni eða ríkisstjórnarinnar, ef hann synjaði þinginu staðfestingar Icesave-laganna.
Nú er talið að yfir 300 hafi farist í jarðskjálftanum í Christchurch á Nýja Sjálandi. 98 hafa fundist látnir.  226 sem saknað er eru nú taldir af.
Ríkið hefur innt af hendi áttatíu og fjórar milljónir króna í uppgjörsgreiðslur til þeirra sem ráku Árbót, Torfastaði og Götusmiðjuna. Ríkisendurskoðun gagnrýnir greiðslurnar og segir þær ekki eiga sér stoð í reglum eða samningum. 
Ársverðbólgan er nú eitt komma níu prósent; hefur aukist örlítið frá síðustu mælingu. 
Karlmaður á þrítugsaldri var í morgun dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir stórfellda líkamsárás að morgni nýársdags. Þá sparkaði hann ítrekað í höfuð liggjandi manns í Hafnarstræti og veitt honum lífshættulega höfuðáverka.
Veðurhorfur: Norðaustan átta til þrettán metrar og él norðvestantil. Annars suðlæg átt, víða átta til þrettán og rigning eða skúrir, einkum síðdegis. Hiti tvö til tíu stig, hlýjast austast, en nálægt frostmarki norðvestanlands. Snýst í suðvestan og vestan tíu til tuttugu á morgun, hvassast við suðausturströndina. Rigning eða slydda, síðan skúrir eða él. Kólnandi veður.</description>
Hádegisfréttir 23. febrúar 2011
      <description>Talið er að allt að 1000 manns hafi týnt lífi í árásum öryggissveita á mótmælendur í Líbíu. Allt að 250 voru drepnir í höfðborginni Trípolí í nótt. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmir voðaverkin.
Kafarar og björgunarmenn meta nú ástand Goðafoss, sem var dreginn af strandstað í Óslóarfirði snemma í morgun. Upplýsingafulltrúi Eimskips segir björgunaraðgerðir hafa gengið framar vonum.
Meira en þrjú hundruð er enn saknað í rústum húsa sem hrundu í  jarðskjálfranum  í  Christchurch í Nýja Sjálandi, í fyrrinótt. Fyrstu erlendu rústabjörgunarsveitirnar eru komnar til aðstoðar heimamönnum.
Forseti Íslands telur óljóst hvort Íslendingum beri að greiða Bretum og Hollendingum vegna Icesave. Þetta sagði hann í viðtali á Bloomberg-sjónvarpsstöðinni í morgun.
Nokkur hollensk sveitarfélög vilja að tuttugu og sjö milljarða kröfur þeirra vegna Icesave njóti forgangs í þrotabú gamla Landsbankans. Aðalmeðferð vegna málsins hófst fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Vesturport sýnir nýtt, frumsamið leikverk í vor - verkið er músíkalskur gamanleikur.
Það verða Víkingar Skautafélags Akureyrar og Skautafélag Reykjavíkur sem berjast um Íslandsmeistaratitilinn í íshokkí. Deildarkeppninni lauk í gær.
Veðurhorfur: Allhvöss norðaustanátt og rigning eða slydda norðvestantil fram eftir degi. Annars suðlæg átt, víða átta til þrettán metrar og styttir upp, en rigning eða skúrir á sunnanverðu landinu síðdegis. Suðvestan átta til fimmtán og skúrir sunnantil á morgun, en norðaustan tíu til fimmtán og él á norðvestanverðu landinu. Hægari og þurrt norðaustanlands. Hiti að sjö stigum.</description>
Hádegisfréttir 22. febrúar 2011
      <description>Björgunarsveitir og hermenn vinna nú við að reyna að bjarga fólki úr húsarústum eftir jarðskjálftann í Christchurch, næst stærstu borg Nýja Sjálands.  Óttast er að nokkur hundruð hafi farist.  Talið er að Íslendingar í borginni séu allir heilir á húfi.  
Líney Weishappel bjargaðist úr verslunarhúsi sem hrundi í miðborginni. Rætt verður við hana í fréttatímanum og Heru Hjartardóttur, söngkonu, sem býr í miðborginni.
Ekki verður tilkynnt fyrr en á föstudag hvenær þjóðaratkvæðagreiðsla um Icesave-lögin verður haldin. Innanríkisráðherra segir að beðið sé niðurstöðu nefndar um stjórnlagaþing.  
Uppreisnin í Líbíu breiðist út og hafa hermenn og embættismenn snúið baki við Gaddafí.
Nýleg ákvörðun kjararáðs um launahækkun dómara er skiljanleg og málefnaleg að mati stjórnar Bandalags háskólamanna. Formaður samtakanna segir að þessi ákvörðun hljóti að auka væntingar félagsmanna um kjarabætur. 
Gistirými án starfsleyfa getur verið uppskrift að stórslysi. Þetta segir sviðstjóri forvarna hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Um átján hundruð gisitrými á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri eru rekin án starfsleyfa. 
Akureyri tapaði öðrum leik sínum í úrvalsdeild karla í handknattleik í gærkvöld þegar liðið sótti FH heim.  Þetta var í þriðja skipti á einni viku sem liðin mættust.
Veðurhorfur: Austlæg átt, víða þrír til átta metrar en norðaustan fimm til þrettán norðvestantil. Rigning með köflum sunnantil, stöku él norðanlands, annars skýjað og úrkomulítið. Dregur úr úrkomu norðantil á landinu í dag. Vaxandi austan- og norðaustanátt í kvöld, tíu til átján og fer að rigna sunnan og austantil. Sunnan fimm til þrettán víðast hvar á morgun og rigning með köflum. Hiti að sex stigum en vægt frost til landsins í dag. Hlýnar heldur á morgun.</description>
Hádegisfréttir 21. febrúar 2011
      <description>Ríkisstjórnin ákveður væntanlega á fundi sínum í fyrramálið, hvenær þjóðaratkvæðagreiðsla um nýju Icesave-lögin verður haldin. 
Óvíst er hvaða dómstóll tekur Icesave-málið fyrir, fari svo að lögin verði felld í þjóðaratkvæðagreiðslu. Dómstólaleiðin er hins vegar vel fær, að mati Lárusar Blöndal sem sat í Icesave-samninganefndinni.
Atvinnuleysi getur aukist og hægt getur á hagvexti verði Icesave-samningurinn felldur í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta segir viðskiptaráðherra. 
Uppreisnarástand er í Líbíu.  Á þriðja hundrað, að minnsta kosti hafa fallið. Kveikt hefur verið í stjórnarráðinu og nokkrum öðrum opinberum byggingum í Trípolí, höfuðborg landsins. 
SP- fjármögnun hefur rift kaupleigusamningum áttatíu viðskiptavina sinna, sem sótt hafa um greiðsluaðlögun hjá Umboðsmanni skuldara.  Fólkið má ekki geiða af samningunum,  meðan mál þess bíður afgreiðslu.
Skipverjar á strandgæsluskipinu Harstad unnu í alla nótt við að hreinsa olíu frá Goðafossi úr sjónum í Óslóarfirði.
Atli Hilmarsson, þjálfari Akureyrar í handknattleik karla, segir leikjaniðurröðun Íslandsmótsins koma niður á gæðum bikarúrslitaleiksins á laugardag.
Veðurhorfur: Austlæg átt þrír til átta metrar og rigning með köflum sunnan- og austantil. Annars hægari og skýjað með köflum, en gengur í norðaustan átta til fimmtán með éljum norðantil þegar líður á daginn. Dregur smám saman úr vindi og úrkomu norðantil á landinu í nótt og á morgun. Hiti að sjö stigum, frystir norðanlands þegar líður á kvöldið. Hiti að fimm stigum á morgun en vægt, frost til landsins.</description>
Hádegisfréttir 20. febrúar 2011
      <description>Forseti Íslands hefur ákveðið hvort hann ætlar að staðfesta Icesave-lögin eða ekki. Hann tilkynnir ákvörðun sína á blaðamannafundi síðdegis.  
Yfir eitt hundrað manns eru sagðir hafa verið drepnir í óeirðum í borginni Benghazi í Líbíu undanfarna fjóra daga. Hermenn og öryggissveitarmenn eru sagðir skjóta á mótmælendur úr launsátri. 
Sprengiefni var það fyrsta sem flutt var frá borði Goðafoss í gærkvöld og í nótt þegar vinna við að afferma skipið hófst. Norska strandgæslan kortleggur nú olíulekann frá skipinu úr lofti. 
Lögreglan lokaði skemmtistað við Grensásveg í nótt þegar kom í ljós að allir gestir staðarins voru undir lögaldri. 
Þættir og starfsmenn RÚV hlutu samtals fimm edduverðlaun í gærkvöldi. Kvikmyndin Brim var valin kvikmynd ársins.
Nítján hundruð er boðið í brúðkaup Vilhjálms Bretaprins og Kate Middleton í apríl.
Keflavík er bikarmeistari í körfuknattleika kvenna og KR í karlaflokki.
Veðurhorfur: Austlæg átt, átta til þrettán metrar og dálítil rigning með köflum, en talsverð rigning SuðAustan-lands síðdegis. Lægir í kvöld og nótt og styttir að mestu upp. Fremur hæg austlæg átt og smá skúrir í fyrramálið, en fer að rigna Sunnan-til. Gengur í norðaustan tíu til fimmtán með éljum NorðVestan-til seinni partinn. Hiti að sjö stigum, hlýjast syðst.</description>
Hádegisfréttir 19. febrúar 2011
      <description>Óljóst er hvenær Goðafoss verður fluttur af strandstað í Noregi. Að sögn norsku strandgæslunnar þarf fyrst að tæma skipið af olíu og farmi. Skipstjórinn segist hafa misreiknað stefnu skipsins með þessum afleiðingum.
Öryggissveitir í Bahrein beittu táragasi gegn mótmælendum í höfuðborginni Manama  í morgun. Stærsta verkalýðsfélag landsins hefur boðað allsherjarverkfall á mánudaginn til stuðnings mótmælendum. 
Formaður verkalýðsfélags Akraness segir að forysta ASÍ sé með allt niðrum sig í kjaraviðræðum. Það sé óásættanlegt að setja alla upp í sama láglaunavagn, undir formerkjum samræmdrar launastefnu.
Dönsk ferðaþjónustufyrirtæki óttast að ferðamönnum til Kaupmannahafnar muni fækka verulega - verði reynt að takmarka frelsi íbúa Kristjaníu
Jónsi úr sigur rós hlaut í gær norrænu tónlistarverðlaunin fyrir plötu sína Go.
Aroni Kristjánssyni hefur verið sagt upp störfum hjá þýska úrvalsdeildarliðinu Hannover Burgdorf í handknattleik. 
Veðurhorfur: Austan átta til þrettán metrar, en allt að tuttugu metrar allra syðst. Sums staðar hvassir vindstrengir við fjöll. Rigning með köflum sunnan og austanlands, en þykknar upp norðvestantil seinni partinn. Suðaustan átta til þrettán í nótt og á morgun og víða rigning eða súld, en úrkomulítið norðvestantil. Hiti að sex stigum.</description>
Hádegisfréttir 18. febrúar 2011
      <description>Olía lekur enn úr Goðafossi og er komin í fjörur í Hvaler (Kvaler)  við austanverðan Oslófjörð. Átta hundruð tonn af olíu er í skipinu. Tuttugu og sjö sinnum hafa verið gerðar athugasemdir við búnað skipsins frá árinu 2007.
Þjóðgarður er innan skerjagarðsins þar sem Goðafoss strandaði. Óttast er að olíumengunin valdi skaða á lífríki, en þarna er meðal annars að finna, stærsta kaldsjávar kóralrif í heimi.
Forseta Íslands voru í morgun afhentir undirskriftalistar með tæplega 38 þúsund nöfnum þar sem hann er hvattur til að vísa nýjum Icesave-lögum í þjóðaratkvæði. Forsetinn segir málið flókið og að hann muni hugsa sig vandlega um áður en hann taki ákvörðun. 
Herinn hefur verið kallaður út í Líbíu eftir að þúsundir efndu til mótmæla í morgun.  Öryggisveitir hafa fellt á þriðja tug manna. Tugir þúsunda mótmæla í Manama, höfuðborg Bahrein. 
Forseti ASÍ telur að Kjararáð fari útfyrir valdsvið sitt með því að hækka laun dómara tímabundið. Kjararáð var klofið í ákvörðun sinni um hækkunina. 
Sjávarútvegsráðherra ætlar að auka loðnukvótann um sextíu og fimmþúsund tonn
Búast má við óvenju mikilli norðurljósadýrð á himni í kvöld. Þetta gerist í kjölfar stærsta sólgoss sem orðið hefur í fjögur ár. 
Knattspyrnudeild Íslandsmeistara Breiðabliks skilaði 72 milljónum króna í hagnað á síðasta rekstrarári en það er met í sögu félagsins. 
Veðurhorfur: Austlæg átt, víða fimm til tíu metrar og bjartviðri, en tíu til fimmtán og dálítil væta SuðAustan-lands. Austan tíu til fimmtán á morgun, en allt að tuttugu syðst. Vætusamt Sunnan-til á landinu, en þurrt fyrir norðan. Hægt hlýnandi veður og hiti eitt til sex stig á morgun.</description>
Hádegisfréttir 17. febrúar 2011
      <description>Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, ætlar á morgun að taka við undirskriftum þeirra sem skora á hann að samþykkja ekki nýju Icesave lögin. Um þrjátíu og átta þúsund hafa skorað á forsetann að staðfesta ekki lögin. Nokkrir hafa kvartað undan söfnuninni til Persónuverndar.
Nýi Landsbankinn hefur tekið yfir bílalánafyrirtækið Avant. Níutíu prósent þeirra sem eiga inni hjá fyrirtækinu vegna ofgreiddra bílalána, fá sitt til baka. 
Ríkisstjórn Bahrein riðar til falls eftir að fjórir voru drepnir og á annað hundrað særðir þegar óeirðalögregla réðist á mótmælendur í höfuðborginni landsins.
Heildarhagræðing í grunnskólum verður rúmar tvö hundruð milljónir króna með því að hætta við kennsluskerðingu. Þetta segir fræðslustjórinn í Reykjavík.
Aðeins tólf prósent kynferðisbrota, sem tilkynnt voru til lögreglu árið tvö þúsund og átta, enduðu með dómi yfir brotamanni. Rannsókn flestra mála var hætt eftir að fórnarlömbin drógu kærur sínar til baka.
Dýpkun Landeyjahafnar er nú undirbúin, viku eftir að dæluskipið Skandia kom til landsins. 
Handknattleiksdeild Fram hefur fallið frá kæru sinni á úrslitum undanúrslitaleiks bikarkeppni HSÍ gegn Val.
Veðurhorfur: Norðaustan fimm til þrettán metrar, hvassast á Vestfjörðum og syðst á landinu. Lítilsháttar slydda eða rigning norðvestanlands og suðaustanlands fram á kvöld, en annars skýjað með köflum og þurrt að kalla. Líkur á dálítilli vætu suðaustanlands í nótt og á morgun en annars svipað veður. Hiti yfirleitt að fimm stigum, en víða vægt frost í innsveitum norðanlands.</description>
Hádegisfréttir 16. febrúar 2011
      <description>Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag níumenningana svokölluðu af ákæru um árás á Alþingi. Fjögur þeirra voru hins vegar dæmd fyrir að hindra opinbera starfsmenn við skyldustörf, óhlýðnast fyrirmælum lögreglu og bíta lögregluþjóna.
Lokaatkvæðagreisla um Icesave frumvarp ríkisstjórnarinnar hefst á Alþingi klukkan hálftvö. Tæplega þrjátíu þúsund manns hafa skrifað undir á vefsíðu þar sem skorað er á forsetann að hafna lögunum og leyfa þjóðinni að hafa síðasta orðið. 
Auka ætti loðnukvóta þessarar vertíðar um sextíu og fimm þúsund tonn, að mati Hafrannsóknarstofnunar. Nýjustu rannsóknir benda til þess að stofninn sé nú tæplega átta hundruð þúsund tonn. 
Þúsundir stjórnarandstæðinga tókust á við lögreglu og stuðningsmenn Ghaddafi Líbíuleiðtoga í hafnarborginni Benghazi í Líbíu í nótt. Einnig var mótmælt í Íran, Jemen og Bahrein.
Ríkið sparar ekki á því að hætta að niðurgreiða dýrari hjartalyf, heldur tapar þvert á móti þar sem kostnaður eykst vegna innlagna og endurtekinna aðgerða. Þetta segir hjartalæknir. 
Kvennalið Vals komst í gærkvöldi í úrslit bikarkeppninnar í handknattleik eftir sigur á Fylki, 25-15.  Fram og HK mætast í hinum undanúrslitaleiknum í kvöld.
Veðurhorfur: Norðaustan tíu til fimmtán metrar norðvestanlands, en annars mun hægari austlæg átt. Dálítil slydda eða rigning með köflum. Austan fimm til tíu og rigning með köflum suðaustanlands á morgun, en annars úrkomulítið. Hiti yfirleitt að fimm stigum.</description>
Hádegisfréttir 15. febrúar 2011
      <description>Borgin er hætt við fyrirhugaðan niðurskurð í kennslu grunnskólabarna segir formaður menntaráðs. Útsvar Reykvíkinga kann að verða hækkað vegna þessa.
Samningafundur í kjaradeilu bræðslumanna stendur nú yfir hjá ríkissáttasemjara. Framkvæmdarstjóri Afls starfsgreinafélags er ekki bjartsýnn á að samningar náist í dag. Fátt virðist því geta komið í veg fyrir verkfall hefjist í kvöld. Stéttarfélögin undirbúa nú verkfallsvörslu í Helguvík og á Þórshöfn
Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hefur verið ákærður fyrir kaupa vændi af ólögráða stúlku og fyrir valdníðslu. Hann gæti átt fimmtán ára fangelsisdóm yfir höfði sér. 
Fjármálaráðherra telur að Alþingi og framkvæmdavaldið eigi að leiða Icesave-deiluna til lykta. Ekki sé þörf á þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. 
Þúsundir mótmæltu á götum Saana í Jemen í morgun, fjórða daginn röð. Þá eru mótmæli í Bahrein gegn stjórnvöldum.
Ríkisstjórn Ítalíu hefur óskað eftir fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu til að takast á við flóttamannastraum frá Túnis. Þúsundir flóttamanna hafa komið þaðan síðustu daga.
Veðurhorfur: Heldur vaxandi norðaustanátt, víða átta til þrettán síðdegis. Slydda eða snjókoma á austanverðu landinu, en þykknar upp vestanlands. Rigning eða slydda norðan og austantil í kvöld og snjókoma til landsins. Hlýnandi, hiti að fimm stigum síðdegis. Norðaustan tíu til fimmtán og slydda norðvestantil á morgun, annars hægari vindur og skúrir eða slydduél, en úrkomulítið á norðausturlandi.</description>
Hádegisfréttir 14. febrúar 2011
      <description>Hundruð mótmælenda komu saman í morgun í Taiz í Jemen og í höfuðborginni Sanaa, og kröfðust afsagnar Ali Abdullah Saleh forseta.
Herlögregla og hermenn  hafa í morgun skipað mótmælendum, sem enn eru á Tahrir-torgi í Kæró, að hverfa á brott. 
Verkfall bræðslumanna hefst annað kvöld verði ekki samið um kjör bræðslumanna fyrir þann tíma. Samningafundur stendur yfir hjá ríkissáttasemjara.
Til greina kemur að selja eitthvað af eignum REI, dótturfyrirtækis Orkuveitu Reykjavíkur. Þetta má lesa úr svari Orkuveitu Reykjavíkur til umboðsmanns Alþingis um stefnumótu Orkuveitunnar.
Atvinnulausum fækkaði um sextán hundruð frá janúarlokum í fyrra til janúarloka í ár. Fjórtán þúsund og sjö hundruð voru atvinnulausir í lok janúar, samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar.  
Á tólfta þúsund manns hefur nú skrifað undir áskorun á netinu gegn Icesave samningunum sem Alþingi hefur til meðferðar. Söfnunin hófst á föstudag.  en framtakið var kynnt í morgun. 
Veðurhorfur: Suðaustan átta til þrettán metrar suðvestan og vestanlands fram eftir degi, annars hægari suðlæg átt. Skúrir eða él, en úrkomulítið fyrir norðan og austan. Hiti að fimm stigum í dag, en að sjö stiga frosti norðaustantil. Norðaustan fimm til fimmtán á morgun, hvassast við suðausturströndina. Slydda eða snjókoma á austanverðu landinu, en bjartviðri suðvestan og vestanlands. Hiti í kringum frostmark.</description>
Hádegisfréttir 13. febrúar 2011
      <description>Fjórðungur kjósenda vill að hætt verði við stjórnlagaþing eftir að Hæstiréttur ógilti kosningar til þingsins. Talsvert fleiri vilja að þau, sem kosin voru til þingsins, verði skipuð í stjórnlaganefnd. Þetta kemur fram í nýjum þjóðarpúlsi Gallup.
Enn eru mótmælendur á Frelsistorginu í Egyptalandi þó umferð hafi verið hleypt aftur á það í upphafi nýrrar vinnuviku í morgun. Fregnir hafa borist af átökum lögreglu við mótmælendur sem segjast hvergi fara fyrr en kosningar verði haldnar. 
Lýðræðisfylkingar í Íran hafa boðað til mótmæla í Teheran á morgun þar sem lýðræðis verður krafist
Búið er að selja Eyrarodda, fiskvinnslustöðina á Flateyri. Nýir eigendur hyggjast ráða sem flesta aftur í vinnu og hefja starfsemi á allra næstu vikum. Kaupverðið fæst ekki gefið upp.
Fleiri eru í hættu á að fá hjartaáfall eftir að stjórnvöld ákváðu að hætta að niðurgreiða dýr blóðfitulækkandi lyf. Þetta segir lyfjafræðiprófessor. 
Lagið Aftur heim eftir Sigurjón Brink og Þórunni Ernu Clausen verður framlag Íslands í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í Dusseldorf í maí.
Kvennalið Hamars í körfuknattleik tapaði sínum fyrsta leik í deildinni í vetur þegar liðið bar lægri hlut gegn Keflavík á heimavelli.  Með sigri hefði Hamar tryggt sér deildarmeistaratitilinn í fyrsta skipti. 
Veðurhorfur: Suðaustan 5-13 metrar, hvasssast norðaustantil í fyrstu. Él sunnantil en dálítil rigning norðaustanlands fram eftir degi. Hvessir aftur suðvestantil í kvöld með slyddu eða snjókomu. Dregur úr vindi í nótt og fyrramálið, suðlæg átt þrír til átta metrar og él sunnan- og vestanlands á morgun annars víða skýjað með köflum. Hiti 0 til 4 stig en vægt frost til landsins norðan og austanlands.</description>
Hádegisfréttir 12. febrúar 2011
      <description>Afskriftir Arion banka vegna viðskipta sinna við Jón Ásgeir Jóhannesson og fjölskyldu og rekstrar stærsta verslunarfélags landsins Haga, nema 35-40 milljörðum króna.
Afsögn Múbaraks Egyptalandsforseta var fagnað fram á morgun á Frelsistorginu í Kaíró. Búist er við að herráðið sem tók við völdum leysi upp ríkisstjórn og þing í landinu á næstu dögum og hefji undirbúning forsetakosninga.
Bandaríkjaforseti heitir stuðningi við lýðræðisþróun í Egyptalandi og hvetur herinn til að leggja sitt af mörkum. 
Samtök atvinnulífsins ganga enn út frá því að sátt muni nást um sjávarútvegsmál áður en gengið verður frá langtímasamningum við Alþýðusambandið. 
Handtökuskipun hefur verið gefin út á hendur Pervez Musharraf, fyrrverandi forseta Pakistans, vegna morðsins á Benazir Bhutto. Talsmaður Musharrafs segir að hann muni ekki gefa sig fram. 
Oddviti Flóhrepps segist ekki átta sig á þörf þess að Hæstiréttur skýri lög sem þegar eru fallinn úr gildi. Umhverfisráðherra hafi ekki minnst á neitt slíkt þegar deilur um skipulagsmál vegna Urriðafossvirkjunnar voru rekin í héraði.
Sáttin sem skapaðist um Orkuveitu Reykjavíkur með lyktum REI-málsins er í uppnámi, segir borgarfulltrúi Vinstri grænna. Fulltrúar meirihlutans blási upp í fjölmiðlum hvert ágreiningsefnið á fætur öðru.
Veðurhorfur: Hægt vaxandi suðaustanátt, fimmtán til tuttugu metrar síðdegis suðvestantil, en annars þrettán til átján. Rigning sunnan og austanlands en annars skýjað. Lægir að mestu í kvöld og nótt. Sunnan og suðaustan fimm til þrettán á morgun með skúrum eða slydduéljum sunnantil. En hvassara og slydda eða snjókoma á Norðausturlandi. Hiti að sjö stigum en heldur svalara á morgun.</description>
Hádegisfréttir 11. febrúar 201
      <description>Gríðarfjölmenn mótæli eru nú á Tahrir-torgi og við helstu stjórnarbyggingar í Kæró. Búist er við að yfir 20 milljónir Egypta taki þátt í mótmælum nú eftir föstudagsbænir í dag í helstu borgum landsins.
Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, ætlar að staðfesta nýtt aðalskipulag Flóahrepps í kjölfar dóms Hæstaréttar í gær. Hún segist ætla að fara yfir afleiðingar dómsins með ríkislögmanni eftir hádegið.
Innanlandsflug liggur niðri og talsverðar tafir urðu á millilandaflugi vegna veðurs í morgun. 
Tugir björgunarsveitarmanna voru að störfum á sunnan- og vestanverðu landinu í nótt og í morgun., á meðan aftakaveður gekk yfir. Önnur lægð er á leið upp að landinu á morgun. 
Stéttarfélög í Noregi og Færeyjum hafa bannað félagsmönnum sínum að landa úr íslenskum loðnuskipum á meðan verkfall bræðslumanna stendur á Íslandi. Búist er við að banni við löndun verði einnig lýst yfir í Danmörku um helgina. 
Forsætisráðuneytið hefur hafnað beiðni saksóknara Alþingis um að fá afhent afrit af öllum tölvupósti Geirs Haarde meðan hann gegndi embætti forsætisráðherra. 
Mikil undirmönnum er á lyflækningasviði Landspítalans og ekki útlit fyrir að það breytist næstu mánuðina, segir sérfræðingur þar. Læknar séu farnir að sýna merki streitu. 
Réttarkerfið í Frakklandi er nú nánast lamað, en þúsundir dómara og lögmanna mótmæla Frakklandsforseta á götum úti. Dómararnir saka hann um afskipti af dómsvaldinu.
Talsverðar líkur eru á því að Sigurbergur Sveinsson, landsliðsmaður í handknattleik, gangi til liðs við þýska liðið Hannover-Burgdorf á næstu dögum. 
Veðurhorfur: Viðvörun: Búist er við stormi á höfuðborgarsvæðinu. Suðaustan fimmtán til tuttugu og fimm metrar og víða rigning, töluverð á suðausturlandi. Lægir er líður á daginn, fyrst suðvestantil. Sunnan fimm til þrettán í kvöld. Vaxandi suðaustan átt í fyrramálið, fimmtán til tuttugu og þrír upp úr hádegi suðvestanlands og rigning en austan fimm til þrettán á norður og austurlandi. Hiti eitt til átta stig, svalast í innsveitum norðaustanlands.</description>
Hádegisfréttir 010. febrúar 2011
      <description>Orðrómur er um að herinn hyggist hrifsa völdin í Egyptalandi. Suleman varaforseti segir að annað hvort semji stjórnarandstaðan við stjórnvöld eða herinn taki völdin.
Arion banki á í lokaviðræðum um sölu á stórum hlut í Högum, móðurfyrirtæki Bónuss og Hagkaups. Dótturfélag bankans, ásamt fagfjárfestum, er talið líklegast til að kaupa hlutinn.
Kjaraviðræður milli ASÍ og Samtaka atvinnulífsins hefjast að nýju nú eftir hádegið. Forseti ASÍ segir mikilvægt að setja viðræðurnar í gagn og ljúka gerð kjarasaminga fyrir mánaðamót þrátt fyrir ágreining um sjávarútvegsmálin. 
Yfirvinnubann Flugumferðarstjóra hefst mánudaginn 14. febrúar hafi kjarasamningar ekki náðst. 
Atvinnurekendur verða að gera sér grein fyrir ábyrgð sinni, komi upp eineltis- eða áreitnitilvik á vinnustaðnum. Þetta segir umdæmisstjóri Vinnueftirlitsins. Algengara sé að fórnarlömb áreitisins hrökklist úr starfi en gerendurnir.
Eftirlitsstofnun EFTA vill að íslensk stjórnvöld breyti fyrirkomulagi á fjármögnun Ríkisútvarpsins. Skilja verði á milli almannaþjónustunnar og þeirrar starfsemi sem lúta skal lögmálum markaðarins.
Veðurhorfur: Viðvörun: Búist er við stormi á höfuðborgarsvæðinu. Vaxandi suðaustanátt, þrettán til átján metrar og rigning sunnan og vestanlands síðdegis, en hægara og þurrt norðaustanlands. Suðaustan átján til tuttugu og þrír suðvestantil í kvöld, en tuttugu og þrír til þrjátíu þar seint í nótt og í fyrramálið. Suðaustan átján til tuttugu og þrír og víða rigning á morgun, en slydda norðaustanlands. Töluverð rigning á suðausturlandi á morgun. Hægt hlýnandi veður og hiti víða eins til sex stiga hiti undir kvöld, en vægt frost í innsveitum NA-til til fyrramáls.</description>
Hádegisfréttir 09. febrúar 2011
      <description>Formaður Samtaka Atvinnulífsins aftekur að semja á þeim nótum sem bræðslumenn vilja. Hann segir að það hefði víðtæk áhrif á aðra atvinnuvegi og hópa launafólks. 
Tugir þúsunda safnast nú saman til mótmæla á Tahrir-torgi í miðborg Kaíró sextánda daginn í röð. Mótmælin í gær voru þau fjölmennustu frá upphafi. 
Formaður félags skólastjóra í Reykjavík ætlar að leggja til á fundi menntaráðs í dag að horfið verði frá niðurskurðartillögum í skólastarfi. Þær séu ekki nógu vel unnar og valdi því óvissu og óánægju. 
Mengun frá sorpbrennslustöðvum er mikið áhyggjuefni segir framkvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda. Þeir sem losi eiturefnin út í umhverfið hljóti að bera ábyrgð. 
Sjómannaverkfalli sem hófst í Færeyjum 17. janúar er nú lokið og flest skip komin á sjó. Fiski hefur ekki verið landað í eyjunum í heilan mánuð.
Formaður Bandalags háskólamanna segir bandalagið vera hundfúlt yfir þeim töfum sem orðið hafa á samningsgerð. Hún líkir aðstæðunum við gíslatöku sem skjólstæðingar sínir sætti sig engan veginn við.
Héraðsdómur hefur gert móður að fara með þrjár dætur sínar til Danmerkur til að þær geti umgengist föður sinn. Konan sakar manninni um andlegt og líkamlegt ofbeldi en sálfræðingur fann engin merki um slíkt.
Iðnaðarhús gjöreyðilagðist í eldi í Njarðvík í nótt. Hvassviðri hamlaði slökkvistarfi. 
Veðurhorfur: Suðaustan fimmtán til tuttugu metrar í fyrstu norðaustantil, en annars suðlæg átt, átta til fimmtán. Rigning víða um land, en skúrir eða él sunnan og vestanlands eftir hádegi. Vaxandi suðaustanátt á morgun, þrettán til átján og rigning sunnan- og vestanlands, en annars mun hægara og þurrt. Hiti að fimm stigum, en fer hlýnandi á morgun.</description>
Hádegisfréttir 08. febrúar 2011
      <description>Krafa um að Hæstiréttur taki að nýju ákvörðun um gildi kosninga til Stjórnlagaþings verður send réttinum í dag. Krafan byggist á því að rétturinn hafi ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni þegar hann ákvað að ógilda kosningarnar.
Verkfall skellur að óbreyttu á í fiskimjölsverksmiðjum á Austurlandi, í Vestmannaeyjum og á Akranesi eftir viku. Útgerðarmenn leita nú leiða til að koma í veg fyrir að verkfall stöðvi aðra vinnslu í landi. 
Stjórnarmaður í Orkuveitunni segir það einsdæmi hjá opinberri stofnun að fráfarandi forstjóri komi með beinum hætti að því að ráða eftirmann sinn. Fyrrverandi yfirmaður forstjórans var ráðinn í starfið. 
Talsmaður neytenda segir að stjórnvöld fullnægi ekki stjórnarskrárbundinni skyldu sinni um að skilgreina hvað fólk þurfi að lágmarki til að framfleyta sér. Skýrsla um neysluviðmið sýni hvað fólki notar, fremur en hvað það þarf. 
Þúsundir manna mótmæla enn á Tahrir-torginu í Kaíró. Stjórnarandstæðingar segja að haldið verði áfram þar til Mubarak forseti verði frarinn frá.
Alvarleg bilun varð í kóðunarbúnaði Mílu í Reykjavík í morgun,  sem varð til þess að FM útsendingar Rásar eitt og Rásar tvö heyrðust ekki í tvo og hálfan tíma á Vestfjörðum, Norður- og Austurlandi.  
Veðurhorfur: Viðvörun: Búist er við stormi á höfuðborgarsvæðinu. Vaxandi suðaustan og austanátt, átján til tuttugu og fimm sunnan- og vestanlands seinnipartinn með slyddu eða rigningu, en hægari og þurrt norðaustanlands fram á kvöld. Snjókoma og síðar slydda norðaustan til í nótt. Skúrir og síðar él vestan og sunnantil á morgun. Hiti að fimm stigum sunnanlands en frost að sex stigum norðantil fram á nótt. Kólnar heldur á morgun.</description>
Hádegisfréttir 07. febrúar 2011
      <description>Dósent við lagadeild Háskóla Íslands tekur sæti Bjargar Thorarensen í Landsdómi. Þá tekur Jóna Valgerður Kristjánsdóttir ekki sæti í dómnum, þar sem hún er orðin of gömul.
Gunnar Rúnar Sigurþórsson, sem er ákærður fyrir að hafa banað Hannesi Þór Helgasyni, nýtti sér rétt sinn til að svara ekki spurningum þegar aðalmeðferð hófst í málinu í morgun.
Atkvæðagreiðsla um verkfall í bræðslustöðvum hefst eftir hádegi. Framkvæmdastjóri AFLS starfsgreinasambands undrast mótsagnir í málflutningi atvinnurekenda.
Julian Assange stofnandi Wikileaks upplýsingavefsins kemur fyrir rétt í Lundúnum í dag þar sem hann mun berjast gegn því að verða framseldur til Svíþjóðar. 
Mótmælaaðgerðir gegn Mubarak forseta Egyptalands héldu áfram á Tahrir torgi í Kaíró í morgun, fjórtánda daginn í röð.
Amagerbankinn í Danmörku varð gjaldþrota í gær. Danska ríkið hefur tekið hann yfir. Eigið fé bankans er þrotið.
Bandalag íslenskra listamanna segir ótækt að geðþótti þingmanna ráði því hverjir fái heiðurslaun listamanna. Bandalagið kallar eftir meiri fagmennsku.
Lið Green Bay Packers varð í nótt meistari í bandarískum ruðningi í 13. sinn þegar liðið vann Pittsburgh Steelers í úrslitaleik NFL deildarinnar, hinum svokallaða Super Bowl leik.  
Veðurhorfur: Norðlæg átt, þrír til tíu metrar, en hvassari um tíma austast síðdegis. Él um landið norðan- og austanvert, en víða bjart suðvestan og vestanlands. Gengur í austan og suðaustan átján til tuttugu og fimm sunnan- og vestanlands síðdegis á morgun með slyddu eða rigningu, en hægari og þurrt norðaustanlands. Frost að tíu stigum, kaldast í innsveitum.</description>
Hádegisfréttir 06. febrúar 2011
      <description>Stjórn Byrs framlengdi mörg hundruð milljóna króna lánveitingar til félaga tengdum stjórnarmönnum sjóðsins, á sama fundi og fjórtán hundruð milljóna króna lánveiting til Exeter holding var samþykkt. Lánið var notað til að kaupa stofnfjárbréf í Byr á yfirverði af MP-banka og stjórnarmönnum sjóðsins.
Varaforseti Egyptalands hefur hafið viðræður við stjórnarandstöðuhópa um umbætur í landinu, þar á meðal Bræðralag múslima, sem bannað hefur verið um árabil. Enn er fjöldi mótmælenda í miðborg Kaíró og krefst afsagnar Mubaraks forseta.
Díoxínmengunin í Skutulsfirði er reiðarslag - ekki aðeins fyrir bændur sem þurfa að bregða búi- heldur fyrir alla Ísfirðinga. Þetta segir Ólína Þorvarðardóttir alþingismaður sem vill frekari rannsóknir.
Útlit er fyrir að starfsmenn fiskimjölsverksmiðja boði aftur til verkfalls. Tilboði þeirra um minni launahækkun var hafnað í gær á fundi með Ríkissáttasemjara - framkvæmdastjóri Samtaka Atvinnulífsins segir kröfur þeirra úr takti við aðra hópa á vinnumarkaði
Tugir skjálfta hafa mælst síðustu daga nálægt Kistufelli, í norðanverðum Vatnajökli. Engin merki eru þó um að gos sé í vændum. 
Smábátasjómenn, sem fá úthlutað byggðakvóta á Vopnafirði, ætla að greiða tuttugu prósent af veiddum kvóta til sveitarfélagsins svo framarlega sem Vopnfirðingar fá undanþágu frá reglum um kvótann. Sveitastjórinn segist ekki sjá að stjórnvöld geti sett sig upp á móti fyrirkomulaginu.
Veðurhorfur: Suðaustlæg eða breytileg átt, 5-10 metrar og él, en úrkomulítið norðantil á landinu. Snýst í norðvestan fimm til tíu í kvöld og heldur hvassara allra syðst í nótt. Norðan og norðvestan fimm til tíu á morgun og víða dálítil él, einkum norðantil, en léttir til sunnanlands þegar líður á daginn. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum norðanlands, en hiti kringum frostmark við suðurströndina í dag.</description>
Hádegisfréttir 05. febrúar 2011
      <description>Leiðtogar Vesturveldanna virðast sammála um að Mubarak forseti Egyptalands verði að víkja og hvetja til að hafinn verði þegar í stað undirbúningur að breytingum og lögð drög að kosningum í landinu.
Hjónin í Efri-Engidal í Skutulsfirði við Ísafjörð þurfa að hætta búskap eftir að í ljós kom að fella þarf allan bústofn þeirra vegna díoxínmengunar. Reiðarslag, segir bóndinn á bænum. 
Hluti þingflokks Sjálfstæðismanna styður hugmyndir um að vísa Icesave samningnum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Formaður flokksins útilokar ekki þann möguleika. 
Allt verður gert til að ná sáttum í kjaradeilu bræðslumanna og Samtaka atvinulífins hjá Ríkissáttasemjara í dag. Talsmaður samninganefndar bræðslumanna segir of snemmt að segja til um hvort hægt verði að afstýra verkfalli.
Veðurhorfur: Suðlæg átt átta til þrettán metrar og él, en úrkomulítið norðan- og austanlands. Heldur hægari í nótt og á morgun. Frost að tíu stigum, kaldast í innsveitum norðanlands, en hiti kringum frostmark við suðurströndina.</description>
Hádegisfréttir 04. febrúar 2011
      <description>Bandaríkjastjórn þrýstir á að Mubarak forseti Egyptalands láti tafarlaust af völdum og bráðabirgðastjórn taki við. Enn er boðað til  mótmæla í miðborg Kairó í dag.
Mörg félög sjálfstæðismanna um allt land mótmæla afstöðu þingmanna flokksins í Icesave-málinu. Landsfundur flokksins sé ekki til neins þegar veigamiklar samþykktir hans eru hundsaðar.
Þrír ungir karlmenn hafa játað að hafa framið um 70 innbrot í heimahús, hótel og gistiheimili á höfuðborgarsvæðinu undanfarin tvö ár og stolið skartgripum, tölvum og öðrum tækjum. 
Rúmlega fjórar af hverjum tíu konum á Íslandi hafa einhvern tímann verið beittar ofbeldi frá sextán ára aldri, samkvæmt nýrri rannsókn. Þrátt fyrir aukna umræðu og úrræði eru þetta svipaðar niðurstöður og komu fram í rannsókn sem gerð var fyrir fimmtán árum. 
Jóel Færseth, drengurinn sem inversk kona ól íslenskum hjónum er kominn til Íslands ásamt foreldrum sínum
Formaður Verkalýðsfélags Akraness vill að Kristján Gunnarsson fari frá sem formaður Starfsgreinasambands Íslands, í ljósi harðrar gagnrýni á störf Kristjáns hjá Sparisjóðnum í Keflavík. 
Veðurhorfur: Suðlæg átt fimm til tíu metrar og él, en skýjað með köflum og úrkomulítið norðaustan- og austanlands. Suðaustan átta til fimmtán og snjókoma með köflum sunnan- og vestanlands síðdegis. Fremur hæg suðlæg átt á morgun og dálítil él á víð og dreif. Frost að tíu stigum, kaldast í innsveitum norðanlands.</description>
Hádegisfréttir 03. febrúar 2011
      <description>Fimm hafa verið drepnir og á níunda hundrað særðir í árásum suðningmanna Mubaraks forseta á mótmælendur í miðborg Kaíró í gær og í nótt. Teikn eru um að herinn sé að leggjast á sveif með stjórnarandstæðingum.
Fjórir skipverjar á bátnum Farsæli GK 162 voru mjög hætt komnir þegar báturinn fékk á sig þrjú brot við innsiglinguna í Grindavík í gærkvöldi. 
Forsætisráðherra segir allt viðræðuferli við Evrópusambandið ganga samkvæmt áætlun og vísar á bug ásökunum um að hafa hótað stjórnarliðum ef þeir styddu ekki viðræðurnar. 
Sýking í íslensku sumargotssíldinni er svipuð og undanfarin tvö ár samkvæmt nýjustu rannsóknum Hafrannsóknastofnunar. Rannsóknir gefa þó vísbendingu um að hún sé í rénun.
Hjartveik börn sem þurfa á skurðaðgerð að halda, verða framvegis send til Lundar í Svíþjóð en ekki til Boston eins og tíðkast hefur. Við þetta lækkar kostnaður sjúkratrygginga um fjórðung. 
Veðurhorfur: Suðvestan tíu til átján metrar norðan- og norðvestanlands í fyrstu, en annars suðvestan fimm til þrettán. Hægari vindur síðdegis, en aftur suðvestan fimmtán til tuttugu og fimm við suðvestur- og vesturströndina seint í kvöld. Él eða snjókoma með köflum um sunnan- og vestanvert landið, en úrkomulítið norðaustan- og austanlands. Frost að tíu stigum, kaldast inn til landsins.</description>
Hádegisútvarpið 2.febrúar
      <description>1. Sprengjusveit Landhelgisgæslunnar fór til Egilsstaða í vikunni og eyddi tveimur tundurduflum á Héraðssandi. Rúnar Snær Reynisson hitti Sigurð Ásgrímsson sprengjusérfræðing og fræddist um tundurduflin sem finnast á ströndum Íslands. 
2. Menntun á Vesturlandi skilar sér ekki í auknum tekjum, samanborið við það sem gerist í öðrum landshlutum. Þetta kemur fram í skýrslu sem Vífill Karlsson, hagfræðingur Samtaka Sveitarfélaga á Vesturlandi hefur unnið.
3. Í morgun hittist hópur kvenna í morgunkaffi á Glerártorgi á Akureyri en þá var morgunfundur hjá Félagi kvenna í atvinnurekstri á Norðurlandi. Freyja Dögg fór á fundinn og hitti þær Ingibjörgu Ringsted og Ingu Vestmann sem báðar eiga fyrirtæki á Akureyri.</description>
      <itunes:subtitle>Hádegisútvarp</itunes:subtitle>
Hádegisfréttir 02.febrúar 2011
      <description>Mubarak forseti Egyptalands neitar að verða við kröfum um segja af sér strax og ætlar að sitja þar til kosið verður í september. Obama, Bandaríkjaforseti segir  að valdaskiptin verði að vera skipuleg og friðsamleg og þurfi að hefjast strax.
Actavis þarf að greiða 170 milljóna dollara sekt, sem jafngildir rúmum 19 og hálfum milljarði íslenskra króna, fyrir ranga verðskráningu á lyfjum samkvæmt úrskurði héraðsdómstóls í Texas. Dómnum verður áfrýjað. 
Formaður Framsóknarflokksins segir að ætli Alþingi að samþykkja nýju Icesave samningana með hraði sé það fúsk og klúður.
Stýrivextir Seðlabanka Íslands eru í sögulegu lágmarki eftir lækkun í morgun um 0,25 prósentustig.
Mikill viðbúnaður er í  Queensland í Ástralíu vegna gríðaröflugs fellibyls, sem kemur  þar á land um hádegisbil.
Formaður íbúasamtaka segir að vandamál miðbæjarins sé fjöldi veitingahúsa og langur afgreiðslutími þeirra. Ofbeldismenn hafist við í miðbænum.  Borgaryfirvöld verði að taka á málinu. 
Framlög Reykjavíkurborgar til barnastarfs í Myndlistaskólanum í Reykjavík hafa verið skert um 45 prósent frá árinu 2008. Skólastjórinn segir að samræma þurfi betur framlög til tómstundastarfs. Mikið ósamræmi sé milli íþrótta og listgreina. 
Veðurhorfur: Hér er fyrst viðvörun: Það er búist við stormi á höfuðborgarsvæðinu. Norðaustan tíu til fimmtán metrar og snjókoma norðan- og norðvestanlands, en annars mun hægari breytileg átt og él. Gengur í vestan átján til tuttugu og þrjá fyrst við suðurströndina í kvöld, en síðan einnig vestanlands í nótt með dimmum éljum. Dregur smám saman úr vindi á morgun. Talsvert hægari norðaustantil og úrkomulítið. Frostlaust víða við sjóinn en frost að sjö stigum til landsins.</description>
Hádegisfréttir 1. febrúar 2011
      <description>Um ein milljón manna er nú á Tahrir-torgi í Kaíró.  Þaðan er ætlunin er að ganga í átt að forsetahöllinni og krefjast afsagnar Múbaraks forseta. Þetta eru fjölmennustu mótmælin í Egyptalandi til þessa.
Kristján Gunnarsson, verkalýðsforingi á Suðurnesjum, ætti að íhuga stöðu sína vegna umdeilds starfslokasamnings sparissjóðstjórans í Keflavík. Þetta segir stjórnarmaður í samtökum stofnfjárhafa.
Litli drengurinn Jóel Færseth, sem indversk staðgöngumóðir ól íslenskum hjónum, er farinn frá Indlandi ásamt foreldrum sínum. Fjölskyldan er komin til Þýskalands og  bíður flugs til Íslands. 
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur boðað Lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins á sinn fund. Verslunareigendur við Laugarveginn óttast um öryggis sitt vegna ofbeldis í miðbænum og krefjast aukinnar löggæslu
Fyrrverandi borgarlögmaður efast um forsendur sem Hæstiréttur gefur sér fyrir ógildingu kosninga til stjórnlagaþings. Hann spyr hvort Hæstarétti hafi ekki borið skylda til sjálfstæðrar rannsóknar á málinu samkvæmt stjórnsýslulögum.
Mikill viðbúnaður er í Queensland í Ástralíu vegna fellibyls sem kemur þar að landi á morgun. Búist er við að hann verði fjórða stigs bylur með vindhraða yfir 70 metra á sekúndu í hviðum.
Bandaríska viðskiptaráðuneytið hefur sett sig í samband við íslensk samkeppnisyfirvöld og óskað eftir því að þau hlutist til um að hlutur Framtakssjóður lífeyrissjóðanna í Icelandic Group, sem nú er verið að selja, verði settur í opið söluferli. Þetta fullyrðir vefritið Intrafish.
Ríkisendurskoðun hefur lokið rannsókn á fjárreiðum forstöðumanns fangelsins að Kvíabryggju. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar málið.</description>
Hádegisfréttir 31.janúar 2011
      <description>Ráðist var á Jón Björgvinsson fréttaritara Ríkisútvarpsins þar sem hann var að kvikmynda fyrir svissneska sjónvarpið í fátækrahverfi í Kaíró í morgun. Jón var barinn og myndavél hans eyðilögð.
Þúsundir manna mótmæla nú í miðborg Kaíró.  Herinn hefur mikinn viðbúnað og eru skriðdrekar hvarvetna. Boðað er til gríðarmikillar mótmælagöngu á morgun.
Viðskipti þriggja sparisjóða með hlutabréf í Icebank ollu hruni íslenska sparisjóðakerfisins. Þetta segir lektor í viðskiptafræði. Þá hafi stjórnendur Byrs beitt blekkingum í kjölfar viðskiptanna til að réttlæta risastóra arðgreiðslu.
Meirihluti fjárlaganefndar Alþingis leggur til að Icesave-samningurinn verði samþykktur. Þetta kemur fram í áliti meirihlutans. Fulltrúi Framsóknarflokksins í nefndinni segir að samningurinn sé sanngjarn. 
Heilbrigðsstofnun Fjallabyggðar á Siglufirði sagði upp tólf manns í þessum mánuði og breytti starfshlutfalli 18 starfsmanna til viðbótar.
Þingmenn stjórnarflokkanna telja fráleitt að samið verði um allt að sextíu og fimm ára leigu á fiskveiðiauðlindinni. Rætt er um tíu til tuttugu ára samninga við gerð frumvarpsins, sem lagt verður fram á næstu vikum.
Samtök atvinnulífsins eru föst í neti sérhagsmuna segir forseti Alþýðusambandsins. ASÍ hafni því alfarið að LÍÚ segi til um það hvenær almennt verkafólk, iðnaðarmenn, verslunar- og skrifstofufólk og fleiri semji um sínar launahækkanir. 
Menn sem hugðust ráðast inn í bækistöðvar Jótlandspóstsins skömmu fyrir áramót ætluðu að  hálshöggva og skjóta starfsmenn blaðsins.  Þetta kemur fram í gögnum sem danska Ekstra bladet hefur undir höndum.
Veðurhorfur: Vaxandi austan- og norðaustanátt með slyddu eða snjókomu, tíu til fimmtán metrar um hádegi en þrettán til tuttugu um tíma á Vestfjörðum seinnipartinn og fram á kvöld. Norðvestan- og vestanátt á morgun, víða átta til fimmtán. Él norðan og vestantil, en annars þurrt að kalla. Lægir síðdegis. Hiti að fimm stigum allra syðst.</description>
Hádegisfréttir 30. janúar 2011
      <description>Jón Bjarnason, sjávarútvegsráðherra, mun í næsta mánuði leggja fram frumvarp um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Úthlutun kvóta verður ýmist með tímabundnum samningum eða með öðrum hætti.
Sveitastjórn Vopnafjarðarhepps vill að hluti af hagnaði byggðakvótan bæjarins renni í sjóði þess. Í staðinn myndu smábátasjómenn fá afslátt á mótframlagi sínu. 
Dæmi eru um að útlendingar sem búa hér á landi biðji um vottorð um að þeir séu á lífi, til að fullnægja kröfum yfirvalda í heimalandi sínu vegna réttinda. Ekkert slíkt eftirlit er hér á landi. 
Ekkert lát er á mótmælunum í Egyptalandi. Þúsundir mótmæla nú í höfuðborginni. Íbúar hafa stofnað varnarsamtök til að verja heimili sín gegn ræningjum.
Sparisjóðurinn í Keflavík lánaði sem samsvarar um sextíu prósentum af eigin fé sjóðsins til tengdra aðila, eigenda og stjórnenda sparisjóðsins. Fjármálaeftirlitið gagnrýndi mat sjóðsins á áhættuskuldbindingum í svartri skýrslu í september 2008.
Ýmis ótrúleg tengsl eru á milli fingralengdar og sjúkdóma og hegðunar. Þannig staðfestir íslensk rannsókn að þeir sem eru með baugfingur lengri en vísifingur séu líklegri en aðrir til að þurfa að fá gervilið í hné.  
Kolbeinn Sigþórsson skoraði fimm mörk fyrir AZ Alkmaar í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöld. 
Veðurhorfur:
Suðvestan tíu til átján metrar. Skúrir en síðar slydduél eða él sunnan og vestanlands en skýjað annars staðar. Dregur úr vindi og éljum í kvöld. Kólnar smám saman og hiti víða að fjórum stigum síðdegis, en vægt frost til landsins. Vaxandi austan- og norðaustanátt með slyddu eða snjókoma í fyrramálið, tíu til fimmtán um hádegi en átján til tuttuguogþrír á Vestfjörðum síðdegis. Hægari og þurrt NorðAustan-til fram eftir degi. Hiti breytist lítið.</description>
Veðurhorfur:
Hádegisfréttir 29. janúar 2011
      <description>Þúsundir mótmæltu í Egyptalandi í nótt þrátt fyrir útgöngubann, en það hefur nú verið framlengt. Búist er við hörðum mótmælum í stærstu borgum landsins í dag. Bandaríkjaforseti þrýsti á forseta landsins að standa við fyrirheit um aukin lýðréttindi þegar leiðtogarnir ræddust við í gærkvöldi. 
Einn af varaforsetum Alþingis lýsir ánægju með afsögn Landskjörstjórnar í gær og telur að bæði Ögmundur Jónasson og Jóhanna Sigurðardóttir eigi líka að segja af sér. Þau hafi ekkert lært af gagnrýni rannsóknarnefndar Alþingis um skort á formfestu í stjórnsýslunni.
Útlit er fyrir skærur á vinnumarkaði næstu mánuði og misseri, takist ekki að ná samningum til lengri eða skemmri tíma. Þetta segir varaformaður Starfsgreinasambandsins. 
Sérstakur saksóknari gæti þurft að kalla Kaupþingsmenn aftur til yfirheyrslu þegar gögn sem haldlögð voru í húsleit Banque Havilland í Lúxembúrg berast embættinu. Hæstiréttur í Lúxembúrg hefur úrskurðað að gögnin skuli afhent.
Mjólkurlager MS hjá Mjólkursamlaginu á Ísafirði hefur verið lagður niður og er mjólkurvörum nú aðeins dreift í verslanir á svæðinu tvisvar í viku. 
Tæp sextíu prósent Dana eru of þung, þar af eru tíu prósent allt of þung samkvæmt alþjóðlegum skilgreiningum. Þungum og alltof þungum Dönum hefur fjölgað um tíu prósent á innan við fimm árum. 
Bandaríska "border collie" tíkin Chaser getur greint á milli ríflega eitt þúsund orða og er þar með orðfróðasta dýr í heimi. 
Veðurhorfur: Vaxandi sunnanátt, þrettán til tuttugu metrar með slyddu og síðar talsverðri rigningu vestantil en yfirleitt hægari og úrkomulítið austanlands. Suðvestlægari í kvöld og dregur úr úrkomu. Él eða slydduél um landið vestanvert á morgun, rigning með köflum suðaustanlands, en annars þurrt. Hiti víða tvö til sjö stig síðdegis, en kólnar heldur á morgun.</description>
Hádegisfréttir 28.janúar 2011
      <description>Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, hyggst ekki axla ábyrgð á gölluðum kosningum til stjórnlagaþings með því að segja af sér embætti. Hann segir það ósanngjarna kröfu. 
Þúsundir manna krefjast afsagnar Mubaraks Egyptalandsforseta í helstu borgum landsins. Lögregla beitir táragasi og gúmmíkúlum.  Talið er að mótmæli sem hófust laust fyrir hádegið verði hin mestu í sögu landsins. 
Umferðarstofa hefur í morgun fengið hátt í þrjú hundruð símtöl frá fólki sem vill fá upplýsingar um koltvísýringsútblástur bíla sinna. Bifreiðagjöld miðast nú við skráða losun koltvísýrings.
Samkvæmt nýju lagafrumvarpi um staðgöngumæðrun á Indlandi má staðgöngumóðir ekki ganga með fleiri en þrjú börn fyrir sama parið. Einstæðar konur og karlar mega ráða staðgöngumóður en ekki samkynhneigðir.
Sporna á við misnotkun ofvirknilyfja með nýjum vinnureglum heilbrigðisyfirvalda. Notkun fullorðinna á ofvirknilyfjum hefur stóraukist. Hvergi í heiminum er eins mikið notað af ofvirknilyfjum og hér. 
Ísland og Króatía eigast í kvöld við um 5. sætið á heimsmeistaramótinu í handknattleik í Svíþjóð. 
Veðurhorfur: Vestlæg átt víða tíu til átján metrar og él í dag, en úrkomulítið austanlands. Hiti nálægt frostmarki. Hægari og úrkomuminna í kvöld. Gengur í sunnan þrettán til tuttugu á morgun með slyddu og síðar talsverðri rigningu vestantil en úrkomulítið austanlands. Víða vægt frost til landsins en frostlaust við ströndina í dag. Hlýnandi veður á morgun.</description>
Hádegisfréttir 27.janúar 2011
      <description>Innanríkisráðherra segir fullkomlega eðlilegt að kalla eftir ábyrgð eftir úrskurð Hæstaréttar um stjórnlagaþingskosningar og segir Hæstarétt ekki hafinn yfir gagnrýni. Formaður Sjálfstæðisflokksins vill að ríkisstjórnin biðji þjóðina afsökunar á klúðrinu.
Kveikt hefur verið í stjórnarbyggingum í Egyptalandi.  Íslendingar í Kaíró segja að mótmælaaðgerðirnar þar séu án fordæma.  Krafist er afsagnar Múbaraks forseta.
Sjónarmið Íslendinga í makríldeilunni fengu óvæntan hljómgrunn á fundi umhverfis- og auðlindanefndar Norðurlandaráðs í Finnlandi í vikunni. Nefndin hvetur til sátta í deilunni
Forvalsgögn vegna Vaðlaheiðarganga verða send út á næstu dögum. Innanríkisráðherra segir samstöðu norðlendinga um gangagerðina lykilinn að framgangi verksins.
Stofnandi IKEA vísar á bug fullyrðingum sænska sjónvarpsins um að hann hafi stofnað leynilegan sjóð í skattaskjóli utan um verslunarkeðjuna til að komast hjá skattgreiðslum.
Myrkir músídagar hefjast í dag. Ný íslensk nútímatónlist er í aðalhlutverki á hátíðinni sem hefst með tónleikum í beinni útsendingu á Rás eitt. 
Íslenska karlalandsliðið í handbolta leikur síðasta leik sinn á HM í Svíþjóð á morgun . Töluvert er um meiðsl í íslenska hópnum.
Veðurhorfur: Suðvestan átta til fimmtán metrar, hvassast um landið norðvestanvert. Yfirleitt þurrt norðaustan og austanlands, annars súld eða dálítil rigning. Hiti eitt til átta stig. Suðvestan tíu til átján á morgun. Víða él, en þurrt austanlands. Kólnandi veður.</description>
Hádegisfréttir 26.janúar 2011
      <description>Stjórnmálafræðingur segir engin dæmi um það í vestrænum lýðræðisríkjum, að kosningar á landsvísu hafi verið ógiltar, eins og stjórnlagaþingskosningarnar í gær.
Kostnaður við nýjar stjórnlagaþingskosningar gæti numið 240 milljónum króna. Heildarkostnaður við þingið yrði þá um 800 milljónir. Formaður Landskjörstjórnar hefur ekki tekið afstöðu til annars, en að hann sitji áfram.
Forsætisráðherra segir fráleitt að lýsa ábyrgð á niðurstöðu Hæstaréttar á hendur forsætisráðherra og ríkisstjórn. Þrír ráðherrar ásamt fulltrúum úr þingflokkum stjórnarflokkanna hafa fundað um málið í morgun.  
Starfsfólk í fiskimjölsverksmiðjum á Austurlandi og í Vestmannaeyjum hefur samþykkt að boða til verkfalls. Talningu lauk nú rétt fyrir fréttir.
Óeirðalögregla með brynvarða bíla er nú við helstu opinberar byggingar  í Kaíró, höfuðborg Egyptalands, þar sem stjórnarandstaðan boðar til mótmæla annan daginn í röð. 
Fimmtíu og fimm prósent fyrirtækja á Suðurnesjum sjá fram á gjaldþrot á næstu tólf mánuðum. Þetta má lesa út úr úttekt Creditinfo á stöðu fyrirtækja á landsbyggðinni.
Verðbólga hér á landi hefur ekki mælst eins lítil síðan í mars 2004. Ársverðbólgan er nú eitt komma átta prósent. 
Veðurhorfur: Suðvestlæg átt 5-10 metrar, Dálítil súld eða þokumóða vestantil á landinu, en annars skýjað með köflum og þurrt að mestu. Suðvestan átta til fimmtán metrar með kvöldinu og rigning með köflum, hvassast um landið norðvestanvert, en hægari og þurrt að mestu austanlands. Hiti 0 til 8 stig, mildast úti við sjóinn. Hægt minnkandi vindur á morgun og kólnar heldur í veðri.</description>
Hádegisfréttir 25.janúar 2011
      <description>Vatnsréttindi Kárahnjúkavirkjunar eru eins komma sex milljarða króna virði, samkvæmt dómi Héraðsdóms Austurlands. Hneyksli segja landeigendur. Dómurinn er að mestu leyti í samræmi við niðurstöður matsnefndar frá 2007.
Ríkistjórnin ætlar að hefja viðræður við HS-Orku, eigendur félagsins og sveitarfélög um að stytta leigutíma nýtingarréttar. Auk þess er lögð áhersla á að tryggja ríkinu ótímabundinn forkaupsrétt að hlutum Magma í HS Orku. 
Algjör trúnaður ríkir um innihald samtals íslenska og breska seðlabankastjórans  í október 2008.  Davíð Oddsson segir Mervyn King hafa fullyrt að Íslendingar ættu ekki að greiða Icesave. Varaformaður fjárlaganefndar Alþingis segist myndu fara varlega í að túlka símtalið með þeim hætti. 
Mótmæli og óeirðir hafa brotist út víða í Líbanon eftir að þingmanni á vegum Hezbollah samtakanna var veitt stjórnarmyndunarumboð. Súnnítar saka klerkastjórnina í Íran um að reyna að ræna völdum í Líbanon.
Nauðsynlegt er að ráðast í opinbera rannsókn á starfsháttum Sparisjóðsins í Keflavík. Þetta segir sparisjóðsstjórinn hjá SP-Kef sem reistur var á rústum sparisjóðsins. 
Byggðastofnun þarf tvo og hálfan milljarð frá ríkinu strax á þessu ári til að eiginfjárhlutfallið standist lög, samkvæmt nýrri skýrslu. Þá þarf stofnunin milljarð til viðbótar á næstu fjórum árum eftir það.
Helsta keppikefli íslenska handboltalandsliðsins eftir tapið gegn Spáni í gær er að ná umspilssæti fyrir Ólympíuleikana í Lundúnum árið 2012.
Veðurhorfur: Hæg suðvestlæg átt og dálítil rigning eða súld með köflum um vestanvert landið en norðvestan fimm til þrettán metrar austanlands og úrkomulítið en lægir þar í kvöld. Hvessir smám saman vestantil á morgun, suðvestan átta til fimmtán síðdegis en hægari austantil. Hiti að sex stigum en vægt frost í innsveitum norðaustan og austanlands.</description>
Hádegisfréttir 24.janúar 2011
      <description>Framlög  til grunnskóla Reykjavíkur hafa verið skert um ríflega hálfan milljarða á síðustu tveimur árum. Kostnaður vegna yfirstjórnar menntasviðs er hins vegar meiri nú en árið tvö þúsund og níu.
Það gæti skýrst í dag hvort og með hvaða hætti yfirvöld koma að gerð nýrra kjarasamninga. Samninganefndir Alþýðusambandsins og Samtaka Atvinnulífsins hittast hjá ríkissáttasemjara eftir hádegið.
Ossetíska konan Marie Amelie verður flutt nauðug frá Noregi til Rússlands í dag.  Brottvísun hennar hefur valdið hörðum pólitískum deilum í Noregi.
Lögregla í Túnis beitti táragasi gegn hundruðum mótmælenda í Túnisborg í morgun. Mótmælendur hunsuðu útgöngubann og köstuðu grjóti að skrifstofu forsætisráðherrans.
Á þriðja tug hrossa lenti í sjálfheldu þegar óx í Víðidalsá í Húnaþingi um helgina. Miklir vatnavextir voru í ám á suður- og vesturhluta landsins. Enn vex í Ölfusá við Selfoss en annars staðar eru flóð í rénun.
Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handbolta, segir að íslenska liðið þurfi að eiga toppleik til að leggja Spánverja að velli á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð í dag. 
Veðurhorfur: Hægt vaxandi suðvestanátt, tíu til átján metrar síðdegis, hvassast norðvestantil. Víða dálítil væta í dag, en þurrt að kalla austanlands. Hæg vestlæg átt og úrkomulítið á morgun. Hiti að átta stigum, svalast inn til landsins.</description>
Hádegisfréttir 23.janúar 2011
      <description>Fyrrverandi stjórnarmaður í Byr vill skoða hvort Glitnir og Byr séu skaðabótaskyldir vegna stofnfjáraukningar í sparisjóðnum fyrir rúmum þremur árum. Fólk hafi verið blekkt og þvingað til kaupanna, - og sumir hafi greitt í reiðufé sem nú er glatað. 
Varað er við vatnavöxtum í Hvítá í Árnessýslu vegna hlýinda og úrkomu. Í Auðsholti Hrunamannahreppi hefur áin flætt yfir bakka sína og yfir bæjarveginn á 150 metra kafla.  
Forseti Alþýðusambandsins segir að ríkisstjórnin verði að svara því á morgun hvort hún hyggist verða við kröfum um að koma að kjarasamningum með því að hækka bætur og stuðla að aukinni atvinnu í landinu. 
Græningjar, annar stjórnarflokkurinn á Írlandi, vilja að gengið verði til kosninga án tafar.
Bækur verða æ vinsælli til jólagjafa ef marka má nýja könnun Capacent Gallups. Níutíu og þrjú prósent Íslendinga lásu að minnsta kosti eina bók á síðasta ári. 
Tveir pandabirnir verða áfram í dýragarðinum í Washington samkvæmt nýjum leigusamningi við kínversk stjórnvöld. Þeir hafa verið eitt helsta tákn dýragarðsins.
Íslenska landsliðið í handknattleik er nú í þriðja sæti í milliriðli á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð eftir tap gegn Þjóðverjum í gær.
Veðurhorfur: Suðvestanátt, víða tíu til fimmtán metrar og rigning, þó síst austanlands. Hiti fimm til tíu stig. Minnkandi vestanátt og styttir upp síðdegis og í kvöld. Kólnar heldur. Suðvestan fimm til þrettán á morgun, en bætir í vind síðdegis. Þurrt austanlands, annars dálítil væta. Milt veður.</description>
Hádegisfréttir 22.janúar 2011
      <description>Dómar sem féllu vegna lána til stofnfjárkaupa í sparisjóðum í gær gætu haft víðtækt fordæmisgildi. Hundruð manna gætu losnað undan milljarða lánum. 
Formaður Sjúkraliðafélagsins segir að landlæknisembættið sinni ekki sem skyldi eftirlitshlutverki sínu með sjúkrastofnunum. Formaðurinn hefur þungar áhyggjur af aukinni tíðni dauðsfalla að undanförnu. 
Tugir eru í haldi lögreglu og nokkrir illa særðir eftir átök mótmælenda við óeirðarlögreglu í Alsír í morgun. Yfirvöld eru sögð óttast byltingu á borð við þá sem var gerð í nágrannaríkinu Túnis á dögunum.
Viðræðum vegna kjarnorkudeilu Írana lauk í Tyrklandi í morgun. Engin árangur náðist á fundinum.
Dansari hjá Íslenska dansflokknum liggur þungt haldinn á gjörgæsludeild Landspítalans eftir að hann slasaðist á æfingu í Borgarleikhúsinu í gær.
Ekki má margfalda þorskeldi við Ísafjarðarbæ án þess að fram fari umhverfismat samkvæmt úrskurði umhverfisráðuneytisins. 
Evrópusambandið hefur gefið Ungverjum tveggja vikna frest til að skýra hvernig ný fjölmiðlalög þeirra samrýmist evrópureglum. Verði svörin ófullnægjandi áskilur framkvæmdastjórn ESB sé rétt til að hefja málarekstur gegn Ungverjum.
Íslendingar mæta í dag Þjóðverjum í fyrsta leik liðanna í milliriðli heimsmeistaramótsins í handknattleik.  Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari, segir sigrana á Þjóðverjum á dögunum ekki skipta neinu máli í dag.
Veðurhorfur: Suðvestan tíu til átján metrar norðvestan-til, annars víða átta til þrettán. Súld eða dálítil rigning, en þurrt og bjart á norðaustur- og austur-landi. Hiti fimm til tólf stig. Suðvestans tíu til fimmtán og rigning á morgun, þó síst austan-lands. Hægari síðdegis og úrkomuminna. Heldur kólnandi.</description>
Hádegisfréttir 21. janúar 2011
      <description>Fjármálaeftirlitið sofnaði á verðinum og gerði ekki athugasemdir við rekstur Sjóvár fyrr en það var um seinan. Þetta segir Pétur H. Blöndal, þingmaður og tryggingastærðfræðingur. 
Materia, eignarhaldsfélag þeirra Magnúsar Ármanns og Kevins Stanford, var í dag dæmt til að greiða Arion banka um sex komma fjóra milljarða króna vegna fimm ára gamals láns. 
Persónuvernd hefur kært Símann til lögreglu fyrir að safna persónu-upplýsingum um viðskiptavini Nova. 
Mótmæli voru í Lundúnum í morgun þegar þar hófust yfirheyrslur yfir Tony Blair fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands um tildrög Íraksstríðsins.
Ung kona, sem veiktist af svínaflensu, hefur verið lögð inn á gjörgæsludeild Landspítalans. 
35 milljóna króna tekjuafgangur varð af rekstri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja á síðasta ári samkvæmt bráðabirgðauppgjöri
Nemendum  í framhaldsskólum hefur fækkað um átta prósent frá haustinu 2009, vegna samdráttar í fjarnámi og öldungadeildum. 
Ryk, kolmónoxíð og vetnisklóríð hafa mælst yfir viðmiðunarmörkum í sorpbrennslu á Kirkjubæjarklaustri. Til greina kemur að hætta að brenna sorpi á skólatíma, en sorpbrennslan er sambyggð íþróttahúsi og grunnskóla.
Frábær vörn og markvarsla réði úrslitum í sjö marka sigri á Norðmönnum í síðasta leik riðlakeppninnar á heimsmeistaramótinu í gærkvöld. Íslenska liðið mætir Þjóðverjum á morgun.
Veðurhorfur: Sunnan og suðvestanátt, víða átta til fimmtán metrar. Rigning eða súld með köflum, en yfirleitt þurrt norðaustan og austanlands. Hiti tvö til tíu stig.</description>
Hádegisfréttir 20. janúar 2011
      <description>Fyrrverandi yfirmaður í Landsbanka Íslands var einn fjögurra sem handteknir voru í morgun, þegar sérstakur saksóknari gerði húsleit á þremur stöðum í Reykjavík. Meðal annars var leitað í Seðlabanka Íslands. 
Nýir eigendur Sjóvár þurfa að endurgreiða ríkissjóði 12 milljarða króna komist eftirlitsstofnun EFTA að þeirri niðustöðu að björgun tryggingafélagsins hafi verið ólögmæt. Félagið er ekki 10 milljarða króna virði. 
Þingmenn vissu ekki að fartölva hefði fundist í húsnæði Alþingis í fyrra og að grunur léki á að brjótast hefði átt inn í tölvukerfi Alþingis. Forseti Alþingi flytur þinginu skýrslu um málið klukkan tvö í dag. 
Um fimmtíu og tveggja milljóna króna tekjuafgangur varð af rekstri Landspítala í fyrra. Störfum hefur fækkað um tæplega sjöhundruð á rúmum tveimur árum og þjónustan hefur verið skert. 
David Cameron forsætisráðherra Bretlands hvetur til þess að stofnað verði bandalag þjóða í Norður-Evrópu. Málið er rætt á leiðtogafundi sem Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, situr. 
Frumvarp sjö þingmanna úr þremur flokkum um að sjómönnum verði áfram tryggður sjómannaafsláttur verður lagt fram á Alþingi í dag. 
Ísland mætir Noregi í kvöld í lokaleik sínum í b-riðli heimsmeistarmótsins í handknattleik í Svíþjóð.  Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari, býst við erfiðum leik enda til mikils að vinna fyrir bæði lið.</description>
Hádegisfréttir 19. janúar 2011
      <description>Bandarískur maður var í gær dæmdur í 80 ára fangelsi fyrir kynferðisofbeldi gegn börnum. Sum brotanna voru framin þegar maðurinn starfaði á herstöðinni á Keflavíkurflugvelli á fyrri hluta síðasta áratugar.
Göngumanni sem var blautur, kaldur og villtur, var bjargað á Ölkelduhálsi norðan Hveragerðis í gær. Fjórir vísindamenn gengu fram á hann, en hann hafði legið úti um nóttina. 
Öll fjarskiptakerfi voru óvirk um tíma á hluta Norðausturlands í óveðri sem gekk þar yfir í byrjun janúar. Bæjarráð Norðurþings fer fram á að ráðherra fjarskiptamála kanni hvernig slíkt geti gerst.
Ný bandarísk leyniskjöl hafa verið birt á upplýsingavefnum WikiLeaks um tölvuárásir á kjarnorkuver í Íran.
Enginn fulltrúi meirihlutans í Reykjavík kannast við að bera ábyrgð á ákvörðun um skert fjárframlög til Strætó bs, segir fulltrúi Vinstri grænna í borgarstjórn. Framlög til Strætó verða skorin niður um 135 milljónir á árinu. 
Kvartað hefur verið til umboðsmanns Alþingis vegna meðferðar hins opinbera á tryggingafélaginu Sjóvá. Umboðsmaður Alþingis hefur spurt forsætisráðherra hvort ekki standi til að breyta reglum um sölu fyrirtækja í ríkiseigu.
Færeyingar tilkynntu í morgun um fækkun ráðherra í landstjórninni.  Utanríkisráðuneytið verður lagt undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Ísland tryggði sér í gærkvöld sæti í milliriðli í heimsmeistarakeppninni í handknattleik, þegar íslenska liðið sigraði Austurríki
Veðurhorfur: Sunnanátt, víða tíu til fimmtán metrar. Vætusamt, einkum á suðausturlandi en úrkomulítið norðaustanlands. Hiti tvö til átta stig. Suðvestanátt með hvössum éljum í nótt og á morgun, einkum sunnan og vestantil. Hiti um frostmark suðvestanlands annars vægt frost.</description>
Hádegisfréttir 18. janúar 2011
      <description>Tekist er á um skilyrði sem dómari í New York setti þegar hann vísaði frá máli slitastjórnar Glitnis á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og viðskiptafélögum.  í desember. 
Fiskvinnslufyrirtækið Eyraroddi á Flateyri er gjaldþrota. Formaður Verkalýðsfélags Vestfjarða segir atvinnuástandið á Flateyri þannig að fólk hafi ekki að miklu að hverfa. 
Nokkrir níumenninganna, sem ákærðir eru fyrir árás á Alþingi, lýstu harkalegum viðbrögðum lögreglu í héraðsdómi í dag þegar aðalmeðferð í málinu hófst.
Þúsundir manna hafa mótmælt nýrri ríkisstjórn Túnis í morgun. Mótmælendur segjast ekki sætta sig við að þar séu ráðherrar úr flokki Ben Alis, fyrrverandi forseta.
Bandarískir öldungadeildarþingmenn krefjast þess að Bandaríkin grípi til refsiaðgerða gegn Kína fyrir að falsa gengi kínverska gjaldmiðilsins júans.
Leigubílakostnaður hjá fyrirtækjum og fólki sem vinnur vaktavinnu eykst mikið þegar niðurskurðarhugmyndir Strætó koma til framkvæmda. Gera má ráð fyrir að slíkur kostnaður hjá Landspítalanum nífaldist. 
Útlit er fyrir langvinna kjaradeilu sjómanna og útvegsmanna í Færeyjum. Sáttasemjari segir enga lausn í sjónmáli. Nær öll fiskveiðiskip Færeyinga eru bundin við bryggju en vinnustöðvun tók gildi í gærkvöldi.
Ossetíska flóttakonan Marie Amelie er laus úr varðhaldi í Noregi. Brottvísun hennar er orðið eitt erfiðasta vandamálið í ríkisstjórnartíð Jens Stoltenbergs forsætisráðherra.
Alexander Petersson, landsliðsmaður í handknattleik og nýkrýndur íþróttamaður ársins, hefur samið við þýska stórliðið Rhein Neckar Löwen um að leika með því frá miðju næsta ári samkvæmt vefmiðlinum handballworld.
Bensín- og díselverð lækkaði um 14 krónur hjá Atlantsolíu, Orkunni og ÓB bensíni í morgun vegna 14 marka sigurs íslenska landsliðsins í handbolta á Japönum í gær.  Ísland er með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir.</description>
Hádegisfréttir 17.janúar 2011
      <description>Mótmæli brutust aftur út á götum Túnisborgar nú í hádeginu. Lögregla beitti táragasi til að dreifa mannfjölda sem vill útiloka flokk gömlu einræðisstjórnarinnar frá þjóðstjórn, sem reyna á að mynda í landinu. 
Forseti Íslands hvetur Brown, fyrrverandi forsætisráðherra, til að biðja íslensku þjóðina afsökunar. Ummæli hans um gjaldþrot Íslands hafi haft slæm efnahagsleg áhrif.
Þingmaður Framsóknarflokksins telur að stjórnvöld vilji ekki upplýsa um raunverulega framfærsluþörf almennings þar sem tölurnar sem reiknaðar hafa verið út séu óþægilegar.
Formaður Landsambands kúabænda segir að bændur þurfi að fá hærra verð fyrir mjólkina til að mæta fyrirhuguðum hækkunum á kjarnfóðri.
Áttatíu björgunarsveitarmenn tóku þátt í að sækja fótbrotinn mann á Heiðarhorn í Skarðsheiði í gær. 
Mikilvægt er að ástand kríustofnsins verði rannsakað á landsvísu, segir líffræðingur sem í þrjú ár hefur rannsakað varp kríunnar.  Ástand stofnsins hefur versnað með hverju ári.
Íslenska karlalandsliðið í handknattleik mætir Japönum í kvöld í þriðju umferð á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð. Guðmundur Guðmundsson býst við erfiðum leik.
Veðurhorfur: Norðaustan átta til þrettán metrar norðvestantil með dálítilli snjókomu eða éljum, en suðvestan og vestan fimm til þrettán um landið sunnanvert og él, annars hæg breytileg átt og bjart með köflum. Lægir víðast hvar í nótt, en gengur í suðaustan tíu til átján með slyddu síðdegis, fyrst suðvestanlands. Frost að átta stigum, kaldast norðaustanlands, en hiti við frostmark við ströndina sunnantil. Kólnar heldur í fyrramálið, en hlýnar suðvestantil síðdegis.</description>
Hádegisfréttir 16. janúar 2011
      <description>Karlmaður hlaut lífshættulega áverka í fólskulegri líkamsárás í Kópavogi í nótt. Lögregla hefur tvo í haldi vegna málsins og grunar að allt að fimm manns hafi ráðist á manninn.
Halldór J. Kristjánsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans er kominn til landsins og verður yfirheyrður síðar í dag í tengslum við rannsókn sérstaks saksóknara á meintri markaðsmisnotkun stjórnenda bankans.
Breski leynilögreglumaðurinn sem tók þátt í mótmælum við Kárahnjúka sumarið 2005 segist óttast um líf sitt. Hann segir að upplýsingar sem hann aflaði hafi verið sendar beint til þáverandi forsætisráðherra Bretlands, Tonys Blair.
Stjórnarformaður Framtakssjóðs Íslands segir af og frá að sjóðurinn sé að endurúthluta völdunum í íslensku atvinnulífi til einkaaðila á bak við tjöldin. Hann fagnar þeim skilyrðum sem Samkeppniseftirlitið hefur sett sjóðnum. 
Danskt ráðuneyti hefur árum saman synjað börnum landflótta fólks um ríkisborgararétt.  Slík synjun er brot á samþykkt Sameinuðu þjóðanna.  
Íslenska karlalandsliðið í handknattleik sigraði Brasilíu í öðrum leik sínum á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð í gærkvöld. Úrslit leiksins urðu 34:26.
Veðurhorfur: Norðaustan 8-15 metrar norðvestantil með dálítilli snjókomu eða éljum, en annars hæg breytileg átt og lítilsháttar skúrir eða él, einkum suðvestanlands. Suðvestan og vestan 5-10 metrar um landið sunnanvert síðdegis með skúrum eða slydduéljum en bjart með köflum á Austfjörðum. Frost 0 til 8 stig inn til landsins, einkum norðaustanlands, annars hiti 0 til 5 stig. Heldur kólnandi á morgun og úrkomuminna.</description>
Hádegisfréttir 15. janúar 2011
      <description>Kostnaður ríkissjóðs vegna Icesave-samningsins gæti numið allt að 233 milljörðum króna, veikist íslenska krónan og gangi áætlanir Landsbankans um endurheimtur ekki eftir.
Rafiðnaðarsamband Íslands telur að rafbúnaðurinn á fyrrum varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli sé slysagildra fyrir fjölskyldur sem þar búa. Til greina kemur að kvarta yfir þessu til eftirlitsstofnunar EFTA.
Ríkið er lítið aflögufært til að bregðast við kröfum ASÍ um þáttöku í komandi kjarasamningum að mati forsætisráðherra. Nefnd á vegum ráðherrans fer nú yfir nýlega aðgerðaáætlun sambandsins í atvinnumálum. 
Stjórnlagaráð Túnis segir að forseti þings eigi að vera forseti landsins til bráðabirgða, en forsætisráðherra landsins lýsti sig forseta í gær eftir að Ben Ali hrökklaðist úr landi. Búið er að opna lofthelgi Túnis á ný.
Formaður Samiðnar segir yfirvofandi uppsagnir hjá Íslenskum aðalverktökum reiðarslag fyrir byggingaiðnaðinn. Hann óttast að íslenskir iðnaðarmenn ílendist í útlöndum því engin stór verkefni séu í farvatninu hér. 
Stöðugildum kennara við grunnskóla Reykjavíkur verður fækkað talsvert fyrir næsta skólaár. Formaður Skólastjórafélags Íslands segir að ekki verði auðvelt að sinna lögbundnu starfi grunnskólanna og mæta boðuðum niðurskurði.
Ísland mætir Brasilíu í öðrum leik sínum í heimsmeistarakeppninni í handknattleik í Svíþjóð í dag. Í gærkvöld höfðu Íslendingar betur gegn Ungverjum.
Veðurhorfur: Norðaustan tíu til átján metrar og dálítil él á Vestfjörðum, en annars breytileg eða austlæg átt, yfirleitt þrír til tíu metrar. Stöku skúrir sunnantil en rigning með köflum suðaustanlands síðdegis. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost inn til landsins, einkum norðaustanlands. Hiti breytist lítið.</description>
Hádegisfréttir 14. janúar 2011
      <description>Dómari tekur afstöðu í dag til kröfu saksóknara um gæsluvarðhald yfir Sigurjóni Þ. Árnasyni fyrrverandi bankastjóra Landsbankans og Ívari Guðjónssyni fyrrverandi forstöðumanni eigin viðskipta bankans. Þeir voru báðir í varðhaldi nótt.
Staðfest er að á sjötta hundrað manns hefur farist í flóðum og aurskriðum í bæjum og þorpum  í Brasilíu í gær og fyrradag. Óttast er að fleiri eigi eftir að finnast látnir.
Forsætisráðherra segir ekki boðlegt að halda kjaraviðræðum í gíslingu og gagnrýnir afstöðu Samtaka atvinnulífsins um að ekki sé hægt að ljúka kjarasamningum án þess að niðurstaða fáist um málefni sjávarútvegsins.
Horfið er frá stóriðjustefnu í nýjum drögum að orkustefnu fyrir Ísland og orkan seld í meira mæli til smærri notenda. Einnig er lagt til að nýtingartími orkufyrirtækja verði styttur um helming. 
Framleiðslugeta lyfjaverksmiðju Actavis í Hafnarfirði hefur nú aukist um fimmtíu prósent. Starfsfólki Actavis fjölgaði um hundrað í fyrra.
Fjórtán af hverjum hundrað Íslendingum reykja og hafa aldrei verið færri. Fyrir tuttugu árum reykti tæpur þriðjungur landsmanna. 
Ísland hefur leik á heimsmeistaramótinu í handknattleik í dag, en mótið fer fram í Svíþjóð. Fyrsti andstæðingur Íslands er lið Ungverjalands. Leiknum verður lýst í útvarpinu í beinni útsendingu á Rás 2.</description>
Hádegisfréttir 13. janúar 2011
      <description>Deilur um makrílveiðar harðna. Evrópusambandið ákveður væntanlega í dag að banna íslenskum skipum að landa makríl í aðildarríkjum sambandsins.
Fjármálaráðherra segir að alltaf hafi legið ljóst fyrir að ríkið myndi verða stofnfjáreigandi í Sparisjóði Keflavíkur. Fjórtán milljarða króna greiðsla ríkissins til að mæta skuldbindingum sparisjóðsins sé liður í því að endurreisa sparisjóðakerfið.
Forsætisráðherra segir fátt mikilvægara fyrir hag almennings og fyrirtækja en að áfram ríki friður á vinnumarkaði og að sátt náist sem fyrst, um sanngjarnar og raunhæfar kjarabætur. Hiti er að færast í kjaraviðræður.
Rannsókn á sölu stjórnenda og aðstandenda þeirra á stofnfjárbréfum í SPRON hefur verið hætt. Til rannsóknar var hvort lög um innherjaviðskipti hefðu verið brotin þegar bréfin voru seld. 
Flóðin í  Brisbane í Ástralíu náðu hámarki í nótt.  Tjón er orðið gíðarlegt og hreinsunarstarfinu er líkt við uppbyggingarstarf eftir stryrjöld.
Fjárfestingarfélag undir forystu Margeirs Péturssonar verður stofnað um erlendar eignir MP banka og bankanum skipt í tvennt samkvæmt Viðskiptablaðinu. Auka á hlutafé bankans innanlands. Eigendur þess hlutafjár eignast MP banka að mestu. 
Sjúkratryggingar Íslands kanna hvort ekki hafi verið farið eftir samningi um sjúkraflug þegar þyrla var send til Vestmannaeyja til að sækja fyrirbura. Frekar hafi átt að senda sjúkraflugvél frá Akureyri en það kostar minna.
Valur vann Fram í uppgjöri toppliðanna í úrvalsdeild kvenna í handbolta í gærkvöld, 23-16. Fram skoraði einungis þrjú mörk í seinni hálfleik.</description>
Hádegisfréttir 12. janúar 2011
      <description>Gríðarlegur sinueldur í Vatnsmýri í gærkvöldi ógnaði um tíma öryggi íbúa og fyrirtækja í nágrenninu. Engar ráðstafanir hafa verið gerðar til að fyrirbyggja bruna á svæðinu, þótt íbúðarhús og fjölmennir vinnustaðir séu nærri.
Fjámálahverfið í Brisbane, þriðju stærstu borg Ástralíu, er nú undir vatni. Rafmagn hefur verið tekið af hverfinu vegna flóðanna. 16 hafa drukknað og á sjötta tug manna er saknað. 
Þrjár erlendar konur hafa stefnt íslenska ríkinu og Útlendingastofnun, fyrir að afturkalla dvalarleyfi sín. Stjórnvöld telja að þær hafi stofnað til málamyndahjónabanda við íslenska karla.  Lögmaður kvennanna telur að túlkun yfirvalda á útlendingalögunum hafi verið þrengd að undanförnu.
Snjóflóðahætta er enn á Mið-Norðurlandi. Veðurstofan beinir þeim tilmælum til skíðamanna, vélsleðafólks og annarra að vera ekki á ferðinni á þekktum snjóflóðastöðum. 
Um tugur loðnubáta er nú að veiðum norðaustur af Langanesi. Um fimm þúsund tonnum hefur verið landað í þremur höfnum síðasta sólarhringinn. 
Ár er liðið frá jarðskjálftanum mikla á Haíti. Flestir íbúa höfuðborgarinnar Port au Prince hafast enn við í bráðabirgðaskýlum. Þar er hvorki starfhæf vatnsveita né frárennsliskerfi.
Flestir spá Króötum sigri á heimsmeistaramótinu í handbolta sem hefst í Svíþjóð á morgun. Íslenski hópurinn hélt utan í morgun.
Veðurhorfur: Norðaustanátt, víða þrettán til átján metrar og átján til tuttugu og þrír syðst, þó hægari norðaustanlands. Skýjað og él um landið norðan- og austanvert. Norðaustan fimmtán til tuttugu og þrír á morgun og tuttugu og þrí til tuttugu og átta með suðurströndinni og víða snjókoma eða él, en mun hægari vindur á norðaustur og austurlandi. Frost að fimm stigum, en að fimm stiga hita syðst.</description>
Hádegisfréttir 11. janúar 2011
      <description>Mikill viðbúnaður er í Brisbane, þriðju stærstu borg Ástralíu, þar sem rýma þarf níu þúsund hús vegna flóðanna þar. 9 drukknuðu í gær, og um 60 er saknað. Íslensk kona í borginni segir ástandið mjög alvarlegt í mörgun úthverfum.
Orkustofnun hefur veitt Landsvirkjun leyfi til rannsókna í Gjástykki, í andstöðu við Umhverfisráðuneytið og tvær stofnanir þess. Landeigendur og sveitarfélög á svæðinu styðja þessa ákvörðun. 
Sólheimar í Grímsnesi hafa stefnt ríkinu fyrir að skerða fjárframlög til stofnunarinnar meira en til annarra stofnana í hitteðfyrra.
Tölvu sem inniheldur viðkvæmar persónupplýsingar var stolið þegar brotist var inn í húsnæði Aflsins, samtaka um heimilis og kynferðisofbeldi á Akureyri, á milli jóla og nýárs.  
Dæmi eru um að konur af erlendum uppruna hafi afsalað sér forræði yfir börnum sínum við skilnað vegna þess að þær skilja ekki hvað fram fer hjá sýslumanni. 
Rekstur Elkem verður óbreyttur þótt kínverka ríkisfyrirtækið Bláa stjarnan hafi eignast fyrirtækið í morgun.  
Snjóflóðahætta er víða á Tröllaskaga. Litlu munaði að mjólkurbíll lenti í snjóflóði í Fnjóskadal í gær.
Argentínumaðurinn Lionel Messi hefur verið valinn besti knattspyrnumaður heims árið 2010.</description>
Hádegisfréttir 10. janúar 2011
      <description>Kínverskt fyrirtæki er við það að eignast Járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga. Fyrirtækið vill kaupa móðurfélag Járnblendiverskmiðjunnar Elkem fyrir um 300 milljarða íslenskra króna.   
Sendiherra Bandaríkjanna var kallaður á fund í utanríkisráðuneytinu í morgun. Honum var bent á að Birgitta Jónsdóttir alþingismaður nyti friðhelgi hér á landi.
Breskur lögreglumaður sem afhjúpaður var sem njósnari meðal umhverfisverndarsinna var virkur í mótmælum vegna Kárahnjúkavirkjunar. Hann villti á sér heimildir árum saman en segist nú hafa snúist á sveif með aðgerðasinnum.
Atli Gíslason, Ásmundur Einar Daðason og Lilja Mósesdóttir krefjast afsökunarbeiðni frá þingflokksformanni Vinstri grænna, vegna ummæla hans um Lilju. Þingflokkur Vinstri grænna kemur saman eftir hádegi til að ræða ágreininginn innan flokksins.°
Forstjóri Magma á Íslandi segir að ekki sé hægt að stöðva söluna á HS Orku þar sem hún sé frágengin. Ríflega fjörutíu og sex þúsund manns hafa nú skrifað undir áskorun um að salan verði stöðvuð. 
Sjötíu og sjö hafa fundist látnir eftir að farþegaþota fórst í Íran í gærkvöld. Óljóst er hvað olli slysinu.
Formaður Læknafélags Íslands telur að ferðatengd heilbrigðisþjónusta geti orðið til þess að auðveldara verði að manna læknastöður hér á landi. 
Enginn læknir verður í Hrísey frá fyrsta febrúar vegna niðurskurðar.
Veðurhorfur: Norðaustan og norðan átta til þrettán metrar. Dálítil él norðan- og austantil, en annars þurrt að kalla. Hvessir norðvestantil síðdegis, þrettán til átján í kvöld og bætir í ofankomu um tíma. Norðaustan fimm til fimmtán á morgun, hvassast vestantil. Snjókoma eða él um landið norðanvert. Frost eitt til tíu stig, kaldast inn til landsins.</description>
Hádegisfréttir 09. janúar 2011
      <description>Sex  létust í skotárás í Arizona í gær þar sem morðinginn hugðist ráða af dögum þingkonu Demókrata. Hún særðist alvarlega. Bandaríkjaforseti segir árásina þjóðarharmleik. 
 Grunur leikur á að bandarísk yfirvöld hafi ekki aðeins krafið samskiptasíðuna Twitter um upplýsingar um tölvunotkun Birgittu Jónsdóttir, alþingismanns, og fjögurra annarra sem tengjast Wikileaks, heldur einnig síðurnar Facebook og Google.
Kosið er um sjálfstæði Suður Súdan í dag. Yfir eitthundrað þúsund kristnir menn hafa flúið norður Súdan yfir til Suður Súdan á liðnum vikum.  
Heilsuferðaþjónusta getur orðið ein af máttarstólpum íslenskrar ferðaþjónustu í framtíðinni að mati formanns Samtaka um heilsuferðaþjónustu. Rannsóknir gefi það til kynna. 
Þrjátíu og níu þúsund hafa skrifað undir mótmæli gegn vegatollum. Samgöngumálaráðherra segir að það sé tekið mjög alvarlega þegar tugþúsundir manna beini áskorunum til stjórnvalda.
 Atvinnuvegaráðuneytið verður stofnað segir forsætisráðherra, vonandi á þessu þingi. Hún segir að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hafi verið fullkunnugt um þetta þegar hann settist í ráðherrastól.
Veðurhorfur: Gengur í norðaustan tíu til átján metrar, hvassast úti við ströndina. Snjókoma norðvestantil, en annars dálítil él, síst þó á suðausturlandi. Norðaustan átta til þrettán og víða él á morgun, en úrkomulítið á vesturlandi. Frost þrjú til tólf stig, kaldast inn til landsins.</description>
Hádegisfréttir 07. janúar 2011
Hádegisfréttir 08. janúar 2011
      <description>Bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur skipað samskiptasíðunni Twitter að láta af hendi öll skilaboð Birgittu Jónsdóttur, þingmanns Hreyfingarinnar á síðunni.
 Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, er ósammála þeim efnahagslegu markmiðum sem ríkisstjórnin samþykkti í gær til næstu tíu ára og segir þau geta dýpkað kreppuna frekar en hitt. Hún lýsir vonbrigðum með vinnubrögð ríkisstjórnarinnar.
Ekki hefur verið lokið við gerð verklagsreglna um niðurfærslu fasteignaskulda eins og ríkisstjórnin boðaði. Reglurnar áttu að vera tilbúnar um miðjan desember en velferðarráðherra segir að þær verði tilbúnar eftir helgi.
Forseti Súdans segist telja að suðurhluti landsins hafi ekki getu til að standa undir sér sem sjálfstætt ríki.  Kosið verður á morgun um stofnun sjálfstæðs ríkis Suður Súdan. 
 Vegna díóxínmengunnar í sorpbrennslum hefur umhverfisnefnd Alþingi ákveðið að endurskoða löggjöfina um upplýsingaskyldu stjórnvalda í mengunarmálum.
Tveir fyrrverandi þingmenn í Noregi hafa verið dæmdir í fangelsi fyrir að brot á reglum um eftirlaun þingmanna. Tveir fyrrverandi forsætisráðherrar sluppu með skrekkinn.
Roy Hodgson var í morgun rekinn úr starfi knattspyrnustjóra Liverpool. Kenny Daglish stýrir liðinu út tímabilið. 
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti móður og barn til Vestmannaeyja í gær. Barnið fæddist tveimur mánuðum fyrir tímann.</description>
Hádegisfréttir 05. janúar 2011
Hádegisfréttir 06. janúar 2011
      <description>Norðan stórhríð er að bresta á á Norður- og Austurlandi. Foráttuhvasst verður víðast hvar á landinu og mikið frost. Stórstreymt er að auki. Um allt land hefur þrettándagleði og brennum verið frestað.
Kirkjusóknir í landinu skulda rúma fjóra milljarða króna. Ríkisendurskoðun hvetur til þess að sóknir verði sameinaðar í hagræðingarskyni. 
Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga útilokar að öll sveitarfélög geti orðið við tilmælum velferðarráðherra um að framfærslustyrkir verði hækkaðir til jafns við atvinnuleysisbætur.
Mennirnir þrír sem handteknir voru í Danmörku í desember, grunaðir um að ætla að ráðast inn í höfuðstöðvar Jótlandspóstsins í Kaupmannahöfn eru taldir hafa verið félagar í Al Qaeda.  
Ungverjar neyðast til að gera breytingar á fjölmiðlalögum sem tóku gildi þar um áramótin vegna háværra kvartana Evrópusambandsins. Forseti Framkvæmdastjórnar ESB segir tjáningafrelsið heilagt.
Grænt te er gott til varna gegn krabbameini og getur varið heilann fyrir elliglöpum og Alzheimers. Þetta er niðurstaða nýrra rannsókna breskra vísindamanna.
Knattspyrnustjórarnir Roy Hodgson og Carlo Ancelotti þykja valtir í sessi eftir að Liverpool og Chelsea töpuðu í gær.
Veðurhorfur: Viðvörun: Búist er við stormi á höfuðborgarsvæðinu. Norðaustan og síðan norðan þrettán til tuttugu og þrír metrar, hvassast austanlands, með éljagangi norðan og austantil, en skýjað að mestu syðra. Norðan átján til tuttugu og átta seint í kvöld og snjókoma um norðanvert landið. Lægir talsvert á Austurlandi upp úr miðnætti. Norðaustan tíu til átján síðdegis á morgun og él norðan og austanlands. Frost þrjú til fimmtán stig, kaldast inn til landsins. Hiti um frostmark með austur- og suðurströndinni á morgun.</description>
Hádegisfréttir 04.janúar 2011
      <description>270 milljarða króna lánafyrirgreiðsla Kaupþings til rússnesks auðjöfurs, sem lýst er í síðustu fundargerð lánanefndar stjórnar Kaupþings, er margfalt hærri en fram kemur í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis.
Rúður brotnuðu í nokkrum bílum í Vík í Mýrdal í nótt í ofsaroki. Veður er enn mjög vont undir Eyjafjöllum og á Austurlandi og hefur færð spillst. Ekki hefur verið flogið til Egilsstaða vegna veðurs.
Umhverfisráðherra krefur Umhverfisstofnun svara um hvenær stofnuninni hafi fyrst verið kunnugt um díoxínmengun frá sorpbrennslustöð við Skutulsfjörð og hvort íbúar hafi verið upplýstir um mengunina.
Matvælaframleiðsla á meira en þúsund býlum í Þýskalandi hefur verið stöðvuð vegna díóxín-mengunar.
Þingmenn bíða nú spenntir eftir fundi VG á morgun þar sem vænta má niðurstöðu í máli þremenninganna sem ekki studdu fjárlagafrumvarpið. 
Talið er að margar vikur líði áður en flóðunum í norðvestur Ástralíu fer að linna. Búist er við að þau nái hámarki í bænum Rockhampton í dag.  Íslensk kona segir að þar fái fólk stífkrampasprautur vegna mengunar.
Hugsanlegt er að einhverjir saltfiskframleiðendur íhugi að flytja hluta vinnslunnar úr landi til að geta haldið áfram að nota fjölfosföt og framleitt hvítari saltfisk.
Veðurhorfur: Norðanátt, víða þrettán til átján metrar, en átján til tuttugu og þrír suðaustantil. Snjókoma eða él á Norður- og Austurlandi, annars þurrt. Lægir síðdegis og í kvöld, fyrst norðvestanlands, þó áfram hvasst suðaustantil. Frost að átta stigum. Norðaustan fimm til tíu og bjartviðri á morgun, en él norðaustanlands. Vaxandi norðaustanátt og éljagangur á Norður- og Austurlandi síðdegis.</description>
Hádegisfréttir 03.janúar 2011
      <description>Hafi arðgreiðslur til hluthafa verið byggðar á fölskum forsendum, er mögulega hægt að rifta þeim. Þetta segir framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta.
Borgin Rockhampton í Ástralíu er að fara á kaf í vatn. Flóð aukast enn og er unnið að því að flytja íbúa á brott.
Brýnasta verkefnið nú er að koma fjárfestingum atvinnulífsins í gang segir forstöðumaður mannvirkjasviðs Samtaka iðnaðarins. Allt síðasta ár einkenndist af biðstöðu.
Sameinuðu þjóðirnar segjast ætla að rannsaka ábendingar um fjöldagrafir á Fílabeinsströndinni. Fylgismenn Gbagbo fráfarandi forseta eru sakaðir um fjöldamorð.
Blaða- og fréttamenn eru andsnúnir stofnun fjölmiðlanefndar sem gert er ráð fyrir í fjölmiðlafrumvarpi sem lagt hefur verið fram á Alþingi. Þar með verði ríkisvaldinu gert kleift að seilast inn á ritstjórnir fjölmiðlanna og grípa inn í störf fréttamanna.
Reykjanesbær þyrfti allt að áratug, til að ná markmiði um skuldaþak, sem gert er ráð fyrir í frumvarpsdrögum að nýjum sveitarstjórnarlögum.
Horfur næsta sólarhring:
Gengur í norðan átta til fimmtán síðdegis, en þrettán til tuttugu í kvöld. Léttir til Sunnan- og Suðvestan-lands, en snjókoma eða él fyrir norðan og austan. Norðan stormur Suðaustan-lands á morgun, annars allhvasst eða hvasst. Snjókoma norðaustantil, en bjartviðri Sunnan- og Vestan-lands. Lægir talsvert Norðvestan-til síðdegis. Kólnandi, frost að átta stigum í nótt og á morgun.</description>
Horfur næsta sólarhring:
Hádegisfréttir 02. janúar 2011
      <description>Maður um þrítugt liggur alvarlega slasaður á gjörgæsludeild eftir líkamsáras í miðbæ Reykjavíkur í nótt.
Fjögur ungmenni sluppu með naumindum úr brennandi húsi á Akureyri í morgun. Vegfarandi varð eldsins var, vakti húsráðendur og kallaði til slökkvilið.  
Heimilt verður að sekta íslenska fjölmiðla um allt að tíu milljónir króna ef umfjöllun þeirra þykir ekki standast kröfur um jafnvægi samkvæmt nýju fjölmiðlafrumvarpi. Formaður blaðamannafélagsins gagnrýnir frumvarpið harðlega. 
Flugeldasala Björgunnarsveitanna um áramótin var svipuð og fyrir ári. Um fimm hundruð tonn af skoteldum voru sprengd upp. 
Þjófnaður greiðslukortaupplýsinga hefur færst mjög í vöxt í Þýskalandi. Talið er að þannig hafi um tólf milljörðum evra verið stolið á liðnu ári.
Skipulagsstofnun leggur til að aðalskipulag Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps verði samþykkt þrátt fyrir að þar sé ekki gert ráð fyrir svokallaðri Húnavallaleið .
Í dag eru nákvæmlega áttatíu ár síðan fyrst var leikið í útvarpi hér á landi. Alþýðuleikurinn Maður og kona með Brynjólfi Jóhannessyni í hlutverki séra Sigvalda verður fluttur í tilefni þess í dag (á rás eitt klukkan eitt).
Veðurhorfur: Vestlæg átt þrír til tíu metrar. Dálítil væta um vestanvert landið en annar úrkomulítið. Snýst í norðan átta til fimmtán á morgun, fyrst norðvestantil og kólnar
um allt land. Él eða snjókoma norðaustantil en skýjað með köflum sunnan og vestanlands. Hiti að átta stigum stig í dag en frost víða að fimm stigum síðdegis á morgun.</description>
Hádegisfréttir 01. janúar 2011
      <description>Óvenju margir leituðu til læknis í nótt vegna flugeldaslysa. Karlmaður á fertugsaldri liggur á sjúkrahúsi, með alvarlega áverka á augum. Þá liggur karlmaður á gjörgæsludeild eftir fólskulega líkamsárás.
Að minnsta kosti tuttugu og einn lét lífið og yfir fjörutíu særðust þegar bílsprengja sprakk við kirkju í Alexandríu í Egyptalandi í nótt.  
Deilur um fiskveiðistjórnunarkerfið verður að leiða til lykta á nýju ári. Það sagði forsætisráðherra í áramótaávarpi.
Fyrsti Íslendingurinn fæddur á árinu 2011 er sveinbarn. Drengurinn kom í heiminn á öðrum tímanum í nótt í Reykjavík. 
Framkvæmdastjóri félags hrossabænda vill stytta þann tíma sem leyfilegt er að skjóta upp flugeldum dagana í kring um áramót. Dæmi séu um að hestamenn hafi slasast þegar hestar þeirra fæast vegna flugeldaskothríðar.  
Tuttugu og sex létust af slysförum á nýliðnu ári, einum fleiri en árið áður. Rúmlega helmingi færri létust þó í umferðinni í fyrra en árið 2009.  
Áramótabrennur voru vel sóttar í gærkvöld. Nánast hvert einasta hús í Grímsey tæmdist á meðan logaði í brennunni þar.
Veðurhorfur: Suðaustan fimm til tíu metrar suðvestantil í dag og slydda eða rigning með köflum, en annars hægari suðlæg eða breytileg átt og bjartviðri að mestu. Suðvestan og vestan þrír til átta og rigning með köflum vestantil á morgun en skýjað um landið austanvert. Hiti kringum frostmark sunnan- og vestanlands, en annars frost tvö til átta stig. Hlýnar á morgun.</description>