Mánafjöll
      <itunes:name>Marteinn Sindri Jónsson</itunes:name>
Mánafjöll
      <description>Síðasti þáttur Mánafjalla í bili er seinni þáttur af tveimur sem fjalla um nýliðaþjálfun Flugbjörgunarsveitar Reykjavíkur og bera yfirskriftina Sjálfboðaliðar þjóðar. Margar björgunarsveitir reka öflugt starf til að þjálfa nýliða og tryggja þannig að ávallt sé nóg af fólki sem er tilbúið að svara útköllum. Þjálfun nýliða er ekki með sama hætti hjá öllum sveitum en Flugbjörgunarsveitin hefur þann háttinn á að þjálfunarferlið tekur tvö ár. Fyrra árið kallast B einn og seinna árið B tveir. Báðir þessir hópar eru virkir yfir veturinn og fara aðra hverja helgi í æfingarferð.
Í síðasta þætti slógust hlustendur í för með B einum í ferð sem farin var í byrjun maí. Keyrt var í Miðdal, nærri Laugarvatni og gengið þaðan norður eftir og upp á heiðar. Við skildum við hópinn í snjóflóðaæfingu á öðrum degi og nú er komið útkall. Inn í ferðina fléttast viðtöl við nokkra nýliða og þjálfara þeirra. Fararstjóri í þættinum er Þórarinn Gunnarsson, aðstoðarnýliðaþjálfari í B einum en einnig er rætt við Védísi Ólafsdóttur, Klaus Marius Hansen, Kára Hreinsson, Hlyn Þráin Sigurjónsson, Indíönu Elínu Ingólfsdóttir, Svein Hákon Harðarson, Hallgrím J. Ámundason, Einar Eiríksson og Guðjón Benfield.</description>
Mánafjöll
      <description>Þetta er fyrri þáttur af tveimur sem fjalla um nýliðaþjálfun Flugbjörgunarsveitar Reykjavíkur. Margar björgunarsveitir reka öflugt þjálfunarstarf til að halda við nýliðun og tryggja að ávallt sé nóg af fólki sem er tilbúið að svara útköllum. Þjálfun nýliða er ekki með sama móti innan allra sveita en Flugbjörgunarsveitin hefur þann háttinn á að þjálfunarferlið tekur tvö ár. Fyrra árið kallast B1 og seinna árið B2. Báðir þessir hópar eru virkir yfir veturinn og fara aðra hverja helgi í æfingarferð.
Í þáttunum slást hlustendur í för með B1 í ferð sem farin var í byrjun maí. Inn í ferðina fléttast viðtöl við nokkra nýliða og þjálfara þeirra. Fararstjóri í þættinum er Þórarinn Gunnarsson, aðstoðarnýliðaþjálfari í B1 en einnig er rætt við Védísi Ólafsdóttur, Kára Hreinsson, Klaus Marius Hansen, Hlyn Þráin Sigurjónsson, Indíönu Elínu Ingólfsdóttir, Svein Hákon Harðarson, Einar Eiríksson og Guðjón Benfield.
Umsjón hefur Marteinn Sindri Jónsson</description>
Umsjón hefur Marteinn Sindri Jónsson</itunes:summary>
Mánafjöll
      <description>Í Mánafjöllum verður rætt um þjóðerni. Gestir í hljóðstofu eru Andri Leó Lemarquis, Unnsteinn Manúel Stefánsson, Þórdís Nadia Semichat og Helga Tryggvadóttir. Umsjón hefur Marteinn Sindri Jónsson.</description>
Mánafjöll
      <description>Læknanemar eru eins og moldvörpur sagði maður við mig um daginn. Þeir grafa sig inn í námsbækurnar og maður veit ekki af þeim fyrr en þeir eru útskrifaðir sex árum síðar. Að einhverju leyti stenst þessi samlíking fullkomlega því heimur læknanemans er mörgum jafnhulin og gangnagerð moldvörpunnar. Fyrstu þrjú árin stíga læknanemarnir varla inn fyrir dyr á spítalanum en seinni þrjú árin eyða þeir linnulaust í starfsnámi. Í Mánafjöllum kynnumst við tveim læknanemum, einum á 2. ári og öðrum á fjórða ári. Þrátt fyrir feluleikina liggja læknanemar ekki á liði sínu. Nýlega stóðu þeir fyrir blóðgjafarmánuði í Háskóla Íslands t.a.m. og eitt af merkari framlögum læknanema til samfélagsins er félagið Ástráður sem beitir sér í kynfræðslu í grunnskólum sem virðist verulega ábótavant enn þann dag í dag, það er t.d. ekkert kveðið á um kynfræðslu í Aðalnámskrá Grunnskóla. Sumardaginn fyrsta, 22. apríl næstkomandi, fagnar Ástráður 10 ára afmæli sínu og af þeim sökum verður fjallað ítarlega um félagið í Mánafjöllum. 
Elva Dögg Brynjarsdóttir er ritari Ástráðs og annars árs læknanemi. Stefán Ágúst Hafsteinsson var einn af forkólfum Blóðgjafarmánaðarins í Háskóla Íslands og er fjórða árs nemi í læknisfræði. Þau Elva og Stefán ræða um líf og störf læknanemans í Mánafjöllum.</description>
Mánafjöll
      <description>Að þessu sinni verða plötusnúðar undir nálinni í Mánafjöllum ef svo má taka til orða. Þessir gleðigjafar eru ómissandi í öllum gleðskap um þessar mundir, en það skemmir svo sannarlega fyrir ef plötusnúðurinn er ekki nógu góður. En hvað er það sem gerir plötusnúð góðan? Við veltum vöngum yfir mörgum spurningum sem varða stétt plötusnúða en gestir þáttarins koma að skífuþeytingum á einn eða annan hátt. Einn viðmælenda er reyndar myndlistarmaður og stundar það sem þýða mætti á íslensku sem myndskeytingar (VJ). Skyggnist inn í heim plötu- og myndbandasnúða (DJ og VJ)</description>
Mánafjöll
      <description>Uppistand, sú mikla íþrótt, er ekki ný af nálinni á Íslandi en þó virðist sem undanfarið hafi hún sótt í sig veðrið, sérstaklega meðal ungs fólks. Jafnframt hefur vettvangur þessarar listar verið að fæðast inn á öldurhúsum bæjarins sem er einhver nýlunda. Lengi hefur verið hefð fyrir veislustjórum og sjónvarpsgrínurum en um þessar mundir starfa tveir öflugir hópar ungs fólks sem skipuleggja uppistandskvöld á knæpum bæjarins. Er þá jafnan fullt út úr húsi því góður rómur hefur verið gerður að starfsemi og gríni þessara hópa. Hóparnir kalla sig Mið-Ísland og Uppistöðufélagið og þeir bjóða hlustendum á fundi hjá sér í Mánafjöllum 25. mars. Jafnframt verður farið á uppistandskvöld hópanna tveggja þar sem skopskynið er við völd.</description>
Mánafjöll
      <description>Í Mánafjöllum að þessu sinni verður rætt við og fjallað um unga foreldra, þau Fjölni Ólafsson (f. 1990)og Völu Bjarney Gunnarsdóttur (f. 1990) sem áttu sitt fyrsta barn 25. febrúar sl. Drengur var fæddur, 16 merkur og 53 cm. Í þættinum segja foreldrarnir frá aðstæðum sínum, hlutverkum og væntingum og við hittum þetta litla barn sem nýtur þeirra sérstöku forréttinda að vera af sjötta ættlið sem enn er lifandi, en talsvert hefur verið fjallað um málið í fjölmiðlum. Strákurinn er nefninlega dóttursonarsonarsonarsonur Gissurs Ó. Erlingssonar sem er fæddur 21. mars 1909 og verður því 101 árs í mánuðinum.</description>
Mánafjöll
      <description>Í Mánafjöllum að þessu sinni verður fjallað um trúarbrögð og trúariðkun ungs fólks á Íslandi. Viðmælendur verða af ýmsum toga, trúaðir og ótrúaðir. Ætlunin er að skoða hvað það er að vera trúaður, er nóg að mæta til bæna eða þarf maður að hugsa um guð öllum stundum. Á maður kannski að trúa á guð yfirleitt? Tæpt verður á þessum spurningum og fleirum til í Mánafjöllum</description>
Mánafjöll
      <description>Ofbeldi verður til umfjöllunar í Mánafjöll að þessu sinni. Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, höfundur bókarinnar Á mannamáli hefur fengið styrk þriggja ráðuneyta til að ferðast og halda fyrirlestra í framhaldsskólum landsins um kynferðisofbeldi. Hún ræðir um efni fyrirlestranna og birtingarmyndir ofbeldis í samfélaginu sem sérstaklega á að höfða til yngri aldurshópa. Þetta er ekki fræðileg úttekt og ekki altæk umfjöllun. Þetta er einungis viðleitni til þess að vekja máls á brýnu málefni sem virðist þrífast best í þögn.</description>
Mánafjöll
      <description>Hvað ætlar þú að gera þegar þú verður stór? 
Þetta er spurning sem fólk á öllum aldri glímir við en kannski sér í lagi fólk á ungum aldri. Í Mánafjöllum talar Guðbjörg Vilhjálmsdóttir lektor við Háskóla Íslands um starfs- og námsráðgjöf sem er eitt mikilvægasta tækið í baráttunni við þessa stóru spurningu sem allir spyrja sig á einhverjum tímapunkti. Rætt verður um hugmyndir námsfólks um starfsframa og tískufyribæri í náms- og starfsvali. Ungir sem aldnir þurfa að glíma við þessa spurningu en svo þarf kannski ekkert að svara henni, og hvenær verður maður stór?</description>
      <itunes:summary>Hvað ætlar þú að gera þegar þú verður stór? 
Mánafjöll
      <description>Þjóðsögur verða til umfjöllunar í Mánafjöllum að þessu sinni. Fatahönnuðurinn Laufey Jónsdóttir vinnur með þjóðsöguna Þóruhólma í hönnun sinni, Eva Þórdís er þjóðfræðinemi og hefur rannsakað sannleiksgildi í frásögnum um umskiptinga, móra og skottur og hvort kunni að vera að einstaklingarnir að baki þessum óvættum séu fötluð börn og ungmenni. Ungar raddir hljóma í þættinum, endursagnir leikskólabarna á þekktum þjóðsögum. Umsjón: Marteinn Sindri Jónsson</description>
Mánafjöll
      <description>Ópólitísk pólitík
Er stúdentapólitík ekki pólitík? Á stúdentapólitík ekki að vera pólitísk?
Spurningarnar eru tungubrjótar og í þokkabót eru svörin vandmeðfarin. Í Mánafjöllum verður skyggnst aftur í tímann aftur til áttunda áratugarins þegar stúdentapólitík stóð í hvað mestum blóma með hátíðarhöldum á fyrsta desember og slagorðum eins og "Ísland úr NATO, herinn burt!". Hvaða áhrif höfðu stúdentar þá og hvaða áhrif hafa þeir nú? 
Spurningarnar eru of margar, þeim verður ekki öllum svarað en gert verður tilraun til að svara einhverjum þeirra í Mánafjöllum í þætti um Stúdenta(ó)pólitíkina þá og nú. Umsjónarmaður er Marteinn Sindri Jónsson.</description>
      <itunes:summary>Ópólitísk pólitík
Mánafjöll
      <description>Klive, Bitroid, Úlfur Hansson. Allt er þetta sami maðurinn og gestur í Mánafjöllum fimmtudaginn 4. febrúar. Hann hefur eins og fjölbreyttar nafngiftirnar gefa til kynna, fengist við ýmis verkefni, öll á sviðum hljóð- og tónlistar. Undir nafninu Bitroid semur hann 4 bita leikjatölvumúsík, sem Úlfur spilar hann í dauðarokkhljómsveitinni Swords of Chaos og semur hljóðverk fyrir myndlistarinnsetningar og undir nafninu Klive skapar hann raftónlist úr lífrænum hljóðheimi.</description>
Mánafjöll
      <description>Mosinn í víðu samhengi verður undir smásjánni, Mánafjöll verða mosavaxin svo ekki sé meira sagt.
Hafsteinn Júlíusson er hönnuður sem starfar í Mílanó og hefur vakið talsverða athygli fyrir mosaskartgripi sína. Margrét Harðardóttir og Steve Christer arkitektar eiga líka sína mosahönnun. Sem ungir arkitektar unnu þau hönnunarsamkeppni um byggingu Ráðhús Reykjavíkur og meðal hluta byggingarinnar var mosaveggur sem vakti talsverða athygli á sínum tíma. Svo kemur mosinn eitthvað við sögu í íslenskri tónlist í gegnum tíðina.
Umsjón hefur Marteinn Sindri Jónsson.</description>
Umsjón hefur Marteinn Sindri Jónsson.</itunes:summary>
Mánafjöll
      <description>Víkingur Heiðar Ólafsson er 1,90 á hæð, tágrannur, ekki nógu beinn í baki. Á sviði sígildrar tónlistar er hann meðal fremstu píanóleikara í heiminum dag. Hann er fæddur árið 1984 og hefur síðan hann útskrifaðist úr Julliard háskólanum í New York í Bandaríkjunum fyrir tveimur árum starfað sem tónlistarmaður á alþjóðlegum vettvangi. Það er því jafnan að Víkingur ræði um list sína og störf en að þessu sinni ræðir hann um ýmis málefni, flest sem koma list hans ekkert við, þó hún sé ætíð einhvers konar útgangspunktur.
Umsjón hefur Marteinn Sindri Jónsson</description>
Umsjón hefur Marteinn Sindri Jónsson</itunes:summary>
Mánafjöll
      <description>Fimmtudagskvöldið 14. Janúar fara fram tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands, Ungir einleikarar. 
Undir stjórn Bernards Wilkinsonar leikur Matthías Sigurðsson, Klarinettukonsert nr. 2 eftir Carl Maria von Weber, Helga Svala Sigurðardóttir leikur flautukonsert eftir J. Ibert jafnframt því sem sveitin frumflytur verk tveggja ungra tónskálda, Þórdísarhyrnu eftir Hafdísi Bjarnadóttur og Dreaming Flow eftir Önnu S. Þorvaldsdóttur.
Þetta unga tónlistarfólk verður undir smásjánni í Mánafjöllum, Ríkisútvarpið hljóðritar tónleikana og verða þeir fluttir í sérstakri hátíðardagskrá Útvarps á Sumardaginn fyrsta.
Matthías Sigurðsson, Helga Svala Sigurðardóttir, Hafdís Bjarnadóttir og Anna S. Þorvaldsdóttir eru gestir Mánafjalla fimmtudaginn 14. Janúar klukkan 16.25.
Umsjón hefur Marteinn Sindri Jónsson 
Vefur Sinfóníuhljómsveitar Íslands</description>
Umsjón hefur Marteinn Sindri Jónsson 
Vefur Sinfóníuhljómsveitar Íslands</itunes:summary>
Mánafjöll
      <description>Embla Ágústsdóttir er 18 ára gömul, heimsmethafi í sundi, fyrilesari við bæði Háskóla Íslands og Háskóla Akureyrar og hefur staðið fyrir námskeiðum fyrir hreyfihamlaðar stúlkur undir yfirskriftinni, Að brjótast í gegnum takmarkanir, en sjálf er Embla með hreyfihömlun sem hefur áhrif á getu allra útlima hennar. Embla er handhafi Kærleikskúlunnar 2009 sem veitt var af Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra við hátíðlega athöfn 2. desember sl. Í fréttatilkynningu á síðu félagsins segir 
Kærleikskúlan er veitt framúrskarandi fyrirmynd á ári hverju. Embla er sannarlega verðug fyrirmynd en hún hefur á engan hátt látið hreyfihömlun sína hindra sig í að lifa lífinu til fulls og ná háleitum markmiðum sínum í námi og starfi. Með því að miðla af reynslu sinni og lífssýn hefur hún unnið að því að breyta viðhorfum til fatlaðra og fengið fólk til að skilja að þó að hreyfihömlun sé sannarlega áskorun þá sé hún ekki endilega hindrun eða afsökun.</description>
Glatt á hjalla í hlíðum Mánafjalla
      <description>Það logar á litlu kerti og það standa nokkrir pakkar undir snotru jólatré úti í horni. Það slær fallegum bjarma á björt andlit því það eru að koma jól. En það verður tekið ofurlítið forskot á sæluna, pakkarnir sem standa undir trénu verða opnaðir á Aðfangadag í þættinum Glatt á hjalla í hlíðum Mánafjalla. 
Persónur í þættinum eru Birkir Blær Ingólfsson, Daníel Friðrik Böðvarsson, Guðmundur Óskar Guðmundsson, Guðrún Sóley Sigurðardóttir, Halla Ólafsdóttir, Marteinn Sindri Jónsson og Sigríður Thorlacius.</description>