Stjörnukíkir
Stjörnukíkir 1. þáttur
			<description>Í fyrsta stjörnukíki vetrarinars er rætt við Sigríði Birnu Valsdóttur leiklistarmeðferðarfræðing og kennara um reynslu hennar af því að kenna Hagskælingum leiklist. Hún segist hafa þá trú að leiklist, og aðrar listgreinar geti bjargað mannslífum. Guðrún Pétursdóttir dósent og framkvæmdastjóri Stofnunar Sæmundar fróða um sjálfbæra fróða rýnir í eigin bernsku og veltir fyrir sér hvar áhuginn á sköpun hafi byrjað. Hún segir frá skapandi kennsluaaðferðum Herdísar Egilsdóttur og segir það vera lykilatriði að virkja sköpunarkraft og orkuna sem býr innra með börnum. Snærós Sindradóttir les upp ljóð eftir sig og veltir fyrir sér hvernig fari megi að því að kveikja áhuga barna og unglinga á ljóðum og myndlist. Hún rýnir í eigin reynslu af grunnskólakerfinu þar sem henni finnst vanta nokkuð upp á að nútímalistir séu kynntar. Nokkrir ungir hljóðfiktarar og tæknigrúskarar á námskeiði í Myndlistarskólanum í Reykjavík leyfa okkur að fylgjast með lampa, dvd-spilara, hafnaboltaspilaranum, sundurtekna útvarpi. Þau segjast hafa sérstaklega gaman af því að fikta og taka hluti í sundur. Tónar þáttarins koma frá fjórmenningunum í hljómsveitinni Amiinu.
Stjörnukíkir 2. þáttur
			<description>Í öðrum stjörnukíki vetrarins er rætt við Kristínu Valsdóttur tónmenntakennara sem lauk við nýverið við mastersritgerð um viðhorf og starfsumhverfi farsælla tónmenntakennara í grunnskólum Reykjavíkur. Kristín ræðir um stöðu tónmenntakennslu innan grunnskólans. en mikið vantar upp á að öll börn njóti þeirrar tónmenntakennslu sem aðalnámsskrá kveður á um. Laufey Blöndal er fimmtán ára og hefur nýlega hafið nám við Menntaskólann í Reykjavík auk þess sem hún hefur lært leirmótun í þrjú ár við Myndlistarskólann í Reykjavík. Hún ber saman lærdóminn af akademíunni og listnáminu. Atli Heimir Sveinsson tónskáld rifjar upp fyrstu árin í tónlistarnámi, hvernig tónlist hafi hjálpað honum út úr þynglyndi og hvernig heimur 20. aldar tónlistarinnar hafi opnast fyrir honum. Kornungir flugdrekahönnuðir segja frá fuglum og dásemdum himinhvolfanna og Benni Hemm Hemm er tónlistarmaður þáttarins.
Stjörnukíkir 3. þáttur
			<description>Í leiklistartíma í Hlíðaskóla hjá Ólafi Guðmundssyni lifa 10 og 11 ára gamlir nemendur sig inn í aðstæður landflótta Norðmanna fyrir margt löngu. Rætt verður við Ólaf Guðmundsson og Önnu Flosadóttur um áherslur á list- og verkgreinar í Hlíðaskóla en sá skóli hefur gegnt hlutverki móðurskóla list og verkgreina undanfarin fjögur ár. Vigdís Jakobsdóttir leikstjóri og deildarstjóri fræðsludeildar Þjóðleikhússins viðrar skoðanir sínar á skapandi skólastarfi og hvernig listir megi smita allar skólastofur landsins. Tónlistarmaðurinn Unnsteinn Stefánsson segir frá tónlistarbjástri sínu og bakgrunni og Anna Guðný Guðmundsdóttir lítur um öxl og rifjar upp áhrifavalda úr skóla. Tónlistarmaður þáttarins er Kira Kira en hún lofar okkur að heyra mix af vinnslustigi af næstu plötu sinni.
Stjörnukíkir 4. þáttur
			<description>Í tónmennt hjá Gunnari Ben við Víkurskóla flytja 10 og 11 ára gamlir krakkar frumsamda tónlist. Víkurskóli starfar samkvæmt fjölgreindarkenningu Howards Gardners sem viðurkennir margvíslega styrkleika einstaklingsins. Rætt verður við Árnýju Ingu Pálsdóttur skólastjóra um áherslur Víkurskóla. Kristín Á. Ólafsdóttir aðjúnkt við Kennaraháskólann ræðir um vægi leikrænnar tjáningar í grunnskólakerfinu og einnig verður gerð grein fyrir stöðu hennar innan íslenskra skóla en Kristín rannsakaði útbreiðslu hennar í nýlegri mastersritgerð. Þorsteinn Nicholas Cameron (Captain Cameron) er sextán ára gamall menntaskólanemi og ástríðufullur áhugamaður um ljósmyndun. Hann flettir nokkrum myndum ásamt hlustendum. Hildigunnur Sverrisdóttir arkitekt rifjar upp sögu af eftirminnilegum kennara sem efldi með henni gagnrýna hugsun. Hún ræðir um mikilvægi þess að tjáning og gagnrýnin hugsun sé efld í skólum og í samfélagi.
Stjörnukíkir 5. þáttur
			<description>Björn Heimir Önundarson er 11 ára gamall strákur sem býr á Breiðabólsstað. Hann hefur mikla ánægju af því að teikna og er alveg hreint skrambi góður við þá iðju. Á næstunni kemur út hjá bókaútgáfunni Æskunni bókin Mæja spæja sem prýdd verður teikningum Björns Heimis en söguhetjan Mæja er hugarfóstur Herdísar Egilsdóttur. Björn Heimir er einn gestur Stjörnukíkis að þessu sinni. Við ræðum við doktor Robert Faulkner, tónlistarkennara og tónlistarskólastjóra við Hafralækjaskóla um mikilvægi leiksins í kennslustofum landsins en í gegnum leikinn læra börnin. Doktor Einar Steingrímsson er prófessor í stærfræði við Háskólann í Reykjavík. Hann segir frá reynslu sinni af íslensku skólakerfi og talar um fagurfræði og undur stærfræðinnar. Tónlist þáttarins er sótt til Jóhanns Jóhannssonar, hljómsveitarinnar Múm og fyrstu íslensku marimbusveitarinnar, þeirrar sem starfrækt er í  Hafralækjarskóla.</description>
Stjörnukíkir 6. þáttur
			<description>Jóna Kristjana Hólmgeirsdóttir er fjórtán ára gömul. Hún býr í Mývatnssveit, gengur í grunnskóla og yrkir ljóð um apatemjara, flamingófugla í Kirkistan og um hversdagslegt fólk sem lifir sín hversdagsævintýri. Hún les upp ljóð sín í Stjörnukíki í dag og talar um skáldskapinn og skólann. Lani Yamamoto er bandarískur rithöfundur og bústýra Hugmyndasmiðjunnar sem starfrækt hefur verið fyrir grunnskólabörn Reykjavíkur. Þar hafa börn verið leidd inn í tilraunasmiðjur, tilgangurinn meðal annars sá að búa til eitthvað nýtt úr því sem fyrir var með skapandi lausnir að leiðarljósi. Lani hefur samið þrjár bækur um strákinn Albert sem veltir fyrir sér hinstu rökum tilverunnar eins og reyndar allir krakkar gera. Bækurnar hafa verið gefnar út víða um heim, á átta tungumálum, þar á meðal á íslensku en hér hefur Lani verið búsett undanfarin ár. Hún talar um unga heimspekinga og sköpunarkraft allra krakka sem nauðsynlegt er að leyfa að blómstra. Séra Örn Bárður Jónsson er sóknarprestur í Neskirkju. Hann gekk í skóla á Ísafirði, hélt þaðan í Verslunarskóla og þaðan, mörgum árum síðar lá leiðin í guðfræðina. Örn Bárður veltir fyrir sér mikilvægi handverksins í skólagöngu barna og þess að rækta garðinn sinn. Tónlist þáttarins er sótt til Bjarkar Guðmundsdóttur, Mark Bell og Tómasar Knak, öðru nafni Opiate, á plöturnar Vespertine (2001), Drawing Restraint 9 (2005), While you were sleeping (2002) og Voltu (2007).
Stjörnukíkir 7. þáttur
			<description>Vestur í Monterey í Kaliforníu hittast forvitnar sálir einu sinni á ári á svokölluðum TED-samkundum. Þar er þyrlað upp hugmyndum úr heimi vísinda, lista, hönnunar, tækni, skemmtanaiðnaðarins og horft til framtíðar. Sir Ken Robinson var einn fyrirlesara á TED-samkundu árið 2006 en hann er heimsþekktasti fyrirlesari á sviði nýsköpunar og hefur rannsakað vægi skapandi starfs og listgreinakennslu í grunnmenntun barna. Á nýrri öld á sköpun að skipa sama sess í grunnmenntun barna og læsi segir Sir Ken Robinson en gerð verður grein fyrir hugmyndum hans í þættinum. Barna - og unglingaleikhúsið er eitt yngsta leikhús landsins en um þessar mundir sýna ungir leikarar splunkunýjan söngleik um Öskubusku. Við heyrum í Malen Rún, Mörtu og Kolbeini sem fara með alls konar rullur í sýningunni og ræðum að auki við Agnar Jón Egilsson leikstjóra og höfuðpaur Barna og unglingaleikhússins og Leynileikhússins. Agnar Jón Egilsson dreymir um að leiklist verði gert miklu hærra undir höfði í grunn og framhaldsskólum landsins. Hreindís Ylva Garðarsdóttir nemi í djasssöng við FÍH og átján ára gömul menntaskólamær er þaulvön leikkona þrátt fyrir ungan aldur en hún hefur staðið á fjölunum frá sjö ára aldri. Hún segir Stjörnukíki frá listnámi sínu. Hildur Bjarnadóttir myndlistarmaður hlaut íslensku sjónlistaverðlaunin þegar þau voru veitt í fyrsta sinn í fyrra. Hún lítur um öxl og deilir með okkur minningum um skapandi skólastarf Fossvogsskóla. Tónlist þáttarins er sótt til Valgeirs Sigurðsson á plötu hans Equilibrium. (Bedroom Community. 2007)
Stjörnukíkir 8. þáttur
			<description>Í tónmenntastofunni í Vesturbæjarskóla er klappað, stappað, sungið og leikið. Við fylgjumst með börnunum setja upp leikrit um köflótta fílinn Elmar, syngja frumortar vísur um krummahjónin og flytja eigin útsetningar á íslenskum þjóðlögum. Nanna Hlíf Yngvadóttir er tónmenntakennarinn í Vesturbæjarskólanum; hún er einn gestur Stjörnukíkis að þessu sinni. Við ræðum einnig við Unni Snorradóttur, 11 ára gömul myndlistarkonu og námskonu í Melaskólanum og Myndlistarskólanum í Reykjavík en Unnur sýnir okkur keramikmuni, teikningar, málverk og skissubækur. Arna Valsdóttir myndlistarkona og kennari hefur mikla reynslu af skapandi starfi með börnum á öllum skólastigum. Arna hefur flutt erindi um rannsóknareðli listarinnar (sjá grein hér á síðunni) og hún gerir grein fyrir því hugtaki í þættinum í dag. Matthías M.D. Hemstock tónlistarmaður tekur að sér að líta um öxl og deila með hlustendum minningarslitrum úr námsgöngu sinni. Tónlist þáttarins er sótt til Matthíasar M.D. Hemstock og Péturs Grétarssonar (Hugleiðing, óútg., 2007), Megasar, Möggu Stínu, Kristins H. Árnasonar, Þórðar Högnasonar, Matthíasar M.D. Hemstock, (Kadúkíkvæði, Bjartur, 2006), Agnars Más Magnússonar, Valdimars Kolbeins Sigurjónssonar og Matthíasar M.D. Hemstock (Daboli, Dimma, 2007) og Opiate (Last Dr. Pepper, April Records, 2002).
Stjörnukíkir 9. þáttur
			<description>Það er fullt af grjóti og mosabreiðum í kringum krakkana í sjötta bekk í Seljaskóla sem eru staddir í salarkynnum Jóhannesar Sveinssonar Kjarval á dimmum nóvembermorgni. Þeim finnst málverkin hans Jóhannesar fremur svöl og segja okkur frá upplifun sinni í Stjörnukíki. Norður á Akureyri hafa tíu fimm ára leikskólabörn líka skundað á myndlistarsýningar undanfarið ár undir styrkri stjórn þeirra Valgerðar Daggar Jónsdóttur heimspekings og Rósu Kristínar Júlíusdóttur myndlistarkonu og lektors við Háskólann á Akureyri. Þær stöllur hafa verið að rannsaka fagurfræðilegar upplifanir ungra barna með heimsóknum á listasöfn. Í framhaldi af þeim heimsóknum hafa verið stundaðar heimspekilegar rökræður með börnunum og þau  fengið tækifæri til að stunda listköpun með sömu efnum, áhöldum og aðferðum og viðkomandi listamaður. Rósa Kristín Júlíusdóttir gerir grein fyrir rannsókninni í þætti dagsins. Ari Bragi Kárason er átján ára gamall trompettleikari og nemi við FÍH tónlistarskólann. Hann spjallar um tónlistarnám sitt og spilar sína eigin tónlist og annarra. Helga Hansdóttir öldrunarlæknir er fengin til að líta um öxl og rifja upp sögu af eftirminnilegum kennara. Í framhaldi af því rifjar Helga upp samvinnuverkefni hennar og Magnúsar Pálssonar myndlistarmanns þar sem læknavísindum og listum var fléttað saman. Tónlistin í þættinum er sótt til Múm (Go go smear the poison ivy, 2007) Rodent (Beautiful Monster, 2003), Jóels Pálssonar (Innri í flutningi Ara Braga Kárasonar, Kristjáns Tryggva Martinssonar, Leifs Gunnarssonar og Magnúsar Tryggvasonar Elíasen) og Ara Braga Kárasonar (Nýjar leiðir í flutningi Ara Braga Kárasonar, Kristjáns Tryggva Martinssonar, Leifs Gunnarssonar og Magnúsar Tryggvasonar Elíasen). </description>
Stjörnukíkir 10. þáttur
			<description>Í Arkki-skólanum í Helsinki rísa heilu ævintýraborgirnar þar sem menningu ólíkra þjóðarbrota ægir saman. Skólinn býður upp á nám í byggingarlist fyrir börn á aldrinum 3 til 19 ára en byggingarlist er nú komin inn í aðalnámsskrá finnskra grunnskóla. Við ræðum við Pihlu Meskanen, arkitekt og skólastjóra Arkki-skólans um skapandi nám í byggingarlist fyrir ung börn en námið byggir á því að virkja ímyndunarafl og sköpunargleði einstaklingsins. Í Myndlistarskólanum í Reykjavík hittum við fyrir nokkra unga og áhugasama myndlistarnemendur á námskeiði hjá Söru Riel. Þeir segja okkur undan og ofan af muninum á veggjakroti og veggjalist en veggjalist, eða öllu heldur götulist, er á dagskrá námskeiðsins hennar Söru. Þessi listgrein einkennir mjög borgarlandslag okkar tíma og eins og Sara minnist á er mikilvægt að til sé leyfilegur vettvangur fyrir unga og áhugasama myndlistarmenn til að búa til listaverkin sín í almenningsrýminu. Ívar Guðmundsson, þrettán ára gamall stuttmyndagerðarmaður segir frá kvikmyndadellunni og býður upp á persónulega útfærslu á laginu All by yourself eftir Eric Carmen. Svanhildur Óskarsdóttir, doktor í norrænum fræðum og rannsóknardósent við Stofnun Árna Magnússonar lítur um öxl og deilir með hlustendum minningum af skólagöngu sinni. Tónlist þáttarins er eftir Steve Reich (Nagoya Marimbas í flutningi Safri-dúósins) auk þess sem Hamrahlíðarkórinn undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur flytur þrjú íslensk lög og ljóð - Afmorsvísu Páls Vídalín, lag Snorra Sigfúsar Birgissonar, Enginn grætur Íslending og Ferðalok, ljóð Jónasar Hallgrímssonar, lög Hróðmars Inga Sigurbjörnssonar.
Stjörnukíkir 11. þáttur
			<description>Í Borgarleikhúsinu eru áhugasamir piltar úr efri bekkjum Austurbæjarskóla að æfa dans undir handleiðslu Peter Anderson, dansara og danshöfundar við Íslenska dansflokkinn. Flokkurinn stendur fyrir átaki þessa dagana sem felst í að fá stráka til að dansa meira og sjálfsagt full ástæða til - sárafáir strákar stunda dansnám hér á landi. Strákarnir úr Austurbæjarskóla sækja tíma hjá dansflokknum á stuttu en markvissu námskeiði og í námskeiðslok er afraksturinn sýndur skólafélögunum. Strákarnir segja okkur frá þeim hugmyndum sem þeir höfðu um nútímadans áður en þeir stigu í tíma hjá honum Peter og við ræðum einnig við Guðmund Helgason, verkefnastjóra hjá dansflokknum um dans og stráka! Ágúst Einarsson og Jón Hrólfur SIgurjónsson segja frá Vegvísi um listfræðslu, skýrslu sem gefin er út á vegum UNESCO, stofnun Sameinuðu þjóðanna um menntun vísindi og menningu. Skýrslan hefur að geyma niðurstöður heimsráðstefnu um listfræðslu sem haldin var í Lissabon í mars árið 2006 en skýrsluna hefur Jón þýtt yfir á íslensku. Davíð Jónsson, átján ára gamall Skagfirðingur og nemi við Kvikmyndaskóla Íslands segir frá kvikmyndabakteríunni og Ólöf Ingólfsdóttir deilir með okkur minningum af eftirminnilegum kennara.
Stjörnukíkir 12. þáttur
			<description>Guðný Björk Halldórsdóttir er níu ára stelpa sem býr í Árbænum. Hún elskar Andrés Önd út af lífinu og hefur gaman af að skrifa sögur. Síðasta sumar fór hún í ritsmiðju á vegum Borgarbókasafnsins og hún les upp fyrir okkur sögur um skráargöt, hljóðnema og eyðieyjur í Stjörnukíki í dag. Guja Dögg Hauksdóttir arkitekt spjallar um byggingarlist í augnhæð en á nýju ári kemur út samnefnd kennslubók Guju Daggar sem miðar að því að opna augu ungs fólks fyrir umhverfi sínu og byggingarlist. Við hittum Guju Dögg fyrir í björtu rými Kjarvalsstaða - teiknaðir af Hannesi Davíðssyni arkitekt og ræðum við hana um byggingarlist handa litlum börnum. Guðbjörg Arnardóttir dansari, danskennari og skólastjóri Listdansskóla Hafnarfjarðar talar um skapandi dans barna og Bragi Ólafsson deilir með okkur minningu af eftirminnilegum kennurum. Tónlist þáttarins er eftir Kippa kanínus, Jóhann Jóhannsson og Snorra Sigfús Birgisson. 
Stjörnukíkir 13. þáttur
			<description>Í lífsleiknitíma hjá Jóni Thoroddsen stunda 10. bekkingar Laugalækjaskóla heimspekilegar rökræður. Í tímanum sem við heimsækjum er rætt um áhrif ofbeldis í kvikmyndum og út frá þeim útgangspunkti geta spunnist ansi hreint áhugaverðar umræður. Við ræðum við Jón og nemendur hans í þættinum í dag og hlerum hvað fer fram í skólastofunni. Lísa Björk Attensberger, 12 ára gömul, hefur gaman af að skrifa sögur og les upp nokkrar þeirra í þættinum í dag auk þess sem hún spjallar um uppáhaldsbækurnar sínar, framtíðardrauma, skólann og margt fleira. Æskuhljómsveit Símon Bolivar kemur líka við sögu þáttarins að þessu sinni en sveitin, sem hefur vakið heimsathygli á undanförnum árum, sprettur upp úr mögnuðu tónmenntakerfi Venesúela, hinu svokallaða El Sistema, sem verið hefur við lýði í Venesúela frá árinu 1975 og miðar einkum að því að veita börnum ókeypis tónlistarmenntun, burtséð frá fjárhag og félagsaðstæðum. Fyrir tilstyrk kerfisins hafa mörg hundruð þúsund börn í Venesúela hlotið tónlistarmenntun sem hefur í mörgum tilvikum hreinlega bjargað lífi þeirra. Sveinn Kjartansson, matreiðslumaður og einn eiganda Fylgifiska, deilir með hlustendum minningum af eftirminnilegum kennara. Tónlistin í þættinum er eftir Jóhann Sebastían Bach, Amiinu, Áskel Másson og Arturo Marquez.
Stjörnukíkir 14. þáttur
			<description>Herdís Egilsdóttir kenndi litlum börnum á aldrinum fimm til átta ára við Ísaksskóla í fjörutíuogfimm ár. Þar naut hún mikilla vinsælda og vakti eftirtekt fyrir skapandi leiðir í kennslu lítilla barna. Á meðal kennsluaðferða sem Herdís þróaði má nefna landnámsaðferðina svonefndu sem fól í sér að búið var til ónumið land í kennslustofunni - eyja barnanna sem þurftu að átta sig á staðháttum og veðurfari, stjórnskipun og mataræði, pólitík, menningu, sauma þjóðbúninga og búa til þjóðfána. Rætt verður við Herdísi í Stjörnukíki um kennaramenntun, próf, árangursmælingar, viðhorf til kennara, hvernig tengja megi saman sköpun, gleði, leik og lærdóm. Sólrún Freyja Sen er níu ára gömul. Hún semur sögur um fátækraveröld og kattalíf sem hún segir frá í þættinum auk þess sem hún talar um Andrés önd og bjarta og glitrandi tónlist, spilar vals eftir Díabelli, les upp ferðasögu og spilar frumsaminn fugladans. Tómas Snær Jónsson er tíu ára gamall og hann var í ritsmiðju Borgarbókasafnsins síðastliðið sumar. Hann les upp sögur um ævintýralönd. Benedikt Erlingsson leikari og leikstjóri segir frá eftirminnilegum kennurum. Tónlist þáttarins er eftir Spunk (Kamelmusikk af plötunni Den øverste toppen på en blåmalt flaggstang (Rune grammofon, 2002) sem gerð var til minningar um Astrid Lindgren), Sólrúnu Freyju Sen (Fugladans í flutningi Sólrúnar), Díabellis (vals í flutningi Sólrúnar og Jónasar Sen), Snorra Sigfús Birgisson (Sólkerfi af plötunni Píanólög fyrir byrjendur og Hymni (SMK, 2006); Húfukvæði og Kvæðið af rangláta riddaranum af plötunni Hear Now My Heart (Steinbær, 2007) og J.S. Bach (Allemande úr partítu nr. 2 í c-moll í flutningi Angelu Hewitt. (Hyperion). </description>
Stjörnukíkir 15. þáttur
			<description>Þorvaldur Þorsteinsson rithöfundur, myndlistarmaður og kennari segir frá hugmyndum sínum um menntun og sköpunarkraft einstaklingsins; rætt verður við Jökul Mána 10 ára gamalt ljóðskáld um bók sem hann gaf út fyrir jólin. Snorri Heimisson, Lilja Gylfadóttir, Óðinn Kári Rúnarsson og Rósa Guðný Arnardóttir flytja örsögur sem hlutu viðurkenningar í örsagnasamkeppni í Árbæjarskólanum á dögunum. Sigríður Sigurjónsdóttir vöruhönnuður og prófessor við Listaháskóla Íslands segir frá eftirminnilegum kennara...að auki heyrist í þættinum í nokkrum viðmælendum þáttarins frá liðnum vikum og mánuðum en þetta er síðasti þátturinn á þessu ári. Tónlistin eftir Jóhann Sebastían Bach, Arvo Pärt og Múm. </description>
Stjörnukíkir 16. þáttur
			<description>Fyrsta leiðangri nýs árs er varið til upprifjunar og endurlits. Tíndir verða til nokkrir molar úr hljóðakistu Stjörnukíkis, viðraðar skoðanir og sögur nokkurra af fjölmörgum viðmælendum þáttarins frá liðnum mánuðum. Rætt verður við doktor Robert Faulkner, skólastjóra tónlistarskóla Hafralækjaskóla í Aðaldal, um vægi leiksins í skólastofunni. Kíkt verður í tónmenntatíma hjá Nönnu Hlíf Ingvadóttur við Vesturbæjarskóla þar sem krakkarnir syngja vísur um krummahjón og köflótta fíla. Laufey Blöndal fimmtán ára námskona við Menntaskólann í Reykjavík og Myndlistarskólann í Reykjavík segir frá listnámi sínu en hún stundar nám í leirmótun hjá Guðnýju Magnúsdóttur myndlistarkonu. Skoðanir Sir Ken Robinson um vægi listnáms og skapandi starfs í skólastofum heimsins eru viðraðar en Sir Ken Robinson er einn helsti sérfræðingur heims á sviði nýsköpunar og flutti erindi á ráðstefnu TED-samtakanna í Monterey í Kaliforníu árið 2006. Guðný Björk Halldórsdóttir, níu ára gömul stelpa í Árbænum les upp örsögur um skráargöt og eyðieyjur en hún fór í ritsmiðju á vegum Borgarbókasafnsins síðasta sumar.Tónlistin sótt til japanska dúettsins Tenniscoats (lagið Jitsurei af plötunni Totemo Aimasho, 2007), Marimbusveitar í Hafralækjaskóla, ungra tónlistarmanna í Vesturbæjarskóla, Benna Hemm Hemm (Ég á bát af plötunni Kajak, 2006), Jóhanns Jóhannssonar (Beginning and End af Fjölskyldualbúmi Tilraunaeldhússins 2006), Snorra Sigfúsar Birgissonar (þjóðlagið Nú er Ísafoldin frjáls af plötunni Hear now my heart, 2007). 
Stjörnukíkir 17. þáttur
			<description>Í heimspekivali í Garðaskóla skeggræða nemendur 9. og 10. bekkjar ólíkar birtingarmyndir ástarinnar. Er hægt að lifa án ástar; kemur eitthvað í stað hennar; er hægt að elska og hata sömu manneskju á sama tíma... ýmsir þræðir spunnir í stuttum umræðutíma. Brynhildur Sigurðardóttir hefur kennt heimspeki við Garðaskóla frá árinu 2002. Hún veltir fyrir sér af hverju heimspeki njóti ekki meiri útbreiðslu í íslenskum grunnskólum en raun ber vitni, talar um mikilvægi þess að rækta gagnrýna hugsun innan skólans. Í myndlistartíma hjá Ingimar Ólafssyni Waage við sama skóla eru líka stundaðar heimspekilegar rökræður; þar velta nemendur fyrir sér dularfullu málverki eftir belgíska súrrealistann Magritte. Erla Sif Karlsdóttir, Guðný Rut Hafsteinsdóttir og Þórdís Sesselja Ólafsdóttir, fyrrum nemendur við Garðaskóla, flytja erindi um hvernig skóli eigi að vera að þeirra mati í pistli sem hljómaði í útvarpsþættinum Víðsjá fyrir réttu ári. Aðalheiður Jóna Magnúsdóttir níu ára gömul flytur frumsamda hrollvekju og myndlistarkonan Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá bregður upp mynd af farskólakennaranum Sigurði Jónsson frá Brún. Tónlist þáttarins er eftir Steve Reich (Music for Pieces of Wood í flutningi Safri Duo), Wayne Siegel (42n Street Rondo í flutningi Safri Duo) og Karólínu Eiríksdóttur (útsetning hennar á íslenska þjóðlaginu Enginn lái öðrum frekt í flutningi Tinnu Þorsteinsdóttur píanó).</description>
Stjörnukíkir 18. þáttur
			<description>Við bregðum okkur í leiklistartíma í Háteigsskóla, heyrum af aðferðum leikrænnar tjáningar og því hvernig leiklist nýtist í kennslu og heyrum í börnum í öðrum bekk flytja frumsamið rapp, fara á bjarndýraveiðar, rifja upp sögur af tröllum í fjöllum og fleira. Rannveig Þorkelsdóttir og Ása Helga Ragnarsdóttir leiklistarkennarar við skólann segja frá rannsókn sem þær vinna að um þessar mundir um gagnsemi leikrænnar tjáningar í námi barna. Anna Guðrún Torfadóttir, 12 ára gömul myndlistarkona, segir frá teikningunum sínum og teiknimyndasögum en þar bregður fyrir frakkaklæddum ketti í hlutverki einkaspæjara.   Kristín Jóhannesdóttir kvikmyndagerðarkona segir frá áhrifavöldum á skólaferlinum. Tónlist þáttarins er eftir Amadeo Pace, Arvo Pärt, Ólöfu Arnalds. David Lang og Skúla Sverrisson! 
Stjörnukíkir 19. þáttur
			<description>Við ferðumst um ranghala Myndlistarskólans í Reykjavík ásamt Ingibjörgu Jóhannsdóttur. Hún sýnir okkur listaverk eftir listamenn á öllum aldursskeiðum en allir aldurshópar og öll skólastig sækja námskeið við Myndlistarskólann. Innsetningar úr sælgæti gleðja skilningarvitin sem blind og sjónskert börn unnu á námskeiði hjá Margréti H. Blöndal og Gerði Leifsdóttur, skúlptúrar úr gúmmíhönskum, teiknibólum, trjágreinum eftir þriggja og fimm ára gömul börn prýða líka gangana. Skólinn var stofnaður árið 1947 og fagnaði sextugsafmæli sínu á síðasta ári og hefur frá upphafi státað af kennarahópi sem samsettur er af mörgum af framsæknustu listamönnum þjóðarinnar. Valgerður Jóhannsdóttir, fjórtán ára grunnskólanemi með mikinn áhuga á fatahönnun, kemur með sérhannaða kjóla og húfur og segir frá hönnunarbakteríunni. Halldóra K. Thoroddsen flytur okkur pistil um gildi leiðsagnar og lærimeistara. Tónlist þáttarins er í boði dúettsins Matmos og Opiate (Tómasar Knak).</description>
Stjörnukíkir 20. þáttur
			<description>Í Langholtsskóla hafa krakkar í 6. SG búið til eitt stykki tónverk á nokkrum dögum og notið leiðsagnar Hildar Guðnýjar Þórhallsdóttur og Þórdísar Heiðu Kristjánsdóttur auk fjögurra hljóðfæraleikara úr Sinfóníuhljómsveit Íslands. Í verkinu er spunnið út frá stefinu þekkta um Fred Flintstone og kó, spilað á rafmagnsgítara, slagverkshljóðfæri af ýmsu tagi, sungið um stjörnumerkjaböll og sitthvað fleira. Tónverkið er frumflutt á föstudagsmorgni í Langholtsskóla og á sömu tónleikum stíga meðlimir úr Sinfóníuhljómsveit Íslands fram og spila nokkra vel valda slagara  um býflugur og sprengisand sem vekja lukku.  Kvöldið áður hefur börnum í 6. SG verið boðið á tónleika Sinfóníuhljómsveitarinnar þar sem Natasha Korsakova fiðluleikari hefur heillað marga krakkana upp úr skónum með flottri fiðlu og skemmtilegri músík. Tónleikarnir í Langholtsskóla eru þáttur í fræðslustarfi Sinfóníuhljómsveitar Íslands eins og Árni Heimir Ingólfsson tónlistarstjóri hljómsveitarinnar segir okkur frá. Jóhanna Ásgeirsdóttir, fjórtán ára gömul, er nemandi við Myndlistarskólann í Reykjavík og hún sýnir okkur nokkrar teikningar, grafíkverk og keramikmuni. (Á ljósmynd hér til hliðar má sjá snjóhús með ísbirni á þakinu eftir Jóhönnu). Guðrún Nordal prófessor í íslensku við Háskóla Íslands segir frá eftirminnilegum kennara. Tónlist þáttarins er í boði Kippa Kanínusar (Tetónar og Píanóleikarinn fer í bað af plötunni Huggun), Jóhannesar Brahms (niðurlag fyrsta þáttar Fiðlukonserts í flutningi  Natöshu Korsakovu og Sinfóníuhljómsveitar Íslands), Rimsky Korsakov (Býflugunnar í flutningi meðlima Sinfóníuhljómsveitar Íslands), Sigvalda Kaldalóns (Á Sprengisandi í flutningi meðlima Sinfóníuhljómsveitar Íslands), Opiate. </description>
Stjörnukíkir 21. þáttur
			<description>Við bregðum okkur á fund lítilla ólympíustærðfræðinga í Hlíðaskóla sem skemmta sér yfir þrautum af ýmsu tagi. Þær Berglind Gísladóttir og Chien Tai Shill halda utan um kennsluna sem er á vegum lýðheilsu-og kennslufræðideildar Háskólans í Reykjavík og þær segja frá faginu ólympíustærðfræði. Í ólympíustærðfræði reynir á rökhugsun og ímyndunarafl; nemandinn þarf sjálfur að finna leiðina að svarinu og þær leiðir geta verið ótrúlega ólíkar. Orri Heimisson er tólf ára gamall nemi við Myndlistarskólann í Reykjavík og Melaskóla. Hann segir okkur frá nokkrum myndlistarverkum sem hann hefur gert, frá leiklistartímum sem hann hefur sótt og rifjar upp eftirminnilegar myndlistarsýningar sem hann hefur sótt. Við heyrum líka í leiklistarmeðferðarfræðingnum Robert Landy sem kom hingað fyrir nokkru á vegum FLÍSS, félags um leiklist í skólastarfi og fræðsludeildar Þjóðleikhússins. Landy er einn af frumkvöðlunum á sviði leiklistarmeðferðar í Bandaríkjunum og hann greinir frá lækningarmætti leiklistarinnar og listanna. Kári Harðarson rifjar upp sögu af eftirminnilegum kennara. Tónlistin í þættinum er eftir John Cage (Sónata #2, Sónata #5, Sónötur #14 &#15 úr Sonatas and interludes fyrir prepareraðan flygil í flutningi Joshua Pierce (Wergo, 1989) ) og Múm (Asleep in a hiding place af plötunni Fjölskyldualbúm Tilraunaeldhússins, 2006).</description>
Stjörnukíkir 22. þáttur
			<description>Við bregðum okkur í töfraherbergið í leikskólanum í Stekkjarási í Hafnarfirði en þar er að finna alls kyns efnivið, sælgætisbréf, trjágreinar, gostappa og efnissbúta svo eitthvað sé nefnt en efniviðurinn ratar inn í sköpunarverk barnanna í leikskólanum sem búa til bíla og flugvélar, tölvuskjái og vinnustaði, stelpur og stráka úr könglum, kökudunkum, pappakössum og bómullarhnoðrum. Ímyndunaraflinu eru engin takmörk sett og hlutirnir í töfraherberginu geta tekið á sig ótrúlegustu myndir. Töfraherbergið byggir á efnisveitunni Remida sem finna má í norður-ítölsku borginni Reggio Emilia en þar komu leikskólayfirvöld á samstarfi við fyrirtæki og verksmiðjur sem láta af hendi rakna afgangsbirgðir og úreltar vörur af ýmsu tagi sem nýtast leikskólum í borginni í skapandi starfi. Umhverfisvernd og endurnýting er þannig innbyggð í starf Remidu. Rætt verður við Michelle Soniu Horn, deildarstjóra listasmiðju Stekkjaráss um starfið á leikskólanum. Einnig verður rætt við Kristín Dýrfjörð, leikskólakennara og lektor við leikskóladeild Háskólans á Akureyri sem segir frá ítölsku skólastefnunni Reggio Emilia sem hefur sett mark sitt á fjölmarga leikskóla hérlendis á undanförnum árum og áratugum. Stefnan hefur vakið heimsathygli, en árið 1991 valdi tímaritið Newsweek Reggio Emilia skólana á meðal tíu bestu skóla í heimi. Hilmar Örn Hilmarsson tónskáld tekur að sér að rifja upp sögur af eftirminnilegum kennara. Tónlistin í þættinum er eftir John Cage (brot úr A Book of Music fyrir tvo undirbúna flygla í flutningi Joshua Pierce og kafli úr Svítu fyrir dótapíanó, einnig í flutningi JP) og Benna Hemm Hemm (Riotmand af plötunni Ein í leyni). 
Stjörnukíkir 23. þáttur
			<description>Stjörnukíkir dagsins verður með eilítið öðru sniði í tilefni hlaupársdags. Marteinn Sindri Jónsson menntskælingur, tónlistarnemi og dagskrárgerðarmaður á Rás 2 verður við stjórnvölinn, ræðir við Jóhann Pál Jóhannsson nemanda í 10. bekk Laugalækjarskóla sem baukar við ýmislegt, semur músík, leikstýrir, leikur og margt fleira. Að auki má heyra umfjöllun um leikritið Norway today eftir Igor Bauersima sem sýnt er í Þjóðleikhúsinu um þessar mundir. Rætt verður við Vigdísi Jakobsdóttur leikstjóra um verkið sem hefur verið sótt af ungum framhaldsskólanemum. Ágúst Elí Ásgeirsson, tíu ára gamall athafnamaður, segir svo frá stuttmyndum sínum, leiklistarnámskeiðum og myndlistarbjástri. Tónlistin að þessu sinni er eftir Ludwig van Beethoven, Richard Wagner (brot úr fyrsta þætti Valkyrjanna í flutningi James King, Régine Crespin og Vínarfílharmóníunnar undir stjórn Sir Georg Solti), Jóhann Pál Jóhannsson (Hvar er Guðmundur í flutningi höfundar), Matmos (California Rhinoplasty af plötunni A Chance to Cut is a Chance to Cure), Arvo Pärt (Für Alina í flutningi Alexander Malter) og Moses Hightower. (Búum til börn).
Stjörnukíkir 24. þáttur
			<description>Hljómsveitin Soundspell vakti síðastliðið haust verðskuldaða athygli þegar út kom fyrsta plata hennar, An ode to the umbrella, (óðurinn til regnhlífarinnar). Platan var ausin lofi gagnrýnenda úr ýmsum áttum sem áttu margir hverjir erfitt með að trúa því að meðalaldur hljómsveitarmeðlima væri svo lágur sem raun ber vitni en Soundspell er skipuð fimm strákum sem voru á aldrinum 15 til 17 ára þegar lögin á plötunni voru samin. Í Stjörnukíki verður rætt við tvo meðlimi Soundspell, þá Alexander Briem og Áskel Harðarson um tilurð þess að sveitin var stofnuð, þeir lýsa sköpunarferlinu, hvernig lag verður til þegar hljómsveitin Soundspell á í hlut og eitt og annað ber líka á góma. Guðný Guðbjörnsdóttir, prófessor í uppeldis- og menntunarfræðum við Háskóla Íslands ræðir um rannsóknir sínar á menningarlæsi ungs fólks. Hún bendir á nauðsyn þess að taka mið af breyttum tímum þegar læsi ungs fólks er metið og rannsakað, skólarnir og rannsakendur taki mið af nýjum og breyttum miðlum. Guðný ræðir einnig mikilvægi þess að skapandi hugsun sé tengd öllum greinum, ekki einungis listgreinum.  (Sjá grein eftir Guðnýju Guðbjörnsdóttir og Sergio Morra í Tímariti um Menntarannsóknir, I (2004) og grein eftir Guðnýju Guðbjörnsdóttur í Tímariti um menntarannsóknir, 3 (2006). Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur segir frá eftirminnilegum kennurum og tekið verður hús á söngfuglum í Langholtskirkju, rætt við unga söngvara og Jón Stefánsson kórstjóra um gildi kóruppeldis. Tónlistin er eftir Soundspell (The Missing Link og Porcelain Dolls af plötunni An Ode to the Umbrella, 2007, tuddi), Einojuhani Rautavaara (söngur riddarans úr Lorca-svítu við texta Federico Garcia Lorca í flutningi Graduale Nobili (2001)) og Amiina (Fjarskanistan af plötunni Animamina, 2004).</description>
Stjörnukíkir 25. þáttur
			<description>Inni á skrifstofu Ara Ólafssonar eðlisfræðings og dósents við Háskóla Íslands leynast ýmsir töfragripir sem Ari dregur úr pússi sínu. Eðlisfræði er falleg og skemmtileg segir Ari og vill kveða niður drauga sem halda öðru fram. Ari hefur verið mikill hvatamaður að því að breiða út fagnaðarerindi vísindanna með námskeiðum og fyrirlestrum, haldið vísindanámskeið fyrir ung börn og hlaut fyrir tveimur árum verðlaun RANNÍS fyrir vísindamiðlun. Ari er stjórnarformaður undirbúningsfélags að Tilraunahúsi, fræða- og skemmtisetri vísindanna sem hann talar einnig um í dag.Í Háskólanum í Reykjavík rekumst við á nokkra unga spænskunema, sálfræðinema og tölvuleikjahönnuði en þeir eru þar á vegum Ad Astra fyrirtækisins sem rekið er af nokkrum menntskælingum en Ad Astra býður upp á námskeið fyrir bráðger og námsfús börn. Við ræðum við Gunnar Dofra Ólafsson og Brynju Björg Halldórsdóttir starfsmenn Ad Astra og heyrum líka í Óskari Erni Stefánssyni, ungum leikjahönnuði, sem segir okkur frá sérhönnuðum tölvuleik um Jón bónda og uppvakningana sem herja á bæinn hans.Haukur Tómasson tónskáld deilir með okkur minningum af eftirminnilegum kennurum. Tónlist þáttarins er sótt til Alva Noto (af plötunni For sem kom út árið 2006) og hljómsveitarinnar Hjaltalín (af plötu þeirra Sleepdrunk seasons sem kom út árið 2007 og í upptökur sem sveitin gerði fyrir Hlaupanótuna á Rás 1 17. mars síðastliðinn.
Stjörnukíkir 26. þáttur
			<description>Malen Rún Eiríksdóttir, 12 ára gömul leikkona og kvikmyndagerðarkona, segir okkur frá starfi sínu með Leynileikhúsinu en þar hefur hún farið með nokkur stór hlutverk. Hún segir líka frá stuttmyndinni sinni, Ég er að verða brjáluð, sem vann til verðlauna á TÖKU 2007, kvikmyndahátíð grunnskólanna fyrir tæpu ári en myndin hennar Malenar (sem hún skrifaði handritið að og leikstýrði) þótti besta leikna stuttmyndin í yngri flokki. Önnur leikkona, Guðrún Ásmundsdóttir, segir frá kennsluaðferðum Engel Lund eða Göggu eins og hin heimsþekkta þjóðlagasöngkona var kölluð af vinum. Stóran hluta þáttarins dveljum við svo með börnunum í Kársnesi en þar er sprúðlandi tónlistarlíf eins og alþjóð veit. Við hittum Þórunni Björnsdóttur, konuna á bak við hið mikla kóraveldi í Kársnesi að máli, heyrum í ungum söngvurum tala um nokkur verkefni sem þau hafa tekið þátt í á vegum kórsins og syngja fyrir okkur um krókódíla og ketti. Þórunn óskar eftir fleiri listmenntuðu fólki í skólana og talar um að þótt skóladagurinn hafi lengst hafi stundum í list- og verkgreinum ekki fjölgað eins og þó var lofað þegar talað var um lengingu skóladagsins. Tónlistin...
Wayne Siegel: 42nd Street Rondo í flutningi Safri -dúósins.(DR. 1998)  Mist Þorkelsdóttur og Þórarinn Eldjárn: Spinna minni í flutningi Skólakórs Kársness undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur. Atli Heimir Sveinsson og Jónas Hallgrímsson: Úr Hulduljóðum í flutningi Skólakórs Kársness undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur. Jónas Ingimundarson leikur á píanó. (Skólakór Kársness. 2001) Henry Cowell: Aeolian Harp í flutningi höfundar. (Smithsonian Folkways. 1993). Emiliana Torrini / Dan Carey: Sunny Road. Emiliana Torrini, Dan Carey og Samuli Koskinen flytja. (Rough Trade. 2004)Að auki hljóma brot af kóræfingum kóra Kársnessskóla.
Stjörnukíkir 27. þáttur
			<description>Tækniæfingar í anda Mörthu Graham og Merce Cunningham ber á góma í Stjörnukíki í dag þegar við hittum fyrir unga dansara og danskennara við Klassíska listdansskólann en sá skóli býður upp á framhaldsnám í klassískum dansi og nútímadansi. Rætt verður við Guðbjörgu Astrid Skúladóttur danskennara og skólastjóra, Kötlu Þórarinsdóttur dansara og danskennara og tvo nemendur á nútímalistdansbraut, þær Guðrúnu Svövu Kristinsdóttur og Halldóru Eldjárn. Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi og fyrrum formaður menntaráðs Reykjavíkurborg greinir frá hugmyndum að grunnskólum sem rísa muni í Úlfarsárdal innan tíðar en hugmyndin er sú að listir og sköpun muni lita allt skólastarfið. Gunnhildur Una Jónsdóttir myndlistarkona deilir svo með hlustendum minningum af kennara. Tónlistin í þættinum er eftir Aphex Twin (af plötunni drukqs (Warp, 2001)), Steve Reich (brot úr verkinu Drumming í flutningi hópsins So Percussion (Cantaloupe Records, 2005), Dmitri Sjostakovich (Ljóðrænn vals úr Ballettsvítu nr. 1 í útsetningu Levon Atovmyan í flutningi Útvarpshljómsveitarinnar í Frankfurt undir stjórn Dmitri Kitaensko (BMG, 1997), Frederic Chopin (Berceuse ópus 57 í flutningi Árna Kristjánssonar, hljóðritað árið 1983). 
Stjörnukíkir 28. þáttur
			<description>Tíundu bekkingar Réttarholtsskóla skeggræða skömmustutilfinninguna út frá ýmsum hliðum í heimspekitíma hjá Jóhanni Björnssyni heimspekingi og kennara. Jóhann ræðir um reynslu sína af því að iðka heimspeki með nemendum sínum, segir frá heimspekitilraunum á almannafæri, veltir vöngum yfir því hvort rétt sé að gera heimspekina að skyldunámsgrein innan grunnskólanna en heimspekingar eru ekki á einu máli um hvort slíkt geri heimspekinni gagn. Ungir kvikmyndagerðarmenn í Háteigsskóla segja frá kvikmyndum um kaptein baun og Bangsímon og Daníel Gylfason, nemandi í níunda bekk skólans segir frá kvikmyndahátíðinni KVÍT sem haldin verður 25. apríl næstkomandi og kvikmyndaáhuga sínum en hann hefur stundað kvikmyndagerð frá sjö ára aldri. Halldór Bjarki Arnarson, nemandi í tíunda bekk Hagaskóla, hornleikari og tónskáld leyfir okkur að heyra tónsmíðarnar sínar. Önnur tónlist þáttarins er eftir Benna Hemm Hemm (GÍtStemm af Fjölskyldualbúmi Tilraunaeldhússins, 2006), Carl Philip Emanuel Bach (þáttur úr hljómborðssónötu í g-moll Wq 65/17 í flutningi Mikhail Pletnev, DG, 2001), Toumani Diabaté (Si naani af plötunni The Mandé Variations, World Circuit 2008). 
Stjörnukíkir 29. þáttur
			<description>Bræðurnir Jökull Smári og Lárus Jakobssynir eru snjallir músíkmenn eins og við heyrum í þættinum í dag þegar þeir lofa okkur að heyra lögin sín um fjallið eina, sumarleyfiseyjuna Krít, dúnmjúkar kinnar og rokkmömmu en saman skipa bræðurnir sveitina Rokkenjól. Sölvi Sveinsson cand. mag. og fyrrum skólastjóri Verzlunarskóla Íslands segir frá undirbúningsvinnu að stofnun Listmenntaskóla Íslands en Sölvi hefur undanfarna mánuði unnið að viðskiptaáætlun og þarfagreiningu fyrir slíkan skóla á Íslandi ásamt Elfu Hrönn Guðmundsdóttur viðskiptafræðingi. Ætlunin er að skólinn taki til starfa haustið 2010 í Ofanleitinu, í núverandi húsnæði Háskólans í Reykjavík þegar skólinn flytur þaðan. Fléttað verður saman listnámi og bóknámi í skólanum en þar verða fjórar deildir, tónlistardeild, myndlista- og hönnunardeild, sviðslistadeild og bóknámsdeild. Málið liggur nú til skoðunar hjá menntamálaráðuneyti. Við hittum líka Ragnar Skúlason fiðlukennara, stjórnanda og stofnanda Þjóðlagasveitar Tónlistarskólans á Akranesi sem hefur vakið mikla athygli á undanförnum mánuðum og árum fyrir mikla spilagleði.  Þær Kristín Sigurjónsdóttir, Salóme Jónsdóttir og Nanna Maren Stefánsdóttir eru liðsmenn sveitarinnar og við heyrum líka í þeim. Tónlistin í þættinum er í flutningi Toumani Diabaté (Djourou Kara nany af plötunni The Mandé Variations, World Circuit 2008), sveitarinnar Rokkenjól (mamma rokkar, fjallið, sumarið, trommulagið, af plötunni (Rokkenjól 2007)) Murray Perahia (Af dem Wasser zu singen, sönglag Schuberts í píanóumritun Franz Liszt, (Sony, 1999), Þjóðlagasveitarinnar á Akranesi (Brúðarvals Carlsons, The Road to Lisdoonvarna / Swallow Tail Jig ) Menningarráð Vesturlands, 2007) og Tvær Stjörnur eftir Megas, hljóðritað á æfingu sveitarinnar í apríl 2008).
Stjörnukíkir 30. þáttur
			<description>Hinn tvítugi raftónlistarmaður Klive, öðru nafni Úlfur Hansson segir frá og leyfir okkur að heyra tónlist af plötu sinni sveittir sálmar (sweaty psalms) sem kemur út á vegum Kimi records en platan er fyrsta breiðskífa Úlfs. Í leikskólanum Sæborg hittum við unga fuglafræðinga og áhugamenn um heimskautin. Skólinn starfar samkvæmt Reggio Emilia leikskólafræðunum sem leggja mikið upp úr sköpun, gagnrýninni hugsun, að börnin leiti sjálf svara við spurningum sem upp spretta og að þau noti öll skilningarvit sín. Börnin tjá uppgötvanir sínar í skapandi efnivið og tónlist. Rætt verður við Soffíu Þorsteinsdóttur leikskólastýru og Höllu Dögg Önnudóttur verkefnastýru myndlistar á leikskólanum. Hin sænska Suzanne Osten kemur svo við sögu í lok þáttar. Hún er rithöfundur, leikstjóri og listrænn stjórnandi leikhópsins Unga Klara, framsækins tilraunaleikhúss fyrir börn og ungt fólk. Unga Klara hefur starfað í Stokkhólmi frá árinu 1975 og vakið mikla athygli fyrir djarfar og róttækar barnasýningar en Suzanne gagnrýnir harðlega þá tilhneigingu samtímans að bjóða börnum upp á innantóma afþreyingu. Dregið hefur verið úr fjárveitingum til Unga Klara næsta starfsár og Suzanne hefur brugðist við þeim fregnum með afdráttarlausri gagnrýni á markaðsleikhúsið - sjá grein! Tónlistin í þættinum er eftir Manouri Diabaté: af plötunni Mandé Variations, (World Circuit, 2008), Coco Rosie: Brazilian Sun af plötunni Noah's Ark, (Touch. 2005) og Klive: Ljósvaki, Mardi Gras, Common Wealth af plötunni Sweaty Psalms, (2008).
Stjörnukíkir 31. þáttur
			<description>Ungir skipulagsfræðingar og arkitektar eru í óða önn að hanna borgríki sín og lönd. Fræðingarnir koma úr grunnskólum Ártúns og Fella en hafa haft í nógu að snúast að undanförnu í Myndlistarskólanum í Reykjavík við að byggja kirkjur og brýr, hugsa fyrir flugvöllum og almenningssamgöngum, grænum útivistarsvæðum og byggð, sveit og borg.  Myndlistarskóli Reykjavíkur hefur á undanförnum fimm árum tekið á móti nemendum nokkurra grunnskóla Reykjavíkur og slegið upp listbúðum um spendýr og arkitektúr og stærðfræði og nú er röðin komin að skipulagsmálum. 20 skólar sóttu um þátttöku í verkefninu en sex skólar komast að - verkefnið hugsað sem liður í því að styrkja og efla listnám innan grunnskóla á markvissan og vandaðan hátt og við bregðum okkur á fund ungra arkitekta og skipulagsfræðinga í þættinum. Sara Maarit Cedergren, myndlistarkona og námskona í kennslufræði við Listaháskóla Íslands segir frá hugmynd sem hún þróaði í námi sínu við Listaháskólann um hvernig hægt sé að nýta sér netið og gangvirkni þess til að opna nemendum innsýn inn í vinnustofur og tilraunahús listamanna. Eiríkur Örn Nordahl ljóðskáld flytur hugleiðingar um kennslu ljóðlistar í grunnskólum og undir lok þáttar hittum við 12 ára gamalt ljóðskáld úr Víkurskóla - Svanhildi Sverrisdóttur en nýlega hreppti hún verðlaun í ljóðasamkeppninni Ljóð unga fólksins en Þöll - samstarfshópur um barnamenningu á bókasöfnum efndi til þeirrar samkeppni fyrir fólk á aldrinum 9 til 16 ára á landsvísu. Tónlistin í þættinum er eftir Manouri Diabaté: lag af plötunni Mandé Variations (World Circuit, 2008) og Matthías Hemstock: (tónlist af ljóðaplötu hans og Braga Ólafssonar (Dimma, 2006)). Að auki les Bragi upp ljóð sitt Út um sjoppudyrnar (Dimma, 2006).   
Stjörnukíkir 32. þáttur
			<description>Herdís Anna Jónsdóttir og Steev van Oosterhout leiða okkur um hljóðheima Jóns bónda sem hefur ferðast vítt og breitt um íslenska og hollenska leikskóla þar sem Herdís og Steev hafa boðið upp á tónlistardagskrána Töfraveröld tóna og hljóða. Dagskráin felur í sér hljóðfærakynningu, sögð er sagan af Jóni bónda með tilheyrandi hljóðaferðalagi, íslensk þjóðlög eru spiluð og sungin og farið er með vísur og þulur við undirleik heimatilbúinna hljóðfæra og tóna úr steinaspili Páls á Húsafelli. Herdís og Steev hlutu vorvindaverðlaun IBBY fyrir skemmstu fyrir gott framlag til barnamenningar. Aðrir handhafar voru Gerður Kristný rithöfundur, Una Stígsdóttir og Anik Todd fyrir sýningarstjórn á sýningunni Allt í plati í Gerðubergi þar sem sýningargestir gengu inn í söguheima Sigrúnar Eldjárn. Við beinum stjörnukíki einnig að listnámi á Austurlandi en 9. maí síðastliðinn var haldið áhugavert málþing á Stöðvarfirði sem bar yfirskriftina Framtíðartækifæri -  listnám á Austurlandi. Rætt verður við Signýju Ormarsdóttur menningarfulltrúa Austurlands, Láru Vilbergsdóttir og Ólöfu Björk Bragadóttur myndlistarkonur og kennara við listnámsbraut Menntaskólann á Egilsstöðum. Þær Karla Dögg Karlsdóttir og Guðný Magnúsdóttir segja um stuttmyndum sem þær gerðu í kennaranámi sínu við Listaháskóla Íslands en myndir þeirra fjölluðu um myndlistarnám í Myndlistarskólanum í Reykjavík og Hagaskóla.Sex ára gamlir músíkantar úr Víkurskóla bjóða upp á frumsamda söngva á frumsömdu tungumáli í lok þáttar en tónlistarfólkið kom í heimsókn í Efstaleiti fyrir nokkru og hljóðritaði söngva sína í stúdíói 12 við undirleik Gunnars Ben tónmenntakennara.
Stjörnukíkir 33. þáttur
			<description>Stjörnukíkir rannsakar Gróttu í fyrsta leiðangri haustsins. Við sláumst í för með Vöku Margrétardóttur, Bjarti Erni Bachman, Magnúsi Péturssyni og Hugrúnu Eglu Einarsdóttur sem veita okkur ómetanlega leiðsögn um líf á eyju. Þau eru á námskeiði hjá Margréti H. Blöndal og Ósk Vilhjálmsdóttur sem hafa lagt í rannsóknarleiðangra um suðvesturhorn Íslands í sumar. Margrét og Ósk deila með okkur hugleiðingum um upplifun og rannsóknir ungra vísindamanna á íslenskri náttúru og Elínborg Una Einarsdóttir, Þórey Nína Pétursdóttir, Katya Brooks og Álfheiður Gló Einarsdóttir segja frá eyjum sem þau hafa mótað á námskeiði Margrétar og Óskar. Þar spúa eldfjöll hrauni, maður þarf að passa sig á risastórum kuðungum og hellum. Freyr Eyjólfsson les úr bernskuminningum Þórbergs Þórðarsonar, Steinarnir tala á meðan tónlistarmennirnir Opiate, Hilmar Jensson, Skúli Sverrisson, Matthías M.D. Hemstock og Eyvind Kang leggja okkur til tónlist.
Stjörnukíkir 34. þáttur
			<description>Í sumar sem leið héldu þær Guja Dögg Hauksdóttir arkitekt og Kristín Reynisdóttir myndlistarkona vinnusmiðju fyrir unga norræna krakka frá Helsinki, Reykjavík, Kaupmannahöfn og Fljótsdalshéraði. Náttúra og manngert umhverfi var þema vinnusmiðjunnar, 32 krakkar á aldrinum 13 til 16 ára veltu fyrir sér sambandi manns og náttúru, hvernig maðurinn mótar náttúruna og markar sín spor í hana. Fyrirbæri á borð við sjóndeildarhring og víðáttur voru rannsökuð, ljóðrænar innsetningar fæddust innblásnar af jökli, auðn, skógi, snjó, sandi. Við heyrum af vinnusmiðjunni í Stjörnukíki að þessu sinni: Kristín og Guja Dögg deila með okkur hugleiðingum sínum og þau Ólafur Kári Ragnarsson, Ásgerður Heimisdóttir og Ragnheiður Freyja Guðmundsdóttir segja okkur frá verkum sínum sem þarna fæddust. Að auki les Guðmundur Ingi Þorvaldsson úr skáldsögu Gyrðis Elíassonar, Svefnhjólinu. Tónlistin í þættinum er eftir Múm, Opiate og Hildi Ingveldardóttur Guðnadóttur.Lýsing...</description>
Stjörnukíkir 35. þáttur
			<description>Í Borgarbókasafninu hafa um árabil verið haldnar vikulangar ritsmiðjur fyrir ung börn á sumrin. Upphaf þeirrar starfsemi má rekja til ársins 1994 þegar Anna Torfadóttir bókasafnsfræðingur setti á laggirnar vikulangar þematengdar lessmiðjur fyrir unga lestrarorma sem kynntust þar þjóðsögum af ýmsu tagi.  Nokkrum árum síðar var smiðjunni breytt í ritsmiðju að frumkvæði Þorbjargar Karlsdóttur hjá Borgarbókasafninu -  til að hvetja ung börn til að móta sínar eigin sögur og uppgötva gleðina sem er fólgin í því að skapa. Allir luma á ríkidæmi sagnagáfunnar þótt misdjúpt sé á henni. Í rúman áratug hafa núna ungir rithöfundar komið saman til að semja sögur, lesa þær upp fyrir hvert annað og njóta leiðsagnar sér eldri og reyndari rithöfunda. Í Stjörnukíki að þessu sinni er rætt við Herdísi Egilsdóttur sem stýrði ritsmiðju í aðalsafni Borgarbókasafnsins í sumar. Hjalti Gunnarsson, Arína Vala Þórðardóttir og Jana Katrín Magnúsdóttir lesa sögur um mýs, refi, gullappelsínur, epli, úlfatennur og sitthvað fleira og Jana Katrín ræðir um gildi skáldskapar og ímyndunarafls. Tónlistin í þættinum er eftir Nils Ökland og Hilmar Jensson (af plötunni Tyft og af tónleikum Hlaupanótunnar sem haldnir voru vorið 2006). 
Stjörnukíkir 36. þáttur
			<description>Stjörnukíkir tekur lítið hliðarspor til vesturs og dvelur á austur-grænlensku eyjunni Kúlúsúkk í leiðangri dagsins. Veröldin er öðru vísi þar um slóðir þótt taki innan við tvo tíma að fljúga þangað frá Reykjavíkurflugvelli. Við komumst að því að þessi frumstæða 300 manna eyja lumar á ýmsu skemmtilegu; einum besta barnaskóla Grænlands; nýkrýndum menningarverðlaunahafa Grænlands, Önnu Thastum Kuitse trommudansmeyju en verðlaunin hlaut hún fyrir framlag sitt til grænlenskrar barnamenningar og miðlunar menningararfsins. Danska myndlistarkonan Anne Mette Holm hefur gert stórkostlega hluti með ungu myndlistarfólki Kúlúsúkk og hjálpað þeim við að vinna úr sínum forna menningararfi og móta hann í nútímaleg listaverk. Stjörnukíkir sveimar um eyjuna í fylgd eyjaskeggja og heyrir brot úr fléttuþætti sem austur-grænlensk ungmenni gerðu fyrir tveimur árum um haustvindinn Piteraq sem lagði bæinn Tassilaq, í nágrenni Kúlúsúkk, nánast í rúst í febrúarmánuði árið 1970. Þátturinn Piteraq tók þátt í alþjóðlegu fléttaþáttasamkeppninni Prix Europa árið 2006 og hreppti þá sjötta sæti. Tónlistina sækjum við í hljóðritasafn Unu Margrétar Jónsdóttur sem tók upp söng og trommudans í Kúlúsúkk sumarið 2004 og á plötuna Vespertine þar sem Björk Guðmundsdóttir og grænlenskur kvennakór flytja þrjú </description>
Stjörnukíkir 37. þáttur
			<description>Stjörnukíkir bregður sér upp í Norðlingaholt í þætti dagsins en þar er nýjasti grunnskóli Reykjavíkur til húsa, þriggja ára gamall NOrðlingaskóli sem hefur vakið mikla athygli á undanförnum árum fyrir það sem sumir nefna byltingarkennda skólastefnu. Rætt verður við foreldra og kennara sem tengjast skólanum, Sif Vígþórsdóttur skólastjóra, Þráin Árna Baldvinsson tónmenntakennara, Ragnar Þór Pétursson umsjónarkennara og Helgu Björg Helgadóttur foreldra nemanda í níunda bekk. Tónlist þáttarins er í boði Jóhanns Sebastíans </description>
Stjörnukíkir 38. þáttur
			<description>Þáttur dagsins er helgaður viðtali við Ármann Halldórsson og Róbert Jack heimspekinga og kennara, höfunda bókarinnar "Heimspeki fyrir þig" sem út kom fyrir skemmstu hjá Máli og menningu. Linda Björk, Edda og Stefán lesa upp erindi sem þau gerðu í heimspekitímum hjá Ármanni Halldórssyni í Verslunarskóla Íslands en erindin fjalla um sjálfsaga og hugrekki. Við rekumst líka inn í Orkuveitu Reykjavíkur en þar stendur þessa dagana yfir sýning á uppfinningum Leonardo da Vinci. Krakkar úr Ísaksskóla, Ingunnarskóla og leikskólanum Lyngheimum deila með okkur vangaveltum um Leonardo og gauka að okkur hugmyndum að nýjum uppfinningum. Eva Rún Þorgeirsdóttir verkefnastýra segir frá viðtökum barna við uppfinningum Leonardo. Tónlist þáttarins er eftir Opiate (While you were sleeping, 2002), Enrico Rava og Stefano Bollani (The Third Man, 2007). </description>
Stjörnukíkir 39. þáttur
			<description>Stjörnukíki verður beint að tónlistarhátíð unga fólksins sem haldin var 5. - 18. ágúst síðastliðinn í Kópavogi. Þar komu ungir tónlistarnemar saman og nutu leiðsagnar tónlistarfólks í fremstu röð en í þættinum að þessu sinni má heyra hljóðritanir af uppskeruveislu hátíðarinnar. Rætt verður við Helga Jónsson, einn af aðstandendum hátíðarinnar, sem og Arnþrúði Gísladóttur starfsmann hátíðarinnar og þau Júlíu Mogensen, Karl Jóhann Bjarnason og Ástu Maríu Kjartansdóttur, sellista sem voru á strengjakvartettanámskeiði hjá Sigurbirni Bernharðssyni. Tónlistin: Krummavísa í útsetningu Bjarna Frímanns Bjarnasonar, strengjasveitin Skark leikur undir stjórn Bjarna Frímanns Bjarnasonar; Vals úr Tilbrigðum um stef eftir Frank Bridge ópus 10 eftir Benjamín Britten, einnig í flutningi strengjasveitarinnar Skark; Þingið eftir Þorkel Sigurbjörnsson í flutningi yngri strengjasveitar undir stjórn Svövu Bernharðsdóttur; Adagio úr Strengjakvartett ópus 41 nr. 1 í a-moll eftir Róbert Schumann í flutningi Gróu Margrétar Valdimarsdóttur, Laufeyjar Jensdóttur, Tim Hoorelbeck og Júlíu Mogensen, Adagio ma non troppo úr Strengjakvartett ópus 74 eftir Ludvig van Beethoven í flutningi Vincent Piazza, Guðbjargar Hlínar Guðmundsdóttur, Viktors Orra Árnasonar og Karls Jóhanns Bjarnasonar; Vivace úr Strengjakvartett númer 1 "Úr lífi mínu" eftir Bedrich Smetana í flutningi Joanna Grosshans,  Sólrúnar Gunnarsdóttur, Adrienne Hochman og Ástu Maríu Kjartansdóttur. </description>
Stjörnukíkir 40. þáttur
			<description>Nokkur ljóðskáld í tíunda bekk Austurbæjarskóla lesa upp ljóð sín um tímann og vatnið, ímyndir og Barbapabba. Ljóðin er að finna í ljóðabókinni Ljóð úr Austurbænum sem ort voru í íslenskutímum hjá Jóhannesi B. Ingasyni. Við hittum líka Anne Bamford sem var aðalfyrirlesari á á nýafstöðnu málþingi menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Anne Bamford hefur ferðast víða og gert úttekt á stöðu listmenntunar innan ákveðinna ríkja en þá rannsókn hefur hún gert á vegum UNESCO, stofnunar sameinuðu þjóðanna um menntun, vísindi og menningu. Niðurstöður hennar má lesa í hinni fróðlegu bók The Wow Factor sem hiklaust má mæla með. Anne Bamford mun að beiðni menntamálaráðuneytisins íslenska gera úttekt á stöðu listmenntunar í íslensku skólakerfi. Sköpun skiptir sköpum hét málþingið sem Anne kom fram á hér um daginn; einn fyrirlesaranna þar var Arna Guðný Valsdóttir sem ræðir um listina og ímyndunaraflið sem námstæki. Að endingu heyrum við Halldór Stefán, 11 ára gamalt skáld í Árbænum, lesa upp æsispennandi smásögu um Demanta. Tónlistin í þættinum er eftir Jóhann Jóhannsson (Beginning and End af Fjölskyldualbúmi Tilraunaeldhússins, 2006); Opiate (af plötunni While you were sleeping); Henry Cowell (Aeolian Harp í flutningi Steffen Schleiermacher) og John Cage (kaflar úr svítu fyrir dótapíanó í flutningi Joshua Pierce). 
Tíminn og vatnið
(hugsanir ungs ljóðskálds í ritunartíma)
Leiðist mér og líkar ei
að þurfa að yrkja ljóð,
horfa upp á þessi grey
listilega þránandi þjóð
og uppúr þessari þjáningu
ný þjóðarsál er ofin
og við tökum okkar refsingu
fyrir að vera svona listilega dofin
og á máta meistaranna
mennirnir loksins kanna
þessar visnandi vonir
okkar vesælla manna. 
Guðbrandur Loki Rúnarsson
Tíminn og vatnið
(hugsanir ungs ljóðskálds í ritunartíma)
Leiðist mér og líkar ei
að þurfa að yrkja ljóð,
horfa upp á þessi grey
listilega þránandi þjóð
og uppúr þessari þjáningu
ný þjóðarsál er ofin
og við tökum okkar refsingu
fyrir að vera svona listilega dofin
og á máta meistaranna
mennirnir loksins kanna
þessar visnandi vonir
okkar vesælla manna. 
Guðbrandur Loki Rúnarsson
Stjörnukíkir 41. þáttur
			<description>Blær Jóhannsdóttir, Þórunn Guðjónsdóttir, Steinar Logi Helgason, Sigríður Ólafsdóttir og Ólafur Ásgeirsson, menntskælingar í MH pæla aðeins í stöðunni í íslensku þjóðlífi þessa dagana. Þetta eru skrýtnir tímar segja þau og við heyrum hvernig þau hafa upplifað undanfarnar vikur. Gunnar Theodór Eggertsson rithöfundur, doktorsnemi í bókmenntafræði og starfsmaður í Hlíðaskjóli les svo úr sögu sinni um Steindýrin og ræðir um söguna en fyrir bókina, sem er fyrsta útgefna Gunnars Theodórs, hlaut hann íslensku barnabókaverðlaunin á dögunum. Krakkar í Hlíðaskjóli sitja og hlusta á Gunnar Theodór lesa. Tónlistin í þættinum er eftir Opiate (af plötunni While you were sleeping), Isan (af plötunni clockwork menageri), Skúla Sverrisson, Hilmar Jensson, Matthías M.D. Hemstock og Eyvind Kang (af plötunni Napolí). Í lok þáttar flytja þau Blær Jóhannsdóttir, Einar Kári Jóhannsson, Valdís Steinarsdóttir, Óskar Magnússon og Guðfinnur Þórir Stefánsson frumsaminn Kreppublús. </description>
Stjörnukíkir 42. þáttur
			<description>Ung leikskáld úr Borgarholtsskóla þreyta frumraun sína á sviði útvarpsleikhússins í þætti dagsins. Fyrir skemmstu komu þau Agnes Þorkelsdóttir Wilde, Ellý Tómasdóttir, Hjörtur Freyr Hjartarson, Egill Kaktus Þorkelsson Wilde og Kristína Björk Arnórsdóttir í hljóðver 12 hér í Efstaleiti og tóku upp glæný útvarpsleikrit sín í flutningi samnemenda sinna –sögusvið eru löggubílar og flugvélar og kaffihús, verkin sem fjalla um lífið ástina og dauðann og fleiri eilífðarmál voru samin í leiklistaráfanga hjá Guðlaugu Maríu Bjarnadóttur í Borgarholtsskóla. Í leiðangri dagsins og næstu vikna munum við verða þess heiðurs aðnjótandi að hlýða á frumflutning þessara glænýju leikverka. Við hittum líka Davíð A. Stefánsson bókmenntafræðing og skáld í þætti dagsins – Davíð gaf nýverið út hina bráðskemmtilegu bók Tvískinnu þar sem gramsað er í undirdjúpum tungumálsins – hins áhrifamikla valdatækis – og gerð tilraun til að greina bullið sem á okkur dynur alla daga en nokkrir grunnskólar hafa þegar byrjað að nýta sér bókina sem kennsluefni. "Þessi bók er svo dásamlega á skjön við það sem almennt er haldið að ungu fólki að henni ættu að fylgja sérstök aðvörun: Varúð! Gæti gefið lesendum þá hugmynd að mótun tungumálsins sé sameiginlegur réttur okkar allra! Tvískinna er líkleg til að efla sjálfstæði og sköpunargleði meira en góðu hófi gegnir." Þetta segir Þorvaldur Þorsteinsson um Tvískinnu en við heyrum meira af því riti í þættinum. Og í Laugalækjaskóla velta tíundu bekkingar fyrir sér tilfinningum sínum og viðbrögðum við ástandinu í þjóðfélaginu. Þau sitja í heimspekitíma hjá Jóni Thoroddsen. Tónlist þáttarins er sótt til Opiate (af plötunni While You Were Sleeping) , Kiru Kiru (af plötunni Our Map to the Monster Olympics), Food (af plötunni Last Supper) og Carl Philip Emanuel Bach.
Útvarpsleikritið Þar fór það eftir Ellýju Tómasdóttur Wild. Persónur og leikendur eru: Hemmi: Egill Kaktuz Þorkelsson Wild; Jói: Hjörtur Freyr Hjartarson og Begga: Agnes Þorkelsdóttir Wild. Leikstjórar: Ellý Tómasdóttir og Guðlaug María Bjarnadóttir. Hljóðvinnsla: Einar Sigurðsson. 
Stjörnukíkir 43. þáttur
			<description>Egill Kaktus Þorkelsson Wild, nemandi í Borgarholtsskóli er leikskáld þáttarins og býður upp á einþáttunginn Strætómálamannaráðuneytisherra sem hljóðritað var í hljóðveri 12 fyrir nokkru. Við heyrum hljóðritun á frumflutningi grunnskólanemenda í Tjarnarlundi í Saurbæ í Dalasýslu  á verkinu Kveld við Breiðafjörð eftir Snorra Sigfús Birgisson og Stein Steinarr. Verkið samdi Snorri sérstaklega fyrir börnin sem spila og syngja. Þær Eeva Sarmanto Neuvonen og Rebekka Angervo, píanókennarar við Síbelíusarakademíuna ræða um mikilvægi þess að leyfa ungum tónlistarnemum að spinna og skapa samhliða tækniæfingum. Þær komu fram á Píanóþingi í Salnum í Kópavogi um daginn. Marteinn Knaran Ómarsson píanónemi leikur verk eftir Einojuhani Rautavaara, Við hittum líka nokkrar kraftmiklar konur sem koma frá Bretlandi og starfa við verkefnið Creative Partnerships  sem stofnað var eftir að Sir Ken Robinson hafði skrifað skýrslu um framtíðarsýn breskra menntayfirvalda. Tónlist þáttarins er eftir Opiate, Einojuhani Rautavaara, Snorra Sigfús Birgisson og Matmos-dúettinn. 
Strætómannamálaráðuneytisráðherra eftir Egil Kaktus Þorkelsson Wild. Persónur og leikendur: Bílstjóri: Hjörtur Freyr Hjartarson / Úlla: Kristína Björk Arnórsdóttir / Öryrki og Heyrnarlaus kona: Agnes Þorkelsdóttir Wild / Túlkur: Erla Kristín Pétursdóttir / Gamla konan: Þuríður Davíðsdóttir / Strætómannamálaráðuneytisráðherra: Sigurlaug Sara Jónsdóttir / Sögumaður: Ellý Tómasdóttir
Stjörnukíkir 44. þáttur
			<description>Krakkarnir í 4.I í Vesturbæjarskóla eru með persónugallerýið í norrænu goðafræðinni á hreinu og þau segja okkur frá uppáhaldsguðunum sínum, ragnarökum og nýju upphafi. Þau hafa verið að skoða nýja bók Ingunnar Ásdísardóttur og Kristínar Rögnu Gunnarsdóttur: Örlög guðanna: Sögur úr norræni goðafræði og Kristín Ragna flettir líka í gegnum bókina með okkur. Við hittum líka Irmu Gunnarsdóttur og Eddu Björgu Eyjólfsdóttur sem tala um samspil og samræðu grunnskóla og listamanna en innan vébanda Bandalags íslenskra listamanna, BÍL, hefur verið hrundið af stað verkefninu Litróf listanna. Þar fara listamenn inn í skóla, bjóða upp á tilraunakennda gjörninga þar sem listgreinum er stefnt saman og börnin geta svo í framhaldinu unnið ýmis verkefni sem tengjast gjörningunum. Kristína Björk Arnórsdóttir menntaskólamær og leikskáld býður svo upp á einþáttunginn Þekkirðu Robin sem hljóðritaður var í hljóðveri 12 af Einari Sigurðssyni. Tónlist þáttarins er eftir Opiate (Af plötunni While you were sleeping), Klive (Úlf Hansson) og þjóðlagatónlist í flutningi Bardos-hljómsveitarinnar (Dreamsongs. 2006). Lesari í þættinum er Kristján Kristjánsson. .  
Þekkirðu Robin eftir Kristínu Björk Arnórsdóttur. Hljóðvinnsla í höndum Einars Sigurðssonar. 
Elsa:Ellý Tómasdóttir
María:Viktoría Birgisdóttir
Stasía:Agnes Þorkelsdóttir Wild
Þjónn: Hjörtur Freyr Hjartarson
Bróðir Robin: Egill Kaktus Þorkelsson Wild
Leikstýrt af Guðlaugu Maríu og Kristínu Björk Arnórsdóttur.
Elsa:Ellý Tómasdóttir
María:Viktoría Birgisdóttir
Stasía:Agnes Þorkelsdóttir Wild
Þjónn: Hjörtur Freyr Hjartarson
Bróðir Robin: Egill Kaktus Þorkelsson Wild
Stjörnukíkir 45. þáttur
			<description>Við hittum litla heimspekinga í Grafarvogi en á leikskólanum Foldaborg hefur verið iðkuð heimspeki um 14 ára skeið með leikskólanemum. Guðbjörg Guðjónsdóttir leikskólastýra og heimspekinemi segir frá barnaheimspeki og ræðir við þau Hörpu, Ægi, Sölva, Andreu, Guðrúnu, Elínu og Ágústu. Létt- og stórsveitir Tónlistarskóla Seltjarnarness leika undir stjórn Kára Einarssonar. Einþáttungurinn Fyrsta ferðin eftir Agnesi Þorkelsdóttur Wild verður frumfluttur en hann var hljóðritaður af Einari Sigurðssyni fyrir útvarpsleikhúsið í hljóðveri 12 á dögunum. Tónlist þáttarins: Boat eftir Kiru Kiru (af plötunni Skotta, 2005, SMK), Feel so good eftir Chuck Magninoni í flutningi Stórsveitar Tónlistarskóla Seltjarnarness (hljóðritað af RÚV 2008), Mercy Mercy Mercy eftir Joe Zawinul í flutningi Smásveitar Tónlistarskóla Seltjarnaress (hljóðritað af RÚV 2008).  
Persónur og leikendur: Dóróthea: Þuríður Davíðsdóttir / Birna: Ester Rán Ómarsdóttir / Guðfinnur: Egill Kaktus Þorkelsson Wild / Ragnheiður:  Viktoría Birgisdóttir / Guðrún: Erla Kristín Pétursdóttir / Farþegar: Sigurlaug Sara Jónsdóttir, Hjörtur Freyr Hjartarsson, Kristína Björk Arnórsdóttir & Ellý Tómasdóttir
Stjörnukíkir 46. þáttur
			<description>Í tilefni af sextugsafmæli Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna verður gluggað í nýútkomna bók sem gefin er út af Máli og menningu í samvinnu við Amnesty International. Þar er að finna mannréttindayfirlýsinguna í myndum sem gerðar hafa verið af stórum hópi alþjóðlegra myndlistarmanna en bókin er ætluð börnum. Jóhanna K. Eyjólfsdóttir framkvæmdastýra Íslandsdeildar Amnesty segir frá útgáfunni og Guðrún Helgadóttir rithöfundur les formála sinn að bókinni. Rán, Þorbjörg, Helga, Lilja, Rafnhildur Rósa og Emilía lesa upp úr mannréttindayfirlýsingunni. VIð hlýðum á tónlist í flutningi nokkurra nemenda Tónskóla Sigursveins sem komu í hljóðver 12 í gær og hljóðrituðu tónlist eftir Händel, Schumann, Katsatúrían og Gareth Wood. Svo verður fluttur síðasti einþáttungurinn eftir nemanda úr Borgarholtsskóla að sinni. Nakin vakt eftir Hjört Frey Hjartarson. 
Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir fiðla og  Steiney Sigurðardóttir selló flytja Allegrokafla úr Sónötu í F-dúr fyrir fiðlu og fylgirödd eftir Georg Friedrich Händel. Sólrún er nemandi Maríu Weiss og Steiney lærir hjá Örnólfi Kristjánssyni.
Ragnar Jónsson selló og Júlíana Rún Indriðadóttir píanó flytja eitt af fantasíuverkum Róberts Schumann. Ragnar er nemandi Gunnars Kvaran en Júlíana Rún er kennari við Tónskóla Sigursveins.
Finnur Karlsson baritónhorn og Júlíana Rún Indriðadóttir flytja Aubade eftir Gareth Wood. Finnur er nemandi Vilborgar Jónsdóttur.
Arndís Hulda Auðunsdóttir fiðla, Ásta Heiðrún Pétursdóttir, klarinetta og Björn Pálmi Pálmason, píanó flytja 2. þáttinn úr Tríói frá árinu 1932 eftir Aram Katsatúrían. Arndís Hulda er nemandi Gretu Guðnadóttur, Ásta Heiðrún var nemandi Einars Jóhannessonar og Björn Pálmi er nemandi Júlíönu Rúnar Indriðadóttur.
Nakin vakt eftir Hjört Frey Hjartarson: Lögreglumenn: Þuríður Davíðsdóttir og Egill Kaktus Þorkelsson Wild / Björk: Ester Rán Ómarsdóttir / Gangandi vegfarandi: Sigurlaug Sara Jónsdóttir / Farþegi í bíl: Agnes Þorkelsdóttir Wild. Hljóðvinnslu annaðist Einar Sigurðsson. 
Stjörnukíkir 47. þáttur
			<description>Játvarður bangsi, öðru nafni Bangsímon er heiðursgestur Stjörnukíkir að þessu sinni. Nýverið kom út ný þýðing Guðmunds Andra Thorssonar á fyrstu bók A.A. Milne frá árinu 1926 um þennan heimsfræga bangsa. Við heyrum Guðmund Andra, Frey Eyjólfsson og Sólrúnu Lísu Guðmundsdóttur lesa kafla úr nýrri þýðingu Guðmunds Andra auk þess sem veiddur verður úr segulbandasafninu rómaður lestur Helgu Valtýsdóttur á einni af sögum Bangsímons. Ingibjörg Þorbergs, Garðar Cortes og Jónas Ingimundarson flytja lög sem tengjast Bangsímon.  
Lög úr sönglagaflokki Harold Fraser-Simson við texta A. A. Milne. Garðar Cortes og Jónas Ingimundarson flytja á tónleikum í Gerðubergi 27. nóvember 1993. (RÚV. Óútgefið)
Bansímonvísur. Norskt þjóðlag og lag eftir Ingibjörgu Þorbergs við texta eftir Huldu Valtýsdóttur. Ingibjörg Þorbergs syngur og spilar á gítar. (RÚV. 1953)
Stjörnukíkir 48. þáttur
			<description>Sveiflukíkirinn
Stjörnukíkir verður með laufléttum stórsveitarbrag í dag en sveiflukóngar og drottningar Tónlistarskóla Seltjarnarness leggja okkur til nokkur góð stórsveitarlög. Í Tónlistarskóla Seltjarnarness hefur verið haldið úti fjörugu stórsveitarstarfi um nokkurt skeið og fyrir skemmstu héldu tveir hljóðmeistarar Ríkisútvarpsins út á Nes til að hljóðrita. Herlegheitin má heyra í þætti dagsins. 
Jingle Bell Rock eftir Jim Booth
Basin Street Blues eftir Spencer Williams
Mercy, mercy, mercy eftir Joe Zawinul
Groovin‘ Hard eftir Don Menza
Yngri stórsveit Tónlistarskóla Seltjarnarness leikur undir stjórn Kára Húnfjörð Einarssonar.
Feels so good eftir Chuck Magnione
Bellavie eftir Chuck Magnione
Beulah Which eftir Don Menza
Give all you got eftir Chuck Magnione
God Rest Ye Merry Gentlemen. Enskt þjóðlag.
Eldri stórsveit Tónlistarskóla Seltjarnarness leikur undir stjórn Kára Húnfjörð Einarssonar.
Hljóðmeistararnir Egill Jóhannsson og Jan Murtomaa hljóðrituðu.
			<itunes:summary>Sveiflukíkirinn
Jingle Bell Rock eftir Jim Booth
Basin Street Blues eftir Spencer Williams
Mercy, mercy, mercy eftir Joe Zawinul
Groovin‘ Hard eftir Don Menza
Feels so good eftir Chuck Magnione
Bellavie eftir Chuck Magnione
Beulah Which eftir Don Menza
Give all you got eftir Chuck Magnione
God Rest Ye Merry Gentlemen. Enskt þjóðlag.
Stjörnukíkir 49. þáttur
			<description>Sköpun skiptir sköpum á krísutímum og engin tilviljun að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur útnefnt árið 2009 sem ár sköpunar og nýsköpunar, á tímum þegar álfan siglir inn í djúpa kreppu. Evrópusambandið hefur útnefnt sköpunarsendiherra sem koma úr röðum heimsþekktra hugsuða, vísindamanna, meistarakokka, Nóbelsverðlaunahafa. Edward de Bono er einn þessara sendiherra en hann segir í viðtali á heimasíðu Evrópusambandsins að nú ríði á að Evrópulönd átti sig á raunverulegu vægi nýsköpunar; bendir á viðbrögð ríkisstjórna Evrópulanda við efnahagsvandanum sem einkennist iðulega af þröngsýni og mikilli hugmyndafátækt þegar skapandi og róttækar leiðir gætu skilað svo miklu betri árangri. Í fyrsta Stjörnukíki á nýju ári hittum við unga uppfinningakrakka í Foldaskóla sem hafa hannað og búið til ýmiss konar nytjahluti. Krakkarnir, ellefu ára gamlir, eru nemendur í nýsköpunarmennt sem hefur verið kennd í fjölmörg ár í Foldaskóla. Við hittum Lóu Kristínu Guðmundsdóttur, tæknimennta- og nýsköpunarmenntakennara. Svanborg R. Jónsdóttir, kennari og doktorsnemi við Háskóla Íslands hefur reynslu af því að kenna nýsköpunarmennt og hefur í rannsóknum sínum skoðað útbreiðslu fagsins innan íslenskra grunnskóla en fagið hefur verið í aðalnámsskrá grunnskóla frá árinu 1999 (sjá til dæmis grein í Netlu). Fagið hefur notið lítillar útbreiðslu og Svanborg veltir því fyrir sér í þættinum af hverju standi á tregðunni. Tónlistin í þættinum er sótt til Vienna Vegetable Orchestra en þessi bráðskemmtilega austurríska hljómsveit nýtir sér grænmeti í tónsköpun sína, spilar á sellerí og engiferrætur, eggaldin og agúrkur, paprikur og laukfiðlur. Tónlistin sótt á plötuna Automate (2003)</description>
Stjörnukíkir 50. þáttur
			<description>Í þættinum hugum við áfram að Evrópuári nýsköpunar og skapandi hugsunar, hittum nokkra sérfræðinga á sviði nýsköpunarkennslu hér á landi og unga uppfinningakrakka í Ingunnarskóla og Foldaskóla. Gísli Þorsteinsson lektor í smíði og nýsköpun við menntavísindasvið Háskóla Íslands segir frá kennslufræði nýsköpunar en Gísli rannsakar nú það viðfangsefni við Loughborough-háskólann í Englandi. Doktor Rósa Gunnarsdóttir, sérfræðingur í Menntamálaráðuneytinu er annar viðmælandi þáttarins en hún hefur einnig rannsakað eðli nýsköpunarkennslu í rannsóknum sínum. Þorgerður Hlöðversdóttir og Guðbjörg Bjarnadóttir, kennarar í nýsköpun og hönnun við Ingunnarskóla eru einnig teknar tali sem og þau Sólrún, Sara, Þorri, Helgi, Rakel, Herdís og Jósep úr Ingunnarskóla og Sigurður Ívar, Sigurður, Guðmundur Karl, Sigrún Laufey, Rannveig Sól og Elísabet úr Foldaskóla. </description>
Stjörnukíkir 51. þáttur
			<description>Gunnar Hersveinn heimspekingur, Ingimar Waage heimspeki- og myndlistarkennari í Garðaskóla og Davíð A. Stefánsson tala um gildi efans og óhlýðninnar í lýðræðisþjóðfélagi, við sláumst í för með appelsínugulu búsáhaldabyltingingunni og ræðum við nemendur í Garðaskóla sem skoða þjófélagsástandið, hvert með sínu nefi. Davíð A. Stefánsson les úr bók sinni Tvískinnu og Gunnar Hersveinn ræðir um bók sína Orðspor sem út kom fyrir síðustu jól. Tónlistin sótt til Benna Hemm Hemm, (Riotmand af plötunni Murta St. Calunga, 2008), Megasar og Möggu Stínu (Um óþarflega fundvísi Ingólfs Arnarssonar af plötunni Magga Stína syngur Megas, 2006), Vienna Vegetable Orchestra og appelsínugulu búsáhaldabyltingarhljómsveitarinnar. 
Stjörnukíkir 52. þáttur
			<description>Í norðurkjallara Menntaskólans í Hamrahlíð hittum við Snærósu Sindradóttur, 17 ára menntaskólastelpu og baráttukonu fyrir bættu samfélagi. Hún ræðir um pólitík og mótmæli og það gera líka tvö ungmenni á kaffihúsinu Hljómalind á meðan þau sötra kaffi og maula lífrænt súkkulaði. Stefán Jökulsson, lektor við menntavísindasvið Háskóla Íslands ræðir um mismunandi leiðir tjáningar og sköpunar og samtvinnun austrænna og vestrænna hugmynda um sköpunargáfuna. Skilnings- og sköpunarverkfærin eru margs konar bendir Stefán á og mikilvægt að viðurkenna þær leiðir allar í skóla og samfélagi. Tónlist þáttarins er eftir Skúla Sverrisson og Úlf Hansson, öðru nafni Klive.
Skúlí býður upp á lögin Slow Sun og Morgunn af plötunni Seríu. Flytjendur eru Anthony Burr, Eyvind Kang, Ólöf Arnalds, Hildur Ingveldardóttur-Guðnadóttir og Skúli Sverrisson. (12tónar, 2006).
Klive býður upp á lagið Wookie af plötunni Sweaty Psalms (Kimi Records, 2008) og að auki hljóðmynd af mótmælum við Þjóðleikhúsið, 21. janúar 2009. 
Einnig leikur Marc André Hamelin brot úr tilbrigðabálki Frederic Rzewski, The People United will never be defeated, sem byggir á chileönsku byltingarlagi eftir Sergio Ortega. (Hyperion. 1998).
Stjörnukíkir 53. þáttur
			<description>Rætt verður við Kristínu Atladóttur um menningar- og listneyslu ungs fólks en Kristín heldur því fram að við séum stödd í mikilli menningarbyltingu, þökk sé meðal annars tækninýjungum. Við gluggum í skýrslu frá breskum stjórnvöldum um gildi menningargeirans í þjóðarframleiðslu Breta og hvernig Bretar muni  leggja upp úr skapandi námi á næstu árum. Við hittum líka unga MR-inga sem fást við og rannsaka Meistarann og Margarítu um þessar mundir innan vébanda Herranætur og rætt verður við þremenninga í ungmennaráði UNICEF sem segja okkur frá starfi ráðsins. Tónlist þáttarins eftir Guðmund Vigni Karlsson / Kippa kanínus (Af plötunni Happens Secretly) og Jóhann Sebastían Bach / Gyorgy Kurtág (György Kurtág og Márta Kurtág spila fjórhent. Af plötunni Játékok. ECM. 1997). 
Stjörnukíkir 54. þáttur
			<description>Myndlistariðkun barna og myndlistarupplifun barna verður nokkurs konar leiðarstef í Stjörnukíki að þessu sinni. Við hittum Ilmi Stefánsdóttur myndlistarkonu að máli í Hafnarhúsinu í Reykjavík en þar tekur hún á móti ungum börnum á sýningu sinni Myndspil - þar sem verk Errós eru sett í nýstárlegt samhengi og þeim umbreytt í skapandi leik barna. Í Myndlistarskólanum í Reykjavík ræðir Hildigunnur Birgisdóttir myndlistarkona og kennari um lita- og listskynjun leikskólabarna en börn úr leikskólanum Gullborg eru á kafi í litaskynjunartíma hjá Hildigunni. Á milli þessara leiðangra skjóta Hagskælingar upp kollinum og deila með okkur kolsvörtum útsetningum á lögum úr Dýrunum í Hálsaskógi - að lokinni kjarnorkubombu. Tónlist þáttarins er eftir John Zorn og systradúettinn CocoRosie. 
Stjörnukíkir 55. þáttur
			<description>Í listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, stendur Ásmundur Ásmundsson myndlistarmaður ásamt litlum holugröfurum. Börn úr 6. ÞEG í Hlíðaskóla aðstoðuðu Ásmund við að grafa holu á Miklatúni fyrir nokkrum vikum sem fyllt var með steypu, núna er steypuklumpurinn  komin inn á gólf Hafnarhússin og við heyrum af stefnumóti Ásmunds og barnanna í Stjörnukíki. Verkið er kannski einum þræði pólitísk ádrepa um þjóð sem gróf sér sína eigin holu; mætti allavega túlkast sem svo, en litlir Hlíðskælingar líta verkið öðrum augum. Finnst það dásamlega fallegt og spennandi, frumlegt og áhugavert. "Verkið er hrukkótt og það er gott" segja þau sum "því hrukkótt list er oft áhugaverðari en sú slétta!"Krakkar úr Ungmennaráði Reykjavíkur, Hildur Inga, Freyja og Sveinn Óskar,  segja frá draumum og vangaveltum sínum um þjóðfélagsástand en þau gengust fyrir fundi á Hljómalind í vikunni þar sem rætt var um þjóðfélagsástandið út frá sjónarhóli ungs fólks og þeirra spurninga sem á því brennur. Jóhann Björnsson heimspekingur talar um hamingjuhugtakið og hamingju barna-að einblína ekki um of á framtíðina, leyfa sér að lifa í núinu og njóta þess. Í aðalnámsskrá grunnskóla má til dæmis finna eftirfarandi klausu sem Jóhann gagnrýnir og leggur út af í fyrirlestri sínum: "Það er afar mikilvægt að nemendum sé ljóst strax í 8. bekk hvað tekur við að loknum grunnskóla til þess að þeir geti nýtt sér valkosti sem þeim bjóðast í 8. 9. og 10. bekk...Þeir þurfa að horfa fram á veginn, gera uppvið sig hvert þeir vilja stefna og meta af raunsæi hvað þeir þurfa að gera til þess að ná takmarki sínu". Tónlist er eftir Opiate (af plötunni While you were sleeping, 2002), Snorra Sigfús Birgisson (Nú er Ísafoldin frjáls af plötunni Heyrðu nú hjartans málið mitt í flutningi höfundar, 2007) og Messiaen (Koss Jesúbarnsins úr Tuttugu tillitum til Jesúbarnsins í flutningi Angelu Hewitt, 1998)
Stjörnukíkir 56. þáttur
			<description>Hljóðvefnaður ungra krakka í Grandaskóla og í Tónlistarskólanum í Kópavogi er meginuppistaða leiðangursins að þessu sinni. Við heyrum af raftónlistarstefjum nemenda í 7. bekk Grandaskóla en þau Dagur Hjálmarsson, Kolbjörn Eiríksson, Kristín Björg Björnsdóttir, Þorgerður Atladóttir, Antonía Lárusdóttir og Agla Sól Pétursdóttur leyfa okkur að heyra músíkina sína og Þórdís Guðmundsdóttir tónmenntakennari segir frá notkun hljóðfærisins tölvunnar í tónmenntatímum. Úr Tónlistarskóla Kópavogs koma fjórir ungir tónlistarnemendur, leika tónlist og segja frá tónlistarnámi sínu. Runólfur Bjarki Arnarson harmonikkunemi leikur Spænsku augun eftir Bert Kaempfert; Kristín Nanna Einarsdóttir píanónemi leikur litla æfingu, Kleine Studie nr. 14 úr Barnalögum ópus 68 eftir Róbert Schumann; Gunnlaugur Björnsson gítarnemi leikur verkið La Catedral eftir Agustín Barrios Mangoré og María Ösp Ómarsdóttir leikur Rómönsu ópus 37 fyrir flautu og píanó eftir Camille Saint-Saëns. Með henni leikur Steinunn Birna Ragnarsdóttir á píanó. Hljóðfæraleikurinn var hljóðritaður í hljóðveri 12 af Georg Magnússyni í mars 2009.
Stjörnukíkir 57. þáttur
			<description>Tónlist samtímans kallar á nýja nálgun í tónlistarnámi segir Ríkharður H. Friðriksson tónskáld í leiðangri dagsins, tónlist okkar tíma byggir á annarri nálgun og annarri hljóðhugsun en hin vestræna klassíska tónhugsun byggir á. Þau Nína Hjálmarsdóttir og Sigurbjörn Saifa, nemendur við Tónver Tónlistarskólans í Kópavogi lofa okkur að heyra tóndæmi af hljóðverkum sínum. Þeir Arnmundur Ernst Backman og Sigurður Kjartan Kristinsson segja frá Svartaskóla hinum nýja og litlir þingmenn ræða um samskipti á Barnaþingi í Grafarvogi. Tónlistin er eftir Úlf Hansson (Sweaty Psalms og Sundance af plötunni Sweaty Psalms, Kimi Records 2008), Nínu Hjálmarsdóttur (Sýra, verk í vinnslu, óútg., 2009, ) og Sigurbjörn Saifa (Shinning, óútg., 2009).
Stjörnukíkir 58. þáttur
			<description>Í Bogasal Þjóðminjasafns Íslands stendur nú yfir ljósmyndasýningin Þrælkun, þroski, þrá? sem bregður upp ljósmyndum af íslenskum börnum við vinnu tengd sjómennsku. Flestar myndirnar eru eftir Guðbjart Ásgeirsson,  ísfirskan áhugaljósmyndara sem vann fyrir sér sem matsveinn í marga áratugi og skrásetti í leiðinni líf um borð í íslenskum togurum og þar með líf íslenskra barna á íslenskum skipum. Sigrún Sigurðardóttir, höfundur sýningarinnar segir frá ljósmyndum og ræðir um viðhorf Íslendinga til vinnumenningar og vinnu barna. Með sýningunni er varpað fram spurningum sem snerta vinnu barna á Íslandi og viðhorf þjóðarinnar til barnavinnu, nú og þá. Í þættinum heyrum við börn árið 2009 lýsa ljósmyndum af ungum krökkum við vinnu. Tónlistin í þættinum eftir Hildi Ingveldardóttur Guðnadóttur (af plötunni Without Sinking, Touch, 2009) og í flutningi Bardos-sveitarinnar (af plötunni Dream-Songs, Bardos-Band, 2005).
Stjörnukíkir 59. þáttur
			<description>Við hittum nokkra músíkanta sem slógu í gegn á nýafstöðnum Músíktilraunum. Dúettinn Captain Fufanu sem skipaður er Hrafnkeli Flóka Einarssyni og Guðlaugi Halldóri Einarssyni, dúettinn Spelgur sem skipaður er Stefaníu Eysteinsdóttur og Katrínu Helgu Andrésdóttur og einyrkjann Ljósvaka, öðru nafni Leifur Eiríksson. Þau segja frá lagasmíðum og tónlistartilraunamennsku og bjóða upp á nokkur lög.
Stjörnukíkir 60. þáttur
			<description>Rætt við unga ljósmyndara sem sótt hafa námskeið í heimildaljósmyndun hjá ítalska fréttaljósmyndaranum Cinzia d‘Ambrosi í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Þau Halldóra Eldjárn, Haukur Dór Bragason, Zoë Robert, Sigrún Antonsdóttir og Styrmir Kári Erwinsson segja frá viðfangsefnum á námskeiðinu og Cinzia d‘Ambrosi segir frá viðhorfum sínum til starfs ljósmyndarans. Mannréttindi eru rauður þráður í verkum hennar en hún hefur ferðast um allan heim og vakið athygli á kjörum verkamanna, flóttafólks og fólks í stríðshrjáðum löndum með myndum sínum. Um þessar mundir má sjá myndir hennar af kínverskum kolanámumönnum til sýnis í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi og um næstu helgi opnar sýning á verkum ljósmyndanemenda hennar.
Einnig koma í þáttinn þær Kristín Einarsdóttir Mäntyle, Kristin Sveinsdóttir og Guðrún Matthildur Sigurbergsdóttir, söngkonur í Graduale Nobili sem skipaður er ungum konum á aldrinum 17 til 25 ára heimsækja þáttinn. Graduale Nobili var stofnaður árið 2000 af Jóni Stefánssyni og skipaði sér strax í flokk með bestu kórum landsins en í sumar hyggur kórinn á þátttöku í alþjóðlegri kórakeppni í Wales. Af því tilefni heldur kórinn tónleika annað kvöld í Langholtskirkju. 
Tónlist í þættinum er eftir Rautavaara, Hildigunni Rúnarsdóttur, hljómsveitina Múm, Opiate og íslenskt þjóðlag í útsetningu Valgeirs Sigurðssonar, Ben Frost, Sam Amidon og Nico Muhly. 
Stjörnukíkir 61. þáttur
			<description>Svipast verður um á jarðhæð Listasafns Íslands en þar má nú sjá sýningu ungra nemenda úr Myndlistarskólanum í Reykjavík sem innblásin er af list Magnúsar Pálssonar myndlistarmanns. Ungu listamennirnir hafa kynnt sér myndlist Magnúsar sem nú er til sýnis á Listasafni Íslands og í Myndlistarskólanum í Reykjavík og unnið sín eigin verk út frá hugarheimi og efnisnotkun Magnúsar. Með þessu samstarfsverkefni fræðsludeildar Listasafns Íslands og Myndlistarskólans í Reykjavík er ætlunin að efla og dýpka vitund og þekkingu ungra myndlistarmanna á íslenskri samtímamyndlist. Sú hugsun er einnig ráðandi í verkefni Listasafns Reykjavíkur, Flakkaranum sem nú flakkar um íslenska grunnskóla í formi kistu. Inni í þeirri kistu leynist íslensk samtímamyndlist eftir Birgi Andrésson, Ólaf og Líbíu Castro, Ólöfu Nordal, Hallgrím Helgason, Erró, Kristján Davíðsson og fleiri en sýningin er nú staðsett í Langholtsskóla. Í þættinum verður litið inn í Langholtsskóla; einnig verður rætt við Magnús Pálsson myndlistarmann um hugmyndir hans um kennslu og svipast verður um á Þjóðleik, stærstu leiklistarhátíð Íslandssögunnar sem fram fór á Egilsstöðum um síðustu helgi. Tónlistin í þættinum er eftir Benna Hemm Hemm, Hildi Ingveldardóttur Guðnadóttur og Tómas Knak. 